PODCAST · news
Samstöðin
by Samstöðin
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
-
600
Rauða borðið 17. ágúst - ESB, nei eða já, menning, umhverfismál og köngulær
Mánudagur 17. ágúst ESB, nei eða já, menning, umhverfismál og köngulær Væri umhverfismálum Íslendinga betur borgið ef Íslendingar nytu aðildar að ESB? Þessari spurningu leitast Árni Finnsson hjá Náttúruverndarsamtökunum við að svara. Björn Þorláks ræðir við Árna. Gunnar Smári ræðir við listamanninn Atla Bollason um ESB og Ísland, menningarlega stöðu landsins og álfunnar. Dr. Ingi Agnarsson líffræðingur ræðir áhugaverða ferð til Madagaskar á dögunum þar sem uppgötvanir í lífríki kóngulóarinnar hafa hlotið athygli víða um heim. Björn Þorláks ræðir við hann.
-
599
Synir Egils 16. ágúst - Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð
Sunnudagurinn 16. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við þau Sonju Ýr Þorbergsdóttur formann BSRB, Kristinn Hrafnsson ritstjóra Wikileaks og Piu Elizabeth Hansson forstöðumann Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Síðan koma fulltrúar frá Ungum Evrópusinnum og Ung gegn ESB-aðild og ræða kosti og kalla umsóknar um aðild að Evrópusambandinu: Óðinn Freyr Baldursson og Þórhildur Davíðsdóttir Söebech sem ætla að segja já þann 29. ágúst og Illugi Gunnarsson og Salma Björk Önnudóttir sem ætla að segja nei. Í lokin ræða þeir bræður um pólitíkina með sínu nefi.
-
598
Rauða borðið - Helgi-spjall: Halldóra Björnsdóttir
Laugardagur 15. ágúst Helgi-spjall: Halldóra Björnsdóttir Halldóra Björnsdóttir íþróttafræðingur var með morgunleikfimi á RÚV í 40 ár. Hún segir hér Ásdísi Olsen frá lífi sínu og störfum.
-
597
Talaðu við mig - 6. þáttur: Rauða borðið 13. ágúst - Aron M og Unnur B
Föstudagur 14. ágúst Talaðu við mig - 6. þáttur Í þættinum í dag ræða þær Emilía og Álfheiður við meistarana Aron Mola og Unni Backman um lífið og tilveruna, leiklist, leikhús, LHÍ, Sigmundur Davíð í MR og margt fleira. Þvílíkur heiðir að fá að spjalla við þessa stórleikara og þjóðargersemar.
-
596
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 33
Föstudagur 14. ágúst Vikuskammtur: Vika 33 Þau Þuríður H. Aradóttir Braun verkefnastjóri, Magga Stína tónlistarkona, Valgarður Guðjónsson söngvari Fræbblana og Þórunn Lárusdóttir leikkona ræða fréttir vikunnar við Gunnar Smára, fréttir sem einkenndust af karpi, myrkva, deilum, óvissu og gleði.
-
595
-
594
Rauða borðið 13. ágúst - Reynsluboltar, vinstri ESB, heilun í stríði, húsnæðismál og landsbyggðin
Fimmtudagur 13. ágúst Reynsluboltar, vinstri ESB, heilun í stríði, húsnæðismál og landsbyggðin Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd, ræða fréttir vikunnar. Sólmyrkvinn og ESB-umræðan verða meðal umfjöllunarefna, Björn Þorláks stýrir þættinum. Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins útskýrir sína afstöðu varðandi ESB fyrir Gunnari Smára. Erla Ólafsdóttir sjúkraþjálfi vinnur með fórnarlömb stríðsins í Úkraínu. Hún ræðir við Ásdísi Olsen. Formaður Leigjendasamtakanna, Yngvi Ómar Sigrúnarson, ræðir húsnæðismál í tengslum við Evrópuumræðu Íslendinga. Björn Þorláks talar við hann. Þóroddur Bjarnason prófessor og landsbyggðasérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um áhrif aðildar að ESB á íslenskar landsbyggðir.
-
593
Rauða borðið 12. ágúst - ESB plús og mínus, geðheilsa og Megas
Miðvikudagur 12. ágúst ESB plús og mínus, geðheilsa og Megas Gunnar Smári ræðir við Ögmund Jónasson fyrrum ráðherra og formann BSRB um þjóðaratkvæðagreiðslu um umsókn Íslands í ESB. Ögmundi list ekki á blikuna. Þorvaldur Gylfason hagfræðingur ræðir kosti aðildar að ESB, íslensku krónuna fjármálaspillingu og fleira í samtali við Björn Þorláks. Ólafur Ævarsson geðlæknir og Björn Þorláksson kryfja samfélagið saman í tengslum við geðheilsu. Sjónarhorn þeirra eru ýmist persónuleg eða vísindaleg. Spessi, Sigurþór Hallbjörnsson, sem gerði kvikmynd um Megas, ræðir við Björn Þorláks um tónlistarmanninn, sem nú er fallinn frá.
