Skip to content
Móment með mömmu podcast artwork

Móment með mömmu

by Helga Kristín

Móment með mömmu er hlaðvarp mæðgna sem fara um víðan völl í heimi tískunnar og hönnunar, segja frá skemmtilegum mómentum sem þær hafa átt saman og taka viðtöl við aðrar skemmtilegar mæðgur.

From the show's RSS feed, refreshed Mar 6, 2026. Source feed.

Subscribe Bookmark

Episodes

  1. Eitt móment að lokum (sería 2)

    Kæru hlustendur, þá er komið að lokaþætti seríu tvö! Mikið hefur þetta verið skemmtilegt og takk fyrir hlustunina. Í þættinum förum við yfir ýmislegt eins og t.d. Tene fríið okkar dásamlega og hvernig var að ferðast með ungabarn. Svo er spurning hvort ilmandi ruslapokar verði ellilífeyrir…

    more
  2. Brúðkaupsundirbúningur

    Góðan daginn kæru hlustendur! Í þessum þætti fengum við dásamlegar mæðgur í heimsókn, þær Þórhildi og Heklu. Þannig er nefnilega mál með vexti að Hekla er að fara að gifta sig í sumar og því langaði okkur að skyggnast aðeins inn í undirbúninginn fyrir stóra daginn. Þetta var alveg ótrúlegt og…

    more
  3. Tískuspjall

    Við mæðgur gáfum okkur loksins tíma í smá tískuspjall, allt frá sumarlitum ársins yfir í fermingartísku. Svo vorum við að velta fyrir okkur hvort það væru ekki bara tvær árstíðir á Íslandi, haust og vetur. Hvað segið þið um það kæru hlustendur? Annars bara góða hlustun!

  4. Móment með eiganda Scandi Home

    Ef ykkur finnst hönnunar- og framkvæmdaspjall skemmtilegt, og jafnvel áhuga á hvernig maður stofnar fyrirtæki, þá er þetta þátturinn fyrir ykkur! Góða hlustun kæru hlustendur.

  5. Breytingaskeiðið

    Jæja, við ákváðum að vera aftur á persónulegu nótunum þennan sunnudaginn en Guðrún segir okkur frá sinni reynslu á breytingaskeiðinu. Góða hlustun!

  6. Átröskun: reynsla dóttur og áhrif á móður

    Í þessum þætti rifjum við mæðgur upp erfitt tímabil í okkar lífi, saga átröskunarsjúklings og reynsla móður. Góða hlustun!

  7. Örþáttur: Hvernig á að pakka í ferðatösku

    Já kæru hlustendur, í þessum þætti fáið þið góð ráð um það hvernig á að pakka í ferðatöskur. Góða hlustun!

  8. Móment með Önnu Steinsen

    Anna Steinsen, eigandi KVAN og svo margt fleira, mætti í spjall til okkar mæðgna til að ræða samskipti kynslóðanna. Skemmtilegt umræðuefni enda er þátturinn sá lengsti til þessa! Góða hlustun kæru hlustendur.

  9. Móment með Guðrúnu Sørtveit og Áslaugu

    Mæðgurnar Guðrún Sørtveit og Áslaug mættu í spjall til okkar. Við hefðum getað setið með þeim í marga klukkutíma því þær eru svo skemmtilegar og ljúfar. Góða hlustun og njótið sunnudagsins!

  10. Fæðingarsaga

    Nú fórum við mæðgur á persónulegu nóturnar. Góða hlustun og eigið dásamlegan sunnudag!

  11. Jólagjöfin sem kom fæðingu af stað

    Við byrjuðum í brekku, ein með hjartslátt í hnjánum og hin máttlaus fyrir neðan mitti, en eftir því sem leið á þáttinn urðum við hressari. Við fórum nefnilega um víðan völl í þessum þætti, úr skírn Ingólfs Arnarssonar yfir í jólagjöfina sem kom fæðingu af stað og þar svo yfir í klæðareglur...

  12. Eitt móment að lokum

    Tíminn flýgur! Allt í einu gáfum við mæðgur bara út 10 þætti, ásamt einum örþætti. Þetta er búið að vera heljarinnar ævintýri og hreint út sagt dásamlegt ferli. Við fengum frábæra viðmælendur til okkar og sköpuðum mörg ný móment saman sem við erum svo þakklátar fyrir. Næstu skref eru að njóta...

