Skip to content
Poppsálin podcast artwork

PODCAST · health

Poppsálin

by Poppsálin

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Sep 11, 2026 · Source feed

Episodes

  1. Heilabilun Bruce Willis og Robin Williams

    Hvað er að gerast hjá Bruce Willis? Á hann mögulega lítið eftir? Hvað kom fyrir Robin Williams? Bruce Willis og heilabilunin, Frontotemporal dementia Robin Williams og þunglyndi og Lewy body dementia

  2. OCD - Kynferðislegar þráhyggjuhugsanir og fjögurra daga meðferðin

    Í þessum þætti verður fjallað almennt um þráhyggju og áráttu eða OCD. Sérstök undirtegund þráhyggju verður skoðuð eða kynferðislegar þráhyggjuhugsanir eins og gagnvart fjölskyldumeðlimum eða öðrum. Rætt verður við Ásmund Gunnarsson frá Kvíðameðferðarstöð um fjögurra daga meðferð við OCD og…

    more
  3. Andrew Tate, Loverboy aðferðin og narsisismi

    TW Rætt er um mansal, narsisisma, kynferðislegt ofbeldi og Andrew Tate Stuttlega farið í mál Andrew Tate, Loverboy mansals aðferðina og við fáum að heyra hljóðbrot af umræðu um narsisisma.

  4. Sjálfsskaði - Orsakir, birtingarmynd, reynslusögur og bjargráð

    TW Sjálfsskaði - Orsakir, birtingarmynd, reynslusögur og bjargráð Í þessum þætti er fjallað um sjálfsskaða. Fjallað er um hvernig sjálfskaði birtist, mögulegar orsakir, tengsl við aðrar raskanir eins og ADHD og jaðarpersónuleikaröskun. Í þættinum fáum við að heyra reynslusögur og hjálplegar…

    more
  5. Sértrúarsöfnuðurinn Peoples Temple og fjöldamorðið í Jonestown

    TW - sjálfsvíg, fjöldamorð og ofbeldi Í þessum þætti er fjallað um sértrúarsöfnuðinn Peoples Temple og hræðilega atburðinn sem átti sér stað í Jonestown. Málið verður skoðað frá sálfræðilegu sjónarhorni

  6. Geta börn fæðst vond? Saga Beth Thomas og fleiri "vondra" barna

    Geta börn fæðst "vond"? Er illskan meðfædd eða getum við alið upp "vond" börn? Vanræksla, heilastarfsemi, munaðarlaus börn og "vonda" stelpan Beth Thomas

  7. Fyrra líf, endurholdgun og Déjá vu

    Í þessum þætti er fjallað um fyrirbærið Déjá vu sem við mörg upplifum og tengsl þess við sögur barna af fyrra lífi eða endurholdgun.

  8. Djöflafárið í leikskólum Bandaríkjanna

    Í þessum þætti er talað um mjög viðkvæmt efni, kynferðislegt ofbeldi, bældar minningar og falskar minningar. Fjallað er um djöfladýrkenda faraldurinn eða satanic panic í Bandaríkjunum í kringum 1980 og 1990. Sagt er frá kynferðisafbrotamálum á leikskólum sem urðu að djöflatrúamálum.

  9. Falskar játningar - Guðmundar- og Geirfinnsmálið

    Í þessum þætti verður farið stuttlega fyrir eitt af þekktustu sakamálum Íslands, Guðmundar og Geirfinnsmálið. Fjallað verður um falskar játningar og sálfræðina bak við slíkar játningar.

  10. Stanford fangelsis tilraunin - Siðlaus en athyglisverð sálfræðitilraun

    Sumarið 1971 var ein af siðlausustu sálfræðitilraunum allra tíma framkvæmd í kjallara Sálfræðideildar Stanford háskólans. Sálfræðiprófessorinn Philip Zimbardo vildi rannsaka hegðun fólks í fangelsi og breytti því kjallara skólans í sýndarfangelsi og skipti saklausum nemendum skólans í tvo hópa,...

