Skip to content
Hús & Hillbilly podcast artwork

Hús & Hillbilly

by Stundin

Í hlaðvarpinu Hús&Hillbilly fara systurnar Ragga og Magga Weisshappel inná vinnustofur listamanna og eiga við þá tímalaust spjall um líf og list, allt og ekkert, himinn og jörð og það sem er á milli. Viðtölin snúast um myndlist en fyrst og fremst um myndlistarmanninn sjálfan og hans haus. Hlustendur þurfa hvorki að vera menningarlegir né gáfaðir til þess að njóta. Hlaðvarpið er hugsað til þess að bæta servíettu í servíettusafn íslenskrar myndlistar. Systurnar hafa haldið úti vefritinu www.hillbilly.is í nokkur ár við góðan orðstír en þar eru birt rituð viðtöl og ljósmyndir úr vinnustofuheimsóknunum, og nú bætist hlaðvarp við til auka dýpt og gleði.

From the show's RSS feed, refreshed Mar 27, 2021. Source feed.

Subscribe Bookmark

Episodes

  1. #13 Rán Flygenring

    Rán Flygenring er alltmúlígtmanneskja og heimskona mikil. Hillbilly heimsótti hana á vinnustofu í Vesturbænum um jólin. Hún gleður okkur flest, og fræðir, með teikningum sínum sem rúmast í mörgum bókum og blöðum. Hún er líka mjög skemmtileg. Og smart. Og klár. Til þess að skoða það...

  2. #12 Ragnar Kjartansson

    Hillbilly heimsótti Ragnar Kjartanson á vinnustofu hans í Reykjavík. Það var innsetning í vinnslu, rússnesk stemning, flippaður bar og á stofuborðinu lá bókin „Í dag varð ég kona” eftir Gunnar Dal. Bókin vakti athygli Hillbillyar og Ragnar var svo vænn að lesa uppúr bókinni fyrir hana. Spjallið…

    more
  3. #11 Haraldur Jónsson

    Að koma inn á vinnustofu Haraldar Jónssonar var eins og að vera umfaðmaður hálsakoti barns, eins og hann orðaði það vel sjálfur. Mjúk og sæt lykt tók á móti okkur þegar við hittumst í spjall í miðbænum. Haraldur er einlægur og orðar hlutina heppilega, og minnir okkur öll á að gleyma ekki að undrast.

  4. #10 Halldór Baldursson

    Það þekkja allir teikningar Halldórs Baldurssonar. Sumir sjá hreinlega fyrir sér teikningar hans þegar þeir hugsa um ákveðna pólitíkusa. Hann er þó með móral yfir hvernig hann teiknaði Katrínu Jakobsdóttur, en hann neyðist til að halda áfram að teikna hana þannig. Hillbilly heimsótti Halldór...

  5. #9 Rúrí

    Rúrí er gestur Hillbillyar í dag og eins og oft gerist í svo stuttu spjalli þá er margt sem kemst ekki að. Til dæmis töluðum við ekki um framlag hennar á Feneyjartvíæringinn 2003 Arkív, endangered waters, gagnvirka innsetningu sem samanstóð af 52 ljósmyndum af fossum, en við töluðum hins vegar um...

  6. #8 Lóa Hjálmtýsdóttir

    Hillbilly heimsótti Lóu Hjálmtýsdóttur í vinnustofuna/búðina hennar í Hafnarstræti þar sem pizzulykt fyllir öll vit. Lóa spjallaði um húmorinn, teikninámið í New York og þegar Kim Kardashian fékk sér pulsu.

  7. #7 Kristinn Már Pálmason

    „Þegar ég kem hingað inn langar mig svo að fara að mála,“ sagði önnur Hillbilly-systirin þegar hún gekk inn á vinnustofu Kristins Más Pálmasonar. Veggir fullir af litlum formum, listaverkum - kláruðum og í vinnslu, blað sem á stóð sellerí, ljósakróna á fáránlegum stað og tónlist í bakgrunni....

