Snorri Másson ritstjóri

PODCAST · news

Snorri Másson ritstjóri

Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.

  1. 95

    Viðtal | Brynjar Karl: Sannleikurinn um Breiðholt og vakning þjóðar

    Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og íþróttaleiðtogi ræðir hér um það hvernig beri að gera kröfur til ungs fólks, körfuboltaliðið Aþenu, stöðuna í Breiðholti, ofbeldisþróun þar, fullkominn skort á stefnu og vonlaus samskipti við Reykjavíkurborg.

  2. 94

    Alls staðar breytist umræðan! Sigríður Andersen og Kjartan Magnússon.

    Í þessum þætti ræðir Snorri Másson ritstjóri við Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Kjartan Magnússon, ekki borgarfulltrúa, heldur formann Hjálms – ungliðahreyfingar Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Til umfjöllunar eru þau fimm ár sem liðin eru frá upphafi kórónuveirufaraldurs, evrópsk stjórnvöld sem vakna upp við vondan draum þegar málfrelsi er innleitt á samfélagsmiðlum, innflytjendamál og tálsýnin um inngildingu allra, auk ummæla dómsmálaráðherra um að ekki sé hægt að treysta dómstólum.

  3. 93

    Ræða: Það er hægt að skipta um trúarbrögð í landinu

    Ég flutti erindi á vegum Stúdentafélags Reykjavíkur þann 23. janúar, þar sem ég fjallaði um það hvernig stjórnmálin hegða sér í sífellt auknum mæli eins og trúarbrögð, bæði hér á landi og erlendis. Með öðrum orðum: Hvað annað en hröð trúarleg sinnaskipti hafa leitt til þeirra grundvallarbreytinga sem hafa orðið á ráðandi stjórnmálahugsun á Íslandi á undanförnum árum, hvort sem er í sambandi við viðhorf til þjóðmenningarinnar, tungumálsins eða kynjamála?

  4. 92

    Jakob Frímann um svakalegan fund, Reykjavíkurborg og þriðju leiðina

    Jakob Frímann Magnússon goðsögn og þingmaður Miðflokksins ræðir hér stjórnmálin, allt frá dapurri upplifun sinni af Reykjavíkurborg á sínum tíma og til nauðsynlegrar uppbyggingar sem er fram undan í íslensku samfélagi. Ekki er hjá því komist að drepa niður fæti á mikilvægum stöðum í sögunni, ferðalög Stuðmanna til Kína og Rússlands, Kalda stríðið og Ísland í fyrri tíð. Últrafrjálshyggja eða hardcore kommúnismi - eða þriðja leiðin? Eina málið er að sjá til þess að Reykjavíkurstjórnin verði ekki landsstjórnin, segir Jakob Frímann.

  5. 91

    Ég býð mig fram

    Risatilkynning: „Ég tilkynni hér með að ég sækist eftir oddvitasæti á lista Miðflokksins í Reykjavík í komandi alþingiskosningum.“

  6. 90

    Viðtal | Jón Gnarr um Íslendinga, hugarfar, skynsegin ráðherra og grín

    Hér er rætt við Jón Gnarr grínista sem nú hyggur á þingframboð undir merkjum Viðreisnar. Við ræðum tímann sem borgarstjóri, muninn á stjórnmálaþátttöku hans þá og nú, woke-heilavírusinn, útlendingamálin, hernaðarbandalög og varnarbandalög, sögu styrjalda, eðli gríns og menntamálin þegar Jón verður fyrsti jaðarsetti skynsegin ráðherrann. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Nettó, Myntkaup, Reykjavík Foto og Happy Hydrate.

  7. 89

    Viðtal | Heiðar Guðjónsson um þjóðerni, auðlindir, fjölmiðlarekstur, fjárfestingar og Peter Thiel

    Í viðtali vikunnar er birt á ný samtal við Heiðar Guðjónsson fjárfesti frá því í júlí 2023. Viðtalið birtist í hlaðvarpi Skoðanabræðra, Snorra Mássonar og Bergþórs Mássonar. Umræðuefni eru m.a: bjartsýni, þjóðernisofsi, hagfræði, ævintýri, báknið, hægrimennska, fjárfestingar í listum, Peter Thiel, framtíðin og Guð veit hvað annað. Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Happy Hydrate.