-
592
Rauða borðið 11. ágúst - Skólabyrjun, ESB, menningarbrunnur og sólmyrkvahátíð
Þriðjudagur 11. ágúst Skólabyrjun, ESB, menningarbrunnur og sólmyrkvahátíð Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, var gestur Rauða borðsins. Nú styttist óðum í að skólarnir hefji störf eftir. Hvernig ætli gangi að ráða kennara, hvað með námsgögnin og hvað með einkunnir, með tölustöfum eða bókstöfum. Gunnar Smári ræðir við Gauta B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown-háskólann í Bandaríkjunum um efnahagsstöðu Evrópu. Halldór Guðmundsson rithöfundur og útgefandi ræðir menningarlegt samband Íslands við meginland Evrópu við Björn Þorláksson. Myndi Laxness segja já eða nei 29. ágúst næstkomandi? Að lokum slær Ásdís Olsen á þráðinn inn á Hellissand, þar sem Jón Bjarni Steinsson, einn af skipuleggjendum Solar Eclipse Festival, gengur með okkur um svæðið og segir okkur frá því sem er að gerast í vikunni og fram á sunnudag.
-
591
Rauða borðið - 10. ágúst - ESB, hinsegin öldruð, sólmyrkvi og orkumál
Mánudagur 10. ágúst ESB, hinsegin öldruð, sólmyrkvi og orkumál Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur ræðir fullveldishugtakið og átökin vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar í lok mánaðarins á sögulegum nótum. Björn Þorláks ræðir við hann. Björgvin Huldar Soffíuson hjúkrunarfræðingur ræðir hinsegin miðaða öldrunarþjónustu. Andrea Jónsdóttir, plötusnúður og dagskrárgerðarmaður á Rás 2, tekur einnig þátt í spjallinu,Laufey Líndal, leiðir umræðuna. Natalí Lilja Ómarsdóttir, leiðbeinir fólki um hvernig það getur nýtt sér orkuna sem fylgir almyrkva á sólu. Ásdís Olsen ræðir við hana. Steingrímur Ólafsson, sem starfar á norskum olíupalli, ræðir í spjalli við Björn Þorláks hugarheim Norðmanna og áhuga þeirra á ESB-kosningu Íslendinga sem og átökin um auðlindir.
-
590
Synir Egils 9. ágúst - Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar
Sunnudagurinn 9. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar Synir Egils, þeir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, fá gesti og ræða stöðu mála og stjórnmálin. Í fyrri hluta þáttarins koma þau Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB, klofna þjóð og fallna kjarasamninga. Síðan koma þær Eyrún Magnúsdóttir stofnandi Gímaldsins, Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambandsins og Þóra Jónsdóttir lögfræðingur fjölmiðlanefndar og ræða veika stöðu fjölmiðla. Í lokin taka þeir bræður stöðuna á pólitíkinni með sínu nefi.
-
589
Talaðu við mig - 5. þáttur: Alaska1867 og Míó Stora
Föstudagur 3. júlí Talaðu við mig - 5. þáttur: Alaska1867 og Míó Stora Í þættinum í dag ræddum við við eingin önnur en Alösku1867 og Míó Stora. Við ræddum um listina, innblástur, lífið og tilveruna, og fórum að sjálfsögðu í nokkra góða liði þar sem ýmislegt kom í ljós. Þetta var heldur betur skemmtilegt spjall sem hefði getað haldið áfram í alla nótt.
-
588
Sjávarútvegsspjallið - 85. þáttur: Fiskeldi
Fimmtudagur 2. júlí Sjávarútvegsspjallið - 85. þáttur: Fiskeldi Grétar Mar Jónsson ræðir fiskeldi á sjó og landi við þá Elvar Þór Jónsson, framkvæmdastjóra Verndarsjóðs íslenskra laxastofna, og Jóhann Helga Stefánsson, framkvæmdastjóra Landssambands veiðifélaga.
-
587
Rauða borðið 30. júní - Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar
Þriðjudagur 30. júní Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar Tekist er á um það fyrir dómstólum þessa dagana hvort akstur undir áhrifum megi réttlæta með neyðarrétti. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks. Gunnar Smári ræðir við Svein Mána Jóhannesson doktor í sagnfræði um bandaríska Demókrataflokkinn, ólíkar deildir hans, stefnu og markmið í aðdraganda kosninganna í haust. Öryrkjabandalagið telur að nýlegar breytingar á lögum um sjúkratryggingar geti stóraukið kostnað öryrkja og fatlaðra. Björn Þorláks ræðir við Gunnar Alexander Ólafsson, hagfræðing hjá ÖBÍ. Elskarðu mömmu þína? spyr Karla Kristjánsdóttir leikstjóri í samtali við Ásdísi Olsen eftir að hafa rannsakað mæðgnasambönd og skrifað um það nýtt íslenskt leikrit. Enginn sagði “Ég elska þig” Samband mæðgna er oft flókið og dýrmætt. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor hefur rannsakað matvendni barna og hvort hægt sé að þjálfa bragðlaukana okkar. Hún útskýrir þetta fyrir Gunnari Smára.
