Mannlegi þátturinn podcast artwork

PODCAST · society

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: [email protected]ón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Oct 3, 2026 · Source feed

  1. 603

    Matsmannafélag Íslands, nálastungur fyrir hross og gæludýr og veðurspjallið með Einari

    Við fræddumst um Matsmannafélag Íslands í dag, en Ragnar Ómarsson formaður þess kom í þáttinn. Fasteignakaup eru stærsta fjárfesting sem flestir Íslendingar ráðast í. Samt eru enn uppi álitaefni um upplýsingagjöf við sölu fasteigna, réttindi kaupenda og seljenda og meðferð byggingargalla. Þarna koma matsmenn til sögunnar og Ragnar sagði okkur frá starfi þeirra og ráðstefnu Matsmannafélagsins sem verður á fimmtudaginn. Núna í október mun Líney Emma Jónsdóttir dýralæknir klára nám í nálastungum fyrir hross og gæludýr. Við heyrðum í henni í þættinum í dag og hún sagði okkur frá ráðstefnu sem haldin er hér á landi og hefst á morgun þar sem dýralæknar hvaðanæva að úr heiminum hittast og bera saman bækur sínar. Þar á meðal er hópur dýralækna sem notar nálastungur í sínum meðhöndlunum. Líney Emma vonast til að það takist að vekja athygli Íslendinga á viðurkenningu og útbreiðslu nálastungu í dýralækningum í heiminum í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í veðurspjallið. Það sem kom við sögu í dag var hitarnir í Evrópu sem hafa slegið öll met, afleiðingar El Nino sem er afar öflugur og svo eru haustlitirnir farnir að sýna sig hér heima, erum við með söknuð og trega í sumarlok eða hvað? Að lokum heyrðum við ljóðið Gangnadagsmorgunn eftir Sigurð Óskar Pálsson frá Borgarfirði Eystra. Tónlist í þættinum: Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson Litlir kassar / Þokkabót (Pete Seeger, texti Þórarinn Guðnason) Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson) Spánardraumur / Hljómsveit Ingimars Eydal (Caerts, Roozenstraten, texti Einar Haraldsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  2. 602

    Leikárið í Tjarnarbíói, fréttaauki úr réttum frá 1963 og Rán Tryggvadóttir lesandi vikunnar

    Við héldum áfram að fara yfir sviðið, bókstaflega, og forvitnast um það sem er á leiksviðum landsins á nýhöfnum leikvetri. Í dag kom til okkar Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóri Tjarnarbíós. Tjarnarbíó hefur verið kallað heimili frjálsu leikhópanna og Snæbjörn sagði okkur frá fjölbreyttri dagskrá vetrarins í þættinum. Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, til okkar með gullmola af safni RÚV. Í dag kom hún með brot frá árinu 1963, þar sem Stefán Jónsson umsjónamaður fréttaauka fór í Skeiðarétt og ræddi við til dæmis fjallkóngana Magnús Árnason og Sigurgeir í Skáldabúðum, Guðmund Stefánsson gangnamann og Jónu Magnúsdóttur kvenfélagskonu auk þess sem við heyrðum kraftmikil tilsvor Páls Árnasonar sem var fjallkóngur í marga áratugi. Það er óhætt að segja að réttarstemningin skilar sér í þessu stórskemmtilega 63gja ára gamla innslagi. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Rán Tryggvadóttir, lögfræðingur og doktor í höfundarétti. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Rán talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ljóð Emily Dickinson Berhöfða líf eftir Magnús Sigurðsson Things in Nature Merly Grow e. Yiyun Li Sálarljóð - úrval erlendra ljóða í þýðingu Atla Harðarsonar Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu e. Olga Tokarczuk sem Árni Óskarsson íslenskaði Handmaid’s Tale e. Margret Atwood Gunnlaðarsaga e. Svövu Jakobsdóttur Circe eftir Madeline Miller Tónlist í þættinum: Þú ert / Helgi Pétursson (Þórarinn Guðmundsson, texti Gestur eða Guðmundur Björnsson) Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason) Undir dalanna sól / Álftagerðisbræður (Björgvin Þ. Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  3. 601

  4. 600

    Eyjólfur Kristjánsson föstudagsgestur og matarminningar um fisk

    Föstudagsgesturinn okkar í dag var engin annar en Eyfi, Eyjólfur Kristjánsson. Hann hefur víða komið við í íslensku tónlistarlífi og hefur verið einn af vinsælustu tónlistarmönnum landsins síðustu áratugi. Hann er að gefa út glænýja plötu og við heyrðum tvö lög af henni í þættinum. Eyfi ólst upp í Vogahverfinu, fór snemma að spila á gítar og spilaði snemma á kvöldvökum í Kerlingafjöllum þar sem íslendingar fóru gjarnan í skíðaferðir en þar vann hann sem skíðakennari. Hann var hluti af Vísnavinum og Hálft í hvoru. Eyfi tók þátt í fyrstu undankeppni Eurovision árið 1986 og hefur svo auðvitað staðið á stóra sviðinu í keppninni erlendis og lagið hans Nína er enn í dag sungið af öllum kynslóðum við hin ýmsu tækifæri. Bítlavinafélagið, sólóferillinn, bandarísk tónlist æskunnar, siglingar á skemmtiferðaskipum og margt fleira var rætt í spjallinu við Eyjólf í dag. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo á sínum stað og í dag ákváðum við að tala um matarminningar, góðar og slæmar og umræðuefnið var fiskur í þetta sinn. Tónlist í þættinum: Dagar / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Við getum allt / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson) Hang on baby / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  5. 599

