Hljóðbrot - Hljóðtímarit Blindrafélagsins
by Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Í þættinum er að finna ýmist efni, bæði fræðandi og skemmtilegt. Við tökum viðtöl við blint og sjónskert fólk og aðra sem standa okkur nærri, fjöllum um tækninýjungar og samfélagsþróun sem varðar blinda og sjónskerta og margt fleira. Þátturinn kemur að jafnaði út mánaðarlega og hann má nálgast á öllum helstu stöðum þar sem hlaðvörp er að finna og er hann einnig aðgengilegur í vefvarpi Blindrafélagsins og á heimasíðu þess, blind.is.
Episodes
-
Þáttur 93
Hljóðbrot mætti að þessu sinni á hrekkjarvökufagnað í Hamrahlíð 17 og fór í umferlisævintýri með GPS forritinu Seeing Assistant GO ásamt Þorkeli Steindal.
-
Þáttur 92
Í þessum þætti hittum við Theodór Helga Kristinsson sem er sérfróður í tölvum, tækni og síðast en ekki síst, talgervlum. Við ræðum við hann um talgervla og hvernig gervigreind hefur breytt notkunarmöguleikum þeirra til muna.
-
Þáttur 91
Í þessum þætti sláumst við í för með UngBlind í Fly Over Iceland herminn. Einnig heyrum við í Dr. Rósu Maríu Hjörvar um umfangsmikla aðgengisráðstefnu sem haldin var í Hörpu þann 1. október síðastliðinn.
-
Þáttur 90 - Aukaþáttur
Í þessum aukaþætti ræðir Ágústa Gunnarsdóttir við þau Gísla Helgason, blokkflautuskáld og Ásdísi Þórðardóttur, starfsmann Sjónstöðvarinnar um punktaletur á Íslandi fyrr og nú, um þróun tækninnar og annarra aðferða við punktaletursframleiðslu og mikilvægi punktaleturs fyrir þá sem eiga það sem…
more -
Þáttur 89
Í þessum þætti tökum við viðtal við Leslie Dickson sem kennir handverk og trésmíðar við endurhæfingarmiðstöð fyrir fyrrverandi hermenn í Bandaríkjunum.
-
Þáttur 88
Í þessum þætti sláumst við í för með leiðsöguhundadeild Blindrafélagsins í hina árlegu leiðsöguhundaferð í Stykkishólm. Við fylgjumst með alls konar æfingum, tökum viðtöl við þátttakendur og kynnumst staðháttum í hólminum fagra.
-
Þáttur 87
Í þessum þætti förum við í heimsókn á spilakvöld hjá Blindrafélaginu, sem njóta aukinna vinsælda meðal félagsmanna. Einnig heyrum við stutt hljóðbrot úr 87 ára afmæli Blindrafélagsins, sem haldið var í Hamrahlíð 17 miðvikudaginn 19. ágúst.
-
Þáttur 86
Í þessum þætti ræðum við aðgengislausnir, þar á meðal Glide, sem fjallað var um í síðasta þætti.
-
Þáttur 85
Í þættinum er fjallað um þróun á nýju hjálpartæki sem nefnist Glide. Már Gunnarsson ræðir við Amos Miller, stofnanda og forstjóra bandaríska fyrirtækisins Glidance, um þetta metnaðarfulla verkefni.
-
Þáttur 84
Við höldum áfram umfjölluninni þar sem frá var horfið í síðasta þætti. Að þessu sinni ræðir Már Gunnarsson við Ragnar Þór Ingólfsson um stjórnmál á Íslandi, nýja reglugerð er varðar ferðalög blindra einstaklinga erlendis í fylgd leiðsöguhunda og stefnumál Flokks fólksins.
-
Þáttur 83
Í þessum þætti fjöllum við um nýja reglugerð er varðar ferðalög blindra einstaklinga erlendis í fylgd leiðsöguhunda.Már Gunnarsson ræðir við Elfu Svanhildi Hermannsdóttur forstjóra Sjónstöðvarinnar um breytingarnar.Þessi þáttur er í tveimur hlutum og verður umfjölluninni haldið áfram í næstu…
more -
Þáttur 82
Í þessum þætti ræðir Hlynur Þór við Guðvarð Birgisson, félagsmann í Blindrafélaginu.
