Episodes
-
Koma svo! - Þegar lífið tekur u beygju!
Í fjórða þætti, þriðja tímabils Koma svo! er rætt við Sigríði Arndísi Jóhannsdóttur, verkefnastjóra hjá Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíðar hjá Reykjavíkurborg. Einnig er hún varaborgarfulltrúi þar sem hún situr í nokkrum ráðum á vegum borgarinnar. Verkefnin voru mörg, margir boltar...
-
Koma svo! - Að hámarka lífsgæðin, er það flókið?
Í þriðja þætti, þriðja tímabils Koma svo! er rætt við Ragnheiði Agnarsdóttur. B.A. í sálfræði og M.A. í mannauðsstjórnun. Þegar Ragnheiður var búin að vera 16 ár í atvinnulífinu, upplifa makamissi og fara á hnefanum eins og okkur Íslendingum er svo tamt að gera, fóru hugsanir að gerjast um lífið…
more -
Koma svo! - Tengslarof, feluleikur og upprisa
Í öðrum þætti, þriðja tímabils Koma svo! er rætt við Sigurð Hólmar Karlsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Líf Sigurðar er efni í heila bók svo ekki meira sé sagt. Glíman við afleiðingar tengslarofs og áfengis- og vímuefnaneyslu hefur sett svip sinn á líf hans. Við þetta bætist svo felurleikur…
more -
Koma svo! - Dastu á hausinn Magnús?
Í þessum fyrsta þætti, þriðja tímabils Koma svo! er rætt við Magnús Sigurjón Guðmundsson, betur þekktan sem Maggi Pera. Magnús er tómstunda- og félagsmálafræðingur og hefur unnið lengi með unglingum. Hann söðlaði um í febrúar 2020 þegar hann hóf störf hjá Póstinum á Selfossi en áður af því varð...
-
Koma svo! - Virkar að sleikja spínatblað?
Í þrítugasta og fimmta þætti Koma svo! er rætt við Ragnhildi Þórðardóttur, sálfræðing með áherslu á heilsusálfræði og einnig lærðan einkaþjálfara. Hún er þekkt undir nafninu Ragga nagli, býr í Danmörku og hefur boðið upp á sálfræðimeðferð og fjarþjálfun síðustu ár. Þar er unnið með hugsanir og...
-
Koma svo! - Jógvan eða Jógvan, það er spurningin!
Í þrítugasta og fjórða þætti Koma svo! er rætt við Jógvan Hansen söngvara / tónlistarmann / hárgreiðslumann / eiginmann / föður. Færeyingurinn hugljúfi er einn ástsælasti söngvari Íslands og skyldi engan undra. En hvaða mann hefur hann að geyma? Eru Færeyingar mikið öðruvísi en við Íslendingar?
-
Koma svo! - Hamingjuhornið
Í þrítugasta og þriðja þætti Koma svo! er rætt við Önnu Lóu Ólafsdóttur, kennara, náms- og starfsráðgjafa og er með diplóma í sálgæslu á meistarastigi. Hún byrjaði að skrifa pistla og birti á netsíðu og Facebook undir nafninu Hamingjuhornið. Pistlarnir náðu mikilli útbreiðslu og þóttu bæði...
-
Koma svo! - Óvænt nýsköpun í félagsmiðstöðvastarfi
Í þrítugasta og öðrum þætti Koma svo! er rætt við Stefán Gunnar Sigurðsson forstöðumann félagsmiðstöðvarinnar Frosta um þær áskoranir sem Covid-19 höfðu á starf félagsmiðstöðva á Íslandi. Eftir að samkomubanni var komið á voru góð ráð dýr fyrir starf félagsmiðstöðva. Starfsmenn þurftu, á skömmum...
-
Koma svo! - Fátt er svo með öllu illt...
Í þrítugasta og fyrsta þætti Koma svo! er rætt við Bergsvein Ólafsson, sem er með BSc í sálfræði og í mastersnámi í jákvæðri- og þjálfunarsálfræði, um vinnuna með fjölbreyttum einstaklingum og hópum við persónuleg, félagsleg og fagleg markmið. Hugmyndafræði hans byggir að mestu leyti á sálfræði,...
