Skip to content
Hismið hlaðvarp podcast artwork

PODCAST · news

Hismið hlaðvarp

by Hismið hlaðvarp

Hlaðvarp um ekkert.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Apr 15, 2026 · Source feed

Episodes

  1. Lokadans Hismisins - Takk fyrir okkur!

    Hismið þakkar fyrir sig og kveður eftir níu góð ár í loftinu. Í lokaþættinum, sem tekinn var upp í beinni í brugghúsinu Ægisgarði að viðstöddum 160 manns, förum við yfir upphafið, söguna, helstu rekstrartölur þáttarins, fáum til okkar góða gesti og gösum um ekkert í síðasti skipti. Takk fyrir...

  2. Hismið - Allt hey heim í hlöðu

    Hismið mætir í síðasta sinn saman í höfuðstöðvum þáttarins og ræðir meðal annars um undirbúning live shows og lokaþáttinn í næstu viku. Farið er yfir vinnubrögð í unglingavinnunni, stöðuna á miðunum, hvalveiðar og árásir Sea Shepard samtakanna á hvalveiðaflota Kristjáns Loftssonar árið 1986.…

    more
  3. Hismið - Er stormur í aðsigi?

    Í Hismi vikunnar tökum við vandaða 360 gráðu greiningu á efnahagslífinu, ræðum pólitíkina og væringar um formannsembætti Samfylkingarinnar, fáum stöðuna á undirbúningi Árna fyrir Laugavegshlaupið og greinum frá undirbúningi fyrir lokaþátt Hismisins sem tekinn verður upp í beinni.

  4. Hismið - Stjórnmálin eru eins og gamanleikur

    Hismið fær engan annan en Sigtrygg Magnason, hinn íslenska Kasper Juul, í settið og ræðir sigurgöngu Framsóknarflokksins að undanförnu og landslagið í pólitíkinni yfir höfuð, nekt, hlaup og jóga og kónginn í Boston.

  5. Hismið - Hvítar tennur og skrifstofumannaaxlir

    Í Hismi vikunnar förum við yfir ferð Grétars til meginlandsins, skrifstofumannaaxlir, tannhvíttunarferli Árna og meirihlutaviðræður í borginni.

  6. Hismið - Odd(vit)aleikur í körfu og pólitík

    Í Hismi vikunnar gerum við upp tvo stóra viðburði undanfarna viku - sveitastjórnarkosningarnar og oddaleik Vals og Tindastóls í körfubolta - með Atla Fannari Bjarkasyni fjölmiðlamanni. Við förum yfir stemminguna í Skagafirðinum, geitina í Val, meirihlutaviðræður og störukeppni flokkanna í...

  7. Hismið - Gamli skólinn snýr aftur

    Í Hismi vikunnar förum við yfir kosningarnar á laugardaginn, kröfur sem við gerum á stjórnmálamenn, endurkomu hjá gamla skólanum og baráttu við kerfil í Litla Stokkhólmi.

  8. Hismið - Hvor er glæsilegri - Dagur B eða Einar Þorsteins?

    Í Hismi vikunnar byrjum við á tímamótayfirferð um veitingastaðaflóruna á Grandanum, förum svo yfir sveitastjórnarkosningarnar, besta íslenska bloggarann og starfslok hjá gamla skólanum.

  9. Hismið - Mislæg gatnamót í Viðey

    Í þætti dagsins er farið yfir bankasölu málið, sveitarstjórnarkosningar sem eru framundan og ítarlega útfærðar pælingar um að breyta Viðey í mislæg gatnamót og metnaðarfullan ríkisforstjóra sem er búinn að 2.0-væða Ríkiskaup og búa til nýja stefnumótun í formi geimflaugar.

  10. Hismið - Sjomlar á markaði og í Liverpool

    Í Hismi vikunnar förum yfir rólega fréttaviku og gerum upp ummæli Sigurðar Inga og sjomla söluna á Íslandsbanka. Þá förum við yfir nýja loftbrú til Liverpool, 15 mínútna hverfið, hlaupahóp Árna og hugsanlegan nýjan feril Grétars.