  13. Móment með Viktoríu Hrund

    Að þessu sinni fengum við til okkar smekkskonuna og innanhússhönnuðinn hana Viktoríu Hrund Kjartansdóttur. Við fórum vægast sagt um víðan völl, kynntumst Viktoríu og hennar ferli, rifjuðum upp skemmtilegar fjölskyldutengingar og hlógum mikið. Góða hlustun!

  14. Móment með Smátréssystrum

    Við mæðgur áttum dásamlegt spjall með systrunum, Guðnýju og Helgu. Þær eru eigendur fyrirtækisins Smátré Gunnars ásamt föður sínum sem smíðar og hannar þessi fallegu tré sem fá að prýða heimili margra yfir jólahátíðina. Góða hlustun og ekki missa af komandi viðburðum hjá þeim feðginum!

  15. Harður dansheimurinn

    Dans hefur verið hluti af lífi okkar mæðgna til margra ára. Í þessum þætti sköfum við lítið af hlutunum og förum yfir upplifun okkar mæðgna á dansheiminum sem er vægast sagt harður. Góða hlustun!

  16. Hefur klæðaburður frambjóðenda áhrif á þitt atkvæði?

    Kæru hlustendur! Þetta hefur verið heljarinnar kosningarár hjá Íslendingum. Við mæðgur rifjum upp forsetakosningarnar en þá aðallega klæðaburð frambjóðenda. Af hverju sló klútur Höllu T í gegn? og var Halla Hrund ótrúverðug í fánalitunum? Eftir tæpa viku göngum við svo aftur til kosninga en okkur...

  17. Móment með eigendum Andrá Reykjavíkur

    Steinunn og Eva, eigendur Andrá Reykjavíkur mættu í spjall til okkar mæðgna. Hverjar eru þessar hugrökku konur sem opnuðu fataverslun í byrjun Covid, hvernig var ferlið og hvaða trend eigum við að hoppa á fyrir jólapakkann í ár? Engar áhyggjur, við förum yfir þetta allt í þættinum. Góða hlustun!

  18. Örþáttur: Hvernig á að máta...

    Við mæðgur vorum í stuði og ákváðum að henda í einn styttri þátt um hvernig á að máta...m.a. sundbol og leðurstígvél. Guðrún lumaði nefnilega á nokkrum mjög góðum ráðum í þeim efnum. Þátturinn gæti einnig reynst verslunareigendum gagnlegur en við tökum mátunarklefa fyrir, hvernig getur það verið...

  19. Heimili í stíl

    Guðrún mætti í tökur í miklum gír og tók alla fjölskyldumeðlimi fyrir í þættinum, meira að segja tengdasoninn! Mæðgurnar snerta á ýmsu í þessum þætti en ræða þá helst stílinn inn á heimilum hvor annarrar. Guðrún heldur því enn fram að hún sé stíllaus en Helga er ekki alveg sammála því. Í raun…

    more
  20. Móment með Dóru Júlíu og Guðrúnu

    Dýrmætt spjall sem við áttum með Dóru Júlíu og Guðrúnu. Við fórum um víðan völl með þessum skemmtilegu og líflegu mæðgum en þær eiga sko mörg móment saman sem þær gátu deilt með okkur. Hvetjum allar mæðgur til þess að setjast saman yfir sunnudagsbollanum og hlusta saman á þennan dásamlega þátt....

  21. Mæðgur í stíl

    Í þessum þætti förum við mæðgur um víðan völl en reynum þó að greina vel okkar eigin fatastíl. Hvernig myndir þú annars lýsa þínum fatastíl?

  22. Ein ólétt og önnur miðaldra

    Í þessum fyrsta þætti af Móment með mömmu eru mæðgurnar kynntar til leiks.

About this show

Móment með mömmu er hlaðvarp mæðgna sem fara um víðan völl í heimi tískunnar og hönnunar, segja frá skemmtilegum mómentum sem þær hafa átt saman og taka viðtöl við aðrar skemmtilegar mæðgur.

Hosted by

Helga Kristín

Categories

Frequently asked questions

How many episodes does Móment með mömmu have?

Móment með mömmu has 22 episodes on PodParley. The most recent episode was published on May 25, 2025.

What is Móment með mömmu about?

Móment með mömmu er hlaðvarp mæðgna sem fara um víðan völl í heimi tískunnar og hönnunar, segja frá skemmtilegum mómentum sem þær hafa átt saman og taka viðtöl við aðrar skemmtilegar mæðgur.

How often does Móment með mömmu release new episodes?

Móment með mömmu publishes weekly, based on its 22 episodes since October 2024.

Who hosts Móment með mömmu?

Móment með mömmu is created and hosted by Helga Kristín.
Link copied