Læknaspjallið
by Edda Thorunn Thorarinsdottir
Læknaspjallið er viðtalshlaðvarp þar sem þriðja árs læknanemarnir, Ólöf og Edda, ræða við íslenska sérfræðilækna um sitt líf og leið þeirra í átt að sérhæfingu. Hlaðvarpið kemur til með að fræða áhugamenn læknisfræðinnar um ólíku svið hennar og hjálpar fólki að fá betri sýn inn í líf ýmissa sérfræðinga.
Episodes
-
#15 Aðalsteinn Arnarson - "Hvað eru efnaskiptaaðgerðir?"
Rætt var við Aðalstein Arnarson, kviðarholsskurðlækni, um lífið áður en hann valdi læknisfræðina, læknisfræðinám í Þýskalandi, sérnámið í Svíþjóð sem og efnnaskiptaaðgerðir og skurðaðgerðir sem hann sinnir mest í sínu starfi í dag. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðillar…
more -
#14 Sunna Snædal - "Hvað er skilunarmeðferð?"
Rætt var við Sunnu Snædal, lyf- og nýrnalækni, um lífið fyrir læknisfræðina, undirbúning í menntaskóla fyrir námið, áhugamálin hennar, saltjónaáhugann sem kviknaði snemma, sérnámið á Karolinska sem og starfið hennar í dag sem nýrnalæknir á Landspítalanum. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is...
-
#13 Haukur Hjaltason - "Hvað er MS ?"
Rætt var við Hauk Hjaltason, taugalækni, um lífið áður en læknisfræðin varð fyrir valinu, sálfræðibakgrunn hans, ástina og fjölskyldulífið í námi, sem og sjúkdóminn Multiple Sclerosis, undirtýpur sjúkdómsins, framgang og framþróun í nýjum meðferðum MS. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is...
-
#12 Tómas Guðbjartsson - "Hvernig var að snerta hjarta í fyrsta sinn?"
Rætt var við Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðlækni, um æskuna hans og fjölskyldulíf í námi, fjölbreyttar aðgerðir á hjörtum og lungum, hvernig hann kemst að hjartanu í opnum skurðaðgerðum, samfélagsmiðla og samskipti lækna við fjölmiðla og mikilvægi samkenndar sem og dómgreindar hjá...
-
#11 Arna Dögg Einarsdóttir - "Hver er munurinn á líknarmeðferð og lífslokameðferð?"
Rætt var við Örnu Dögg Einarsdóttur, líknarlækni, um lífið sitt áður en hún valdi læknisfræðina, hvernig móðurhlutverkið var í þungu námi, leiðina að sérfræðingnum, og líknarlækningar í heild sinni. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is Styrktaraðillar þáttarins eru: Aukahlutir.is - Kóðinn...
-
#10 Hannes Sigurjónsson - "Hvað eru kynleiðréttingaaðgerðir?"
Rætt var við Hannes Sigurjónsson, lýtalækni frá Karolinska háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi, um hans uppruna, afhverju læknisfræðin varð fyrir valinu, frumkvöðlaaðgerðir í kynleiðréttingum og hvernig var að læra á einu virtasta sjúkrahúsinu á Norðurlöndunum. Upphafssstef: Slaeemi. Logo:...
-
#9 Þórólfur Guðnason - "Hvað felst í því að vera sóttvarnarlæknir?"
Rætt var við Þórólf Guðnason, sóttvarnarlækni og smitsjúkdómalækni barna, um flutninga á fyrstu árum lífsins, persónuna sem er Þórólfur, að elta drauminn ásamt því að elta ástina, hreinskilnina í starfinu í dag, hvernig það er að starfa í svona ábyrgðarmiklu starfi og ótal margt fleira sem gerði...
-
#8 Tinna Baldvinsdóttir - "Hvernig var tilfinningin að taka á móti barni í fyrsta sinn?"