  6. 598

    Þjóðlistahátíðin VAKA og Jónatan Garðars um Magnús Eiríksson

    Á sunnudaginn hefst Þjóðlistahátíðin VAKA í menningarhúsum Kópavogs og það er mikil menningarveisla sem þarna mun fara fram, tónlist, þjóðdansar, hagyrðingakvöld, íslenskt handverk, harmónikkuball, námskeið fyrir börn og fullorðna, vinnusmiðjur, rímnafögnuður og margt fleira. Ragnheiður Gröndal og Bára Grímsdóttir komu í þáttinn og sögðu betur frá. Við héldum svo áfram spjalli um ávaxtaflugur, sem sér í rauninni engan enda á. Við lásum upp afskaplega skemmtilega sögu af geitungabúi í Svíþjóð og glænýrri Nilfisk ryksugu. Við þökkum Jósep Blöndal fyrir að senda okkur þessa skemmtilegu sögu. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskst tónlistarfólk. Í síðustu viku var það Gunnar Þórðarson en í þetta sinn sagði Jónatan okkur frá ferli Magnúsar Eiríkssonar, sem einnig féll frá í ár. Magnús átti langan farsælan feril, hann er einn af þessum stóru í dægurtónlist á Íslandi, bæði sem gítarleikari, lagasmiður og svo ekki síst sem textahöfundur. Við þekkjum öll fjölda laga sem hann samdi, auk þess sem hann rak hljóðfærabúðina RÍN ásamt fjölskyldu sinni. Við komum auðvitað ekki að tómum kofanum hjá Jónatani og svo fengum við einnig að heyra tvö af frábæru lögum Magnúsar. Tónlist í þættinum í dag: Hótel jörð / Egill Ólafsson (Heimir Sindrason, ljóð Tómas Guðmundsson) Göngur og réttir / Bára Grímsdóttir (Þjóðlag, texti Grímur H. Lárusson) Blús í G / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  7. 597

  8. 596

    Ég kom til að gráta, um Svein Pálsson og skildinginn og vísindaspjall um leðurblökur

    Það styttist í jólabókaflóðið, hægt og bítandi fara nýskrifaðar bækur að koma í bókabúðir sem er alltaf tilhlökkunarefni. Nú er komin út glæný bók eftir Þorgrím Þráinsson rithöfund sem heitir Ég kom til að gráta. Bókin fjallar um mann á miðjum aldri sem er í tilvistarkreppu og fer til Ólafsvíkur í leit að sjálfum sér. Hvaða afleiðingar hafa áföll í æsku, brotin sjálfsmynd, brestir í hjónabandi eða óttinn við að horfast í augu við sjálfan sig. Þorgrímur kom í þáttinn í dag. Í vikunni var áhugaverð frétt á ruv.is um að fundist hefði 255 ára skildingur sem náttúrufræðingurinn Sveinn Pálsson átti og hafði komið fyrir í vörðu af grjóti í Kvískerjum í Öræfum og Sveinn skrifaði í ferðabók sinni frá árinu 1794 að hann hefði einmitt komið téðum dönskum eirpeningi fyrir í vörðu. En í framhaldi af þessari frétt vildum við kynna okkur aðeins betur hver þessi maður, Sveinn Pálsson náttúrufræðingur var? Það vill svo skemmtilega til að væntanleg er sjö binda heildarútgáfa á verkum hans og Kristjan B. Jónasson bókmenntafræðingur er einn þeirra sem hefur unnið að útgáfu bókanna og hann kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um þennan stórmerkilega mann, ferðir hans um landið og hans ævistarf. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag fræddi hún okkur um leðurblökur og þann eiginleika þeirra að geta borið veirur í sér án þess þó að sýkjast sjálfar af þeim. Og það getur einmitt verið talsvert hættulegt fyrir okkur mannfólkið. Tónlist í þættinum í dag: Það vantar spýtur / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarson) Söknuður / Roof Tops (Oldham & Penn, texti Stefán G. Stefánsson) Rock’n roll öll mín bestu ár / Brimkló (Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson) Styttur bæjarins / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  9. 595

  10. 594

    LEB skorar á stjórnmálin, árangursrík starfsmannaviðtöl og vatnslitahátíð á Akureyri

    Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa. Þetta er fyrirsögn greinar sem Björn Snæbjörnsson, formaður Landsambands eldri borgara, skrifaði. Hann segir að það sé kominn tími til að stjórnmálamenn hætti að tala um eldri borgara sem einsleitan hóp, því þeir eru fjölmennur og fjölbreyttur hópur þar sem sumir búa við ágæt kjör en aðrir þurfa að snúa hverri krónu og hafa verulegar áhyggjur af því að ná endum saman. Um 8.000 eldri borgarar eru með heildartekjur undir lægsta taxta á vinnumarkaði þrátt fyrir að hafa lagt sitt af mörkum til samfélagsins alla sína ævi. Björn kom í þáttinn í dag ásamt Oddnýju Árnadóttur, framkvæmdastjóra LEB, og þau fóru yfir stöðuna með okkur. Flest okkar sem eru á vinnumarkaði þurfum að taka starfsmannaviðtöl við starfsfólk og/eða yfirmenn og flestir gera þetta reglulega, td einu sinni á ári. Það er hægt að fara á námskeið í að eiga árangursríkt starfsmannaviðtal. Inga Þórisdóttir stjórnendaþjálfi er með hvorki meira né minna en þrjár gerðir af slíkum námskeiðum. Við heyrðum í henni í dag. Í lok þáttar tengdumst við við Ragnar Hólm Ragnarsson, þar sem hann var staddur í hljóðveri RÚV á Akureyri. En Ragnar stýrir Vatnslitahátíð Íslands sem hefst á Akureyri á fimmtudaginn, en þegar er uppselt á hana. Von er á ríflega hundrað manns til bæjarins, innlendum og erlendum, þar á meðal fimm heimsþekktir listamenn sem hafa helgað ævistarf sitt vantslitum. Ragnar sagði okkur betur frá vatnslitum og hátíðinni í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson (W. Meisel, texti Theódór Einarsson) My Friend and I / Trúbrot (Magnús Kjartansson, texti Jóhann Hjálmarsson, þýðandi Rúnar Júlíusson) When the Rain Has Gone / Unni Birna Björnsdóttir (Unnur Birna Björnsdóttir og Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Unnur Birna Björnsdóttir) Yes sir I can boogie / Baccara (Rolf Soja & Frank Dostal) Tasko Tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  11. 593

