PODCAST · news
Kratinn
by Samfylkingin
Vettvangur til að upplýsa um skilaboð jafnaðarfólks.
-
41
S236: Eldhúsdagsumræður, viðkvæmir hægrimenn og hækkað í ofnunum á Alþingi
Þáttur vikunnar er seinna á ferðinni en vanalega vegna eldhúsdagsumræðunnar á Alþingi sl. miðvikudag. Ræðumenn Samfylkingarinnar, sem voru Jóhann Páll Jóhannsson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, fóru þar yfir farinn veg á þessu þingári og ýmis afrek sem unnist hafa á vettvangi þingsins. Þáttastjórnendur fóru yfir bestu og verstu frammistöðurnar. Þá sagði Ásta Guðrún sögu af krullhærðum Pírata í gjaldeyrishöftum ásamt því að fara yfir býsna góða tölfræði úr þingstörfunum. Arnar Þór fór yfir þekkta tækni til að flýta fyrir þinglokum, sem virðist hafa virkað vel hjá honum. Viðbrögð hægri snjókornanna við efnismiklum og upplýsandi Silfursþætti voru krufin til mergjar. Þórður Snær náði að ranta um hagstjórn og Þórhallur Valur lýsti andúð sinni á umræðu um Evrópusambandið.
-
40
S235: Sigurjón, Áslaug Arna og borgin
Þátturinn hófst á óvæntri gestakomu, Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, kíkti í stutt innlit og fór yfir innviðafélag sem er á dagskrá Alþingis í dag.Rætt var um samgönguáætlun, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur af Alþingi og fyrstu verk nýrrar borgarstjórnar ásamt fleiru.
-
39
S234: Fjölkæri í Hafnarfirði, tryllingur yfir borginni og já við ESB!
Farið var yfir meirihlutamyndanir í Reykjavík og Hafnarfirði, rætt var um brakandi ferskar og lækkandi verðbólgutölur og svo um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
-
38
S233: Uppgjör eftir kosningar
Farið var yfir sveitarstjórnarkosningarnar, rætt um kosningabaráttuna og niðurstöður í Reykjavík og á landsvísu.
-
37
S232: Það er eins og allir flokkar séu jafnaðarflokkar í sveitarstjórnarkosningum
Í hlaðvarpsþætti vikunnar mættu þær Hildur Rós Guðbjargardóttir frambjóðandi okkar í Hafnarfirði og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir, frambjóðandi okkar í Garðabæ, í Kratakompuna til Arnars og Vals. Þær fóru yfir stöðuna hjá framboðunum og hvað hefur verið á oddinum síðustu vikur. Rætt var um sund og meira sund fyrir unga sem aldna og af hverju í ósköpunum þær þurfi að fara í kvöldsund í Reykjavík. Grunnskólamálin voru líka tekin rækilega fyrir og mikilvægi úrbóta í þeim málaflokki. Þær stöllur voru spurðar um afstöðu sína til sameiningar Hafnarfjarðar og Garðabæjar sem og samstarfsverkefni ýmis á milli sveitarfélaganna. Hildur Rós lét gamminn geisa um næturstrætó, sem Hafnfirðingar vildu en Garðbæingar ekki, og mikilvægi þess að samgöngumál séu unnin í góðu samstarfi.Einnig ræddum við af hverju í ósköpunum allir flokkar láti eins og jafnaðarflokkar í kosningum en standi svo ekki við stóru orðin (lesist Framsóknarflokkurinn sérstaklega).Þá fór Vilborg Anna yfir stöðuna á Álftanesi og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur vanrækt það mikilvæga svæði. Að lokum vaknaði spurningin: Hvað kemst maður langt á einu skópari? Kosningabarátta er frábært tækifæri til að láta reyna á það.
-
36
S231: Bensínbann til 1. maí, staðan í Árborg og auglýst eftir framtíðarsýn fyrir Reykjavík
Í þætti vikunnar fóru strákarnir yfir skánandi verðbólguhorfur, ársreikning Reykjavíkurborgar og yfirprjón helstu andstæðinga okkar í gagnrýni á hann. Þá ræddu þeir skattalækkun á bensíni og olíu sem tekur gildi 1. maí og afhverju það er mikilvægt að geta ráðist í verðlagseftirlit á þessum markaði. Arnar sagði frá ferð á eilítið einhliða ráðstefnu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu þar sem skortur á jákvæðri framtíðarsýn fyrir höfuðborgarsvæðið var ríkjandi og einn þeirra sem sat í pallborði virtist harma það að Fossvogsdalurinn hefði ekki verið malbikaður á sínum tíma.Í seinni hluta þáttarins er svo rætt við Sigurjón Vídalín Guðmundsson oddvita okkar fólks í Árborg um stöðu mála í sveitarfélaginu.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...