Skip to content
Marta María býður heim podcast artwork

PODCAST · society

Marta María býður heim

by Marta María Winkel

Marta María býður heim er hlaðvarp þar sem þáttastjórnandi tekur á móti áhugaverðu fólki sem hefur markað spor.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Oct 5, 2026 · Source feed

Episodes

  1. 31. Þórdís Kjartansdóttir. Fædd 19. júní og þurfti að axla ábyrgð

    Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Læknahúsinu Dea Medica er ein af þessum kláru og skemmtilegu konum sem lætur ekkert stoppa sig. Hún byrjaði að vinna þegar hún var 12 ára og hefur síðan þá verið með mörg járn í eldinum. Hún fæddist 19. júní og mamma hennar sagði henni að hún yrði að taka mið af...

  2. 30. Dorrit Moussaieff: „Heimurinn minn var fullkominn"

    Dorrit Moussaieff viðskiptakona og fyrrverandi eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar hefur átt ævintýralegt lífshlaup og er nú á tímamótum. Í þættinum ræddu þær þegar hún hitti Ólaf Ragnar fyrst, hvernig samband þeirra þróaðist og endaði fyrr á þessu ári. Hún varð ástfangin af Íslandi þegar hún kom...

  3. 29. Lukka Pálsdóttir: Við getum valið að vaxa

    Lukka Pálsdóttir sjúkraþjálfari og einn af eigendum Greenfit býr yfir ákveðinni seiglu sem hefur komið henni á þann stað sem hún er í dag. Lukka hefur átt ótrúlegt lífshlaup en þegar hún fæddist höfðu foreldrar hennar gegnið í gegnum mikinn harm þegar faðir hennar lenti í flugslysi. Í þættinum...

  4. 28. Birgir Jónsson: Ef lífið er bílaleigubíll þá ætla ég að skila mínum útjöskuðum

    Birgir Jónsson fyrrverandi forstjóri Play er rokkari sem er alltaf til í að hlaupa auka hring til þess að lífið verði allavega 9% skemmtilegra. Í þættinum talar Birgir um lífshlaupið og hjartans mál. Um tíma bjó hann í Rúmeníu og lýsir spillingunni sem þar var á áhrifaríkan hátt. Þótt hann…

    more
  5. 27. Anna Margrét Björnsson: Það þótti ekki fínt að berast á

    Anna Margrét Björnsson, blaðamaður og upplýsingafulltrúi í Franska sendiráðinu, hefur lengi haft sterkan og persónulegan fatastíl. Svartur hefur alltaf verið í uppáhaldi, ásamt eyeliner og stöku hlébarðamunstri. Langafi hennar var Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldisins, og í þættinum ræðum...

  6. 26. Kristín Agnarsdóttir: Allar góðu ákvarðanirnar

    Kristín Agnarsdóttir grafískur hönnuður býr í Lundúnum. Hún er á kafi inni í framtíðartækni og notaði tæknina til að eignast tvo drengi. Svo notaði hún gervigreindina til þess að skilja við barnsföður sinn. Þegar Kristín sagði föður sínum að hún væri að fara að mæta í þennan þátt þá hló hann...

  7. 25. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson: Ég er í ástarsambandi með sjálfum mér

    Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður er félagslegur einfari sem líður best með sjálfum sér. Hann er einn af þessum mönnum sem tekið er eftir og fer alltaf sínar leiðir hvort sem það er í klæðaburði, lífsstíl eða vinnu. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, gaddavírs peysur,...

  8. 24. Sigurlín Ívarsdóttir: Útrásar árin ógnuðu fjölskyldulífinu

    Sigurlín Ívarsdóttir prestur og fjölskylduráðgjafi hefur átt litríka tilveru. Hún var prestur í Bresku biskupakirkjunni í Lundúnum á árunum fyrir hrun þegar eiginmaður hennar starfaði hjá Kaupþingi. Hún segir að útrásárárin hafi einkennst af sukki og ógnað hennar fjölskyldulífi. Í þættinum ræðir...

  9. 23. Hrund Gunnsteinsdóttir: Ég er mjög æst í þetta líf

    Hrund Gunnsteinsdóttir höfundur InnSæi sagði upp draumastarfinu því hún var ekki að finna sig. Hún segist hafa farið allt of hratt upp metorðastigann sem leiddi til þess að heilsan brást. Við tók uppbyggingarferli sem varð að Prisma-námi sem sló í gegn. Í þættinum ætlum við að tala um…

    more
  10. 22. Inga Dóra Guðmundsdóttir: Er með plan B ef allt fer á versta veg á Grænlandi

    Inga Dóra Guð­munds­dótt­ir framkvæmdastjóri hjá Air Greenland er hálf íslensk og hálf grænlensk. Hún fæddist á Íslandi en var á 13 ári þegar fjölskyldan flutti til Grænlands. Hún segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Qaqortoq og það hafi tekið tíma að aðlagast. Inga Dóra er…

    more
  11. 21. Valgerður Halldórsdóttir: Stórt hús getur ekki bjargað ástarsamböndum

    Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi er sérfræðingur í stjúptengslum. Hún fór að hafa áhuga á stjúptengslum þegar hún varð sjálf stjúpmóðir. Hún segir að það þýði ekki neitt að kaupa hús og setja alla undir sama þak og halda að allt muni ganga eins og í sögu. Fólk verði að…

    more
  12. 20. Vilborg Guðnadóttir: Drifkraftur lífsins er að sjá aðra vaxa

    Vilborg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur var send í fóstur þegar hún var eins og hálfs árs því móður hennar fékk berkla. Hún flutti ekki aftur heim fyrr en hún var á sjöunda ári en þá var landslagið breytt. Hún byrjaði að safna sér fyrir íbúð þegar hún var 9 ára því hún upplifði að það væri engu...

