PODCAST · music
Konsert
by RÚV
Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.
-
1
-
0
-
-1
-
-2
-
-3
-
-4
Baraflokkurinn - David Bowie - Kaleo - Todmobile og gestir
Í Konsert kvöldsins förum við á Eurosonic Festival í Hollandi og heyrum í Kaleo og hvernig þeir hljómuðu þar árið 2015, en það ár spiluðu 19 atriði frá Íslandi. Við förum líka á Glastonbury Festival árið 2000 og heyrum nokkur lög með David Bowie. Við endum á að heyra nokkrar upptökur með Todmobile og vinur þeirra eins og Tony Hadley (Spandau Ballet), Midge Ure (Ultravox) og Jon Anderson (Yes). En við byrjum á Baraflokknum á Eyrarrokki í fyrra og á Gauknum árið 2000.
-
-5
Pétur Ben á Reykjavík Folk Festival og Ann Wilson
Í Konsert vikunnar byrjum við á að heyra tónleika Péturs Ben á Reykjavík folk festival í Iðnó í sumar - en hátíðin var endurvakin með góðum árangri í sumar. Pétur spilaði sín eigin lög í bland við lög eftir Prince og fleiri. Í seinni hlutanum hlustum við á Ann Wilson úr hljómsveitinin Heart þar sem hún flytur sín eigin lög en líka lög úr smiðju Heart og lög eftir David Bowie og Led Zeppelin td.
-
-6
Led Zeppelin og BB King á tónleikum
Á fimmtudögum eru KONSERT-kvöld á Rás 2. Í Konsert bjóðum við upp á tónleikaupptökur héðan og þaðan og frá ýmsum tímum. Í Konsert kvöldsins heyrum við upptöku frá þýska ríkisútvarpinu í Bremen frá árinu 1968 með BB. King - í tilefni af því að 16. september voru 100 ár frá fæðingu meistarans sem hafði áhrif á fjölda annara gítarleikara sem á eftir honum komu - t.d. Eric Clapton, Keith Richards, Peter Green, Jimi Hendrix og Jimmy Page. Við heyrum líka í Led Zeppelin á tónleikum í Englandi - upptökur frá 1975 og 1979.
-
-7
Karlsvaka 2025 og Radiohead 2003-2209
Í Konsert vikunnar heyurm við brot af því besta frá Karlsvöku sem haldin var í Þorlákskirkju í Þorlákshöfn síðasta sunnudag á 75 ára afmælisdegi Karl. J. Sighvatssonar sem var fyrsti og fremsti Hammond-orgelleikari landsins. Kalli spilaði með Flowers, Trúbrot og Þurslaflokknum er fór síðar til orgelnáms í Vín og Salzburg í Austurríki, nam tónsmíðar í Boston og var organisti við kirkjur í Neskaupsstað, Bolungarvík og um tíma við fimm kirkjur í Ölfusi. Hann kom líka að tónlistarkennslu og kórastarfi en hann stýrði meðal annars Kirkjukór Hveragerðis og Kotstrandarsóknar og Söngfélagi Þorlákshafnar. Á Karlsvöku voru leikin lög sem tengjast Kalla og þau flutt af frábærri hljómsveit og söngkonum af svæðinu: Tómas Jónsson - orgel, Guðni Finnsson - bassi, Valbjörn Lilliendahl - gítar. Söngur: Lay Low, Kristjana Stefánsdóttir og Emilía Hugrún. Kynnir var Jakob Frímann Magnússon. Í seinni hluta þáttarins förum við svo á tónleika með Radiohead - heyrum upptökur frá tímabilinu frá 2003-2009 og öll lögin eru af plötunni Hail to the Thief sem kom út 2003.
-
-8
Peter Gabriel á Womad 1982 og Lola Young á Way Out West 2025
Í þessum þætti förum við á tónleika eins og alltaf- þetta er fyrsti Konsert þáttur haustsins. Við byrjum á að bjóða ykkur í ferðalag aftur til ársins 1982 á fyrstu WOMAD-tónlistarhátíðina sem haldin var í Somerset á Englandi. Þar var aðal maðurinn Peter Gabriel, tiltölulega nýhættur í hljómsveitinni Genesis og á barmi þess að festa sig í sessi sem einn áhrifamesti tónlistarmaður síns tíma. Eftir það förum við til Gautaborgar á Way Out West tónlistarhátíðina 2025 og hlustum á Lolu Young.