  8. 88

    Viðtal | Sigmar Guðmundsson um veikleika krónunnar, ESB-drauminn, mannúðarpælinguna og fíkniefni

    Sigmar Guðmundsson var fjölmiðlamaður um áratugaskeið og sneri sér svo að stjórnmálum fyrir Viðreisn. Stundum kallaður best klæddi Píratinn. Hér er rætt um fíknivandann, áfengi, Evrópusambandið, ríkisfjármál, tungumálið, innflytjendur, flóttamenn, íslensku krónuna, Jón Gnarr, Viðreisn, stjórnmálastarfið, fjölmiðla, RÚV og almennt hina pragmatísku nálgun. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

  9. 87

    Fréttir vikunnar | Jakob Birgisson um vafasöm stjórnmálatákn, þvottavélar og efnahag uppistandara

    Jakob Birgisson uppistandari sest við borð ritstjórans og ræðir allt frá brottvísun flóttamanna og málefni ríkisstjórnarinnar til sálarástands ungmenna, áfengis í búðir, þvottavéla, nýs merkis Alþingis, nýrrar stjórnarsetu Brynjars Níelssonar og margs annars. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Myntkaup og Happy Hydrate.

  10. 86

    Viðtal | Diljá Mist um hægrisveiflu, fjölskylduna, íslenska fánann og stríðið á milli góðs og ills

    Diljá Mist Einarsdóttir er hæstaréttarlögmaður og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hér er rætt um ríkisfjármál, þjóðerni, frelsi, hægrisveiflu, stöðu Sjálfstæðisflokksins, efasemdir Diljár um Samfylkingu og Miðflokk, stríðsástand og góðu og vondu kallana í heiminum, fjölskyldumál, opinbera starfsmenn og tillögur Diljár að skattaafsláttum vegna barneigna. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

  11. 85

    Viðtal | Rúnar Helgi um ringlaða karla, taugaáfall í #MeToo og skoðanakúgun

    Rúnar Helgi Vignisson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í ritlist. Um það leyti sem #MeToo-byltingin skall á fékk hann taugaáfall eftir neikvæð viðbrögð við ýmsum greinarskrifum, dró sig í hlé og fór að hugsa sinn gang. Bókin Þú ringlaði karlmaður: Tilraun til kerfisuppfærslu er afurð þess ferlis, þar sem hann rekur sína sögu sem karlmanns í íslensku samfélagi. Viðtalið er opinskátt og persónulegt spjall um skoðanakúgun, háskóla, bókmenntir, stóra bíla, föðurhlutverkið og feðraveldið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

  12. 84

    Viðtal | Björn Jón Bragason um hnignun, agaleysi, hrun klassískra mennta og sjálfsmynd þjóðar

    Björn Jón Bragason er sagnfræðingur, lögfræðingur og rithöfundur og einkar afkastamikill á öllum þessum sviðum. Hér í þessu viðtali er um auðugan garð að grisja. Hrun Sjálfstæðisflokksins og borgaralegra stjórnmála almennt, ólýðræðisleg ríkisvæðing stjórnmálaflokkanna, fjármálasaga Íslands, sjálfsmynd þjóðar á hnignunarskeiði í menntamálum, þjóðarstoltið, félagsleg hnignun á Vesturlöndum, mikilvægi málvöndunar, orwellísk aðför að tjáningarfrelsinu, ástandið í háskólum landsins og ósköp margt fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Happy Hydrate og Reykjavík Foto.

  13. 83

    Viðtal | Aron Kristinn um TikTok, peninga, sjálfshjálp og poppstjörnulífið

    Aron Kristinn Jónasson tónlistarmaður og viðskiptafræðingur er einkar áberandi á samfélagsmiðlum þessi dægrin og segir í viðtali við ritstjórann að með því sé hann bæði að markaðssetja sig en einnig hjálpa fólki. Hér tölum við um allt frá TikTok og poppstjörnulífinu til sjálfshjálparbóka og trúarinnar. Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Happy Hydrate, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.

