Skip to content
Þjóðmál podcast artwork

PODCAST · society

Þjóðmál

by Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Oct 16, 2026 · Source feed

Episodes

  1. #467 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Konráð Guðjóns – Enginn veit hvaða lag verður samið á morgun

    Jens Garðar Helgason og Konráð S. Guðjónsson mæta í líflegt samtal um stjórnmálin, efnahagsmálin og áskoranir í atvinnulífinu. Í upphafi er slegið á létta strengi með tónlist og eðalveitingum ásamt því að vekja athygli á Áramótasprengju Þjóðmála. Þá fjöllum við um vont loft í Efstaleiti, afsögn...

  2. #466 – Kaffispjall með Ingva Þór og Helga Frímannssyni – Ölgerðin fær gula spjaldið – Markaðurinn hikstar en horfir til betri tíma

    Ingvi Þór Georgsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar, og Helgi Frímannsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, ræða um stöðuna í atvinnulífinu og á fjármálamarkaði. Gestirnir rýna í stöðu Ölgerðarinnar, ástæður þess að ráðist var í húsleit hjá félaginu fyrir helgi og tilraunir til...

  3. #465 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Ólöfu Skafta – Erfitt að verðmeta það sem ekki verður

    Stefán Einar Stefánsson og Ólöf Skaftadóttir mæta í líflegt samtal um heitustu málin – og sitthvað annað. Rætt er um kjarasamningana, leikþátt VR, opinbera starfsmenn sem bíða á kantinum, stýrivexti, heimskulegar hugmyndir um leigubremsu, fyrirsjáanlegan taprekstur hjá ríkinu, baráttuna við...

  4. #464 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Heimsókn úr Vesturheimi og brothætt staða ríkisstjórnarinnar

    Björn Bjarnason mætir í samtal um stóru málin í utanríkis- og innanlandspólitíkinni. Við fjöllum meðal annars um heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í dag og mikilvægi samstarfs þjóðanna og öryggismála á Norður-Atlantshafi, og rýnum í væntanlega bók Björns þar sem hann greinir...

  5. #463 – Helgarvaktin með Andrési og Birni Inga – Bara brosa og slappa af

    Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir heitu málin og pólitíska hausthrollinn. Rætt er um ummæli fjármálaráðherra um að heimili eigi að þola sársaukann, þingmenn sem rjúka út í fússi af fundum með sveitarstjórnarmönnum, nýjan Þjóðarpúls og það hvort að einhver sé að hlaupa með...

  6. #462 – Kaffispjall með Jóhanni Má í Wolt

    Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi, ræðir um innreið tæknifyrirtækisins á íslenskan markað, deilihagkerfið og röskun á vinnumarkaði auk þess sem hann svarar gagnrýni verkalýðsfélaga og fjölmiðla um stöðu sjálfstætt starfandi verktaka hjá fyrirtækinu. Þá er einnig rætt um...

  7. #461 – Helgarvaktin með Hildi Sverris og Erni – Spilaborgin að hrynja

    Hildur Sverrisdóttir og Örn Arnarson mæta á skemmtilega helgarvakt þar sem stjórnmálin, vinnumarkaðurinn og efnahagsmálin eru krufin til mergjar. Pólitíkin tekur fljótt yfir þar sem gestirnir rýna í nýjustu átökin innan stjórnarliðsins og innanhússskilaboð sem minna helst á House of Cards. Velt…

    more
  8. #460 – Kaffispjall með Gunnari Baldvinssyni – Mikið unnið með fjárhagslegu sjálfstæði

    Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, mætir í gott spjall um nýútkomna og endurbætta útgáfu af bók sinni, Farsæl skref í fjármálum. Bókin, sem er lokahuti í þriggja bóka röð ætlaðri til að efla fjármálalæsi, hefur stækkað umtalsvert og geymir hagnýt tæki og tól...

