Skip to content
Kórónulestur podcast artwork

PODCAST · society

Kórónulestur

by Svavar Jónatansson

Kórónulestur er hljóðbókalestur uppúr gömlum ritum í von um að kveikja hugmyndir að símtali við eldri kynslóðina og ræða um innhald lestursins.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Apr 15, 2026 · Source feed

Episodes

  1. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1934 (1.lestur)

    Haldið norðaustur í Þingeyjarsýslu og 86 ár aftur í tímann í þessum Kórónulestri

  2. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1984 (2.lestur)

    Við höldum áfram að fræðast um jarðfræði Reykjanesskagans í tilefni nýlegs jarðskjálfta vestan við Kleifarvatn, en saga skagans er samofin jarðskjálftum og eldgosum.

  3. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1984 (1.lestur)

    Lestur um jarðfræði Reykjanesskaga í tilefni af stærsta jarðskjálfta sem mælst hefur síðan árið 2003, en vestan við Kleifarvatn skalf jörð 20 okt og fannst 5.6 ricther skjálftinn allt vestur á firði. Í lestri dagsins fáum við innsýn í sögulega þróun jarðfræði Reykjanesskaga

  4. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1976 (2.lestur)

    Annar lestur úr Árbók FÍ (1976) um valda kafla Fjallabaksleið Syðri.

  5. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1976 (1.lestur)

    Haldið inn á hálendi Íslands með fjölbreyttri leiðsögn Árna Böðvarssonar sem leiðir okkur um landslag, jarðfræði, sögu og staðhætti.

  6. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1975 (12lestur)

    Annar lestur úr Árbók FÍ, 1975, þar sem farið er yfir jarðfræði Mýrdals ásamt fleiru.

  7. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1975 (1.lestur)

    Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1975 (1.lestur) þar sem viðfangsefnið er Mýrdalur. Fyrsti lestur eftir langt hlé, en satt best að segja vonaði ég að ég myndi aldrei aftur lesa Kórónulestur í ljósi þess að lesturinn er bundinn því að veiran sé enn að hafa mikil áhrif á samfélagið. Slíkt...

  8. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1985 (2.lestur)

    Annar lestur úr Árbók FÍ 1985 um nágrenni Reykjavíkur, en að þessu sinni förum við í kring um Esjuna. Hið þekkta svæði Mógilsár, til austurs eftir hlíðum Kistufells, að Móskarðshnjúkum og þaðan hringinn. Þórnýjartindur, Stardalur, Eilífsdalur, glæfraför fólksbíls illfærar smáár eru meðal þess sem...

  9. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1985 (1.lestur)

    Fjallað um næsta nágrenni Reykjavíkur, en í lestrinum verður sjónum beint að Heiðmörk, útivistarparadís og vin höfuðborgarbúa. Langur listi höfunda koma að árbókinni 1985, enda mikill fróðleikur á ferð.

  10. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1973 (2.lestur)

    Við lesum áfram um Svarfaðardalinn, en að þessu sinnni mjöööög hægt! Lesturinn er hugsaður handa þeim sem ekki hafa íslensku sem móðurmál, en eru langt komnir í að læra. Þetta kemur í kjölfarið af fyrirspurn frá Facebook hóp útlendinga sem hjálpast að við að læra íslensku, og þótti Kórónulestur...

  11. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1973 (1.lestur)

    Hjörtur E Þórarinsson ritar Árbók FÍ 1973 og fjallar um heimaslóðir sínar í Svarfaðardal. Fjallað er um landslagið, fjöll þess, ár, tún, sögu, fólk og ýmsan fróðleik. Stóllinn, Kerling, Skíðadalur, gulstör, aðalbláber, Gljúfráin, ofl

  12. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1972 (1.lestur)

    Árbók FÍ 1972 fjallar um Rangárvallasýslu austan Markarfljóts, svæði sem ég rek ættir mínar til og leyfi mér að minnast fólks og fjalla frá persónulegum sjónarhóli. Skriðuhlaup og langlífur verslunarrekstur, stórbýli og frægasti hreppsfundur Íslandssögunnar, allt í ritstjórn Páls Jónssonar

  13. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1966 (1.lestur)

    Árbók FÍ árið 1966 fjallar um Rangárvallasýslu vestan Markarfljóts, og er efnið í höndum d. Haraldar Matthíassonar. Sérstök áhersla lestursins í dag er á Markarfljótið sem farartálma sem og tenging svæðisins við Njálu.

  14. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1960 (1.lestur)

    Suðurjöklar er nafn Árbókar Ferðafélags Íslands árið 1960, eftir Guðmund Einarsson, með vísan í Eyjafjallajökul, Mýrdalssjökul og Tindfjallajökul. Lesturinn vísar í þann síðastnefnda, sökum nálægðar við sumarbústað sem ég dvaldi í fyrir nokkrum dögum. Sömuleiðis er Fjallabaksleið Syðri til...

