Skip to content
Kona er nefnd podcast artwork

PODCAST · society

Kona er nefnd

by Kona er nefnd

Sögur kvenna hafa í gegnum tíðina gleymst eða ekki fengið það pláss sem þær eiga skilið. Kona er nefnd er hlaðvarp sem skoðar sögur allskonar kvenna, sem hafa á einn eða annan hátt snert samfélög heimsins frá örófi alda.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Apr 16, 2026 · Source feed

Episodes

  1. Kona er nefnd... Wangari Maathai og Jaha Dukureh - 11. þáttur, 2. sería

    TW - í þættinum er rætt um FGM (female genital mutilation) og kynferðisofbeldi Ekki er farið í mjög grafískar lýsingar og TW alltaf gefið þegar það á við. Konur þáttarins eru Wangari Maathai og Jaha Dukureh. Þær eiga það sameiginlegt að berjast fyrir réttindum kvenna í sínum heimalöndum í Afríku...

  2. Kona er nefnd... María Mey og Grýla - 10. þáttur, 2. sería

    Konur þáttarins eru jólakonur, auðvitað þær María Mey, móðir frelsarans, og Grýla, móðir jólasveinana. Hverjar eru konurnar á bakvið þessa frægu menn? Hvað tákna þær fyrir þau sem trúa á tilvist þeirra, og fyrir þau sem trúa ekki? Mæður, meyjur, fósturlandsins freyjur, þessar tvær konur eru...

  3. Kona er nefnd... Aaron Philip og Lolo Spencer - 9. þáttur, 2. sería

    Konur þáttarins eru fyrirsætan og aktívistinn Aaron Philip og leikkonan, Youtuber-inn og aktívistinn Lolo Spencer. Þær eru báðar fatlaðar konur sem hafa með styrk og elju látið drauma sína rætast í heimi sem er uppfullur af fötlunarfordómum og aðgengisleysi fyrir fatlað fólk. Aaron Philip er fædd...

  4. Kona er nefnd... Albertina Sisulu og Graça Machel - 8. þáttur, 2. sería

    Konur þáttarins eru afrískar baráttukonur sem báðar höfðu mannréttindi og betrun samfélagsins að leiðarljósi. Í gegnum sjálfstæðisbaráttur gegn nýlendu- og aðskilnaðarstefnur höfðu þær áhrif á framtíð landa sinna og jafnrétti samlanda sinna.

  5. Kona er nefnd... Mel B og Shirley Bassey - 7. þáttur, 2. sería

    TW: Í fyrri hluta þáttarins er fjallað um ofbeldissamband og sjálfvígstilraun. Neðst eru hlekkir samtaka sem geta aðstoðað vegna vanlíðunar eða ofbeldis. Konur sjöunda þáttar hjá Kona er nefnd eru þær Mel B og Shirley Bassey. Það leynist ýmislegt á bakvið glamúrlíf fræga og ríka fólksins. Hvernig...

  6. Kona er nefnd... Serena Williams og Caster Semenya - 6. þáttur, 2. sería

    Konur dagsins eru íþróttakempur með meiru. Serenu Williams þekkja flest enda stjörnutenniskona til margra ára, en hvernig komst hún þar sem hún er í dag og hvað þarf hún sem svört kona að berjast við á hverjum degi (svarið er rasismi og feðraveldi). Caster Semenya skaust upp á stjörnuhimininn sem...

  7. Kona er nefnd... Cheryl Clarke og Audre Lorde - 5. þáttur, 2. sería

    Konur dagsins eru þær Cheryl Clarke og Audre Lorde, báðar ljóðskáld, báðar svartar og báðar lesbíur. Í ljóðum sínum fjölluðu þær báðar mikið um upplifanir sínar af bæði kynþætti og hinseginleika sínum, auk annarra upplifana sína í gegnum lífið af sjúkdómum, fjölskyldu, aktívisma og fleira. Þær...

  8. Kona er nefnd... Ernestine Eckstein og Stormé DeLarverie - 4. þáttur, 2. sería

    Konur dagsins eru mikilvægir brautryðjendur og baráttukonur í hinsegin baráttu síðustu aldar. Ernestine Eckstein og Stormé DeLarverie tóku virkan þátt í að berjast fyrir réttindum sínum og annarra, á mótum hinseginleikans og þess að vera svartar konur í rasískum veruleika.

