Hemmi frændi podcast artwork

PODCAST · comedy

Hemmi frændi

Hefur þú áhuga á bulli, vitleysu og áhugaverðum gestum? Þá ert þú á réttum stað. Hemmi frændi býður upp á spjall um allt milli himins og jarðar, gesti sem vita hluti, og grín og gys. Er hægt að biðja um meira?

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Apr 16, 2026 · Source feed

  1. 82

    82 - Hemmi ræðir gervigreind

    Arnar Hauks og Gunni Bö mæta í spjall um gervigreind og tengd málefni. Bjarni ræðir mjöðmina sína og Einar er í málaferlum.

  2. 81

    81 - Hemmi Bjarnar Gaut

    Bjarni Gautur boðberi dánarfregna, kvikmyndagerðarmaður, leikari, rappari, ritstjóri, sófaeigandi og uppistandari var gestur Hemma frænda að þessu sinni. Íslenska tungan er hægt og rólega að deyja út en Bjarni hyggst bjarga henni með útgáfu Hetjumyndasagna á móðurmálinu. Boðið var upp á kaffi og egg með spjallinu sem hverri hetju sæmir sem gott kann að meta.

  3. 80

    80 - Hemmi endurkemur

    Fyrsti snjórinn fallinn, jólabjórinn kominn í bæ og Airwaves í fullum gangi. Þetta og margt fleira var ekki rætt í þessum endurkomu þætti Hemma frænda eftir langa bið ástkærra hlustenda. Sperrið eyrun og leyfið Hemmanum að flæða.

  4. 79

    79 - Látt’ekki Svona Hemmi frændi - Jólaþáttur

    Gleðileg jól kæru hlustendur! - Þessi þáttur er einnig í boði í MYND á Hemma frænda síðunni á Youtube! - Þessi einstaki jólaþáttur var gerður í samvinnu með uppistöndurunum góðkunnu Arnóri Daða Gunnarssyni og Þórhalli Þórhallssyni í Látt'ekki Svona. Um tuttugu mínútur inn í þáttinn verður allt rafmagnslaust af því við gerðum grín að frelsaranum. Það er auðvitað bannað og við hættum því umsvifalaust. Vonandi eigið þið gleðilega hátíð og Hemmi frændi óskar ykkur farsældar að nýju ári.

  5. 78

    78 - Hemmi fær heilablóðfall með Arnóri

    Arnór Daði Gunnarsson kom í þáttinn með litlum fyrirvara því Þórhallur Þórhallsson skrópaði. Takk Arnór. Horfið á allt stöffið hans Arnórs á VOD-inu einhversstaðar og bara gúgglið hann og eitthvað. Ekki gúggla Þórhall. Arnór kom með kerti.

  6. 77

    77 - Hemmi leigir barnavörur af Ástu

    Frábæra manneskjan og frumkvöðullinn Ásta Rós Árnadóttir kom og sagði Hemmunum frá fyrstu íslensku barnavöruleigunni MiniRent.is sem hún og vinkonur hennar: Ragnhildur Inga og María Sigurborg hentu í framkvæmd á aðeins þremur mánuðum! Ásta hefur reynslu af því að ferðast erlendis með ung börn og þekkir því brasið við að ferðast með barnavörur erlendis. Hún vil gera barnafólki lífið auðveldara, hvort sem þau eru á leiðinni í ferðalag erlendis eða að heimsækja Ísland og allt þar á milli. Fjölnota fullorðinsbleyjur eru því miður ekki til á lager hjá MiniRent en Hemmarnir henda kannski bara sjálfir í fyrirtæki eftir ráðgjöf frá Ástu. Bjarni biðst innilegrar afsökunar á að hafa fokkað upp hljóðinu en þið getið lítið kvartað þar sem þið borgið ekki krónu fyrir þáttinn nirflarnir ykkar! Hljóðið verður lagfært í næsta þætti kæru hlustendur.

  7. 76

    76 - Hemmi fær Evu í sigtið

    Jussutussumelluhóra hvað framtíðin er björt í rafíþróttum nú þegar Eva Margrét Guðnadóttir er orðin formaður Rafíþróttasamtaka Íslands. Að auki er hún viðburðastjóri í Arena í Kópavogi og meistaranemi í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði í HR (sem hún ætlar sér aldrei að vinna við). Þegar hún er að plaffa fólk í sundur heitir hún EvaSniper69 og þið getið séð hana og sveittu BabePatrol vinkonur hennar á Twitch þar sem þær eru í beinni á miðvikudögum klukkan 21:00. Ekkert sprell var í þættinum en nóg um fíflagang.