  12. 592

    Leikveturinn í Þjóðleikhúsinu og Laufey Sigurðardóttir lesandi vikunnar

    Við héldum áfram yfirferð Mannlega þáttarins yfir það hvað verður á fjölum leikhúsanna á nýhöfnum vetri. Í dag var það Þjóðleikhússtjórinn Magnús Geir Þórðarsson sem fór yfir leikveturinn, þar verða m.a. tvö ný íslensk verk á Stóra sviðinu, Hetjur hafsins, eftir Ragnar Bragason og Rými fyrir ást eftir Tyrfing Tyrfingsson. Fyrsta frumsýning ársins á Stóra sviðinu er hins vegar breska leikritið Högg. Nýtt verk um átakanlega lífsreynslu og von í myrkri, sem hefur sópað að sér verðlaunum. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Laufey talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ítölsku skáldkonurnar Dacia Maraini og Elsa Morante Halldór Laxness, meira og minna allt hans höfundarverk Fjallkirkjan e. Gunnar Gunnarsson Astrid Lindgren og fíllinn Babar Við heyrðum svo í lokin ljóðið Mynd eftir Þorstein frá Harmi af diskinum Ljóðið ratar til sinna í upplestri skáldsins. Tónlist í þættinum í dag: Góða ferð heim / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson) Skák og mát / úr Ormstungu, Króli, Rán Ragnarsdóttir, Jakob van Oosterhout og Hallgrímur Ólafsson (Jóhannes Damian, texti Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson) Egils appelsín / Spilverk Þjóðanna (Spilverk Þjóðanna) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  13. 591

    Benedikt Erlingsson föstudagsgestur og matarspjall um hafmeyju og kanínur

    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, leikstjórinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Benedikt Erlingsson. Hann er þessa dagana að leika á ný sýninguna sína Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi eftir 10 ára hlé. Við ræddum við hann um ferilinn, ást hans á að segja sögur, stöðu kvikmyndagerðar á Íslandi og margt fleira í skemmtilegu spjalli í þættinum í dag. Svo tókum við upp þráðinn í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti í dag. Hún sagði okkur frá ferð sinni til Napólí og eyjunnar Ischia og matarupplifun sinni þar. Sætabrauði, kaffihús, ricotta ostur, kanínukjöt, pasta, hafmeyja og fleira í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Sigling / Magnús Þór Sigmundsson (Magnús Eiríksson) Glor på vinduer / Trine Dyrholm (Anne Kristine Linnet) Kærleikur / Óðmenn (Jóhann G. Jóhannsson, texti úr kórintubréfi Páls postula) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  14. 590

  15. 589

    30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans, búningahátíð í Firðinum og Jónatan Garðars um Gunnar Þórðarson

    Á laugardaginn fagnar Hótel- og matvælaskólinn í MK 30 ára afmæli sínu. Viðburðurinn er hluti af afmælishaldi skólans og markar mikilvægan áfanga í sögu hans. Með þessu vill forsvarsfólk skólans kynna starfsemi Hótel- og matvælaskólans, efla tengsl við gesti og samstarfsaðila og skapa ánægjulega samverustund fyrir alla aldurshópa. Það verður opið hús og fjölbreytt og fjölskylduvæn dagskrá í boði. Gestir geta fylgst með keppnum, heimsótt matarmarkað, kynnt sér fyrirtæki og samstarfsaðila, notið matar og tekið þátt í ýmiss konar afþreyingu. Við fengum til okkar góða gesti frá skólanum, nemann Janus Þorsteinsson Roelfs og kennarana Dóru Svavarsdóttur og Hinrik Carl Ellertsson, sem einnig er deildarstjóri. Og það verður líka gaman í Hafnarfirði um helgina því á bókasafninu á annarri hæðinni í Firðinum verður haldin í þriðja sinn hátíðin Heimar og himingeimar sem er búninga- og leikjahátíð þar sem saman kemur áhugafólk um búninga af öllum tegundum, allt frá búningum sem byggja á sögulegum grunni yfir í búninga úr vísindaskáldsögum eins og til dæmis Hringadrottinssögu og Stjörnustríðsmyndunum. Unnur Helga Möller viðburðarstjóri kom í þáttinn og sagði frá. Jónatan Garðarson verður áfram með okkur á fimmtudögum og fræðir okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Gunnari Þórðarsyni, sem lést í sumar. Jónatan rak magnaðan feril Gunnars frá því að hann byrjaði að spila kornungur á gítar, svo auðvitað hljómsveitirnar hans Hljómar, Trúbrot, Río tríó, Ðe lónlí blú bojs, og fleiri, sólóplöturnar og öll lögin sem hann hefur samið sem við öll þekkjum. Jóntan sagði okkur betur frá þessu í dag. Tónlist í þættinum: Það reddast / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik) Allt í fína / Raggi Bjarna og Katrín Halldóra og Karl Orgeltríó (Karl Olgeirsson) Bláu augun þín / Hljómar (Gunnar Þórðarson, Ólafur Gaukur Þórhallsson) Þitt fyrsta bros / Pálmi Gunnarsson (Gunnar Þórðarson, Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  16. 588

  17. 587

    Bangsahátíð í Reykjavík, Haustsöfnun Barnaheilla og vísindaspjallið um áhrif sætuefna