-
-9
Bruce Springsteen í Manchester í maí
Bruce Springsteen er á tónleikaferðalagi um Evrópu um þessar mundir með The E-street band. Hann byrjaði túrinn í Manchester 14. maí og hélt þrenna tónleika í Co-op Live höllinni í Manchester sem tekur rúmlega 20.000 manns í sæti. Þeir tónleikar vöktu athygli um allan heim vegna þess að hann var aðeins að punda á forsetann sinn – og forsetinn svaraði fyrir sig. Forsetinn sagði á Truth Social að þessi útbruni hæfileikalausi svokallaði rokkari – "dumd as a rock" - ætti bara að loka á sér munninum – og taka svo afleiðingum orða sinna þegar hann kæmi heim – sjáum til hvað gerist þá sagði hann. Við bjóðum í kvöld upp á tónleika sem fóru fram 17. maí.
-
-10
Moses Hightower í Háskólabíó 2017 og Dire Straits í San Antonio 1985
Í Konsert vikunnar ætlum við að hlusta á tvær flottar hljómsveitir: Heyrum tónleika með Dire Straits í San Antonio í Texas sem fóru fram árið 1985 þegar Dire Straits var að fylgja eftir metsöluplötunni Brothers in arms og var ein vinsælasta og stærsta hljómsveit heims. Og svo heyrum við brot frá útgáfutónleikum Moses Hightower í Háskólabíó í september 2017.
-
-11
-
-12
-
-13
-
-14
-
-15
Nýdönsk á Bræðslunni 2016 og Jónas Sig og Milda Hjartað á Bræðslunni 2019
Dagskrá Bræðslunnar á Borgarfirði Eystra í sumar var opinberuð núna í vikunni og miðasalan fór líka í gang og hún fór heldur betur í gang af krafti – enda dagskráin stórglæsileg. Þetta er 20 ára afmælisveisla, Á föstudeginum verða t.d. sérstakir tónleikar með Emiliönu Torrini sem er eiginleg upphafskona Bræðslunnar - hún var aðalnúmerið á fyrstu hátíðinni 2005 og spilaði líka 2006. En núna í Konsert í kvöld ætlum við að rifja upp Bræðslur fyrri tíma og heyrum í Ný Dönsk (2016) og Jónasi Sig og Milda Hjartanu (2019).
-
-16
Egill Ólafsson 60 ára í Fríkirkjunni 9. febrúar 2013
Það sem við bjóðum uppá í Konsert kvöldsins eru útgáfutónleikar Egils Ólafssonar sem fóru fram í Fríkirkjunni í Reykjavík daginn sem hann varð sextugur þann 9. Febrúar árið 2013 og tilefnið er skemmtilegt. Í fyrsta lagi var hann að gefa þessa tónleika út á vinyl í fyrsta sinn núna á dögunum í takmörkuðu upplagi. Og svo í gær tóku þau hjónin Egill og Tinna Gunlaugsdóttir á móti heiðursverðlaunum Íslensku sjónvarps og kvikmyndaakademíunnar, ÍKSA, við hátíðlega athöfn á Hiltonhótelinu í Reykjavík. Egill er einn merkasti og afkastamesti tónlistarmaður íslenskrar dægurtónlistarsögu sendi frá sér frábæra plötu haustið 2012, plötuna Vetur, .og það var verið að fagna útgáfu hennar þarna í Fríkirkjunni á afmælisdegi söngvarans og tónskáldsins Egils og leikarans – 9. febrúar 2013. Þetta var laugardagskvöld og kirkjan var troðfull af fólki .sem beið í eftirvæntingu eftir að fá að heyra hvað Egill ætlaði að syngja með hljómsveitinni – Finnsk íslenska vetrarbandalaginu, og eins hvað hann ætlaði að segja - en Egill er mikill og skemmtilegur sögumaður eins og alþjóð veit.