  15. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1995 (2.lestur)

    Annar lestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1995 um Heklu. Lesturinn er tekinn upp í sumarbústað suðaustan við Heklu svo tengingin er sterk, en hljóðgæðin síðri! Ég biðst afsökunar á seinkun í nýjum lestri síðustu daga en tæknileg vandamál hömluðu mér. Vona að þið njótið.

  16. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1995 (1.lestur)

    Árbók FÍ árið 1995 fjallar um Heklu, umhverfi hennar og áhrif. Efni bókarinnar er tekið saman af Árna Hjartarsyni, en fyrri Kórónulestur tók til árbókar 1945 þar sem Hekla var sömuleiðis til umfjöllunar. Í þessum lestri ber Selsund helst á góma auk þess sem fjallað er um dularfullt hvarf bæjar…

    more
  17. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1994 (1.lestur)

    Guðrún Ása Grímsdóttir miðlar landslagi, náttúru, sögu og veðri Ystu Stranda í Árbók FÍ árið 1994. Svæðið er einna þekktast fyrir friðlandið Hornstrandir, en á þessum útnára byggðar má finna fjölbreytta sögu fólks í sambúð við óblíða náttúru.

  18. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1978 (1.lestur)

    Jóhann Skaptason, fyrrverandi sýslumaður á Húsavík, ritar árbók FÍ 1978 með Suður Þingeyjarsýslu sem viðfangsefni. Fjallað er um Reykjadal og Aðaldal, bæi þeirra og búendur við lok 8. áratugarins.

  19. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 2001

    Það er Kjöllur og kjalverðir (jöklar) sem eru viðfangsefni Arnórs Karlssonar og Odds Sigurðssonar í árbók FÍ 2001. Í þessum lestri verður farið yfir vatnasvið Kjalar (hér er Kjölur um Kjöl frá Kili til Kjalar!), landmótun og gróður.

  20. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1979 (2.lestur)

    Annar lestur úr árbók FÍ 1979 þar sem Sigurður Björnsson frá Kvískerjum fjallar um Öræfasveit. Hrikalegt landslag og fegurð Skaftafells, Morsárjökuls og Skeiðarár eru viðfangsefni lestursins.

  21. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1983

    Vestur-Skaftafellssýsla austan Skaftár og Kúðafljóts er viðfangsefni þessa lesturs. Merkilegt landssvæði og einna verst leikna þegar kemur að áhrifum eldgosa, enda heimaslóðir Móðuhardinanna.

  22. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1972 (2.lestur)

    Annar lestur uppúr sérprenti Árbókar Ferðafélagsins frá 1972. Það er Þórsmörk sem er staðarval þessarar ágætu árbókar, og veitir tækifæri til símtals við eldri ættingja með spurningar um hvort viðkomandi hafi tjaldað í Þórsmörk, eða verið yfir Verslunarmannahelgi, eða farið í göngur, eða fest bíl...

  23. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1945 (3.lestur)

    Í þriðja og jafnframt síðasta lestri úr Árbók Ferðafélags Íslands frá árinu 1945 verður farið yfir Heklugos, sem borið hafa alræmda frægð hennar víða um heim allt frá miðöldum.

  24. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1945 (2.lestur)

    Haldið áfram með umfjöllun Guðmundar Kjartanssonar um Heklu.

  25. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1945 (1.lestur)

    Hekla og umhverfi hennar er lýst skilmerkilega í þessari fyrstu árbók sem kemur út eftir seinni heimsstyrjöld. Hraun, eldgos, jökulhlaup, Selsund og tjaldferð höfundar meðal þess sem ber á góma í þessum páskalestri.

  26. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1988 (2.lestur)

    Áframhald lesturs úr Vörður á vegi, greinar um miðhálendi Íslands og jaðra þess. Fjallað er um hálendisvegi til forna sem og Þjórsárver, náttúru, dýralíf og sögu.

  27. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands (1988), Vörður á vegi

    Árbókin 1988 heitir Vörður á vegi og beinir sjónum sínum að miðhálendi Íslands og jöðrum þess með 8 greinum ólíkra höfunda. Lesin eru brot úr nokkrum þeirra og má nefna Húsafell, Kalmanstungu, Ok og Skagfirðingaveg meðal efnis lestursins.

  28. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1979 (3 lestur)

    Við köfum dýpra ofan í sögu Öræfa og tengsl hennar við óblíð náttúruöfl jökla og sanda, þar sem vatnamenn og vatnahestar glíma við jökulhlaup og eldgos. Hannes Landpóstur, Þórbergur Þórðarson og fleiri glíma við Skeiðarársand í þriðja lestri úr árbók Ferðafélagsins 1979

  29. Kórónulestur úr Nadeschda 3.kviða

    3.kviða. Bræður takast á um unga konu. Frelsi, þrældómur, skógur, haukar, höll, þegnar, ást, öfund.

  30. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1979, 2 hluti.

    Áframhald lesturs um sögu, jarðfræði og dýralíf Öræfasveitar, samin af Sigurði Björnssyni kenndur við Kvísker. Einstök heimild og innsýn í sveitina milli sanda sem fór frá því að bera hið grösuga nafn Litla Hérað, yfir í Öræfi eftir hamfarir 1362. Hringið í eldri ættingja og spyrjið út í Öræfi,...

