Skip to content
Leikfangavélin podcast artwork

PODCAST · music

Leikfangavélin

by Atli Hergeirsson

Leikfangavélin er hlaðvarp sem hóf göngu sína haustið 2019 og er í umsjón Atla Hergeirssonar. Tónlist, tónlistarfólk, hljómsveitir, umfjallanir og viðtöl, íslenskt og erlent. Fróðleikur, skemmtun og afþreying. Bara að það sé tónlist (með örfáum undantekningum þó). Finnið Leikfangavélina einnig á Facebook og smellið endilega í eins og eitt "like". Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Aug 11, 2025 · Source feed

Episodes

  1. Jónsmessa #13 - Instrumental

    Ósungin lög eða instrumental er málefni Jónsmessu hinnar þrettándu. Í þættinum komum við afar víða við, allt frá tölvupoppi í gegnum kvikmyndatónlist og klassískt rokk en þó með dassi af heiðarlegum metal og jafnvel trommusólóum, ásamt mun fleiru til. Þátturinn er hið minnsta svo sannarlega út um...

  2. Jónsmessa #12 - Boards Of Canada

    Í þessari tólftu Jónsmessu í Leikfangavélinni kemur Jón Agnar með rafdúettinn Boards of Canada að borðinu. Í raun er voða lítið vitað um þennan skoska dúet svona heilt yfir, en það sem þó er vitað veit sennilegast einmitt Jón Agnar einna best. Ljóst er að hér er um að ræða afar furðulegt band en...

  3. Jónsmessa #11 - Draumapoppið

    Jónsmessa númer 11. Það var í Jónsmessu þeirri sjöttu sem kom Jón Agnar með Skóglápið og nú er nokkurs konar framhald af þeim þætti. Við kíkjum saman á tónlistarstefnu sem hlaut heitið Draumapopp, eða „Dream pop“. Stefnan á ættir sínar að rekja til Bretlandseyja eins og svo margar aðrar, og eru…

    more
  4. Jónsmessa #10 - Kvenraddir

    Söngkonur eða kvenraddir er það sem Jón Agnar mætti með í Jónsmessu númer 10. Þær eru margar söngkonurnar sem við tökum fyrir í þættinum og allar eiga þær það sameiginlegt að hafa frábæra söngrödd og allar hafa þær hrifið okkur á einhverjum tímapunkti í lífinu. Við erum ekki að tala hér um...

  5. Jónsmessa #9 - Bassinn

    Í Jónsmessu hinni níundu nördum við svolítið. Svolítið mikið, og kominn tími til. Við fórum nefnilega núna í einkasafnið og fundum til vel valin dæmi af framúrskarandi bassaleik, bassahljóðum, bassadrunum, bassaleikurum og svo framvegis. Jón Agnar kom skemmtilega á óvart þegar hann tilkynnti þema...

  6. Jónsmessa #8 - Carole King

    Það er komið að áttundu Jónsmessu. Í þetta skiptið tökum við "óskaþátt" fyrir hlustanda sem hafði samband og hreinlega bað um þennan þátt. Við ætlum að taka fyrir frábæran lagahöfund og hreint út sagt æðislega söngkonu. Það hafa flestir heyrt lögin hennar hvort sem viðkomandi veit af því eða…

    more
  7. Jónsmessa #7 - Smáskífur

    Frábær lög sem ekki völdust til að vera smáskífur. Oft blasir það hreinlega við hvaða lög eru líkleg til vinsælda af væntanlegum breiðskífum og valið þar af leiðandi borðleggjandi. En margoft fá stórkostlega góð lög ekki útgáfu á smáskífu eða hið minnsta ekki fyrr en um seint og síðar meir. Í...

