Skip to content
Reglubókaklúbburinn podcast artwork

Reglubókaklúbburinn

by Reglubókaklúbburinn

Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má, Unni Helgu og Þorsteini Mar ásamt Ólafi Birni á upptökurúninni þar sem þau dæma bækur út frá kápunni en fara einnig djúpt í kjölinn á reglubókum spunaspila.

From the show's RSS feed, refreshed Feb 3, 2025. Source feed.

Subscribe Bookmark

Episodes

  1. Þáttur 17: Hin dulda og föla birtingarmynd ljóssins

    „Ég stóð mig ógeðslega vel í Candela Obscura“ - Stefán Ingvar, höfundur Teppavirkis Reglan mætir einum af okkar öflugustu Örlagavöldum vorrar stéttar (Þorsteinn Sturla) í Miðbiki Meistaranna til að ræða Candela Obscura - fyrstu bók Darrington Press sem kom inn með hvelli en hvarf jafnskjótt. Í...

  2. Þáttur 16: Melans, hvar er hróðurinn?

    Tvö Hús og Fremenni mætast á hrúgu af melans til að reiða sér leið í gegnum þennan Shai Hulud-stærðarinnar doðrant af bók sem er Dune: Adventures in the Imperium. Hlekkir Reglunnar Útsala Modiphius með bókina og annað flott á £5 Dune: Adventure in the Imperium beint frá býli Bókasöfn þar sem þú...

  3. Þáttur 15: Bróðir minn Hnífshjarta

    Reglubókabræður herja á svaðilfarir um lendur von og ótta þar sem þeir ráða gegnum kjarnabók Daggerheart. Þeim til trausts og taks rís við dögun öflugur bandamaður úr austri. Enginn annar en stórvitki spunaspila, hann Þorsteinn Már mætir til að vísa föruneytinu fram á veginn. Í hlekkjum Reglunnar...

  4. Þáttur 14: Veiðimann

    Miðjubörnin eru mætt aftur til leiks til að klára Heim Myrkurs og núna er það persónulegt. Reglubókabræður taka fyrir „Veiðimann" eða Hunter: The Reckoning á útlensku. Þeir sáu það sem enginn átti að sjá, dulan rifin af grálegum hversdagsleikanum og tómið sem starði til baka með öllum sínum…

    more
  5. Þáttur 13: Stjörnustælar - Leiðarvísir leikmanna fyrir Starfinder 2e

    Hnitin eru stillt á Sáttmálaheimana gegnum Driftið á geimflaug Reglunnar QP-13. Rosa margir takkar til að ýta á en engin af þeim sem segir hvernig geimflaug virkar. Fljúgandi heilar (sumir í þveng), ekki-væringjar og rosa margt annað skrýtið sem býr hérna á þverskurði vísinda og fantasíu. ---...

  6. Þáttur 12: Kappar í kúluregni - kjarnabók Outgunned

    Í heimi þar sem fautar brugga launráð í skuggunum. Uppstríluð illmenni og einkaherir þeirra hrúga að sér meiri auð en nokkur getur ímyndað sér og vitfirringar kveikja á eldspýtunni sem tendrar plánetuna eru Reglubræður mættir til að rýna í Outgunned eftir Two Little Mice. --- ⁠Quest Portal⁠ er...

  7. CR, DH og D&D

    Reglubræður smjatta á stórfregnum Critical Role og ætlun þeirra að nota D&D 2024 reglurnar í staðinn fyrir Daggerheart kerfið í væntanlegri fjórðu seríu hópsins. --- Quest Portal⁠ er kostunaraðili Reglunnar þar sem er hægt að finna bæði regluverk fyrir D&D 2024 og Daggerheart ásamt hinum ýmsu…

    more
  8. Þáttur 11 - Fimmheimaflakk fyrir byrjendur - Index Card RPG: Master Edition

    Nýtt ár, nýtt allt, hálf-djók sem varð að blákaldri staðreynd. Addó meðtekur sakramentið með Reglubræðrum í umfjöllun þeirra um Index Card RPG: Master Edition - mögulega einni bestu byrjendabók í spunaspilum sem fyrirfinnst! --- Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar en þar á bæ er að finna hin...

