Námsvarpið - Mál, læsi og líðan podcast artwork

PODCAST · education

Námsvarpið - Mál, læsi og líðan

Námsvarpið - Mál, læsi og líðan er hlaðvarp sem verkefnastjóri læsis og lestrarkennslu hjá Menntavísinda og Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands stýrir í samstarfi við Rannsókna- og fræðslustofu um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna. Í hlaðvarpinu fær verkefnastjórinn, Berglind Axelsdóttir til sín alls kyns fræðafólk og sérfræðinga og ræðir við það um efni sem tengist máli, læsi og líðan barna og ungmenna. Upptökustjóri er Sveinn Bjarki Tómasson verkefnisstjóri nýsköpunar- og tæknimenntunar.

  1. 23

    #24 Námsorðaforði og notkun gervigreindar - Sigurður Fjalar Jónsson og Hjörvar Ingi Haraldsson

    Námsvarpið fékk til sín félagana (Sigurð) Fjalar Jónsson og Hjörvar Inga Haraldsson kennara í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Við ræddum um kennslu þeirra í orðaforða þar sem þeir nýta gervigreindina til þess að aðstoða sig við að vinna á markvissari hátt. Þá ræddum við um skort á námsorðaforða í kennslustofunni og hvernig hann hefur áhrif á lesskilning og námsárangur og hvernig gervigreind getur hjálpað kennurum við að kennurum að vinna með námsorðaforða án þess að auka vinnuálagið. Að lokum ræddum við einnig um NotebookLM og sambærileg verkfæri sem þeir nýta í sinni kennslu.

  2. 22

    #23 Kennsluleiðbeiningar og nemendahefti með íslenskum námsorðaforða - Auður Pálsdóttir og Ragnar F. Ólafsson

    Við fengum til okkar Dr. Auði Pálsdóttur og Ragnar Friðrik Ólafsson doktorsnema sem hafa ásamt Dr. Sigríði Ólafsdóttur unnið að rannsóknarverkefni sem ber yfirheitið Íslenskur námsorðaforði. Fyrir nokkru síðan hélt íslensk málnefnd málþing um námsorðaforða og læsi þar sem frummælendur voru Dr. Ármann Jakobsson sem fjallaði um hrakandi læsi nemenda á íslensku, Dr. Elín Þöll Þórðardóttir sem fjallaði um stöðu barna með íslensku sem annað mál, og Dr. Auður Pálsdóttir (annar viðmælenda minna) sem fjallaði um gagnlegan stuðning við kennara í vinnu með orðaforða og Dr. Sigríður Ólafsdóttir um hvers konar verkfæri virka og horfði svo til framtíðar.

  3. 21

    #22 Tækifæri til náms og líðan - Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir

    Námsvarpið fékk til sín Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttur til þess að ræða tækifæri til náms og líðan. Jóhanna Birna segir frá skólagöngu sinni og þeim áskorunum sem hún stóð frammi fyrir. Þrátt fyrir það hefur henni tekist að ná ótrúlegum árangri í námi og starfi. Ítarefni https://www.harts.is/https://www.johannabirnabjartmars.com/https://noredreviews.org/index.php/NJSRE/article/view/6736/11285

  4. 20

    #21 Að lesa sér til gagns - Sigríður Ólafsdóttir

    Við fengum Dr. Sigríði Ólafsdóttur til þess að koma og ræða um það hvað það þýðir að lesa sér til gagns. Hvað þurfi til þess að skilja lesinn texta og af hverju virðist lesskilningur eflast svo lítið á grunnskólaárunum. Hverju er um að kenna. Er munur á lesskilningi eftir því hvort textinn er á pappír, í síma eða á vef? Af hverju skiptir djúpur lesskilningur svona miklu máli fyrir nám og líf almennt og hvaða hlutverki gegna orðaforði og bakgrunnsþekking í lesskilningi. Hver sé algengasti misskilningurinn í umræðu um lestrarfærni og lesskilning og ef hún mætti velja þrjár breytingar sem myndu bæta lesskilning barna og ungmenna mest, hverjar væru þær. Ítarefni https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88400 https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88413https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88398

  5. 19

    #20 Hvað eru gagnreyndar aðferðir og af hverju/hvernig skipta þær máli - Auður Soffíu Björgvinsdóttir og Margrét Sigmarsdóttir