  14. 82

    Fréttir vikunnar | Aðlögun innflytjenda, fyrirlestrar frjálslyndra fjölmiðla og sögulegt símaat

    Í fréttum vikunnar að þessu sinni er farið yfir allt frá mislýðræðislegum aðgerðum vestrænna stjórnvalda, mórölskum fyrirlestrum meginstraumsmiðla um ákveðin mál og til aðlögunar innflytjenda í gegnum viðskipti. Einnig rifjar ritstjórinn upp sögulegt símaat sem tekið var upp í hlaðvarpi hér um árið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup, Þ. Þorgrímsson og Happy Hydrate. Hér má nálgast viðtalið á vef Morgunblaðsins: https://www.mbl.is/mogginn/dagmal/innskraning/?redirect=/mogginn/dagmal/thjodmalin/251780/%3F_t%3D1723759196.5559003 Hér má nálgast þátt Skoðanabræðra um Nassim Nicholas Taleb: https://www.patreon.com/posts/327-allt-um-einn-110181893?utm_medium=clipboard_copy&utm_source=copyLink&utm_campaign=postshare_creator&utm_content=join_link

  15. 81

    Fréttir vikunnar | Þú ert líklega í sértrúarsöfnuði

    Hluti þessa þáttar er efni úr þætti frá 8. febrúar 2024. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er fjallað um trúarlegt eðli stjórnmála okkar tíma, vanþakkláta þingmenn í nýju húsnæði, pólitíska gjá á milli ungra karla og ungra kvenna, gaslýsingar RÚV, kúgunartilburði í Evrópusambandinu og möguleikann á að loftslagsprestar taki yfir biskupsembættið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

  16. 80

    Viðtal | Dóri DNA um stríðin sem skipta máli, karlmennsku og woke vs. hægrið

    Í þessu mikilvæga viðtali við Halldór Halldórsson Laxness rithöfund og grínista er rætt um allt frá peningum og karlmennsku til blaðamennskunnar, fjölmiðlanna og samfélagsmiðlanna. Farið er yfir stríðin sem skipta máli, tilfinningar Dóra við að lesa X, framtíð grínsins og ótalmargt fleira afar spennandi. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Þ. Þorgrímsson.

  17. 79

    Viðtal | Eyþór Arnalds um regluvæðingu, jafnrétti, wokeisma, Davíð Oddsson og vitvélar

    Í viðtali vikunnar fer ritstjórinn um víðan völl ásamt Eyþóri Arnalds stjórnmálamanni, frumkvöðli og listamanni. Þessa dagana er Eyþór með hugann við tónlist, gervigreind og framtíð landsins og hefur frá afar mörgu að segja um allt frá málefnum sveitarfélaga til framfara í líftækni. Annað sem verður okkur að umtalsefni er regluvæðing innan ESB, menntamál, Davíð Oddsson og verðbólgan. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

  18. 78

    Fréttir vikunnar | Raunveruleg upptök kórónuveirunnar (viðtal v. Matt Ridley metsöluhöfund)

    Í fréttum vikunnar er rætt við Matthew Ridley. Matt er blaðamaður, viðskiptamaður og stjórnmálamaður, en fyrst og fremst margverðlaunaður metsöluhöfundur sem hefur selt meira en milljón bækur á fleiri en þrjátíu tungumálum. Ridley er menntaður dýrafræðingur, með doktorsgráðu í heimspeki og nýjasta bók hans er Viral, the Search for the Origin of Covid-19. Ridley hallast að því að veiran eigi upptök sín í tilraunastofu og í þessum þætti færir hann rök fyrir því. Við ræðum margt annað við Matt Ridley, stöðu Íslands og Bretlands í evrópsku samhengi, við ræðum Evrópusambandið, um misfellur í frjálslyndu lýðræði nútímans og margt, margt fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

  19. 77

    Fréttir vikunnar | Réttindin sem ógna lýðræðinu, hópspjöll og stjörnuspeki

    Í fréttum vikunnar er rýnt í umfjöllun fjölmiðla um þá ógn sem steðjar að frjálslyndu lýðræði vegna uppgangs íhaldssamra hægriafla. Bent er á hvernig glæný „réttindi“ hvers konar eru notuð sem yfirvarp til að ganga á önnur eldri réttindi. Þá er vikið að netöryggi Íslendinga og hópspjöllum og loks eru menn að opna hjarta sitt hér fyrir hinni öldnu vísindagrein stjörnuspekinni. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Happy Hydrate og Myntkaup. 