-
586
Rauða borðið 29. júní - Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum
Mánudagur 29. júní Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum Páll Heiðar Pálsson fasteignasali ræðir stöðuna á fasteignamarkaði í samtali við Björn Þorláks og hvernig sótt er að nafni hans fasteignasölu. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir um Evrópu við Gunnar Smára, um Úkraínu, Evrópusambandið og evruna, veltir fyrir hvort rekja megi fólksflótta frá ríkjum Austur-Evrópu til hagstjórnar með fastgengisstefnu. Ragnar Baldursson kínafræðingur ræðir um Taiwan og Suður-Kínahaf við Gunnar Smára. „Áður fyrr var ég með hnút í maganum og átti til að kasta upp af stressi á tónleikum,“ segir Kristján Viðar – eða Viddi í Greifunum – sem er viðmælandi Ásdísar í þættinum.
-
585
Rauða borðið - Helgi-spjall: Örnólfur Árna
Laugardagur 27. júní Helgi-spjall: Örnólfur Árna Örnólfur Árnason segir okkur frá lífshlaupi sínu, blaðamennsku, ferðamennsku, bókum, leikritum, óperum og listahátíðum, frá gildi þess að ferðast og leyfa heiminum að breytast sér og samfélagi sem mætti breystast til betra vegar.
-
584
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 26
Föstudagur 26. júní Vikuskammtur: Vika 26 Ásdís Olsen sér um Vikuskammt að þessu sinni með gestum sínum, þeim Árelíu Eydís Guðmundsdóttur dósent, rithöfundi og fráfarandi borgarfulltrúa, Einari Skúlasyni þjóðfræðingi og göngugarpi, Halldóri Baldurssyni myndlistarmanni og skopteiknara, og Stefáni Ingvari Vigfússyni sviðshöfundi og uppistandara.
-
583
Rauða borðið 25. júní - Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn
Fimmtudagur 25. júní Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn Tófan, hvalurinn og selurinn eru hluti af verðmætum sem Íslendingum ber að vernda. Þetta segir Rósa Líf Darradótir læknir sem segir að manninn hafi borið af leið eins og lýsi sér í svokallaðri “”mannmiðjuvillu”. Björn Þorláks ræðir við hana. Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir og María Hjálmtýsdóttir, framhaldsskólakennarar, ræða stöðu framhaldsskólans með Laufeyju Líndal. Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð ræðir fjölbreyttar birtingarmyndir ofbeldis við Ragnheiði Davíðsdóttur. Ólafur Kristjánsson, einnig þekktur sem Óli tölva, ræðir um notkun gervigreindarinnar við Ásdísi Olsen. Víðir Sigurðsson ræðir að lokum við Sigurjón Magnús m.a. um framvindu og stöðuna á HM.
-
582
Sjávarútvegsspjallið 84. þáttur: Þingmenn ræða sjávarútvegsmál
Fimmtudagur 25. júní Sjávarútvegsspjallið 84. þáttur: Þingmenn ræða sjávarútvegsmál Grétar Mar Jónsson ræðir við þingmennina Dag B. Eggertsson og Eydísi Ásbjörnsdóttur um misræmi í verðlagningu á fiski og fleira sem fjallað hefur verið um á Alþingi upp á síðkastið.
-
581
Rauða borðið 24. júní - Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur
Miðvikudagur 24. júní Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Ólafur Páll Jónsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára Egilsson um tíma Trump. Sigurjón Magnús ræðir við Guðmund Hálfdánarson um átökin innanlands í samtímanum. Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara ,ræðir við Gunnar Smára um niðurskurð. Lárus Ýmir Óskarsson velti því fyrir sér í spjalli með Birni Þorláks hvort auðræði sé að granda heiminum. Alþýðusönglist og hvernig sá siður hefur haldist víða að syngja í röddum og miðla milli kynslóða verður til umræðu hjá Margréti Bóasdóttur söngkonu og kórstjórnanda og Ingveldi Ýr Jónsdóttur söngkonu og kórstjórnanda. Gildi kórastarfs verður til umræðu.
-
580
Græna borðið - 18. þáttur: Plastmengun og umhverfishreinsun
Miðvikudagur 24. júní Græna borðið - 18. þáttur: Plastmengun og umhverfishreinsun Tómas Knútsson í Bláa hernum og Ragnhildur Katla Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Landverndar ræða plastið í náttúrunni, plastið í sjónum, plastlistaverkauppboð og ruslahreinsun. Með þeim situr Björg Eva Erlendsdóttir.
