HLAÐLIST. podcast artwork

PODCAST · arts

HLAÐLIST.

Hlaðvarp um arkitektúr, skipulag og byggingargeirann. Einar og Óskar munu taka viðtöl við fólk sem hefur ólíka aðkomu að byggingargreinunum, s.s. arkitekta, verkfræðinga, verktaka, stjórnmálamenn og fleirri. Einnig munu þeir rýna í bækur og fræðigreinar tengd arkitekúr, auk vettvangsferða og heimsóknir í áhugaverð fyrirtæki og til fólks.Einar Hlér rekur arkitektastofuna Sei Studio, ásamt konunni sinni Shruthi Basappa. Óskar Örn er með doktorsgráðu í arkitektasögu frá Columbia háskóla í New York og starfar um þessar mundir hjá skipulagi Reykjavíkurborgar.

  1. 11

    11. Þorsteinn Gunnarsson - Kirkjur Íslands

    Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, hefur um áratuga skeið verið í fararbroddi í rannsóknum og varðveislu íslenskra menningarminja. Hann var fyrstur Íslendinga til að sérhæfa sig í endurgerð eldri bygginga og hefur m.a. komið að endurreisn Viðeyjarstofu, Nesstofu, Bessastaðastofu, Alþingishússins og Hóladómkirkju. Þorsteinn hefur verið ritstjóri ritraðarinnar Kirkjur Íslands frá upphafi, en um er að ræða 31 bindi um friðaðar kirkjur landsins. Í þættinum fer Þorsteinn yfir íslenska kirkjubyggingarsögu, allt frá torf- og timburkirkjum til steinhlaðinna og steinsteyptra kirkna.

  2. 10

    10. Lilja Pálmadóttir - Andinn og efnið

    Lilja Pálmadóttir er athafnakona og hrossabóndi á Hofi. Sem myndlistakona hefur hún einnig næmt auga fyrir byggingarlist og hefur átt frumkvæðið af því að láta reisa eða gera upp margar ólíkar byggingar, allar í hæsta gæðaflokki. Hún kom og sagði okkur frá þessum byggingum, samstarfi sínu við arkitekta ásamt mörgu fleirru.

  3. 9

    9. Gylfi Ólafsson - Ísafjörður og Vestfirðir

    Gylfi Ólafsson var áður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er nú varaþingmaður Viðreisnar og oddviti Í-listans á Ísafirði, en listinn hefur verið í meirihluta þar síðan 2022. Gylfi fræðir okkur um ástandið á innviðum í sveitarfélaginu og þróun síðustu ára, ásamt því að fara yfir sögu nokkurra af helstu byggingum bæjarins.Nokkrir tenglar á umfjöllun um Ísafjarðarkirkju:https://timarit.is/page/7360713#page/n5/mode/2uphttps://timarit.is/page/6548129#page/n17/mode/2uphttps://timarit.is/page/7346132

  4. 8

    8. Vigfús Þór Hróbjartsson - Selfoss og skipulag

    Vigfús Þór er skipulagsfulltrúi Árborgar, en hefur einnig sinnt starfi skipulagsfulltrúa á mörgum öðrum stöðum á Suðurlandi. Við förum í hlutverk skipulagsfulltrúa, miðbæ Selfossar og fleirri atriði í þættinum.

  5. 7

    7. Magnús Skúlason - Þétting byggðar og fagurfræðin

    Magnús Skúlason, arkitekt, á að baki langan og glæstan feril, bæði í einkageiranum og á opinbera sviðinu. Hann hefur starfað sem formaður byggingarnefndar Reykjavíkur, en er einnig einn af leiðtogunum í verndun eldri byggðar. Hann er vinsæll hjá fjölmiðlum þegar talað er um fréttir er tengjast byggingarmálum og Magnús fór yfir víðan völl í þættinum með okkur Óskari og Einari.

  6. 6

    6. Ríkharður Kristjánsson - Verkfræði og bygginarrannsóknir

    Ríkharður Kristjánsson, oft kallaður verkfræðingur Íslands, kom til okkar og fór yfir þætti úr sínum goðsagnakennda starfsferil. Við ræðum hlutverk verkfræðinga, ráðhúsið og Hörpu, selinn og sauðkindina.

