PODCAST · society
Meðal fólks
by RÚV Hlaðvörp
Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
6
Labbið
Hvernig lyktar E.coli? Hvernig finnur þú ávaxtaflugumeyjar? Hvers vegna hvílir leynd yfir starfsemi músarannsóknarstofa? Í dag fylgjum við Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, í gegnum þrjár mismunandi rannsóknarstofur þar sem rannsóknir eru gerðar á lífverum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
5
Kokteilar og barmenning
Í dag köfum við dýpra ofan íslenska barmenningu og rekjum sögu handverkskokteilgerðar í Reykjavík til fyrsta barþjónsins á Slippbarnum. Við ræðum við Teit Riddermann Schiöth, forseta barþjónaklúbbs Íslands, Leó Snæfeld, íslandsmeistara í kokteilgerð, og Ásgeir Má Björnsson, kokteilbarþjón. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
4
Íslandsmeistaramót barþjóna
Á hverju ári eru haldnar fjölmargar barþjónakeppnir, þar sem barþjónar búa til upprunalegan kokteil, hella upp á og framreiða hann eftir öllum kúnstarinnar reglum. Stærsta keppni ársins hér á landi er Íslandsmeistaramót barþjóna, sem haldin er á Reykjavík Cocktail Week að vori. Björg Elva Friðfinnsdóttir, barþjónn á Geira Smart, er meðal keppenda í ár og við fylgjum henni eftir á meðan hún undirbýr sig og keppir á sinni fyrstu barþjónakeppni.Viðmælendur:Björg Elva FriðfinnsdóttirTeitur Riddermann SchiöthLeó Snæfeld PálssonRóbert Aron Garðarsson ProppéPétur Hafsteinn Kolka ÚlfssonVictoría Lazar SorinsdóttirÓlíver Goði Dýrfjörð Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
3
Arkítektúrkennararnir
Við erum ennþá í arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands. Í síðasta þætti vörðum tíma með nemendum. Í dag heyrum við í kennurunum. Hvernig takast kennarar í eina arkítektúrskóla landsins á við ábyrgðina að kenna arkítektum framtíðinnar að hugsa um arkítektúr. Eru tengsl milli akademíunnar og raunheimsins? Er LHÍ búbbla?Viðmælendur eru:Auður AtladóttirElísabet Auður GuðnadóttirÞuríður Guðrún PétursdóttirÞórdís Lind JónsdóttirArnbjörg Guðný AtladóttirAnna Sigríður JóhannsdóttirSahar G. Kvaran Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
2
Arkítektúrnemarnir
Er byggða umhverfið okkar ljótt? Hvernig lætur það okkur líða? Hvers vegna virðist fólk svona ósátt með nýbyggingar? Til að svara þessum spurningum leitum við á stað þar sem fólk hugsar mikið og gagnrýnið um arkítektúr: Arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands.Við verjum deginum með fimm fimmta árs nemum í arkítektúr sem eru að keppast við að klára meistaraverkefnið sitt. Við ræðum við Evu Lind Elíasdóttur, Svövu Ragnarsdóttur, Kristrúnu Lárusdóttir Hunter, Unu Haraldsdóttur og Joan Tolentino.Aðrir viðmælendur:Þórdís DaðadóttirÍsabella ArnarsdóttirUrður Ýr ÞorsteinsdóttirEmilía ArnarsdóttirKaren Ósk MagnúsdóttirSaule Viktoría TyschenkoGuja Dögg Hauksdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
1
Dragfjölskyldutengsl
Í þættinum verjum við tíma með dragdrottningunum Lolu von Heart og Chardonnay Bublée á meðan þær undirbúa dragsýninguna House of Heart á skemmtistaðnum Kiki, fræðumst um þetta áhugaverða listform og kynnumst dragsenunni í Reykjavík. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
0
Bílaumboð og geópólitík
Af hverju myndu alþjóðleg glæpasamtök gera stórfellda tölvuárás á íslenskt bílaumboð? Til að svara þessari spurningu heimsækjum við Brimborg, framkvæmum ferilsrannsókn á tölvuárás á ónefnt íslenskt fyrirtæki og fræðumst um hópana sem standa að baki aðferðunum sem eru að gjörbreyta hinu geópólitíska landslagi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
-1
Frúin
Skjólstæðingar Frú Ragnheiðar nota vímuefni í æð, sumir eru heimilislausir, allir í mjög viðkvæmri stöðu. Við förum á vakt í Frúnni, bíl Frú Ragnheiðar sem keyrir um höfuðborgarsvæðið og veitir heilbrigðisþjónustu, nálaskipti og sálfélagslegan stuðning, og ræðum við sjálfboðaliðana og fólkið sem leitar í Frúnna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
-2
Fjórar klukkustundir og fimmtán mínútur á skilunardeild Landspítala
Í dag stöndum við vaktina á skilunardeild Landspítala. Þetta er svolítið sérstök deild, lítið þekkt nema meðal þeirra sem tengjast henni með beinum hætti. Skjólstæðingar skilunardeildar verja hér miklum tíma og dvölin hefur oft víðtæk áhrif á líf þeirra. Við ræðum við starfsfólkið á deildinni og fólkið sem ver fjórum klukkustundum og fimmtán mínútum tengt við blóðskilunarvélar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
HOSTED BY
RÚV Hlaðvörp
CATEGORIES
Loading similar podcasts...