    Undanfarið hefur mikið verið rætt í fjölmiðlum og víðar um líðan og hegðun barna og einnig um lestrarfærni eða skort á henni öllu heldur. Hvað eru við sem samfélag að gera í þessum efnum? Það liggur ekki síður fyrir að spyrja: Hvað erum við sem samfélag að gera rangt? Stundum er sagt að ef við viljum skilja stöðuna, þá er besta leiðin að reyna að breyta henni. Þá er bara spurning hvernig og við gerum til þess. Í umræðunni kemur fyrir hugtakið gagnreynt eða raunprófað, gagnreyndar aðferðir. En, það virðist vera mismunandi skilningur á hvað gagnreyndar aðferðir eru. Meðal annars hafa verið nýlega umræður á alþingi um barnavernd, sem benda til þess að það gæti verið gagnlegt að skýra hvað þetta hugtak, gagnreynt, merkir. Það virðist vera óljóst þegar fjallað er um aðferðir, hvort eitthvað sé gagnreynt eða ekki. Til að ræða þetta fékk Námsvarpið til sín Margréti Sigmarsdóttur og Auði Soffíu Björgvinsdóttur sem fjallað hafa um gagnreyndar aðferðir, en ekki frá sama sjónarhóli. Margrét Sigmarsdóttir er prófessor í sálfræði og rannsóknarleiðtogi menntavísindasviðs HÍ, hún er klínískur sálfræðingur og hefur mikla reynslu og þekkingu á rannsóknum og innleiðingu gagnreyndra aðferða.  Auður Soffíu Björgvinsdóttir er grunnskólakennari, læsisfræðingur og doktor í fræðunum.  Í doktorsnáminu kynntist hún og rannsakaði gagnreynda kennsluaðferð í lestri. Ítarefni: Education Endowment Foundation. Bresk síða með yfirliti yfir  aðferðir sem er mælt með og hvaða rannsóknum það byggir á https://educationendowmentfoundation.org.uk/What Works Clearinghouse. Bandarísk síða með yfirliti yfir aðferðir sem er mælt með og hvaða rannsóknum það byggir á https://ies.ed.gov/ncee/wwcHér er bein slóð á PALS hlutann https://ies.ed.gov/ncee/wwc/Docs/InterventionReports/wwc_pals_060512.pdfNational Center on Improving Literacy. Bandarísk síða um rannsóknir tengdar læsi og lestrarkennslu https://improvingliteracy.org/Eyberg, S. M., Nelson, M. M., & Boggs, S. R. (2008). Evidence-Based Psychosocial Treatments for Children and Adolescents With Disruptive Behavior. Journal of Clinical Child & Adolescent Psychology, 37(1), 215–237. https://doi.org/10.1080/15374410701820117

  6. 18

    #19 Máltaka, málþroski og málfærni - Iris Edda Nowenstein

    Námsvarpið fékk til sín Dr. Irisi Eddu Nowenstein lektor á Hugvísindasviði og talmeinafræðing á Landspítalnum. Umræðuefnið var máltaka, málþroski og málfærni í samhengi við aukna ensku í málumhverfi íslenskumælandi barna og fjölgun barna með íslensku sem annað mál. Ítarefni: https://pubs.asha.org/doi/10.1044/2023_JSLHR-23-00117https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/00313831.2024.2322958?casa_token=G2jHhEn463kAAAAA%3AOJlOnXofEEyA9-5vEjJAo5qyui5Hb8iW7eGmpg7ILSnslVYdQPvys__zxP4qoraRoSsme6qQ0u54fAhttps://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/00313831.2024.2322958?casa_token=G2jHhEn463kAAAAA%3AOJlOnXofEEyA9-5vEjJAo5qyui5Hb8iW7eGmpg7ILSnslVYdQPvys__zxP4qoraRoSsme6qQ0u54fAhttps://ritid.hi.is/index.php/ritid/article/view/150https://www.degruyterbrill.com/document/doi/10.1515/soci-2024-0029/html

  7. 17

    #18 Skriftarkennsla og nýtt skriftarefni - Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir

    Námsvarpið fékk til sín Sigurlaugu Rún Brynleifsdóttur kennsluráðgjafa hjá Kópavogsbæ til þess að ræða skriftarkennslu og nýtt skriftarefni sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur gefið út. Ítarefni: https://skriftarvefur.mms.is/https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/skrift_handbok/

  8. 16

    #17 Heimalestur - Auður Soffíu Björgvinsdóttir

    Námsvarpið fékk til sín Dr. Auði Soffíu Björgvinsdóttur til þess að ræða heimalestur en hún hélt fyrirlestur á Menntakviku fyrr í haust um niðurstöður rannsóknar um heimalestur.