  8. Jónsmessa #6 - Skóglápið

    Í þessum þætti ætlum við að kíkja á nokkuð sérstaka tónlistarstefnu sem kallast Shoegaze eða Skógláp. Það hafa ekki allir verið sammála um það í gegnum tíðina hvort það sé niðrandi nafn eða ekki á þessa stefnu, en eitt er víst að um er að ræða réttnefni. Ekki urðu öll böndin sem stunduðu skógláp…

    more
  9. Jónsmessa #5 - Undir radarinn

    Í Jónsmessu #5 kemur Jón Agnar að borðinu með ansi skemmtilegt málefni sem gaman er að velta sér upp úr, enda er víða komið við í þættinum. Við erum að tala um hljómsveitir sem náðu ekki almennilegu flugi þrátt fyrir að hafa samt í rauninni nóg fram að færa. Einhver gæði sem urðu til þess að…

    more
  10. Jónsmessa #4 - Ábreiður

    Coverlög, tökulög eða ábreiður. Lög eftir aðra. Er eitthvað sem jafnast á við orginalinn? Eða taka honum jafnvel fram? Eða er frummyndin ávallt best? Hér görfum við í beðinu fram og aftur í þessari fjórðu Jónsmessu og sláum jafnvel fram umdeildum skoðunum. Mörg góð lög hafa verið flutt enn betur...

  11. Jónsmessa #3 - Frank Sinatra

    Frank Sinatra - Röddin, Bláskjár gamli. Stjórnarformaðurinn. Í ár eru 25 ár síðan hann lést og sífellt minna heyrist frá þessum líkast til mesta skemmtikrafti 20. aldarinnar, þegar mið er tekið af langvinnum tónlistarferli hans og vel heppnuðum frama í kvikmyndum meðfram tónlistinni, en m.a hlaut...

  12. Jónsmessa #2 - Hliðarspor

    Hliðarspor út frá þekktum hljómsveitum er þekkt fyrirbæri. Fullt af frægum böndum hafa getið af sér hliðarverkefni sem hafa verið afskaplega forvitnileg í gegnum tíðina. Mörg hafa þessi „spin-offs“ náð allt frá litlum árangri og upp í framúrskarandi árangur. Í þessari annarri Jónsmessu kíkjum við…

    more
  13. Jónsmessa #1 - Næntísið

    Það er gott að breyta til. Við hefjum því þennan fimmta árgang Leikfangavélarinnar á nýjum lið sem við skulum kalla "Jónsmessu". Ég fékk til liðs við mig Jón Agnar Ólason tónlistarspekúlant með meiru og saman förum við í þessari fyrstu Jónsmessu í gegnum næntís áratuginn og hvað hann hafði að...

  14. Alexander Örn Númason - The Vintage Caravan

    Eftir kærkomið og gott frí störtum við nú Leikfangavélinni að nýju. Það er komið heilt ár síðan ég fékk til mín viðmælanda hingað í þáttinn og því fannst mér svo sannarlega tími til kominn að bjóða velkominn aldeilis hreint frábæran gest. Alexander Örn Númason er fæddur þann 20. Nóvember árið…

    more
  15. The Manics 1986-1995

    Í þættinum heyrum við afar áhugaverða sögu Manic Street Preachers. Pönkband sem stofnað var í Wales árið 1986 en þróaðist síðar meir í allt aðra átt. Samt er og hefur ávallt verið afar stutt í pönkið í þeim. James Dean Bradfield, Sean Morris og Nicky Wire skipa sveitina í dag en allir eru þeir...

  16. Dolores O´Riordan - The Cranberries

    Þegar Írska hljómsveitin The Cranberries var stofnuð árið 1989 hét hún reyndar The Cranberry saw us. Hlutirnir fóru þó ekki að gerast fyrir alvöru fyrr en söngvari þeirra hætti og sveitin fann söngkonuna Dolores O´Riordan til að koma í hans stað. Hæfileikar hennar við lagasmíðar og hvað þá söng...

