Skraut Bakkusar
by Óli Stefán
Hugsunin á bak við þetta hlaðvarp ( Podcast ) er að ræða alkóhólismann og öllum þeim ólíku vinklum sem honum tengist. Sjálfur er ég alkóhólisti sem tók minn síðasta drykk árið 2009. Ég er alls ekki sérfræðingur um sjúkdóminn en ég þekki af eigin reynslu hversu öflugur og lævís þessi sjúkdómur er. Af þessari reynslu hef ég lært að þekkja muninn á góðum bata og slæmum bata. Í þessum þáttum sest ég niður með sjálfum mér og öðrum, spjalla um sjúkdóminn og allt það sem honum fylgir. Stóra markmiðið er að aðrir alkóhólistar/fíklar og aðstandendur finni hér einhverja tengingu sem gæti hjálpað.
Episodes
-
Innri þjáning - Gísli
Í þessum þætti spjalla ég við hann Gísla Sigurðarsson. Gísli leggur hér inn sögu sína á mjög einlægan og áhrifaríkan hátt. Nafn þáttarsins, innri þjáning, er komið úr sögu hans þegar hann lýsir því ástandi sem hann var í þegar hann tók ákvörðun um að hætta að drekka. Það sem er mjög merkilegt er…
more -
Edrúlífið - Pálmi
Í dag heyri ég í fastagesti þáttarins honum Pálma Fannari. Pálmi Fannar hefur undanfarin ár haldið utan um og séð um Edrúlífið á Djúpavogi. Edrúlífið er í dag stór viðburður á Hammond tónlistahátið á Djúpavogi. Pálmi fer með mér í gegnum það hvernig hann byrjaði Edrúlífið og hvernig þessi…
more -
Leikstjóri lífsins - Hrund
Gestur minn í þessum þætti heitir Hrund Ottósdóttir. Sagan hennar hefst á hæfileikaríkri ungri stúlku sem er að kynnast lífinu. þessi stúlka kynnist fljótlega kvíða, óöryggi og lendir í einelti áður en hún byrjar svo að drekka fjórtán ára gömul. Lífsins harka tekur svo við en röð áfalla skella á...
-
Reyndu aftur - Pálmi
Ég fæ góðkunningja þáttarins, hann Pálma Fannar, í heimsókn að þessu sinni. Þegar ég fæ Pálma með mér horfi ég á það sem "alkaspjall." Tveir alkóhólistar í bata að ræða málin og reyna eftir bestu getu að tala sig í átt að einhverri lausn. Hann kemur með pælingar að borðinu sem við svo ræðum í...
-
Að fylla í tómið - Þorkell Máni
Gestur minn að þessu sinni er Þorkell Máni Pétursson Þorkell Máni er m.a fjölmiðlamaður, umboðsmaður, rithöfundur, markþjálfi og knattspyrnusérfræðingur, en fyrst og fremst er hann alkóhólisti í bata. Við settumst niður á dögunum með það fyrir augum að ræða alkóhólisma en Þorkell Máni hefur verið…
more -
Augu Kókaíns - Hilmar
Gestur minn að þessu sinni heitir Hilmar Garðasson. Hilmar fer yfir sögu sína sem er svo sannarlega þyrnum stráð. Hann fer yfir það með mér hvernig alkóhólisminn greip hann strax frá fyrsta sopa og hvernig hans fíkn þróaðist hratt alveg frá þessum fyrsta sopa áfengis yfir í aðra vímugjafa.…
more -
Leiðin heim - Margrét Erla
Í dag fæ ég til mín hana Margréti Erlu sem fer yfir sína reynslusögu með mér. Við förum yfir sögu sem lýsir mjög vel hvernig alkóhólisminn þróast í brothættri ungri stelpu með brotna sjálfsmynd og þá leið sem hún var á þegar hún svo á endanum fann að hún þurfti hjálp. Framundan var erfiður tími…
more -
Nýtt upphaf
Jæja þá hefjum við leik að nýju. Með þessum þætti keyrum við Pálmi aðra seríu Skrauts Bakkusar í gang. Við förum hér saman yfir það sem þetta podcast snýst um. Eftir sem áður er aðal efni Skraut Bakkusar alkóhólismi í allri sinni mynd. Mér finnst það mikilvægt að það komi fram að ég er ekki...