  9. 15

    #16 Þróun kennsluhátta til eflingar ritunarfærni nemenda - Ásdís Jóhannesdóttir

    Ásdís Jóhannesdóttir kennari í Öldutúnsskóla kom til okkar og ræddi þróun kennsluhátta til eflingar ritunarfærni nemenda.  Hún hélt erindi um efnið á Menntakviku í október. Ítarefni: http://hdl.handle.net/1946/45566 https://hdl.handle.net/1946/49959 

  10. 14

    #15 Miðja máls og læsis - Dröfn Rafnsdóttir

    Námsvarpið fékk til sín Dröfn Rafnsdóttur deildarstjóra Miðju máls og læsis til þess að ræða upphaf deildarinnar, verkefni hennar og framtíð. Miðja máls og læsis var sett á laggirnar hjá Reykjavíkurborg en er núna staðsett hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Meira um deildina má sjá hér inni á þessari krækju: https://mml.reykjavik.is/

  11. 13

    #14 Læsi í Hólabrekkuskóla - Sólveig Edda Ingvarsdóttir

    Námsvarpið fékk til sín Sólveigu Eddu Ingvarsdóttur sérkennara/verkefnisstjóra í Hólabrekkuskóla og doktorsnema á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða um læsi í Hólabrekkuskóla og hvað þau hafa verið að gera þar.

  12. 12

    #13 Viltu vera MEMM - Fríða Bjarney Jónsdóttir

    Í þessum þætti ræðum við við Fríðu Bjarneyju Jónsdóttur sem er samhæfingarstjóri MEMM verkefnisins hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu um MEMM verkefnið – eða „Menntun, móttaka og menning“. Þetta er metnaðarfullt þróunarverkefni sem hefur það að markmiði að stuðla að  inngildingu og virkri þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í íslensku samfélagi, koma á samræmdu verklagi um móttöku, menntun og þjónustu ásamt því að þróa ráðgjöf, námsgögn og verkfæri. Sjá hér. https://island.is/s/midstod-menntunar-og-skolathjonustu/memm-menntun-mottaka-menning

  13. 11

    #12 Innleiðing vel rannsakaðra aðferða til að efla hegðun og vellíðan barna í samstarfi skóla og foreldra - Margrét Sigmarsdóttir

    Námsvarpið - Mál, læsi og líðan fékk til sín Dr. Margréti Sigmarsdóttur prófessor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða rannsökuð prógrömm fyrir foreldra og skólakerfið sem stuðla að vellíðan allra barna. Einkum þeirra sem glíma við hegðunar- og tilfinningalegan vanda. Það er ekki nóg að hafa réttu leiðirnar,heldur þarf líka að standa rétt að innleiðingu. Svo þarf að skoða vel ef aðferðirnar eru notaðar fyrir aðra hópa en þá sem þær voru upphaflega prófaðar fyrir. Þetta allt ræddum við og meira til.   Ítarefni:Foreldrafærni - Oregon aðferð: Bakgrunnur, innleiðing og áhrif á Íslandi Development and Implementation of an Evidence-Based Parent Management Training InterventionImplementing an Evidence-Based Intervention for Children in Europe: Evalutaing the Full-Transfer ApproachAf innleiðingu SMT-skólafærni í einu sveitarfélagi: Áskoranir en vel unnið verkStrengthening parenting among refugees in Europe (SPARE): intial feasibility in Iceland and Norway

  14. 10

    #11 Geðrækt í skólastarfi - Bergljót Gyða Guðmundsdóttir

    Námsvarpið fékk til sín Dr. Bergljótu Gyðu Guðmundsdóttur til þess að ræða geðrækt í skólastarfi. Hér er hlekkur á skýrslu sem embætti landlæknis gaf út og nefnd er í þættinum ítarefni: https://island.is/frett/Ny-skyrsla-um-namsefni-og-heildraena-nalgun-til-ad-efla-felags-og-tilfinningafaerni-i-skolumSíðan er hér hlekkur á eina góða yfirlitsheimild um geðrækt í skólum/félags- og tilfinningafærni:https://psycnet.apa.org/doi/10.1037/bul0000383

  15. 9

    #10 Ritunarramminn - Katrín Ósk Þráinsdóttir

    Ég fékk til mín Katrínu Ósk Þráinsdóttur læsisfræðing hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu til þess að ræða ritunarrammann sem er í vinnslu hjá stofnunni.

