Malbik endar

PODCAST · society

Malbik endar

Ég heiti Jón Knútur Ásmundsson. Ég er ljóðskáld, trommari, fjölskyldu- og skrifstofumaður á Reyðarfirði. Þetta hlaðvarp er persónuleg skrásetning hugmynda, samtala og athugana. Í þáttunum tala ég við fólk sem mér þykir áhugavert, velti fyrir mér fólki og samfélaginu, lífinu fyrir austan og stundum bara því sem er ofarlega í huganum hverju sinni. Hér er ekkert fast form eða fyrirfram ákveðin dagskrá. Malbik endar er fyrst og fremst gert fyrir mig sjálfan en öðrum er velkomið að hlusta.

  1. 4

    04 - Anna Berg Samúelsdóttir

    Anna Berg Samúelsdóttir býr á Reyðarfirði. Hún er að vinna í sjálfri sér eins og við ættum öll að vera að gera. Hún gerir það m.a. á samfélagsmiðlum en þar talar hún við „sjálfið sitt“ eins og hún orðar það og leyfir öðrum að sjá og heyra. Ég hélt í mörg ár að Anna Berg væri frænka mín en hún er það ekki. Það skiptir ekki máli. Við hittumst og áttum gott spjall um andlegu málin. Fórum á trúnú. Ég tók það upp og þið megið hlusta ef þið viljið.

  2. 3

    03 - Eva Jörgensen

    Viðmælendur mínir í þættinum eru tveir að þessu sinni. Í fyrsta lagi ræði ég við Evu Jörgensen, mannfræðing á Stöðvarfirði en seinna í þættinum ræði ég við Kimi Tayler, listamann, uppistandara og brauðbakara á Stöðvarfirði. Kimi og Eva búa saman á Stöðvarfirði og reka „Brauðdaga deighús“ sem er fyrsti - og hingað til sá eini - kostandi þessa hlaðvarps.

  3. 2

    02 - Karitas Harpa Davíðsdóttir

    Viðmælandi minn er tónlistarkonan Karitas Harpa Davíðsdóttir. Við spjölluðum um daglegt líf á Reyðarfirði og æskuárin, en Karitas ólst upp sín fyrstu ár sem meðlimur í mormónakirkjunni. Við ræddum einnig söngvarakeppnina „The Voice Ísland“, sem hún sigraði fyrir nokkrum árum og varð landsfræg fyrir vikið.

  4. 1

    01 - Hlynur Sveinsson

    Í fyrsta þætti Malbik endar ræði ég við Hlyn Sveinsson í Neskaupstað. Hlynur er sannkallaður landstólpi og lykilmaður í Neskaupstað. Sá sem mætir þegar eitthvað þarf að gerast og græjar hluti sem enginn annars gerir. Ég sagði honum - og meinti það - að hann ætti að vera á borgaralaunum. Getum við farið af stað með undirskriftarlista?Hlynur er á tímamótum. Hættur í vinnunni en veit ekki hvað hann gerir næst. Þetta því fullkomið móment að hitta hann. Við ræddum um föstur, sjálfboðavinnu, heimalestur barnanna og svefn. Við ræddum líka um erfiðleika og sorg. Í hnotskurn: Við ræddum um lífið. 

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Ég heiti Jón Knútur Ásmundsson. Ég er ljóðskáld, trommari, fjölskyldu- og skrifstofumaður á Reyðarfirði. Þetta hlaðvarp er persónuleg skrásetning hugmynda, samtala og athugana. Í þáttunum tala ég við fólk sem mér þykir áhugavert, velti fyrir mér fólki og samfélaginu, lífinu fyrir austan og stundum bara því sem er ofarlega í huganum hverju sinni. Hér er ekkert fast form eða fyrirfram ákveðin dagskrá. Malbik endar er fyrst og fremst gert fyrir mig sjálfan en öðrum er velkomið að hlusta.

HOSTED BY

Jón Knútur Ásmundsson

CATEGORIES

URL copied to clipboard!