-
-17
Ylja, Egill Ólafsson og GDRN & Magnús Jóhann á þægilegum nótum
Konsert vikunnar er á þægilegum og næs nótum. Við byrjum á að heyra í Ylju á Reykjavík Folk festival á Kex-hostel 2013 í tilefni af því að hátíðin er endurvakin núna í byrjun maí. Þá heyrum við í Agli Ólafs og Finnsk-Íslenska Vetrardandalaginu í std. 12 árið 2013 – þegar Egill var að senda frá sér plötuna Vetur, en útgáfutónleikar þeirrar plötu voru að koma út á vinyl. Að endingu förum við á HEIMA í Hafnarfirði í fyrra og heyra í GDRN og Magnúsi Jóhanni sem spiluðu í Fríkirkjunni.
-
-18
Supersport, SúEllen, Tony Allen og The Strokes
Í Konsert í kvöld byrjum við á að heyra ú Supersport á Eurosonic festival í janúar – Supersport spilaði á rokkklúbbnum Vera sem Nirvana, Joy Divison, U2, Mínus og Sólstafir hafa spilað líka. Þá förum við á Bræðsluna 2014 og hlustum á SúEllen sem er að spila á Græna Hattinum á laugardaginn – fyrstu tónleikana í 6 ár. Þá förum við á Hróarskeldu og hlustum á afróbít með Tony Allen og hljómsveit, og endum svo í Stokkhólmi sumarið 2001 með The Strokes sem voru þá sjóðheitir.
-
-19
Reykjavík Folk Festival 2013
Reykjavík Folk Festival snýr aftur dagana 1.- 3. maí 2025 í tilefni af því að 15 ár eru liðin frá fyrstu hátíðinni. Hátíðin er sett upp að alþjóðlegri fyrirmynd þar sem spilagleðin er í forgrunni og órafmögnuð hljóðfæri eru í aðalhlutverki. Fyrsta hátíðin fór fram með þetta að leiðarljósi árið 2010. Forsvarsmaður, hugmyndasmiður, helsti hönnuður og fyrsti framkvæmdastjóri Reykjavik Folk Festival var Ólafur Þórðarson, ástsæll tónlistarmaður í Ríó Tríó og fleiri hljómsveitum auk þess að vera bakhjarl fjöldamargra tónlistarmanna. Af því tilefni bjóðum við upp á tónleikaupptökur úr safni RÚV frá Reykjavík Folk Festival 2013 með Ólöfu Arnalds og Þjóðlagahljómsveit Reykjavíkur sem er svona samansett: Helgi Pétursson - kontrabassi, söngur Gunnar Þórðarson - gítar, söngur Ágúst Atlason - söngur, gítar Magnús R. Einarsson - mandólín, gítar, söngur Björn Thoroddsen – gítar
-
-20
Hildur Vala - Emmsjé Gauti og Soffía Björg og Pétur Ben á HEIMA
Tónlistarhátíðin HEIMA er árlegur viðburður í Hafnarfirði og fer alltaf fram síðasta vetrardag. Hún fer þannig fram að fólk kaupir miða á TIX – fær svo armband afhent á hátíðardag og prentaða dagskrá með tímasetning og staðsetningum og fer svo þangað sem það vill fara – til að hlusta á það sem það vill hlusta á. Rás 2 hefur nokkrum sinum mætt á HEIMA og tekið upp og við ætlum að hlusta á 3 tóndæmi frá HEIMA í Konsert í kvöld – og byrjum á Hildi Völu og Ómari Guðjónssyni frá 2022. Svo heyrum við tónleika Emmsjé Gauta frá í fyrra og svo Soffíu Björg og Pétri Ben líka frá síðasta ári.
