Episodes
-
Blanda #19 Kristjana Vigdís um Þrautseigju og mikilvægi íslenskrar tungu
Í þessum þætti af Blöndu ræðir Kristjana Vigdís Ingvadóttir sagnfræðingur um Þrautseigju og mikilvægi íslenskrar tungu. Hún ræðir um tungumálið frá ýmsum áhugaverðu sjónarhornum, hvort alltaf hafi verið öruggt að íslenskan héldi velli og ástæður þess að svo fór. Eins setur hún stöðu íslenskunnar…
more -
Köngull #4 - Aðalsteinn Sigurgeirsson - Lífshlaupið í skóginum
Lífshlaupið er leikur sem stendur yfir milli fyrirtækja og einstaklinga í febrúarmánuði. Þetta ár, 2022, er engin undantekning frá fyrri árum og má því segja að hér sé um að ræða árlegan viðburð. Aðalsteinn Sigurgeirsson lítur á lífshlaupið frá nýju sjónarhorni þar sem skógur spilar heldur betur...
-
Blanda #18 Davíð Ólafsson um Frá degi til dags
Í þessum þætti af Blöndu spjallar Davíð Ólafsson sagnfræðingur um efni nýju bókarinnar hans sem heitir Frá degi til dags og er 27. bindið í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar. Umræðuefnið er í aðra röndina eðli og umfang dagbókaritunar á Íslandi um tveggja alda skeið, frá 1720 til…
more -
Blanda #17 Haukur Ingvarsson um Fulltrúa þess besta í bandarískri menningu
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Hauk Ingvarsson um nýja bók hans, Fulltrúi þess besta í bandarískri menningu. Haustið 1955 sótti bandaríski rithöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn William Faulkner Íslendinga heim. Kalda stríðið var í algleymingi og íslenska þjóðin klofin í afstöðu sinni til...
-
Blanda #15 Már Jónsson um Galdur og guðlast
Markús Þórhallsson ræðir við Má Jónsson um Galdur og guðlast. Galdramál 17. aldar eru óhugnanlegur vitnisburður um refsihörku yfirvalda sem á sextíu árum létu brenna eina konu og tuttugu og einn karl á báli. Í þessu tveggja binda verki eru teknir saman allir tiltækir dómar og bréf sem vörðuðu…
more -
Köngull #3 - Anna Guðmundsdóttir - Skógrækt í Reykhúsaskógi
Bændaskógrækt hófst í Reykhúsum árið 1983 og rann svo inn í Norðurlandsskóga. Plantað var samkvæmt áætlun skógarráðgjafa, langmest lerki fyrst og svo furu eftir ástandi og gæðum jarðvegs og gróðurs. Engu birki var plantað þar sem nokkuð var um sjálfsáið birki sem fór að verða áberandi eftir að...
-
Bruggvarpið - #19 - Októberfestgrín
Nú er haustið mætt í allri sinni dýrð og eins og boðað hafði verið fara strákarnir yfir fyrri reynslu sína af Októberfest í Munchen. Þá er farið yfir jólabjórana aðeins, gott grín á kostnað strákanna og jólahlaðborðs strategíur. Í þessum þætti er smakkað: Paulaner Oktoberfest Bier Litla…
more -
Bruggvarpið - #18 - Lite haust
Þessi þáttur hefst á óvenjulegum slóðum þegar Lite markaðinum á Íslandi eru gerð smávægileg skil. Þá er farið um víða völl og allskyns smakkað meðan piltarnir velta vöngum yfir lífi og tilveru.
-
Blanda #14 Þorsteinn Vilhjálmsson um mannkynbætur á Íslandi
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Þorstein Vilhjálmsson um grein hans, Betra fólk: Tengsl takmarkana barneigna og mannkynbóta í íslenskri orðræðu 1923-1938, sem birtist í vorhefti Sögu 2021. Í greininni er fjallað um hugmyndir um getnaðarvarnir í mannkynbóta skyni frá fyrstu skrifum Guðmundar...