  9. #459 – Helgarvaktin með Árna Helga og Lilju Alfreðs – Vindurinn virkjaður, í logni

    Árni Helgason og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mæta í líflegt og beinskeytt samtal um stóru málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um vindorkuverk sem var ræst í blankalogni, pirraðan fjármálaráðherra og óraunhæf markmið í fjárlögum, hvernig ríkisstjórnin ýtir því verkefni á undan sér að...

  10. #458 – Kaffispjall með Óla Birni – Hamrað á grunnhugmyndum hægri manna

    Óli Björn Kárason ræðir um helstu hugmyndir hægri manna um frjálsan markað, minni ríkisafskipti og öflugt einkaframtak í kjölfar útgáfu á nýrri bók sinni, Villigötur valdsins. Í þættinum er meðal annars rætt um það hvort að ríkisvaldið sé að seilast of langt inn í einkalíf og atvinnulíf…

    more
  11. #457 – Helgarvaktin með Ásdísi Kristjáns og Herði – Það þarf alvöru verkfæri ef það á að laga eitthvað

    Ásdís Kristjánsdóttir og Hörður Ægisson ræða fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, boðaðar skattahækkanir, leikþáttinn við kynningu frumvarpsins, líkurnar á því að rekstur ríkissjóðs komist yfir núllið og falleinkunn markaðarins yfir frumvarpinu með vaxandi verðbólguvæntingum. Einnig er rýnt í...

  12. #456 – Kaffispjall með Sigurði Má – Farið yfir sviðið í evrópskum stjórnmálum

    Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um pólitíska stöðu og horfur innan ríkja í Evrópu. Við rýnum í þróunina í Þýskalandi og Frakklandi - tveimur áhrifamestu ríkjum innan ESB - og hvernig innri krísur í þessum lykilríkjum hafa áhrif á stöðu sambandsins allt í heild sinni. Sérstaklega er sjónum...

  13. #455 – Helgvarvaktin með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen – Raunveruleikinn bankar á dyrnar

    Heiðar Guðjónsson og Sigríður Á. Andersen mæta á helgarvaktina og fara yfir eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðild að ESB, kröfur um rannsóknir á úrslitunum, viðbrögð þeirra sem lutu í lægra haldi, starfsemi Rúv í aðdraganda kosningarinnar og fleira. Þá er rætt um mögulega skuldakreppu í...

  14. #454 – Miðnæturspjall með Stefáni Einari og Andrési – Jáið er dáið, næsta mál

    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson rýna í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu, ósigur ríkisstjórnarinnar í málinu, stöðu einstakra ráðherra að lokinni, hvað lesa skuli i mikla kjörsókn, hvernig kosningabaráttan fór fram og fleira sem snýr að þessu máli sem…

    more
  15. #453 – Helgarvaktin með Þórði Páls og Orra Hauks – Þetta er alveg að verða búið

    Þórður Pálsson, efnahagsráðgjafi Þjóðmála, og Orri Hauksson mæta í líflegan þátt þar sem efnahagsmálin og stjórnmálin eru í brennidepli. Þeir rýna í nýja könnun Viðskiptablaðsins, þar sem yfirgnæfandi meirihluti telur ríkisstjórnina standa sig illa í efnahagsmálum, ásamt því að leggja mat á þróun...

  16. #452 – Kaffispjall með Stefáni Einari og Þórði – ESB mun vilja hagnaðinn af Landsvirkjun

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson mæta í líflegt samtal þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan um aðild að Evrópusambandinu og orkumálin eru í brennidepli. Við rifjum upp vel heppnað bjórkvöld Þjóðmála á Selfossi, fjöllum um eftirvæntinguna fyrir Þjóðfundi Þjóðmála á föstudaginn kemur, rýnum í...

  17. #451 – Maraþonþáttur IV – Epic útgáfa

    Fjórði maraþonþáttur Þjóðmála er mættur á allar helstu veitur og á Youtube. Gestir þáttarins eru Hörður Ægisson, Lárus Welding, Björt Ólafsdóttir, Örn Arnarson, Konráð S. Guðjónsson, Arnar Þór Stefánsson, Andrés Magnússon, Vilhjálmur Birgisson, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Andrea Sigurðardóttir,...

