PODCAST · sports
Run and Gun with Mate Dalmay
by Run&Gun
Umræðuþáttur í umsjón Mate Dalmay um íslenskan körfubolta þar sem slegið er á létta strengi en farið í dýptina.
-
39
Run and Gun - Þáttur 39 (Sá Slæmi og Manni Vill)
Eftir ákall úr öllum áttum tók Run and Gun upp þátt á sunnudags hádegi eftir messu hjá gestum þáttarins. Úrslita einvígið var loksins rætt í þaula og efnið ekki týnt. Þjálfara möguleikar Garðbæinga voru ræddir, Sindra mönnum óskum við til hamingja með sæti í deild þeirra bestu og gestir þáttarins fóru í giskleik - hvaða þjálfarar og leikmenn hafa fengið tækni villur í vetur?
-
38
Run and Gun - Þáttur 38 (Tommi og Manni Vill)
Bras á þætti 38 þar sem síðustu 20 mínútur týndust. Umræður í Myntkaup Aréna eru því einungis um 1.deildina, Stjörnuna og Val. Allir spáðu Tindastól sigri í leik tvö. Hlökkum til að ræða leik 2 og 3 eftirá, áfram allir.
-
37
Run and Gun - Þáttur 37 (Manni og Slæmi beint eftir leik)
Menn voru ennþá volgir hálftíma eftir leik Vals og Grindavíkur á mánudagskveldi í Myntkaup Aréna.
-
36
Run and Gun - Þáttur 36 (Tommi og Slæmi í playoffs neyðar pod)
Eftir ákall komu sérfræðingar saman á mánudegi í Myntkaup Aréna og ræddu úrslitakeppnina sem náði um helgina hápúnkti til þessa.
-
35
Run and Gun - Þáttur 35 (Mannig Vill og GB Jr.)
Run and Gun settist niður í Myntkaup Aréna eftir svakalega fyrsta leik í undanúrslitum í gær. Við gerðum leikinn upp með Manna Vill og Gunnari Bjarti og spáðum svo augljóslega í leik kvöldsins. Seth Le Day fékk afsökunarbeiðni í beinni og þá var rýnt í 1.deildina þar sem spennan er að magnast.
-
34
Run and Gun - Þáttur 34 (Sá Slæmi og Rúnar Birgir ráðgjafi þjóðarinnar)
Það var nýr gestur af gamla skólanum í Myntkaup Arena á þessum apríl miðvikudegi. Liðin sem hafa kvatt í bæði Bónus og 1.deild voru rædd og seasoninu gefin einkunn. Hvað gerist svo í næstu einvígum í báðum deildum?
-
33
Run and Gun - Þáttur 33 (Steinar og Tommi Steindórs)
Eftir tvo fyrstu leikina í úrslitakeppninni settust sérfræðingar landsins í Myntkaup Arena og rýndu í það sem við höfum séð. Þáttastjórnandinn er hálfan þáttinn ekki í mynd en það er eins og það er sumir fagna því. Hvernig getum við minnkað skjáfíkn dómara?
-
32
Run and Gun - Þáttur 32 (Steinar og Manni: Uppgjör og Playoffs)
Á þessum mánudegi var tímabilið gert upp í Bónus deildinni í Myntkaup Aréna, gestir gáfu öllum liðum, þjálfurum, íslenskum og erlendum leikmönnum einkunnir. Bragi Guðmunds var kosinn undisputed MVP Run and Gun. Að lokum var að sjálfsöðgu rýnt í playoffs einvígin og opinber spá Run and Gun sett saman.
-
31
Run and Gun - Þáttur 31 (Tommi og Geir gera upp 1.deildina)
31. þáttur tímabilsins í Myntkaup Aréna var helgaður 1.deild karla. Tveir pjúristar mættu í heimsókn og gáfu öllum liðum ítarlegar einkunnir, Geir Elías Úlfur Helgason og Tommi Steindórs. Þátturinn í dag er í boði Myntkaups, Körfufrétta en einnig voru með okkur Chad Grooming menn að þessu sinni.