  11. Hismið - Að vera leiðinlega hamingjusamur

    Í Hismi vikunnar förum við yfir leiðinlegasta fólk í heimi samkvæmt vönduðum rannsóknum, afstöðu kjósenda flokkana til borgarlínu og þéttingar byggðar, og vöntun á þjónustu í nýjasta hverfi borgarinnar. Þá fáum við fréttir af undirbúningi Árna fyrir Laugavegshlaupið og flettum blöðum dagsins.

  12. Hismið - Hvítur Monster í Eyjum

    Í Hismi vikunnar förum við yfir atlögu að virðingu Alþingis, prófkjör í Eyjum þar sem Hismið lýsir í fyrsta sinn opinberlega yfir stuðningi við frambjóðenda, söluna á Íslandsbanka og stöðuna í Úkraínu. Þá fara umsjónarmenn yfir umdeildar myndir sem birtust af þeim á Smartlandinu í vikunni.

  13. Hismið - Verðbólgin augu og lýðræðisveisla

    Í Hismi vikunnar förum við yfir New York ferð Grétars, verðbólguna, hlaupaáskorun Árna, miðaldra hjólahóp sem festist á Spáni, lýðræðisveisluna sem prófkjörin eru og í hverju góð þjónusta felst.

  14. Hvað heitir mamma hans Niki Lauta?

    Hismismenn snúa aftur eftir stutta ferð í skíðabrekkurnar á meginlandið og kryfja upplifun Árna af sinni fyrstu skíðaferð, helstu slagarana af Aprés og mætingu umsjónarmanna í morgunmat. Þá er farið yfir stöðuna í Úkraínu, viðskiptatækifæri í Heiðarlegu Kauphöllinni og skærgræn hlutabréf í…

    more
  15. Hismið - Rafbílaraunir og skyrbarsvæðingin

    Í Hismi vikunnar er farið yfir stóra fréttaviku, afléttingar á sóttvörnum og innrás Rússa í Úkraínu með Karli Pétri Jónssyni, almannatengli. Endalok Dóra í Mjóddinni eru einnig krufin og Árni fer yfir það hvernig hlutabréfin í honum tóku stóra dýfu á dögunum.

  16. Hismið - Hvernig verður sería tvö af Verbúð?

    Í Hismi vikunnar förum við yfir nýtt #current ráðuneyti, áhugaverðar afléttingar, hvernig sería tvö af Verbúðinni gæti litið út, átökin í Eflingu og rekstrarumhverfið í Eyjum.

  17. Hismið - Heiðarleiki og nýsköpun

    Sóttvarnaráætlun Hismisins hefur verið virkjuð og vinnur tæknideild þáttarins enn eitt þrekvirkið í þætti vikunnar, en þar förum við yfir stöðu mála í faraldrinum, alvöru hagstjórn í Tyrklandi, bullandi vöruþróun hjá Sigga Royal, ákveðin hápunkt nýsköpunarsenunnar og stóra samlokumálið sem hefur...

  18. Fjárfestakynning Hismisins: Sigurður Orri Kristjánsson

    Í Hismi vikunnar fáum við til okkar Sigurð Orra Kristjánsson, körfuboltaspeking, stjórnmálafræðing, landsbyggðamann og Vesturbæing, og förum yfir það helsta með okkar manni en það eru öll bréf græn í honum þessa dagana. Pólitíkin, meginlandið, landsbyggðin og handboltinn.

  19. Handkastið snýr aftur. Og Hismið.

    Hismið snýr aftur á nýju ári, og gerir upp brimrót síðustu viku þegar þátturinn féll óvænt niður. Þá förum við yfir handboltann, sem er aftur orðinn þjóðaríþrótt Íslendinga og óvæntan utandeildarferil Grétars, bæjarstjóramálin í kraganum, upprisu gingseng kóngsins, og uppáhald allra - Covid.

  20. Jólabomba Hismisins

    Jólabomba Hismisins í ár ber merki þess að umsjónarmenn eru að verða miðaldra; Mogganum er flett, Grétar segir frá aðild sinni að Skógræktarfélaginu og Árni ræðir um erfiða morgna í hundauppeldinu. Þá er athyglisverð auglýsing efasemdarfólks um sóttvarnir skoðuð sem og hinn strangheiðarlegi...

