Skuggavaldið podcast artwork

PODCAST · society

Skuggavaldið

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu.Framleitt af Tal.

  1. 44

    #44 - Útskiptin miklu - fyrri þáttur

    Standa íslamistar í Miðausturlöndum að því að skipta út kristnu fólki í Evrópu fyrir múslima? Jafnvel með aðstoð evrópskrar elítu? Þessi ótti er kjarninn í samsæriskenningunni um Evrarabíu og „útskiptin miklu“ (The Great Replacement). Í fyrri þætti af tveimur rekja Eiríkur og Hulda tilurð sögunnar og kryfja hvernig slíkar samsæriskenningar færðust af myrkum jaðri internetsins og urðu að hversdagslegu stjórnmálavopni. Rætt er um Le Pen í Frakklandi og Glistrup í Danmörku og rýnt í það hvernig útskúfuð kynþáttahyggja fór í spariföt og sneri aftur sem „kynþáttafjölhyggja“ til að gera hræðsluáróður boðlegan á ný. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] 

  2. 43

    #43 - Tuskegee-rannsóknin: Þegar svart fólk var blekkt til dauða í nafni vísinda

    Var svart fólk dregið til dauða í nafni vísindanna? Árið 1932 bauð bandaríska ríkið fátækum, svörtum bændum ókeypis „lækningu“ við „slæmu blóði“ sem varð upphafið að fjörutíu ára martröð. Hulda og Eiríkur rekja sögu Tuskegee-rannsóknarinnar, þar sem læknar meinuðu mönnum vísvitandi um lífsbjargandi lyf við sárasótt. Við kryfjum þetta raunverulega samsæri yfirvalda, mál sem skapaði djúpstætt vantraust og elur enn þann dag í dag á nýjum samsæriskenningum. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] 

  3. 42

    #42 - Fljúgandi furðuhlutir - seinni þáttur

    Gangast ráðamenn nú við torkennilegum fyrirbærum í háloftunum? Í síðari þætti um fljúgandi furður rýna Hulda og Eiríkur í hvernig yfirvöld hafa færst frá því að mæta öllum tilkynningum með afneitun - sem einmitt kynti undir langsóttum samsæriskenningum um að stjórnvöld leyni heimsókn geimvera - yfir í að viðurkenna nú takmarkaða þekkingu sína á ýmsu því sem örðugt er að greina. Það þýðir þó ekki að menn trúi nú á tilvist geimvera en samsæriskenningar nærast einmitt á slíkri óvissu, líkt og rakið er í þættinum. Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

  4. 41

    #41 - Geimverur fyrri þáttur

    Leyna yfirvōld fljúgandi furðuhlutum frá fjarlægum hnöttum? Hulda og Eiríkur rekja sögu frásagna af fljúgandi furðuhlutum, afvegaleiðingu slíkra frásagna og til þess að bandarísk stjórnvöld viðurkenna nú að ekki sé hægt að útskýra allt sem sést hefur á himni. Sjónum er beint að því hvernig ríkið nýtti Robertson-nefndina á 6. áratugnum til að gera umræðuna „hallærislega“ og hvernig dularfull starfsemi í Area 51 í Nevada kynti enn frekar undir grunsemdum. Loks er rifjað upp þegar hópur Íslendinga beið eftir geimverum á Snæfellsjökli árið 1993. Með því að flétta saman stjórnmálasögu og sálfræði er leitað svara við því hvers vegna þessi fyrirbæri eru loks tekin alvarlega eftir áratugi af þöggun og háði.  Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] 

  5. 40

    #40 - Neró: Harðstjóri eða fórnarlamb slaufunarmenningar?

    Spilaði Neró fiðlu á meðan Róm brann? Við kryfjum mýtur um móðurmorð, brennuna miklu og hvernig nafn keisarans varð að hinu dularfulla dulmáli 666. Var hann andkristur sjálfur eða fórnarlamb ríkisstyrktrar ófrægingarherferðar? Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

  6. 39

    #39 - Loftárás, listaverkarán og sprengjugerð á tímum átakanna á Norður-Írlandi: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, seinni hluti

    Hvernig knúði kúgun Breta á Norður-Írlandi enska yfirstéttarkonu til þess að leggja frá sér tebollann og stökkva ofan í skotgrafir ÍRA? Í þessum síðari þætti af tveimur um Rose Dugdale ræða Eiríkur og Hulda um aðgerðirnar sem fleyttu Rose í fremstu víglínu átakanna. Við fylgjumst með henni ræna þyrlu til að gera loftárás á lögreglustöð, skipuleggja stærsta listaverkarán Írlandssögunnar til að knýja fram pólitískar kröfur og hanna mannskæð vopn á borð við hina furðulegu en banvænu „Kex-vörpu“. Um leið er varpað ljósi á The Troubles, hin blóðugu og mannskæðu átök sem skóku Norður-Írland og Bretlandseyjar á síðustu öld. Skuggavaldið er í samstarfi við  bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghúsog veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