-
Afstaða x21 - Vinstri græn: Bjarkey Olsen
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir frá Vinstri grænum situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
-
Afstaða x21 - Viðreisn: Axel Sigurðsson
Axel Sigurðsson frá Viðreisn situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
-
Afstaða x21 – Sjálfstæðisflokkurinn: Haraldur Benediktsson
Haraldur Benediktsson frá Sjálfstæðisflokknum situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
-
Afstaða x21 - Samfylkingin: Valgarður Lyngdal
Valgarður Lyngdal Jónsson frá Samfylkingunni situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
-
Afstaða x21 - Miðflokkurinn: Erna Bjarnadóttir
Erna Bjarnadóttir frá Miðflokknum situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
-
Afstaða x21 - Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn: Guðmundur Franklín
Guðmundur Franklín Jónsson frá Frjálslynda lýðræðisflokknum situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
-
Afstaða x21 - Framsókn: Sigurður Ingi
Sigurður Ingi Jóhannsson frá Framsóknarflokknum situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
-
Afstaða x21 - Flokkur fólksins: Ásta Lóa
Ásta Lóa Þórsdóttir frá Flokki Fólksins situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
-
Bruggvarpið - #17 - Kosningaviti Bruggvarpsins og netverlslanir með áfengi
Bruggvarpið snýr aftur. Strákarnir setjast aftur við míkrafóninn og röfla eins og þeim einum er lagið. Í þessum þætti er farið aðeins yfir kosningarnar framundan. Höskuldur veltir því fyrir sér með hvaða leiðtoga stjórnmálaflokkanna hann myndi vilja fá sér bjór, með dyggir aðstoð Stefáns. Þá er...
-
Blanda - #13 - Íslenskir þjóðardýrlingar - viðtal við Jón Karl Helgason
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Jón Karl Helgason, prófessor í íslensku, um bók hans Ódáinsakur: Helgifesta þjóðardýrlinga sem kom út hjá Sögufélagi árið 2013. Jón ræðir íslenska þjóðardýrlinga, á borð við Jónas Hallgrímsson, Jón Sigurðsson og Halldór Laxness, hvernig þeir fengu þetta hlutverk,...
-
Flóran #5 Jarðhneta
Baunin jarðhneta er efni þessa þáttar af Flórunni. Plantan er stórmerkileg fyrir margra hluta sakir og hefur víðtæka notkunarmöguleika. Vilmundur og Guðrún Hulda miðla ýmsum mismerkilegum fróðleik um sögu þessarar plöntu, ræktun hennar og notkun.
-
Fæðuöryggi #6 Korn – Hrannar Smári
Möguleikarnir á meiri kornrækt á Íslandi eru umtalsverðir, en enn sem komið ræktun við bara brot af heildarneyslu landsins. Í þessum þætti af Fæðuöryggi ræðir Guðrún Hulda við Hrannar Smára Hilmarsson tilraunastjóra í jarðrækt hjá Landbúnaðarháskóla Íslands um stöðu og horfur í kornrækt á…
more -
Bruggvarpið - #16 - Innlit á Rvk bruggstofu
Bjórbræðurnir Höski og Stefán fóru og hittu hann Sigga hjá RVK bruggfélagi á nýja veitingastað félagsins á Snorrabraut. Viðeigandi að þetta var áður ein vinsælasta áfengisútsala ÁTVR, en það er önnur saga. Sigurður Pétur Snorrason, eða Siggi eins hann er alltaf kallaður, fór með strákunum yfir…
more -
Fæðuöryggi #5 Heimaræktun og sjálfbærni - Dagný og Sigurður á Skyggnissteini
Dagný Guðmundsdóttir og Sigurður Jónsson eru viðmælendur Guðrúnar Huldu í þessum þætti um Fæðuöryggi. Efni þáttarins snýr að fæðuöryggi einstaklingsins og heimilisins. Í viðtali við Bændablaðið árið 2017 fjalla þau um vegferð sína að því líferni sem þau hafa tileinkað sér, sem snýst meðal annars…
more -
Blanda - #12 - Fyrra hefti Sögu árið 2021
Markús Þórhallsson ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur, ritstjóra, um innihald vorheftis Sögu 2021. Saga - tímarit Sögufélags kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Efni þess er fjölbreytt og tengist sögu og menningu landsins í víðum skilningi. Auk Kristínar Svövu ritstýrir Vilhelm Vilhelmsson...