  21. Hismið + #ársins 2021

    Eins og undanfarin ár þá fáum við best skipulagða gest í sögu þáttarins, Guðmund Hauk, manninn á bak við #ársins til að rifja upp með okkur það helsta sem gerðist á árinu.

  22. Hismið - Þingmaður ársins og körfukjúlli

    Í Hismi vikunnar förum við yfir nýja ríkisstjórn og atvinnulífsvæðingu stjórnmálanna, hlutabréfin í Jóa Fel, skyndibitaleikinn í sexunni og tannheilsu landsmanna.

  23. Hismið - Hrímaður í gleri á meginlandinu er fullkomnun

    Í Hismi vikunnar fáum við Björn Teitsson úrbanista í heimsókn og förum yfir meginlandið, lífið í níunni, sterkan mat og skipulagsmál. Þá er Árni settur on the spot varðandi hugsanlegan bæjarstjórastól á Nesinu.

  24. Hismið - Dreypa á dýru koníaki og falsa strætómiða

    Í Hismi vikunnar förum við yfir hvernig vandaðri vinnu Birgis Ármannssonar og co miðar, ungu kynslóðina, dýrt koníak og stökk Strætó inn í framtíðina.

  25. Hismið - Kalla-kallinn er ekki lengur sexy

    Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas - a.k.a DD- Unit er gestur Hismisins þessa vikuna og fer yfir þetta helsta með okkur: stöðuna í Covid, verkalýðsbaráttuna í Bandaríkjunum, Biden stjórninna, Elon Musk, kynþokkafyllsta mann heims og fleira.

  26. Hismið - Kapítalísk stemning í Eflingu

    Í Hismi vikunnar förum við yfir hækkandi smittölur og hvað það þýðir í Vísindahorni þáttarins, ræðum ólguna í Eflingu, vistvænt hverfi án almenningssamgangna og loftlagsráðstefnuna í Glasgow.

  27. Hismið - Dorada glussun og brotajárn

    Í Hismi vikunnar förum við yfir ferðalag Árna til eyjunnar grænu, tökum stöðuna á brotajárnsmarkaðnum, ræðum áhugafólk um flug, fluglest til Keflavíkur og skipulagsmál í 102 og heyrum áhugaverða raddtvíbura.

  28. Hismið - Morgunsmugan með Káti

    Hismi vikunnar förum við yfir 35 ára afmæli leiðtogafundarins, old money kongungsfjölskyldur, stinna herferð ASÍ og vesen í veitingahúsageiranum. Þá fáum við söguna af Árna og Káti.

  29. Hismið - Flösulaust í Eyjum

    Í Hismi vikunnar förum við yfir mjög trausta skipun í formann kjörbréfanefndar, kaup ársins í viðskiptalífinu, mikinn leik Róberts Wessmanns og þegar Árni var grunaður um fikniefnasmygl til Eyja.

  30. Hismið - Strangheiðarlegt íslenskt fúsk

    Í Hismi vikunnar förum við yfir úrslit kosningana, mikla innkomu Árna í kosningasjónvarpið og bíóið í norðvesturkjördæmi. Þá er vönduð yfirferð um svitalyktareyða og hártísku umsjónarmanna þáttarins í gegnum tíðina.

  31. Hismið x Steve Dagskrá: Kosningabomba

    Hismismenn setjast niður með Steve Dagskrá og kryfja kosningarnar framundan. Farið er yfir frammtistöðu flokkanna, leiðtoganna, stjórnarmyndunarviðræður og margt fleira. Vilhjálmur fer yfir mikla borgarferð alla leið úr Kórahverfinu, Grétar gerir grein fyrir rituali úr Litla-Stokkhólmi þar sem...

  32. Hismið - Í jakkaseglum með íhaldsmönnum

    Í Hismi vikunnar förum við yfir skjálfa á mörkuðum vegna kosninga, hnausþykkt aukablað Moggans í dag um XD í Kraganum og harðar skærur hjá mönnum sem heita Fíllinn og Ufsinn. Þá förum við yfir ættarnafnaleikinn sem atvinnulífið er djúpt í þessi misserin og rifjum upp mikla ferð Árna til…

    more
  33. Gult spjald frá Hisminu

    Hismið gerir upp stóru bakmeiðsli Grétars þar sem Hismishlustendur stóðu á öndinni yfir ástandinu á okkar besta manni en fundu svo fyrir almennum létti þegar kappinn var mættur í Vikuna í þverfaglegan panel. Hent er fram léttri kosningaspá og rætt er um kosningar, auglýsingar flokkanna, blanka...