    Reykjavík Bear hátíðin fer fram dagana 3.–6. september og sameinar bangsa, vini þeirra og gesti víðsvegar að úr heiminum í fjögurra daga hátíð. Bangsasamfélagið á rætur í menningu samkynhneigðra karla og varð til sem rými fyrir fólk sem fann sig ekki í ríkjandi útlitskröfum. Orðið bangsi hefur gjarnan verið tengt við stórvaxna, skeggjaða eða loðna karlmenn, en samfélagið er mun fjölbreyttara en sú staðalmynd gefur til kynna. Meðal hápunkta er val á Mr. Reykjavík Bear í Austurbæjarbíói laugardaginn. Sigurður Júlíus Guðmundsson, formaður Bangsafélagsins, og Jóhann Örn B. Benediktsson, sem vann titilinn Mr. Reykjavík Bear í fyrra, komu í þáttinn í dag. Svo brugðum við okkur til Síerra Leóne, en Barnaheill hefur staðið að byggingu skóla í þorpi þar. Ákvörðunin um að gera það var tekin eftir að blasti við að börnin á svæðinu gátu ekki nýtt sér aðstoð Barnaheilla því að það vantaði grunnstoðina, skólann. Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sagði okkur betur frá þessu, verkefnum samtakanna, haustsöfnuninni, Vigdísarstokknum og styrktartónleikum í Salnum í þætti dagsins. Edda Olgudóttir tók upp þráðinn frá miðvikudögum síðasta vetrar og kom í vísindaspjallið í dag. Nú fjallaði hún um rannsóknir sem sýna áhrif sætuefna á þarmaflóruna og fleira, jafnvel í nokkrar kynslóðir. Tónlist í þættinum í dag: Skítaveður / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason) Gangi þér allt að sólu / Armundur Ernst Backman Björnsson (Armundur Ernst Backman Björnsson) Seabird / Alessi Brothers (Billy Alessi, Bobby Alessi & Mike Melvoin) Fiskisúpa Sigríðar í Fjörhúsinu / Hilmar Oddsson (Hilmar Oddsson, texti Karl Roth) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  18. 586

  19. 585

    PingPongParkinson, að huga að öðrum og sjálfum sér og næturfrost í veðurspjallinu

    Við fræddumst í dag um heimsmeitaramótið PingpongParkison sem fer fram í Hannover í Þýskalandi í lok september. Hannes Guðrúnarson, borðtennisþjálfari og Vilborg Jónsdóttir, sem keppir fyrir hönd Íslands á mótinu, komu í þáttinn í dag. Borðtennis er, að þeirra sögn, eitt það besta fyrir fólk með parkinson. Parkinson hefur mörg ólík einkenni, eitt það þekktasta er skjálfti í höndum, en við borðtennisiðkun minnkar skjálftinn og ekki bara á meðan spilað er. Þau Hannes og Vilborg sögðu okkur betur frá þessu í dag. Er hægt að hlúa að sjálfum sér samhliða því að huga að öðrum og takast á við krefjandi verkefni? Rannsóknir sýna að einstaklingar sem sinna störfum sem fela í sér aðhlynningu fólks, geta verið útsettir fyrir neikvæðum heilsufarslegum áhrifum. Hins vegar sýna rannsóknir einnig fram á að samkennd getur dregið úr neikvæðum áhrifum. Við ræddum við Sólveigu Fríðu Kjærnested sérfræðing í klíniskri sálfræði í þættinum. Veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni var svo á sínum stað eftir sumarfrí og verður áfram í þættinum annan hvern þriðjudag. Við veltum fyrir okkur haustveðrinu, þó september sé skilgreindur sem sumarmánuður í veðurfræðinni hér á landi. Næturfrost, lægðarspá, monsúnvindar og skyndiflóð komu við sögu. Tónlist í þættinum í dag: Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarsson, texti Ólafur Haukur Símonarson) Óralangt / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Wrap Your Troubles in Dreams / Dean Martin (Moll, Barris & Koehler) Singing in the Rain / Dave Brubeck Trio (Brown & Freed) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  20. 584

  21. 583

    Leikárið í Borgarleikhúsinu, pistill frá Kaupmannahöfn 1949 og Elínborg lesandi vikunnar

    Mannlegi þátturinn fór aftur í gang í dag eftir sumarfrí og þátturinn Sumarmál hefur runnið sitt skeið. Eins og undanfarin haust munum við á næstu mánudögum fara í svokallaðan leikhúsrúnt, þar sem við fáum að heyra hvað verður á fjölum leikhúsanna í vetur. Við byrjuðum í dag á því að ræða við Egil Heiðar Anton Pálsson Borgarleikhússtjóra og það sem verður þar á fjölunum í vetur. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar með gullmola úr safni RÚV, pistil frá árinu 1949 sem Geir Aðils, fréttaritari RÚV í Kaupmannahöfn sendi heim. Geir segir þar t.d. frá því þegar skömmtun var aflétt eftir Heimsstyrjöldina, Fegrunarfélagi Kaupmannahafnar og fleiru. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina: Systkinaerjurnar e. Moa Herngren Kæri fáviti e. Virginie Despentes Jakaranda e. Gael Faye Salka Valka, Vefarinn mikli frá Kasmír og Sjálfstætt fólk Tónlist í þættinum í dag: Reykjavík / Spilverk þjóðanna (Spilverk Þjóðanna) Þrisvar í viku / Bítlavinafélagið (Jón Ólafsson) Greidd skuld er glatað fé / Fánar (Magnús R. Einarsson, Ásgeir Óskarsson og Haraldur Þorsteinsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  22. 582

  23. 581

    Gunnar Helgason föstudagsgestur og matarspjall um útimáltíðir

    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, rithöfundurinn og leikstjórinn Gunnar Helgason. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar úr Hvassaleytinu í Vogahverfið, hvar hann eyddi öllum stundum í fótbolta eða á skíðum. Hvenær leiklistin kom inn í líf hans og svo bókaskrifin og leikstjórnin, en Gunnar hefur leikstýrt leiksýningum víða um lönd og skrifað um þrjátíu bækur. Nú síðast var hann að auglýsa á samfélagsmiðlum eftir frægum „Bo“-frösum sem verða notaðir á minningartónleikum um Björgvin Halldórsson í haust. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag veltum við því fyrir okkur hvort og hvernig er hægt að sitja úti, jafnvel heilt kvöld á Íslandi og hvað sé best að borða við slíkar aðstæður? Tónlistin í þættinum: Óbyggðirnar kalla / KK og Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) Hringd’í mömmu / Stefán Hilmarsson (Yeary, Mille & Green, texti Stefán Hilmarsson) Póstnúmer / Flott (feat.KR!$$!) (Vigdís Hafliðadóttir og Regnhildur Veigarsdóttir, texti Vigdís Hafliðadóttir og Arnór Björnsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  24. 580