-
-21
Iggy Pop á Montreux 2023
Við ætlum að hlusta á afa pönksins í Konsert vikunnar – Iggy Pop! Iggy sem var í Stooges – Iggy sem var með Bowie í Berlín – Iggy sem er fyrirmynd Utangarðsmanna-Bubba – og fyrirmynd svo marga annara síðan. Við ætlum að hlusta á tónleika sem fóru fram á Montreux jazz Festival sumarið 2023. En hann heitir James Newell Osterberg jr. og er fæddur 21. Apríl árið 1947 – í bænum Muskegion í Michigan í Bandaríkjunum. Hann vakti athygli með hljómsveitinni The Stooges á sínum tíma en í sögulegu samhengi er Stooges ein fyrsta pönkhljómsveit heimsins, spilaði hrátt og ruddalegt rokk og Iggy þótti sérkennilegur, hoppandi um sviðið – oftar enn ekki ber að ofan og lét öllum illum látum. En allt þetta sem Iggy varð þekktur fyrir er fyrir löngu orðið hluti af normi rokksins – og ekkert skrýtið eða sérkennilegt í dag, en Iggy sem er orðinn 77 ára gamall er enn að spila – og enn er hann hoppandi um sviðið – ber aða ofan. Iggy hefur sent frá sér 19 sólóplötur og sú síðasta kom út í september í fyrra og heitir Every looser. Iggy hefur einu sinni spilað á íslandi – var með tónleika í Listasafninu í Reykjavík árið 2006. Tónleikarnir sem við ætlum að hlusta á með Iggy og hljómsveitinni hans voru hljóðritaðir á Montreux Jazz Festival í Sviss íAuditorium Stravinski – 6. júlí 2023 Hann var með 7 manna band með sér – blés lífi í gamla Stooges slagara eins og “I Wanna Be Your Dog” and “T.V. Eye – og aðra gamla smelli – eins og Passenger og Lust for life – og fólkið kunni vel að meta þetta alltsaman.
-
-22
HAM og Jónas Sig á Airwaves 2011
HAM og Jónas Sig á Airwaves 2011
-
-23
Cat Power syngur Dylan í Royal Albert hall
Það er heilmikið Bob Dylan æði í gangi um þessar mundir í tenglsum við kvimyndina um hann – A complete unknown sem er verið að sýna í bíó núna um allan heim og er tilnefnd til 8 Oscarsverðlauna. Við ætlum að hlusta á Dylan í kvöld í Konsert (óbeint) Við ætlum að hlusta á bandarísku tónlistarkonuna Cat Power syngja Dylan. Þetta eru tónleikar sem hún hélt 5. nóvember 2022 í Royal Albert hall í London – þar sem hún endurskapaði tónleika Dylans frá maí 1966 sem fóru reyndar fram í Manchester. Þessir tónleikar eru frægir meðal Dylan-fólks, Þeir voru gefnir út á ólöglegri BOOTLEG plötu fyrir mörgum áratugum og þá var sagt að þeir væru frá Royal Albert Hall. Þetta var fyrsti heimstúr Dylans, túrinn þar sem hljómsveitin sem fékk síðar nafnið THE BAND var með Dylan, og það var baulað á hann og þá á hverju kvöldi – fyrir að vera að spila á rafmagnshljóðfæri. Cat Power spilar öll lögin sem Dylan spilaði 1966 - á sama stað og í sömu röð.
-
-24
-
-25
Nick Cave & the Bad Seeds í París 17. nóvember 2024
Við ætlum að fara til Parísar í kvöld á tónleika með Nick Cave og Bad Seeds og heyra upptöku frá Franska útvarpinu (France Inter) en tónleikarnir fóru fram í Accord Arena í París 17. Nóvember sl. ***Cave og Bad Seeds hafa verið að fylgja eftir nýjustu plötunni sinni Wild God sem er 18. plata Cave með Bad Seeds og kom út 30 ágúst sl.. Platan hefur selst vel – fór í fyrsta sæti vinsældalista í Belgíu, Hollandi og Sviss til dæmis og dómarnir hafa verið flottir líka, ***platan er tilnefnd til Grammy verðlauna í Alternative flokki – Best alternative music album og Best alternative music performance. Cave á megnið af músíkinni á plötunni eins og á öllum plötum Bad Seeds. Hann byrjaði að semja lög fyrir plötuna á nýársdag 2023, upptökur fóru fram í London. Warren Ellis var hans hægri hönd og svo upptökustjórinn Dave Fridman sem hefur unnið mikið með Flaming Lips t.d. -og Mercury Rev. ***Wild God er allt öðruvísi en Ghosteen sem var mikil sorgarplata, undir miklum áhrifum frá dauða sonar Arthurs Cave sem var bara 15 ára gamall þegar hann hann féll fram af háum kletti í Brighton og lést. Sú plata er seigfljótandi – draumkennd – og sorgleg - en Wild God er meiri gleði og meira stuð – og meira rokk. ***Nick Cave & Bad Seeds fóru um Evrópu núna í haust – spiluðu meira en 30 tónleika og enduðu í París í Accord Arena þar sem spilað var fyrir fullu húsi – eins og alls staðar í túrnum. Í bandinu í dag eru með Nick Cave: Warren Ellis- syntheseizer, fiðla, bakraddir ofl. George Vjestica - gítarar Martyn P. Casey - bassi Thomas Wydler - trommur Jim Sclavunos - slagverk, bakraddir ofl.