  8. 75

    75 - Hemmi skorar sjálfsmarkþjálfun með Önnu

    Kulnunarmarkþjálfinn og skemmtikrafturinn Anna Claessen heiðraði Hemmana með ráðum sínum og dáðum. Hún er orkumikil, veraldarvön og hefur afhent Tom Hanks Diet Pepsi. Anna og kollegi hennar Friðrik Agni eru til staðar fyrir þig í Happy Studio þar sem þau bjóða upp á leiðir til að takast á við kulnun, finna gleðina á ný og ná árangri í lífinu. Lögfræðingar Hemma frænda eru enn að ræða við lögfræðinga Önnu um hvort hún megi rukka fyrir ráðgjöfina sem hún veitti í þættinum.

  9. 74

    74 - Hemmi fær Arnór 2.0

    Arnór Daði Gunnarsson er töluvert betri manneskja en alnafni hans sem kom síðast í heimsókn. Hann hefur verið afreksmaður frá unga aldri, snertir ekki sukk og er kominn faglega mun lengra í lífinu. Þegar hann tók rétta beygju í lífinu tók hinn Arnór ranga beygju og þær beygjur voru margar og flestar út af brautinni. Dæmi hver fyrir sig en þessi Arnór hefur greinilega fengið öll góðu genin við nafngiftina. Þetta er auðvitað engin keppni en Hemmi frændi veit núna hvaða hest hann setur peningana sína á.

  10. 73

    73 - Hemmi fær Arnór - Hann bara fær hann

    Arnór Daði Gunnarsson grínmanneskja er næs og ligeglad gestur. Honum var boðið aftur í þáttinn því hann hagaði sér vel síðast. Aðrir eldri gestir fá jafnvel ekki boð aftur. Gúgglið big, small town kid það er gott stöff.

  11. 72

    72 - Hemmi kemur úr vetrarfríi

    Arnar „leikaravinur“ Hauksson kemur í heimsókn til Hemma frænda og lætur grípa fram í fyrir sér. Strákarnir íhuga að taka upp vegan lífstíl eftir að hafa smakkað dýrindis smákökur sem maður prumpar ekki mikið af. Bjarni er að fara að missa íbúðina, Einar býr í hjólhýsi og Arnar er bara að leika sér.

  12. 71

    71 - Hemmi Hugar að Katli

    Ketill Hugi Hafdal Halldórsson heimsækir Hemma í hátíðlegu hlaðvarpi hæstánægður með hetjudáð, hárið, og hestana sína. Hressari mann í verkfræðinámi er ekki hægt að finna enda alveg með á hreinu hvað krítískur hiti og þrýstingur eru. Svo spilar hann á risavaxna fiðlu í þokkabót. Selt!

  13. 70

    70 - Hemmi fær sér MC Bjór

    Annar þáttur Hemma frænda árið 2021 er kominn í loftið og einhverra hluta vegna er hljóðið komið í lag. Rapparinn MC Bjór, Róbert Sveinn Lárusson, heiðrar Hemmana með nærveru sinni, ræðir tónlistarferil sinn og komandi verkefni. Ef þið kunnið að meta rapp, jólin og fermingar þá er það alveg frábært en þátturinn fjallar eitthvað smá um það. Splæsið „MC Bjór“ í leitarreitinn á Spotify, Youtube eða Soundcloud til að fræðasta meira um kauða.

  14. 69

    69 - Hemmi kemur úr sumarfríi

    Eftir langa bið er Hemmi frændi loksins kominn úr sumarfríi. Ekkert sérstakt var undirbúið við endurkomuna heldur er einungis að finna sama gamla röflið. Græjurnar í Hemma frænda eru orðnar eitthvað ryðgaðar eins og heyrist á pirrandi aukahljóðunum í upptökunni. Athugið að ekki er verið að vinna að því að bæta gæðin á hljóðinu.

  15. 68

    68 - Hemmi fær Kristófer í kaffi

    Vegna tæknilegra örðugleika í mixernum hjá Hemma frænda þurfti töluverða klippingu fyrir þennan þátt. Þess vegna kemur Kristófer Þorri Haraldsson (Klipptófer) í þáttinn til að snyrta Hemmana til og segja þeim sögur úr sveitinni þar sem hann hefur gripið í margan spenann. Hemmi frændi er nú kominn í smá sumarfrí og hlakkar til að kvelja eyru ástkærra hlustenda aftur von bráðar. Gleðilegt sumar og heyrumst síðar!