  18. #450 – Kaffispjall á Te & kaffi með Alberti Jónssyni

    Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, ræðir um utanríkismál og mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Albert færir rök fyrir því að sérstaða Íslands útiloki í reynd aðild án þess að gengið sé á grundvallarhagsmuni þjóðarinnar. Í spjallinu er rýnt í...

  19. #449 – Kaffispjall með Trausta Hjálmarssyni – Bændur eru búnir að kíkja í pakkann

    Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, mætir í efnismikið og upplýsandi spjall um stöðu og framtíð íslensks landbúnaðar. Trausti rýnir í nýútkomna skýrslu um afleiðingar mögulegrar ESB-aðildar Ísland og litlar væntingar til þess að Ísland fái undanþágur frá sameiginlegu landbúnaðarstefnu...

  20. #448 – Helgarvaktin með Snorra Mássyni og Diljá Mist – Þjóðmál boða til þjóðfundar

    Snorri Másson og Diljá Mist Einarsdóttir mæta í líflegt spjall um heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um komandi viðburði Þjóðmála á Selfossi og í Háskólabíói, rýnt er í væntanlega stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og svartsýna spá AGS um að hallalaus fjárlög verði ekki að...

  21. #447 – Kaffispjall með Eddu Hermanns

    Edda Hermannsdóttir, forstjóri Apótekarans, fer yfir stóru stefnubreytinguna og endurmörkunina úr Lyf og heilsu yfir í Apótekarann, stafræna vegferð og hvernig ásýnd apóteka er að breytast í takt við erlenda strauma. Við ræðum líka krefjandi rekstrarumhverfi íslenskra apóteka. Edda ræðir…

    more
  22. #446 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Er skaðinn skeður?

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin í skugga þess að almyrkvi á sól er framundan. Strákarnir rifja upp vel heppnað golfmót Þjóðmála sem fram fór í gær og bjórkvöld Þjóðmála um hábjartan dag í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Þá er rætt um sjálfsmörk…

    more
  23. #445 – Brekkusöngurinn með Heiðari Guðjóns og Agnari Möller – Hægri menn eiga alltaf að vera bjartsýnir

    Heiðar Guðjónsson og Agnar Tómas Möller mæta í léttan en efnismikinn þátt fyrir verslunarmannahelgina. Við ræðum allt milli himins og jarðar, í bókstaflegri merkingu. Rætt er um komandi almyrkva og þar er átt við alvöru almyrkva en ekki hagkerfið sem núverandi ríkisstjórn ræður ekki við að stýra…

    more
  24. #444 – Kaffispjall með Adda í Gunnbjarnarholti

    Þórður Gunnarsson ræðir við Arnar Bjarna Eiríksson, bónda og athafnaskáld í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Arnar Bjarni varpar ljósi á áskoranir og tækifæri í íslenskum landbúnaði og deilir sýn sinni á nýsköpun í landbúnaði og rekstur hans auk mikilvægi þess íslenskar sveitir...

  25. #443 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Erni Arnarsyni – Treystum þjóðinni, en samt ekki

    Sigríður Á. Andersen og Örn Arnarson fara yfir í heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Fjallað er um vandræði Þorgerðar Katrínar og upplýsingaóreiðu síðustu vikna, leyndarhyggjuna sem ríkir um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, meintar undanþágur hvað varðar losunarkvóta og skattahækkanir í...