-
30
Run and Gun - Þáttur 30 (GB Jr. og Bóbódan)
Þrítugasti þáttur Run&Gun og það aðeins tveimur umferðurm fyrir úrslitakeppni. Gestir í Myntkaup sem hafa ekki komið lengi og mikið stuð.
-
29
Run and Gun - Þáttur 29 (Slæmi og Tommi Steindórs)
Tommi Steindórs og Steinar Arons voru gestir dagsins í Myntkaup Aréna þennann miðvikudag þegar þrjár og aðeins þrjár umferðir eru eftir af regular season. Spáð var í næstu umferð Bónus deildar og umferðirnar tvær sem eru eftir í Fyrstu deild karla. Gestirnir hlóðu meðal annars í 5 hötuðustu leikmenn deildarinnar lista og MVP race pælingar.
-
28
Run and Gun - Þáttur 28 (Slæmi og Manni Vill)
Eftir landsliðspásu var tekið upp á fimmtudegi í Myntkaup Aréna. Gestir settu þig í stóla stjórnarmanna liða sem funda á þessum tíma um næsta tímabil. Rýnt var í næstu fjórar umferðir og sett saman loka spá fyrir tímabilið og útlit úrslitakeppninnar.
-
27
Run and Gun - Þáttur 27 (Slæmi og Tommi Steindórs)
Það var mikil stemning í Myntkaup Arena þennan miðvikudag. Rýnt var í 1.deild karla og næstu umferð í þeirri efstu. Farið var yfir þrjá bestu uppöldu leikmenn allra félaga efstu deildar sem enn eru að spila ásamt allskonar öðrum skemmtilegheitum.
-
26
Run and Gun - Þáttur 26 (Slæmi og Mikael Máni)
Steinar Arons og Mikki gerðu upp bikarúrslitaleikinn í Myntkaup Arena nokkrum dögum eftir veisluna, búnir að jafna sig. Hvaða þjálfarteymi hafa mestu verkin að vinna næstu vikur til að koma liðum sínum á þann stað sem þau vilja vera á í vor?
-
25
Run and Gun - Þáttur 25 (Manni Vill og Atli Aðalsteins)
Bikarstemning. Undanúrslitin voru gerð upp og spáð í framhaldið sem og auðvitað bikarúrslitaleikinn sjálfan. Það kostar 20.000 krónur að kýla mótherja og engin leikbönn, því ber að fagna. Menn voru sammála í Myntkaup Arena að það er yfirleitt þess virði.
-
24
Run and Gun - Þáttur 24 (GB Jr. og Mikael Máni)
Geta einhverjir keppt við Stjörnuna á þessum tímapúnkti? Við power rönkuðum með ungum og efnilegum gestum bestu Íslensku leikmenn deildarinnar og spáðum í næstu umferð.
-
23
Run and Gun - Þáttur 23 (Manni Vill og Atli Aðalsteins
Fyrsta deildin var Power Rönkuð þennann miðvikudag í Myntkaup Aréna. Manni fór í trade hugmyndir, leikmannahópar Stjörnunnar og Tindastóls voru bornir saman og að sjálfsögðu var rýnt í leiki umferðarinnar.
-
22
Run and Gun - Þáttur 22 (Tommi Steindórs, GB Jr. og Slæmi)
Farið var yfir allar breytingarnar sem liðin hafa gert síðustu vikur. Eru Tindastóll og Stjarnan að komast í sérflokk? Þrír gestir og meiri hiti en oft áður í Myntkaup Arena fyrir fjórtándu umferð.
-
21
-
20
Run and Gun - Þáttur 20 (Nú mega Jólin koma)
Það var fjölmennt í sófunum undir Myntkaup merkinu á jóla sunnudegi. Veitt voru mid season verðlaun í efstu tveimur deildum í 100 mismunandi flokkum. Áhorfendur og hlustendur eru hvattir til að fylgja Runandgunmd á Instagram en þar verða öll spjöldin úr þættinum birt.