  11. Persónaleikaraskanir og undirflokkar

    Jaðarpersónuleikaröskun, narsisimi, siðblinda og fleira. Hér er smá aukaþáttur í tengslum við Poppsálarþáttinn um súpermömmuna sem hvarf sem gefinn var út 2. maí.

  12. Bólusetningar og einhverfa - Stærsta fölsun í sögu vísindanna?

    Árið 1998 birti hið virta tímariti The Lancet vísindagrein eftir lækninn Andrew Jeremy Wakefield þar sem hann hélt því fram að tengsl væru á milli bólusetninga og einhverfu. Margir vilja meina að þetta sé stærsta fölsun í sögu vísindanna. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir vísindamanna til að...

  13. Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum

    Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum! Í þættinum er fjallað um fræga einstaklinga sem hafa verið meðlimir í sértrúarsöfnuðum t.d NXIVM, Children of God og fleiri. Þessi þáttur var áður eingöngu fyrir Poppsálar áskrifendur

  14. Incels morðin

    Í þessum þætti verður áfram fjallað um Incels og sérstaklega hræðilega atburðarás sem átti sér stað í maí árið 2013 þegar Elliot Rogder ákvað að hefna sín á sætum stelpum. Þessi þáttur var áður eingöngu fyrir Poppsálar áskrifendur og tengist eldri þætti um Incels sem nefnist: "Góði gaurinn" og...

  15. Hver er þín týpa? Hrifning og aðlöðun

    Sólrún Ósk sálfræðingur ræðir við Poppsálina um aðlöðun og hrifningu. Erum við með ákveðna týpu? Hvað segja vísindin? Hvað segir Þróunarkenningin? Hvað segir félagssálfræðin um aðlöðun og hrifningu? Þetta er gamall þáttur og var áður eingöngu í boði fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Þátturinn...

  16. Sálskurðlækningar: Siðlausar tilraunir á andlega veiku fólki eða gagnleg úrræði?

    Í þessum þætti er fjallað um sögu sálskurðlækninga, sérstaklega hvítuskurðs eða Lobotomy. Fjallað er um upphaf úrræðisins, markmið þess og afleiðingar. Farið er í það af hverju þessi skurðaðgerð varð svona vinsæl og hvort gagnsemi hennar hafi verið ofmetin. Skoðað verður hve algeng aðgerðin var á...

  17. Paris Hilton og ofbeldi á unglingaheimilinu

    Smá bónus fyrir Poppsálarhlustendur. Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum. Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá…

    more
  18. Y2K: Endurkoma 90s tískunnar og heróínlúkksins

    Lokaþáttur Poppsálarinnar (í bili allavega). TW: Átraskanir Í þessum þætti verður fjallað um endurkomu 90s tískunnar eða aldamótatískunnar. Rætt verður um fegurðarviðmið þess tíma og tengslin við gríðarlega aukningu á átröskunartilfellum á tímum Covid-19. Takk kærlega fyrir að hlusta elsku...

  19. Réttarsálfræðileg greining á Yorkshire Ripper

    Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á Peter Sutcliffe,...

  20. Paris Hilton og ofbeldi á unglingaheimilum í Utah (Áskriftarþáttur)

    Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum. Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá hræðilegu ofbeldi og vanrækslu sem á sér stað…

    more
  21. Fyrsta ástin: Ýktar tilfinningar, hormónar og ástarsorg.

    Í þessum þætti er fjallað um fyrstu ástina. Nýju og ýktu tilfinningarnar, fyrstu skrefin í heimi fullorðinna, hormónar, heilastarfsemi og ástarsorg. TW: Rætt er um tengsl ástarsorgar og sjálfsvíga.

  22. Morðið á John Lennon - Réttarsálfræðileg greining (Allur þátturinn)

    Hér er aukaþáttur sem áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon fengu í júlí. Þið fáið þáttinn í fullri lengd núna því Poppsálin er enn í smá sumarfríi ;) Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér...

