Skip to content
Hlaðvarp Myntkaupa podcast artwork

Hlaðvarp Myntkaupa

by Myntkaup

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum.Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.

From the show's RSS feed, refreshed Nov 8, 2026. Source feed.

Subscribe Bookmark

Episodes

  1. Nvidia hneyksli steypir mörkuðum niður - hræðsla mælist á ný öfgakennd í crypto

    Undanfarnar vikur hafa einkennst af linnulausum og hrottalegum lækkunum, ekki aðeins á crypto markaðnum, heldur mörkuðum almennt. Forstjóri Nvidia, Jensen Huang, hefur gerst sekur um mikinn afleik í einkalífi sínu með ástarsambandi við meintan kínverskan njósnara. Hann hefur nú sagt af sér sem...

  2. Bandarísk hlutabréf og crypto taka væna dýfu - HYPE og fleiri myntir bætast við vöruúrval Myntkaupa!

    Meira en 1000 milljarðar dollara þurrkuðust út úr bandarískum hlutabréfum á fimmtudaginn og crypto markaðurinn tók væna dýfu samhliða. Nýjar atvinnutölur komu út í USA og sýndu fram á enn sterkara atvinnulíf en spár gerðu ráð fyrir. Rykið hefur að mörgu leyti sest í Binance málinu og var farið…

    more
  3. Stærsta rán crypto sögunnar - Markaðir nötra af hræðslu

    Í þessum þætti er nær eingöngu fjallað um einn stæra viðburð crypto sögunnar, en um sex milljörðum dollara var stolið af Binance, stærstu rafmyntakauphöll heims. Viðburðurinn er sögulegur fyrir margra hluta sakir og er farið yfir öll þau atriði sem fram hafa komið í þessum þætti.

  4. Markaðir fá skell - Bitcoin berst við að halda 80k

    Í þessum þætti er fjallað um það helsta sem gerðist í vikunni á mörkuðum. Meira og minna allir markaðir lækkuðu töluvert, einkum hlutabréfamarkaðir um allan heim. Bitcoin hefur sýnt þrautseigju og ljóst er að talsverður stuðningur er við 80k verðmiðann. Hvort hann haldi verður að fá að koma í…

    more
  5. Áhyggjur af gervigreindinni hjaðna - Útflæði heldur áfram úr kauphallarsjóðum

    Í þessum þætti er farið yfir hreyfingar markaðarins. Bitcoin fór undir 80k í stutta stund en náði sér aftur yfir 80k. Verðbólga heldur áfram að aukast í Bandaríkjunum. Útflæði heldur sömuleiðis áfram úr kauphallarsjóðunum, einkum ETH. Nýjar raddir heyrast í umræðunni um gervigreind og benda á að...

  6. Bitcoin slær aðeins til baka - Gætu framfarir gervigreindar falið í sér ógn við crypto?

    Í þessum þætti er farið yfir það helsta sem gerðist síðustu viku. Vikan einkenndist af talsverðum lækkunum og eftir mikið innflæði í ágúst og september hjá kauphallarsjóðunum hefur verið töluvert útflæði úr þeim í október. Aðalfrétt vikunnar er þó án efa sú að OpenAi birti upplýsingar um að...

  7. Bitcoin heldur velli yfir 80k - Ekkert lát á innflæði kauphallarsjóða

    Árið einkenndist framan af af útflæði rafmyntakauphallarsjóðanna. Eftir látlaust innflæði undanfarið upp á fleiri milljarða dollara eru þeir nú komnir í nettó innflæði. Að öðru leyti var fremur tíðindalítið á rafmyntamörkuðum. Táknvæðing verðbréfa heldur áfram af fullum þunga. Einnig var farið…

    more
  8. Meira en milljarður dollara flæðir inn í kauphallarsjóðina á einum degi

    Mánudagurinn sá mesta innflæði á einum degi í rafmyntakauphallarsjóðina síðan október 2025. Tæplega milljarður dollara flæddi inn í BTC kauphallarsjóðina og um 270 milljónir dollara í ETH sjóðina. Í kjölfarið náði BTC yfir 87k og ETH yfir 2700$. Táknvæðing heldur áfram að gegna aðalhlutverki í...