  9. Kona er nefnd... Madam C.J. Walker, Marie Van Brittan Brown og Sarah E. Goode - 3. þáttur, 2. sería

    Það er ýmislegt sem heimurinn hefði ekki án uppfinninga frá svörtu fólki. Í þessum þætti er fjallað um nokkrar konur sem voru frumkvöðlar á ýmsum sviðum. Madam C.J. Walker, Marie Van Brittan Brown og Sarah E. Goode leituðu lausna til að bæta líf sitt, og annarra.

  10. Kona er nefnd... Winnie Harlow og Munroe Bergdorf - 2. þáttur, 2. sería

    Konur þáttarins eru fyrirsæturnar og baráttukonurnar Winnie Harlow og Munroe Bergdorf. Þær starfa báðar sem fyrirsætur og vilja breyta hvíta normi tískuheimsins innan frá.

  11. Kona er nefnd... Elaine Brown og Afeni Shakur - 1. þáttur, 2. sería

    Konur þáttarins eru tvær af helstu baráttukonum í the Black Panthers hreyfingunni sem börðust ötullega fyrir réttindum svartra í Bandaríkjunum. Fyrsti þáttur í annarri seríu af Kona er nefnd.

  12. Kona er nefnd... Sheryl Sandberg og Melinda Gates - 18. þáttur

    Konur dagsins koma beint frá tækniheiminum í Silicon Valley. Sheryl Sandberg er COO Facebook og stofnandi Lean in samtakanna og Melinda Gates er tæknifrumkvöðull, fyrrum starfsmaður Microsoft og stórtæk í góðgerðamálum um allan heim.

  13. Kona er nefnd... LIVE á Kynjaþingi 2019!

    Kona er nefnd skellti sér á Kynjaþing 2019 í Norræna Húsinu og konur þáttarins voru ekki af verri endanum en þær voru fyrstu konur í bæjarstjórn, árið 1908. Þær Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Þórunn Jónassen, Katrín Magnússon og Guðrún Björnsdóttir voru miklar baráttukonur sem ruddu brautina fyrir...

  14. Kona er nefnd... Aimee Mullins og Mia Hamm - 16. þáttur

    Konur þáttarins eru báðar frábærar íþróttakonur og frumkvöðlar sem láta ekkert stoppa sig.

  15. Kona er nefnd... Mary Phelps Jacob og Ada Lovelace - 15. þáttur

    Uppfinningakonur er þema þáttarins en þær Mary og Ada voru frumkvöðlar á hvorn sinn hátt og við eigum þeim báðum margt að þakka!

  16. Kona er nefnd... Ava Duvernay og Marlene Dietrich - 14. þáttur

    Þema dagsins eru stjörnur úr kvikmyndaheiminum. Ava Duvernay er leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi sem er að breyta leiknum í bandarískri kvikmyndagerð og Marlene Dietrich var stórstjarna gömlu Hollywood sem beygði kynjareglurnar. Minnum á Facebook og Instagram leik Kona er nefnd sem...

  17. Kona er nefnd... Peggy Guggenheim og Patrisse Cullors - 13. þáttur

    Konur þáttarins eru ólíkar en báðar frumkvöðlar á sínu sviði. Peggy Guggenheim bjargaði stórmerkilegum málverkum sem listsafnari og Patrisse Cullors er upphafskona Me Too áður en Me Too byltingin varð til.

  18. Kona er nefnd... Emma Holten og Tarana Burke - 12. þáttur

    Í tilefni af Me Too ráðstefnunni sem var haldin í Reykjavík 17.-19. september 2019 fjallar þessi þáttur um tvær sterkar konur sem hafa barist gegn kynferðisofbeldi síðustu ár og áratugi. TW: umfjöllun um kynferðisofbeldi

  19. Kona er nefnd... Eleanor Roosevelt og Michelle Obama - 11. þáttur

    Þær stórmerkilegu forsetafrúr, Elanor Roosevelt og Michelle Obama, eru konur þáttarins. Hvernig er líf forsetafrúa Bandaríkjanna?

  20. Kona er nefnd... Lady Gaga - 10. þáttur

    Í tíunda þætti halda Tinna og Silja Björk upp á 10 ára vinkonuaafmæli og 10 ár af því að vera miklir aðdáendur Lady Gaga. Í þessum extra langa þætti er farið ítarlega yfir sögu þessarar stórmerkilegu konu, frá æsku hennar og yfir glæsilegan feril sem spannar meira en tíu ár!