  16. 67

    67 - Hemmi fær Davíð í sögur

    Davíð Már Gunnarson, hinn nýjungagjarni lífskúnstner, heiðrar Hemma frænda með viðveru sinni í þessum þætti. Hann er einn hressasti og jákvæðasti maður sem hægt er að finna á árinu 2020 og geislar af vinsemd og virðingu. Athugasemdir í þættinum gætu fengið þig til að brosa.

  17. 66

    66 - Hemmi fær Almar í kaffi

    Listamaðurinn Almar Steinn Atlason er gestur Hemma frænda í einum mest sextugasta og sjötta þætti sem gerður hefur verið. Almar ræðir við Hemmana um listina, tímann og Íslandspóst en á mörgu þarf að taka innan veggja skriffinskubáknsins ógurlega sem heltekið hefur sál þjóðarinnar. Þess má geta að Bjarni og Almar eru skyldir í fimmta og fjórða ættlið. Ættliði að trúa þessu?

  18. 65

    65 - Hemmi fær skoðun hjá Valgerði

    Af einskærri manngæsku heimsækir Valgerður Briem Magnúsdóttir Hemma frænda og segir frá ævintýrum sínum um heim allan. Valgerður er hrædd um að barnaverndarstofa taki af henni son sinn vegna viðtalsins og er hún því flutt til Noregs þar sem þau mæðgin eru óhult fyrir oti þeirra og poti.

  19. 64

    64 - Hemmi fær lánaðan súpupott

    Hann er kominn aftur til Hemma frænda. Grallarinn, brallarinn og súpumallarinn Gunnar Þór Böðvarsson. Ævintýrin sem einn maður getur lent í eru með ólíkindum og fá Hemmarnir að heyra allt um þau. Verði ykkur að góðu.

  20. 63

    63 - Hemmi ferðalangar í sumarfrí

    Ferðalangurinn Elísabet Ýr Guðjónsdóttir kemur aftur í heimsókn til Hemma frænda en hún er betri helmingur víðförla dúósins @twotravellingidiots. Hlutir, fólk og staðir verða ræddir í þættinum og er því lítið frá brugðið fyrir elskulega aðdáendur þáttarins.

  21. 62

    62 - Hemmi fær Gná í spjall

    Í forsvari fyrir unga fólkið í landinu er Gná Elíasdóttir Tik Tok stjarna. Hún kann að olla á bretti, kann alls konar skammstafanir og segist hafa verið markvörður FC Barcelona á yngri árum sem er helber lygi. Við bjóðum hana samt velkomna og heyrum hvað unga fólkið er að gera þessa dagana.

  22. 61

    61 - Hemmi Ólar Arnar

    Tónlistarmaðurinn Holy Hrafn er við það að gefa út nýja plötu og leyfir okkur að fá smakk af henni í seinni hluta þáttarins. Arnar "leikaravinur" Hauksson fær að vera með og segir já og einmitt allan þáttinn. Annars erum við bara að tala um allt og ekkert eins og venjulega hjá Hemma frænda.

  23. 60

    60 - Hemmi sextugur

    Þegar Hemmi frændi hleypur á tug má alltaf vænta þess að minnsta mögulega orka fór í gerð þáttarins enda eru Hemmarnir að þessu sinni bara að tuða við hvorn annan um allt og ekkert að venju. Bjarni fær vinnu hjá Reykjavíkurborg og getur ekki haldið kjafti á meðan Einar hefur voða lítið að segja.

  24. 59

    59 - Hemmi spjallar við Sólborgu

    Hún er að læra lögfræði, gefa út bók og tónlist með hægri hendinni á meðan hún tekur á móti verðlaunum og berst fyrir réttlátara samfélagi með vinstri hendinni. Svo situr þú og tuðar af því þér finnst árið 2020 vera aflýst. Sólborg Guðbrandsdóttir fórnaði smá tíma úr lífi sínu til að koma í létt spjall og heiðraði Hemma frænda með nærveru sinni.