  34. Hismið - KSÍ-sprengjan og kosningabaráttan

    Í Hismi vikunnar förum við yfir málefni KSÍ með Fanneyju Birnu Jónsdóttur, kosningabaráttuna sem fór formlega af stað með kappræðum á RÚV, ræðum um tímamótarannsókn á ástæðum þess að Íslendingar flykkjast til Tene og skoðum nýjan keppinaut á hlaðvarpsmarkaðnum.

  35. Last Dance hjá Hisminu

    Hismið byrjar sitt níunda og síðasta tímabil og fer yfir stöðuna. Krufin eru góð jargon-svör við málefnum Fossvogsskóla, blaðamannafundur KSÍ sem virkaði á köflum eins og hann hefði verið tekinn upp 1987, kosningarnar framundan, neysluóða Íslendinga á tjaldstæðum og margt fleira.

  36. Hismið - Lýðræðisveisla á hlutabréfamarkaði

    Í Hismi vikunnar förum við yfir lýðræðisveislu Sjálfstæðisflokksins, stórleik BK kjúklings í markaðsmálum, mikla auglýsingu frá FÍFL, kveðjur frá fræga fólkinu gegn greiðslu og stinnan hlutabréfamarkað.

  37. Þjóðhátíðarbomba Hismisins

    Í 17. júní þætti Hismisins fara umsjónarmenn yfir það hvernig var að láta bólusetja sig, hvort ferðaþjónustan þurfi að nudda Íslendinginn betur og strangheiðarlega díla í sumarbústaða/hjólhýsa hagkerfinu. Þá er farið yfir mikla menningarferð til Berlínar norðursins, Keflavíkur.

  38. Hismið - Skrifstofumenn og leiðtogar

    Í Hismi vikunnar förum við yfir mikla stafræna vegferð Reykjavíkurborgar og viðbrögð Vigdísar Hauksdóttur við henni, fararstjóra stafrænna lausna og leiðtoga í atvinnulífinu, gamaldags erjur í skotklúbbi, bólusetningarlottóið, óvænta leikmenn á hlutabréfamarkaðnum og stanslausar áhyggjur allra af...

  39. Hismið - Skákmenn voru áhrifavaldar áttunnar

    Í Hismi vikunnar förum við yfir vandað menningaruppeldi Árna í vesturbænum, kynslóðir sem verða sífellt sjálfhverfari, skákhetjur fortíðarinnar, ræðum á hvaða tíma hefði verið áhugavert að vera á lífi, tökum snúning á Samherjamálinu og mikilli seríu Vals og KR í körfuboltanum.

  40. Hismið - Leiðtogafundur í Mathöll Borgartúni

    Í Hismi vikunnar förum við yfir stórveldaskákina í Hörpu og kynnumst tónlistarmanninum (og utanríkisráðherranum) Anthony Blinken, miðaldra hlaupaklúbb Árna, ferðasumarið framundan og dónalega Íslendinga, framleiðni í skólafríum og ólíka nálgun Þjóðverja og Bandaríkjamanna á lífið.

  41. Hismið - Það þarf alltaf að vera gaman!

    Í Hismi vikunnar förum við yfir stemmninguna hjá 68´kynslóðinni hinni síðari í bólusetningum í Höllinni, loftbrúnna til Tene og í alpana sem verður héðan eftir Covid, amerískar sjónvarpsstöðvar sem stela íslenskum þáttum, mikla auglýsingu í Mogga um aukaverkanir bóluefna, ólík hlutverk á...

  42. Hismið - Listin að geta gasað um allt

    Í Hismi vikunnar fáum við Gylfa Ólafsson, heilsuhagfræðing og forstjóra Heilbrigðistofnunar Vestfjarða, í heimsókn í Litla Stokkhólm og förum yfir það helsta úr vikunni. Rekstur Vilko á síðasta ári, flugfélagið Play sem kemur stórt inn, uppsafnaða ferðaþörf Íslendinga, pizzaleikinn á Ísafirði,...