  26. #442 – Kaffispjall með Láru Herborgu – Ekkert óvænt í pakkanum sem margir vilja skoða

    Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður flutti áhugavert ávarp á upphafsfundi Áfram Ísland fyrr í þessum mánuði. Þar fjallaði hún meðal annars um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu út frá sjónarhorni lögfræðinnar og íslensku stjórnarfari. Í þætti Þjóðmála útskýrir hún nánar innihald ávarpsins…

    more
  27. #441 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Mjólk er góð (og ódýr)

    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða stóra „mjólkurmálið“ og 60% reikningsskekkju varaborgarfulltrúa Viðreisnar, auk þess sem rýnt er í viðbrögð Þorgerðar Katrínar við fréttaflutningi af umræðum í hollenska þinginu. Við ræðum einnig um þau áhrif sem starfsmenn þingflokks Samfylkingar...

  28. #440 – Kaffispjall við Sigurð Hannesson – Við getum verið bjartsýn fyrir framtíðinni

    Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræðir um tækifærin og framtíðina hér á landi, hvernig hægt er að styðja helstu atvinnuvegi landsins enn frekar, hvað þarf til að bæta samkeppnishæfni Íslands í hörðu alþjóðlegu umhverfi, þörfina á því að taka stórar ákvarðanir sambærilegar...

  29. #439 – Helgarvaktin með Herði og Sólveigu Önnu – Sósíalisti í hlýju auðvaldssinna

    Hörður Ægisson og Sólveig Anna Jónsdóttir mæta á helgarvaktina og fara yfir stóru málin. Við ræðum um skeikula ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, vaxandi andstöðu við hana og upphafsfund „Áfram Ísland“ þar sem Sólveig Anna situr í stjórn. Farið er yfir afgerandi viðbrögð Já-sinna, nýja skýrslu um...

  30. #438 – Kaffispjall með Kristján Inga – Atvinnulífið þarf að hlaupa hraðar í gervigreindarkapphlaupinu

    Kristján Ingi Mikaelsson ræðir um það hvernig gervigreind er að umbylta viðskiptalífinu, hvernig stjórnendur þurfa að líta á gervigreind sem viðskiptalega stefnumótun og nýja tekjustrauma en ekki bara tækniverkefni, hvernig ströng regluvæðing hefur orðið til þess að Evrópa hefur dregist aftur úr...

  31. #437 – Helgarvaktin með Bergþóri og Önnu Hrefnu – Bestu kveðjur vestur um haf

    Þórður Gunnarsson stýrir Helgarvaktinni að þessu sinni og fær til sín Bergþór Ólason og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur til að fara yfir stóru málin. Við ræðum um 250 ára afmæli Bandaríkjanna, fylgi flokkanna hér á landi, kostnaðarsama styttingu vinnuvikunnar fyrir samfélagið, framtakið Áfram Ísland...

  32. #436 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Þegar setja þarf hluti í samhengi

    Björn Bjarnason kann að setja hlutina í samhengi og það gerir hann reglulega hér í Þjóðmálum. Í þætti dagsins ræðir Björn um stöðuna í íslenskum stjórnmálum, villandi umræðu um ESB-umsóknina sem kosið verður um í haust, sögulegt samhengi við NATO-aðildina og EES-samninginn, hvort að breyting hafi...

  33. #435 – Helgarvaktin með Andrési og Birgi Ármanns – Stærsta syndin í pólitík er að vera leiðinlegur

    Andrés Magnússon og Birgir Ármannsson rýna atburðarrás vikunnar. Við ræðum meðal annars um afsögn Keir Starmer í Bretlandi, sem kallar á spurningar um það hvort hann sé enn innblástur fyrir íslenska forsætisráðherrann og hvort að atburðarrásin sé með sambærilegum hætti hér á landi. Þá er rætt um...

  34. #434 – Kaffispjall – Gunnar Baldvinsson ræðir um íslenska lífeyriskerfið í samanburði við þau evrópsku

    Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, ræðir lífeyriskerfið hér á landi í samanburði við það evrópska. Tilefnið er nýleg greining viðskiptatímaritsins The Economist þar sem fjallað er með afar gagnrýnum hætti á lífeyriskerfi ríkja á meginlandi Evrópu, sem eru og...