-
579
Rauða borðið 23. júní - Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður
Þriðjudagur 23. júní Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður Óðinn Freyr Baldursson formaður Ungra Evrópusinna og Þórhildur Pálsdóttir stjórnarkona í Ungum gegn ESB útskýra fyrir Gunnari Smára hvers vegna þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst skiptir máli. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitamál í fréttum líðandi stundar. Utanvegaakstur, hvalveiðar, réttur fólks til að lifa af hitabylgjur og fleira verður til umræðu í spjalli Gísla við Björn Þorláks. Hvernig við munum og lærum er til umræðu í viðtali Ásdísar Olsen við dr. Unni Óttarsdóttur. Hún bendir á að stór hluti mannkyns hugsi fyrst og fremst í myndum fremur en orðum og að skólakerfið taki ekki nægilegt mið af því. Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður var í hópi Íslendinga sem hlutu fálkaorðu á þjóðhátíðadeginum. Hún fer yfir áherslur sínar í samtali við Björn Þorláks.
-
578
Rauða borðið 22. júní - Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar
Mánudagur 22. júní Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar Keir Starmer hefur sagt af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og þar með sem forsætisráðherra Breta. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur í London spáir í spilin í breskum stjórnmálum og innan Verkamannaflokksins í spjalli við Gunnar Smára. Valgerður Árnadóttir hvalavinur ræðir við Björn Þorláks um mótmæli gegn hvalveiðum og þá ekki síst nýjustu viðburði. Hún telur augljóst að veiðarnar stangist á við lög. Ragnar Baldursson kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um uppruna hugmyndarinnar um mörg kerfi innan sama ríkis og hvers vegna hún er mikilvæg í stefnu kínverska kommúnistaflokksins. Haukur Arnþórsson, doktor í stjórnsýslufræði, ræðir við Björn Þorláks um kosti og galla gervigreindar. Arnhildur Pálmadóttir arkitekt hefur verið heiðruð af hálfu Reykjavíkurborgar sem borgarlistamaður. Hún ræðir í samtali við Björn Þorláks hvernig henni hefur tekist að marka sérstök spor í byggingarlist. Magne Kvam er goðsögn og frumkvöðull í útivistarmenningu okkar Íslendinga sem fann það upp hjá sjálfum sér að leggja gönguskíðaspor og móta fjallahjólastíga fyrir almenning í sjálfboðavinnu. Ásdís ræðir við Magna um fjallahjólasportið.
-
577
Bridgeþátturinn - EM að hefjast
Sunnudagurinn 21. júní Bridgeþátturinn - EM að hefjast Björn Þorláks fær þrjá briddsara í spjall til sín um EM sem hefst í næstu viku, laugardaginn 27. júní í Riga. Matthías Imsland, Jón Hersir Elíasson og Magnús Magnússon eru sammála um að ögurstund sé fram undan í opna flokknum. Alls sendir Ísland þrjú lið og spennan er mikil.
-
576
Rauða borðið - Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir
Laugardagur 20. júní Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir Lífshlaup Jóhönnu minnir helst á dramatíska kvikmynd þar sem söguhetjan býr við allsnægtir, frægð og frama þegar eiginmaðurinn biður um skilnað og veröldin hrynur til grunna. Í ljós kemur að á bak við glansmyndina er brotin kona með skelfilega áfallasögu og átröskun. Samhliða því að upplifa líf sitt í rúst fer Jóhanna að stunda hugleiðslu sem færir hana nær sínu innra lífi og síðan upplifun af allsherjar alsælu. Í samtali við Ásdísi Olsen lýsir Jóhanna andlegri vegferð sinni, m.a. sjö ára námi í orkuheilun og kynnum sínum af Barböru Brennan og Dr. Joe Dispenza, sem leiðir merkilega andlega vakningu sem miðar að kærleika og heilun.
-
575
Talaðu við mig - 3. þáttur
Föstudagur 19. júní Talaðu við mig - 3. þáttur: Tónlistarbransinn Í þættinum í dag spjölluðum við við tvo unga listamenn. Við ræddum listina, framtíðina, björtustu vonir bransans og margt fleira. Það var sannur heiður að fá að kynnast þessum meisturum. Við vonum að þið njótið í botn ❤️
-
574
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 25
Föstudagur 19. júní Vikuskammtur: Vika 25 Við förum yfir fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins á þessum kvenfrelsisdegi með þeim fjórum konum. Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Hlédís Maren Guðmundsdóttir varaborgarfulltrúi, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona og Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð greina málin, stöðuna og stefnuna.