  7. 38

    #38 - Frá höllum drottningar til skotgrafa ÍRA: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, fyrri hluti

    Hvað fær enska hefðarmey til að snúa baki við uppruna sínum og gerast skæruliði ÍRA? Rose Dugdale ólst upp í bresku yfirstéttinni, en andúð á stéttakerfinu og arðráni nýlendustefnunnar dró hana inn í blóðug átök á Norður-Írlandi. Eftir hrylling Blóðuga sunnudagsins árið 1972 rauf hún öll tengsl við fjölskyldu sína og valdi vopnaða byltingu. Í þessum fyrri þætti rekja Eiríkur og Hulda ótrúlega sögu yfirstéttarstúlkunnar sem gerðist hryðjuverkamaður, og varpa um leið ljósi á hin mannskæðu átök á Norður-Írlandi á síðustu öld sem þekkt eru sem The Troubles. Skuggavaldið er í samstarfi við, bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

  8. 37

    #37 - Sölumaður óttans: Alex Jones

    Hvernig fór Alex Jones að því að græða milljarða á samsæriskenningum? Í þessum þætti Skuggavaldsins rekja Hulda og Eiríkur þróun upplýsingahernaðar í samtímanum og rýna í feril sölumanns óttans“ sem vopnavæddi upplýsingaóreiðu og ruddi brautina fyrir nýja tegund popúlismans. Við skoðum „viðskiptamódel óttans“ þar sem bætiefni og neyðarbúnaður eru seld sem vörn gegn samsærum ríkisins, og ræðum Sandy Hook-harmleikinn þar sem siðlaust leikhús mætti raunverulegum sársauka og sögulegum skaðabótakröfum. Fjallað er um hlutverk Jones sem „ísbrjóts“ fyrir jaðarhugmyndir sem rata inn í almannarýmið og hvort kakkalakki upplýsingahernaðarins sé í raun fallinn eða einfaldlega mættur á nýjan vettvang. Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veitingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

  9. 36

    #36 - Rothschild-goðsögnin – stóra skrímslið í huga samsæriskenningasmiða

    Ætlar Rothschild-ættin að sölsa allan heiminn undir sig? Í þessum síðari þætti af tveimur um hina frægu Rothschild-fjölskyldu skoða Eiríkur og Hulda hvernig ættin varð að holdgervingi hins illa og talin stjórna bandaríska seðlabankanum, sitja á toppi Illuminati-píramídans og stýra hinni Nýju heimsskipan. Undanfarin ár hafa sögurnar orðið enn fáránlegri og ættin hefur verið sökuð um að eiga einkaleyfi á Covid-19 og stjórna skógareldum með geimleiserum. Þá er blákaldur veruleikinn sá að þessi gamla evrópska bankaætt á ekki roð í risa á borð við BlackRock og Elon Musk. Skuggavaldið er í samstarfi við Öskju, Borg brugghús og veiðibúðina Vesturröst. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

  10. 35

    #35 - Rothschild-fjölskyldan — raunveruleikinn á bak við goðsögnina

    Stýrir Rothschild-fjölskyldan seðlabönkum og styrjöldum? Eiríkur og Hulda ræða eitt stærsta nafnið í heimi samsæriskenninga: Rothschild-ættina. Sögur segja að fjölskyldan eigi helming auðæfa jarðar og fjármagni báðar hliðar í styrjöldum. En hver er raunveruleikinn? Í þessum þætti ferðumst við aftur til ársins 1760, skoðum hvernig ættin breiddi úr sér í fjármálalífi Evrópu og kryfjum hina lífseigu mýtu um orrustuna við Waterloo. Í þessum fyrri þætti af tveimur er kafað ofan í hina raunverulegu sögu fjölskyldunnar, en goðsagnirnar og samsæriskenningarnar verða teknar fyrir í þeim næsta. Skuggavaldið er í samstarfi við Borg brugghús og veiðibúðina Vesturröst. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

  11. 34

    #34 - Leyndardómar flugvallarins í Denver

    Er heil hulduborg undir Denver-flugvelli, einskonar dómsdagsbyrgi, sem hýsa mun heimselítuna á efsta degi? Eiríkur og Hulda fjalla um hlaðborð samsæriskenninga tengdar flugvallarbyggingunni og hvernig stjórnendur hans sneru vörn í sókn og nýttu brjálæðislegar sögusagnirnar sér til framdráttar í stað þess að þagga niður í þeim. Sagt er frá því hvernig byggingaskilti um „felustað eðlufólksins“ og talandi ufsagrýlur urðu svar við þrálátum orðrómi um dómsdagsbyrgi og leynigöng. Einnig er kafað ofan í jarðveginn sem þessar sögur spruttu úr: Allt frá stjarnfræðilegri framúrkeyrslu og biluðu farangurskerfi til bláa hestsins „Blucifer“ og apokalyptískra veggmynda sem sumir þykja boða nýja heimsskipan.