  35. #433 – Helgarvaktin með Andreu og Tómasi Þór – Til hamingju með daginn konur og Össur

    Andrea Sigurðardóttir og Tómas Þór Þórðarson fara yfir sviðið eftir að Þjóðhátíðargolfmóti Þjóðmála á Írlandi lauk með glæsibrag. Við ræðum um lokahnykkinn á Alþingi og stöðuna í stjórnmálunum, stjórnmálamenn sem beygja sig og bugta fyrir embættismönnum, kenningu forstjóra SKE um að afkoma...

  36. #432 – Í beinni frá Írlandi – Þórður Pálsson og Glúmur Björnsson ræða málin á meðan aðrir spila golf

    Þórður Pálsson og Glúmur J. Björnsson mæta hressir til leiks, en þátturinn er að þessu sinni tekinn upp í einstöku umhverfi á Carton House á Írlandi þar sem Þjóðhátíðargolfmót Þjóðmála fer fram í samstarfi við GB Ferðir. Í þættinum ræðum við meðal annars um það hvernig Írum hefur gengið vel...

  37. #431 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Þeir vita sem vita

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin. Við ræðum nýafstaðna vorferð Þjóðmála norður í land og komandi golfmót á Írlandi, nýja könnun sem gerð var fyrir Þjóðmál um viðhorf fólks gagnvart mögulegu varaformannsframboði Dags B. Eggertssonar, skipun Ara Edwald í...

  38. #430 – Kaffispjall með Birni Berg og Ellerti Hlöðvers – Við erum þrátt fyrir allt með sterkt hagkerfi

    Björg Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri Íslandsbanka, ræða peningalega hegðun Íslendinga, fjárfestingar og stöðuna í efnahagslífinu. Í þættinum er rýnt í sveiflur á innlenda hlutabréfamarkaðnum, hvaða valmöguleika fólk sér í því að ráðstafa sparnaði sínum…

    more
  39. #429 – Helgarvaktin með Árna Helgasyni og Ólöfu Skaftadóttur – Hvað segir Jónas um ESB-bröltið?

    Árni Helgason og Ólöf Skaftadóttir fara yfir helstu vendingar síðustu daga. Við ræðum afsögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, afnám jafnlaunavottunar og mikilvægi þess að taka stundum slaginn við kerfið, þróun umræðunnar um útlendingamál, upplýsingaóreiðu ríkisstjórnarinnar í aðdraganda...

  40. #428 – Aukaþáttur – Áslaug Arna kveður stjórnmálin

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir í aukaþætti Þjóðmála þá óvæntu ákvörðunar sína að láta af þingmennsku og kveðja vettvang stjórnmálanna eftir að hafa helga líf sitt stjórnmálum síðastliðinn áratug. Áslaug Arna rekur aðdragandann að þessari stóru ákvörðun, hvaða þættir vógu þyngst og hvað tekur...

  41. #427 – Kaffispjall – Hörður og Þorbjörn Atli fara yfir stöðuna

    Hörður Ægisson og Þorbjörn Atli Sveinsson ræða þá stöðu sem hefur á liðnum misserum teiknast upp í íslensku viðskiptalífi. Við kryfjum stöðu Oculis og það hvort að íslenski markaðurinn höndli vaxtarfyrirtæki í þeirri stærðargráðu, kaup Brims á Lýsi, stöðu Icelandair í skugga harðra aðgerða...

  42. #426 – Helgarvaktin með Andrési og Erni – Það er hægt að hafa gaman án þess að tvöfalda embættismannakerfið

    Andrés Magnússon og Örn Arnarson ræða um nýjan meirihluta í Reykjavík og blendnar tilfinningar hægri manna til samstarfsins við Viðreisn og Framsókn, auk þess sem rætt er um áform um sölu á Ljósleiðaranum og Carbfix. Sjónum er beint að Alþingi og yfirlæti Þorgerðar Katrínar gagnvart þeim sem ekki...