  43. Hismið - Glyshagkerfið í örflæði

    Í Hismi vikunnar gerum við upp aggressíva aðsenda grein Mörtu Guðjónsdóttur um Gísla Martein, förum yfir kalla að rífast í fjölmiðlum en það er nægt framboð af slíku þessar vikurnar, heyrum af heimsókn Árna í raunhagkerfið, förum yfir nýsköpunarsenuna, forstjóra í LSD-örflæði og hendum fram…

    more
  44. Hismið - Roaring twenties 2.0

    Í Hismi vikunnar fáum við stöðuna á baráttunni við veiruna frá up-beat Árna, rýnum í hatramma umræðu í kjölfar hvatningar þingkonu um barneignir, förum yfir skelfilega hluti sem hefðu getað gerst, flugfélagið Play sem fer stórt inn í sumarið, nýtt innheimtufyrirtæki sem mætti með látum inn á...

  45. Hismið - Styttist í Freedom day

    Í Hismi vikunnar eru aðsendar greinar í Mogganum fyrirferðamiklar en við förum líka yfir viðburð í alþjóðapólitíkinni þar sem allir prótókólar voru mölbrotnir, 13. október, sem er dagsetningin sem Kári Stefánsson segir að allt verði orðið eins og það á að vera, og glæstan feril Ingva Hrafns sem…

    more
  46. Hismið - Hátt spennustig

    Í Hisminu förum við yfir risastóra viku og skellinn sem umsjónarmenn Hismisins urðu fyrir þegar Þórólfur lokaði skíðasvæðum um páskana. Gerum upp muninn á viðbrögðum samfélagsins þegar Engihjallaóveðrið gekk yfir árið 1981 og núna, förum yfir gosið, mann sem er á lífi og á afa fæddan 1790 og…

    more
  47. Hismið - Neyðarástand í Litla-Stokkhólmi

    Í Hismi vikunnar förum við yfir háar smittölur í Litla Stokkhólmi, þar sem Grétar býr, nýtt samkomubann, versnandi viðhorf til Svía, bóluefnabíó, vandaða atvinnulífs starfshætti hjá Alvogen, skrýtna konfektmolann sem Sunnudagsmogginn er, rándýra ráðningu Harry bretaprins og hvernig breska...

  48. Hismið - Íslendingar elska að hringja beint í stjórnmálamenn

    Hismið fer yfir það helsta úr vikunni, stórafmæli Heimis Karlssonar úr Bítinu og nýtt lag sem hann kynnti til leiks við það tilefni sem heitir Ó góði Jesús, bólusetningarvegabréfin, förum yfir mikla grein um unglingadrama hjá bresku pari, manninn sem steig fram og taldi sig draumaprins Lindu Pjé...

  49. Hismið x Sigurður Ingi

    Gestur Hismisins þessa vikuna er límið í ríkisstjórninni, Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu og sveitastjórnaráðherra, en hann tók á móti pjökkunum á skrifstofu sinni í ráðuneytinu og fór yfir sviðið með okkur. Hvernig körfuboltamaður er Sigurður Ingi? Hvernig var að fara í opinbera heimsókn til...

  50. Hismið - Kristján Már í beinni hangandi úr þyrlu

    Í viku hamfara og jarðhræringa fær Hismið Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttur, stúdent í jarðfræði, í settið til að greina stöðuna með yfirveguðum hætti. Við förum yfir nýjar sjónvarpsstjörnur úr hópi jarðvísindamanna, fréttamenn í þyrlum, hamfarablæti þjóðarinnar og hvernig við þurfum að fá…

    more

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hlaðvarp um ekkert.

HOSTED BY

Hismið hlaðvarp

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Hismið hlaðvarp have?

Hismið hlaðvarp currently has 155 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Hismið hlaðvarp about?

Hlaðvarp um ekkert.

How often does Hismið hlaðvarp release new episodes?

Hismið hlaðvarp publishes regularly with 155 episodes available. Check the episode list for the typical release schedule.

Where can I listen to Hismið hlaðvarp?

You can listen to Hismið hlaðvarp on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Hismið hlaðvarp?

Hismið hlaðvarp is created and hosted by Hismið hlaðvarp.
URL copied to clipboard!