  21. Kona er nefnd... Bára Halldórsdóttir - 9. þáttur

    Í þessum þætti er farið yfir víðan völl í lífi stórmerkilegrar konu sem er best þekkt fyrir litla upptöku á litlum bar en er svo miklu meira en það. Bára Halldórsdóttir kíkti í viðtal og sagði okkur frá konunni á bakvið nafnið.

  22. Kona er nefnd... Gaby Dunn og Brenda Howard - 8. þáttur

    Hinsegin þema hlaðvarpsins fer yfir í tvíkynhneigðar OG fjölkærar konur í þessum þætti - Gaby Dunn og Brenda Howard eru konur þáttarins

  23. Kona er nefnd... Billie Jean King og Megan Rapinoe - 7. þáttur

    Konur þáttarins eru íþróttakonur og hafa haft mikil áhrif innan sinna íþrótta en líka utan þeirra. Gleðilegt Pride!

  24. Kona er nefnd... Marsha, Sylvia og Laverne - 6. þáttur

    Í tilefni 50 ára afmælis Stonewall uppþotanna er kjörið að líta yfir sögu Marsha P. Johnson og Sylvia Rivera sem áttu stóran þátt í hinsegin baráttu á árunum í kringum og eftir uppþotin. Auk þess færum við okkur til nútímans og fjöllum um leikkonuna og aktívistann Laverne Cox.

  25. Kona er nefnd... Ingileif og María - 5. þáttur

    Konurnar Ingileif og María hafa verið áberandi í hinsegin baráttunni á Íslandi meðal annars með stofnun Hinseginleikans sem er núna Instagram, sjónvarpsþáttur og hlaðvarp!

  26. Kona er nefnd... Hillary og Monica - 4. þáttur

    Uppfært nóvember 2023: Hillary Clinton er hvorki baráttukona né snillingur og Kona er nefnd styður ekki hennar verk og vinnu. Hillary Clinton og Monica Lewinsky eru tvær konur sem eiga einn mann sameiginlegan, en oft gleymist að þær eru báðar öflugar baráttukonur og snillingar

  27. Kona er nefnd... Chidera Eggerue og Amber Rose - 3. þáttur

    Konur þáttarins eru sjálfsöruggar, sterkar, kynþokkafullar, opinskáar og frakkar - og það hefur oft verið nýtt gegn þeim. Chidera Eggerue, aka The Slumflower og Amber Rose eru konur þriðja þáttar Kona er nefnd.

  28. Kona er nefnd... Roxane og Feminista - 2. þáttur

    Roxane Gay og Feminista Jones eru konur þáttarins. TRIGGER WARNING kynferðis ofbeldi og tal um nauðgunamenningu 9:05 til 12:48 Femínismi svartra kvenna er ekki sá sami og hvítra kvenna og bæði Roxane og Feminista ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, skrifa um og halda fyrirlestra um…

    more
  29. Kona er nefnd... Simone og Marilyn - 1. þáttur

    Fyrsti þáttur hlaðvarpsins Kona er nefnd þar sem farið er yfir sögur tveggja stórmerkilegra kvenna. Annarsvegar er það Simone de Beauvoir sem var kveikjan að hugmyndinni að hlaðvarpinu og hinsvegar er það Marilyn Monroe, sem var misskilin stórstjarna með stóra sögu. Góðar stundir!

  30. Kona er nefnd - kynning

    Hverjar eru konurnar á bakvið Kona er nefnd? Hvaðan kemur hugmyndin og, af hverju? Stutt kynning á nýja íslenska hlaðvarpinu Kona er nefnd!

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Sögur kvenna hafa í gegnum tíðina gleymst eða ekki fengið það pláss sem þær eiga skilið. Kona er nefnd er hlaðvarp sem skoðar sögur allskonar kvenna, sem hafa á einn eða annan hátt snert samfélög heimsins frá örófi alda.

HOSTED BY

Kona er nefnd

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Kona er nefnd have?

Kona er nefnd currently has 30 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Kona er nefnd about?

Sögur kvenna hafa í gegnum tíðina gleymst eða ekki fengið það pláss sem þær eiga skilið. Kona er nefnd er hlaðvarp sem skoðar sögur allskonar kvenna, sem hafa á einn eða annan hátt snert samfélög heimsins frá örófi alda.

How often does Kona er nefnd release new episodes?

Kona er nefnd has 30 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Kona er nefnd?

You can listen to Kona er nefnd on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Kona er nefnd?

Kona er nefnd is created and hosted by Kona er nefnd.
URL copied to clipboard!