  20. 76

    Fréttir vikunnar | Skaðmenntun, lýðræðið og Biden (m. Jakobi Birgissyni og Bergþóri Ólasyni)

    Mikilvæg mál eru á dagskrá í fréttum vikunnar, kosningabaráttan í Bandaríkjunum, fylgi flokka hér heima, uppgangur Miðflokksins, ferðaþjónustan, þjóðarhugtakið og gildi Íslendinga, EM og margt annað. Gestir eru Jakob Birgisson grínisti og Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins. Fréttir vikunnar eru í boði Reykjavík Foto, Myntkaup, Þ. Þorgrímsson og Happy Hydrate.

  21. 75

    Fréttir vikunnar | Bakslag í woke fjárfestingum (með Bjarna Herrera sjálfbærniráðgjafa)

    Þessi þáttur birtist fyrst 28. júní en datt út um hríð Í fréttum vikunnar fáum við til okkar manninn á bak við hið kynjaða skuldabréf ríkissjóðs, Bjarna Herrera sjálfbærnifræðing og rithöfund, sem var að gefa út nýja bók. Við förum yfir bakslag í „ESG“-fjárfestingum, þar sem fólk er hætt að vilja fjárfesta í sjálfbærnimerktum verkefnum sem skila slæmri arðsemi. Allir í sjokki? Bjarni hefur enn trú á verkefninu. Við víkjum einnig að áframhaldandi fylgistapi Sjálfstæðisflokksins og svo að Mannréttindastofnun Íslands. Líklega eru þetta ekki ótengd mál. Loks mál Julian Assange og þýðing þess fyrir viðhorf okkar til eigin stjórnvalda.  Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.

  22. 74

    Fréttir vikunnar | Valdarán millistjórnandans og PC-væðing fyrirtækja

    Hluti þessa þáttar er endursýnt efni frá 16. febrúar á þessu ári. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er farið yfir „taktlaust“ grínmyndband frá Ungum sjálfstæðismönnum, valdarán millistjórnenda í skráðum félögum, hinseginvottun og „fjölbreytileikavegferð“ Ölgerðarinnar, leikskólamál í Reykjavík, starfsmannabyltingar, árangur Kanye West þrátt fyrir allt og allt og sitthvað fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

  23. 73

    Fréttir vikunnar | Vinstrisinnuð öfgahægrisveifla og strákar á móti „stelpum og stálpum“

    Fréttir vikunnar eru sendar út frá Siglufirði enda stefnir ritstjórinn á að ganga í það heilaga um helgina. Umræðuefni: Sigurganga róttækra íhaldsmanna, lýðræði í ESB, kúgun drengja í skólakerfinu, gervigreind hjá Apple og umfjöllun um kjarna sósíalismans. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Myntkaup, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Reykjavík Foto.

  24. 72

    Fréttir vikunnar | Rök gegn virkjunum, íslenskir hagsmunir og vopnasendingar (með Sigríði Á. Andersen)

    Í fréttum vikunnar er fyrst farið stuttlega yfir umræðu um kynhlutlaust mál og svo farið í viðtal við Sigríði Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra um allt frá nýkjörnum forseta, umræðu um vopnasendingar, efasemdir um orkuskipti, bókun 35, útlendingamál og stöðu íslenska hægrisins. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Reykjavík Foto og Happy Hydrate. 

  25. 71

    Fréttir vikunnar | Vanhæft ríki, gaslýsingar Landsbankans og nauðsynlegar upplýsingar um kosningar

    Í fréttum vikunnar er farið yfir áhrif misheppnaðra inngripa ríkisvalds í markaði, Landsbankann á TikTok en fyrst og fremst er farið vítt og breitt um sviðið í kosningabáráttunni. Jakob Birgisson grínisti og álitsgjafi kemur að borðinu með verðugar pælingar. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Myntkaup, Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og loks Rafstorm

  26. 70

    Fréttir vikunnar | Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP um Ísland, tölvuleiki og framtíðina

    Í fréttum vikunnar er rætt við engan annan en Hilmar Veigar Pétursson frumkvöðul og forstjóra CCP, sem stendur þessa dagana í ströngu við að koma út glænýjum tölvuleik. Í viðtalinu er rætt um þjóðríkið sem fyrirbæri, framtíð gjaldmiðla í stafræna heiminum, verðmæt störf á Íslandi, foreldra í snjallsímum og framtíðarplön hins öfluga íslenska tölvuleikjafyrirtækis. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Myntkaup og loks Rafstorm.