-
Koma svo! - Þungarokk og töfrar
Í þrítugasta þætti Koma svo! er rætt við Ingólf Hjálmar Ragnarsson Geirdal, gítarleikara og töframann, um nördisma, lífið og tilveruna. Hvað kom á undan, þungarokkið eða töfrarnir? Hvað er það sem drífur hann áfram, áræðni, seigla eða þrjóska?
-
Koma svo! - Verndum þau
Í tuttugasta og níunda þætti Koma svo! er rætt við Þorbjörgu Sveinsdóttur sálfræðing, sem starfar í Barnahúsi og hefur mikla reynslu af barnaverndarmálum. Hún, ásamt Ólöfu Ástu Farestveit uppeldis- og afbrotafræðing, skrifaði bókina "Verndum þau" sem fjallar um skyldur og ábyrgð þeirra sem starfa...
-
Koma svo! - Orkuboltinn jákvæði
Í tuttugasta og áttunda þætti af Koma svo! er rætt við Júlíus Garðar Júlíusson, fæddan 2. febrúar á því herrans ári 1966. Í kínverskri stjörnuspeki kemur fram að þeir sem fæddust á þessu ári eru eldhestar eða sérstaklega orkumikið fólk. Júlli er einstakur orkubolti, andlegur með afbrigðum og...
-
Koma svo! - Seigla, seigla, seigla
Í tuttugasta og sjöunda þætti af Koma svo! er rætt við Gunnar Karl Haraldsson, tómstunda- og félagsmálafræðing og meistaranema, um áskoranir lífsins. Snemma lærði Gunnar Karl að hindranir eru yfirstíganlegar og að allt sé hægt ef viljinn er fyrir hendi. Seigla er það fyrsta sem kemur upp í hugann...
-
Koma svo! - Andlegt hjartahnoð
Í tuttugasta og sjötta þætti af Koma svo! er rætt við Auði Axelsdóttur, iðjuþjálfa og framkvæmdastjóra Hugarafls (og einn stofnanda þess). Auður hefur unnið innan geðheilbrigðiskerfisins lengi og var ekki sátt við margt innan þess kerfis. Þegar hún og félagar hennar ræddu um hvað hægt væri að…
more -
Koma svo! - Skólabókasafn á krossgötum
Í tuttugasta og fimmta þætti af Koma svo! er rætt við Dröfn Vilhjálmsdóttur, geislafræðing sem tók meistaragráðu í bokasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands árið 2013 og starfar nú á skólabókasafni Seljaskóla. Dröfn er formaður Félags fagfólks á skólasöfnum og í stjórn IBBY á Íslandi sem...
-
Koma svo! - Stjúptengsl
Í tuttugasta og fjórða þætti af Koma svo! er rætt við Valgerði Halldórsdóttur, félagsráðgjafa, MA og ritstjóra vefsíðunnar stjuptengsl.is og formann Félags stjúpfjölskyldna. Valgerður hefur haldið fjölmörg erindi sem tengjast stjúptengslum, foreldrasamvinnu, og umgengni eftir skilnað m.a. fyrir...
-
Koma svo! - OptimizedBjartur 2.0
Í tuttugasta og þriðja þætti Koma svo! er rætt við Bjart Guðmundsson, leikara, frammistöðuþjálfara og margt fleira, aftur! Hvort viltu vellíðan eða sársauka?
-
Koma svo! - Lífið, missir og sorg
Í tuttugasta og öðrum þætti Koma svo! er rætt við Halldór Reynisson, guðfræðing, MA í fjölmiðlafræði og markaðsfræðigrúskara. Hann hefur starfað sem blaðamaður, forsetaritari, prestur og nú siðast sem verkefnisstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs Biskupsstofu. Er einhver æðri máttur sem leiðir mann...
-
Koma svo! Ísland 2 - Serbía 0
Í tuttugasta og fyrsta þætti Koma svo! er rætt við Bojönu Kristínu Beisic, sem er með BS gráðu í stjórnun íþróttafélaga (Sport Administration) og knattspyrnuþjálfara, um það að flytja til Íslands og ílengjast á landinu. Draumur stúlku í Serbíu um að verða atvinnukona í knattspyrnu, viðbrögð við...
-
Koma svo! - Teiknari, hvernig vinna er það?
Í tuttugasta þætti Koma svo! er rætt við Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur, teiknara og rithöfund, um það sem einkennir hana, ímyndunaraflið og afkastagetuna. Hún hefur myndlýst fjölda barnabóka og námsefni, haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Frá því að fyrsta bók Bergrúnar, Vinur minn,...