  43. #425 – Kaffispjall – Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður Hallsdóttir ræða um ferðaþjónustuna og stöðu hennar

    Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður Hallsdóttir rýna í stöðuna og framtíðarhorfur í íslenskri ferðaþjónustu fyrir komandi sumar. Í spjallinu fara þau yfir helstu áskoranirnar sem greinin stendur frammi fyrir, allt frá breyttri hegðun ferðamanna til harðnandi alþjóðlegrar samkeppni um athygli þeirra....

  44. #424 – Helgarvaktin með Orra Hauks og Þórði Pálssyni – Stýrihópur um vinnuhóp um aðgerðaráætlun ... í haust

    Orri Hauksson og Þórður Pálsson rýna í nýjustu vendingar í efnahags- og stjórnmálum. Við ræðum um vaxtahækkun og trúverðugleika peningastefnunnar, líkur á því að kjarasamningar bresti, stöðuna í hagkerfinu, þá sem skapa verðmæti og þá sem tala um að skapa verðmæti, ESB umsóknina og villandi tal...

  45. #423 – Kaffispjall með Sigmundi Davíð

    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fer yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum í kjölfar nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga, hvar tækifærin liggja og hvernig flokkarnir standa á nýju pólitísku landslagi skautun í samfélagsumræðunni og hvernig hún hefur breytt samskiptum og ákvarðanatöku í stjórnmálum á...

  46. #422 – Aukaþáttur – Stefán Einar og Þórður kryfja kosningarnar – Kristún reif upp sverðið en tapaði

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson rýna í og greina með ítarlegum hætti niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna sem fram fóru í gær. Við ræðum stöðuna eftir einstaka sveitarfélögum, mögulega samstarfsmöguleika ýmissa flokka, stöðu ríkisstjórnarflokkanna eftir kosningar, innkomu og áhrif...

  47. #421 – Helgarvaktin með Hildi Björns og Ásdísi Kristjáns – Lokaspretturinn framundan

    Hildur Björnsdóttir og Ásdís Kristjánsdóttir ræða lokasprettinn í sveitarstjórnarkosningunum, hvernig baráttan hefur þróast í Reykjavík og Kópavogi, hvað brennur helst á kjósendum, um hægri áherslurnar í sveitarstjórnarmálum og fleira. Þær deila deila framtíðarsýn sinni á uppbyggingu og þróun...

  48. #420 – Kosningakaffi með Ingva Þór og Konráði Guðjóns – Svo heldur lífið áfram í næstu viku

    Ingvi Þór Georgsson og Konráð S. Guðjónsson kryfja lokasprettinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Rætt er um óvænta þróun í fylgismælingum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið í stóru sveitarfélögunum en Samfylkingin virðist í vörn. Rætt er um það hvort afskipti forsætisráðherra af...

  49. #419 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Gunnari Örlygs – Sjómaður hitting postulínsdreng

    Stefán Einar Stefánsson og Gunnar Örlygsson rýna í hitamál líðandi stundar. Farið er yfir sviðið fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þar sem staða meirihlutans í Reykjavík er sögð erfið á meðan Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið í Kópavogi og Reykjanesbæ. ESB-umræðan er krufin, allt frá...

  50. #418 – Kaffispjall – María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans

    María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, ræðir um umbreytingu félagsins og framtíðarsýn á stafrænum markaði, hvernig Síminn hefur þróast á liðnum árum og hvort fyrirtækið skilgreini sig í dag sem tækni-, þjónustu- eða afþreyingarfélag. Rætt er um samkeppnina við erlendar streymisveitur…

    more

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

HOSTED BY

Þjóðmál

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Þjóðmál have?

Þjóðmál currently has 467 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Þjóðmál about?

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

How often does Þjóðmál release new episodes?

Þjóðmál publishes regularly with 467 episodes available. Check the episode list for the typical release schedule.

Where can I listen to Þjóðmál?

You can listen to Þjóðmál on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Þjóðmál?

Þjóðmál is created and hosted by Þjóðmál.
URL copied to clipboard!