  27. 69

    Fréttir vikunnar | Halla Hrund ruglast, fjallkonan og gervigreind lýgur vísvitandi að ritstjóranum

    Í fréttum vikunnar förum við yfir byltingar í gervigreind og átök innan eins mikilvægasta fyrirtækis heims á því sviði, við tökum gervigreindina tali (skrýtin uppákoma) við ræðum þjóðernishyggju þá og nú, nefnum þar misheppnaða bókargjöf forsætisráðherra og svo förum við yfir rugling hjá Höllu Hrund og skandala í hennar sögu. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Reykjavík Foto og einnig Rafstorm.

  28. 68

    Fréttir vikunnar | Leiðbeiningar fyrir nýja vinstrið, málfrelsi mótmælenda og heilagir embættismenn

    Í fréttum vikunnar er fjallað um draumórakenndar ráðleggingar fyrrverandi þingmanns til hins svonefnda nýja vinstris (loftslagsmál, femínismi og alþjóðahyggja koma þar við sögu), fjallað er um mótmæli gegn Ísrael vestanhafs, áskoranir kjarnafjölskyldunnar, forsetaframbjóðanda Morgunblaðsins og minnkandi lífslíkur á Íslandi. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.

  29. 67

    Fréttir vikunnar | Velferðarkerfi og opin landamæri fara ekki saman – viðtal við David Friedman

    David D. Friedman er eðlisfræðingur að mennt en hefur lagt stund á lögfræði og hagfræði með áherslu á frjálsa markaði og anarkókapítalískt kerfi. Hans framlag til anarkókapítalískrar hugmyndafræði er þýðingarmikið. Faðir David var Milton Friedman, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði. Í þessu viðtali fer David yfir siðferði og löggæslu í Íslendingasögunum, sem hann hefur rannsakað sérstaklega út frá hagfræðilegu sjónarhorni, við fjöllum líka um peninga, um opin og lokuð landamæri, um velferðarkerfi, um löggjöf almennt, um það hvað Milton Friedman, pabba hans, hefði þótt um Bitcoin og svo margt margt fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup og Reykjavík Foto.

  30. 66

    Fréttir vikunnar | Órólega deild Samfylkingarinnar, enskuverðlaun og hættulegar upplýsingar

    Fréttir vikunnar að þessu sinni fjalla um verðlaun Byggðastofnunar fyrir stjórnsýslu á ensku, hörð viðbrögð við að gagnrýna þau verðlaun, innflytjendastefnu Samfylkingarinnar, loftslagsmál, stórhættulegar upplýsingar og skoðanir Prettyboitjokko á hefðbundnum kynjahlutverkum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.

  31. 65

    Fréttir vikunnar | Réttlát reiði Jóns Gnarr, bestu gjaldmiðlarnir og árásir á fundafrelsið

    Farið er yfir „þjóðarhöll“ í fjármálaáætlun og henni att saman við íslenska tungu, Bitcoin-helmingun er tekin fyrir og ummæli bardagakappa um austurríska hagfræði, niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu, Jón Gnarr og Katrín Jakobsdóttir, ráðstefnu National Conservatism í Brussel, Ólympíuleika án lyfjaprófa og loks deilur á milli Drake og Rick Ross. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

  32. 64

    Fréttir vikunnar | Nýtt kalt stríð, óáhugaverð ríkisstjórn og samhengislausir forsetar

    Ríkisstjórn, forseti, ofbeldi Bjarna Benediktssonar, orkuöflun, nýtt kalt stríð og þjóðmenning Íslendinga án þess að menn biðjist afsökunar á henni.

  33. 63

    Fréttir vikunnar | Forsetaframbjóðendur dæmdir, dánaraðstoð Viðreisnar og hatursorðræða í Skotlandi

    Í fréttum vikunnar að þessu sinni er fjallað um frammistöðu forsetaframbjóðendanna hingað til, gerð athugasemd við ræðuhöld þeirra, farið yfir hugmyndir Viðreisnar um aukna dánaraðstoð, nýja hatursorðræðulöggjöf í Skotlandi, séreignastefnu á undanhaldi og stríðsrekstrarmaskínuna í Bandaríkjunum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.