-
Uppgjör - Óli Stefán
Þessi þáttur er settur upp á annan hátt en aðrir þættir af einni ástæðu og ástæðan er sú að þetta verður síðasti þátturinn í season 1 hjá mér. Þessi þáttur fer því í það að gera upp þetta fyrsta season. Þetta er þrítugasti þáttur Skrauts Bakkusar og í gegnum þessa þrjátíu þætti hafa margir gestir...
-
Horfðu til himins - Halldór Steinn
Í dag heyri ég í honum Halldóri Steini Halldór Steinn var í vandræðum með áfengi frá fyrsta sopa Hann fer yfir það með mér hvernig ákveðið stjórnleysi og vandræðagangur í æsku leiðir hann inn í drykkju sem litaðist strax af óreiðu. Halldór fer á heiðarlegan hátt hvernig hann drykkjan varð verri…
more -
Stjórnleysið sem stjórnaði rútínunni - Halla Vilbergs
Gestur minn þessa vikuna heitir Halla Vilbergs. Ég var afskaplega glaður þegar hún Halla samþykkti að setjast niður með mér í Skrautinu því hún hefur verið ótrúlega dugleg og opinská með sína edrúmennsku. Þarna liggur fortíð og kyning hennar við áfengi. Þarna liggur líka þróun á drykkju sem við...
-
Valkostir lífsins - Kamilla
Í dag fæ ég til mín alveg hreint frábæra unga konu sem færir mér sína sögu. Af mikilli yfirvegun fer hún yfir það með mér hvernig hún fær að vita það mjög ung að árum að líklega sé hún alkóhólisti. Kamilla fer yfir það með mér hvernig hún byrjaði að drekka frekar ung en hún var líka mjög ung…
more -
Breyttur Maður - Páll Valur
Í dag heyri ég í góðum félaga. Páll Valur Björnsson á sögu sem byrjar á Vopnafirði þar sem hann ólst upp. Hann fer yfir uppvaxtarárin með mér og hvernig hann kynntist áfengi ungur að aldri. Bakkus konungur fylgdi Páli í gegnum erfið ár og Bakkus hlífði honum alls ekki. Hvort sem það var...
-
Skoðun læknisins & Alkaspjall
Í dag fer ég aðeins út af vananum. Ég fékk einn af oss til þess að lesa úr bókinni. Skoðun læknisins er mjög góður og áhugaverður kafli sem er lesinn að þessu sinni. Eftir lestur sló ég á þráðinn til Pálma Fannars og við tókum alkaspjall. Alkaspjall er mikilvægt fyrir mig. Ég hef ótrúlega gott af...
-
Að fylla í tómarúmið - Bríet Ósk
Í dag heyri ég í henni Bríeti. Bríet á sína sögu sem hún deilir með okkur á hjartnæman hátt. Að fylla í tómarúmið eða að eltast við það að búa til stöðutákn lífsins reyndist henni erfitt. Fíknin kom snemma fram í henni og hún talar opinskátt um baráttu sína við matarfíkn sem verður stjórnlaus....
-
Eymd er valkostur - Óskar
Gestur minn þessa vikuna er Óskar Guðlaugsson Hammer. Óskar fer með mér yfir sína sögu sem er þyrnum stráð. Neysla sem byrjar snemma og þróast hratt er taktur sem við könnumst orðið vel við hér í Skrauti Bakkusar. Fallbrautin sem endar í falli, leiðin nánast niður til heljar og aftur til baka....
-
Vertíðarblús - Viktor
Í dag ræði ég við Vestmannaeyinginn Viktor Scheving Á afar einlægan og heiðarlegan hátt fer Viktor með okkur í gegnum sína reynslu. Hann byrjar mjög ungur að drekka í vinnunni í Vestmannaeyjum. Þaðan gerast hlutirnir mjög hratt og áður en hann veit af er hann algjörlega stjórnlaus, við það að…
more -
Þú fullkomnar mig - Árni Björn
Í dag heyrum við í honum Árna Birni. Árni Björn á tuttuga ára edrúgöngu. Hann starfaði og starfar enn í veitingabransanum. Árni Björn fer yfir það með okkur hvernig hann þróaði með sér alkóhólisma með því að reyna að fylla í lífsins holur með áfengi. Hann fer á afar áhrifaríkan hátt hvernig hann...
-
Venjulegt líf - Axel
Tuttugasti þáttur Skrauts Bakkusar ber nafnið venjulegt líf því gestur minn að þessu sinni fer yfir það með mér hversu dýrmætt það er að eignast venjulegt líf. Axel á langa edrúgöngu en það eru 34 ár síðan hann tók síðasta sopann. Axel hefur unnið mjög djúpt í sjálfum sér og kann AA fræðin mjög...