  12. 33

    #33 - Havana-heilkennið, seinni þáttur

    Var háleynilegu hljóðvopni beitt gegn útsendurum Bandaríkjastjórnar á Kúbu? Í síðari þætti Skuggavaldsins um Havana-heilkennið rekjum við hvernig dularfull veikindi fóru að greinast um allan heim. Hulda og Eiríkur rýna í kenningar um örbylgjuárásir og rússnesk leynivopn sem standast illa skoðun, en skoðum líka hljóðvopn sem reyndust stundum vera tístandi krybbur. Gæti skýringin verið geðræn hópsýkingu þar sem streita og óvissa framkalla raunverulegan sársauka? Rýnt er í frásögn fórnarlamba sem hafa misst heilsu og starf sitt og nýjar skýrslur sem draga árásar-kenninguna í efa og hvernig klaufaleg viðbrögð stjórnkerfisins urðu að frjósömum jarðvegi fyrir samsæriskenningar. Skuggavaldið er í samstarfi við veiðibúðina Vesturröst. Ábendingar sendist á [email protected]

  13. 32

    #32 - Havana heilkennið – fyrri þáttur

    Beittu stjórnvöld á Kúbu, eða jafnvel í Rússlandi, leynilegu hátæknivopni til að slá bandaríska sendimenn í Havana út af laginu? Óútskýrð veikindi bandarískra diplómata seint á árinu 2016 urðu upphaf að einni undarlegustu og umdeildustu pólitísku ráðgátu samtímans. Eiríkur og Hulda rekja hér sögu hins svokallaða Havana-heilkennis í sögulegu, pólitísku og sálfræðilegu samhengi allt frá byltingu Castros og áratugalangri tortryggni, í gegnum varfærna þíðuna í tíð Obama, og til hins snögglega afturhvarfs þegar Trump tók við völdum.

  14. 31

    #31 - Er jólasveinninn til?

    Er sagan um jólasveininn eitt útbreiddasta samsæri mannkynssögunnar? Eða er samsæriskenningin kannski sú að afneita tilvist hans? Í þessum sérstaka jólaþætti Skuggavaldsins rekja Eiríkur og Hulda sögu jólasveinsins frá leyndardómsfullu ráni á beinum heilags Nikulásar til mótunar hinnar bandarísku Santa Claus-ímyndar. Sérstök athygli er veitt íslensku jólasveinunum, sem gætu allt eins verið álitnir skipulagður glæpahringur þar sem hver sveinn gegnir sérhæfðu hlutverki í markvissum matarránsferðum undir stjórn Grýlu. Við veltum fyrir okkur sálfræðinni á bak við „stóru lygina“ – ef hún er þá lygi – og spyrjum hvort við höfum vanmetið getu fullorðinna til að sammælast um blekkingu, en þátturinn tekur óvænta stefnu þegar sjálfur Gáttaþefur ryðst inn í stúdíóið til að verja heiður sinn.   Skuggavaldið er í samstarfi við Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró Sendið okkur ábendingar á [email protected]

  15. 30

    #30 - Hver felldi tvíburaturnana? — árásirnar 11. september 2001, síðari hluti

    Vissi Bandaríkjastjórn af árásunum 11. september og lét þær gerast – eða átti jafnvel sjálf hlut að máli? Í seinni þætti Skuggavaldsins um hryðjuverkin rýna Hulda og Eiríkur í lífseigar kenningar um aðkomu innlendra aðila, pólitíska eftirmála og mistök bandaríska kerfisins, auk hins umdeilda Sádi-Arabíu-vinkils. Þau fara yfir ný gögn, málaferli aðstandenda og hvernig óvissa og vantraust urðu frjósamur jarðvegur fyrir langlífar samsæriskenningar.   Skuggavaldið er í samtarfi við veiðibúðina Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró.   Ábendingar sendist í [email protected]