  25. 579

    Svava í Hugarhlýju, Hveragerði 80 ára og Jónatan um Ragga Bjarna

    Svava Bjarnadóttir sagði upp vinnunni sinni sem sjúkraliði á geðsviði og opnaði lítinn stað þar sem allt sem viðkemur mannlegri sjálfsrækt er í fyrirrúmi. Hún er sjálf með ýmis námskeið og er nýbúin að kaupa slatta af hengirúmum sem hún notar í hugleiðslur og og stundir fyrir hópa sem vilja slaka á og njóta. Staðurinn er í Hveragerði og við hittum Svövu þar, en hún er andlegur einkaþjálfari, reikimeistari og geðsjúkraliði. Og við stöldruðum lengur í Hveragerði en það eru merk tímamót þegar bæjarfélag fagnar 80 ára afmæli og Hveragerði fagnar einmitt slíku afmæli allt þetta ár og dagskráin er glæsileg. Við hittum menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa bæjarins, Sigríði Hjálmarsdóttur, en hún hóf störf fyrir þremur árum og á þeim tíma hafa þrír bæjarstjórar vermt bæjarstjórastólinn. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði Jónatan um Ragnar Bjarnason, eða okkar eina sanna Ragga Bjarna, sem var auðvitað einn ástsælasti dægurlagasöngvari íslenskrar tónlistarsögu. Tónlistin í þættinum: Ég skal bíða þín / Helgi Björns og reiðmenn vindanna (Micheal Legrand, texti Hjördís Morthens) Hveragerði / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir) Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig / Ragnar Bjarnason (Monaco, McCarthy & Johnson, texti Jón Sigurðsson) Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  26. 578

  27. 577

    Með lífið í lúkunum, Listasumar á Akureyri og vísindaspjall um heilann

    Við fræddumst um átakið Með lífið í lúkunum hér á eftir. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli þeirri hættu sem fylgir kyrkingartökum, bæði sem hluti af kynlífi eða sem hluti af öðru ofbeldi. Ranghugmynda hefur gætt um slíkt, en rannsóknir leiða í ljós meiri hættu en áður hefur verið talið. Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum. Ástþóra Kristinsdóttir, sérfræðingur í ofbeldismálum hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, og Drífa Snædal, talskona Stígamóta, komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá. Stefnumót við fortíðina, svangar ruslaverur og dansiball í göngugötunni er allt partur af Listasumri á Akureyri sem hefst á morgun og stendur til 18.júlí. Við slógum á þráðinn norður og töluðum við Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur verkefnastjóra menningarmála hjá Akureyrarbæ. Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið og í dag talaði um rannsóknir á heilanum og heilaheilsu. Tónlist í þættinum í dag: Vor í Reykjavík / Uppáhellingarnir (Andri Ólafsson, texti Þórarinn Már Baldursson) Ást og friður / Halli Reynis og Vigdís Jónsdóttir (Halli Reynis) Refur / Svavar Knútur (Svavar Knútur) Við gengum tvö / Ingibjörg Smith (Friðrik Jónsson og Valdimar Hólm Hallstað) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  28. 576

  29. 575

    Jensína Reykvíkingur ársins, Branislav Bédi og veðurspjall um hitabylgju í Evrópu

    Reykvíkingur ársins var kynntur á dögunum, hann er valinn út frá tilnefningum, einstaklingar sem hafa með háttsemi sinni eða atferli verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Eftir yfirferð á tilnefningum var tekin ákvörðun um að veita Jensínu Eddu Hermannsdóttur titilinn, en hún er þekkt fyrir framlag sitt til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi og hefur starfað af heilindum að málefnum barnanna í leikskólanum Laufásborg. Jensína kom í þáttinn í dag. Í sumar eru fjörutíu ár liðin frá því að fyrsta alþjóðlega sumarnámskeiðið í íslenskri tungu og menningu var haldið við Háskóla Íslands. Námskeiðið var sérstaklega hannað fyrir námsmenn sem komu hingað frá erlendum háskólum. Branislav Bédi kom í þáttinn í dag, en hann kemur frá Slóvakíu og er doktor í annarsmálsfræðum við Árnastofnun og hefur kennt íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur var svo með okkur í dag í veðurspjallinu í beinni útsendingu úr hitanum í Rómarborg. Í dag horfði hann einmitt til hitabylgjunnar í Evrópu, hvað hefur mælst hár hiti og hverjar eru horfurnar? Í því samhengi fræddi hann okkur um rauða hitaviðvörun, hvað þýðir hún? Hverjar eru ástæður þessa og hvað er hitahvelfing? Og hver er tengingin á milli hitabylgjunnar og kalds sjós og lofts suðvestan Íslands? Í restina fór Einar svo aðeins yfir horfurnar hér heima framundan. Tónlist í þættinum í dag: Í huga mér / Brimkló (Quillan Pierce, texti Jón Sigurðsson) Allt það góða / Helgi Pétursson (Kris Kristoferson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Á úthafsins öldum / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) Turistens klagan / Cornlis Vreeswijk (Cornelis Vreeswijk) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  30. 574

  31. 573

    Söngleikir án vettvangs, hreinlæti í Reykjavík frá 1968 og Grétar Halldór lesandi vikunnar

    Þór Breiðfjörð tónlistarmaður er nýútskrifaður úr meistaranámi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Meistararitgerðin hans heitir Vinsældir án vettvangs, staða söngleikjalistformsins á Íslandi sem menningarvettvangs. Þór kom í þáttinn og sagði okkur betur frá efni ritgerðarinnar, enda hefur hann heldur betur lifað og hrærst í söngleikjaforminu í gegnum tíðina. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn leyfði hún okkur að heyra hluta af spjalli Stefáns Jónssonar við Gústaf Pálsson borgarverkfræðing úr þættinum Hálftíminn: Um hreinlætið í Reykjavík frá árinu 1968. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Grétar Halldór Gunnarsson, prestur við Kópavogskirkju. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Grétar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Skrifað í sand - æviminningar Karls Sigurbjörnssonar Sálumessa syndara - æviminningar Esra Péturssonar geðlæknis (Ingólfur Margeirsson ritaði) Siddharta e. Hermann Hesse (íslenskuð af Haraldi Ólafssyni) Páll postuli Sigurbjörn Einarsson Tónlist í þættinum í dag: Bjartsýni / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) (Café Song) Empty Chairs and Empty Tables / Þór Breiðfjörð (Alain Boublil, texti Claude-Michel Schönberg, Úr Vesalingunum) Út á stoppistöð / Stuðmenn ( Jakob Frímann Magnússon) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  32. 572