-
Hringborðið - Haukur & Pálmi
Nýr þáttur nýr vinkill. Ég fékk til mín góðkunninga þáttarins og við settumst niður við svokallað hringborð. Hringborðið er hugsað þannig að fleiri en tveir komi saman til þess að ræða alkóhólismann. Tilgangurinn er að fá inn umræður og þannig fengið ákveðna dýpt í málefni sem upp eru sett hverju...
-
Saga Bills (Seinni hluti)
Áfram höldum við að ræða sögu Bills, einn af stofnendum AA. Sagan er gríðarlega áhrifarík og lýsir sjúkdómnum afar vel. Bill fer yfir það í þessum þætti hvernig vinur hans færði honum lausnina og hvernig trúin á æðri mátt hjálpaði við það. Það verður strax mjög skýrt hversu mikilvæg tengingin við...
-
Saga Bills
Í dag vendum við kvæði okkar í kross og breytum aðeins út af vananum. Í stað þess að fá gest inn þessa vikuna ætlum við að prufa upplestur. Einn af oss les helming af fyrsta kafla AA bókarinnar sem heitir Saga Bills. Verðbréfamiðlarinn Bill er einn af stofnendum AA. Hann barðist í fyrri...
-
Andlegt mein - Ari Auðunn
Í dag fæ ég til mín magnaðan ungan dreng. Sjómaðurinn Ari Auðunn Jónsson fer með mér yfir sína sögu og fer það vel í gegnum hana með mér að á tímabili var ég kominn með honum inn í söguna. Ari er góður sögumaður og kemur inn á margt í sinni sögu sem er ótrúlega auðvelt að tengja við á einn eða...
-
Nýtt líf - Eymundur
Í dag spjalla ég við mann sem hefur reynst mér persónulega mjög vel í mínum bata. Eymundur Ingi Ragnarsson er alkóhólisti í góðum bata. Hann fer hér á afar einlægan hátt yfir sína sögu. Eymundur kemur inn á margt í spjallinu eins og hvers mikils virði það er að vera í góðum bata. Finna þessa...
-
Andleg vakning - Sr. Benjamín Hrafn
Í dag ræði ég við sr. Benjamín Hrafn Böðvarsson sóknarprest sr. Benjamín Hrafn fer með mér yfir sína sögu ásamt því að kafa með mér í 12 spora kerfið og ræða hans skilning og hans reynslu af því. Hann segir mér frá ferðalagi æskunar inn í erfiðleika unglingsárana og yfir í þá persónu sem sr....
-
Fallbrautin - Binni
Brynjólfur er einn af oss 🙏 Hann fer hér yfir það með mér hvernig alkinn þróaðist í persónu sem hann kunni ekki við. Smá saman fór hegðun hans að breytast og áður en hann vissi af var neyslan stjórnlaus með öllum einkennum sem henni fylgir. Hann byrjar líf í bata en það líf gekk ekki áfallalaust...
-
Þægilega dofinn - Grétar
Í dag ræði ég við Grétar Þorgeirsson Grétar á langa edrúgöngu sem er þyrnum stráð. Hann ræðir við mig á afar einlægan hátt um áföll sem bæði hafði áhrif á hans allkóhólisma og svo á hans bata. " Það er ekki hvernig ég er sleginn niður, heldur hvernig ég fer á fætur aftur" sagði hann um…
more -
Besta útgáfan af mér - Sandra
Í þessum þætti tala ég við hana Söndru Grétarsdóttir. Sandra kemur úr góðu umhverfi, umvafin góðu fólki og gegnur vel í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur. Þegar hún svo missir barnungan son sinn hrynur veröldin eins og hún þekkir hana. Ekkert foreldri á að þurfa að ganga í gegnum þannig missi...
-
Æskudraugar - Kristinn
Í dag heyrum við í Kristni Snjólfssyni, 28 ára Blöndósingi. Kristinn á sögu sem er áhrifarík. Hann gerði sér snemma grein fyrir því að hann væri í mikilli áhættu á því að verða alkóhólisti. Hann var ekki nema rétt yfir tvítugt þegar hann ákvað að leita hjálpar. Hann fer yfir það með okkur hvernig...
-
Sporatal - Haukur
Við tökum léttan hliðardans í dag Ég fæ til mín guðfaðir Skrauts Bakkusar hann Hauk Guðberg. Haukur var fyrsti gestur minn í þessu hlaðvarpi og hefur alltaf verið sérlegur ráðgjafi minn í þessum málefnum. Þar sem aðstæður voru þannig að ég lá í covid rétt áður en ég fór til Barcelona í vikunni þá...