  16. 29

    #29 - Fall tvíburaturnanna — árásirnar 11. september 2001 fyrri hluti

    Voru Tvíburaturnarnir felldir í stýrðu niðurrifi? Í þessum þætti rýnir Skuggavaldið í lífseigustu samsæriskenningar um 11. september: að stjórnvöld hafi komið að sprengingu turnanna og síðar byggingar 7, og að á Pentagon hafi ekki lent farþegaþota heldur flugskeyti. Eiríkur og Hulda skoða af hverju slíkar hugmyndir lifa áfram, þrátt fyrir að bæði hrun bygginganna og árásina á Pentagon megi skýra án slíkra innri leyniaðgerða.   Skuggavaldið er í samtarfi við veiðibúðina Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró. Ábendingar sendist í [email protected]

  17. 28

    #28 - Úkraína og innrásin – vopnvæðing samsæriskenninga í Rússlandi

    Var Úkraína í raun nasistaríki og peð Vesturlanda sem ógnaði Rússlandi? Eiríkur og Hulda rýna í það hvernig rússnesk stjórnvöld byggðu upp kerfisbundna frásögn þar sem nágrannalandið var málað sem leppur siðspilltra vestrænna afla – „nasistaríki“ sem þyrfti að „hreinsa“ – á sama tíma og sjálfstæði þess var afneitað sem tilbúnningi. Þau rekja uppruna og þróun þessarar samsærisorðræðu, sýna hvernig hún varð að hugmyndafræðilegu vopni og forspili innrásarinnar, og greina jafnframt hvernig gagnkvæm tortryggni og andúð Vesturlanda og Rússlands í Kalda stríðinu varð að frjókorni óttans og auðveldaði dreifingu slíkra sagna.   Skuggavaldið er í samstarfi við Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró Sendið ábendingar á [email protected]

  18. 27

    #27 - Pussy Riot og Navalny – vopnvæðing samsæriskenninga í Rússlandi

    Voru meðlimir Pussy Riot og andófsmaðurinn Alexei Navalny í raun útsendarar vestrænna óvina Rússlands? Eiríkur og Hulda kafa ofan í rússneska samsærisheiminn – þar sem list, trú og pólitík fléttast saman í eitruðum kokteil. Þau rekja söguna af pönkbæn Pussy Riot í dómkirkju Moskvu, réttarsalnum, fangelsunum og flóttanum til Íslands. Þau ræða einnig um Alexei Navalny, eitrunina, fangelsun hans og andlátið í haldi Kremlarvaldsins. Fyrst og fremst fara þau yfir það hvernig gagnrýni á rússnesk stjórnvöld er snúið uppí frásögn um landráð og svik, hvernig öllu snúið upp í að vera hluti af hinu stóra samsæri Vesturlanda gegn Rússlandi.    Skuggavaldið er í samtarfi við veiðibúðina Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró. Ábendingar sendist í [email protected]

  19. 26

    #26 - Er jörðin flöt? — upptaka á Vísindavōku

    Hvernig fékk hugmyndin um að jörðn væri flöt nýtt líf á netinu? Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann rekja söguna frá sönnunum forn-Grikkja um hnattlögun jarðar til sprellifandi samsærissamfélags síðasta áratugar. Við kynnumst Rowbotham og viktoríönsku Zetetic-samfélagi, förum yfir tilraunir Mad Mike til þess að skjóta sér á loft, hlutverk YouTube algrímsins, ráðstefnur og kannanir sem sýna lítinn merkilega stóran hóp efasemdafólks. Skemmti- og fræðsluferð inn í furðulegan afkima samtímans þar sem traust, vísindi og samsæriskenningar togast á.   Kostendur Skuggavaldsins eru Vesturröst veiðiverslun  og Plantan kaffihús og bistro.  Sendið ábendingar á [email protected]

  20. 25

    #25 - Dramatísk lausn Julian Assange, seinni hluti viðtals við Kristinn Hrafnsson – WikiLeaks, fjórði þáttur

    Var dramatísk lausn Julian Assange sigur réttlætisins – eða kaldur hráskinnaleikur stórveldanna? Í fjórða og síðasta þætti syrpunnar um WikiLeaks segir Kristinn Hrafnsson frá leynilegum samningaviðræðum sem leiddu til þess að Assange var loksins leystur úr haldi eftir fimmtán ár. Eiríkur og Hulda ræða við hann um æsilegan lokasprettinn, alþjóðlega diplómatíu og hvernig baráttan fyrir frelsi uppljóstrara hélt áfram til síðasta dags – og leggja að lokum mat á þetta heimssögulega mál.