-
Þáttur 81
Í þessum þætti ræðum við um hljóðhönnun, kvikmyndatónlist og áhrif hennar. Einnig fáum við að heyra syrpu með lögum Björgvins Halldórssonar sem Hlynur Þór setti saman og sendi frá sér nýlega.
-
Þáttur 80
Í þessum þætti ræðir Eyþór Kamban Þrastarson við Scott Chesworth, hljóðvinnslu- og tónlistarmann frá London. Umræðuefnið er stafrænt aðgengi, en Scott er brautryðjandi í þeim málaflokki og tók m.a. stóran þátt í því að gera Reaper upptöku- og hljóðvinnsluforritið aðgengilegt fyrir blinda og...
-
Þáttur 79
Í þessum þætti ræðum við um nýja leigubíla-appið frá Hreyfli og heyrum kynningar frambjóðenda til stjórnar Blindrafélagsins, en kosið verður til stjórnar á aðalfundi þann 9. maí næstkomandi.
-
Þáttur 78
Í þessum þætti fáum við doktor Rósu Maríu Hjörvar. Hún útskrifaðist nýlega með doktorsgráðu í bókmenntafræði og er fyrsti blindi- eða sjónskerti einstaklingurinn til að öðlast nafnbótina doktor. Við ræðum við hana um námið og ferðalagið sem það var. Rósa er einnig varaformaður Blindrafélagsins og...
-
Þáttur 77
Í þessum þætti förum við á Insight 2026-ráðstefnuna í Lúxemborg, spjöllum stuttlega við skipuleggjendur og heyrum fyrirlestur hjá dr. Katie Williams um rannsókn hennar á heilatengdri sjónskerðingu (CVI).
-
Þáttur 76
Í þessum þætti fjöllum við um Relumino frá Samsung, nýja græju sem Eyþór varð sér út um og nýja og spennandi alþjóðlega tónlistarkeppni fyrir blinda og sjónskerta.
-
Þáttur 75
Í þessum þætti ræðir Eyþór við Stefán Gunnlaug Jónsson, gagnavísindamann og gervigreindarsérfræðing, um gervigreind í nútíma samfélagi.
-
Þáttur 74
Í þessum þætti heimsækjum við Akureyri þar sem við hittum fyrir Bjarma Friðgeirsson.Bjarmi er félagsmaður í Blindrafélaginu, spilar tónlist og er núverandi yngsti leiðsöguhundanotandi á Íslandi.
-
Þáttur 73
Í þessum þætti fjöllum við um atvinnumál blindra og sjónskertra á Íslandi og hinum Norðurlöndunum. Gestir þáttarins eru þau Marjakaisa Matthíasson og Þorkell Jóhann Steindal, en þau fóru ásamt hópi fólks frá Blindrafélaginu og Sjónstöðinni á norræna ráðstefnu um málefnið í Hurdal í Noregi í…
more -
Þáttur 72
Í þessum þætti ræða Eyþór og Már um punktaletur og hlutverk þess á okkar tímum.
-
Þáttur 71
Í þessum jólaþætti Hljóðbrots heyrum við jólakveðju formanns Blindrafélagsins, Sigþórs U. Hallfreðssonar, lítum yfir farinn veg í því helsta sem við tókum fyrir á árinu og heyrum nokkur vel valin jólalög, leikin á píanó af Theodór Helga Kristinssyni, félaga í Blindrafélaginu. Gleðileg jól öll sömul!
-
Þáttur 70
Í þessum þætti heyrum við viðtal sem Hlynur Þór tók við Ólaf Þór Jónsson, félagsmann í Blindrafélaginu til margra ára.
-
Þáttur 69
Í þessum þætti ræðum við um Hljóðbókasafn Íslands, förum yfir sögu þess og stofnun, hlutverk og fyrirkomulag, núverandi stöðu og yfirvofandi innleiðingu safnsins inn í Landsbókasafn Íslands ásamt Kvikmyndasafni Íslands. Viðmælendur í þættinum eru Gísli Helgason, félagsmaður í Blindrafélaginu,...