  9. Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?"

    Síðastliðinn þriðjudag voru greidd atkvæði um framgang Clarity frumvarpsins í Öldungardeildinni, þ.e. hvort það yrði tekið í efnislega meðferð og færi síðan í atkvæðagreiðslu um hvort það yrði að lögum. Frumvarpið þurfti 60 atkvæði en fékk aðeins 49. Í vikunni hækkuðu stýrivextir í USA einnig um…

    more
  10. Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd?

    Síðustu verðbólgutölur í Bandaríkjunum voru birtar föstudaginn, 11. september síðastliðinn. Þær voru nokkurn veginn í samræmi við væntingar, en þó ögn verri má segja. Rökrétt hefði því verið að ætla að markaðir myndu lækka örlítið en þvert á móti þá urðu talsverðar hækkanir á sama tíma. Skýrist…

    more
  11. Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k

    Í gær bárust tölur frá Bandaríkjunum sem sýndu fram á að störfum þar í landi hefði fjölgað umtalsvert meira en spár gerðu ráð fyrir. Fyrir vikið hafa líkur á hækkun stýrivaxta aukist töluvert og rafmyntamarkaðurinn seig nokkuð niður eftir gott gengi vikunnar. Innflæði í kauphallarsjóði helstu...

  12. Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst

    Í vikunni sem var að líða var minna um fréttir, en rafmyntamarkaðurinn hélt áfram góðri siglingu. Solana náði rétt tæpum 110$, ETH fór yfir 2500$ og BTC hefur sveiflast yfir og undir 80.000$. Þá hefur innflæði í rafmyntakauphallarsjóði verið með því mesta á árinu hingað til. Kevin Warsh,...

  13. Nautin vakna til lífsins - BTC hótar 80k

    Í þessum þætti er rætt um atburðarás vikunnar sem leiddi til gífurlegra hækkana á öllum helstu rafmyntum. BTC fór næstum í 80.000$, en ETH fór í stutta stund yfir 2.500$ og Solana snerti 100$. Margir samverkandi þættir búa að baki, en allt byrjaði á því að fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna…

    more
  14. Verðbólga í USA sýnir merki um hjöðnun - Mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í vikunni

    Í þessum þætti er farið yfir nýjustu verðbólgutölur í USA, hvernig þær stóðust væntingar og hvaða áhrif þær virðast hafa á markaðinn. Þá er farið yfir uppfærða stöðu Clarity frumvarpsins, en það verður að teljast á brattann að sækja að ætla að ná að gera það að lögum á þessu ári. Þá er einnig...

  15. Clarity frumvarpið verður líklega ekki að lögum í ár

    Innflæði hefur einkennt síðustu daga hjá kauphallarsjóðunum. Þeir félagar taka aftur fyrir Coldcard hakkið og gera því betur skil. Sömuleiðis er rætt um stöðu Clarity frumvarpsins hjá öldungardeildinni en allt lítur út fyrir að það verði ekki að lögum í ár. Scott Bessent, fjármálaráðherra...

  16. Hræðsla brýst út vegna öryggisbrests hjá Coldcard

    Í vikunni bárust fréttir af því að um 38m USD virði af BTC hefði verið stolið af köldu veskjunum Coldcard vegna öryggisbrests hjá framleiðandanum. Mikil hræðsla brast út í kjölfarið og í kjölfarið vaknar spurningin: Hvernig geymir maður rafmyntir sínar með öruggum hætti? Í öðrum fréttum má nefna…

    more
  17. Magnús Karl ræðir Nassim Taleb og ritverk hans

    Í þessum þætti mætir Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðingur, í annað sinn í stúdíóið. Viðfangsefni þáttarins er fjárfestirinn og tölfræðingurinn Nassim Taleb, sem hefur gefið út fjölda ritverka sem miða að því að efla lesendur í ákvarðanatökum á mörkuðum. Taleb skrifaði formálann í The Bitcoin...

  18. Góðar verðbólgutölur í USA gefa Bitcoin byr í seglin

    Vikan hófst á mjög góðum verðbólgutölum í USA og markaðir tóku við sér. Segja má að það sem hafi fylgt á eftir hafi þó dempað viðbrögðin talsvert, en Kevin Warsh, seðlabankastjóri í USA, sagði að of snemmt væri að tala um fullnægjandi grundvöll fyrir vaxtalækkanir. Þá hefur versnandi ástand í...

