Skip to content
Þrír á stöng podcast artwork

PODCAST · sports

Þrír á stöng

by Þrír á stöng

Þrír á stöng er hlaðvarp um veiði, hnýtingar og tækni. Umsjónarmenn eru Árni Kristinn Skúlason, Hafsteinn Már Sigurðsson og Jón Stefán Hannesson.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Apr 6, 2023 · Source feed

Episodes

  1. #54 - Bjart er yfir birtingum - Bjartur Ari Hansson

    Eyveijo aueyseiveijo Í þætti vikunnar mætti Bjartur Ari Hansson í settið. Bjartur er einn af þessum veiðimönnum sem eyðir mestum veiðitíma sínum í silungs- og sjóbirtingsveiði hvort sem það er í vötnum eða straumvatni. Við förum vel yfir Skagaheiðina og fleiri vatnasvæði sem Bjartur hefur stundað...

  2. #53 - Masterclass með Lewis - Lewis Hendrie

    Veiiiióveiveiheyveiheyjó Lewis Hendrie og Ólafur Hilmar Foss mættu í þáttinn að þessu sinni. Óla þarf kannski ekki að kynna fyrir hlustendum því hann hefur áður verið gestur í þættinum en nú mætir hann með veiðivini sínum, Lewis. En Lewis sá er mikill veiðimaður og keppir í fluguveiði með enska...

  3. #52 - Alexander hinn, hinn mikli - Alexander Stefánsson

    Eyveyieyjo aveyio Gestur vikunnar er hinn eini sanni Alexander Stefánsson sem er oft kenndur við Alexander mikla, gríska konunginn, en marktækasti munurinn á þeim er jú kannski veiðiþekking og annað smotterí. Sá mikli var til dæmis ekki mikið inni í sjóbirtings- og laxveiðum en þar kemur okkar...

  4. #51 - Mr. Trout & Feather - Tim Cammisa

    Eyveyieyjo aveyio Gestur vikunnar er engin annar en Tim Cammisa sem margir kannast við úr veiðiheiminum undir nafninu Trout & Feather. Tim hefur stundað stangveiði frá barnsaldri og fyrir nokkuð mörgum árum stofnaði hann YouTube-rás sem hefur það að markmiði að hjálpa fólki að verða betri...

  5. #50 - Of Flies and Fish - Arnar Rósenkranz Hilmarsson

    Eyasey veyjo aweyjo Í þætti vikunnar mætti til okkar trommuþræll Íslands og veiðimaðurinn Arnar Rósenkranz Hilmarsson. Arnar er kannski flestum hlustendum kunnur sem meðlimur hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, en við þekkjum hann sem Arnar veiðimann. Arnar hefur stundað stangveiði frá unga...

  6. #49 - Netagerðarmaðurinn - Hörður Birgir Hafsteinsson

    Veyjo aveijo Í þætti vikunnar kom til okkar náttúrubarnið, netagerðarmaðurinn og veiðimaðurinn Hörður Birgir Hafsteinsson. Hödda ættu margir að þekkja úr Húseyjarkvíslinni og fyrir störf sín fyrir SVFR. Það fór afskaplega vel á með okkur stemningin góð og var erfitt að hætta því Höddi hafði frá...

  7. #48 - Fallegi smiðurinn - Sævar Snorrason

    Aveyjo veio. Í þætti vikunnar mætti til okkar gæðablóðið og veiðimaðurinn Sævar Snorrason. Sæfar er einn af þessum veiðimönnum sem margir þekkja en þeir sem þekkja hann ekki vel þekkja hann kanski sem veiðvörð Veiðikortsins en hann er svo mikklu meira en það. Sævar er líka að smíða háfa og…

    more
  8. #47 - Tvær á toppnum - Elín Ingólfs og Helga Gísla

    Eyseiaveijo veijo Í þessum fyrsta þætti ársins mættu tvær alltof veiðisjúkar veiðikonur, þær Elín Ingólfsdóttir og Helga Gísladóttir. Við fórum vel yfir stofnun kvennanefdar SVFR sem Elín kom á laggirnar og var Helga mætt þar með fyrstu konum. Við ræddum kvennanefndina, störfin og allt…

    more
  9. #46 - Okkar veikasti - Gísli Rúnar Kristinsson

    HOHOHOHO og gleðileg Jól. Í þætti vikunnar kemur til okkar virkilega veiðisýktur maður. Hann hefur nú ekki verið lengi í sportinu en þarna sannast það hvað þetta getur heltekið mann gjörsamlega. Gísli er maður sem er virkilega gaman að tala við og einnig eru Gísli og Siggi miklir veiðifélagar og...