  13. 19. Kamilla Einarsdóttir: Ég get fyrirgefið allt ef fólk er fyndið

    Rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir skrópaði sig úr út menntaskóla og fór að vinna á Vegas. Þegar hún var tvítug var hún búin að eignast tvö börn og voru blankheit slík að hún át vorrúllur í öll mál. Þegar Kamilla var þrítug bættist þriðja dóttirin í hópinn. Kamilla er einhleyp og sér ekki fyrir...

  14. 18. Ragna Árnadóttir: Sækir alltaf í erfiðustu verkefnin

    Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets er þrjóskukind með góðan fatastíl. Hún er lögfræðingur og stjórnsýslunörd sem hefur verið óhrædd við að taka afdrifaríkar ákvarðanir. Hún var dómsmálaráðherra í bankahruninu og upplifði mikinn ótta þegar mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan heimili hennar. Í...

  15. 17. Hildur Gunnlaugsdóttir: Fann ástina á Tinder og sló í gegn sem áhrifavaldur um fertugt

    Hildur Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri ASK arkitekta er praktískt í hugsun. Fyrir áratug fann hún ástina á Tinder þegar Hreiðar Leví Guðmundsson handboltastjarna súperlækaði hana. Í dag búa þau ásamt börnunum í fallegu raðhúsi í Hvassaleitinu. Hildur varð óvænt áhrifavaldur þegar hún ákvað að...

  16. 16. Sigurjón Sighvatsson: Ég hef aldrei verið númer eitt

    Sigurjón Sighvatsson er einn fárra Íslendinga sem á að baki glæstan feril í Hollywood. Hann sló í gegn með Wild at Heart (1990) en hann var búinn að slá í gegn hérlendis þegar hann fór út í nám. Hann var í vinsælum hljómsveitum og lærði bókmenntafræði. Hann er einn af þeim sem er alltaf til í að...

  17. 15. Bryndís Hagan Torfadóttir: Stólpakona með hjartað á réttum stað

    Bryndís Hagan Torfadóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri SAS á Íslandi hefur átt litríkt lífshlaup. Hún hefur alltaf fylgt hjartanu sem hefur komið henni þangað sem hún ætlaði sér. Í þessum þætti förum við yfir æviskeiðið og hvað hún hafi lært en hún verður 80 ára á næsta ári. Bryndís fer yfir það...

  18. 14. Þorbjörg Hafsteinsdóttir: Ég vil ekki sjá eftir neinu

    Þorbjörg næringaþerapisti og hjúkrunarfræðingur hefur lifað margbrotnu lífi. Hún er alin upp af einstæðri móður en faðir hennar stimplaði sig út og kom lítið við sögu framan af. Þegar þau voru að kynnast upp á nýtt fórst hann í sjóslysi. Hún fann ástina í Danmörku en leiðir skildi og svo féll…

    more
  19. 13. Margrét Hugrún: Sumir vaxa best utan girðingarinnar

    Margrét Hugrún Gústavsdóttir ólst upp hjá kornungri en sjálfstæðri móður á sjöunda áratug síðustu aldar. Þær fluttu víða sem olli því að hún þurfti að skipta oft um skóla en þannig sankaði hún að sér lífsreynslu og sjónarmiðum sem juku með henni bæði seiglu og sjálfsstæði. Á unglingsaldri urðu...

  20. 12. Sasa: Það segir mér enginn hvað ég á að gera

    Svanhildur Sigurðardóttir, eða Sasa eins og hún er kölluð er ein af þessum jákvæðu, duglegu og bjartsýnu manneskjum sem smitar annað fólk af lífsgleði sinni. Þegar hún var 11 ára bar hún út blöð og safnaði sér peningum, fór ein á skrifstofu Icelandair og pantaði sér miða til Kaupmannahafnar án…

    more
  21. 11. Gylfi Þór Þorsteinsson: Veröldin hrundi þegar mamma var myrt

    Gylfi Þór Þorsteinsson verkefnastjóri hjá Rauða krossinum og oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ upplifði mikla sorg þegar móðir hans var myrt á bóndabæ fyrir Norðan. Hann gat ekki tekist á við sorgina, lokaði sig af og gat ekki grátið. Í þættinum ræðir Gylfi þennan hræðilega tíma og hvernig hann…