  21. 24

    #24 - Viðtal við Kristinn Hrafnsson fyrri hluti – WikiLeaks, þriðji þáttur

    Hvernig endaði íslenskur fréttamaður í miðju stærsta tjáningarfrelsismáls samtímans? Í þessum þætti segir Kristinn Hrafnsson frá fyrstu kynnum sínum af Julian Assange, dramatískum uppljóstrunum Wikileaks og því þegar stórveldin fóru að sýna klærnar. Skuggvaldið er í samstarfi við Vesturröst og Plöntuna Bístro og kaffihús.  Skuggavaldið verður á Vísindavöku RANNÍS í Laugardalshöll þ. 27. september 2025 kl 15:40.  Sendið okkur línu á [email protected]

  22. 23

    #23 - Julian Assange og andsvar stórveldanna – WikiLeaks, annar þáttur

    Var Julian Assange á mála hjá Rússum eða jafnvel CIA? Sameinuðust leyniþjónustur heims kannski öllu heldur í því að þagga niður í honum? Hulda og Eiríkur rekja hvernig hetjan sem afhjúpaði stríðsglæpi í Írak breyttist í lýjandi gest sem enginn vildi. Þau fara yfir hið meinta kynferðisbrotamál í Svíþjóð, árin í sendiráði Ekvador og allt til reyfarakenndrar atburðarrásar þegar Assange fékk loks frelsi í júní 2024. Í þættinum er fjallað um það hvernig stórveldi beita sér frá ófrægingu til fangelsunar til að ná böndum á þeim sem ógna þeim. Skuggvaldið er í samstarfi við Plöntuna Bístro og kaffihús, Atlantsolíu og Vesturröst.  Skuggavaldið verður á Vísindavöku RANNÍS í Laugardalshöll þ. 26. september 2025.  Sendið okkur línu á [email protected]

  23. 22

    #22 - Reykjavík miðstöð uppljóstrunar aldarinnar – WikiLeaks, fyrsti þáttur

    Hristi hópur hakkara við Grettisgötu stoðir mesta stórveldis heims svo mjög að það óttaðist um eigið vald? Í fyrsta þætti af fjögurra hluta syrpu Skuggavaldsins um WikiLeaks og Julian Assange kafa Eiríkur og Hulda ofan í söguna af því þegar Reykjavík, í miðri efnahagskreppu, varð óvænt miðstöð stærstu uppljóstrunar 21. aldar. Frá Kaupþingslekannum til Collateral Murder – þetta er sagan af því þegar litla Ísland breyttist í aðgerðamiðstöð sem skók alþjóðleg valdakerfi í grunninn.   Skuggvaldið er í samstarfi við Vesturröst og Atlantsolíu Skuggvaldið verður á Vísindavöku RANNÍS í Laugardalshöll 27. septmeber Sendið okkur ábendingar og tillögur í [email protected]

  24. 21

    #21 - Verstu fyrirtæki í heimi

    Eru kenningar um samsæri tóbaksframleiðenda tóm tjara? Eða eru þetta kannski verstu fyrirtæki í heimi? Eiríkur og Hulda fjalla nú í fyrsta sinn um raunverulegt samsæri sem hefur verið afhjúpað og staðfest fyrir dómi. Í áratugi beittu stærstu tóbaksfyrirtæki heims kerfisbundnum blekkingum; þau markaðssettu tóbak til barna, hönnuðu ávanabindandi sígarettur og keyptu sér vísindamenn. Þetta er sagan af því hvernig reykurinn huldi sannleikann og hvernig sömu aðferðum er áfram beitt í nútímanum til að villa um fyrir fólki. Skuggvaldið er í samstarfi við Atlantsolíu og Vesturröst. Skuggavaldið verður á Vísindavöku RANNÍS í Laugardalshöll þ. 26. september 2025. Sendið okkur línu á [email protected]

  25. 20

    #20 - Wind of change - seinni þáttur

    Voru listamenn gerðir að leynivopni í kalda stríðinu? Eiríkur og Hulda kryfja sögulegar staðreyndir um það hvernig vestrænar leyniþjónustur beittu bæði bókmenntum og tónlist sem vopni í kalda stríðinu. Þau rekja hvernig vestrænar leyniþjónustur stóðu að útgáfu bannaðra skáldsagna, fjármögunuði tímarit í leyni og sendu djassgoðsagnir austur fyrir járntjaldið - og spyrja svo: Gæti Wind of Change með vesturþýsku hljómsveitinni Scorpions hafa verið hluti af slíkri herferð? Hvenær verður lag meira en lag – og hvenær fer það að hreyfa við heilu heimsveldi?

  26. 19

    #19 - Wind of change - fyrri Þáttur

    Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Hulda og Eiríkur rekja ótrúlega sögu samsæriskenningarinnar um að vestrænar leyniþjónustur hafi samið lagið Wind of Change með þýsku stálsveitinni Scorpions sem vopn í hugmyndabaráttu kalda stríðsins. Þau leiða hlustendur frá risatónleikum í Moskvu 1989 og töfrastund við Moskvuána, inn í heim njósna, rokkstjarna og hvísls manna á milli í leyniþjónustunni. Nýjasti þátturinn af Skuggavaldinu er aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Sendu okkur línu á [email protected]. Skuggavaldið er í samstarfi við Vesturröst og Atlantsolíu.