  16. 8

    #9 Bein kennsla - Guðrún Björg Ragnarsdóttir

    Ég fékk til mín Dr. Guðrúnu Björgu Ragnarsdóttur lektor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og ræddum við um Beina kennslu (e. Explicit Instruction). Einnig ræddum við um stýrða kennslu og fimiþjálfun. Ítarefni: Morningside Academy, einkaskóli í Seattle sem ég minntist á:  https://morningsideacademy.org/Heimasíða stofnunar fyrir Stýrða kennslu:  https://www.nifdi.org/ Heimasíða um Beina kennslu, hér má sjá fjölmörg myndbönd af kennslu:  https://explicitinstruction.org/

  17. 7

    #8 Lanis skimunarlistinn - Jóhanna Thelma Einarsdóttir og Þóra Másdóttir

    Ég fékk til mín dr. Jóhönnu Thelmu Einarsdóttur prófessor á Menntavísindasviði og Heilbrigðisvísindasviði HÍ og dr. Þóru Másdóttur dósent á Heilbrigðisvísindasviði HÍ til þess að ræða Lanis skimunarlistann.Tjáskipti teljast til grundvallarmannréttinda. Erfiðleikar í tjáskiptum leikskólabarna geta haft neikvæð áhrif á síðari lestrartileinkun þeirra, námsframvindu, félagsfærni, líðan og tilfinningaþroska. Mikilvægt er að bera tímanlega kennsl á leikskólabörn sem eiga í erfiðleikum með að tjá sig til þess að unnt sé að veita þeim þann stuðning sem þau þarfnast og draga um leið úr þeim neikvæðu áhrifum sem slíkir erfiðleikar geta haft í för með sér. Eins og sakir standa eru ekki til áreiðanleg og réttmæt skimunartæki sem foreldrar eða leikskólakennarar geta nýtt til kanna málfærni barna á aldrinum þriggja ára, hvort sem um er að ræða börn sem eiga íslensku að móðurmáli eða þau sem hafa annað móðurmál en íslensku. LANIS skimunarlistinn fyrir frávikum í tal og málþroska hefur verið í þróun um nokkurt skeið og hafa forprófanir gefið til kynna að listinn er áreiðanlegur og réttmætur. Ítarefni: www.talmal.hi.isEwa Czaplewska: https://fil.ug.edu.pl/wydzial/instytuty/instytut-logopedii/pracownicy-instytutu/dr-hab-ewa-czaplewska-prof-ugMS ritgerðir um LANIS:Karen Inga: https://skemman.is/bitstream/1946/41652/1/LANIS%20framb.%20-%20KIB.pdfRannveig: https://skemman.is/bitstream/1946/41609/1/Rannveig_Gestsd%c3%b3ttir_LANIS_skimunarlisti.pdfLilja: https://skemman.is/bitstream/1946/47117/3/Lilja%20Helgado%cc%81ttir%20-%20LANIS%20skimunarlisti.pdf 

  18. 6

    #7 Lesfimi - Auður Soffíu Björgvinsdóttir

    Í þessum sjöunda þætti hlaðvarpsins fékk ég til mín Auði Soffíu Björgvinsdóttur aðjúnkt og doktorsnema á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða lesfimi. Hérna er ítarefni: Lestrarstiginn https://nancyyoung.ca/the-ladder-of-reading-writing/ Íslenska útgáfan á engan samastað enn, en hann er í viðtalinu við Jan https://skolathraedir.is/2024/06/16/vidtal-vid-dr-jan-hasbrouck/Foreldrafræðsluefnið inni á Læsisvef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu https://laesisvefurinn.is/lestrarmenning/skolinn-og-heimilin/samvinna-um-laesi/The National Reading Panel https://www.nichd.nih.gov/sites/default/files/publications/pubs/nrp/Documents/report.pdfHér er áhugavert hlaðvarp þar sem einn af höfundum skýrslunnar Tim Shanahan fjallar um hana 20 árum eftir að hún kom út.https://amplify.com/episode/science-of-reading-the-podcast/season-2/season-8-behind-the-scenes-of-the-national-reading-panel-with-tim-shanahan/

  19. 5

    #6 Fjöltyngd börn í kjölfar úttektar OECD á innflytjendum á Íslandi - Sigríður Ólafsdóttir