-
Þáttur 68
Í þessum þætti tökum við Ívu Adrichem, félaga í Blindrafélaginu, í spjall og kynnumst henni nánar.
-
Þáttur 67
Í þessum þætti ræðir Már Gunnarsson við Sam Seavey, sem er best þekktur fyrir YouTuber rás sína, The Blind Life. Sam var nýlega á Íslandi, heimsótti meðal annars Blindrafélagið og hélt fróðlegan fyrirlestur fyrir félagsfólk og aðra áhugasama. Við kynnumst Sam nánar og ræðum meðal annars æsku hans...
-
Þáttur 66
Í þessum þætti ræðum við um punktaletur á iPhone og tökum spjall við tvo hressa félagsmenn, þau Kjartan og Vöku.
-
Þáttur 65
Í þessum þætti fjöllum við um ferð leiðsöguhundadeildar Blindrafélagsins á Stykkishólm á sitt árlega leiðsöguhundanámskeið. Viðtöl við bæði þátttakendur og þjálfara.
-
Þáttur 64
Í þessum þætti fjöllum við um Bjartsýni, kór Blindrafélagsins. Við heyrum upptöku frá tónleikum þeirra í Hörpu á Menningarnótt 2025 og tökum spjall við nokkra meðlimi kórsins.
-
Þáttur 63
Í þessum þætti af Hljóðbroti er kveðja frá formanni Blindrafélagsins til félagsmanna í tilefni af 86 ára afmæli Blindrafélagsins þann 19. ágúst síðastliðinn.
-
Þáttur 62
Í þessum þætti ræðum við um gervigreind og ýmsa notkunarmöguleika hennar við Ólaf Kristjánsson, gjarnan þekktur sem Óli tölva. Hann rekur fyrirtækið Netkynning og er gervigreindarsérfræðingur og kennari.
-
Þáttur 61
Í þessum þætti ræðir Már Gunnarsson við Harald G. Hjálmarsson, félagsmann í Blindrafélaginu. Haraldur flytur einnig frumsamin lög á Hammond orgel.
-
Þáttur 60
Í þessum þætti fjöllum við um heimasóttkví leiðsöguhunda, nýt smáforrit Hljóðbókasafns Íslands og tónlistarvinnslu og tónlistarframleiðslu fyrir blinda og sjónskerta.
-
Þáttur 59
Í þessum þætti ræðir Hlynur Þór við Patrek Andrés Axelsson, félagsmann í Blindrafélaginu. Patrekur er einnig fyrsti íslenski blindi eða sjónskerti einstaklingurinn til að útskrifast sem sjúkraþjálfari.
-
Þáttur 58
Í þessum þætti fer Eyþór í göngutúr með Þorkeli Steindal og leiðsöguhundinum Gaur um Hlíðahverfið og Öskjuhliðina. Einnig fjöllum við um ýmis tól og tæki sem blindir og sjónskertir geta nýtt sér í umferli.
-
Þáttur 57
Í þessum þætti tók Hlynur Þór viðtal við Gunnar Má Óskarsson, félagsmann og starfsmann Blindrafélagsins.
-
Þáttur 56
Í þessum þætti heyrum við viðtal sem Már Gunnarsson tók við sjálfboðaliða Bresku Leiðsöguhundasamtakanna Guide Dogs UK. Þess ber að geta að viðtalið er á ensku.
-
Þáttur 55
Í þessum þætti ræðir Hlynur við Ásdísi Evlalíu Guðmundsdóttur, félagsmann í Blindrafélaginu og við skellum okkur í NaviLens ratleik með UngBlind.
-
Þáttur 54
Í þessum þætti tekur Eyþór Kamban Þrastarson viðtal við Inga Þór Einarsson, aðstoðarprófessor í íþróttafræðum við Háskólann í Reykjavík. Umfjöllunarefnið er rannsóknir sem Ingi hefur gert á fötluðum börnum og fötluðu íþróttafólki með áherslu á blint íþróttafólk.
-
Þáttur 53
Í þessum þætti tekur Hlynur Þór nærmyndarviðtal við Rósu Maríu Hjörvar og Már Gunnarsson ræðir við Theódór Helga Kristinsson um talgervla og snjalltæki.