  17. Brian Molko & Placebo

    Ef Nirvana og U2 eignuðust barn? Hljómsveitina Placebo þarf vart að kynna fyrir mörgum enda eru þeir fyrir löngu búnir að sanna sig sem ein fremsta rokkhljómsveit okkar tíma. Forsprakki þessarar sveitar er afar hæfileikaríkur tónlistarmaður og með einstaka rödd. Svo er hann framúrskarandi...

  18. KENT från Sverige

    Hljómsveitin KENT var ein skærasta vonarstjarna Svíþjóðar seint á síðustu öld. Í þessum þætti af Leikfangavélinni kíkjum við á upprisu, fall og loks dauða einnar vinsælustu rokkhljómsveitar Svíþjóðar. KENT var stofnuð árið 1990 og náðu þeir hápunkti frægðar sinnar á alþjóðlegum markaði á árunum...

  19. Dimebag Darrell & Pantera

    Dimebag Darrell (fæddur Darrell Lance Abbott) var gítarleikari hinnar goðsagnakenndu trash metal hljómsveitar PANTERA allt frá stofnun þeirra og þar til yfir lauk. Dimebag sem hefði orðið 55 ára í ágúst 2021, hlaut skelfilegan dauðdaga í desember árið 2004 og kenna margir endalokum Pantera þarna...

  20. Roland Gift & The Fine Young Cannibals

    Roland Gift er án vafa einn af bestu og vinsælustu söngvurum níunda áratugarins enda söngrödd hans einstök sem hrífur flesta með sér. Sem söngvari hljómsveitarinnar Fine Young Cannibals náði hann toppi sínum eftir útgáfu plötu þeirra The Raw And The Cooked árið 1989. Roland Gift er 60 ára í dag...

  21. Mark Knopfler & Dire Straits

    Mark Knopfler er einn af betri gítarleikurum heims ásamt því að vera frábær laga og textahöfundur. Hann var frontmaður hinnar mögnuðu hljómsveitar Dire Straits sem hann stofnaði ásamt bróður sínum og fleirum árið 1977, og allt þar til bandið pakkaði saman árið 1995. Saga Mark Knopfler og Dire...

  22. Baldur Ragnarsson

    Hann er atvinnumaður í hlaðvarpsgerð og er sem slíkur m.a helmingurinn af hinum vinsælu Draugum fortíðar. En hann er líka afburða tónlistarmaður og hefur þar komið víða við. T.d Skálmöld, Ljótu hálfvitarnir, Dætrasynir, Innvortis, Morðingjarnir o.fl. Þá er hann einn af stofnendum Leikhópsins…

    more
  23. Rottur, Kettir & Langi Seli

    Gestur þessa þáttar af Leikfangavélinni gefur í raun ekki oft færi á sér í viðtal sem þetta, en hann gaf sig loks eftir rúmlega árs viðreynslu. Hann er vatnsgreiddur með sólgleraugu, í leðurjakka og kragann uppi, enda er hann forsprakki einnar svölustu hljómsveitar sem Ísland hefur alið af sér.…

    more
  24. Bein Leið með KK

    KK kom eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf þegar platan Lucky One kom úr árið 1991. Þessi fyrsta plata hans lagði svo sannarlega grunninn að glæsilegum tónlistarferli hans sem ekki sér fyrir endan á enn þann dag í dag, sem betur fer. Ári síðar, eða 1992 kom svo út platan Bein Leið…

    more
  25. Ray Manzarek, The Doors & Jim

    Ray Manzarek var arkitektinn að hljómi The Doors. Framúrstefnuleg og dáleiðandi spilamennska hans á hljómborðið þar sem hann blandaði saman rokki, djass, blús, klassík og fjölda annarra stíla var einstök. Þannig varð til einhver ævintýralegur hljómur sem ekki hafði heyrst áður, eitthvað alveg…

    more
  26. Eric Carr (Paul Caravello) - The Fox

    Eric Carr (fæddur Paul Charles Caravello) tók við af Peter Criss sem trommuleikari KISS árið 1980. The Fox 1950 - 1991. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  27. Wayne Static X - Metal Saga

    Í miðri þriðju bylgju COVID faraldursins er lítið um gestagang í vélarúmi Leikfangavélarinnar. Þessi þáttur er því „sóló“ þar sem við kynnum okkur Bandarísku sveitina STATIC-X og þá sérstaklega söngvara þeirra, sjálfan Wayne Static. STATIC-X sem sendu frá sér frumburð sinn, hina stórgóðu plötu...