  25. 58

    58 - Hemmi hlustar á Isaac

    Isaac Jameson er gestur Hemma frænda að þessu sinni og ræðir hann m.a. hvernig tónlistin hefur hjálpað honum í gegnum erfiðleika lífsins. Síðasta föstudag gaf hann út sína fyrstu hljómplötu á Spotify: Forest, undir sínu nafni þar sem hann spreytir guðdómlega söngrödd sína og fagran gítarleik.

  26. 57

    57 - Hemmi grillar í Agli

    Egill Karel Logason kemur í annað sinn til Hemma frænda vopnaður nákvæmlega einni spurningu sem er ekki stolin frá Hemmunum í stað þess að spyrja þá spjörunum úr líkt og planið var upprunalega. Þátturinn reddast samt alveg því Egill er hress gæji og flottur strákur.

  27. 56

    56 - Hemmi Óskar sér

    Einn helsti meðlimur fellgönguhópsins Fellingarnar, Óskar Logi Ágústsson, er svo rausnarlegur að koma í heimsókn til Hemma frænda. Hann talar lítið um fellgöngur en alveg slatta um hljómsveit sína The Vintage Caravan í hverri hann leikur á gítar, syngur og semur lög fyrir. Óskar er með geggjaðan fatasmekk og er rauðhærður.

  28. 55

    55 - Hemmi hittir Móu

    Móeiður Sif Skúladóttir er að reyna að komast í ræktina, keppa í fitness og verða flugfreyja en staðan í heiminum er ekki henni í hag. Þess í stað útbýr hún sína eigin rækt í bílskúrnum, viðheldur mataræðinu af mikilli yfirvegun þangað til fitnesskeppnin verður haldin og bíður þolinmóð eftir atvinnutækifæri. Hún á sætan hund og bros sem drepur.

  29. 54

    54 - Hemmi Gunn-ar sig í gang

    Hvað hefur þú farið á marga tónlistar- og/eða skemmtanaviðburði erlendis? Ekki jafn marga og orkuboltinn Gunnar Hjörtur Baldvinsson sem hefur ferðast um víðan völl og prófað ein villtustu partý sem jörðin hefur upp á að bjóða. Hann tók veiruvánna í nösina og skipulagði dagskrá fram í tímann svo hann hefði eitthvað skemmtilegt að gera hvern dag í þessu skítaástandi. Flottur strákur sem fýlar Vikings og Starwars en það er bara hann.

  30. 53

    53 - Hemmi bragðar á sósu

    Í þessum þætti svamla Hemmarnir í gegnum ýmsar pælingar eftir að hafa smakkað sterka sósu sem var svo ekkert svo sterk. Annars bara eitthvað raus um kúk og dauðann. Þið vitið alveg hvað þið eruð að fá þegar þið veljið Hemma frænda sem áhlustunarefni.

  31. 52

    52 - Hemmi afmælar sig

    Þá er komið ár frá því að Hemmi frændi rann fyrst í hlað og vegna fjölmargra eftirspurna mun koma í ljós hvers vegna þátturinn ber það nafn. Arnar „Leikaravinur“ Hauksson kemur í spjall og hver veit nema Hemmarnir hleypi honum að í samtalið að þessu sinni. Goðsagnakennda atvikið á Ship Anson í starfsmannaferð Isavia til Portsmouth árið 2018 verður reifað í þættinum og Davíð Þór „Toolshed“ Logason, stærsta vitnið í málinu, leysir loks frá skjóðunni um hvað raunverulega átti sér stað innan veggja skemmtistaðarins þetta örlagaríka kvöld.

  32. 51

    51 - Hemmi í einangrun

    Í þessum gestalausa þætti Hemma frænda ræða Bjarni og Einar um typpalækna, atvinnumál og samfélagið á þessari ögurstundu þar sem Covid-19 heldur öllum í heljargreipum. 

  33. 50

    50 - Hemmi hittir Konna Gotta

    Ertu í atvinnuleit en enginn vill ráða þig til starfa? Ert jafnvel með flekklausa ferilskrá, hefur sótt Dale Carnegie námskeið og með meðmæli frá Forsetanum? Þá viltu heyra sögu Konráðs Gunnars Gottliebssonar sem varð einn eftirsóttasti starfskraftur landsins vegna örlagaríks myndbands. Konni Gotta sækir ekki um störf heldur sækja störfin um Konna Gotta. Tjekkið á honum á samfélagsmiðlum undir nafninu konnigotta.