  23. Greiningar geðlækna á Anders Breivik (Áskriftarþáttur)

    Þessi þáttur tengist þættinum um hryðjuverkin í Útey. Hér er farið yfir skýrslur geðlækna og sálfræðinga um Anders Breivik, hryðjuverkamanninn sem drap 77 einstaklinga, mest unglinga. Er Breivik geðveikur? Er hann ósakhæfur? Er hann bara vondur? Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur…

    more
  24. Hryðjuverk í Útey - Ótrúleg frásögn Adrian Pracon

    11 ár eru frá hryðjuverkunum í Noregi þar sem Anders Breivík drap 77 einstaklinga, mest unglinga. Í þessum þætti verður sögð ótrúleg saga eins eftirlifanda, Adrian Pracon. Hægt er að nálgast aukaþátt um hryðjuverkamanninn Anders Breivík á Patreon. https://www.patreon.com/Poppsalin

  25. Ariana Grande: Eltihrellar, hryðjuverkaárás og menningarnám

    Í þessum þætti er farið yfir atburði og áföll í lífi söngkonunnar Ariana Grande. Stalkerar, hryðjuverkaárásin í Manchester, neikvæða umfjöllunin og menningarnám. Einnig er talað um sálfræðihugtökin parasocial relationship og PTSD eða áfallastreituröskun og CPTSD.

  26. Morðið á John Lennon - Réttarsálfræðileg greining (Áskriftarþáttur)

    Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á morðinga John...

  27. BDSM og sálfræðilegar pælingar

    Í þessum þætti segir Magnús Hákonarson, fyrrum formaður BDSM á Íslandi okkur allt sem við viljum vita um BDSM. Sálfræðilegar pælingar bak við BDSM verða viðraðar, spjallað er um muninn á kínki/blæti og BDSM og sú hugmynd að BDSM sé kynhneigð. Hægt er að nálgast fleiri Poppsálarþætti hér:...

  28. Réttarsálfræðileg greining á Manson fjölskyldunni (Áskriftarþáttur)

    Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræði greiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á Charles Manson…

    more
  29. Réttarsálfræðileg greining á Ted Bundy og The Night Stalker

    ATH: Hljóðgæðin ekki 100% í þessum þætti (sumarfrí :) ) Í þessum þætti verður sagt frá gríðarlega áhugaverðum sálfræði greiningum nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum...

  30. Loðbolta (Furry) samfélagið (Áskriftarþáttur)

    Í þessum þætti er fjallað um samfélag loðbolta. Þessi þáttur tengist þættinum um Kisumanninn Dennis Avner. Fjallað er um loðbolta samfélagið á Íslandi og ástæður og tilgang Furry samfélags . Einnig verður fjallað um rannsókn sem gerð hefur verið á tengingu Furries við kynhneigð eða kynlíf. Þessi...

  31. Kisumaðurinn - Ranghugmyndir um sjálfið eða Delusional Misidentification

    ATH: Hljóðgæðin eru ekki 100% í þessum þætti Í þessum þætti verður fjallað um nokkrar áhugaverðar raskanir sem tengjast ranghugmyndum um sjálfan sig, annað fólk, staði og hluti. Sagt verður frá sögu Kisumannsins, Dennis Avner sem taldi sig vera tígrisdýr. Hann setti heimsmet í lýtaðgerðum og...

  32. Sálskurðlækningar: Siðlausar tilraunir á andlega veiku fólki eða gagnleg úrræði? (Áskriftarþáttur)

    Í þessum þætti er fjallað um sögu sálskurðlækninga, sérstaklega hvítuskurðs eða Lobotomy. Fjallað er um upphaf úrræðisins, markmið þess og afleiðingar. Farið er í það af hverju þessi skurðaðgerð varð svona vinsæl og hvort gagnsemi hennar hafi verið ofmetin. Skoðað verður hve algeng aðgerðin var á...