  10. #45 - Þessi Langskeggur - Örn Hjálmarsson

    Jo eiveijo veijo veijooo. Þáttur vikunnar er heltekinn af vötnum og hnýtingum því gestur þáttarins er enginn annar en Örn Hjálmarsson. Flest allir veiðimenn ættu að þekkja Örn en ef þeir þekkja ekki manninn sjálfan ættu þeir að þekkja flugurnar hans svo sem Langskegg, Teppahreinsarann og Golden...

  11. #44 - Mývatnssveitin og laxarnir - Hrannar Pétursson

    Eyjo aveijoveio. Í þætti vikunnar kom til okkar náttúrubarnið og veiðimaðurinn Hrannar Pétursson. Hrannar ættu margir að þekkja úr þessum veiðiheimi okkar því hann hefur verið nokkuð iðinn við veiðarnar síðustu ár og við fórum yfir allt það helsta á ferlinum hingað til. Einnig er Hrannar í stjórn...

  12. #43 - Hinn venjulegi Jón - Hörður Páll Guðmundsson

    Yeiiiasey aveijo veyyo. Jæja vetrinum startað og það er gott og fátt betra en að fá hinn venjulega Jón, eins og hann kallaði sig sjálfur, sem gest í fyrsta þáttinn en sá Jón er Hörður Páll Guðmundsson. Hér er á ferðinni stuð- og stemningsþáttur, farið er yfir veiðina og ótal sögur fá að fjúka í...

  13. #42 - Atlasinn - Ólafur Hilmar Foss

    Yjoeisei veyjo veio. Í þætti vikunnar kom til okkar enginn annar en atlasinn sjálfur, Ólafur Hilmar Foss. Óli er eldri en tvævetur í veiðinni og hefur komið víða við, allt frá Þingvallavatni sem barn og yfir í að veiða með heims- og Bretlandsmeisturum í veiði. Óli hefur komið víða við en það…

    more
  14. #41 - Er Guð Mývatnssveitin? - Ísak Vilhjámsson

    Aaeyseyja aveyjó aveijó. Jæja, þá er þáttur vikunnar að þessu sinni að bakka til ykkar með fullt skott af skemmtun og fræðslu. Gestur þáttarins er enginn annar en fyrrum dælumaðurinn, kokkurinn og umfram allt veiðimaðurinn Ísak Vilhjálmsson. Það eru nokkrir staðir sem standa honum næst hjarta í...

  15. #40 - Urriðadansinn sjálfur - Össur Skarphéðinsson

    Eyjó aveijo veyjo Í þætti vikunnar kom enginn annar en líffræðingurinn, lífeðlisfræðingurinn og fyrrum Alþingismaðurinn Össur Skarphéðinsson í heimsókn. Össur er flest öllum sem komin eru af léttasta skeiðinu kunnur en bæði er hann mikill fræðimaður og veiðimaður. Við fórum með Össuri í gegnum…

    more
  16. #39 - Sister Sledge - Efemía og Stefanía

    Eyaveijo vey. Jæja, kæru hlustendur. Þáttur vikunnar er mjög viðburðaríkur fyrir nokkrar sakir. Smávægilegar breytingar eru á þættinum þar sem Benni er fluttur af landinu og verð ég með gestastjórnendur það sem eftir lifir tímabils. Gestastjórnandi í þessum þætti er engin önnur en aflaklóin,...