-
573
Rauða borðið 18. júní - Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn
Fimmtudagur 18. júní Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn Við byrjum á spjalli Björns, Ásdísar og Gunnar Smára. Svo kemur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisràðherra og fer yfir átakamál í ítarlegu samtali við Björn Þorláks. ESB, Trump, Gaza, efnahagsmálin innanlands og hræðsluáróður ber á góma. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir samkomulag Trumpstjórnarinnar og klerkastjórnarinnar í Íran í samtali við Gunnar Smára. Hvað fékk Trump út úr stríðinu? Hver er staða Íran á eftir? Og hvar stendur Ísrael? Ingibjörg Ottesen, sem verið hefur með gagnrýna umræðu á Facebook, lætur flest flakka um pólitíkina, sjálftöku, það sem hún kallar spilllingaraflanna, mannréttingarmál, skort á náttúruvernd og margt fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir talaði við hana. Í lokin fer Sigurjón yfir HM í fótbolta með Víði Sigurðssyni í Bekknum og eflaust íslenskan fótbolta líka.
-
572
Græna borðið - 17. þáttur: Dýravelferð og dýravernd
Miðvikudagur 17. júní Græna borðið - 17. þáttur: Dýravelferð og dýravernd Ný stjórnarskrá sem fyrst til að tryggja réttindi dýra. Löggjafinn þarf að hlusta á þjóðina og banna hvalveiðar, blóðmerarhald og loðdýraeldi. Samtök bænda eiga að axla ábyrgð á dýravelferð. Við þurfum draga stórlega úr þjáningasporinu á bak við það sem við borðum og láta af þessari mannmiðjuvillu sem hrjáir mannkynið. Þetta er meðal þess sem kemur fram við Græna borðið þar sem Gunnar Theodór Eggertsson, rithöfundur, Valgerður Árnadóttir frá Hvalavinum, Rósa Líf Darradóttir frá Samtökum um Dýravelferð ræddu við Kristínu Helgu Gunnarsdóttur um ástandið í dýraverndarmálum.
-
571
Rauða borðið 16. júní - Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti
Þriðjudagur 16. júní Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fer yfir samgönguáætlun með Gunnari Smára, ræðir mikla umferð á veikbyggðum vegum, göng, brýr, sjóflutninga og innanlandsflug. Viðar Halldórsson félagsfræðingur fer yfir kosti og galla þess að banna börnum aðgengi að samfélagsmiðlum. Bretar hafa fylgt fordæmi Ástrala og hyggjast banna öllum 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla. Guðmundur Auðunsson, einn af stofnendum VG, ræðir að forysta vinstra flokkanna er með neikvætt viðhorf gagnvart aðild að ESB í andstöðu við eigin flokksmenn samkvæmt könnunum. Björn Þorláks ræðir við hann. Guðmundar Gunnlaugssonar sem flestir þekkja sem Gumma Gull, er einn af helstu máttarstólpum íslenskrar skíðasögu. Ásdís ræðir við hann, m.a. örlög nokkra afreksmanna á skíðum. Rausnarlegur fjárstyrkur frá verkalýðsfélagi þýðir að hægt verður að framlengja félagsstarf körfuboltastúlknanna í Aþenu í Breiðholti. Þetta segir Brynjar Karl forsvarsmaður, hann þakkar Sólveigu Önnu og Eflingu í samtali við Björn Þorláks.
-
570
Rauða borðið 15. júní - Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB
Mánudagur 15. júní Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB Réttarhöld um svokallað Edition mál þar sem tvennt lét lífið fjalla um fjarstæðukenndan hrylling. Magnea Marínósdóttir ræðir við Björn Þorláks um hvernig það var að vera viðstödd réttarhöldin. Kristín Ástgeirsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir og Þröstur Ólafsson ræða við Sigurjón Magnús um helstu þjóðmál, erjur í Samfylkingunni og fleira. Hafrún María Zsoldos snyrtifræðingur var nær dauða en lífi vegna sílikonbrjóstapúða. Ásdís Olsen ræðir við Hafrúnu Maríu. Ragnar Baldursson, prófessor í kínverskum fræðum, segir Gunnari Smára frá afstöðu Kínverja til samfélags, ríkis og flokks og veltir fyrir sér hvers vegna Kína sé nú orðið í forystu varðandi sjálfbæra þróun. Henry Alexander Henrysson heimspekingur ræðir þjóðaratkvæðagreiðsluna fram undan, rökræðuna um ESB, lýðræði, siðferði, unglingaveiki smáþjóðar og heiðarleika í samtali við Björn Þorláks.
-
569
Rauða borðið - Helgi-spjall: Árni Pétur
Laugardagur 13. júní Helgi-spjall: Árni Pétur Árni Pétur Guðjónsson leikari ársins kemur í helgi-spjall og segir frá hippanum í sér, leikaranum, hommanum, alkanum og ýmsum fleiri.
-
568
Talaðu við mig - 2. þáttur: í og úr kulnun/fötum
Föstudagur 12. júní Talaðu við mig - 2. þáttur: í og úr kulnun/fötum Í þætti dagsins fengum við góða gesti sem ræddu við okkur um líf sitt og starf. listakonan, stílistinn, socialiteið og Iconið Iða Dögg og svo alt muligt mennirnir, listamennirnir og frumkvöðlarnir Dagur og Gylfi.