  7. 5

    5. Andri Snær Magnason - Jötunsteinn og ljótleiki

    Andri Snær er þjóðþekktur rithöfundur sem gaf út bókina Jötunsteinn fyrir síðustu jól. Andri kom í spjall til okkar Óskars og sagði okkur frá þátttöku sinni í arkitektúr í gegnum tíðina, við ræddum bókina hans og aðra hluti sem tengjast kannski helst ljótleika í arkitektúr.

  8. 4

    4. Hlökk Theodórsdóttir - Um Græna Gímaldið

    Í þættinum segir Hlökk okkur frá grein sinni "„Græna gímaldið“ við Álfabakka– hvað segir það okkur um stjórnsýslu skipulagsmála á Íslandi?", sem birtist í tímaritinu Stjórnmál og Stjórnsýsla undir lok árs 2025. Hlökk er meðal fremstu skipulagsfræðinga landsins og fer með okkur yfir sögu þessarar alræmdu byggingar ásamt öðrum málum.Hlekkur á greinina.

  9. 3

    3. Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson, S. AP - Framtíð í arkitektúr

    Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson eru uppistaðan í stofunni s. ap arkitektar. Þau hafa verið áberandi á sviði arkitektúrs síðustu ár, m.a. með verkefnið Lavaforming, sem var valið sem fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2025. Einnig segja s.ap okkur frá tveimur verkefnum sem eru bæði við það að klárast, en í þeim verkefnum, Háteigsvegi 59 og Frakkastíg 1, hafa s.ap verið að ryðja brautina í því að lækka kolefnislosun bygginga.

  10. 2

    2. Hjörleifur Stefánsson - Frá hvílíku torfi til tómrar steypu

    Hjörleifur Stefánsson, arkitekt, hefur mikla reynslu af rannsóknum og skrifum um sögu bygginarlistar á Íslandi og hefur m.a. gefið út bækurnar Af jörðu og Hvílíkt torf - tóm steypa. Í þættinum leiðir Hjörleifur okkur frá landnámi til nútímans og fer yfir öll tímabil byggingarlistarsögunnar, þ.m.t. timburhúsatímabilið.

  11. 1

    1. Pétur Ármannsson - Gunnar Hansson og skipulag Reykjavíkur

    Fyrsti þátturinn af hlaðvarpinu Hlaðlist. Óskar Örn og Einar Hlér byrja á að ræða við Pétur Ármannsson um ný útkomna bók um arkitektinn Gunnar Hansson. Einnig er talað um "skipulagsslys" í Reykjavík, ástandið á bygginarmarkaði og margt fleirra.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hlaðvarp um arkitektúr, skipulag og byggingargeirann. Einar og Óskar munu taka viðtöl við fólk sem hefur ólíka aðkomu að byggingargreinunum, s.s. arkitekta, verkfræðinga, verktaka, stjórnmálamenn og fleirri. Einnig munu þeir rýna í bækur og fræðigreinar tengd arkitekúr, auk vettvangsferða og heimsóknir í áhugaverð fyrirtæki og til fólks.Einar Hlér rekur arkitektastofuna Sei Studio, ásamt konunni sinni Shruthi Basappa. Óskar Örn er með doktorsgráðu í arkitektasögu frá Columbia háskóla í New York og starfar um þessar mundir hjá skipulagi Reykjavíkurborgar.

HOSTED BY

einarhler

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does HLAÐLIST. have?

HLAÐLIST. currently has 11 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is HLAÐLIST. about?

Hlaðvarp um arkitektúr, skipulag og byggingargeirann. Einar og Óskar munu taka viðtöl við fólk sem hefur ólíka aðkomu að byggingargreinunum, s.s. arkitekta, verkfræðinga, verktaka, stjórnmálamenn og fleirri. Einnig munu þeir rýna í bækur og fræðigreinar tengd arkitekúr, auk vettvangsferða og...

How often does HLAÐLIST. release new episodes?

HLAÐLIST. has 11 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to HLAÐLIST.?

You can listen to HLAÐLIST. on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts HLAÐLIST.?

HLAÐLIST. is created and hosted by einarhler.
URL copied to clipboard!