Spegillinn podcast artwork

PODCAST · news

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Oct 3, 2026 · Source feed

  1. 882

    Góð ráð dýr í Hafnarfirði, orð Trumps um sameiningu Írlands og áhrif gervigreindar á háskólanám

    Áhrif gervigreindar á háskólanám og orð Bandaríkjaforseta um sameinað Írland eru til umfjöllunar í þætti dagsins. En við byrjum í Hafnarfirðinum.

  2. 881

    Hröð þróun gervigreindar

    Grein sem Dario Amodei forstjóri og einn af stofnendum bandaríska gervigreindarfyrirtækisins Anthropic birti á vef sínum á laugardag hefur vakið gríðarlega athygli. Í greinni kallaði Amodei eftir því að hægt yrði á þróun gervigreindar og nauðsynlegt væri að fyrirtæki og stjórnvöld kæmu sér saman um ákveðnar takmarkanir og öryggiskröfur. Donald Trump hefur enn áhuga á Grænlandi, segir rannsóknarblaðamaðurinn Ben Taub. Rannsóknir hans leiddu í ljós að þrír aðskildir hópar á sporbraut um Trump unnu á endanum saman að því að reyna að ná yfirráðum á Grænlandi. Landakort sýna á flötu blaði jörð sem er kúlulaga. Þau kort sem nú eru algengust eru sprottin af sýn sem varð til á tímum landvinninga og nýlendna. Landakort hafa löngum verið notuð í áróðursskyni, segir Karl Benediktsson prófessor í landfræði við Háskóla Íslands.

  3. 880

    Hröð þróun gervigreindar

    Grein sem Dario Amodei forstjóri og einn af stofnendum bandaríska gervigreindarfyrirtækisins Anthropic birti á vef sínum á laugardag hefur vakið gríðarlega athygli. Í greinni kallaði Amodei eftir því að hægt yrði á þróun gervigreindar og nauðsynlegt væri að fyrirtæki og stjórnvöld kæmu sér saman um ákveðnar takmarkanir og öryggiskröfur. Donald Trump hefur enn áhuga á Grænlandi, segir rannsóknarblaðamaðurinn Ben Taub. Rannsóknir hans leiddu í ljós að þrír aðskildir hópar á sporbraut um Trump unnu á endanum saman að því að reyna að ná yfirráðum á Grænlandi. Landakort sýna á flötu blaði jörð sem er kúlulaga. Þau kort sem nú eru algengust eru sprottin af sýn sem varð til á tímum landvinninga og nýlendna. Landakort hafa löngum verið notuð í áróðursskyni, segir Karl Benediktsson prófessor í landfræði við Háskóla Íslands.

  4. 879

    Gjaldtaka á ferðamannastöðum, sögur eftirlifenda 11.september og Íslendingar hafa ekkert að segja um varnir landsins

    Tuttugu og fimm ár frá hryðjuverkaárásum á Bandaríkin og samband sem snýst um hagsmuni Bandaríkjanna, fremur en Íslands eru umfjöllunarefni dagsins. En við byrjum á gjaldtöku á ferðamannastöðum. Gert er ráð fyrir að frumvarp atvinnuvegaráðherra um nýtt gjald á ferðamannastöðum í eigu þjóðarinnar, sem á að skila fimm milljörðum í ríkissjóð, verði opinberað og lagt fram í samráðsgátt í næstu viku

  5. 878

    Trump talaði um Ísland yrði 51. ríkið, aðalnámsskrá og miklu fleiri nota heyrnartæki en áður

    Donald Trump hefur ítrekað viðrað hugmyndir um að Ísland verði eitt Bandaríkjanna. Hann gerði það til dæmis í símtali 2024 við Bjarna Benediktsson, sem þá var forsætisráðherra. Það er nauðsynlegt að einfalda aðalnámskrá grunnskóla, segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands og tekur þar undir orð Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Fjöldi þeirra sem fá styrk frá Sjúkratryggingum til að kaupa heyrnartæki hefur rúmlega tvöfaldast á um 10 árum.