-
19
Run and Gun - Þáttur 19 (Bóbó Dan og Manni Vill)
Það var meira slúðrað en yfirleitt í Myntkaup Aréna á þessum miðvikudegi, enda gestir þáttarins í jólastuði. Fundnar voru lausnir fyrir Álftnesinga við öll þeirra vandamál, Fyrsta Deildin var Power Rönkuð og spáð í síðustu umferðina fyrir hið illa jólafrí.
-
18
Run and Gun - Þáttur 18 (Sá Slæmi og GB Jr.)
Tvær umferð eru fram að jólafríinu langa sem sumir hata. Gestir þáttarins fóru aðeins yfir síðustu umferð og spáðu vel í leikina sem framundan eru. Þá var "You go airport" listi Run and Gun uppfærður.
-
17
Run and Gun - Þáttur 17 (Manni Vill og Sá Slæmi)
Sá Slæmi og Manni Vill, Mosfellingur í fótbolta, mættu í Myntkaup Aréna og settu saman sín sterkustu lið eftir ákveðnum reglum. Kani+2x evrópumenn+2xÍslendingar+sjötti maður úr fyrstu deild. Farið var yfir komandi umferð og þjálfarar sendir til Tenerife, reknir.
-
16
Run and Gun - Þáttur 16 (Tommi Steindórs og Fuglinn)
Pása í deild þeirra bestu er í pásu og eftir úrvalsdeildarhjal var fyrsta deildin tekin fyrir. Tómas Steindórsson og Hraunar Karl aka Fuglinn mættu í Myntkaup Aréna að þessu sinni á fimmtudegi.
-
15
Run and Gun - Þáttur 15 (Spáð í 8 umferð Bónus deildar með GB Jr. og Slæma)
Spáð var í 8.umferð Bónus deildarinnar með Seinari Arons og Gunnar Bjarti. Power Rankið var uppfært og nokkur stór mál rædd.
-
14
Run and Gun - Þáttur 14 (Stonyknows og Fuglinn í heimsókn)
Tveir mestu körfubolta spekingar landsins mættu í Myntkaup Arena og spáðu í sjöundu umferð Bónus deildarinnar. Stonyknows fór vandamál hvers liðs í deildinni. ATH fyrsta mínúta þáttarins er í ruglinu.
-
13
Run and Gun - Þáttur 13 (Stöðu tjekk á öllum liðum eftir 5 umferðir og spáð fyrir 6. umferð)
Tveir með jákvætt sigurhlutfall mættu í Myntkaup Arena á miðvikudagskvöldi, Gunnar Bjartur Álftanes prins og Bóbó Dan Breiðhyltingur ársins 2013. Farið var yfir öll liðin í Bónus deild karla, hvaða beytingar hafa verið á liðunum frá því í lok sumars og hvaða breytingar er hægt og ætti að gera. Að sjálfsögðu spáðum við svo í sjöttu umferð sem hefst í kvöld.
-
12
Run and Gun - Þáttur 12 (Spáð í umferð 5 Bónus deildarinnar og margt annað)
Um tveggja tíma þáttur í boði Myntkaups og félaga okkar hjá Körfufréttum þetta miðvikudagskvöldið. Tommi Steindórs mætti ásamt Manna Vill en Grindjánar eru einir taplausir á toppi deildarinnar. Við power rönkuðum 1.deildina, hent var í gestina hot takes og margt fleira en þó ekkert létt hjal.
-
11
Run and Gun - Þáttur 11 (Spáð í umferð 4 Bónus deildarinnar)
Halli Karfa og Sá Slæmi mættu í Myntkaup Arena seint á miðvikudegi til að rýna í fjórðu umferðina sem hefst í kvöld í deild þeirra bestu. Leikmannalistar voru áberandi um þá sem hafa staðið sig vel, MVP race Íslenskra og erlendra leikmanna voru rædd sem og bestu nýju kaupin eins og þau líta við okkur í dag.