-
-26
David Bowie á sviði 1978
Það er 9. Janúar í dag sem er dagurinn milli fæðingardags og dánardags David Bowie. Og í tilefni dagsins förum við á tónleika með David Bowie vorið 1978 þegar Bowie var 31 árs, -á hátindi ferils síns myndu sumir segja. Bowie fæddist 1947 og lést 69 ára að aldri árið 2016.
-
-27
GDRN, Hipsumhaps og Flott
Í fyrsta Konsert ársins heyrum við í Hipsumhaps og GDRN á Aldrei fór ég suður 2024 og svo í hljómsveitinni Flott á Iceland Airwaves 2024.
-
-28
Soldið jólalegt með Megasi og Sauðrekunum, Baggalúti og Bogomil Font og Stórsveit Reykjavíkur
Í Konsert vikunnar rifjum við upp brot frá nokkrum jólatónleikum úr safni Rásar 2. Við komum við í Háskólabíói laugardagskvöldið 7. desember 2013 á tónleikum Baggalúts. 13 desember sama ár með Megasi og Sauðrekunum, og í ráðhúsi Reykjavíkur í desember 2006 með Stórsveit Reykjavíkur og Bogomil Font.
-
-29
Ragnheiður Gröndal 30 ára í Norðurljósum í desember 2014
Ragnheiður Gröndal er í aðalhlutverki í Konsert vikunnar. Hún hefur lengi verið ein ástsælasta söngkona, eða tónlistarkona okkar Íslendinga núna í meira en 20 ár. Þegar hún var þrítug fyrir áratug hélt hún upp á afmælið sitt með tónleikum í Norðurljósum í Hörpu og við ætlum að útvarpa þeim í Konsert í kvöld. Hún gerði óformlega könnun á Facbook og spurði vina sína og aðdáendur hvað þeir vildu heyra og byggði prógrammið upp á því sem fólkið sagði og á efnisskránni voru bæði jóla-lög og heilsárs. Með Ragnheiði á tónleikunum voru: Guðmundur Pétursson - gítarar Pálmi Gunnarsson - bassi Kristinn Snær Agnarsson - trommusett Claudio Spieler - slagverk Rakel Pálsdóttir, Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Ásta Björg Björgvinsdóttir - Raddir Arnar Ingi Richardsson, Gísli Páll Karlsson og Jóhann Arnar Þorkelsson - Raddir Haukur Gröndal - Klarínett og saxófónn Óskar Guðjónsson, Ólafur Jónsson og Sigurður Flosason - Saxófónar
-
-30
Las Vegas christmas show 2024
Upptaka frá Las Vegas christmas show í Gamla bíó 1. desember 2024
-
-31
KK & Maggi Eiríks í Stúdíó 12 2003 og Mannakorn á Bræðslunni 2013
Þakkarorða íslenskrar tónlistar verður afhent í fyrsta skipti á sunnudaginn (1. desember) á degi íslenskrar tónlistar og fyrsti orðuhafinn er Magnús Eiríksson. Þessi verðlaun eru heiðursverðlaun nýstofnaðs Tónlistarráðs og er þeim ætlað að heiðra starf og sköpun þess listamanns er fyrir valinu verður og um leið bjóða landsmönnum upp á einstaka tónlistarveislu í Eldborg í Hörpu á sunnudaginn þar sem nokkur af bestu lögum Magnúsar verða flutt af mörgum af fremstu flytjendum landsins. Þeirra á meðal eru Bríet, Ragga Gísla, Pálmi Gunnarsson, Ellen Kristjáns, Mugison, KK og Valdimar Guðmundsson, auk einvala liðs hljóðfæraleikara undir stjórn tónlistarstjórans Eyþórs Gunnarssonar. Kynnar verða Jón Jónsson og Salka Sól. Allir miðarnir tónleikanna voru boðsmiðar og þeir ruku út á nokkrum mínútum þegar opnað var fyrir "miðasöluna" síðasta mánudag. Í Konsert vikunnar tökum við ofan fyrir Magnúsi og hann skemmtir okkur sjálfur. Við hlustum á Mannakorn á Bræðslunni 2013 og í Magga Eiríks og KK í Stúdíó 12 árið 2003.
