Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands podcast artwork

PODCAST · arts

Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Í Hljómkviðunni er hlustendum veitt fjölbreytt innsýn í starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Rætt er við fólk sem tengist hljómsveitinni á einn eða annan hátt. Hugað er að sögu sveitarinnar, ýmsum hliðum starfseminnar og auðvitað tónlistinni sjálfri. Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur ríflega 100 tónleika á ári hverju af ýmsum toga og tekur á móti breiðum hópi áheyrenda. Leyfðu þér að hrífast með og kynntu þér tónleika sveitarinnar á vefnum sinfonia.is og á samfélagsmiðlum.

  1. 14

    Mahler 8 - Rætt við Svanhildi Óskarsdóttur

    Undir lok maí, nánar tiltekið 29. og 30. maí, flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands áttundu sinfóníu Gustavs Mahler en þetta verður í fyrsta sinn sem þetta stórvirki verður flutt á Íslandi. Hljómsveitin verður með stærsta móti, myndarlegur kór á sviðinu ásamt barnakór og einsöngvararnir verða átta talsins. Það er Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi SÍ, sem stjórnar flutningi en tónleikarnir eru lokatónleikar hennar í því hlutverki. Til að hita upp fyrir þessa stórtónleika tökum við Svanhildi Óskarsdóttur tali en hún mun segja gestum frá á sérstakri tónleikakynningu sem fer fram kl. 18 þann 29. maí í Norðurljósum. Það er Vinafélag SÍ sem stendur fyrir kynningunni. Hér í Hljómkviðunni er það Guðni Tómasson sem ræðir við Svanhildi um verkið. Missið ekki af Mahler 8 undir lok maí hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Seinni tónleikarnir eru hluti af Listahátíð í Reykjavík sem hefst þann daginn.  

  2. 13

    Daníel Bjarnason ræðir um plötuna The Grotesque & The Sublime

    Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóri ræðir um plötuna The Grotesque & The Sublime. Platan kemur út 27. febrúar næstkomandi hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Sono Luminus og inniheldur þrjú verk eftir Daníel í flutningi Sinfóníuhljómveitar Íslands undir stjórn Daníels sjálfs.

  3. 12

    Jón Arnar talar um konsert Sir James MacMillan

    Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Myrkum músíkdögum í ár, 29. janúar næstkomandi, hljómar básúnukonsert eftir skoska tónskáldið Sir James MacMillan sem jafnframt stjórnar tónleikunum. Einleikari í konsertinum er Jón Arnar Einarsson, leiðari básúnudeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands.Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands og hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands verið þátttakandi á hátíðinni frá upphafi. Myrkir músíkdagar standa yfir dagana 29. janúar - 1. febrúar 2026. 

  4. 11

    Mugison tekinn tali

    Guðni Tómasson ræðir við tónlistarmanninn Mugison í tilefni tónleika hans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands 6. & 7. nóvember næstkomandi.

  5. 10

    Ólafur Kjartan Sigurðarson – staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2024-25

    Ólafur Kjartan Sigurðarson baritónsöngvari er staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands á yfirstandandi tónlistarári. Hér ræðir Guðni Tómasson framkvæmdastjóri SÍ við Ólaf um líf í söng.

  6. 9

    Guðný Guðmundsdóttir – Sinfónían í 75 ár

    Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Guðnýju Guðmundsdóttur sem var konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands um áratuga skeið. 

  7. 8

    Joe Ognibene – Sinfónían í 75 ár

    Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Joe Ognibene hornleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands sem leiddi horndeildina um árabil. 

  8. 7

    Helga Hauksdóttir – Sinfónían í 75 ár

    Sigurður Ingvi Snorrason  ræðir við Helgu Hauksdóttur sem var fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og síðar tónleikastjóri hennar. 

  9. 6

    Eggert Pálsson – Sinfónían í 75 ár

    Sigurður Ingvi Snorrason ræðir við Eggert Pálsson slagverksleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands um ýmislegt úr sögu hennar. 

  10. 5

    Einar Jóhannesson – Sinfónían í 75 ár

    Í þessum þætti Hljómkviðunnar ræða tveir klarinettuleikarar saman – Einar Jóhannesson sem var fyrsti klarinettuleikari sveitarinnar um árabil og Sigurður Ingvi Snorrason sem ræðir við nokkra hljóðfæraleikara sveitarinnar í tilefni 75 ára afmæli Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

  11. 4

    Víkingur og Daníel – Halla Oddný ræðir við tónskáldið og einleikarann um FEAST

    Þriðji píanókonsert Daníels Bjarnasonar, FEAST, var saminn fyrir Víking Heiðar Ólafsson að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Útvarp og Fílharmóníusveitarinnar í Los Angeles. Konsertinn var frumfluttur í Walt Disney-tónleikahöllinni í Los Angeles 18. febrúar síðastliðinn og er nú frumflutt á Íslandi á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Grænu röðinni miðvikudaginn 2. mars.Halla Oddný Magnúsdóttir tók þá Víking Heiðar og Daníel tali um nýja konsertinn og áralanga vináttu þeirra og samstarf.