  33. 571

    Andrea Róbertsdóttir föstudagsgestur, og leikfimi, sítrónur og fótalykt í matarspjallinu

    Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu var föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Hún var tilnefnd til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísis 2026 en þau verðlaun eru veitt stjórnendum sem hafa skarað framúr á sínu sviði og sýnt framúrskarandi hæfni í starfi. Andrea hefur komið víða við í atvinnulífinu og hefur mjög gaman af lífinu. Hún er þekkt fyrir lífsgleði og jákvæðni og við töluðum við hana um lífið og tilveruna og ferðuðumst aftur í tímann og svo aftur til dagsins í dag. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo á sínum stað og áætlunin var að tala um sumarsólstöður sem eru á sunnudaginn og mat sem er við hæfi að borða þá og í dag á kvenréttindadaginn. Aftur á móti festumst við í spjalli upp úr Eldhúsbókinni gömlu, yfir greinum um líkamsrækt húsmæðra, sítrónur og táfýlu. Tónlist í þættinum í dag: Má ég / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Hakk og spaghettí / Árný Margrét (Svavar Pétur Eysteinsson) Fyrrverandi / Una Torfa (Una Torfadóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  34. 570

  35. 569

    Ofbeldi gegn öldruðum, skaðleg efnaáhrif á líkama og húð og Jónatan um Kristján Kristjánsson

    Á mánudaginn var alþjóðadagur vitundarvakningar um ofbeldi gegn öldruðum af því tilefni kom varaformaður Landssambands eldri borgara, Sigurður Ágúst Sigurðsson, í þáttinn í dag. Hlutfall einstaklinga 60 ára og eldri mun aukast um tæp 40% á heimsvísu frá 2019-2030 og ofbeldi gegn öldruðum er vanmetið og getur birst í margvíslegri mynd. Sigurður sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag. Una Emilsdóttir er sérnámslæknir í atvinnu og umhverfislæknisfræði og er við nám og störf í Danmörku. Una segir mikilvægt að vera upplýstur neytandi og að það skipti máli að forðast skaðleg efnaáhrif á líkama og húð með þekkinguna að vopni. Við heyrðum í Unu í dag og forvitnuðumst til dæmis um hvað atvinnu- og umhverfislæknisfræði felur í sér. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk og í dag var komið að KK eða Kristjáni Kristjánssyni saxófónleikara, en hann er kunnastur fyrir hljómsveit sína KK sextettinn sem hann starfrækti í um fimmtán ára skeið. Sveitin var vinsælasta danssveit landsins og með henni sungu þekktir söngvarar, til dæmis Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms. Tónlist í þættinum í dag: Í bláum skugga / Stuðmenn (Sigurður Bjóla Garðarsson) Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason) Lukta-Gvendur / Alfreð Clausen, Sigrún Jónsdóttir og KK sextett (N. Simon, texti Eiríkur Karl Eiríksson) 9:20 Special / KK sextett (J. Palmer, Earle Warren & W. Engwick) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  36. 568

  37. 567

    Hugleiðingar um vestræna menningu, Landsmót 50+ og Sigurdís á Heilsuvaktinni

    Við rákumst á áhugaverða grein sem Miriam Petra Ómarsdóttir Awad skrifaði í Heimildina undir fyrirsögninni Hugleiðingar um vestræna menningu. Þar veltir hún fyrir sér hvernig hugmyndin um „vestræna menningu“ mótar sýn okkar á annað fólk. En föðurfjölskylda hennar er egypsk og hún hefur í gegnum tíðina lent ítrekað í þeirri stöðu að finna sig knúna til þess að sannfæra viðmælendur sína um að þau væru gott fólk og oftar en ekki að „þau væru sko mjög vestræn“. Miriam var hjá okkur í þættinum í dag. Landsmót UMFÍ 50+ fer fram helgina og aðalmótssvæðið er í Hrafnagilshverfi en einnig verður keppt á Akureyri og Dalvík. Mótið er opið öllum sem verða 50 ára á árinu og eldri. Keppt verður í 18 greinum á mótinu og við slógum á þráðinn norður og töluðum við Ómar Braga Stefánsson landsfulltrúa og framkvæmdastjóra Landsmóta UMFÍ. Notkun tíðahvarfahormóna hefur aukist talsvert hér á landi síðustu fimm ár. Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að það er ekki áhættulaust, eins og margir gætu haldið, heldur er talið að þau geti aukið áhættu á brjóstakrabbameini hjá konum ef þau eru notuð of lengi og í of miklu magni. Sigurdís Haraldsdóttir krabbameinslæknir og prófessor í Háskóla Íslands segir tíðahvarfahormón klárlega eiga rétt á sér ef einkenni breytingaskeiðs hjá konum eru mikil og þrálát en þá til eins skamms tíma og hægt er. Helga Arnardóttir ræddi við Sigurdísi í Heilsuvaktinni í dag um þetta og helstu áhættuþætti fyrir krabbameini hjá konum. Tónlistin í þættinum: Sumarvísa / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir (Matt Poulson, texti Iðunn Steinsdóttir) Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus, texti Tómas Guðmundsson) Lets Go Away for a While / Beach Boys (Brian Wilson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  38. 566

  39. 565

    Inga Eydal um föður sinn, Þjóðskjalasafnið og Vilhjálmur Pétursson lesandi vikunnar