  28. Bitið fast í vitið með Jakobi Smára Magnússyni

    Bassaleikarinn Jakob Smári Magnússon á að baki ótrúlegan feril. Eftir að hafa verið meðlimur í böndum eins og Tappa Tíkarrass, Das Kapital, MX-21, Stríð & Friður, Grafík, SSSól, Egó, Reiðmenn vindanna og mun fleirum fékk hann tækifærið sem hann, líkt og flestir aðrir tónlistarmenn, þráði alltaf....

  29. Haraldur F. Gíslason og 25 ára gamalt Drullumall

    Hafnarfjarðarsveitin Botnleðja var stofnuð með það að markmiði að vinna Músíktilraunir árið 1995 sem gekk svo eftir. Að launum fengu þeir nokkra tíma í hljóðveri þar sem þeir tóku upp sína fyrstu skífu, Drullumall. Átján mánuðum síðar voru þeir komnir á tónleikaferð um Bretland ásamt Blur. Halli...

  30. Rúnar Þór og Eyðimerkurhálsar

    Rúnar Þór Pétursson gaf út plötuna Eyðimerkurhálsa til styrktar SÁÁ árið 1988. Hér förum við yfir þessa 10 laga plötu saman lag fyrir lag ásamt því að gera upp líf og feril Rúnars en hann hefur starfað við tónlist allt sitt líf. Skemmtilegt spjall sem fer allt frá því þegar Rúnar sótti…

    more
  31. Cliff Burton 1962 - 1986

    Clifford Lee Burton fæddist árið 1962. Hann varð annar bassaleikari Metallica á eftir Ron McGovney, þegar hann gekk til liðs við bandið í desember 1982. Þá var hann búinn að leika með nokkrum hljómsveitum og fanga athygli þeirra Lars og James fyrir framúrskarandi bassaleik og framkomu á sviði....

  32. Carol Kaye - The first lady of bass guitar

    Ef þú hefur einhvern tíma heyrt tónlist þá hefur þú hlustað á Carol Kaye. Hún er fædd árið 1935 og hefur verið einn af þeim fremstu bassaleikurum í sögu rokksins í meira en 50 ár. Þetta er bassaleikarinn sem menn hringdu í þegar fara átti í plötuupptökur, bassalínur hennar, grúvið og sándið er…

    more
  33. Bruce Kulick - Kiss

    Bruce Kulick tók við gítarnum úr höndum Mark St. John í hljómsveitinni Kiss árið 1984. Því starfi hélt hann í 12 ár eða allt þar til upprunalegu meðlimir bandsins komu saman á ný og skelltu málningunni framan í sig aftur. Bruce og fyrrnefndur Mark eru þeir einu í sögu Kiss sem ekki hafa borið…

    more
  34. Sigrún Stella

    Sigrún Stella er höfundur og flytjandi vinsælasta lags landsins í dag (þegar þetta er tekið upp í lok mars árið 2020), Sideways. Hún býr í Kanada þar sem hún er reyndar fædd en ólst upp að mestu leyti á Akureyri. Í þessu skemmtilega spjalli við þessa hressu og hæfileikaríku tónlistarkonu förum…

    more
  35. Einar Hrafn Stefánsson

    Einar Hrafn Stefánsson er trommuleikari, gítarleikari og bassaleikari ásamt reyndar mörgu öðru. Þá var hann nýlega ráðinn sem markaðsstjóri Íslenska Dansflokksins en er auk þess í tveimur af vinsælustu hljómsveitum landsins, þeim VÖK og HATARA. Með þeim síðarnefndu vakti hann mikla athygli þegar...

