PODCAST · health
Læknavarpið
by Læknablaðið
Læknavarpið er hlaðvarp Læknablaðsins þar sem rætt er við lækna á faglegum og persónulegum nótum. Nýr þáttur með hverju nýju Læknablaði.Þáttastjórnandi: Kristborg Bóel SteindórsdóttirStef: Doctor Victor
-
26
#3/2026 Frá Kenýa í læknisfræði – Alma Glóð Kristbergsdóttir, sérnámsgrunnlæknir á Landspítala.
Alma Glóð Kristbergsdóttir er sérnámsgrunnlæknir á Landspítala. Leið hennar að læknisfræðinni er í senn óhefðbundin og heillandi. Það var undir lok menntaskóla sem hún áttaði sig á því hvert hugurinn stefndi, hana langaði til þess að hjálpa fólki. Það var svo tveggja mánaða dvöl í Kenýa sem veitti henni fullvissu um að stefnan væri rétt. Alma Glóð var gestur Læknavarpsins.
-
25
#2/2026 Per mentis innblásin af „sænska módelinu“ – Kristófer Sigurðsson
Per mentis er geðlækningastofa sem býður þjónustu í almennum geðlækningum, þar á meðal greiningu og meðhöndlun taugaþroskaraskana á borð við ADHD. Þjónustan er veitt í teymisvinnu geðlækna, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga. Kristófer Sigurðsson, stofnandi Per mentis, er mikill talsmaður teymisvinnu innan heilbrigðiskerfisins. Hann var gestur Læknavarpins og hér að neðan má sjá stutt brot úr því viðtali.
-
24
#1/2026 Klíníkin Ármúla
Klíníkin Ármúla er læknamiðstöð þar sem framkvæmdar eru fjölbreyttar aðgerðir, bæði þar sem sjúklingar útskrifast samdægurs og einnig þær sem krefjast innlagnar. Þeir Hjálmar Þorsteinsson, sérfræðingur í bæklunarskurðlækningum, Kristján Skúli Ásgeirsson, sérfræðingur í brjóstaskurðlækningum, og Hrólfur Einarsson, sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum, komu í Læknavarpið og sögðu frá ferlinu við stofnunina, starfseminni og baráttunni við kerfið.
-
23
#8/2025 Bjarni Geir Viðarsson og Guðrún Höskuldsdóttir.
Bjarni Geir og Guðrún ræða stöðu mála í sérhæfðri offitumeðferð á Reykjalundi.
-
22
#7/2025. Steinarr, Þórður og Þórarinn eru íslenskir skurðlæknar sem reka Klíník í Svíþjóð.
Steinarr Björnsson, Þórður Ægir Bjarnason og Þórarinn Kristmundsson segja frá vegferð sinni í Læknavarpinu.
-
21
#6/2025. Soffía Guðrún Jónasdóttir – Beinkröm - skortur í alsnægtum.
Soffía hefur í starfi sínu greint tíu börn með beinkröm hérlendis og segir að íslensk börn séu almennt ekki að fá nægjanlegt magna D-vítamíns. Hvað er til ráða?
-
20
#5/2025 Fehima Líf Purisevic og Katla Rut Robertsdóttir Kluvers um vita og Gulleggið.
Þær Fehima Líf og Katla Rut komu í Læknavarpið á dögunum og sögðu frá því skemmtilega ævintýri þegar þær og tvær aðrar vinkonur úr menntaskóla komust í topp tíu í Gullegginu með hugmynd sína Vita.
-
19
#4/2025 - Gunnar Guðmundsson
Gunnar Guðmundsson fær sínar bestu vísindahugmyndir á fjöllum.
-
18
#3/2025 Sæmundur Rögnvaldsson segir frá vísindastörfum sínum og framtíðarplönum
Sæmundur Rögnvaldsson er nýdoktor og sérnámslæknir í lyflækningum. Hann var valinn Ungur vísindamaður Landspítala vorið 2025 og nú á dögunum fékk hann um 60 milljóna króna rannsóknarstyrk frá World Cancer Research Fund. Styrkur þessi er til þess að rannsaka tengsl næringar og líkamsþyngdar við forstig mergæxlis og þróun þess yfir í mergæxli.