    Við heyrðum í Ingu Eydal í dag, hún var í hljóðstofu fyrir norðan og við ræddum við hana um föður hennar Ingimar Eydal tónlistarmann en þessa dagana er einmitt verið að auglýsa tónleika honum til heiðurs, en hann hefði orðið níræður í haust. Ingimar lék á píanó og var einn vinsælasti hljómsveitarstjóri á Íslandi og fjölhæfur tónlistarmaður. Ingimar var einnig vinsæll kennari og tók virkan þátt í bæjarlífinu á Akureyri. Ingimar stofnaði eigin hljómsveit 1962, Hljómsveit Ingimars Eydal sem lék í Sjallanum á Akureyri um margra áratuga skeið. Við skruppum á Þjóðskjalasafn Íslands og töluðum við Brynhildi Ingvarsdóttur fagstjóra miðlunar og útgáfu þar á bæ. Hún sagði frá hinum ýmsu leiðum miðlunar til að almenningur eigi sem greiðastan aðgang að safninu. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Vilhjálmur Pétursson rithöfundur og þýðandi. Hann var að gefa út fyrstu skáldsögu sína, nóvelluna, Harðindi, sem fékk fljúgandi start og vann samkeppnina Nýjar raddir hjá Forlaginu. En svo sagði hann okkur auðvitað frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Vilhjálmur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Huldukonan e. Fríðu Ísberg Irpa e. Hildi Knútsdóttur Project Hail Mary e. Andy Weir Góðir Íslendingar e. Huldar Breiðfjörð Minnisbók e. Sigurð Pálsson Tónlistin í þættinum: María Ísabel / Hljómsveit Ingimars Eydal (J. Moreno & L. Moreno, texti Ásta Sigurðardóttir) Vor í Vaglaskógi / Hljómsveit Ingimars Eydal (Jónas Jónasson, texti Kristján frá Djúpalæk) Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  40. 564

  41. 563

    Hörður Magnússon föstudagsgestur og köld tómatsúpa í matarspjallinu

    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon. Hann er einn þeirra sem lýsir leikjunum á HM sem hófst í gærkvöldi. Hann var sjálfur mikill markaskorari fyrir FH á löngum ferli og spilaði einnig með A landsliðinu. Hann hefur verið íþróttafréttamaður í um það bil þrjátíu ár og lýsir íþróttakappleikjum af mikilli innlifun. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hafnarfirðinum, upphaf knattspyrnuferilsins, hvernig það kom til að hann fór að vinna í íþróttafréttamennskunni, ást hans á tónlist og margt fleira. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Köld spænsk tómatsúpa er kælandi í sumarhitanum , við kíktum á uppskrift að einni slíkri og flettum svo í Eldhúsbókinni góðu einu sinni sem oftar. Tónlistin í þættinum: Eitt lag enn / Brimkló og Björgvin Halldórsson (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson) Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson, texti Vilhjálmur frá Skáholti) Ripples / Genesis (Mike Rutherford, Phil Collins, Steve Hackett & Tony Banks) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  42. 562

  43. 561

    Anna Lára framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Sigurgeir syndir fyrir Pieta og Jónatan um Svavar Gests

    Í fréttum í gær, 10.júní, fagnaði framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Anna Lára Steindal, því að íslensk stjórnvöld hafi fullgilt valfrjálsri bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hún segir það hana vera mikla réttarbót. En hvað er þessi bókun og hvað þýðir hún og hverju breytir hún? Anna Lára kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir það af hverju þetta skiptir svona miklu máli. Nú líður senn að sögulegu afreki Sigurgeirs Svanbergssonar sjósundskappa, en hann ætlar að synda niður Lagarfljót til að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt. Sigurgeir stefnir á að láta til skara skríða um leið og veður leyfir, vonandi næsta mánudag, 15.júní. Enginn hefur áður reynt slíkt afrek í leirlitu Lagarfljótinu. Björgunarsveitin Brimrún hefur staðið með honum í undirbúningnum og hefur kortlagt fljótið og leiðina sem liggur frá Fljótsdal niður að Lagarfossvirkjun, nærri 50 kílómetrar og áætlað er að sundið taki um 24 klst. Guðrún Birna Le Sage markaðsstjóri Pietasamtakanna sagði okkur betur frá þessu og starfi samtakanna í dag. Svo hélt Jónatan Garðasson áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Svavar Gests. Líklega hafa fáir ef nokkur komið að íslenskri tónlist með jafn fjölbreytilegum hætti og Svavar gerði en segja má að framlag hans í því samhengi sé ómetanlegt. Jónatan sagði okkur betur frá ferli og lífi Svavars í þættinum. Tónlistin í þættinum: Dís / Ragnheiður Gröndal (Jóhann Jóhannsson, texti Bragi Valdimar Skúlason og Ragnar Kjartansson) Allur lurkum laminn / Bubbi Morthens (Hilmar Oddsson) Þórsmerkurljóð / Ragnar Bjarnason og Hljómsveit Svavars Gests (lagahöfundur ókunnur, texti Sigurður Þórarinsson) Hvert er farið blómið blátt? / Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms með Hljómsveit Svavars Gests (Pete Seger, texti Valgeir Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  44. 560

  45. 559

    Gunnlaugur keppir á US Open, Rjúfum mynstrið og vísindaspjallið

    Á mánudagskvöldið kom stórfrétt í íslenskri golfsögu þegar kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér inn þátttökurétt á Opna bandaríska meistarmótinu í golfi. Hann verður fyrstur íslenskra karlkylfinga til að keppa á mótinu og annar Íslendingurinn til að keppa á risamóti karla. Gunnlaugur Árni, sem er einungis tvítugur, er gríðarlegt efni. Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri Golfsambands Íslands, kom í þáttinn og útskýrði fyrir okkur í dag hversu stórt það er að komast inn á þetta mót og hverju það skiptir fyrir Gunnlaug Árna og íslenskt golf. Ný vitundarherferð er í gangi til styrktar Kvennaathvarfinu undir yfirskriftinni Rjúfum mynstrið. Rúmlega fimm þúsund manns hafa sótt prjónauppskriftina að prjónapeysunni Skjól sem Tinna Laufdal hannaði í samstarfi við Kvennaathvarfið og garn er að seljast upp í verslunum og fjöldi viðburða hefur verið skipulagður víða um land. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra kom í þáttinn í dag einmitt í einni útgáfu af peysunni Skjól. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið, eins og hún hefur gert á miðvikudögum í vetur. Í dag sagði hún okkur frá rannsóknum á collageni sem fæðubótaefni. Tónlistin í þættinum: Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ) Ó borg mín borg / Haukur Morthens (Haukur Morthens, texti Vilhjálmur frá Skáholti) Ástrós / Bubbi Morthens og Bríet (Bubbi Morthens) Ég er kominn heim / Óðinn Valdimarsson (Imre Kálmán, texti Jón Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  46. 558