  27. 18

    #18 - Efnaslóðar; að flugvélar drefi eiturefnum – seinni þáttur

    Í nýlegum þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið köfuðu prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann ofan í samsæriskenninguna um að stjórnvöld séu í leyni að úða eitruðum efnum yfir almenning úr flugvélum. Þó að þessi tiltekna kenning eigi sér enga vísindalega stoð, þá sprettur hún ekki alveg upp úr engu. Grunsemdirnar eiga sér nefnilega raunverulega og ansi uggvekjandi forsögu Ábendingar og athugasemdir sendist í [email protected]

  28. 17

    #17 - Efnaslóðar; að flugvélar dreifi eiturefnum – fyrri þáttur

    Eru hvítu rákirnar sem fylgja þotum á himni í raun eiturefni, vísvitandi úðað yfir fólkið til að hafa áhrif á hegðun þess? Í þessum fyrri af tveimur þáttum Skuggavaldsins um svonefnda efnaslóða — eða chemtrails — kafa Hulda og Eiríkur ofan í uppruna samsæriskenningarinnar og skoða hvernig raunveruleg vísindaverkefni á borð við HAARP og tilraunir til veðurstýringar hafa lagt frjóan jarðveg fyrir vantraust og tortryggni sem halda kenningunni á lífi. Nýjasti þátturinn af Skuggavaldinu er kominn í loftið — bókstaflega — og aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Áttu dularfullan leyndardóm sem þú vilt að við kryfjum? Sendu okkur línu á [email protected]. Skuggavaldið er í samstarfi við Vesturröst og Atlantsolíu.

  29. 16

    #16 - Andlát Marilyn Monroe

    Myrti mafían Marilyn Monroe? Eða stóðu Kennedy-bræður kannski að andláti hennar? Hulda og Eiríkur kafa ofan í flókið net samsæriskenninga um dularfullan dauða frægustu kvikmyndastjörnu heims. Mafían, CIA, Kennedy-bræður, ástir, losti, fíkn og svik fléttast saman í víðfeman sagnavef.   Ábendingar og athugasemdir sendist í [email protected]

  30. 15

    #15 - Illuminati goðsögnin – seinni þáttur

    Var franska byltingin í raun sprottin af þýskri leynireglu? Eiga Rockefellerar, Rothschildar og rapparinn Jay-Z það sameiginlegt að vilja koma á fót nýrri heimsskipan? Og hvernig varð tákn sem eitt sinn stóð fyrir visku og skynsemi að tákni alræðislegs skuggavalds í popptónlist og pólitík? Í síðari þætti af tveimur um goðsögnina um Illuminati rýna Eiríkur og Hulda í þrálátar samsæriskenningar tengdar bræðrareglunni úr Bæjaralandi – frá hógværum og hugmyndafræðilegum uppruna hennar árið 1776 til grunsemda um hnattrænt valdakerfi sem á að stjórna öllu frá heimsstyrjöldum til sviðsetningar í tónlistarmyndböndum.

  31. 14

    #14 - Illuminati leynireglan – fyrri þáttur

    Stýrir Illuminati bræðrareglan frá Bæjaralandi heimsviðburðum – allt frá frönsku byltingunni til Kardashian-fjölskyldunnar? Í þessum fyrri af tveimur þáttum um Illuminati kafa Eiríkur og Hulda í sögulegan uppruna leynifélagsins sem síðar varð að alþjóðlegri goðsögn um ósýnilegt vald. Þau rekja hvernig smáhópur hugsuða í Bæjaralandi árið 1776 breyttist í myrka ímynd alheimsstjórnar og greina gagnrýnið hvernig tákn, tónlistarmyndbönd og valdakenningar hafa verið samtvinnuð æsilegum sögum um leynd og yfirráð. Af hverju lifir goðsögnin um Illuminati áfram – og hvað segir það um samtímann? 

  32. 13

    #13 - Kennedy bölvunin - þriðji þáttur

    Létu valdaöfl í Repúblíkanaflokknum myrða Robert F. Kennedy Sr til að koma í veg fyrir að Kennedy-fjölskyldan snéri aftur á forsetastól? Í lokaþætti þríleiks Skuggavaldsins um Kennedy-bölvunina skoða Hulda og Eiríkur morðið á Robert F. Kennedy og flétta saman heillandi fjölskyldusögu, samsæriskenningar og bandaríska ofbeldissögu – allt fram til dagsins í dag þar sem sonur hans, RFK Jr., einn áhrifamesti talsmaður samsæriskenninga í heimi, situr sem heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna. Þátturinn tengir harmleik, stjórnmál og sálfræði í átakanlega og stundum óvænta frásögn.