  19. Óvissuástand skapast á ný milli Írans og USA - Bitcoin reynir að halda sér yfir 60k

    Í þessum þætti ræða þeir félagar um það helsta sem gerst hefur frá því að þeir spjölluðu saman síðast. Er vopnahléi lokið milli USA og Írans? Það virtist mega lesa út úr orðum forseta Bandaríkjanna, en málið er kannski ekki svo einfalt eins og fjallað er um í þættinum. Áfram halda vandræði Saylor...

  20. Lokafrestur MiCA liðinn í Evrópu - Hvaða áhrif hefur það?

    Í þessum þætti fara þeir félagar yfir það helsta á markaðnum. Í upphafi mánaðar leið lokafrestur samkvæmt MiCA löggjöfinni í Evrópu. Það þýðir að þjónustuveitendur sýndareigna (rafmyntakauphallir) verða að hafa starfsleyfi sem slíkir (CASP) til að mega veita viðskiptavinum þjónustu innan ESB og...

  21. Samtal við Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðing

    Í þessum þætti mætti góður gestur í sitt fyrsta skipti í hlaðvarpið. Magnús Karl Ásmundsson er hagfræðingur að mennt, en starfar sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins Tímaveru. Magnús fer yfir víðan völl, en fjallar meðal annars um mörg grundvallaratriði hagfræðinnar, Bitcoin, hagkerfið og hvernig...

  22. Nýr seðlabankastjóri USA slær á þunga strengi - Rauðu flöggin halda áfram að versna hjá Strategy

    Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Kevin Warsh, nýskipaður seðlabankastjóri Federal Reserve, fjallaði um í fyrstu ræðu sinni sem seðlabankastjóri hvernig hann sér fyrir sér breytt hlutverk seðlabankans gagnvart mörkuðum. Til þessa hafa fjárfestar treyst á…

    more
  23. Verðbólga heldur áfram að aukast í USA - Örlög Clarity Act orðin tvísýn?

    Verðbólga jókst um 0,5% á ársgrundvelli milli mánaða í USA og nýjum seðlabankastjóra þar í landi virðist ansi þröngur stakkur sniðinn gagnvart breytingu stýrivaxta. Þá hafa líkur lækkað verulega á veðmálamörkuðum á því að Clarity frumvarpið verði samþykkt á þessu ári og eru þær nú metnar á um…

    more
  24. Þrettán dagar af samfelldu útflæði úr kauphallarsjóðum keyrir BTC undir 60k

    Í þessum þætti er rætt um stöðuna á crypto mörkuðum sem er vægast sagt uggvænleg um þessar mundir. Látlaust útflæði hefur verið úr kauphallarsjóðum eða um 4,4 milljarðar dollara á 13 dögum. Samhliða því hefur Fear and Greed mælikvarðinn hrapað niður á við og mælist nú 15, eða sem öfgakennd…

    more
  25. Útflæði úr kauphallarsjóðum eykst verulega - Bitcoin nálgast 70k

    Í þessum þætti er rætt um það helsta á mörkuðum. Crypto markaðurinn heldur áfram að síga niður sem verður að teljast nokkur vonbrigði í ljósi þess að S&P500 vísitalan heldur áfram góðri siglingu. Áfram er óbreytt staða á Clarity frumvarpinu, þ.e. ekki er annað að segja en að reiknað er með því að...

  26. Bitcoin missir dampinn og strögglar við að komast yfir 80k á ný

    Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Ekkert nýtt er að segja um Clarity-frumvarpið en væntingar standa áfram til þess að það verði lagt fyrir öldungardeildina á næstunni. Útflæði heldur áfram úr BTC og ETH kauphallarsjóðum, en innflæði er sterkt í XRP, SOL og HYPE...