  36. Markelsbræður

    Kvikmyndagerðamennirnir Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson sem saman mynda tvíeykið Markelsbræður eru gestir þáttarins. Þeir eru mennirnir sem gerðu hina vinsælu og bráðfyndnu gamanmynd „Síðasta veiðiferðin“. Við skyggnumst á bakvið tjöldin við gerð hennar ásamt mun fleiru til en...

  37. George Leite

    Gestur þáttarins er fæddur í Salvador í Brasilíu þann 16.desember 1980. Hann kom hingað til lands sem skiptinemi árið 1998 og ætlaði sér að stoppa í 1 ár. Síðan þá eru ss liðin öll þessi ár en hann hefur verið hér á Íslandi meira og minna alla tíð síðan. George Leite er ljósmyndari…

    more
  38. Alda Karen Hjaltalín

    Gestur minn í Leikfangavélinni er meira en nóg í þetta skiptið. Akureyringurinn Alda Karen Hjaltalín fer hér yfir líf sitt og feril í stórskemmtilegum og áhugaverðum þætti. Allt frá knattspyrnuferli hennar í gegnum menntaskólaárin, Ghostlamp og Reykjavíkurdætur til fyrirlestranna vinsælu sem hún...

  39. Jón Birkir Lúðvíksson

    Nördar og sannar lygasögur, ó já. Og núna ætla ég að freista þess að skoða hvað er hinumegin við móðuna miklu og ná þannig fram ótrúlegri frásögn í bland við svolítinn nörd frá viðmælanda mínum honum Jóni Birki Lúðvíkssyni. Jón Lúðvíks er einn af vinsælustu miðlum landsins en hóf ekki að sinna...

  40. Sóley Kristjánsdóttir

    Sóley Kristjánsdóttir eða DJ Sóley er algjör nagli sem kallar hreint alls ekki allt ömmu sína. Hún er í þotuliðinu má segja og er með þekktustu plötusnúðum landsins. Hún er fyrrverandi fyrirsæta, sjónvarpskona og útvarpskona svo eitthvað sé nefnt. Hún er nokkuð gömul sál og kann að fara með…

    more
  41. Heiðar "Aðaldal" Jónsson & KISS-fárið

    Heiðar Aðaldal Jónsson er smitaður af KISS veirunni líkt og reyndar sjálfur þáttastjórnandinn. Heiðar er sveitastrákur að norðan en býr í höfuðborginni þar sem hann lifir sannkölluðum KISS lífstíl. Hann er einn af stofnendum KISS ARMY ICELAND sem er aðdáendaklúbbur hljómsveitarinnar KISS hér á...

  42. Kristinn Sæmundsson

    "Nördar og sannar lygasögur" er það sem við skulum kalla þáttaröð númer 2 af Leikfangavélinni. Fyrstur á svið er Kristinn Sæmundsson, Kiddi Kanína, Kiddi í Hljómalind. Hér talar hann opinskátt um líf sitt og feril. Unglingsárin, Grammið, Hljómalind, Bubbleflies, Sigur Rós, UXI ´95 og mótlætið,...

  43. Baldvin Z & uppgjörið

    Til þess að hjálpa mér við uppgjör þáttanna fékk ég góðan mann með mér sem er jafnframt minn helsti gagnrýnandi. En auðvitað þar sem hann var mættur í studio þá förum við hér einnig yfir feril hans í tónlist, enda tónlistarmaður að norðan, en eins og dyggir hlustendur vita þá fjallaði fyrsta...

  44. Kristján Ingimarsson

    Gestur þáttarins er sjálfur Kristján Ingimarsson látbragðsleikari, trúður, dansari, danshöfundur, leikari, leikskáld, leikstjóri og svo einnig bassaleikari í „Lúnu Skrospýjunni“ ásamt svo „Svörtu Köggunum“ sem var heinræktað töffaraband á sínum tíma frá Akureyri. Hann var stórhuga þegar hann...