-
17
#2/2025 - Margrét Aðalsteinsdóttir - Sátt og ánægð með störf mín hjá Læknafélaginu
Það er óhætt að segja að Margrét Aðalsteinsdóttir sé flestum læknum kunnug, því hún hefur starfað á skrifstofu Læknafélags Íslands í meira en þrjá áratugi.Nú stendur Magga Aðal, eins og hún er kölluð af samstarfsfólki sínu, á tímamótum, því um mánaðamótin febrúar/mars hættir hún formlega störfum og fer á eftirlaun.
-
16
#1/2025 Halldór Bjarki Einarsson, heila- og taugaskurðlæknir um ferilinn.
Halldór Bjarki Einarsson er heila- og taugaskurðlæknir sem starfar við háskólasjúkrahúsið í Álaborg, en hefur frá því í júní tekið að sér afleysingar á Landspítalanum. Nýverið flutti hann erindi um uppgötvun sína á nýju afbrigði heilaæxlis en það var á fundi Félags um innkirtlafræði um sjúkdóma í heiladingli og nýrnahettum, sem haldinn var í sjötta sinn hér á landi í október síðastliðnum.
-
15
#09/2024 Ásgeir Haraldsson um ferilinn, vísindin, streptókokkana, barnalækningar og veturinn framundan
„Ég vil vera til gagns,“ segir Ásgeir Haraldsson, barna- og ónæmislæknir, og fer yfir ferilinn og stöðu vísinda í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins. Síðasti vetur var Barnaspítalanum erfiður vegna streptókokkasýkinga. Hann segir mikilvægt að hafa varann á fyrir veturinn. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Stef: Doctor Victor
-
14
#7-8/2024 Hulda Brá Magnadóttir um ferillinn, lífið og brjósklosaðgerðirnar
„Það stríðir gegn öllum mínum prinsippum fyrir íslenskt þjóðfélag að fólk þurfi að borga fyrir bakaðgerðirnar hjá okkur úr eigin vasa,“ segir Hulda Brá Magnadóttir, sem ásamt Guðrúnu Guðmundsdóttur, býður fyrstu skurðaðgerðir við brjósklosi utan Landspítala. Hulda Brá er fyrsta íslenska konan til að útskrifast sem heila- og taugaskurðlæknir. Hún segir frá ferli sínum í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins.
-
13
#6/2024 Sæmundur og Jón Gunnlaugur ræða vísindastörf sín, markmið og feril
„Við megum ekki gleyma að vísindi eru mjög góð fjárfesting,“ segir Sæmundur Rögnvaldsson Ungur vísindamaður Landspítala 2024. Jón Gunnlaugur Jónasson Heiðursvísindamaður Landspítala segir vísindastarf orðið flóknara með árunum. Þeir fara yfir þróunina, bakgrunn sinn, vísindin og markmið í Læknablaðinu, hlaðvarpi Læknablaðsins. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Stef: Doctor Victor
-
12
#5/2024 Jóhann Jónsson segir frá nýrnaígræðslum á Íslandi
„Ég myndi vilja að við gerðum allar nýrnaígræðslur sem sjúklingar okkar þurfa hér á Íslandi,“ segir Jóhann Jónsson læknir í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins. Jóhann hefur unnið bróðurpart starfsævinnar í Bandaríkjunum. Hann sleppti aldrei hendinni af Íslandi og vann að því í fríum sínum að koma líffæraígræðslum upp á Landspítala. Rúm 20 ár eru frá fyrstu aðgerðinni þar — sem hann einmitt gerði. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Stef: Doctor Victor
-
11
#3/2024 Ragna Kristín Guðbrandsdóttir að verða yngsti læknir landsins
Ragna Kristín Guðbrandsdóttir er ung en þó komin á stað sem enginn annar Íslendingur hefur áður náð á hennar aldri. Hún er rétt við það að útskrifast sem læknir aðeins 23 ára gömul. Fædd aldamótaárið og með Íslandsmeistaratitil í klassískum kraftlyftingum. Veikindi föður hennar gáfu henni tilgang og kraft til að verða læknir. Hún fetar í fótspor móður sinnar sem er læknir og er ekki ein um það því yngri bróðir hennar stefnir sömu leið. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva
-
10
#02/2024 Engilbert, Magnús og Tómas um geðskoðun
Við mat á geðrænum veikindum er lykilatriði að gera vandaða geðskoðun. Horfa þarf í útlit, hegðun og hugsun einstaklingsins. Engilbert Sigurðsson, prófessor í geðlæknisfræði og yfirlæknir á Landspítala, Tómas Hrafn Ágústsson, sérnámslæknir í geðlækningum og Magnús Haraldsson, geðlæknir á geðsviði Landspítala, fara klínískt og yfir aðferðafræði við geðskoðun í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva
-
9
#02/2024 Michael Clausen um ofnæmi í vestrænum heimi
„Aftur til náttúrunnar,“ segir Michael Clausen, barna- og ofnæmislæknir á Landspítala, að sé meginþema í lækningum nútímans. „Lífsstíllinn er lykilatriðið þegar kemur að heilsu,“ segir hann og hvetur fólk til að lifa nær náttúrunni og forðast efni sem trufla líkamsstarfsemina. Ofnæmi fari vaxandi í vestrænum heimi. Michael er gestur Læknavarpsins að þessu sinni. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva
-
8
#01/2024 Hildur Guðjónsdóttir og endómetríósa
Styrkja þarf utanumhald með konum sem þjást af endómetríósu hér á landi. Þetta segir Hildur Guðjónsdóttir kvensjúkdómalæknir nýkomin frá Svíþjóð þar sem hún vann með öflugu teymi að endómetríósu. Hildur er gestur Læknavarpsins, hlaðvarps Læknablaðsins og fer hún yfir einkenni og meðferð við þessum sjúkdómi sem hrjáir um tíundu hverja konu. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva
-
7
#12/2023 Tómas Guðbjartsson og ferðin til Nepal
„Já, þetta er svolítið ég. Ég er svo fljótur að ákveða mig,“ segir Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir og lýsir því hvernig hann stökk til Nepal þegar sænskur skurðlæknir leysti hann af á skurðdeildinni. Hann kleif Island Peak, eða Imja Tse-fjallið, 6165 metra hátt, í fjallasal Nepal og nýtti ferðina til góðs. 400 börn hafa nú fengið hlý föt frá Íslandi. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva
-
6
#11/2023 Ágústa Waage
Ágústa Waage svæfingalæknir hefur nú gengið Kambaslóðina á enda frá Mexíkó til Kanada, 4265 kílómetra. Hún flosnaði upp úr framhaldsskóla á Íslandi, ók trukk fyrir Sameinuðu þjóðirnar í Bosníustríðinu, en lauk svo við lækna- og sérnám í Svíþjóð. Þar starfar hún og sér ekki fram á að koma heim. Ágústa segir söguna í Læknavarpinu. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva.
-
5
#11/2023 Sigríður Dóra Magnúsdóttir
„Stolt,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir spurð hvað hún ætli að taka út úr starfi sínu sem forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Ég veit þetta verður ekki aðeins dans á rósum, en þetta er gríðarlegt tækifæri,“ segir hún í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins, við þessi tímamót. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva.
-
4
#10/2023 Sigurdís Haraldsdóttir
Sigurdís Haraldsdóttir krabbameinslæknir segir okkur frá eftirliti sem hefur verið komið upp á Landspítala með einstaklingum í mikilli hættu á að fá briskrabbamein, því nýjasta í krabbameinslækningum og lífi sínu í Bandaríkjunum í nýjum þætti Læknavarpsins, hlaðvarpi Læknablaðsins. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva.
-
3
#10/2023 Sigurður, Helgi og Hlynur
„Ég gerði mér grein fyrir því að þetta væri allt annað starf en það sem ég er að koma úr,“ segir Helgi Hafsteinn Helgason krabbameinslæknir kominn til starfa á Selfossi eftir um 23 ár í Hollandi. Þrír krabbameinslæknar eru á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Ásamt Helga þeir Hlynur Níels Grímsson og Sigurður Böðvarsson. Gunnhildur Arna ræðir við þá um vöxt stofnunarinnar, áskoranir og tækifæri. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva.
-
2
#09/2023 Sigurður Guðmundsson
„Ég þarf ekki að bæta við CV-ið. Það er algjör óþarfi. Það les það enginn lengur,“ segir Sigurður Guðmundsson, smitsjúkdómalæknir og fyrrum landlæknir, í einlægu viðtali við Gunnhildi Örnu í Læknavarpinu – hlaðvarpi Læknablaðsins. Sigurður er á krossgötum, er að ljúka störfum, og gerir upp ferilinn í þessum þætti. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...