PODCAST · society
Kaflaskil
by RÚV Hlaðvörp
Nemendur í 10. bekk eru þessar vikurnar að sækja um framhaldsskólavist fyrir næsta vetur og möguleikarnir eru margir á þessum kaflaskilum í skólagöngu þeirra. Um leið er ekki sjálfgefið að fá inngöngu í skólann sem er efstur á óskalistanum – nema að nemandinn sé með annaðhvort A eða B plús í öllu. Og er A í einum skóla það sama og A í öðrum? Ef nemandi er með fötlun eða erlendan bakgrunn er síðan alls ekki víst að skólinn sem viðkomandi hugnast best geti tekið á móti honum og framhaldsskólarnir eru misvinsælir. Því skipta lokaeinkunnir úr grunnskóla sköpum ef sótt er um vinsælustu framhaldsskólana. Í þáttaröðinni Kaflaskil er rætt við fólk sem þekkir vel til í völundarhúsi menntakerfisins á Íslandi. Þáttaröðin Kaflaskil er framleidd af Rás 1. Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See <a style='color:grey;' target='_blank' rel='noopener noreferrer' href
Episodes
-
6. þáttur: Bekkjarkerfi eða áfangakerfi
Framhaldsskólar landsins eru yfir 30 talsins og flestir þeirra geta tekið á móti flestum þeirra sem sækja um skólavist að loknum grunnskóla. Nemendur með erlendan bakgrunn er fjölbreyttur hópur með svipaðar væntingar til framhaldsskólans og aðrir nemendur í íslenska skólakerfinu. Aftur á móti…
more -
5. þáttur: Samstarf á milli skólastiga
Mjög gott samstarf er á milli stærstu grunnskóla Austurlands og tveggja framhaldsskóla á svæðinu, Menntaskólans á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Þetta hefur gefið góða raun og lögð er áhersla á að hverjum nemanda sé fylgt úr hlaði með upplýsingum um viðkomandi. Mikill...
-
4. þáttur: Hvað ef þú passar ekki í boxið?
Við komumst ekki í gegnum lífið án stuðnings. Sumir þurfa meiri stuðning en aðrir. Íslenska skólakerfið á að vera án aðgreiningar, en er það svo? Ungmenni með fatlanir þurfa að sækja um framhaldsskóla í febrúar, sem sagt ekki á sama tíma og önnur ungmenni. Og það eru ekki óskir þeirra sem hafa…
more -
3. þáttur: Góður kennari er gulli betri
Góður kennari skiptir miklu máli og kennsla er gefandi starf en um leið erfitt. Það vantar fagmenntað fólk til starfa í grunnskólum landsins og ekki síst í greinum eins og íslensku og stærðfræði. Það er ekki nóg að fjölga fagfólki heldur vantar líka nýtt og betra námsefni. Eins má ekki gleyma...
-
2. þáttur: Samræmt námsmat og einkunnaverðbólga
Nýtt samræmt námsmat verður lagt fyrir í grunnskólum landsins vorið 2026. Prófað verður í stærðfræði og lesskilningi en ekkert samræmt námsmat hefur verið í grunnskólum undanfarin ár. Einkunnaverðbólga er staðreynd en Ísland er ekkert eyland þar. Viðmælendur í öðrum þætti Kaflaskila eru…
more -
1. þáttur: Aðalnámskrá og hæfniviðmið
Undanfarin ár hefur verið unnið að endurbótum á aðalnámskrá grunnskóla enda fékk hún falleinkunn í úttekt sem unnin var fyrir sex árum. Endurskoðuð aðalnámskrá tekur gildi næsta haust og þar hafa greinasvið og hæfni- og matsviðmið þeirra verið endurbætt og einfölduð. Í fyrsta þætti Kaflaskila er...
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Nemendur í 10. bekk eru þessar vikurnar að sækja um framhaldsskólavist fyrir næsta vetur og möguleikarnir eru margir á þessum kaflaskilum í skólagöngu þeirra. Um leið er ekki sjálfgefið að fá inngöngu í skólann sem er efstur á óskalistanum – nema að nemandinn sé með annaðhvort A eða B plús í öllu. Og er A í einum skóla það sama og A í öðrum?
Ef nemandi er með fötlun eða erlendan bakgrunn er síðan alls ekki víst að skólinn sem viðkomandi hugnast best geti tekið á móti honum og framhaldsskólarnir eru misvinsælir. Því skipta lokaeinkunnir úr grunnskóla sköpum ef sótt er um vinsælustu framhaldsskólana. Í þáttaröðinni Kaflaskil er rætt við fólk sem þekkir vel til í völundarhúsi menntakerfisins á Íslandi.
Þáttaröðin Kaflaskil er framleidd af Rás 1.
Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Hosted on Acast. See <a style='color:grey;' target='_blank' rel='noopener noreferrer' href
HOSTED BY
RÚV Hlaðvörp
CATEGORIES
Loading similar podcasts...