  45. Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson

    Gestur minn þetta sinnið hefur starfað með og svo í Sniglabandinu með einhverjum hléum þó í rúm 30 ár en hann var rekinn úr hljómsveitinni um árið. Diddi fer hér yfir stórkostlega sögu bandsins og hvernig það kom til að hann, þá starfandi sem hljóðmaður þeirra tók við bassanum og hvernig fyrsta...

  46. Karl Örvarsson

    Við höfðum um það mikið að spjalla við Kalli að þessi tíundi þáttur er rúmlega tvöfaldur að lengd sökum þessa en stútfullur af skemmtun. Kalli hefur gert óskaplega mikið á sínum langa ferli sem hófst fyrir alvöru þegar þeir félagar í Stuðkompaníinu sigraðu Músiktilraunir árið 1987. Áður en...

  47. Ingi Þór Tryggvason

    Ingi Tryggva a.k.a Mosi er tónlistarmaður af lífi og sál og hefur hann verið virkur í tónlistinni í rúm 25 ár. Hér fer Ingi yfir sögu sína allt frá því hann var í Peanuts á Akureyri, þá Border sem síðar varð að Flow og í gegnum fyrsta sólóferilinn allt að Mosa Musik og loks einfaldlega Mosa, sem…

    more
  48. Trausti Heiðar Haraldsson

    Gestur minn að þessu sinni er hinn eini sanni Trausti Heiðar Haraldsson. Hann er eiginlega frumkvöðull norðlenskrar danstónlistar og hefur verið afkastamikill lagahöfundur í gegnum tíðina en hann hefur samið mörg lög sem við þekkjum öll. Trausti hóf ferilinn með því að senda lagið “Til botns” í...

  49. Benedikt Brynleifsson

    Gestur Leikfangavélarinnar þessa vikuna er brjálæðislega góður trymbill og enn betri drengur sem hefur heldur betur komið víða við. Þetta er enginn annar en sjálfur Benni Brynleifs, og hér fer hann yfir ferilinn sinn allt frá því hann var ungur drengur í handboltanum hjá KA, í gegnum upphafið í...

  50. Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson

    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn annar en Rögnvaldur Gáfaði. Einstaklega skemmtilegt spjall við þennan frábæra listamann sem vill þó ekki endilega kalla sig listamann heldur frekar „brasara“.Unglingsárin og upphafið, Zýkkklarnir, Lúna Skrospýjan, Parror, Dægurlagapönksveitin Húfa, LOST,...

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Leikfangavélin er hlaðvarp sem hóf göngu sína haustið 2019 og er í umsjón Atla Hergeirssonar. Tónlist, tónlistarfólk, hljómsveitir, umfjallanir og viðtöl, íslenskt og erlent. Fróðleikur, skemmtun og afþreying. Bara að það sé tónlist (með örfáum undantekningum þó). Finnið Leikfangavélina einnig á Facebook og smellið endilega í eins og eitt "like".

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

HOSTED BY

Atli Hergeirsson

Frequently Asked Questions

How many episodes does Leikfangavélin have?

Leikfangavélin currently has 55 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Leikfangavélin about?

Leikfangavélin er hlaðvarp sem hóf göngu sína haustið 2019 og er í umsjón Atla Hergeirssonar. Tónlist, tónlistarfólk, hljómsveitir, umfjallanir og viðtöl, íslenskt og erlent. Fróðleikur, skemmtun og afþreying. Bara að það sé tónlist (með örfáum undantekningum þó). Finnið Leikfangavélina einnig á...

How often does Leikfangavélin release new episodes?

Leikfangavélin has 55 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Leikfangavélin?

You can listen to Leikfangavélin on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Leikfangavélin?

Leikfangavélin is created and hosted by Atli Hergeirsson.
URL copied to clipboard!