-
Koma svo! - OptimizedBjartur
Í nítjánda þætti Koma svo! er rætt við Bjart Guðmundsson, leikara, frammistöðuþjálfara og margt fleira. Hvað er hægt að gera í mótlæti? Er hægt að snúa eigin brestum og erifðleikum í eitthvað jákvætt og magnað? Hvort viltu vellíðan eða sársauka? Flytur trúin fjöll?
-
Koma svo! - Krakkar eru fáránlega skemmtileg fyrirbæri
Í átjánda þætti Koma svo! er rætt við Gísla Ólafsson, uppeldis- og menntunarfræðing og forstöðumann í frístundaheimilinu Glaðheimum. Er rangt að vera fáránlega lengi að klára nám? Hvað er það við krakka sem gerir þau fáránlega skemmtileg fyrirbæri? Hvernig er að vera í samsettri fjölskyldu? Er...
-
Koma svo! - Essið
Í sautjánda þætti Koma svo! er rætt við Kristínu Dóru Ólafsdóttur, myndlistarkonu og listkennara, um Essið: Ræktun jákvæðrar sjálfsmyndar á umrótatímum. Essið fæddist í félagsmiðstöðinni Frosta og er hluti af MA verkefni Kristínar Dóru frá Listkennsludeild LHÍ 2019. Í Essinu er áhersla lögð á…
more -
Koma svo! - Fræðsla ekki hræðsla
Í sextánda þætti Koma svo! er rætt við Arnrúnu Magnúsdóttur, deildarstjóra í leikskólanum Brákarborg, um verkefnið "Fræðsla ekki hræðsla". Verkefnið gengur út á fræðslu og umræður og markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar. Einnig að sýna fram á mikilvægi þess að ræða opinskátt, vera til staðar...
-
Koma svo! - EmmSjéGADHD
Í fimmtánda þætti Koma svo! er rætt við Gauta Þey Másson, AKA Emmsjé Gauta sem er búinn að vera í eldlínu rappsins frá 12 ára aldri. Jaðarsport, grunnskóli fyrir alla (eða ekki), afglæpavæðing fíkniefna og greiningar - já, allt þetta er rætt enda engin furða...nettur ofvirknis- og athyglisbrests...
-
Koma svo! - Lestur eykur víðsýni!
Í fjórtánda þætti Koma svo! er rætt við Yrsu Sigurðardóttur, verkfræðing og einn fremsta rithöfund Íslands. Ævintýrið byrjaði þegar Yrsa skrifaði barnabók fyrir son sinn þegar þau áttu heima í Kanada. Eftir fimm barnabækur og góða pásu nálgaðist bókaútgefandi hana og spurði hvort hún gæti ekki...
-
Koma svo! - Meðvirkni
Í þrettánda þætti Koma svo! er rætt við Gyðu Dröfn Tryggvadóttur, sem er með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu (EMPH) og einnig hefur lokið námi í meðvirknifræðum Piu Mellody, sem skoða áhrif fjölskyldunnar á uppvöxt okkar og þroskaferil. Hvað er meðvirkni og hverjar eru...
-
Koma svo! - Í höfðinu á Ævari!
Í tólfta þættir Koma svo! er rætt við Ævar Þór Benediktsson, leikara, rithöfund og (áhuga) vísindamann. Ævar Þór er margverðlaunaður höfundur og í höfði hans leynist ýmislegt sem á eftir að líta dagsins ljós. Forvitnin rekur hann áfram og sem betur fer því börn á öllum aldri fá að njóta sköpunar...
-
Koma svo! - Allir eru eitthvað og það er stórt
Í ellefta þætti Koma svo! er rætt við Pálmar Ragnarsson, Bs. í sálfræði og Ms. í viðskiptafræði, fyrirlesara um jákvæð samskipti á vinnustöðum, í skólum og íþróttafélögum. Hvernig varð hann einn vinsælasti fyrirlesari Íslands? Var það skrifað í skýin?