-
Flóran #3 Inkakorn
Inkakorn, eða kínóa, er umfjöllunarefni Vilmundar og Guðrúnar Huldu í þessum þætti af Flórunni. Þessi Suður-Ameríska undrajurt hefur gengt mikilvægu hlutverki sem matjurt í meir en 5000 ár. Fjallað er um sögu hennar og víðtæk áhrif, ræktun erlendis og hérlendis um leið og spiluð eru hljóðbrot af...
-
Bruggvarpið - #15 - Sumarið er tíminn
Sumarið er tíminn söng maðurinn. Og það er alveg rétt. Sumarið hefur fært okkur þónokkra sumarbjóra sem hér eru smakkaðir. Strákarnir ræða saman um Norðurlandið og hvernig Stefán mun taka N1 mótið í sumar. Þá eru bjórhátíðir sumarsins ræddar lítið eitt ásamt því að baráttunni um netverslanirnar…
more -
Hlaðvarp Landgræðslunnar - #8 - Söfnun birkifræs
Að þessu sinni ræðir Áskell Þórisson við þau Rannveigu Magnúsdóttur, sérfræðing og starfsmann Landverndar og Kristin H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Kópavogs. Umræðuefnið er birki og söfnun birkifræs. Haustið 2020 var farið í átak til að safna birkifræi sem var dreift á völdum...
-
Bruggvarpið - #14 - Snemmbúið sumar eða síðbúið Júróvisjón
Sumarið er handan hornsins og í stað sólar virðist það koma með vefverslanir og óáfenga bjóra. Hér er farið yfir ýmislegt - byrjað á óáfengum bjórum og svo fara strákarnir Höskuldur og Stefán um allar koppagrundir. Löng umræða um vefverslanir með áfengi, smá spjall um bjórhátíðir og sitthvað...
-
Blanda - #11 - Væringjar og saga norrænna manna í austurvegi
Gestur ellefta þáttar Blöndu er Sverrir Jakobsson, prófessor í miðaldasögu við Háskóla Íslands. Á síðasta ári kom út bók eftir Sverri hjá forlaginu Palgrave Macmillan sem ber heitið The Varangians: In God's Holy Fire. Þar rekur Sverrir sögu norrænna manna í austurvegi og varpar nýju ljósi á...
-
Blanda - #10 - Landnám kynjasögunnar
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir skrifaði grein í hausthefti Sögu 2020 sem ber heitið „Landnám kynjasögunnar“. Þar leggur hún út af grein sem Margrét Guðmundsdóttir ritaði í aldamótahefti Sögu árið 2000 um sagnaritun kvennasögu á 20. öld. Hafdís tekst á við sama verkefni hér, en beinir sjónum sínum að...
-
Landgræðslan - #7 - Árni Bragason og ný landgræðsluáætlun
Nú liggja fyrir drög að nýrri landgræðsluáætlun. Meginmarkmið landgræðsluáætlunar lúta að vernd og endurheimt vistkerfa, vernd kolefnisríks jarðvegs, samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda frá landi og bindingu kolefnis í jarðvegi og gróðri samhliða því að efla líffræðilega fjölbreytni. Áætlunin...
-
Skeggrætt - #7 - Erna Bjarnadóttir og aðförin að heilsu kvenna
Í byrjun árs hófst undirskriftasöfnun vegna þeirrar óvissu sem upp var komin við skimanir fyrir leghálskrabbameini hér á landi. Nú hafa tæplega fimm þúsund einstaklingar skrifað undir áskorun þar sem því er mótmælt að greining leghálssýna hafi verið flutt úr landi. Erna Bjarnadóttir er viðmælandi...
-
Blanda - #8 - Vísindi og ríkisvald í Bandaríkjunum
Í áttunda þætti Blöndu segir Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur frá doktorsritgerð sinni sem hann varði við Cambridge-háskóla árið 2018. Hún fjallaði um ríkisþróun í Bandaríkjunum á fyrri hluti nítjándu aldar og ber heitið "The Scientific-Military State, Science and the Making of American...