-
Máttur fyrirgefningarinnar - Ingibergur
Gestur minn í þessum áttunda þætti heitir Ingibergur Þór Eins og með marga af mínum gestum hef ég tengingu við Ingiberg því við ólumst upp í sömu götu. Saga hans er átakanleg og lýsir alkóhólismanum og skuggum hans ótrúlega vel. Sorg og hatur er þráður í gegnum söguna en svo tekur við máttur...
-
Spegill samfélagsins - Einar Áskels
Viðmælandi vikunnar er Akureyringurinn Einar Áskelsson. Hann segir hér sögu af ungum og efnilegum íþróttamanni sem villtist af leið. Einar þótti efnilegur í fótbolta, handbolta og körfubolta áður en Bakkus konungur kom í heimsókn. Hann fer hér á einlægan og opinn hátt yfir bardagann við...
-
Litla ég - Gerða
Í dag spjalla ég við hana Gerðu. Gerða átti 23 ára edrúafmæli á dögunum. 23 ár laus frá því fangelsi sem Bakkus konungur hélt henni í. Hún fer yfir sína mögnuðu sögu með okkur, frá neyslunni, í stjórnleysið og vanmáttinn. Hvernig sporakerfið hjálpaði henni. Hvernig hún fann sátt með sínum…
more -
Hugarstríð - Pálmi
Í þessum fimmta þætti spjalla ég við sjóarann síkáta frá Djúpavogi, hann Pálma Fannar Smárason. Pálmi segir okkur frá sinni baráttu og fer á einlægan hátt yfir það hvernig hann þróaði sinn alka. Hann fer fer yfir sitt hugarstríð og hvernig hann áttaði sig á stöðunni áður en hann svo fór í…
more -
Þunglyndið, botninn og upprisan - Einar Dagbjarts
Í þessum fjórða þætti kynnumst við honum Einari Dagbjartsyni flugstjóra. Einar er afskaplega skemmtilegur náungi. Í afar einlægu og heiðarlegu spjalli fer hann yfir baráttuna við alkóhólismann, þunglyndið i sem dró hann niður í myrkrið svarta og svo upprisuna og þá rækt sem hann leggur í batann í...
-
Alkóhólisminn fer ekki í manngreinarálit - Snjólfur
Í þessum þætti fæ ég gest til mín sem hefur lifað tímana tvenna. Snjólfur Gunnlaugsson hefur barist við sjúkdóminn nánast allt sitt líf.. Hann hefur magnaða sögu að segja um það hvernig alkóhólisminn elti hann frá sveitinni fyrir austan, í skólann norður á Akureyri, á sjóinn alla leið í Hull og...
-
Að starfa með öðrum - Haukur
Í þessum öðrum þætti spjalla ég við fyrsta viðmælenda Skrauts Bakkusar. Það kom aldrei neinn annar til greina en Haukur í þetta fyrsta spjall. Haukur Guðberg Einarsson byrjaði ungur að drekka og má segja að hann hafi drukkið fótboltadrauminn frá sér. Hann spilað landsleik með yngri landsliði…
more -
Sagan mín - Óli Stefán
Í þessum fyrsta þætti kynni ég inn hvað það er sem ég er að gera með þessu verkefni mínu. Ég fer yfir söguna mína og dreg fram í dagsljósið fortíðardraugana og þá leið sem þeir fóru með mig á. Af hverju er mikilvægt að horfast í augu við draugana þegar við ætlum okkur að fara skrefin í átt að…
more
About this show
Hugsunin á bak við þetta hlaðvarp ( Podcast ) er að ræða alkóhólismann og öllum þeim ólíku vinklum sem honum tengist. Sjálfur er ég alkóhólisti sem tók minn síðasta drykk árið 2009. Ég er alls ekki sérfræðingur um sjúkdóminn en ég þekki af eigin reynslu hversu öflugur og lævís þessi sjúkdómur er. Af þessari reynslu hef ég lært að þekkja muninn á góðum bata og slæmum bata. Í þessum þáttum sest ég niður með sjálfum mér og öðrum, spjalla um sjúkdóminn og allt það sem honum fylgir. Stóra markmiðið er að aðrir alkóhólistar/fíklar og aðstandendur finni hér einhverja tengingu sem gæti hjálpað.
Hosted by
Óli Stefán