  27. Verðbólgutölur valda vonbrigðum - Clarity frumvarpið færist nær lagasetningu

    Í þessum þætti er farið yfir viðburðaríka viku. Vikan hófst á slæmum fréttum, en verðbólga í Bandaríkjunum virðist vera að aukast umfram spár og bjartsýni fjárfesta um stýrivaxtalækkanir þar í landi fer minnkandi. Ekki bætti úr skák að 13. maí var sá dagur sem mest útflæði var úr BTC...

  28. Ætlar Michael Saylor að selja BTC??

    Í þessum þætti ræða þeir félagar helstu vendingar á markaðnum. Bjartsýni heldur áfram að aukast á mörkuðum, en BTC hefur haldið sæmilega velli yfir 80k síðustu daga og hlutabréfavísitölur víðs vegar um heiminn slá endurtekið ný met. Þá hafa líkur á samþykki Clarity Act á þessu ári aukist talsvert...

  29. Tveir grænir mánuðir í röð fyrir Bitcoin - Mesta innflæði í kauphallarsjóði á árinu í apríl

    Í þessum þætti ræða þeir félagar það helsta sem gerðist á markaðnum í vikunni. Stýrivöxtum var haldið óbreyttum í Bandaríkjunum. Bitcoin ráðstefnan í Las Vegas vekur lítinn áhuga og lítið umtal. Stofnanafjárfestar virðast mjög bjartsýnir gagnvart Bitcoin og bálkakeðjutækninni. Bókahornið og margt...

  30. Norður-kóreskir tölvuþrjótar valda enn á ný titringi

    Bitcoin hefur aðeins sótt í sig veðrið samhliða sannfærandi hækkunum á öðrum mörkuðum. Því miður varð DeFi markaðurinn hins vegar fyrir áfalli þegar hakkarar, sem taldir eru vera á vegum Norður-Kóreu, náðu að komast yfir umtalsverð verðmæti af svokölluðu rsETH og nota það til að taka gríðarleg...

  31. S&P500 og Nikkei ná hæstu hæðum - Bitcoin hótar 80k

    Í þessum þætti er farið yfir það helsta á rafmyntamarkaðnum. Hlutabréf í Bandaríkjunum hafa, þrátt fyrir ólguna í heimsmálunum, náð hæstu hæðum á ný og rafmyntir hafa sömuleiðis haldið áfram upp á við eftir miklar lægðir á undan. Goldman Sachs, einn stærsti fjárfestingabankinn í Bandaríkjunum,...

  32. Bitcoin heldur sjó yfir 70k samhliða talsverðu innflæði í kauphallarsjóði

    Í þessum þætti er farið yfir stöðuna á markaðnum. Morgan Stanley BTC kauphallarsjóðurinn fer ágætlega af stað og Bitcoin hefur tekist ágætlega að halda sér yfir 70k. Þeir félagar Kjartan og Björn velta nokkrum stjórnspekilegum álitaefnum fyrir sér. Þá er fjallað um nýlegar kenningar um hver…

    more
  33. Morgan Stanley kynnir til leiks BTC kauphallarsjóð á bestu kjörum markaðarins

    Í þessum þætti er rætt um nokkurn veginn óbreytt ástand markaðarins. Allir markaðir virðast um þessar mundir hanga á ummælum Trumps um framgang átakanna í Íran og virðast hver ummæli sveifla mörkuðum í báðar áttir. Eins og rafmyntafjárfestar hafa fengið að venjast virðast góðar fréttir hreyfa...

  34. Hræðsla markaðarins mælist aftur öfgakennd - Villandi fréttaflutningur af Clarity frumvarpinu?

    Síðastliðinn föstudag bárust jákvæðar fréttir af framgangi Clarity frumvarpsins þess efnis að það yrði brátt samþykkt án þess að takmarka rétt crypto fyrirtækja til að greiða viðskiptavinum vexti á stöðugleikamyntir. Markaðurinn brást við með talsverðum hækkunum þvert yfir helstu rafmyntir.…

    more
  35. Seðlabankinn í Bandaríkjunum heldur stýrivextum óbreyttum og viðrar áhyggjur um efnahagshorfur

    Í þessum þætti halda þeir félagar áfram að fjalla um bjarnarmarkaðinn. Í vikunni átti sér stað klassískt "bear market pump" þegar BTC fór í 76k, sem var síðan selt rakleiðis niður aftur. Fjallað er um afstöðu Seðlabankans í Bandaríkjunum um framtíðarhorfur í efnahagsmálum, Michael Saylor og...

