PODCAST · kids
Móðurlíf
by Podcaststöðin
Hlaðvarpsþáttur þar sem vinkonurnar Díana Karen og Jóna Kristín skyggnast inn í líf mæðra á Íslandi.
Episodes
-
24. Fæðingarsaga & fyrstu dagarnir
Lítil Jóhannesdóttir fæddist þann 14.nóvember síðastliðinn, en hún hefur verið með okkur alveg frá fyrsta þætti í móðurkviði. Í þættinum segir Jóna okkur frá vægast sagt magnaðri fæðingarsögu sinni & fyrstu dögunum eftir að sú litla kom í heiminn. Þátturinn er í boði : Einn, tveir & elda...
-
23. Fæðingarreynsla & ófyrirséð veikindi
Gestur þáttarins er Jóna Kristín Friðriksdóttir 33 ára móðir og viðskiptafræðingur. Við fengum að heyra um erfiða fæðingarreynslu hennar, ófyrirséð veikindi dóttur hennar & af tímanum á vökudeild. *TW* Við viljum benda á að efni þáttarins getur verið truflandi. Einnig ræddum við um andlegu…
more -
22. Linnea Ahle - Saga Petit & burnout
Linnea Ahle er þriggja barna móðir, tvíburamamma & brautryðjandi í innflutningi á lífrænum barnafatnaði á Íslandi en hún og maðurinn hennar eiga og reka fyrirtækið Petit ehf sem er ein fremsta barnavöruverslun á Íslandi í dag. Við spjöllum um bakrunn hennar, uppbyggingu Petit samhliða barneignum,...
-
21. Leikskólaaðlögun
Það er mikil breyting í lífi barns (og foreldra) að byrja í daggæslu, hvort sem það er hjá dagforeldri eða á leikskóla. Í þætti dagsins förum við yfir hvernig þetta gekk hjá okkur og hvað við hefðum viljað heyra áður en barnið byrjaði í aðlögun. Þátturinn er í boði : Einn tveir & elda...
-
20. Undirbúningur fyrir komu barns
Þegar von er á barni er vægast sagt margt sem breytist í lífi okkar. Dínamíkin á heimilinu breytist með hverju nýju barni og er mikilvægt að undirbúa alla vel fyrir þær breytingar sem eru í vændum. Við vinkonurnar eigum báðar von á barni svo eðlilega eru þessir hlutir okkur ofarlega í huga þessa...
-
19. Hildur Björns - Krabbamein eftir meðgöngu
Hildur Björnsdóttir, þriggja barna móðir og borgarfulltrúi er viðmælandi þáttarins. Í þættinum segir Hildur okkur frá því þegar hún greinist með krabbamein þegar yngsta barnið hennar er aðeins viku gamalt. Hún segir okkur frá ferlinu og hvernig hún nálgaðist veikindin gagnvart sínu elsta barni og...
-
18. Sólveig - Heimakennsla & hæglæti
Sólveig María er kennaramenntuð fjögurra barna móðir sem heldur úti instagram reikningnum Útivera og börnin. Þau hjónin fara heldur óhefðbundnar leiðir í uppeldi barna sinna en hún leggur áherslu á hæglæti og útiveru og þar að auki kennir hún 7 ára syni sínum heima. Við ræðum um heimakennsluna,...
-
17. Björkin - heimafæðingar
Björkin fæðingarþjónusta veitir samfellda þjónustu ljósmæðra frá 34.viku meðgöngu og þar til barn er 7-10 daga gamalt. Við áttum skemmtilegt spjall við Arneyju Þórarinsdóttir ljósmóður og annan eiganda Bjarkarinnar um starfsemi Bjarkarinnar & heimafæðingar. Þátturinn er í boði : Einn, tveir &…
more -
16. Sigríður Björnsdóttir - Sálfræðingur
*TW* Í viðtali þáttarins fjallar Sigríður um kynferðisofbeldi í æsku og efnið getur ýtt undir kveikjur hjá hlustendum. Fyrir þá sem hlusta, er því mikilvægt að hlúa vel að sér ef efnið veldur þeim hugarangri og geri ráðstafanir í samræmi við það. Efninu er ætlað að vera upplýsandi fyrir foreldra...