-
Þáttur 52
Í þessum þætti ræða Hlynur, Eyþór og Már um gervigreind í daglegu lífi. Við fjöllum einnig um nýjar íslenskar raddir fyrir Apple snjalltæki og ræðum við Önnu Nikulásdóttur hjá Grammatek um það spennandi verkefni. Már Gunnarsson fer einnig í leiðangur með aðstoð rauntímasjóngreinis (live...
-
Þáttur 51
Í þessum þætti verður fjallað um færnibúðir sem haldnar voru hérlendis í október síðastliðnum og fengu þar ungmenni að spreyta sig í alls kyns íþróttum, við ræðum við Margréti Helgu, eða Möggu, formann UngBlindar um starfið hjá þeim, Hlynur leit við í sundleikfimi hjá Trimmklúbbnum Eddu og Már...
-
Þáttur 50
Í þessum þætti svífur jólaandinn yfir vötnum. Við heyrum innsendar jólakveðjur, ræðum ýmislegt jólalegt og Lions Song Festival for the Blind.
-
Þáttur 49
Þessi þáttur er upptaka af opnum umræðufundi um menntamál gagnvart blindum og sjónskertum. Fjölbreyttur hópur sótti fundinn með hjálp fjarfundarbúnaðar og líflegar umræður sköpuðust. Í pallborði voru þau Ágústa Eir Gunnarsdóttir, Eyþór Kamban Þrastarson, Hlynur Þór Agnarsson, Íva Adrichem og Már...
-
Þáttur 48
Í þessum þætti fjöllum við um nýja íslenska heimildarmynd um heilatengda sjónskerðingu sem ber nafnið Fyrir allra augum eða Acting Normal with CVI. Myndin er eftir þær Dagbjörtu Andrésdóttur, Elínu Sigurðardóttur og Bjarneyju Lúðvíksdóttur. Hlynur tók viðtal við þær á frumsýningardaginn. Eyþór...
-
Þáttur 47
Að þessu sinni er aðalumræðuefnið Ólympíuleikar fatlaðra. Már og Eyþór deila sinni reynslu af mótinu og Hlynur ræðir við Halldór Sævar Guðbergsson, sem fór á leikana 1988 í Suður Kóreu og 1992 í Barcelona.
-
Þáttur 46
Í þessum þætti fögnum við 85 ára afmæli Blindrafélagsins. Hlynur og Eyþór ræða við Gísla Helgason um Hamrahlíð 17, merkilega sögu hússins og þann stóra part sem það á í sögu Blindrafélagsins. Einnig ræða þeir merkilega biósýningu sem fram fór í tilefni afmælis Blindrafélagsins, þegar kvikmyndin...
-
Þáttur 45
Í þessum þætti ræðum við nýja útgáfu nafnskírteina og hvort þau séu sniðug lausn fyrir t.d. einstaklinga sem ekki hafa ökuskírteini. Eyþór fræðir okkur um aukinn veruleika (augmented reality). Már teku r einnig spennandi viðtal við erlendan lækni á heimsmælikvarða, m.a. í erfðafræði og sérhæfingu…
more -
Þáttur 44
Í þessum þætti er fjallað um aðgengi og tæknimál. Eyþór ræðir við Þorkel Jóhann Steindal um snjallúr og hvernig hægt er að nýta sér þau, sem og valdeflingu og umferli. Einnig ræðir Már Gunnarsson við Baldur Snæ Sigurðsson, tækniráðgjafa hjá Blindrafélaginu en sá síðarnefndi sótti Sight City...
About this show
Í þættinum er að finna ýmist efni, bæði fræðandi og skemmtilegt. Við tökum viðtöl við blint og sjónskert fólk og aðra sem standa okkur nærri, fjöllum um tækninýjungar og samfélagsþróun sem varðar blinda og sjónskerta og margt fleira. Þátturinn kemur að jafnaði út mánaðarlega og hann má nálgast á öllum helstu stöðum þar sem hlaðvörp er að finna og er hann einnig aðgengilegur í vefvarpi Blindrafélagsins og á heimasíðu þess, blind.is.
Hosted by
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi
Categories