  17. #38 - Af litlum neista - Pálmi Gunnarsson

    Eiveyjo aveyeajó. Bassafantinn og náttúruunnandann Pálma Gunnarsson þarf ekki að kynna fyrir neinum veiðimanni en Pálmi kom til okkar í vikunni og við ræddum meðal annars þurrfluguveiði, straumflugur, sjóbirting, bleikjur, laxa, Rússland, Grænland og allt þar á milli. Njótið, við nutum.

  18. #37 - Frá Mozambique til Mývatns - Stefán Jón Hafstein

    Jeyesey weyjó veijo. Í þætti vikunnar kom heimshornaflakkarinn og veiðimaðurinn Stefán Jón Hafstein í heimsókn. Stefán ættu flest allir veiðimenn að þekkja en hann lét mikið fyrir sér fara í veiðiheiminum hér á árum áður. Við förum yfir gömlu góðu dagana með Stefáni, hvernig allt hefur breyst og...

  19. #36 - Mr Sexxxy - Dagur Árni

    Jaaaa eyaveyijo veyeijo. Í þætti vikunnar er gestur okkar enginn annar en veiðisjúkasti maður landsins, já eða bara heimsins, Dagur Árni Guðmundsson. Hvað getur maður sagt um svona þátt? Tjaaa við fórum yfir nánast allt í sambandi við veiði frá taumum upp í risafiska hvort sem það séu laxar,...

  20. #35 - Dýrbíturinn - Dommi

    Aaaaeiiii aveiyiyjo veyo. Guðmundur Ingi Hjartarson, betur þekktur sem Dommi, kíkti til okkar og ræddi 30 ára draum sem hann er að láta rætast. Forritarinn sem sneri sér að fiskirækt er með margar frábærar veiðisögur í farteskinu og er að gera virkilega spennandi hluti sem leigutaki og veiðimaður...

  21. #34 - Makkerinn - Mikael Marino Rivera

    Ajooooaveyjo vaejooo. Mikael Marinó Rivera, Reykvíkingur ársins 2023, kemur í heimsókn og ræðir málin. Mikael tók nýlega við barna- og unglingastarfi SVFR og er að gefa út fyrsta stangveiðispil Íslandssögunnar nú fyrir jólin. Mikael er sögukennari og mikill grúskari og á stærsta safn veiðibóka á...

  22. #33 - Juniorinn - Ingvi Örn Ingvason

    Aveijó veijó Í þætti vikunnar mætti í settið enginn annar en stórgædinn og gæðablóðið Ingvi Örn Ingvason. Ingvi byrjaði nú frekar seint að gæda en afrekaði á ótrúlegan hátt að byrja að gæda áður en hann byrjaði sjálfur að veiða. Ansi magnað en Ingvi fer vel yfir þetta með okkur. Við tölum líka um...

  23. #32 - Frú Formaður - Ragnheiður Thorsteinsson

    Jóeyveijó veijo Í þætti vikunnar kom engin önnur en Ragnheiður Thorsteinsson til okkar. Ragga er með skemmtilegri konum sem maður hittir á lífsleiðinni og geislar hún alltaf af gleði. Við förum stuttlega yfir veiðiferil Röggu en þó tölum við mest um setu hennar í stjórn SVFR og svo er að…

    more
  24. #31 - Hollendingurinn veiðandi - Auke Van Der Ploeg

    Aeiaaaaaaaveijo Veijooo Auke er magnaður veiðimaður og það var algjör veisla að fá hann loksins í þáttinn! Það má kalla Auke „the nicest guy in fly fishing“. Hann er hjálpsamur og einstakur karakter. Hann hafði frá nógu að segja og er sagan á bak við innkomu Auke í veiðiheiminn á Íslandi afar...

  25. #30 - Hinn heiðarlegi veiðimaður - Óskar Örn

    Aveijó veiooo Óskar Örn er einn af þeim sem bókstaflega fæddist með veiðistöng í hendinni. Hann hefur veitt um allt land og segir okkur frá sínum uppáhaldsstöðum. Óskar er frábær sögumaður og enduðum við oftar en einu sinni í hláturskasti í þættinum. Hann er ekki að flækja málin þegar kemur að...