  34. 49

    49 - Hemmi hótar Arnóri

    Arnór Daði Gunnarsson er frá Hauganesi. Hann er kannski ekki færasti uppistandarinn samkvæmt dómnefndinni á Íslandsmótinu í uppistandi 2020 en hann er að minnsta kosti flottur strákur.

  35. 48

    48 - Hemmi Mixar Magga

    Þegar maður leitar ráða sækir maður í reynslu. Maggi Mix, ein reyndasta og langlífasta samfélagsmiðlastjarna Íslands, heiðrar Hemmana með nærveru sinni og segir þeim sögur um líf sitt og störf í þágu þjóðarinnar.

  36. 47

    47 - Hemmi spennir Greip

    Greipur Hjaltason vann Íslandsmótið í uppistandi árið 2020. Hann er næstum tveir metrar á hæð, vinnur á frístundaheimili (ekki leikskóla) og er stundum fyndinn. Beðist er velvirðingar á öskurhlátri í þættinum.

  37. 46

    46 - Hemmi Helgar sig Ástu

    Þau koma færandi hendi í þáttinn með Durian konfekt og Kopi Luwak kaffi sem fær misgóðar undirtektir Hemmanna. Ásta Rós Árnadóttir og Helgi Arason hafa marga fjöruna sopið víðs vegar um hnöttinn og segja okkur meðal annars frá Asíureisunni sem þau fóru í ásamt 7 mánaða dóttur þeirra fyrir skömmu. Ef þú finnur lykt af blautum sokkum er það bara daunninn af Durian konfektinu að smitast í gegnum hljóðkerfið þitt.

  38. 45

    45 - Hemmi fær Telmu í sögur

    Hvernig er að leika berbrjósta í bíómynd, missa fullorðins framtennurnar og fá boð frá áströlskum hlutabréfabraskara um að koma hinumegin á hnöttinn í rómantíska heimsókn? Leikkonan Telma Huld Jóhannesdóttir segir okkur frá nokkrum af þeim fjölmörgu ævintýrum sem hún hefur lent í á lífsleiðinni. Þið finnið meira um Telmu á vefsíðu hennar https://www.telmajoa.com.

  39. 44

    44 - Hemmi hremmir Holy Hrafn

    Hann er tónlistarmaður, pin númerið hans er einhver útgáfa af 7-9-13 og honum finnst Einar vera hnyttinn. Farðu á Spotify eða Youtube til að heyra mergjaða tónlist Holy Hrafns en hlustaðu samt fyrst á þáttinn. Þess vegna ertu hérna auðvitað. Nema þú lesir alltaf bara lýsinguna á þættinum og ferð síðan einhvert annað. Það væri virkilega furðulegt bara svo þú vitir.

  40. 43

    43 - Hemmi fer með Sólimann í siglingu

    Ágúst Thór Sólimann er skipstjórinn á skútunni Jón Guðmundsson. Undanfarin ár hefur hann verið á siglingu um Atlants-, Miðjarðar- og Eyjahaf þar sem hann hefur boðið fólki að slást í för með sér til að læra að sigla skútu eða einfaldlega njóta lífsins á fallegum stöðum. Gústi segir okkur frá ferðalögum sínum og hvernig hann fékk þá hugmynd að leggja í þetta ævintýri. Áhugasamir geta pantað ferðir á Facebook síðunni hans Solimann Sailing eða skoðað myndir á Instagram reikningnum solimannsailing.

  41. 42

    42 - Hemmi fær Inga í heimsókn

    Ingi Eggert Ásbjarnarson er einn fremsti söngnemi Reykjanesbæjar um þessar mundir. Hann hefur leikið í stórverkum á borð við Benjamín dúfa, Flags of our fathers og nú nýlega Fiðlarinn á þakinu í útsetningu tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Ef þið nennið að hlusta fram að miðju eru smáuglýsingar að finna þar. Getið líka spólað bara. Hlustið samt endilega á allan þáttinn.

  42. 41

    41 - Hemmi Helgar sig bardagaíþróttum

    Þegar Helgi „Flex“ Rafn Guðmundsson er á svæðinu er alltaf mikil orka í loftinu. Jafnvel latasta fólkið finnur fyrir lífskraft þegar hann er nálægt enda er hann með viðkunnanlegustu, jákvæðustu og afkastamestu mannverum jarðarinnar. Hemmi frændi sóar viðtalinu auðvitað í einhverja vitleysu eins og venjulega enda hefur hún verið einn helsti burðarbiti þáttarins frá upphafi.