  33. Manson fjölskyldan - LSD tilraunir og fjöldamorð

    Í þessum þætti er fjallað um glæpamanninn Charles Manson og hina þekktu Manson fjölskyldu eða költ . Fjallað er um líf Manson, frægu vinina, hópinn eða söfnuðinn sem safnaðist í kringum hann og morðin sem þau frömdu. Farið verður í sálfræðilegar pælingar í tengslum við hegðun og líf Charles…

    more
  34. Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum (Áskriftarþáttur)

    Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér: https://www.patreon.com/Poppsalin Áskriftarhópurinn hefur verið að stækka undanfarið og langar mig að gefa aðeins í og bjóða upp á fleiri...

  35. Hver er þín týpa? Hrifning og aðlöðun (Áskriftarþáttur)

    Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hér kemur smá aukaþáttur í tengslum við þáttinn um ástina og ástarsorg. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér: https://www.patreon.com/Poppsalin Sólrún Ósk sálfræðingur ræðir…

    more
  36. Af hverju er ástarsorgin svona sár? Óendurgoldin ást og ástarfráhvörf

    Poppsálin fékk sálfræði snillinginn Sólrúnu Ósk í heimsókn til að ræða um ástina, ástarsorg, óendurgoldna ást og þann sársauka sem ástarsorg getur valdið. Af hverju er ástarsorgin svona sár? Hvað einkennir óendurgoldna ást? Er óendurgoldin ást ást eða eitthvað annað? Hvað gerist þegar við…

    more
  37. Gummi lögga: Týndu börnin og vandinn við afglæpavæðingu vímuefna

    Í þessum þætti er spjallað við lögreglumanninn Guðmund Fylkisson eða Gumma löggu sem er hvað þekktastur fyrir að finna týnd börn og ungmenni. Við ræðum um starf hans og áhyggjur hans af þeirri hugmynd að afglæpavæða vímuefni. Hægt er að styrkja Poppsálina fyrir 5 evrur á mánuði og fá aukaþætti í...

  38. Hvernig verða fordómar til?

    Í þessum þætti er fjallað um áhugaverðar sálfræðilegar kenningar sem skýra myndun fordóma. Farið verður í nokkrar áhugaverða og sérkennilega rannsóknir á fordómum.

  39. Bólusetningar og einhverfa - Stærsta fölsun í sögu vísindanna? (Áskriftarþáttur)

    Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hér kemur smá aukaþáttur í tengslum við þáttinn um einhverfu. Árið 1998 birti hið virta tímariti The Lancet vísindagrein eftir lækninn Andrew Jeremy Wakefield þar sem hann hélt því fram að tengsl...

  40. Einhverfa: Rófið, kakan og Elon Musk

    Í þessum þætti verður farið ítarlega í einhverfu. Einnig fær saga Elon Musk að blandast inn í umfjöllunina. Fjallað verður um skynúrvinnslu, að stimma, að maska, ósýnilegu einkennin og fleira sem tengist einhverfu. Rætt verður um muninn á viðteknu hugmyndinni um einhverfurófið og nýlegri…

    more
  41. Vímuefni: skaðaminnkun og reynslusaga Kristjáns Ernis

    Poppsálin spjallar við Kristján Erni sem hefur persónulega reynslu af þeirri refsistefnu/bannstefnu sem er við lýði í dag í tengslum við vímuefni. Rætt er um hans reynslu af vímuefnum, áföll, skaðaminnkunarsjónarhornið og neysluskammta. Kristján Ernir situr í starfshópi Heilbrigðismálaráðuneytis…

    more
  42. Skaðaminnkun og afglæpavæðing vímuefna (Halldóra Mogensen Pírati)

    Í þessum þætti er rætt við Halldóru Mogensen úr Pírötum. Rætt er um skaðaminnkun, afglæpavæðingu vímuefna og mögulegar afleiðingar þess. Halldóra útskýrir muninn á aflæpavæðingu og lögleiðingu. Við ræðum um fíknivanda, áföll og tengsl. Hvet ykkur til að hlusta! Mjög fróðlegt!