  33. 12

    #12 - Kennedy bölvunin - annar þáttur

    Leyndu bandarísk stjórnvöld upplýsingum um raunverulegan morðingja John F. Kennedy? Í öðrum þætti þríleiks um Kennedy-bölvunina kafa Eiríkur og Hulda ofan í sígildar samsæriskenningar um að valdastofnanir Bandaríkjanna – þar á meðal leyniþjónustan – hafi annað hvort komið að morðinu á John F. Kennedy eða vitað meira en þær létu uppi. Fjallað er um eftirmála morðsins, skoðað hvaða mann Lee Harvey Oswald hafði að geyma og helstu samsæriskenningar vegnar og metnar með gagnrýnum augum.

  34. 11

    #11 - Kennedy bölvunin - fyrsti þáttur

    Myrti mafían John F. Kennedy? Eða CIA ? Stóð Castro á Kúbu kannski á bak við morðið? Hverjir höfðu mest að græða á því að þagga niður í forsetanum sem ætlaði að umbylta bandarísku valdi? Í þessum fyrsta af þremur þáttum um Kennedy-fjölskylduna er rýnt í morðið á JFK og farið ofan í söguna sem gerði þau að „konungsfjölskyldu“ Bandaríkjanna – veldi sem virtist dæmt til glæsileika en líka óhjákvæmilegra hörmunga.

  35. 10

    #10 - Trump samsæriskenningar 2.0

    Snúinn aftur á forsetastól í BNA hefur Trump lyft samsæriskenningum upp í hæstu hæðir valdsins. Í þættinum fjalla Eiríkur og Hulda um hvernig Trump hefur breytt samsærisórum í opinbera stjórnarstefnu – með ráðherrum sem trúa á kosningasvindl, bóluefnasvindl og hina svokölluðu „Great Replacement“-kenningu, sem segir að innflytjendur séu markvisst notaðir til að veikja „hina raunverulegu Bandaríkjamenn“. Þátturinn fjallar einnig um hvernig samsæriskenningar spruttu upp eins og illgresi í kjölfar banatilræðisins gegn Trump og hvernig hann hefur hert tök sín á valdinu með því að náða öfgahópa og refsa pólitískum óvinum. Að lokum er spurt: Hefur popúlisminn sigrað? Er þetta nýtt stórveldi – byggt á samsæriskenningum og hefndarþorsta?

  36. 9

    #9 - Trump samsæriskenningar 1.0

    Gróf djúpríkið í Bandaríkjunum undan árangri Donalds Trumps á fyrri forsetatíð hans? Eitt helsta sérkenni Trumps sem stjórnmálamanns er hvernig hann hefur gert samsæriskenningar að lykilvopni í baráttu sinni – ekki bara til að grafa undan andstæðingum sínum, heldur einnig til að styrkja eigin stöðu. Í þessum þætti kryfja Eiríkur og Hulda samsærisstjórnmál Trumps og sýna hvernig samsæriskenningar urðu ekki aðeins hluti af orðræðu hans, heldur sjálfur grunnurinn að forsetatíð hans. Var „djúpríkið“ raunverulegt ógn við forsetann – eða var það Trump sjálfur sem skapaði óvini úr engu? Þættirnir eru í boði Vesturröst og Ikea, framleiddir af Tal.

  37. 8

    #8 - Dauði Kurt Cobain

    Stóð Courtney Love, eiginkona Kurt Cobain, forsöngvara hinnar íkonísku grunge hljómsveitar, Nirvana, að baki dauða hans árið 1994 vegna öfundar og erfðamála? Eða komu yfirvöld honum kannski fyrir kattarnef til að koma í veg fyrir slæm áhrif hans á æsku landsins? Í þættinum fjalla Eiríkur og Hulda um samsæriskenningarnar tengdar andláti Kurt Cobain en þær eru eins spegilmyndir í myrkri, þar sem harmræn persónusaga Cobain blandast ógnvekjandi frásögnum af vafasömum atvikum og óræðum vísbendingum

  38. 7

    #7 - Ný heimsskipan part 2

    Stýrir leynileg valdaelíta alþjóðstofnunum á borð við ESB og SÞ á bak við tjöldin? Stóð hún kannski að baki bæði fyrri heimsstyrjöld og uppgangi nasismans til að skapa ringulreið og koma á alræði á heimsvísu? Í seinni þætti af tveimur um nýja heimsskipan ræða Hulda og Eiríkur þessa margbrotnu samsæriskenningu.