  26. #30 - The Flag(ler)ship of flytying - Tim Flagler

    Eyjóveijó veijó. Þáttur vikunnar er með aðeins öðru sniði en venjulega því við fengum til okkar Bandaríkjamanninn Tim Flagler og er þátturinn því á útlEnsku. Tim Flagler er eigandi Tightline Productions, L.L.C., myndbandaframleiðslufyrirtækis staðsett í Califon, NJ. Þótt hann framleiði þætti sem...

  27. #29 - Veiði nunnan - Unnur Guðný María Gunnarsdóttir

    Sjóeveijó veijó .Unnur Guðný er veiðikona sem margir ættu að þekkja en þó ekki allir. Unnur hefur veitt frá unga aldri en á síðustu árum heltók veiðin hana. Laxinn átti lengi hjarta hennar áður en hún uppgötvaði silunginn aftur. Eftir endurfundina varð hún heltekin af honum og í framhaldi fór hún...

  28. #28 - Drifterinn - Aron Jarl

    eyjo veijó veio. Aron Jarl er nafn sem flestir silungsveiðimenn þekkja, hann er afar flinkur og fróður veiðimaður og þá sérstæklega í andstreymisveiði. Aron fer vel yfir þá tækni sem hann notar en síðustu ár hefur hann einnig tileinkað sér euro nymphing og er mjóg slungin á því sviði. Varmá er...

  29. #27 - Sá stóri - Bjarki Már Jóhannsson

    Uuuueiiisei aveijooo veijo Bjarki Már er nafn sem er vel þekkt nafn í veiðiheiminum og hefur í gegnum árin dregið ófáa stórfiska á land. Ytri ranga er honum mjög kær og förum við með honum nokkuð vel yfir hana þar sem hann var sem leiðsögumaður til margra ára. einnig förum við um land allt og og...

  30. #26 - Marvin Hot Þrastarson. Hot!?

    Eseeejevejó veijooo Jæja, loksins mættir aftur og það með hvelli. Marvin (Hot) Þrastarson var gestur okkar þessa vikuna. Hér er farið yfir veiðina hjá Mr. Hot og tiplað á nokkuð mörgum málum. Förum í Kjósina, Veiðivötn, Varmá og Laxárdalinn. Einnig eru hnýtingarnar ræddar sem og euronymph svo…

    more
  31. #25 - Murtan að kveðja? -

    Aveijó veyo Í þætti vikunnar kom Finnur Ingimarsson forstöðumaður Náttúrustofu Kópavogs. Finnur er líffræðingur og veit meira en flestir þegar kemur af lífinu sem er undir yfirborði vatna. Finnur fer með okkur um víðan völlen aðaláherslan er á Þingvallarvatni. Murtan er í brennidepli þar sem…

    more
  32. #24- Dr squirmy - Bjarki Bóasson

    Getum við fengið Hoooooooooooyyaaaaaaaaaaa! Jæja, nýr þáttur nýr viðmælandi. Það er engin annar en Bjarki Bóasson æðsti strumpur. Þrátt fyrir stuttan tíma í veiðinni hefur Bjarki gert alveg ótrúlega hluti sama hvort það sé í veiði eða bara allt í kringum veiðina. Bjarki hefur verið mjög öflugur á...

  33. #23 - Sænski töffarinn Jakob Sindri

    Getum við fengið að heyra Hooooooooooyaaaaaaaaaaah? Jæja, þá erum við aftur komnir í loftið eftir langa pásu. Famundan er agalega skemmtilegur og fjölbreyttur vetur hjá okkur og byrjum við með hvelli. Jakob Sindri kom til okkar og fræddi okkur um nánast allt milli himins og jarðar. Við vonum að…

    more
  34. #22 Á tali hjá Þrír á stöng

    Aaaaaaveió veió Þrír á stöng lokar vetrinum með óhefbundnu sniði og fær til sín gestastjórnanda. Símalínur voru rauðglóandi og var hringt í nokkra valinkunna veiðimenn og -konur og staðan tekin á sumrinu það sem af er og rætt hvað liggi framundan. Fætinum var drepið niður víða og fræðumst við um...