-
Koma svo! - Dr. Granny jarðsett í karate
Í tíunda þætti Koma svo! er rætt við Rósu Gunnarsdóttur, kennara, doktor í menntunarfræðum og félaga í BACA um tækifærin í lífinu. Rósa ætlaði að verða hjartaskurðlæknir eða kokkur, endaði sem kennari þar sem hún uppgötvaði nýjar víddir í lífinu. Forvitnin, ofvirknin og athyglisbresturinn fann…
more -
Koma svo! - Foreldramissir
Í níunda þætti Koma svo! er rætt við Birnu Dröfn Jónasdóttur, félagsfræðing og blaðakonu, um það að missa foreldri ung að árum. Hver var stuðningurinn? Hvernig stuðning er hægt að veita 12 ára gömlu barni þegar foreldri fellur óvænt frá? Hvaða áhrif hefur foreldramissir á óharðnaðann unglinginn?...
-
Koma svo! - Á allra vörum, VAKNAÐU!
Í áttunda þætti Koma svo! er rætt við Gróu Ásgeirsdóttur, viðskiptafræðing, verkefnastjóra hjá Flugfélagi Íslands og eina af upphafskonum átaksins "Á allra vörum". Hún greindist með brjóstakrabbamein, leit á það sem verkefni og náði bata. Í þessu ferli kom upp sú hugmynd að styðja söfnunarátak...
-
Koma svo! - Þegar óskin rætist
Í sjöunda þætti Koma svo! er rætt við Hrönn Bjarnadóttur, viðskiptafræðing, næstum því hjúkrunarfræðing og með meistarapróf í markaðsfræðum, um barnseignir. Er sjálfgefið að allir geti eignast barn? Eru valmöguleikar þegar kemur að arfgengum sjúkdómum?
-
Koma svo! - Skyldusjálf, óskasjálf og raunsjálf? Sjálfsmisræmi!
Í sjötta þætti Koma svo! er rætt við Ragnheiði Guðfinnu Guðnadóttur sem er með meistaragráðu í Félags- og Vinnusálfræði og sérfræðingur og ráðgjafi hjá Forvörnum. Ragnheiður vinnur mikið með það hvernig einstaklingar geta bætt lífsstíl sinn með því að bera ábyrgð á eigin líðan og hegðun.
-
Koma svo! - Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt!
Í fimmta þætti Koma svo! er rætt við Sigurð Hólmar Jóhannsson, fyrrum flugumferðarstjóra, um það að vera faðir langveikrar dóttur. Sunna Valdis er eina barnið á Íslandi sem greinst hefur með AHC sjúkdóminn sem er mjög sjaldgæfur í heiminum. Af hverju að stofna samtök um barnið sitt? Baráttan við...
-
Koma svo! - IOGT, tækni og youbitube!
Í fjórða þætti Koma svo! er rætt við Aðalstein Gunnarsson, framkvæmdastjóra Bindindissamtakanna IOGT á Íslandi. Hvernig var að alast upp í miðbænum? Er Aðalsteinn upphafsmaður Parkour á Íslandi? Hvaða áhrif hefur það á dreng á fermingaraldri að flytja í Breiðholtið? Leðurjakki, mótorhjól, pönkið…
more -
Koma svo! - Færðu borgað fyrir að leika þér?
Í þriðja þætti Koma svo! er rætt við Árna Guðmundsson, aðjúnkt á menntavísindasviði HÍ. Saltvík? Ketill Larsen? Fríkirkjuvegur 11! Þetta þrennt og ævistarfið hefur plantað sér í litlum strák úr Safamýrinni. Reykjavík, Gautaborg og Hafnarfjörður, æskulýðsstörf, félagsuppeldisfræði og uppbygging...
-
Koma svo! - Er klám fallegt kynlíf?
Í öðrum þætti Koma svo! er rætt við Kolbrúnu Hrund Sigurgeirsdóttur, verkefnastýru á nýsköpunarmiðstöð menntamála hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Hvenær á að byrja að kenna jafnrétti? Hvernig er jafnrétti kennt? Eru allir eins? Er fjölbreytileikinn eitthvað ofan á brauð? Hvað er...
-
Koma svo! - ...og orðið er: "Snjótittlingur"
Í þessum fyrsta þætti annarar þáttaraðar Koma svo! er rætt við Matthías Frey Matthíasson, íþrótta- og tómstundafulltrúa Voga, um leikaradrauminn, nám, Benjamín dúfu, mótlæti, áskoranir og sigra.