  47. 557

    Dánaraðstoð, bók um Kjósasýslu og veðurspjallið með Einari

    Samkvæmt nýrri könnu er viðhorf almennings á Íslandi til dánaraðstoðar að tæp 74 prósent eru mjög hlynnt eða fremur hlynnt henni. Lífsvirðing er félag um dánaraðstoð sem var stofnað árið 2017 og hefur að markmiði að stuðla að opinni, upplýstri og yfirvegaðri umræðu um dánaraðstoð við skýr og ströng skilyrði. Ingrid Kuhlman er formaður félagsins og hún sagði okkur meira frá félaginu, niðurstöðum könnunarinnar og sinni persónulegu reynslu í þættinum í dag, en faðir hennar fékk dánaraðstoð í Hollandi árið 2002. Árbók Ferðafélags Íslands 2026 ber heitið Kjósasýsla og er nr.99 í þessri merku ritröð. Yfir sögusvið bókarinnar gnæfir fjallgarðurinn Esjan sem fylgst hefur með mannlífinu í Kjósarsýslusveitum frá margvíslegum sjónarhornum. Bjarki Bjarnason er höfundur bókarinnar en hann gjörþekkir þetta landsvæði og hefur búið í Mosfellssveit frá barnæsku. Hann kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá bókinni en í henni er að finna áhugaverðar ljósmyndir, jarðfræðikort, gróðurkort og kort sem sýnir staðsetningu á herbúðum sem risu víða í Kjósasýslusveitum í seinni heimsstyrjöldinni. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag ætlar Einar byrjaði á því að kenna okkur nokkrar þumalputtareglur sem ágætt er að hafa í huga þegar kemur að veðrinu. Til dæmis: Hvað getur far skýjanna sagt okkur um það hvort það sé að kólna eða hlýna. Hvað segir blika á suðurhimni okkur um regnhorfur? Hver er munurinn á uppláttarbliku og fyrirstöðubliku? Hvenær verða góðviðribólstar að skúrabúlstrum? Svo hefur mælst sérlega lágur og eftirtektarverður loftþrýstingur fyrir árstímann, sem minnir á júní 1961 eða hvað? Og að lokum skoðaði Einar aðeins veðurhorfurnar framundan. Tónlistin í þættinum: Mexico / Snorri Helgason og Bríet (Snorri Helgason) Tryllta tungl / Brimkló (Barnes og Haggart, Ómar Ragnarsson) Sveitin mín / Haukur Morthens og Mezzoforte (Jóhann Helgason) Tempó Prímó / Uppáhellingarnir og Sigríður Thorlacius (Jón Múli Árnason, texti Jónas Árnason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  48. 556

  49. 555

    Þurfamenn fá mannréttindi, frá heimsókn forseta Íslands til Noregs 1955 og Andri Fannar lesandi vikunnar

    Sería Sögufélags er ný ritröð um Íslandssögu þar sem vandaðar rannsóknir eru settar fram í lifandi frásögn. Bækurnar eru ríkulega myndskreyttar og er hver bók um sig nákvæmlega 100 blaðsíður. Ragnheiður Kristjánsdóttir er ein af fyrstu höfundum í þessum nýjum bókaflokki og hún kom til okkar í dag. Bók Ragnheiðar nefnist Þurfamenn fá mannréttindi, en árið 1927 var gerð breyting á íslenskum fátækralögum en fram að því var gert ráð fyrir að þau sem þáðu fátækrastyrk væru svipt ýmsum borgaralegum réttindum, svo sem atvinnufrelsi og kosningarétti. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kom til okkar með gullmola af safninu eins og hún hefur gert annan hvern mánudag í vetur. í dag kom hún með tvo fréttaauka frá árinu 1955 frá heimsókn forseta Íslands, Ásgeirs Ásgeirssonar, til Noregs. Fyrst stutt umfjöllunum Bjarna Guðmundssonar blaðaafulltrúa utanríkisráðuneytisins ferðina og svo frá heimkomu forsetahjónanna og móttökunum sem þau fengu, ræðu Auðar Auðuns bæjarstjóra og Ásgeirs sjálfs. Helga Lára sagði okkur meira frá þessu í þættinum. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Andri Fannar Óttósson starfsmaður BUGL, barna- og unglingageðdeildar Landspítalans. Hann ætlar sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Andri talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ljóðasafn Einars Braga, Lunch Poems e. Frank O’Hara Morgunþula í stráum e. Thor Vilhjálms Faðir vorið Selurinn Snorri Skólaljóðin og Íslendingasögurnar Tónlistin í þættinum: Sól bros þín / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Negril / Bjartmar Guðlaugsson (Bjartmar Guðlaugsson) Gott er að lifa / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

  50. 554

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

TOPICS IN THIS SHOW

Click any topic to search every transcript on PodParley for moments someone mentioned it.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: [email protected]ón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

HOSTED BY

RÚV

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Mannlegi þátturinn have?

Mannlegi þátturinn currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Mannlegi þátturinn about?

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: [email protected]ón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

How often does Mannlegi þátturinn release new episodes?

Mannlegi þátturinn has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Mannlegi þátturinn?

You can listen to Mannlegi þátturinn on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Mannlegi þátturinn?

Mannlegi þátturinn is created and hosted by RÚV.
URL copied to clipboard!