  35. #21 -Benedikt Þorgeirsson - Ævintýraveiðimaður Íslands

    Benedikt Þorgeirsson Jæja við erum komnir aftur eftir langa og erfiða pásu. Enginn annar er Benedikt þorgeirsson kom til okkar og fór yfir allt á milli himins og jarðar. Benni er þræl vanur veiðimaður og fluguhnýtari og fórum við djúpt í heim Hlíðrvatns, Þingvallavatns og veiði af belly bátum. Já...

  36. #20 Magnveiðimaður Íslands- Sigurður Kristjánsson

    Aaaaaveijó veijó. Í þessari viku kom enginn annar en Sigurður Kristjánsson til okkar. Hann er einn af okkar betri fluguhnýturum og hefur getið sér gott orð á þeim vettvangi. Í þættinum fer Siggi vel yfir nokkur veiðisvæði og segir frá leynistöðum og flugum sem gott er að nota þar. Siggi situr í...

  37. #19 Haugurinn- Sigurður Héðinn

    Aveijó veijóóóó Í þessari viku kom enginn annar en Sigurður Héðinn, eða Siggi Haugur, til okkar. Maður kemur ekki að tómum kofanum þegar rætt er um stangveiði, fluguhnýtingar og leiðsögn við Sigga. Hann fer yfir sögu sína í þættinum og við köfum nokkuð djúpt inn í heim fluguhnýtinga. Einnig tölum...

  38. #18 Með stöngum skal fiska veiða - Árni Friðleifsson

    EEEEaaaseiiiaveijó veijó Nafnið Árni Friðleifsson er nafn sem allflestir veiðimenn ættu að kannast við en hann mætti til okkar í þessari viku. Árni fer með okkur yfir sinn veiðiferil og gædamennsku. Einnig förum við yfir feril hans innan SVFR sem var langur og farsæll þar sem hann gengdi meðal...

  39. #17 Kristján Friðriksson- FOS

    AAAAAAAAAveijó veijó. Jæja, við erum komnir til baka eftir alltof langt frí. Gestur þáttarins er ekki af verri endanum, Kristján Friðriksson settist niður með okkur og ræddi um ýmislegt tengt silungsveiði, fluguhnýtingum og pælingum. Margir þekkja Kristján út af síðunni hans Fos.is, þar heldur…

    more
  40. #16 Villimaðurinn Elías Pétur

    Aveijó aveijó. Í þætti vikunnar fengum við gest sem vart þarf að kynna fyrir neinum veiðimanni því þetta er enginn annar en Elías Pétur Viðfjörð Þórarinsson. Þrátt fyrir ekkert svo háan aldur hefur Elías náð miklum og góðum tökum á tja nánast öllu sem kemur nálægt veiði. En í þessum þætti förum…

    more
  41. #15 Veiðimaðurinn Einar Páll Garðarsson

    Hó hó hó. Einar Páll Garðarsson eða Palli í Veiðihúsinu, eins og hann var áður þekktur, en Palli í Bendir og Camo í dag kom til okkar og fór yfir sinn veiðiferil. Palli er einn af okkar allra betri veiðimönnum og verður það sjálfsagt alla tíð. Hann fer hér yfir gædaárin, veiðina og sorgir og…

    more
  42. #14 Andri á veiðiflandri Fannberg

    Aaaaaa veijó veijó. Þessi þáttur er bæði mjög skemmtilegur og hjartahlýr, Andri Fannberg settist niður með félögunum og fór yfir sinn veiðiferil og áhugaverðar skoðanir á vinsælum veiðisvæðum. Það má segja að Andri sé töluvert á flandri en hann er mikið fyrir það að ferðast um landið og kynna sér...

  43. #13 Líffræðingur Íslands- Ragnar Ingi Danner

    Aaaaaaa seeeiii aaa veiiiiiiijóóóóó eiiii aaa veiiijóóó Ragnar Ingi Danner er gestur þáttarins. Við fórum yfir víðan völl, bæði í því sem tengist líffræði og veiði. Ragnar Ingi Danner er eins og hlustendur þáttarins vita hinn eini sanni líffræðingur sem við vitnum í þegar kemur að líffræðilegum...