-
-32
Skip Marley á Rototom 2024 og Hjálmar á Akranesi 2019
Í Konsert vikunnar heyrum við í Skip Marley á Rototom Sunsplash Reggae festival í Benicassim á Spáni í sumar, og svo Hjálmum í Bíóhöllinni á Akranesi í júní 2019. Skip Marley er barnabarn Bob´s Marley, - sonur Cedellu Marley sem er dóttir Bob´s og Ritu Marley. Skip er að gera það nokkuð gott, hann er t.d. með rúma milljón mánaðarlega hlustendur á Spotify og hefur tvisvar verið tilnefndur til Grammy verðlauna. Mamma hans Skip er fædd 1967 og er næstelsta barn Ritu og Bob´s, hann er sjálfur fæddur 1996 og alinn upp á Miami. Hann var ekki gamall þegar hann fór að fikta við að spila á hljóðfæri eins og píanó, trommur, bassa og gítar, og svo að semja lög. 19 ára gaf hann út sitt fyrsta lag (2015) og var í kjölfarið boðið að koma með frændum sínum Damian og Stephen Marley í tónleikaferðinni "Catch a fire" sem farin var til minningar um Bob Marley. 2017 gerði hann útgáfusamning við Island records – sem gaf út plötur afa hans á sínum tíma. Sumarið 2019 fóru Hjálmar í tónleikaferð um ísland og komu til dæmis við á Akranesi, í Bíóhöllinni. Þeir kölluðu ferðina; Aftur á Bak í tilefni af því að það kom út plata með lögum sem flest höfðu komið út eitt og eitt í einu á undanförnum árum. Þeir spiluðu á 15 stöðum, byrjuðu 31. Maí og 29. Júní komu þeir við á Akranesi. Við heyrum brot af þeim tónleikum í Konsert vikunnar.
-
-33
U2 1993 - Úlfur Úlfur IA 2024 - The Cure 1986
Í Konsert í kvöld ætlum við að fara á þrjá staði – förum aftur til ársins 1986 og á Glastonbury hátíðina Það árið og heyrum upptökur með hljómsveitinni The Cure, en Cure er á toppnum á breska vinsældalistanum þessa vikuna með nýju plötuna sína; Songs of a lost World sem er fyrsta platan þeirra í 16 ár og besta platan þeirra í meira en 20 ár segja sumir. Iceland Airwaves fór fram um síðustu helgi – 25 ára afmæli. Við heyrum í Úlfur Úlfur á Airwaves frá síðasta föstudegi en þeir spiluðu fyrir troðfullu og áhugasömu Kolaportinu. En við byrjum á U2 eins og U2 þótti kannski best og mest töff – fyrir 30 árum á Zoo TV tónleikatúrnum.
-
-34
Kris Kristofferson í Stokkhólmi 2016 og Árný Margrét á Airwaves 2023
Í kvöld förum við á tónleika með Kris Kristofferson í Gothenburg Concert Hall árið 2016 og svo á Iceland Airwaves í fyrra og heyrum í Árnýju Margréti. Kris Kristoffersson lést á heimili sínu á sunnudaginn – 88 ára að aldri. Hann var lagasmiður, söngvari, leikari og allt mögulegt, litríkur karakter sem átti að baki langan og gæfuríkan feril. Hann spilaði þrisvar á Íslandi. Fyrst kom hann 1992 og spilaði á Hótel Íslandi. Næst kom hann og spilaði fyrir fullri Laugardalshöll 14. júní 2004 og kom svo aftur og spilaði í Hörpu 2016 – nokkrum dögum eftir að hann spilaði í tónleikahöllinni í Gautanborg – tónleikana sem við ætlum að hlusta á í Konsert í kvöld, en þessir tónleikaferð var hans síðasta.
-
-35
50 ára afmæli Stax í Royal Albert Hall
Í Konsert vikunnar förum við á tónleika sem BBC stóð fyrir í Royal Albert Hall 1. September 2018 í tilefni af 50 ár afmæli STAX hljómplötu-útgáfunnar í Memphis í Tennesse í henni Ameríku.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.
HOSTED BY
RÚV
CATEGORIES
Loading similar podcasts...