  31. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands 1979

    Árbókin 1979 er skrifuð að Sigurði Björnssyni, kenndur við Kvísker og merkan systkinahóp sem hvert um sig lagði stund á ólík fræði í lífinu, en urðu mörg hver mikilsvirtir fræðimenn. Fjallað er um dýra og plöntulíf sem og ýmis einkenni Öræfasveitarinnar sem hvílir við rætur stærsta eldfjalls...

  32. Kórónulestur úr sérprenti Árbókar Ferðafélags Íslands (1972)

    Lesið uppúr sérprenti Árbókar Ferðafélagsins frá 1972. Það er Þórsmörk sem er staðarval þessarar ágætu árbókar, og veitir tækifæri til símtals við eldri ættingja með spurningar um hvort viðkomandi hafi tjaldað í Þórsmörk, eða verið yfir Verslunarmannahelgi, eða farið í göngur, eða fest bíl útí...

  33. Kórónulestur úr Nadeschda (2.kviða)

    Annar lestur úr söguljóðinu Nadeschda eftir J.L. Runeberg, í þýðingu Bjarna Jónssonar frá Vogi. Ritið er gefið út árið 1898 í Reikjavík (prentað Rei! í riti), prentað í prentsmiðjunni Dagskrá, kostnaðarmaður var Sigfús Eymundsson. Hugmyndin að samtali við eldri ættingja gæti verið ljóðakennsla í...

  34. Kórónulestur úr Árbók Ferðafélags Íslands

    Árbók Ferðafélags Íslands árið 1981 var helguð Ódáðahrauni, hrjóstrugt landsvæði brunasanda og hrauna, en sömuleiðis gróðurvinja norðvestan við Vatnajökul. Hringið í eldri ættingja og spyrjið um tjaldferðir í Herðubreiðalindir, Öskjugos og sögur af hættuförum. Hvert ferðuðust afi og amma, pabbi…

    more
  35. Kórónulestur úr formála Orðabókar Sigfúsar Blöndal

    Sigfús Blöndal árið 1903, ásamt konu sinni, Björg Þórláksdóttir Blöndal, vinnu við gerð dansk íslenskrar orðabókar. Verkið tók 21 ár að ljúka, í samstarfi við ýmsa samstarfsmenn. Þrautseigja, þolimæði og vinnusemi skiluðu þjóðinni miklum auð í formi ítarlegustu orðabókar sem tekin hafði verið...

  36. Kórónulestur úr Vér ákærum.

    Fjórði kórónulestur er áframhald eldrauðrar ádeilu frá upphafi fjórða áratugar síðustu aldar. Kommúnistar vega hart að hefðbundnum óvini, auðvaldinu, sem og yfirvöldum sem talin eru kúga fátækan lýð landsins. Lesturinn varpar upp hugmyndinni um hvort að áherslur og málfar liðinna alda eigi sér...

  37. Kórónulestur úr Sóvétvinurinn (1934)

    Við lesum valin brot úr Sóvétvininum, í ritstjórn Kristinns E. Andréssonar, fyrrum alþingismaður og meðlimur Sósíalistaflokksins. Spyrjum eldri kynslóðina um áberandi og eftirminnilega einstaklinga 20.aldarinnar, sem voru eldrauðir!

  38. Kórónulestur úr Nadeschda

    Fyrsti Kórónulestur úr 9 kviða söguljóði eftir hinn finnska Runeberg, ort 1841.

  39. Kórónulestur úr Ferðabók Sveins Pálssonar

    Sveinn Pálsson ferðaðist víða um land á árunum 1791-1793 og vann að umfangsmikilli skráningu á náttúru Íslands, dýralífi, jarðfræði, atvinnulífi og fleiru ásamt því að safna sýnum hvers kyns. Verkefnið var óraunhæft í umfangi, en andi þessa ungu náttúrufræðings, og síðar læknis, var stórfenglegur.

  40. Trailer fyrir Kórónulestur

    Kynning á lestri úr gömlum íslenskum ritum meðan á Kórónaveirunni stendur. Tilvalið tækifæri til að hlusta og svo hringja í aldraða ættingja, spjalla um gamlar bækur og heyrum hvað íslenska bókakynslóðin hefur lesið.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Kórónulestur er hljóðbókalestur uppúr gömlum ritum í von um að kveikja hugmyndir að símtali við eldri kynslóðina og ræða um innhald lestursins.

HOSTED BY

Svavar Jónatansson

Produced by Svavar

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Kórónulestur have?

Kórónulestur currently has 40 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Kórónulestur about?

Kórónulestur er hljóðbókalestur uppúr gömlum ritum í von um að kveikja hugmyndir að símtali við eldri kynslóðina og ræða um innhald lestursins.

How often does Kórónulestur release new episodes?

Kórónulestur has 40 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Kórónulestur?

You can listen to Kórónulestur on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Kórónulestur?

Kórónulestur is created and hosted by Svavar Jónatansson.
URL copied to clipboard!