-
Blanda - #7 - Tímaritið Saga
Í sjöunda þætti Blöndu kemur Kristín Svava Tómasdóttir, annar ristjóra Sögu, og ræðir við Markús Þórhallsson og Jón Kristinn Einarsson um innihald haustheftis Söguauk. Auk þess er spjallað um tímaritið í fortíð og framtíð. Í haustheftinu 2020 eru þrjár ritrýndar greinar. Hafdís Erla…
more -
Bruggvarpið - #13 - Fókus á sumarbjórana
Jæja, það er komið sumar. Loksins. En það er enn COVID, þó það sjái fyrir endann á því. Strákarnir fara hér aðeins yfir stöðuna og fókusa á sumarbjórana. Smá umræða um allar netverslanirnar sem hafa sprottið upp að undanförnu. Í þættinum er þetta á smakkseðlinum: Slip frá Smiðjunni í Vík 10 Beers...
-
Skeggrætt - #6 – Erna Bjarnadóttir og tollamálin
Frá því á vormánuðum 2020 hafa hagsmunasamtök bænda og afurðastöðvar þeirra tekið framkvæmd innflutnings búvara og tollasamninga til gagngerrar skoðunar og umfjöllunar. Erna Bjarnadóttir hagfræðingur hefur ítrekað bent á ýmsa vankanta í þessu efni og þá einkum varðandi innflutning á mjólkurvörum…
more -
Blanda - #6 - Saga Heimilisiðnaðarfélagsins
Í sjötta þætti Blöndu ræðir Dr. Áslaug Sverrisdóttir við Markús Þórhallsson og Jón Kristin Einarsson um bók sína Handa á milli. Saga Heimilisiðnaðarfélags Íslands 1913–2013. Áslaug segir frá uppruna heimilisiðnaðar á Íslandi, hvernig Heimilisiðnaðarfélagi hefur reynst landsmönnum vel á…
more -
Blanda - #5 - Sagan af því þegar Ísland varð sjálfstætt ríki árið 1918
Árið 2018, þegar öld var liðin frá fullveldi Íslands, kom út bókin Hinir útvöldu. Sagan af því þegar Ísland varð sjálfstætt ríki árið 1918, eftir Gunnar Þór Bjarnason út hjá Sögufélagi. Markús og Jón Kristinn tóku Gunnar Þór tali um atburðarásina sem leiddi að sambandslagasamningnum 1918…
more -
Blanda - #4 - Kvennaganga og saga kvennabaráttu á tuttugustu öld
Í fjórða þætti Blöndu er brugðið út af vananum og haldið út úr hljóðverinu. Höfundar bókarinnar Konur sem kjósa, Erla Hulda, Kristín Svava og Ragnheiður fara með hlustendur í kvennagöngu um miðbæ Reykjavíkur, þar sem við fylgjum þeim í gegnum sögu kvennabaráttu á tuttugustu öld. Kvennakórnum…
more -
Blanda - #3 - Í fjarska norðursins
Í þessum þætti fá Jón Kristinn Einarsson og Markús Þórhallsson til sín Sumarliða R. Ísleifsson, en hann hefur ritað bókina Í fjarska norðursins. Ísland og Grænland - Viðhorfasaga í þúsund ár. Í fjarska norðursins er saga viðhorfa til Íslands og Grænlands frá miðöldum til samtímans. Báðar hafa...
-
Blanda - #2 - Bækur ársins 2020
Útgáfa Sögufélags er býsna fjölbreytt. Í þessum þætti er fjallað um bækur sem komu út á síðasta ári. Konur sem kjósa fjallar um íslenska kvenkjósendur í heila öld, Handa á milli segir sögu Heimilisiðnaðarfélags Íslands 1913–2013, Í fjarska norðursins færir okkur viðhorf sem hafa verið erlendis…
more -
Máltíð - #10 – Michelin-kokkurinn Gunnar Karl Gíslason
Það er sannkölluð sögustund í tíunda þætti hlaðvarpsins Máltíðar. Gestur þáttarins er Gunnar Karl Gíslason sem er maðurinn að baki DILL, eina veitingastað landsins sem hlotið hefur eftirsótta stjörnu frá Michelin-veitingahúsahandbókinni. Gunnar hefur frá mörgu að segja frá ferlinum, allt frá...