  36. Bjartsýni á markaðnum eykst lítillega - Er meiri sársauki í vændum?

    Fear and Greed mælikvarðinn hefur verið fastur vikum saman í "Extreme Fear" en mælist nú í um 30, eða "Fear". Sannleikurinn er þó áfram sá að Bitcoin og rafmyntamarkaðurinn í heild sinni er ekki sannfærandi og virðist sem margir reikni með því að botninn sé ekki að baki enn. Björn og Kjartan eiga...

  37. Trump tjáir sig um Clarity Act og setur pressu á þingið - Bitcoin reynir aftur að komast yfir 70k

    Í þessum þætti fjalla þeir félagar einkum um Clarity Act og ummæli Trump, en hann birti þráð í vikunni þar sem hann sagði að þingið verði að samþykkja Clarity Act og hundsa kröfur banka þar í landi um að rafmyntafyrirtækjum verði meinað að greiða vexti af stöðugleikamyntum. Sömuleiðis var frétt…

    more
  38. Er risinn Jane Street arkitektinn að bjarnarmarkaðnum eða er verið að hengja bakara fyrir smið?

    Í vikunni sem er að líða bárust fregnir af málshöfðun gegn markaðsrisanum Jane Street fyrir meint lögbrot sem eiga að hafa verið ein helsta ástæðan fyrir verðhruni Terra Luna árið 2022. Samhliða þeim fréttum skapaðist umfjöllun á X og víðar þess efnis að Jane Street hefði markvisst keyrt verð...

  39. Hvað þarf að gerast til að Bitcoin fangi athygli markaðarins á ný?

    Fremur tíðindalítið var á rafmyntamörkuðum síðastliðna viku og litlar hreyfingar voru á gengi helstu rafmynta. Stærstu tíðindin eru áframhaldandi stigmögnun í deilum Bandaríkjanna og Íran og virðist sem óhjákvæmilegt sé að til einhverra stríðsátaka komi. Mestur hluti þessa þáttar fór þó í…

    more
  40. Er Bitcoin að glíma við tilvistarkreppu?

    Bjarnarmarkaðurinn heldur áfram að sannreyna tilvist sína en rafmyntir, margar hverjar, glíma við spurningar um hvernig þær réttlæta tilvist sína sem tækni og eignaflokkur. Ef Bitcoin er áhættuvörn eða eign sem er til þess fallin að verja verðmæti yfir lengri tíma af hverju er myntin þá um 50%...

  41. Bitcoin fellur undir 60K - Meira en 50% lækkun frá októbermánuði

    Segja má að söguleg hræðsla hafi heltekið rafmyntamarkaði síðustu daga. Eftir látlausar lækkanir á gengi BTC niður fyrir 70.000$ fyrstu dagana í febrúar fylgdi fimmtudagurinn, 5. febrúar, eftir með svæsnu verðfalli og fór Bitcoin niður fyrir 60.000$ um stutta stund, í um 59.800$. Solana fór um...

  42. Trump heldur ræðu í Davos - Heitir því að USA verði "Crypto Capital of the world"

    Í þessum þætti ræða þeir félagar, Björn og Kjartan, um áframhaldandi lægð á rafmyntamörkuðum. Enn ríkir óvissa um lögmæti tolla Trumps, en reiknað var með niðurstöðu Hæstaréttar í þeim efnum um miðjan janúar. Þeirri niðurstöðu hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma, en almennt er búist við að…

    more
  43. Sakamálarannsókn hafin gagnvart Jerome Powell - Eru alvarlegir brestir í CLARITY Act?

    Í þessum þætti var sjónum einkum beint að tveimur viðfangsefnum. Annars vegar er rætt um nýhafna sakamálarannsókn gagnvart Jerome Powell vegna óhemju mikils kostnaðar á endurbótum við byggingu seðlabankans. Hins vegar er rætt um áhyggjur sem hafa verið opinberaðar, meðal annars af hálfu Brian...