  34. 62

    Fréttir vikunnar | Innræting í grunnskólum, horfnar færslur Felix og ballið búið hjá sveitarfélögum

    Í fréttum vikunnar er fjallað um kynjamál sem nú er kennt í grunnskóla í Reykjavík sem réttlætismál, vikið er að horfnum færslum Felix Bergssonar og ummælum hans um þjóðtunguna, farið er yfir femínískar vopnasendingar, fjármál sveitarfélaga og hægrisveiflu í háskólanum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.

  35. 61

    Hlaðvarp | Kjartan Þórisson um Noona, frumkvöðlalífið, gervigreind, paradís, heimsendi og geimverur

    Það er andi í Kjartani Þórissyni, sem er á meðal fremstu frumkvöðla sinnar kynslóðar í íslensku atvinnulífi. Hann er aðeins tuttugu og átta ára gamall en er framkvæmdastjóri og stofnandi Noona, fyrirtækis með viðskiptavini í yfir tuttugu löndum og samtals vel á fimmta tug starfsmanna. Í þættinum er farið um afar víðan völl, allt frá umræðum um heimsmál og gervigreind til spádóma um annaðhvort heimsendi eða paradís á jörðu. Hlaðvarpsviðtöl Snorra Mássonar ritstjóra eru unnin í samstarfi við vefverslunina www.sante.is. 

  36. 60

    Fréttir vikunnar | Gaslýsingar kynjafræðinnar, Kristrún vs. Þórdís Kolbrún og jafnréttisskólakerfi

    Í fréttum vikunnar er gagnrýni sósíalistaforingja svarað, farið er yfir kaup Landsbankans á Tryggingarmiðstöðinni, farið er í saumana á breyttum viðhorfum í samfélaginu til kynjafræði sem fræðigreinar (Karlmennskan að leggja upp laupana) og svo er rætt um jafnréttishugsjónina í skólakerfinu, ásamt nýstárlegri lausn Breta við leikskólavandanum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.

  37. 59

    Fréttir vikunnar | Stærra ríkisvald fyrir launþega, gervilýðræði og ert þú hægripopúlisti?

    Í fréttum vikunnar er fjallað um þá útbreiddu afstöðu að eðlilegt sé að gefast einfaldlega upp fyrir hruninni fæðingartíðni í landinu (og að það sé „hægripopúlismi“ að gera það ekki), svo er rætt um þá reglulegu stækkun ríkisvalds sem fylgir hverjum kjarasamningi sem gerður er á almennum vinnumarkaði, epískt nýtt vélmenni sem gæti breytt heiminum, nýtt skilti Reykjavíkurborgar í Breiðholti, TikTok-bann í Bandaríkjunum og sitthvað fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.

  38. 58

    Fréttir vikunnar | Tilneyddir forsetaframbjóðendur, rasismi og óreiða í transsamtökum

    Í fréttum vikunnar er fjallað um stríðshauka tilneydda í forsetaframboð, stöðu Íslands ef Bandaríkin glata áhrifum sínum, „hatursatkvæði“ Í Eurovision, rasisma á íslenskum samfélagsmiðlum og nýja skýrslu upp úr gögnum sem lekið var frá alþjóðlegum transmeðferðarsamtökum. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Myntkaup.

  39. 57

    Grein | Af hverju er Bitcoin í hæstu hæðum?

    Grein á www.ritstjori.is: „Upphafið að endalokunum“ var fyrirsögn Viðskiptablaðsins um stöðu Bitcoin fyrir tæpu ári. Staðan núna: Bitcoin hefur aldrei í sögunni verið verðmætara gagnvart krónu.

  40. 56

    Fréttir vikunnar | Hættulegir Sjálfstæðismenn í umferðinni, skordýr í matinn og Bitcoin

    Í fréttum vikunnar er farið yfir nauðsyn þess að koma ríkisfjármálunum í lag, farið er yfir rafmyntir og vantraust í garð Seðlabankans, styttingu framhaldsskólanna, skaðsemi nikótínpúða, skattahækkanir Sjálfstæðisflokksins og svo misheppnaðar tilraunir þess sama flokks til að „leggja niður jafnlaunavottun.“  Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Hringdu og Myntkaup. 