  43. 40

    40 - Hemmi fær Turbo í chat

    Þórir „TurboDrake“ Viðarsson segir Hemmunum frá heimi rafíþrótta og starfi sínu sem formaður rafíþróttadeildar KR. Þórir hefur lengi verið viðriðinn rafíþróttabransann á Íslandi og þekkir inn á alla helstu tölvuleikina sem keppt er í. Í lok þáttarins fá hlustendur að heyra lagið bangsapabbi eftir Þórir sem er án efa besta lag sem hefur verið spilað í Hemma frænda á árinu 2020.

  44. 39

    39 - Hemmi fær Rakel í sögur

    Ólátabelgurinn Rakel Ólöf Andrésdóttir kemur til Hemma frænda og segir sögur úr æsku sinni sem líkjast frekar skáldsögubútum eftir Astrid Lindgren en raunverulegu lífi. Smáuglýsingarnar eru komnar aftur eftir fjölmargar eftirspurnir og þátturinn byrjar á þvaðri hjá Bjarna og Einari um lasertag og hvor þeirra ætti að vera krýndur skyndihjálparmaður ársins.

  45. 38

    38 - Hemmi fær Ellen í heimsókn

    Loksins loksins! Ellen Austmann, aðdáandi og auglýsandi Hemma frænda númer eitt, er mætt til að ræða mikilvæg málefni líðandi stundar og gleðjast með Hemmunum á nýju ári. Ekki missa af þessum. Eða þúrst, gerðu bara það sem þú vilt en það væri frábært ef þú myndir hlusta á þennan. Takk.

  46. 37

    37 - Hemmi fær köttinn í kaffi

    Flugvirkinn og fréttahaukurinn Guðmundur Hallur „kötturinn“ Hallsson kemur í nýjárskaffi til Hemma frænda. Deiglan, flugvirkjun, trommusláttur og margt fleira er til umræðu í þættinum.

  47. 36

    36 - Hemmi áramótar Magga

    Magnús Bjarni Gröndal er gestur í áramótaþætti Hemma frænda 2019-2020. Hann er með sólóverkefnið Mighty Bear og er einnig söngvari/gítarleikari post-metal bandsins We Made God. Maggi er talinn af mörgum vera hressasti gestur Hemma frænda ársins 2019.

  48. 35

    35 - Hemmi fær Gunna í jólapeysu

    Gunnar Þór Böðvarsson er gestur í jólaþætti Hemma frænda. Hann segir okkur frá íkornum, Kínverjum og tölvuleikjanámi í Noregi. Óstaðfestar heimildir um Jesú Krist koma fram í þættinum sem eru að öllum líkindum fleipur og málræpa.

  49. 34

    34 - Hemmi fær Tönyu í jólaöl

    Tanya Lind Pollock ræðir við Hemma frænda um seiðlist, tónlist, jólin, páskana og líf sitt. Mosi sonur hennar og Gunnar Ragnar Sveinbjörnsson kærasti fá að segja nokkur orð líka.

  50. 33

    33 - Hemmi fær Egil í heimsókn

    Egill Karel Logason er gestur Hemma frænda að þessu sinni. Hann er einn af fáum aðdáendum þáttarins sem fær að koma og sjá undir huluna hjá Hemma frænda og spyrja þáttastjórnendurna spjörunum úr en Bjarni fer einmitt úr buxunum í þættinum.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hefur þú áhuga á bulli, vitleysu og áhugaverðum gestum? Þá ert þú á réttum stað. Hemmi frændi býður upp á spjall um allt milli himins og jarðar, gesti sem vita hluti, og grín og gys. Er hægt að biðja um meira?

HOSTED BY

Hemmi Frændi

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Hemmi frændi have?

Hemmi frændi currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Hemmi frændi about?

Hefur þú áhuga á bulli, vitleysu og áhugaverðum gestum? Þá ert þú á réttum stað. Hemmi frændi býður upp á spjall um allt milli himins og jarðar, gesti sem vita hluti, og grín og gys. Er hægt að biðja um meira?

How often does Hemmi frændi release new episodes?

Hemmi frændi has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Hemmi frændi?

You can listen to Hemmi frændi on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Hemmi frændi?

Hemmi frændi is created and hosted by Hemmi Frændi.
URL copied to clipboard!