  44. #12 Nýi Norðurár prinsinn- Brynjar Þór Hreggviðsson

    Aseiii aveijó veijó Það var enginn annar en Brynjar Þór Hreggviðsson sem kom til okkar í þessari viku. Reyndar var hann fyrsti live gesturinn okkar á Malbygg taproominu og skemmtum við okkur konunglega fyrir fullum sal af fólki. Brynjar hefur komið víða við í veiðinni bæði sem leiðsögumaður og...

  45. #11 Allt um Dagbókina - Ólafur Tómas

    Ei veijó veijó. Úff hvað getum við sagt? Jú, Ólafur Tómas Guðbjartsson kom í vikunni og við ætluðum að fara yfir örfá mál en Óli er bæði það skemmtilegur og hefur frá svo miklu að segja og við vorum ekki búnir að hitta Óla svo lengi að þetta endaði í þessum tíma sem þetta er. Við fórum yfir mjög...

  46. #10 Stórlax austursins - Þröstur Elliðason

    Veió veió Þröstur Elliðason kom til okkar í þátt vikunnar og við fórum yfir veiðiferil Þrastar, veiðisvæði hans, nýtt fyrirkomulag í Jöklu, allar tegundir af seiðasleppingum, blúsinn í Breiðdalnum og margt, margt fleira. Svo má ekki gleyma hinum eina sanna Steinólfi. Njótið kæru vinir.

  47. #9 Gædinn,Sölumaðurinn og gæðablóðið Sindri Hlíðar

    Gestur þáttarsins er ekki af verri endanum, Sindri Hlíðar Jónsson kom til okkar og gerði upp sumarið. Sindri er einn af eigendum Fishpartner og fáir eru jafn mikið við árbakkann og hann á sumrin. Þátturinn er fullur af skemmtilegum sögum en það er reynt á tilfinningar og voru nokkur tár felld…

    more
  48. #8 Ísbrjóturinn Stefán Sigurðsson

    Jæja, fyrsti gestur vetrarins er enginn annar er Stefán Sigurðsson hjá Iceland Outfitters. Það er nóg að gera hjá honum þessa dagana því hann og Harpa Hlín konan hans voru að taka við Ytri Rangá. Stefán fer yfir fyrirkomulagið og útskýrir þær breytingar sem eiga sér stað fyrir næsta ár. Einnig...

  49. #7 Þriggja stanga tal vol 2

    Jæja kæra veiðifólk Þá er komið að því að sumarið er að hörfa fyrir vetrinum og veiðin að klárast um allt land. Hvað er þá betra en að byrja aftur á fullu með Þremur á stöng? Í fyrsta þætti vetrarins förum við félagarnir yfir veiðisumarið okkar og komandi vetur. Smá sprell og stemning. Vonandi...

  50. #6 Gunnar Bender - punktur.

    Gestur þáttarins er maður sem vart þarf að kynna. Gunnar Bender hefur verið í veiðinni síðan elstu menn muna. Fyrstur með fréttirnar og alltaf með puttann á púlsinum. Allir þekkja Benderinn. Njótið.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Þrír á stöng er hlaðvarp um veiði, hnýtingar og tækni. Umsjónarmenn eru Árni Kristinn Skúlason, Hafsteinn Már Sigurðsson og Jón Stefán Hannesson.

HOSTED BY

Þrír á stöng

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Þrír á stöng have?

Þrír á stöng currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Þrír á stöng about?

Þrír á stöng er hlaðvarp um veiði, hnýtingar og tækni. Umsjónarmenn eru Árni Kristinn Skúlason, Hafsteinn Már Sigurðsson og Jón Stefán Hannesson.

How often does Þrír á stöng release new episodes?

Þrír á stöng has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Þrír á stöng?

You can listen to Þrír á stöng on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Þrír á stöng?

Þrír á stöng is created and hosted by Þrír á stöng.
URL copied to clipboard!