  9. Millibilsástand

    Reglubræður bera saman bækur í bækistöðvum kostunaraðilans. Útreikningar gerðir upp. Hreinsað til að hleypa inn einhverju nýju, jafn vel einhverju betra. --- Það fellur ekki á milli hluta að Quest Portal reynist enn dyggur kostunaraðili Reglunnar og í framvarðasveit spunaspilara nær sem fjær. ---...

  10. Þáttur 10: Ofskömmtun heiftar og vonleysis - Kjarnabók Werewolf: The Apocalypse (5. útgáfa)

    Krísan er sú að hið gamla deyr en ungviðið of bágstatt til að berast fullþroska í heiminn. Er henni viðbjargandi? Er það of seint? Skulum vér ganga, hönd í loðna hönd, í átt að hinu hnignandi sólarlagi sem stolt Garou í einum, seinasta dýrðarljóma Gaia? --- Reglubókaklúbburinn hámar í sig…

    more
  11. Þáttur 9: Brostni vegvísirinn - Broken Compass Adventure Journal

    Reglan tekur á rás með Brostna vegvísinn við hönd. Þessi þáttur á heima á safni en er, eins og í fyrri svaðilförum Reglunnar, kostaður af Quest Portal. --- Blússandi meðmæli Reglunnar The Lost Jewels of Eire eftir 1 Shot Adventures Reglubókaklúbburinn - Umræðuvettvangur - 107 meðlimir komnir,...

  12. Bitastæður bónusþáttur: Í hlekkjum góssins (Free RPG Day '24)

    Reglan rennur yfir grösug grös góssins sem var gefið út á Free RPG Day þann 24. júní. --- Það kostar ekki neitt að tjékka á Quest Portal, kostunaraðila þáttarins sem er með ókeypis einhleypur fyrir áhugasama örlagavalda. --- Hlekkir á ævintýrin og kerfin í þættinum Free RPG Day - Hvað er það og...

  13. Þáttur 8: Uppdubbaðir Paþþapjakkar - Leiðarvísir leikmanna fyrir Pathfinder 2e

    Kom nú kappar, kvistakvár og hjólreiðanornir. Reglan hefur komið sér saman í kringum Stjörnustein Absalom til að ræða Leiðarvísi leikmanna fyrir Pathfinder 2e. — Líkt og Aroden til hins forna er það Quest Portal sem upphefur Regluna sem hennar kostunaraðili. — Player Core 1 er að finna í Nexus og...

  14. Þáttur 007: Í víðáttu brennandi spegla - Night's Black Agents

    Klokkaðu alla útganga áður en þú rýkur inn í þennan þátt. Korktaflan sýnir það svart á hvítu og með rauðum þræði á milli að þessi þáttur fer lengra upp vampýramídann en nokkru sinni áður. — Þú þarft ekki að vera hakkari á heimsklassa til að njóta góðs af þeim stafrænu verkefnum sem Quest Portal,...

  15. Þáttur 6: Samansafn fanta og fúlmenna - Star Wars: Edge of the Empire

    Hvergi fyrirfinnst ömurlegra samansafn fanta og fúlmenna. En einhversstaðar verða illir að vera á þessum myrku tímum í Vetrarbrautinni. --- Kostunaraðili Reglubókaklúbbsins er Quest Portal⁠ sem er með hýperdrifin verkfæri fyrir ævintýrin sem eiga sér stað endur fyrir löngu á fjarlægri…

    more
  16. Þáttur 5: Míkródósun örvæntingar - Kjarnabók Vampire: The Masquerade

    EFNISVIÐVÖRUN (CW) - Á einum tímapunkti í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef þú eða einhver sem þú þekkir er að glíma við sjálfsvígshugsanir er fjöldi úrræða sem standa til boða. Upplýsingasími heilsugæslunnar er að finna í s. 1700, Hjálparsími Rauða Krossins er 1717. Netspjall Heilsuveru...

  17. Bitastæður bónusþáttur: Eyjaplayer - Viðtal við Eyþór Viðarsson

    Reglubókaklúbburinn fékk í heimsókn til sín Eyþór Viðarsson, raddleikara og einn af aðalsprautum raunspilunar (sannspilunar?) hlaðvarpanna The Sprouting The Lucky Die. Fyrir utan skrambi góða innsýn í hvað það tekur til að búa til raunspilunarhlaðvarp, var Eyþór meira að segja svo vinalegur að…

    more
  18. Þáttur 4: Billy-hilla drunga og dauða - Mörk Borg

    Gola blæs að vestan. Frá Sundrunarlöndum. Rot og ódaunn dreyra eru reiðmenn þeirra. Hyggja þau á ferðalag þangað? Í dal hinna slyppfengu og ódauðu. --- Hina vanhelgu skinnu Mörk Borg er að finna í dýpstu kimum Glæsibæjar, hjá alkemistum harmleiksins og er Basilisk þáttarins með hin ýmsu verkfæri...