  12. 3

    Sinfónía nr. 1 – Halla Oddný ræðir við Högna Egilsson

    Högni Egilsson hefur um langt árabil verið meðal kunnustu tónlistarmanna landsins. Þessir spennandi  tónleikar í Föstudagsröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru helgaðir nýrri sinfónískri tónlist Högna og mun hann einnig koma fram sjálfur með hljómsveitinni í sumum verkanna. Hljómsveitin hefur áður flutt tónlist Högna, meðal annars tekið upp tónlistina fyrir Netflix-sjónvarpsþáttaröðina Kötlu og verða tvö sinfónísk ljóð úr Kötlu flutt á tónleikunum. Ennfremur verða frumflutt verk sem samin eru sérstaklega í tilefni tónleikanna, þar á meðal er fyrsta sinfónía Högna, hans stærsta hljómsveitarverk til þessa.Halla Oddný Magnúsdóttir ræðir hér við Högna um tónlist hans.

  13. 2

    Töfrar fortíðar – Halla Oddný ræðir við Þórunni Ósk

    Í hverri sinfóníuhljómsveit starfa hátt í hundrað manns sem hver og einn á að baki langt og strangt nám í sinni grein. Hver leggur sitt af mörkum til heildarinnar en er um leið fær um að stíga inn í sviðsljósið sem einleikariþegar færi gefst. Á næstu tónleikum Grænu raðarinnar, sem að þessu sinni bera yfirskriftina Töfrar fortíðar, stígur Þórunn Ósk Marinósdóttir, leiðari víóludeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, á svið í einleikshlutverki í verkinu Lachrymae eftir enska 20. aldar tónskáldið Benjamin Britten. Lachrymae er samið út frá sönglagi Johns Dowland frá 16. öld. Lagið sjálft verður flutt af tenórsöngvaranum Benedikt Kristjánssyni í upphafi tónleikanna.Halla Oddný Magnúsdóttir ræðir hér við Þórunni Ósk um víóluna, verkin á efnisskránni og töfra tónlistarinnar.„Tónn fiðlunnar berst eins og ör sé skotið af boga aftur á aftasta bekk, meðan víólutónninnn berst meira svona eins og þegar þú sleppir pysju út á haf,“ segir Þórunn Ósk m.a. í viðtalinu.

  14. 1

    Strauss og Shostakovitsj – Halla Oddný spjallar við Árna Heimi

    Í fyrsta þætti Hlaðvarps Sinfóníuhljómsveitar Íslands spjallar Halla Oddný Magnúsdóttir við Árna Heimi Ingólfsson tónlistarfræðing um verkin á efnisskrá fyrstu tónleika grænu raðarinnar í vetur, sem bera yfirskriftina Strauss og Shostakovits.Verkin sem fjallað er um:Richard Strauss Hornkonsert nr. 1Dmítríj Shostakovitsj Píanókonsert nr. 2Richard Strauss Don JuanTónleikarnir fara fram í Eldborg og í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV  miðvikudaginn 6. október 2021 kl. 20.00

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Í Hljómkviðunni er hlustendum veitt fjölbreytt innsýn í starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Rætt er við fólk sem tengist hljómsveitinni á einn eða annan hátt. Hugað er að sögu sveitarinnar, ýmsum hliðum starfseminnar og auðvitað tónlistinni sjálfri. Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur ríflega 100 tónleika á ári hverju af ýmsum toga og tekur á móti breiðum hópi áheyrenda. Leyfðu þér að hrífast með og kynntu þér tónleika sveitarinnar á vefnum sinfonia.is og á samfélagsmiðlum.

HOSTED BY

Sinfóníuhljómsveit Íslands | Iceland Symphony Orchestra

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands have?

Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands currently has 14 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands about?

Í Hljómkviðunni er hlustendum veitt fjölbreytt innsýn í starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Rætt er við fólk sem tengist hljómsveitinni á einn eða annan hátt. Hugað er að sögu sveitarinnar, ýmsum hliðum starfseminnar og auðvitað tónlistinni sjálfri. Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur ríflega 100...

How often does Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands release new episodes?

Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands has 14 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands?

You can listen to Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands?

Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands is created and hosted by Sinfóníuhljómsveit Íslands | Iceland Symphony Orchestra.
URL copied to clipboard!