Rætt var við Tinnu Baldvinsdóttur, fæðinga- og kvensjúkdómalækni, um menntaskólaárin, inntökuprófið inn í læknadeildina, hvað legnám og keisaraskurðir væru og hvaða gleði fylgir því að fá að fylgjast með þegar nýjir einstaklingar koma inn í heiminn. Upphafsstef: Slaemi. Logo: olafssonart.is...
-
#7 Pétur Guðmann - "Hvernig var tilfinningin að kryfja lík í fysta sinn?"
Rætt er við Pétur Guðmann, réttarlækni, um æskuna sína, tónskáldsdrauminn, afhverju hann fór að starfa í kringum látið fólk og hvað felst í réttarlækningum almennt. Einnig var rætt um hvort það væri eitthvað til í því að réttarlæknar væru introvertar og hvaða starfstéttir Pétur vinnur náið með…
more -
#6 Sigurveig Pétursdóttir - "Hvaða barnabæklunaraðgerðir eru þær flóknustu sem þið framkvæmið hér á landi?"
Í þessum þætti fengum við hana Sigurveigu Pétursdóttur, barnabæklunarlækni, til okkar í spjall. Við ræddum um allt milli himins og jarðar, m.a. lífið, júdóferilinn, hvernig það var að læra í Svíþjóð, hvernig það er að vinna með börnum, hvað felst í rauninni í því að vera barnabæklunarlæknir og...
-
#5 Magnús Karl Magnússon - "Hvernig er að starfa við rannsóknir með sérfræðigrunn í blóðlækningum?"
Rætt er við Magnús Karl Magnússson, blóðlækni, um æsku sína, fjölskyldulífið og afhverju blóðlækningar urðu fyrst fyrir valinu. Einnig var talað um námið í Bandaríkjunum, ásamt leiðina að rannsóknarverkefnavinnu, hvernig er að starfa innan Íslenskrar Erfðagreiningar og afhverju kennsla í...
-
#4 Hróðmar Helgason - "Hvernig færðu börnin til að vinna með þér?"
Rætt er við Hróðmar Helgason, barnahjartalækni, um lífið og leiðina að læknisfræðinni, ákvörðunina að stunda nám við Harvard háskólann í Boston og tímann sinn þar ásamt því að fara inn á tengsl mígrenis við hjartagalla í fólki, og hvernig það er að vinna með börnum. Ef þið viljið fara beint í...
-
#3 Elfar Úlfarsson - "Hvernig var að snerta heila í fyrsta sinn?"
Rætt er við Elfar Úlfarsson, heila- tauga- og mænuskurðlækni, um ákvörðunina að fara í læknisfræði, fjölskyldulífið í sérnáminu á Karólínska sjúkrahúsinu, leiðina að markmiðunum og almennt um hans líf. Við ákváðum að kynna okkur aðeins í upphafi þessa þáttar, en ef þið viljið sleppa kynningunni…
more -
#2 Snorri Einarsson - "Hvað er ófrjósemi?"
Rætt er við Snorra Einarsson, ófrjósemislækni, um uppvaxtarárin, hans leið í áttina að sérhæfingu ásamt því hvernig það var að stofna LIVIO á Íslandi. Upphafsstef: Slaemi Styrktaraðilar: Stuðlaberg heilbrigðistækni, WOK ON
-
#1 Alma Möller - "Hvernig er að vera landlæknir?"
Rætt er við Ölmu Möller, landlækni, um hennar ótalmörgu afrek í lífinu, fjölskyldulífið sem og sína leið í átt að sérhæfingu.
About this show
Læknaspjallið er viðtalshlaðvarp þar sem þriðja árs læknanemarnir, Ólöf og Edda, ræða við íslenska sérfræðilækna um sitt líf og leið þeirra í átt að sérhæfingu. Hlaðvarpið kemur til með að fræða áhugamenn læknisfræðinnar um ólíku svið hennar og hjálpar fólki að fá betri sýn inn í líf ýmissa sérfræðinga.
Hosted by
Edda Thorunn Thorarinsdottir