  41. 55

    Grein | Vituð þér enn, eða hvað?

    Það er bitastæð svört pilla að hætta að treysta Google. Grein af ritstjóri.is.

  42. 54

    Fréttir vikunnar | Tvískinnungur gagnvart pólitískum ofsóknum, íslenska í leigubílum og Google endurskrifar söguna

    Í fréttum vikunnar er farið yfir tvískinnung manna í afstöðu til Rússa og Bandaríkjamanna þegar kemur að ofsóknum stjórnarandstæðinga, farið er yfir kostnað í hugsanalögregluátaki forsætisráðherra, heildarsýn ríkisstjórnar í útlendingamálum er skoðuð og vöngum velt yfir glóbalískri frjálslyndri verkalýðshreyfingu og loks lýsir ritstjórinn yfir áhyggjum af endurskrifun sögunnar á vegum Google.  Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Hringdu og Myntkaup. 

  43. 53

    Fréttir vikunnar | Slaufunarmenning elítusport, PC-væðing Ölgerðarinnar og vinnustaðaleikskólar

    Í fréttum vikunnar er farið yfir „taktlaust“ grínmyndband frá Ungum sjálfstæðismönnum, viðbrögð við stefnubreytingu Samfylkingarinnar í flóttamannamálum, hinseginvottun og „fjölbreytileikavegferð“ Ölgerðarinnar, leikskólamál í Reykjavík, árangur Kanye West þrátt fyrir allt og allt og sitthvað fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Hringdu og Myntkaup.

  44. 52

    Grein | Bjarni hafi opnað landamærin og kvarti nú yfir fánum á Austurvelli

    Einar Þorsteinsson borgarstjóri sækir í sig veðrið eftir embættistöku og skaut föstum skotum á utanríkisráðherra á Viðskiptaþingi... Hljóðbrot af Viðskiptaþingi. Meira um málið á www.ritstjori.is.

  45. 51

    Fréttir vikunnar | Góð bóluefni, fyrirmæli forsætisráðuneytisins og 2% íbúa í fangelsi

    Í fréttum vikunnar er farið yfir nýtt rétthugsunarátak forsætisráðuneytisins, endurkjör forseta El Salvador, kostnað skattgreiðenda við fyrirspurnafár, bólusetningar gegn mislingum og margt fleira sérlega forvitnilegt. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Hringdu og Myntkaup.

  46. 50

    Grein | Dregið úr latínukennslu við MR

    Varðhundar klassískrar menntunar hafa alltaf áhyggjur þegar þeir lesa slíkar fyrirsagnir. Hér má þó halda því fram að málið sé ekki endilega grafalvarlegt, þótt sporin hræði... (lat. vestigia terrent!)

  47. 49

    Fréttir vikunnar | Stóri kynjaklofningurinn, vanþakklátir þingmenn og loftslagsprestar

    Í fréttum vikunnar er fjallað um bændamótmæli, vanþakkláta þingmenn í nýju húsnæði, pólitíska gjá á milli ungra karla og ungra kvenna, kúgunartilburði í Evrópusambandinu og loks líkurnar á að loftslagsprestar taki yfir biskupsembættið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Hringdu. 

  48. 48

    Grein | Listaháskólinn situr í súpunni

    „Jafnrétti“ lætur engan ósnortinn. Grein af www.ritstjori.is

  49. 47

    Grein | Við erum öll í költi

    Er vegan trúleysingjapírati virkilega trúlaus – eða getur verið að hann sé raunar margfalt trúaðri en andlausi „kristni“ meðaljóninn í næsta raðhúsi? Grein í heild sinni á www.ritstjori.is.

  50. 46

    Fréttir vikunnar | Óttinn við 100% verðbólgu, hugmyndin um landamæri og photoshop-fíkn

    Í fréttum vikunnar er farið yfir flóttamannamál, ákvörðun RÚV um mögulega þátttöku í Eurovision, landamæri í nýjum skilningi Samfylkingarinnar, Grindavík og Vestmannaeyjar og svo fræga Photoshop-mynd frá því í vikunni. Samstarfsaðilar ritstjórans í fréttum vikunnar eru Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson og Hringdu.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.

HOSTED BY

Snorri Másson

CATEGORIES

URL copied to clipboard!