  6. 877

    Trump talaði um Ísland yrði 51. ríkið, aðalnámsskrá og miklu fleiri nota heyrnartæki en áður

    Donald Trump hefur ítrekað viðrað hugmyndir um að Ísland verði eitt Bandaríkjanna. Hann gerði það til dæmis í símtali 2024 við Bjarna Benediktsson, sem þá var forsætisráðherra. Það er nauðsynlegt að einfalda aðalnámskrá grunnskóla, segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands og tekur þar undir orð Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Fjöldi þeirra sem fá styrk frá Sjúkratryggingum til að kaupa heyrnartæki hefur rúmlega tvöfaldast á um 10 árum.

  7. 876

    Meira um niðurstöður PISA-könnunar og umsvif Bláa Lónsinns

    Stefnt er að því að skrá Bláa Lónið hf. á markað í nóvember. Þá kemur í ljós hvert áætlað heildarandvirði félagsins er en forstjóri félagsins segir að í nýlegum viðskiptum með félagið hafi það verið metið á um 83 milljarða króna. En við ætlum að byrja á viðbrögðum við niðurstöðum PISA-könnunarinnar sem kynntar voru í gær.

  8. 875

    Meira um niðurstöður PISA-könnunar og umsvif Bláa Lónsinns

    Stefnt er að því að skrá Bláa Lónið hf. á markað í nóvember. Þá kemur í ljós hvert áætlað heildarandvirði félagsins er en forstjóri félagsins segir að í nýlegum viðskiptum með félagið hafi það verið metið á um 83 milljarða króna. En við ætlum að byrja á viðbrögðum við niðurstöðum PISA-könnunarinnar sem kynntar voru í gær.

  9. 874

    PISA-könnunin og fylgdi samsæriskenninga og stjórnmálaskoðana.

    Niðurstöður nýjustu PISA-könnunar voru kynntar í dag og voru verri á flestum sviðum en í síðustu könnun. Umboðsmaður barna telur niðurstöðurnar, sem ná líka til þess hvernig börnum líður, mjög alvarlegar. Annars staðar á Norðurlöndum eru niðurstöðurnar sagðar áfall og skammarlegar. Kosningaúrslitin í Saxlandi-Anhalt, þar sem hægriöfgaflokkurinn Alternative für Deutschland, fékk langmest fylgi allra flokka, varpa ljósi á fyrirbæri sem sálfræðingar og stjórnmálafræðingar hafa rannsakað æ meira undanfarin ár: hvernig vantraust á stofnunum getur smám saman breyst úr afstöðu til einstakra mála í heila heimsmynd. Hulda Þórisdóttir stjórnmálasálfræðingur hefur rannsakað fylgnina og útskýrir í Speglinum.

  10. 873

    Stefnt að hallalausum fjárlögum og kosningar framundan í Svíþjóð

    Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir fimm milljarða afgangi í fjárlagafrumvarpinu. Það á eftir að fara í gegnum þingið hver verður niðurstaðan eftir það. Rætt við Sigurjón Þórðarson (F) formann fjárlaganefndar og Njál Trausta Friðbertsson (D) sem situr í henni. Þing-, landsþings- og sveitarstjórnarkosningar eru í Svíþjóð 13.september. Skoðanakannanir benda til þess að mjótt verði á mununum milli núverandi ríkisstjórnarflokka og stjórnarandstöðunnar. Rætt við Anders Svenson sænskan blaðamanna um horfurnar.