-
567
Föstudagur 12. júní Vikuskammtur: Vika 24
Föstudagur 12. júní Vikuskammtur: Vika 24 Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla, Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum ráðherra, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður, ræða ólguna í Samfó, útlendingamál, menntamál, ESB, efnahagsmál og íslenska blíðviðrið. Björn Þorláks sér um þáttinn.
-
566
Rauða borðið 11. júní - Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list
Fimmtudagur 11. júní Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list Þórarinn Snorri Sigurgeirsson stjórnmálafræðingur og skristofufstjóri hjá Þroskahjálp er einn hvatamanna yfirlýsingar fjölda fólks úr Samfylkingunni gegn stefnubreytingar forystu flokksins í málefnum flóttafólks. Hann segir Gunnari Smára hvers vegna. Anna Margrét Bjarnadóttir, Hrönn Stefánsdóttir og Þórdís Bjarnleifsdóttir ræða fötlun og fjárhag, aðgengi að tækifærum í samtali við Björn Þorláks. Ekki sitja allir við sama borð er kemur að menntamöguleikum við HÍ. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Sigurlaugu Gísladóttur móður þriggja lögblindra drengja um lífið og tilveruna og baráttu við kerfið. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur telur einsýnt að Ísland eigi af menningarlegum orsökum ekki síður en efnahagslegum samleið með ESB. Einangrun landsins er stórvarasöm að mati Guðmundar Andra og válegir straumar í vestri. Björn Þorláks ræðir við hann. Á sunnudaginn opnar ný sýning í gluggagalleríinu STÉTT í Bolholti 6. Berglind Ágústsdóttir listakona segir Laufeyju Líndal frá list sinni.
-
565
Rauða borðið 10. júní - Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga
Miðvikudagur 10. júní Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga Margrét Friðriks á frettin.is ræðir spillta íslenska yfirstétt sem hún segir stöðugt vinna gegn sér. Hún ræðir nýfallinn ærumeiðingadóm, eigin áfallasögu og gönguna með Jesú Kristi í samtali við Björn Þorláks og Ásdísi Olsen. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, stríðin og ESB. Hallgrímur Oddsson hagfræðingur í Brussel ræðir glænýja skýrslu um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja. Tollar, gjaldmiðlar og geópólitískar sviptingar koma til umræðu í spjalli hans við Björn Þorláks. Bjarni M. Bjarnason rithöfundur hefur varið tímanum á kaffihúsum undanfarið. Ekki til að slæpast heldur til að skrifa doktorsritgerð! Björn Þorláks ræðir við Bjarna. „Þjáningin varð fæðingarhríðir skilningsins”, segir Marta Eiríksdóttir, kennari og jógakona um erfiðustu ár ævi sinnar í samtali við Ásdísi Olsen.
-
564
Græna borðið 16. þáttur - Réttlát umskipti
Miðvikudagur 10. júní Græna borðið 16. þáttur - Réttlát umskipti
-
563
Græna borðið - 15. þáttur: Varmá, vatn og virðing
Miðvikudagur 3. júní Græna borðið 15. þáttur: Varmá, vatn og virðing Varmá, vatn og virðing verða rædd við Græna borðið í dag. Heilbrigðiseftirlitið, vatnalíffræðingur og íbúi við Varmá telja að mengunin í ánni sé brot á lögum og afleiðing óvirðingar gagnvart náttúrunni, en ekki umhverfisslys. Þörf sé á miklu betri umgengni við vatn á Íslandi, eins og náttúruna almennt, en ferskvatn, ár og votlendi séu undir álagi vegna slæmrar umgengni við framkvæmdir og hætta sé á varanlegu tjóni. Hugsa þurfi til framtíðar, efla fræðslu og eftirlit. Umsjón hefur Björg Eva Erlendsdóttir.
-
562
Rauða borðið 9. júní - Persónulegt hrun, heilahreistingur, áfengi, stengjafræði og veitingahús
Þriðjudagur 9. júní Persónulegt hrun, heilahreistingur, áfengi, stengjafræði og veitingahús Einlægt samtal um persónulegt hrun og þá miklu auðmýktina sem þarf til að biðja um hjálp, í viðtali Ásdísar við Arnór Má Másson markþjálfa. Mjög alvarlegur heilahristingur leiddi til þess að Valgerður Árnadóttir missti getu til að sinna einföldustu verkefnum. Hún komst í gegnum erfiðleikana eins og hún segir Birni Þorláks frá. Björn Þorláks ræðir við forvarnafulltrúann Árna Guðmundsson um hvort hinir fullorðnu eiga sjálfir að hjálpa börnunum að komast yfir áfengi. Lárus Thorlacius prófessor í eðlisfræði útskýrir strengjafræði fyrir Gunnari Smára og Bjarni Óskarsson veitingamaður segir frá nokkrum veitingastöðum sem hann hefur stofnað og rekið í samtali við Gunnar Smára.