-
Blanda - #1 - Hvað er Sögufélag?
Í fyrsta þætti hlaðvarpsins Blöndu ræðir Markús Þórhallsson við Brynhildi Ingvarsdóttur framkvæmdastjóra Sögufélagsins, Hrefnu Róbertsdóttur forseta og Írisi Ellenberger sem hefur ritað sögu félagsins. Þær fjalla á áhugaverðan og upplýsandi hátt um rúmlega aldarlanga tilvist Sögufélags í fortíð,...
-
Blanda - #0 - Hlaðvarp Sögufélags - Kynningarþáttur
Blanda var upprunalega heiti tímarits sem Sögufélag gaf út á árunum 1918–1953. Markmið Blöndu voru að fræða og upplýsa almenning, og að bera söguna á borð í aðgengilegum búning. Hlaðvarpið Blanda er afrakstur MA-verkefnis Markúsar Þórhallssonar í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands, og...
-
Sveitahljómur - #4 - Selma Björnsdóttir
Brakandi ferskur Sveitahljómur er kominn í loftið og að þessu sinni kom góður gestur í hlaðvarpsstúdíóið, engin önnur en Selma Björnsdóttir sem er mikill aðdáandi kántrítónlistar. Hún fer yfir feril sinn sem kántrísöngkona en árið 2010 gaf hún út diskinn Alla leið til Texas og vinnur nú að nýjum...
-
Bruggvarpið - #11 - Sumardagurinn þyrsti
Það er formlega komið sumar og allmildur vetur að baki. Sumarbjórarnir eru komnir á kreik og það kætir bruggvarpsbræðurnar Höskuld og Stefán. Ný brugghús vekja áhuga og athygli þáttastjórnenda sem velta líka vöngum yfir íþróttatengingum í bjórheiminum. Í þessum þætti eru eftirfarandi bjórar á...
-
Bruggvarpið - #10 - Austurland að Glettingi
Þegar pósturinn bankar með töskuna fulla af góðgæti er ekki annað hægt en að taka því fagnandi. Upp úr pokanum komu fjórir prýðisbjórar sem að strákarnir gerðu góð skil. Austri og Múli eru tvö brugghús með miklar tengingar og flæktar rætur á Austurlandi. Um ýmislegt er spjallað og það á sjálfan...
-
Matvælið - hlaðvarp Matís - #2 - Próteingjafar framtíðarinnar og sjálfbærni í matvælaframleiðslu
Verða skordýr helstu próteingjafar framtíðarinnar? Eða örþörungar? Eða prótein unnið úr trjám? Birgir Örn Smárason og Búi Bjarmar Aðalsteinsson velta fyrir sér ýmsum málum sem tengjast próteingjöfum framtíðarinnar og sjálfbærri matvælaframleiðslu. Óhefðbundnir próteingjafar eru þeirra fag og þeir...
-
Matvælið - hlaðvarp Matís - #1 - Hvað er Matís?
Hvað er Matís? Fyrir hverja starfar það? Hvernig get ég nýtt mér þjónustu Matís? Í þessum kynningarþætti af Matvælinu, hlaðvarpi Matís um rannsóknir og nýsköpun í matvælaframleiðslu, svarar Hákon Stefánsson stjórnarformaður þessum spurningum og fleirum til. Þáttastjórnandi er Ísey Dísa…
more -
Bruggvarpið - #9 - Þátturinn með öllum lausnunum...
Það var mikið að fyrsti þáttur eftir páska varð að veruleika. Kófið heldur áfram að stríða landanum en það er engin afsökun fyrir því að láta Bruggvarpið sitja á hakanum. Að þessu sinni hittust strákarnir á laugardagskvöldi, aldrei þessu vant, og fóru yfir stöðuna. Ýmislegt rætt, eins og þegar...