  19. Þáttur 3: Bófalegt muldur um Rýtinga í rökkri

    Hér eru engin brögð í tafli, þó eitthvað er að finna af fautum í þessari bófabók. Eftir afdrifaríkan eltingaleik í gegnum víddirnar hafa Reglubræður loksins Rýtingabókina umtöluðu í höndum sínum og taka hana í gegnum þriðju gráðuna. Modus operandi Reglunnar er miðlað til hlustenda þökk sé Quest...

  20. Krísufundur: Hin brauðsneiðin af hálfvitasamlokunni

    Í þann mund sem Reglubræður voru byrjaðir að stinga nefi ofan í Rýtingabók, var hópuppsögnum kastað fram á Galdraströndinni tveimur vikum fyrir jól og þeir fundu sig tilknúna að mætast í eðernum til að ráða úr rústunum. --- Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má og Þorsteini Mar ásamt...

  21. Jólagestir Reglubókaklúbbsins

    Þegar ákveðinn Reglubróðir (sem við skulum ekkert einblína of lengi á) reyndi að gera fínt og skrautlegt fyrir jólin, lendir Reglan í meiriháttar víddarflakksklandri. Þar sem Reglan reynir að leysa úr þessari fjölheimaflækju, finnur hún flottar gjafir á leiðinni og enn flottari félaga sem hjálpa…

    more
  22. Bitastæður bónusþáttur: Örlagaþræðir Lágmúlans - Teppavirki eftir Stefán Ingvar

    Bjalla glymur. Teppabúðin í Lágmúlanum hefur tekið úr lás samanber opnunartíma frá 11-18 (Lokað um helgar). Þú ert teppi. Fölbrúnt teppi. Einhver gengur inn. En hver? Það er ómögulegt að ráða úr. Af því þú ert teppi. En hann stendur fyrir framan þig í dágóða stund... Klósettið? Það er reyndar…

    more
  23. Þáttur 2: Fálmar í þokunni - Regluverk Varðarins fyrir Call of Cthulhu 7e

    Það er satt, við rýndum í hina myrku skruddu, þá forboðnu og viðbjóðslegu bók sem aðeins örfáir hafa fengið að bera augum, en þó er það ætlun okkar með hlaðvarpi þessu að sýna fram á að við séum með öllu heilir á geði. Eflaust muntu fyrst uppnefna okkar, kalla geðsjúka og æra, jafnvel sturlaðri…

    more
  24. Þáttur 1: Stofnfundur - Leiðarvísar leikmanna fyrir 2e og 5e

    Föruneytið leitar djúpt inn í miðbik Kertavirkis og beitir dulspekinni á aðra og fimmtu útgáfu af leiðarvísi leikmanna fyrir Dýflissur og & Dreka. Þar sem skinnurnar sitja undir skini Selûne reiðir vitkinn fram reykelsi ásamt vígðu vatni og með vel æfðum handabendingum og arkanískri þulu er rýnt…

    more

About this show

Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má, Unni Helgu og Þorsteini Mar ásamt Ólafi Birni á upptökurúninni þar sem þau dæma bækur út frá kápunni en fara einnig djúpt í kjölinn á reglubókum spunaspila.

Hosted by

Reglubókaklúbburinn

Categories

Frequently asked questions

How many episodes does Reglubókaklúbburinn have?

Reglubókaklúbburinn has 24 episodes on PodParley. The most recent episode was published on October 15, 2026.

What is Reglubókaklúbburinn about?

Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má, Unni Helgu og Þorsteini Mar ásamt Ólafi Birni á upptökurúninni þar sem þau dæma bækur út frá kápunni en fara einnig djúpt í kjölinn á reglubókum spunaspila.

How often does Reglubókaklúbburinn release new episodes?

Reglubókaklúbburinn publishes about every 46 days, based on its 24 episodes since November 2023.

Who hosts Reglubókaklúbburinn?

Reglubókaklúbburinn is created and hosted by Reglubókaklúbburinn.
Link copied