-
561
Talaðu við mig - 1. þáttur: Grettir og grín
Föstudagur 5. júní Talaðu við mig - 1. þáttur: Grettir og grín Nýr þáttur á Samstöðinni um listir og menningu í umsjón Álfheiðar Karlsdóttur og Emilíu Bergsdóttur. Í þessum fyrsta þætti spjölluðum við við Gretti Valsson, leikara, grínista og tónlistarmann. Hann klúðraði aðeins og komst ekki í stúdíóið, en við gerðum það besta úr aðstæðum og hringdum í kallinn á zoom. Eftir spjallið fórum við eitthvað að babbla og fórum í nokkra góða liði og reyndum að hafa ofanaf fyrir hlustendum og tókst vonandi bara ágætlega til. Við teljum þó að eina leiðin sé upp eftir þennan fyrsta þátt og í næsta þætti ætlum við að fá til okkar góða gesti sem hafa ýmislegt skemmtilegt að segja.
-
560
Rauða borðið - Helgi-spjall: Sigfinnur
Laugardagur 6. júní Helgi-spjall: Sigfinnur Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur segir okkur frá kvíða æskunnar, veikindum foreldra sinna, trúrrleit sinni, reynslu af dauðanum og hvernig fólk tekur honum, voninni og öðru sem hjálpar.
-
559
Rauða borðið 8. júní - Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM
Mánudagur 8. júní Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM Ofurlaun nokkurra sveitarstjóra hafa verið til umræðu að loknum kosningum. Þá gekk meirihluti í Hafnarfirði úr skaftinu vegna trúnaðarbrests. Þorsteinn Gunnarsson hefur skrifað ritgerð sem kann að varpa ljósi á álitamál í íslenskri sveitarstjórnarpólitík. Björn Þorláks ræðir við hann. Að finna sína eiginlegu rödd fæst með því að tengja við sálina sína segir Þórey Sigþórsdóttir leikkona og raddþjálfi sem kennir fólki að nota röddina, finna sinn eigin styrk í tjáningunni og ná athygli fólks í viðtali við Ásdís Olsen. Guðni Tómasson framkvæmdastjóri Sinfó, Freyja Gunnlaugsdóttir, skólastjóri Menntaskóla í tónlist og Ingveldur G. Ólafsdóttir, móðir Hildar Guðnadóttur, ræða skilyrði árangurs í tónlist og hvort þeim er sinnt sem stendur. Hinrik Ólafsson leikari, leiðsögumaður, framleiðandi og leikstjóri ræðir við Gunnar Smára um túrisma á Íslandi. HM með Víði Sigurðssyni. Gestur þáttarins að þessu sinni er einn reyndasti íþróttafréttamaður landsins. Heimsmeistarakeppnin er við það að hefjast. Svo er mikið gaman að fylgjast með íslenska boltanum.
-
558
-
557
Rauða borðið 4. júní - Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál
Fimmtudagur 04. júní Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál Sverrir Norland rithöfundur ræðir þverrandi áherslu á vitsmuni en aukinn þunga á öryggi í samtali við Björn Þorláks. Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor segir Gunnari Smára frá breytingum á fátæktarlögum 1927 þar sem þurfamenn fengu meðal annars kosningarétt, en fram að því missti fólk þann rétt ef það þáðu stuðning frá sveitarfélögunum. Ásdís Olsen ræðir við Vilhjálm Pétursson verðlaunahafa hjá Forlaginu. Emilía Bergsdóttir trúður og Álfheiður Karlsdóttir dansari ræða við Ásdísi Olsen un glænýjan menningarþátt sem hleypt verður af stokkunum á morgun. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum fer yfir helstu áskorarnir íslenskra neytenda um þessar mundir. Vextirnir, olían, maturinn og húsnæðið verða til umræðu. Björn Þorláks ræðir við Breka.
-
556
Rauða borðið 3. júní - Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar
Miðvikudagur 3. júní Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar Hrundið hefur verið af stað landsátaki gegn kynbundnu ofbeldi næstu fimm árin. Linda Dröfn Gunnarsdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks átakið, flutning athvarfsins, samstöðu og stuðning en einnig ökklabönd og kyrkingartök. Unnur Hrefna Jóhannsdóttir blaðakona og öryrki ræðir við Gunnar Smára um stöðu öryrkja í samfélaginu, hvernig fordómar og vanvirðing dregur niður lífskjör þeirra ekki síður en sjúkdómar, fötlun og fátækt. Ingólfur Gíslason lektor við Háskóla Íslands ræðir þá ákvörðun borgaryfirvalda að hætta að flagga fánum erlendra ríkja. Nýr meirihluti fer illa af stað, að mati Ingólfs. Sigurður Sigurðsson byggingarverkfræðingur segir Gunnari Smára frá pólitísk svik stjórnmálafólksins við ungu kynslóðina, einkum varðandi húsnæðismarkaðinn sem þjónar síst af öllu ungu fólki. Rán Flygenring, myndlistarmaður og rithöfundur, er mikil sundmanneskja og upp á síðkastið hafa gestir í sundlaugum rekið augun í myndlist hennar á sundlaugarbökkum Reykjavíkur. Rán ræðir við Björn Þorláks um þjóðareinkenni Íslendinga, útisundlaugina.