-
10
Run and Gun - Þáttur 10 (Spáð í umferð 3 Bónus deildarinnar)
Manni Vill Grindjáni og GB Jr. Álftnesingur mættu í Myntkaup Arena og spáðu í spilin fyrir þriðju umferð Bónus deildarinnar. Stórleikur umferðarinnar er viðureign þar sem lið þeirra beggja einmitt mætast, tvö af fjórum taplausu liðum deildarinnar.
-
9
Run and Gun - Þáttur 9 (Spáð í umferð 2 Bónus deildarinnar)
Þáttur 9 beint frá Myntkaup Arena. Gestir þáttarins eru Sá Slæmi og Gunnar Bjartur sem fékk boðsmiða eftir stórsigur Álftnesinga í fyrstu umferð. Overreaction eftir fyrstu umferð Bónusdeildar, spáin fyrir 1.deildina opinberuð, margir erlendir leikmenn voru sendir heim strax og svo var að sjálfsögðu spáð í 2.umferð. ATH aðeins hálftími af þættinum endaði á youtube í mynd í þetta skiptið en það eru gæði.
-
8
Run and Gun - Þáttur 8 (Stjarnan og spáin)
Stóri upphitunar þátturinn, sérfræðingar skiluðu spám. Farið er yfir Stjörnuna, geta þeir unnið þetta aftur? SÁP, Hraunar og Tommi Steindórs mættu í Myntkaup Arena miðvikudagskvöldið 1.október og spáðu í tímabilið sem hefst Í DAG.
-
7
Run and Gun - Þáttur 7 (Grindavík, Keflavík og Njarðvík)
Næstsíðasti upphitunarþáttur Run and Gun, sá sjöundi. Suðurnes, Falur Harðarson og Ármann Vilbergs köfuðu í Keflavík, Njarðvík og Grindavík í rúmar 90 mínútur í Myntkaup Arena.
-
6
Run and Gun - Þáttur 6 (Valur og ÍR)
Steinar "Sá Slæmi" besti vinur Valsara mætti ásamt tveimur ástríðufullum ÍR-ingum, Bóbó Dan og Elvari Guðmunds í Myntkaup Arena. Umræðuefni dagsins voru tvö Reykjavíkurlið, ÍR og Valur.
-
5
Run and Gun - Þáttur 5 (Álftanes)
Tveir harðir Álftnesingar komu í fimmta þáttinn í Myntkaup Arena og fóru yfir allt sem viðkemur liðinu sem fer nú inn í sitt þriðja tímabil í deild þeirra bestu. Gestir þáttarins eru Brjánsi sem vill bara vera titlaður Álftnesingur og Fannar Ingi sem fólk kannast einnig við sem söngvara hljómsveitarinnar Hipsumhaps.
-
4
Run and Gun - Þáttur 4 (Fallbarátta-Ármann, ÍA og ÞórÞ)
Geta nýliðarnir haldið sér uppi? Haddi Bryll og Hraunar Karl mættu í fjórða þátt Run and Gun og ræddu möguleika Ármenninga og ÍA. Einnig var lið Þórs Þorlákshafnar krufið en þeir enduðu pikkfastir í 10.sæti í fyrra.
-
3
Run and Gun - Þáttur 3 (KR)
Heill þáttur tileinkaður KR. Böddi fyrrum formaður og Auðunn Örn Gylfason mættu og rýndu í komandi tímabil með Brynjari Þór sem var á línunni frá Danmörku.
-
2
Run and Gun - Þáttur 2 (Tindastóll).
Við rýnum í fyrsta liðið í Bónus deildinni fyrir komandi tímabil. Til umræðu er Tindastóll og Tindastóll einungis. Gestir eru Hugi og Halldór Halldórssynir.
-
1
Run and Gun - Þáttur 1.
Fyrsta deild karla, upphitun með Ísaki Wium og Tomma Steindórs rúmlega 6 vikum fyrir fyrstu umferð.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Umræðuþáttur í umsjón Mate Dalmay um íslenskan körfubolta þar sem slegið er á létta strengi en farið í dýptina.
HOSTED BY
Run&Gun
CATEGORIES
Loading similar podcasts...