  43. Súpermamman sem hvarf

    Þessi þáttur fjallar um mjög sérstakt mannhvarfsmál þar sem Sherri Papini súpermamma hverfur frá heimili sínu í Kaliforníu. Þetta mál er mjög spes og kemur á óvart! Einnig er fjallað um ýmsar sálfræðilegar hugmyndir í tengslum við hvarfið. Sálfræðilegu pælingarnar eru dýpkaðar í aukaþætti sem...

  44. Embla Wigum: Förðunarlistakona og TikTok stjarna

    Smá aukaþáttur :) Stutt og skemmtilega höktandi viðtal við snillinginn Emblu Wigum. Embla er orðin algjör stjarna á TikTok og ekki af ástæðulausu. Hvet ykkur til að hlusta. Hvet ykkur líka til að fylgjast með Emblu á t.d TikTok eða Youtube og Instagram. https://www.tiktok.com/@emblawigum

  45. Guðsríki er aðeins fyrir granna – Lystarstol í söfnuði megrunardrottningarinnar

    Í þessum þætti verður fjallað um ótrúlega sérkennilega og hættulega konu, Gwen Shamblin Lara sem hannaði megrunarprógram fyrir kristilega söfnuði. Megrunarprógrammið sló í gegn og hún stofnaði að lokum einhvers konar megrunar sértrúarsöfnuð. Fyrirsögn þessa þáttar er "stolin" frá dv.is

  46. Orthorexia eða réttfæðisárátta (Áskriftarþáttur)

    Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Takk kærlega fyrir að styrkja Poppsálina. Hér kemur smá aukaþáttur í tengslum við þáttinn um Diönu Ross. Vona þið hafið gagn af. Rétt er um frekar nýlega átröskum sem nefnist réttfæðisárátta eða orthorexia. Hægt er að gerast áskrifandi...

  47. Diana Ross: Sérkennilegt "ástar"samband við Michael Jacksons og lystarstol meðal tónlistarfólks

    Í þessum þætti verður farið stuttlega yfir áhugaverða sögu Diönu Ross. Þetta er svolítill "bland í poka" þáttur. Sérkennilegt "ástar"samband hennar og Michael Jackson verður útlistað. Útlitsþrýstingurinn sem fylgir því að vera í skemmtanabransanum verður kannaður og farið verður í rannsóknir á...

  48. Incels morðin (Patreon þáttur)

    Þessi þáttur er fyrir áskrifendur Poppsálarinnar á Patreon. Í þessum þætti verður fjallað áfram um Incels og sérstaklega hræðilega atburðarás sem átti sér stað í maí árið 2013 þegar Elliot Rogder ákvað að hefna sín á sætum stelpum. Hægt er að gerast áskrifandi fyrir 5 evrur á mánuði hér:...

  49. "Motorway Twins" - Óhugnanleg saga sænsku tvíburanna á M6 hraðbrautinni

    Í maí árið 2008 fór af stað ótrúlega sérstök og óhugnanleg atburðarás. Tvíburasysturnar Sabina og Ursula frá Svíþjóð virtust missa vitið á sama tíma þar sem þær reyndu ítrekað að verða fyrir bílum á M6 hraðbrautinni í Bretlandi.

  50. "Góði gaurinn" og Incels: "Konur skulda okkur kynlíf"

    Þetta er svakalegur þáttur!!! Hvað eru Incels? Hverjir eru þessir menn? Hvað einkennir þessa karlmenn? Eru þeir hættulegir? Þversögnin um "góða gaurinn" Rætt verður við Arnór Stein blaðamann sem greindu orðræðu Incels á netinu. TW: Þátturinn fer í viðkæmt efni: Kvenhatur, ofbeldi, sjálfsvíg Hægt…

    more

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar.

HOSTED BY

Poppsálin

Frequently Asked Questions

How many episodes does Poppsálin have?

Poppsálin currently has 112 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Poppsálin about?

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar.

How often does Poppsálin release new episodes?

Poppsálin publishes regularly with 112 episodes available. Check the episode list for the typical release schedule.

Where can I listen to Poppsálin?

You can listen to Poppsálin on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Poppsálin?

Poppsálin is created and hosted by Poppsálin.
URL copied to clipboard!