    Í þessum sjötta þætti hlaðvarpsins fékk ég til mín dr. Sigríði Ólafsdóttur dósent á Menntavísindasviði Háskóla Íslands með sérhæfingu í læsi og fjöltyngi ásamt orðaforða til þess að ræða um fjöltyngd börn í kjölfar úttektar OECD á innflytjendum á Íslandi  Hérna er hægt að nálgast skýrsluna: Stjórnarráðið | Ný úttekt OECD um innflytjendur á Íslandi: Mikilvægt að setja inngildingu innflytjenda á dagskrá (stjornarradid.is)Sérfræðingar Rannsóknastofu um þroska, læsi og líðan skrifuðu bls. 25–49 í eftirfarandi skýsrlu  https://www.althingi.is/altext/154/s/1759.html?utm_source=althingi&utm_medium=vefur&utm_campaign=thingskjol_130  PISA skýrslan 2023, bls. 77–93: https://mms.is/sites/mms.is/files/pisa_2022_helsta_island.pdf

  20. 4

    #5 Endalok meðaltalsins, lestraráhugahvöt og lesskilningur - Kristján Ketill Stefánsson

    Í þessum fimmta þætti Námsvarpsins fékk ég til mín Dr. Kristján Ketil Stefánsson lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og ræddum við um endalok meðaltalsins, lestraráhugahvöt og lesskilning. Hérna er hægt að horfa á upptöku um endalok meðaltalsins: The Myth of Average: Todd Rose at TEDxSonomaCounty (youtube.com)Hér er svo krækja inn á Reading Rockets: Concept-Oriented Reading Instruction (CORI) | Reading Rockets

  21. 3

    #4 Nemendur með lestrarvanda í íslensku skólakerfi: Sóknarfæri - Guðbjörg Rut Þórisdóttir

    Ég fékk til mín Guðbjörgu Rut Þórisdóttur læsisráðgjafa hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og formann Félags læsisfræðinga og við ræddum um lestrarvanda í íslensku skólakerfi og sóknarfærin. Hérna er skýrslan sem við ræddum um í þættinum: 1759.docx (live.com)

  22. 2

    #3 Þróun málhljóða og framburðar hjá börnum - Þóra Másdóttir

    Í þættinum ræði ég við Dr. Þóru Másdóttur dósent í talmeinafræði við HÍ og talmeinafræðingur á stofu um þróun málhljóða og framburðar hjá börnum.

  23. 1

    #2 Málörvun leikskólabarna - Jóhanna Thelma Einarsdóttir

    Námsvarpið fékk til sín Dr. Jóhönnu Thelmu Einarsdóttur og ræddi við hana um málörvun leikskólabarna.

  24. 0

    #1 Niðurstöður PISA - læsi - Sigríður Ólafsdóttir

    Niðurstöður PISA - læsiHérna er hægt að lesa íslensku skýrsluna um PISA 2022: https://mms.is/sites/mms.is/files/pisa_2022_helsta_island.pdf

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Námsvarpið - Mál, læsi og líðan er hlaðvarp sem verkefnastjóri læsis og lestrarkennslu hjá Menntavísinda og Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands stýrir í samstarfi við Rannsókna- og fræðslustofu um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna. Í hlaðvarpinu fær verkefnastjórinn, Berglind Axelsdóttir til sín alls kyns fræðafólk og sérfræðinga og ræðir við það um efni sem tengist máli, læsi og líðan barna og ungmenna. Upptökustjóri er Sveinn Bjarki Tómasson verkefnisstjóri nýsköpunar- og tæknimenntunar.

HOSTED BY

Rannsókna- og fræðslustofa um þroska, læsi og líðan - Berglind Axelsdóttir

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Námsvarpið - Mál, læsi og líðan have?

Námsvarpið - Mál, læsi og líðan currently has 24 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Námsvarpið - Mál, læsi og líðan about?

Námsvarpið - Mál, læsi og líðan er hlaðvarp sem verkefnastjóri læsis og lestrarkennslu hjá Menntavísinda og Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands stýrir í samstarfi við Rannsókna- og fræðslustofu um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna. Í hlaðvarpinu fær verkefnastjórinn, Berglind Axelsdóttir...

How often does Námsvarpið - Mál, læsi og líðan release new episodes?

Námsvarpið - Mál, læsi og líðan has 24 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Námsvarpið - Mál, læsi og líðan?

You can listen to Námsvarpið - Mál, læsi og líðan on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Námsvarpið - Mál, læsi og líðan?

Námsvarpið - Mál, læsi og líðan is created and hosted by Rannsókna- og fræðslustofa um þroska, læsi og líðan - Berglind Axelsdóttir.
URL copied to clipboard!