  44. Stórsigur fyrir Strategy og Bitcoin - Morgan Stanley sækir um þrjá kauphallarsjóði fyrir rafmyntir

    Morgan Stanley Capital International (MSCI) hefur ákveðið að hætta við áform sín um að útiloka Strategy og önnur sambærileg félög frá helstu vísitölum sínum. Þetta verður að teljast stórsigur fyrir markaðinn í heild sinni enda hafa margir verið þeirrar skoðunar að þessi áform hafi verið einn…

    more
  45. Árið 2025 gert upp - Hvað ber árið 2026 í skauti sér?

    Í þessum þætti gera þeir félagar, Björn og Kjartan, upp árið sem var að líða. Var 2025 eingöngu ár vonbrigða eða er hægt að tala um einhverja sigra sem skiptu máli? Hvað þarf að gerast á þessu ári til þess að það einkennist af sigrum í stað vonbrigða? Einnig er farið yfir skemmtilega tölfræði um...

  46. Miklar áhyggjur fjárfesta af stýrivaxtahækkun í Japan - Er þetta stormur í vatnsglasi?

    Í þessum þætti er meðal annars fjallað um 25 punkta stýrivaxtahækkun í Japan og eru vextir þar í landi nú þeir hæstu í 30 ár, en þó aðeins 0,75%. Fjárfestar hafa miklar áhyggjur haft af stýrivaxtahækkuninni, enda orsakaði slík hækkun einn versta dag síðustu ára í ágúst í fyrra. Margt fleira er þó...

  47. Seðlabankinn í USA lækkar stýrivexti um 25 punkta - Bitcoin heldur áfram að ströggla við 90k

    Í þessum þætti er rætt um stýrivaxtalækkun í USA, en eins og spár gerðu ráð fyrir voru þeir lækkaðir um 0,25%. Þrátt fyrir lækkun er rafmyntamarkaðurinn áfram lágstemmdur og hræðsla er enn ráðandi tilfinning á markaðnum. Í þessum þætti var einnig rætt talsvert um hvernig rétt væri að meta fyrsta…

    more
  48. $11T risinn Vanguard gefur grænt ljós á crypto - Hver verða áhrifin?

    Markaðurinn heldur áfram að vera heldur lágstemmdur en Bitcoin strögglar við að halda sér yfir 90k. Miklar áhyggjur hafa skapast um hvort Strategy verði mögulega þvingað til að selja hluta af BTC forða sínum. Þeir félagar, Kjartan og Björn, fjalla um þetta mál og komast að þeirri niðurstöðu að...

  49. Nautin vakna til lífsins og keyra Bitcoin yfir 90k - Mun Seðlabanki Bandaríkjanna liðka fyrir mörkuðum í desember?

    Í þessum þætti halda þeir félagar, Björn og Kjartan, áfram að ræða sveiflur síðustu vikna og greina þær frekar. Einnig er fjallað um áhugaverðar fréttir sem hafa ekki farið hátt, en eru þó sannarlega mikilvægar. Sjónarmiðum um að hið versta sé að baka er teflt fram og rök færð fyrir því, meðal...

  50. Bitcoin í frjálsu falli - Nautin virðast lömuð af hræðslu. Hvar er botninn?

    Í þessum þætti halda þeir félagar, Björn og Kjartan, áfram að ræða látlausar lækkanir rafmyntamarkaðarins, en Bitcoin var hársbreidd frá því að falla undir 80.000$ í vikunni. Megináhersla var lögð á að greina ástæður þessa verðhruns, en óhætt er að segja að fæstir greinendur hafi séð eitthvað í...

About this show

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum.Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.

Hosted by

Myntkaup

Categories

Frequently asked questions

How many episodes does Hlaðvarp Myntkaupa have?

Hlaðvarp Myntkaupa has 132 episodes on PodParley. The most recent episode was published on November 14, 2026.

What is Hlaðvarp Myntkaupa about?

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum.Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar...

How often does Hlaðvarp Myntkaupa release new episodes?

Hlaðvarp Myntkaupa publishes every two weeks, based on its 132 episodes since February 2023.

Who hosts Hlaðvarp Myntkaupa?

Hlaðvarp Myntkaupa is created and hosted by Myntkaup.
Link copied