  8. #6 Margrét H. Blöndal

    Hillbilly var gestur númer tvö á nýju vinnustofu Margrétar Blöndal. Birtan frá stóra glugganum féll svo fallega á myndir af blómum sem Margrét hafði gert og hengt upp. Út um gluggan sást í Hallgrímskirkjuturn og Sundhöll Reykjavíkur, jarðarber og ruccola salat var borið fram og Margrét talaði…

    more
  9. #5 Páll Haukur

    Páll Haukur var skemmtilegur heim að sækja. Hann átti líka skemmtilegan kött (Gulrót). Rétt eins og Hillbilly er hann smá sveitalubbi, ferskur úr Mosfellssveit.

  10. #4 Rakel McMahon

    Rakel McMahon er mikið sjarmatröll, þó hún sé í dulargervi álfs. Hillbilly kíkti heim til hennar þarsem hún vinnur að sinni myndlist þegar hún er á íslandi. Annars heldur hún sig í Aþenu þaðan semfréttaflutningur er ekki alltaf fagur en listalífið blómstrar.

  11. #3 Tolli

    Tolli ræddi við Hillbilly um myndlistarelítuna, leitina að Tolla, að vera í núinu og uppbyggingu Tolla sem fyrirtæki. Hillbilly gekk út í algerri núvitund.

  12. #2 Hallgrímur Helgason

    Hillbilly heimsótti Hallgrím Helgason á vinnustofu hans í Reykjavík, hátt var til lofts og listaverk og bækur hvert sem augu litu. Hallgrímur talaði um árin í New York, togstreituna á milli myndlistarinnar og ritlistarinnar og hundurinn Lukka stal senunni nokkrum sinnum!

  13. #1 Hugleikur

    Í þessum fyrsta hlaðvarpsþætti Hús & Hillbilly ræðir Hugleikur Dagsson meðal annars um mikilvægi niðurlægingarinnar, en hann uppgötvaði tækni til þess að breyta upplifun niðurlægingarinnar í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að skammarleg atvik dagsins éti mann upp að innan, rétt fyrir…

    more

About this show

Í hlaðvarpinu Hús&Hillbilly fara systurnar Ragga og Magga Weisshappel inná vinnustofur listamanna og eiga við þá tímalaust spjall um líf og list, allt og ekkert, himinn og jörð og það sem er á milli. Viðtölin snúast um myndlist en fyrst og fremst um myndlistarmanninn sjálfan og hans haus. Hlustendur þurfa hvorki að vera menningarlegir né gáfaðir til þess að njóta. Hlaðvarpið er hugsað til þess að bæta servíettu í servíettusafn íslenskrar myndlistar. Systurnar hafa haldið úti vefritinu www.hillbilly.is í nokkur ár við góðan orðstír en þar eru birt rituð viðtöl og ljósmyndir úr vinnustofuheimsóknunum, og nú bætist hlaðvarp við til auka dýpt og gleði.

Hosted by

Stundin

Frequently asked questions

How many episodes does Hús & Hillbilly have?

Hús & Hillbilly has 13 episodes on PodParley. The most recent episode was published on March 19, 2021.

What is Hús & Hillbilly about?

Í hlaðvarpinu Hús&Hillbilly fara systurnar Ragga og Magga Weisshappel inná vinnustofur listamanna og eiga við þá tímalaust spjall um líf og list, allt og ekkert, himinn og jörð og það sem er á milli. Viðtölin snúast um myndlist en fyrst og fremst um myndlistarmanninn sjálfan og hans haus....

How often does Hús & Hillbilly release new episodes?

Hús & Hillbilly publishes monthly, based on its 13 episodes since June 2020.

Who hosts Hús & Hillbilly?

Hús & Hillbilly is created and hosted by Stundin.
Link copied