  11. 872

    Atvinnuástandið, hægriöfgamenn gætu komist til valda í Þýskalandi og einmanna ungmenni

    Fyrstu sjö mánuði ársins var atvinnuleysi meðal Íslendinga 2,7% en hefur verið í kringum 2% undanfarin ár. Þetta samsvarar því að tæplega 4000 íslenskir ríkisborgarar hafi verið atvinnulausir. Atvinnuleysi hjá erlenda hópnum var 7,9% eða um 5.200 manns og þokast stöðugt upp á við. Hægriöfgamenn í AfD gætu komist til valda í minnsta sambandslandi Þýskalands – þau úrslit mörkuðu kaflaskil og hefðu afleiðingar langt út fyrir Saxland-Anhalt. Ungt fólk í Bretlandi segist eiga mun færri nána vini en áður og finnst vinskapurinn verri en eldri kynslóðir. Þetta er ekki síst rakið til samfélagmiðla.

  12. 871

    Tillögur um rýmri heimildir í baráttur við skipulagða glæpi og hamfaraflóð

    Lagt er til að breyta hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum til að auðvelda baráttu við skipulagða glæpastarfsemi. Meðal annars er lagt til að hámarkslengd gæsluvarðhalds við rannsókn slíkra brota verði sex mánuðir í stað 12 vikna og heimildiir til að upptöku á ólögmætum ávinningi verði rýmkaðar. Rætt við Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjón á öryggis- og greiningarsviði hjá ríkislögreglustjóra. Mikið skyndiflóð fór yfir Rasuwa-hérað í Nepal að morgni 26. ágúst. Flóðið bar með sér feikimikið vatn, aur og stórgrýti og olli miklu tjóni á byggð og innviðum. Gæti slíkt gerst hér? Rætt við Daniel Ben-Yehoshua skriðusérfræðing á Veðurstofu Íslands.

  13. 870

    Viðbrögð við drónaárásum og líkur á átökum. Jón Ólafsson og Erlingur Erlingsson.

    Þjóðverjar segja Rússa hafa staðið fyrir drónaárás á flugvellinum í Leipzig í ágúst og að stjórnvöld í Kreml taki mikla áhættu með aðgerðum sínum. Jón Ólafsson, prófessor, og Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, ræða þýðingu þessa og stöðuna í erfiðum samskiptum Rússlands og vesturlanda.

  14. 869

    Drónaárásir í Þýskalandi, Unglingar og áfengisdrykkja og nýr kóngur í Noregi

    Nýr kóngur í Noregi, aukin áfengisdrykkja meðal unglinga og drónaárásir í Þýskalandi eru umfjöllunarefni kvöldsins.

  15. 868

    Sjónvarpsfréttir hætta á Sýn, viðbrögð við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu og lækkun fæðingartíðni

    Minnkandi fæðingartíðni um allan heim og aukið sjálfstæði kvenna er efni nýrrar fræðigreinar Claudiu Goldin, prófessors við Harvard-háskóla og Nóbelsverðlaunahafa í hagfræði 2023. Þjóðaratkvæðagreiðsla helgarinnar og úrslit hennar hafa vakið viðbrögð hjá evrópskum fjölmiðlum og stjórnmálamönnum. Sjónvarpsfréttir Sýnar verða sendar út í síðasta sinn í kvöld. Stjórnendur fyrirtækisins segja ákvörðunina tekna í ljósi breyttra neysluvenja og muni beina auknum krafti að fréttaþjónustu á vef og í útvarpi.

  16. 867

    Umræður um ESB aðild í Noregi og stutt í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna á Íslandi

    Við verðum á þjóðaratkvæðagreiðslu-nótunum í dag. Meirihluti Norðmanna er sem fyrr andvígur því að ganga í Evrópusambandið en sífellt fleiri norskir stjórnmálamenn virðast telja að það verði erfiðara að ræða ekki um það. Og sérstaklega nú þegar þjóðaratkvæðagreiðslan um áframhald aðildaviðræðna Íslands við ESB fer fram. Að baki er um margt áhugaverð kosningabarátta tveggja fylkinga, Já til að sjá og Áfram Ísland. Eva Heiða Önnudóttir, stjórnmálafræðingur, er komin til okkar og ætlar að gera upp undanfarnar vikur.