-
555
Rauða borðið 2. júní - Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn
Þriðjudagur 2. júní Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn Páll Valsson rithöfundur og ævisagnaritari Jónasar Hallgrímssonar skýrir fyrir Birni Þorláks hvers vegna hann telur það góða hugmynd að grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar. Hugmyndin hefur vakið deilur meðal fræðimanna. Aðalheiður Sigursveinsdóttir stjórnunarráðgjafi og listakona varð fyrir alvarlegum áhrifum af svartmyglu á heimili sínu og missti allt sem hún átti og næstum vonina líka. Í viðtali við Ásdísi lýsir hún hvernig var að vera heimilislaus, heilsulaus, atvinnulaus og koma alls staðar að lokuðum dyrum. Ólafur Páll Sigurðsson segir Gunnari Smára frá skáldsögunni Villistrákum og höfundi hennar William S. Burroughs, því alræmda skáldi. Páll Ásgeir Ásgeirsson, blaðamaður og leiðsögumaður, vill að tekin verði upp löggilding meðal leiðsögumanna hér á landi. Í samtali Björns Þorláks við Pál Ásgeir ber samanburð færeyskrar og íslenskrar ferðaþjónustu á góma en í Færeyjum hafa leyfislausir leiðsögumenn verið handteknir undanfarið. Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur segir Gunnari Smára frá hringveginum, undirbúningi hans, lagningu, vígslu og áhrifum.
-
554
Rauða borðið 1. júní - Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun
Mánudagur 1. Júní Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun Hagsmunir sem stýra lyfjarannsóknum og heilbrigðiskerfinu eru miklir og spurningar vakna hvort árangursrík og ódýr meðferð gegn krabbameini sé ekki í boði vegna hagsmuna lyfjafyrirtækja? Ásdís Olsen ræðir við Karl Snæbjörnsson lækni og Jón Ármann Steinsson sem segist hafa náð bata af fjórða stigs krabbameini með lyfi sem læknar eru tregir til að tilvísa. Augljóst er að staða Hildar Björnsdóttur, sem tekur við stöðu borgarstjóra á morgun, er sterk. Miðað við söguna gæti hún orðið formaður Sjálfstæðisflokksins. Þetta segir Ólafur G, Harðarson stjórnmálafræðingur í samtali við Björn Þorláks. Baldur Jezorski fasteignasali segir Gunnar Smára frá þeim breytingum sem hafa orðið á íbúðamarkaði þar sem fjársterkir aðilar kaupa upp eignir á meðan almenningur hefur ekki efni á íbúðunum. Maðurinn í órofa tengslum við félagslegt og menningarlegt umhverfi sitt og markast vitsmunalega af slíkum tengslum, segir í bókinni Menntun í félagsmenningarlegu ljósi sem Hafþór Guðjónsson kennari hefur skrifað. Hann útskýrir þetta fyrir Gunnari Smára.
-
553
Bridgeþátturinn - Flott frammistaða
Sunnudagurinn 31. maí Bridgeþátturinn - Flott frammistaða Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, og Magnús Magnússon briddskennari og landsliðsmaður ræða við Björn Þorláks um Evrópumótið framundan, æfingar að baki, maraþonviðureign við Hollendinga og fleira.
-
552
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 22
Föstudagur 29. maí Vikuskammtur: Vika 22 Í Vikuskammt að þessu sinni mæta þær Nanna Hlín Halldórsdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir og Valgerður Árnadóttir til að ræða fréttir vikunnar með Laufeyju Líndal. Nýir borgar- og sveitarstjórnarmeirihlutar, samstarfssáttmálar, þjóðaratkvæðagreiðsla, vafasamar fyrirmyndir, hvalveiðar, netárásir og fordómar verða til umræðu.
-
551
Rauða borðið 28. maí - Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið
Fimmtudagur 28. maí Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið Steingrímur Ólafsson er einn fárra Íslendinga sem starfar á olíupalli. Hann lýsir þeirri reynslu í samtali við Björn Þorláks og spáir fyrir um framtíð jarðefnaeldsneytis. Aðalsteinn Tryggvason blaðamaður á Heimildinni, Steingerður Steinarsdóttir, blaðamaður, Lifðu núna og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða fréttir líðandi stundar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri ræðir við Gunnar Smára Egilsson um heimsmálin, Íransstríðið og fleira. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Nuru A. Rashid leikskólakennara frá Singapúr um 30 ár á Íslandi. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláksson um lagaleg álitamál, tengd fréttum líðandi stundar.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum.Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
HOSTED BY
Samstöðin
CATEGORIES
Loading similar podcasts...