    more
  22. 10. María Sigrún Hilmarsdóttir: Það stækkar fólk að lenda í áföllum

    María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður á fréttastofu Rúv. hefur fengið þung verkefni í lífinu. Eitt af því er að eignast fatlað barn. Hún lýsir ferlinu og hvernig hún hafi siglt í gegnum það. Í fyrra slasaðist hún alvarlega í skíðaslysi á Snæfellsjökli en er nú komin á kreik á ný. Í þættinum…

    more
  23. 9. Einar Þorsteinsson: Skíðin voru ekki ástæða skilnaðarins

    Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík lifir drauminn í Seljahverfinu. Hann er tvíkvæntur og á að tvær dætur með fyrri eiginkonu sinni og tvo drengi með núverandi eiginkonu sinni, Millu Ósk Magnúsdóttur. Þau voru á leiðinni í tæknifrjóvgun þegar hún varð barnshafandi. Einar...

  24. 8. Brynjar Níelsson: Góð kona og guð það eina sem getur hjálpað fólki í vandræðum.

    Brynjar Níelsson lögfræðingur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann er íhaldssamur mannvinur og segir að fólk megi ekki láta reiðina fara með sig út í skurð. Hann lærði margt um mannleg samskipti þegar hann keyrði leigubíl á háskólaárunum. Hann var vinsæll lögmaður áður en...

  25. 7. Þorvaldur Davíð sættist við pabba sinn áður en hann féll frá.

    Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari seldi steina með ömmu sinni niður í bæ þegar önnur börn voru í leikskóla. Hann var barnastjarna en var alltaf að reyna að ýta leiklistinn í burtu. Í þættinum ræðir hann um uppvöxtinn, æskuna og það að eiga föður sem glímdi við alkóhólisma. Hann náði að sættast...

  26. 6. Ellý Ármanns fann bróður sinn nýlega

    Faðir Ellýjar reyndi að senda skipsfélaga sinn í DNA-próf því hann vildi ekki gangast við henni. Móðir hennar gafst ekki upp og réð lögmann til að fá úr faðerni Ellýjar skorið. Fyrir stuttu fann Ellý bróður sinn sem nánast jafngamall henni sjálfri. Við ræðum ástina, gjaldþrotið og…

    more
  27. 5. Helga Hlín er alltaf með olnbogana úti

    Helga Hlín Hákonardóttir lögfræðingur og eigandi Strategíu lætur engan segja sér hvernig hún að haga sér. Í þættinum segir hún frá því þegar hún flutti til Reykjavíkur tvítug að aldri með barn á handleggnum og tíkarspena í hárinu til þess að hefja lögfræðinám. Svo rann upp sá dagur að hún mætti á...

  28. 4. Strákurinn í blokkinni sem lét ekkert stoppa sig

    Ari Edwald oddviti Miðflokksins í Reykjavík er alinn upp í blokk í Álfheimum og þurfti sjálfur að hafa fyrir lífinu, ólíkt því sem margir halda. Við ætlum að fara yfir lífshlaupið, ræða sigra og fyrirmyndir og hvað lífið verður miklu skemmtilegra þegar það er stemning. Eitt af því fyrsta sem Ari...

  29. 3. Lærði snemma að setja undir sig hausinn og halda alltaf áfram

    Gestur minn í dag er Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri í Akureyri. Í þessum þætti ætlum við að ræða vinskapinn, hjarta tengingar og það að setja alltaf undir sig hausinn og halda alltaf áfram sama hvað á dynur. Við ætlum líka að ræða ástina, ófrjósemi og gleðina sem fylgdi því að fá að verða...

  30. 2. 39 ára vinskapur dýpkar tilveruna

    Gestur minn í dag er ein af mínum elstu og bestu vinkonum. Hún heitir Júlía Margrét Alexandersdóttir. Við tvær bundumst djúpum tilfinningaböndum þegar við pöntuðum 10 pepperóní pítsur heim til bekkjarbróður okkar. Júlía datt út af vinnumarkaði fyrir nokkrum árum vegna alvarlegra veikinda. Við…

    more
  31. 1. Lífið byrjar þegar þegar þú fattar að þú átt bara eitt líf

    Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í Reykjavík talar um ástina, innsæi, kvenfyrirmyndir og hvernig það sé að vera alltaf eins og vél sem gengur aðeins of hratt. Marta María býður heim er í boði Icelandair og Skincarelab í Smáralind.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Marta María býður heim er hlaðvarp þar sem þáttastjórnandi tekur á móti áhugaverðu fólki sem hefur markað spor.

HOSTED BY

Marta María Winkel

Frequently Asked Questions

How many episodes does Marta María býður heim have?

Marta María býður heim currently has 32 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Marta María býður heim about?

Marta María býður heim er hlaðvarp þar sem þáttastjórnandi tekur á móti áhugaverðu fólki sem hefur markað spor.

How often does Marta María býður heim release new episodes?

Marta María býður heim has 32 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Marta María býður heim?

You can listen to Marta María býður heim on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Marta María býður heim?

Marta María býður heim is created and hosted by Marta María Winkel.
URL copied to clipboard!