  39. 6

    #6 - Ný heimsskipan part 1

    Stýrir leynileg valdaelíta heiminum? Mun hún hneppa veröldina í ánauð? Í þættinum leiða Hulda og Eiríkur hlustendur í gegnum sögu og einkenni hinnar frægu samsæriskenningar um Nýja heimsskipan (e. New World Order). Samkvæmt kenningunni hefur leynileg valdaelíta, oft nefnd „heimselítan,“ það að markmiði að koma á alræðisstjórn og hneppa heimsbyggðina undir alræði fárra útvalinna.

  40. 5

    #5 - Qanon samsæriskenningin part 2

    Stal djúpríkið í Bandaríkjunum forsetakjörinu úr réttkjörnum höndum Donalds Trumps árið 2020? Lágu djöfladýrkandi barnaníðingar í elítu Demókrataflokksins þar undir steini? Í síðari þætti um QAnon rekja þau Eiríkur og Hulda atburðina þann 6. janúar 2021 þegar stuðningsfólk Donalds Trumps, mörg hver keyrð áfram af trú sinni á QAnon samsæriskenninguna, ruddust inní þinghúsið í vanburðugri valdaránstilraun. Árásin á þinghúsið er skýrt dæmi um það hvernig samræmiskenningar geta leitt til upplausnar og átaka í samfélögum samtímans.

  41. 4

    #4 - Qanon samsæriskenningin part 1

    Stjórna djöfladýrkandi barnaníðingar Bandaríkjunum undir niðri? Er Donald Trump eina vörnin gegn illvirkjunum? QAnon-samsæriskenningin sem heldur slíku fram hófst sem pískur í myrkustu kimum Internetsins en þróaðist á ótrúlega skömmum tíma í hreyfingu sem átti þátt í einum afdrifaríkasta atburði í sögu Bandaríkjanna – árásinni á þinghúsið þann 6. janúar 2021. Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið kryfja prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann forsöguna að þessari ótrúlegu hreyfingu og skoða hvernig hún náði að breiðast út frá undirheimum netmiðlanna til raunverulegra atburða.

  42. 3

    #3 - Dauði Díönu part 2

    Bar Díana prinsessa barn Dodi Al-Fayed undir belti þegar hún dó í bílslysinu í París? Skipulagði breska krúnan dauða Díönu til að koma í veg fyrir að fá múslima inn í konungsfjölskylduna? Í seinni þætti um dauða Díönu ræða Eiríkur og Hulda um örlagaríka atburði næturinnar þegar Díana dó í bílslysi. Þau ræða opinberar rannsóknir á slysinu og velta upp því sem enn þykir óljóst og hefur verið vant á myllu þeirra sem gjarnan gruna konungsfjölskylduna um græsku.

  43. 2

    #2 - Dauði Díönu part 1

    Stóð breska konungsfjölskyldan að baki andláti Díönu prinsessu? Eða kannski vopnaframleiðendur? Allt frá hörmulega bílslysinu í París hafa langsóttar samsæriskenningar lifað og fengið vængi, sem þau Eiríkur og Hulda ræða um í þættinum. Þau fjalla um baksöguna, endurgoldna ástina og ræða um prinsessuna sem fólkið elskaði en sem var sjálf svo ósköp óhamingjusöm.

  44. 1

    #1 - Norrænar samsæriskenningar

    Stóð aðskilnaðarstjórnin í Suður-Afríku að baki morðinu á Olof Palme? Var farþegaferjunni MS Estoina grandað vegna vopnaflutninga frá Rússlandi? Fórnuðu Satanistar fyrr á öldum norrænum börnum til þess að greiða eldgamla skuld við Ottomannveldið? Þótt Norðurlöndin virðist á yfirborðinu kannski ekki vera gróðrastía samsæriskenninga kennir þar þó ýmissa grasa, svo sem greina má af framanverðum spurningum. Í þættinum fjalla þau Hulda og Eiríkur um Norrænar samsæriskenningar og ræða jafnframt almennt um eðli og inntak samsæriskenninga. Þá er rýnt í það hvers vegna Íslendingar virðast trúaðari á pólitískar samsæriskenningar en íbúar annarra Norðurlanda.

  45. 0

    Skuggavaldið - Trailer

    Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu.  Framleitt af Tal.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu.Framleitt af Tal.

HOSTED BY

skuggavaldid

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Skuggavaldið have?

Skuggavaldið currently has 45 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Skuggavaldið about?

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins....

How often does Skuggavaldið release new episodes?

Skuggavaldið has 45 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Skuggavaldið?

You can listen to Skuggavaldið on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Skuggavaldið?

Skuggavaldið is created and hosted by skuggavaldid.
URL copied to clipboard!