-
15. Ebba Guðný - næring barna
Mataræði barnanna okkar skiptir okkur miklu máli og viljum við standa okkur vel á því sviði. Oft mikla foreldrar það fyrir sér að byrja að gefa barninu sínu fasta fæðu, en staðreyndin er sú að það þarf ekki að vera flókið. Í þessum þætti áttum við áhugavert og persónulegt spjall við Ebbu Guðný...
-
14. Uppeldi - okkar áherslur
Það má segja að það sé ákveðin list að ala upp einstakling og það er ekki meðfæddur hæfileiki. Því þurfa foreldrar að íhuga það vel hvað þeir vilja tileinka sér í uppeldi barna sinna. Í nýjasta þættinum ræðum við um hvað við leggjum áherslu á í okkar uppeldishlutverki. Þátturinn er í boði Einn,...
-
13. Þórdís Björk - sambandsslit á meðgöngu
Við fengum til okkar Dísu, móðir og leikkonu í einlægt og skemmtilegt spjall. Dísa var að ganga í gegnum sambandsslit þegar hún komst að því að hún var ólétt. Við fáum að heyra hennar upplifun af meðgöngunni og ræðum líka fæðinguna og lífið sem einstætt foreldri. Þátturinn er í boði Einn, tveir &...
-
12. Tinna Rún - hreyfing fyrir og eftir meðgöngu
Í þættinum heyrum við í Tinnu Rún Svansdóttur, sérhæfðum einkaþjálfara í heilsu á meðgöngu og eftir fæðingu. Við tölum m.a um líkamsímynd, samfélagsmiðla pressu og mikilvægi þess að hreyfa sig á sínum eigin hraða.
-
11. Yrja - Foreldrakulnun
Í þessum þætti fengum við til okkar Yrju Kristinsdóttur, markþjálfa og stofnanda Dafna.is. Upplýsandi spjall þar sem við ræðum m.a. jákvæða sálfræði & foreldrakulnun. Einnig fáum við mörg hagnýt ráð og æfingar til að gera heima. Persónuleikapróf : www.viacharacter.org
-
10. Létt spjall eftir sumarfrí
Tókum smá spjall um sumarfríið, stöðuna á meðgöngunum og svöruðum svo nokkrum random spurningum í lokin.
-
9. Ingileif & María - barneignarferlið & móðurhlutverkið
Innihaldsríkt spjall við hjónin Ingileif og Maríu, tveggja barna mæður sem eru duglegar að rugga bátnum í jafnréttismálum. Í þættinum heyrum við reynslu þeirra af barneignaferlinu og móðurhlutverkinu.
-
8. Lífið eftir fæðingu
Framhald af síðasta þætti þar sem við ræðum reynslu okkar af sængurlegunni og fyrstu vikunum eftir að barn kemur í heiminn.
-
7. Meðganga & fæðing - okkar reynsla
Í þættinum förum við yfir okkar persónulegu reynslu af meðgöngu og fæðingu og hvað kom okkur á óvart í ferlinu.
-
6. Fitby Sigrún - hreyfing á og eftir meðgöngu
Sigrún María, eigandi Kvennastyrks mætti til okkar í spjall um hreyfingu á meðgöngu og eftir fæðingu. Einnig töluðum við um mátt hugans og hvernig hún tileinkaði sér sitt einstaka hugarfar.
-
5. Helga Reynis - ljósmóðir
Í þessum þætti ræðum við m.a sængurlegu, hlutverk maka og kynlíf eftir fæðingu við Helgu Reynisdóttur ljósmóður.
-
4. Camilla Rut - fæðingarþunglyndi
Camillu Rut kom til okkar í persónulegt spjall þar sem hún ræðir meðal annars fæðingarþunglyndi og burnout.
-
3. Sunneva - meðgöngueitrun & fyrirbura fæðing
Sunneva Ómarsdóttir kemur til okkar og ræðir meðgöngueitrun sem hún fékk skyndilega á 29. viku og í kjölfarið fæddist dóttir hennar 11 vikum fyrir tímann.
-
2. Sandra Ýr - barnsmissir
Í þessum þætti deilir Sandra Ýr Grétarsdóttir átakanlegri sögu sinni af skyndilegu fráfalli sonar síns, hvernig hún leiddist út í neyslu í kjölfarið og leiðina aftur á beinu brautina.
-
1. Kynning
Í þessum fyrsta þætti kynna vinkonurnar Díana Karen og Jóna Kristín hugmyndina á bakvið Móðurlíf.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...