-
25. Koma svo! - Stundum er jákvætt að vera latur!
Í 25. þætti Koma svo! er rætt við Láru Aðalsteinsdóttur, verkefnastjóra Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO. Hvað þýðir það að vera Bókmenntaborg UNESCO? Hvað og hvernig er hægt að auka áhuga barna og ungmenna á lestri? Hvernig getur leti haft áhrif á lífið og tilveruna?
-
24. Koma svo! - Ræktaðu garð...nei, geðið þitt!
Í 24. þætti Koma svo! er rætt við Héðinn Unnsteinsson, íþrótta- og grunnskólakennara og stefnumótunarsérfræðing, um geðrækt. Farið er um víðan völl um geðheilbrigði, reynslu Héðins af kerfinu og hver staða mála er í dag.
-
23. Koma svo! - Samskipti, áhættuhegðun, styrkleikar
Í 23. þætti Koma svo! er rætt við Sigrúnu Aðalbjarnardóttur, prófessor í uppeldis- og menntavísindum, meðal annars um bók hennar "Lífssögur ungs fólks, Samskipti, áhættuhegðun, styrkleikar."
-
22. Koma svo! - Ha! Ester? Nei, TINNA!
Í 22. þætti Koma svo! er rætt við Þuríði Sigurðardóttur, félagsráðgjafa og verkefnastjóra TINNU, þar sem markmiðið er að styðja unga einstæða foreldra sem hafa nýtt sér fjárhagsaðstoð til framfærslu hjá Þjónustumiðstöð Breiðholts og búa í Breiðholti. Takmarkið er að börn fátækra foreldra verði…
more -
21. Koma svo! - Svefn? Er það eitthvað ofan á brauð?
Í 21. þætti Koma svo! er rætt við Bóas Valdórsson, skólasálfræðing í MH, um vinnuviku og venjur framhaldsskólanema. Niðurstöður könnunar sem gerð var eruáhugaverðar og gætu vakið samfélagið til umhugsunar.
-
20. Koma svo! - Bergið Headspace
Í tuttugasta þætti Koma svo! er rætt við Sigurþóru Bergsdóttur, móður, vinnusálfræðing og framkvæmdastjóra Bergsins Headspace um tímann sem er liðinn frá því að sonur hennar tók sitt eigið líf eftir mikla vanlíðan og erfiðleika.
-
19. Koma svo! - Börn í viðgerð?
Í nítjánda þætti Koma svo! er rætt við Þórdísi Rúnarsdóttur, sálfræðing og verkefnastjóra verkefnisins "Sterkari út í lífið". Markmið þess er að auka aðgengi foreldra að efni sem hægt er að nota til að auðvelda samtöl um ýmislegt sem snertir styrkingu sjálfsmyndar barna og unglinga.
-
18. Koma svo! - Salt og ... paprika!
Í átjándanda þætti Koma svo! er rætt við Sigurjón Braga Geirsson, matreiðslumeistara og Kokk ársins 2019. Hvað (eða hver) stjórnar því hvaða ákvarðanir við tökum í lífinu? Er bóknám fínna en verknám? Treystum við eigin innsæi?
-
17. Koma svo! - Við höfum allt að vinna og engu að tapa!
Í sautjánda þætti Koma svo! er rætt við Kolbrúnu Þorbjörgu Pálsdóttur, dósent og forseta Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Þverfaglegt samstarf fagaðila sem vinna með börnum og ungingum, betra fyrir alla? Hvaða sóknarfæri liggja í slíku samstarfi?
-
16. Koma svo! - Það er eitthvað að, finnum lausnir!
Í sextánda þætti Koma svo! er rætt við Þorkel Mána Pétursson, fyrst og fremst föður en líka markþjálfa og útvarpsmann, um börnin, greiningar og kerfið. Er eðlilegt að það sé 12-18 mánaða biðtími að komast á námskeið en ef 70 þúsund krónur eru í veskinu þá tekur það viku bið? Hvað gerist á þeim…
more -
15. Koma svo! - Er lífið bútasaumur?
Í fimmtánda þætti Koma svo! er rætt við Nilsinu Larsen Einarsdóttur, Nillu, meistaranema og starfsmann Unicef á Íslandi. Hvaða viðhorf velur þú til lífsins? Hvernig tekur þú á lífinu og því sem það hefur upp á að bjóða? Af hverju sagði amma Nilla að maður ætti ekki að hafa áhyggjur af lífinu?...