  17. 866

    Trump og Carney deila, Evrópusambandið stækkar og háskólamenntaðir þurfa lán frá öðrum en lánastofnunum við fasteignakaup.

    Deilur um tollasamning snúast um margt en líklega síst eiginleg viðskipti. Eliza Reid segir skaðann sem þetta hefur valdið ekki hverfa svo glatt. Traustið sé rofið. Það lítur út fyrir að aðildarríkjum Evrópusambandsins fjölgi á næstu árum en viðhorf borgara sambandslandanna til þess eru misjöfn. Um 60% háskólamenntaðra, sem eru yngri en 45 ára, hafa fengið aðstoð frá öðrum en lánastofnunum við fasteignakaup, samkvæmt nýrri könnun BHM.

  18. 865

    Hvað er í húfi á laugardag? skattahækkanir á baðlón og áhrif hita og þurrka á vínuppskeru

    Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við ESB á laugardag hefur áhrif á pólitískt landslag á Íslandi, hvort sem svar þjóðarinnar verður já eða nei. Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur fer nú yfir þau mál með okkur. Forsvarsmenn baðlóna hér á landi hafa gagnrýnt harkalega þá hugmynd að hækka virðisaukaskatt úr 11% í 24% á þeirra starfsemi. Slíkt er inn í áformum ríkisstjórnarinnar sam samþykkti hallalausa fjármálaáætlun fyrr í sumar. Það líður að hausti og vínuppskeru í Frakklandi. Nema í ár er hún víða langt komin, löngu á undan hefðbundinni áætlun. Hiti, vatnsskortur og skógareldar gera vínbændum lífið leitt – en ekki er þar með sagt að vín ársins verði verri eða dýrari.

  19. 864

    Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg og rannsókn drónaárásar í Þýskalandi vindur upp á sig.

    Tugum starfsmanna var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir að tillögur um skipulagsbreytingar voru samþykktar á aukafundi borgarráðs. Björg Magnúsdóttir og Heiða Björg Hilmisdóttir voru til viðtals. Misheppnuð drónaárás á flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi í byrjun ágúst vindur upp á sig. Nú er talið að þrír drónar hafi verið notaðir í árásinni.

  20. 863

    Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg og rannsókn drónaárásar í Þýskalandi vindur upp á sig.

    Tugum starfsmanna var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir að tillögur um skipulagsbreytingar voru samþykktar á aukafundi borgarráðs. Björg Magnúsdóttir og Heiða Björg Hilmisdóttir voru til viðtals. Misheppnuð drónaárás á flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi í byrjun ágúst vindur upp á sig. Nú er talið að þrír drónar hafi verið notaðir í árásinni.

  21. 862

    Ofgnótt skoðana í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu og mál Lindsay Clancy í Bandaríkjunum.

    Mál ungrar móður í Bandaríkjunum hefur vakið athygli um allan heim en hún er ákærð fyrir að hafa orðið þremur börnum sínum að bana. En málið hefur ekki bara vakið upp spurningar um sekt eða sakleysi hennar heldur hefur það einnig hrundið af stað umræðum um andlega heilsu mæðra og geðheilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum. En við byrjum á þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildaviðræðna við Evrópusambandið. Umræðan í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardaginn hefur að sumu leyti einkennst af ofgnótt á skoðunum en skorti á dýpri lýðræðislegri greiningu að dómi lektors við HÍ.

  22. 861

    Ofgnótt skoðana í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu og mál Lindsay Clancy í Bandaríkjunum.

    Mál ungrar móður í Bandaríkjunum hefur vakið athygli um allan heim en hún er ákærð fyrir að hafa orðið þremur börnum sínum að bana. En málið hefur ekki bara vakið upp spurningar um sekt eða sakleysi hennar heldur hefur það einnig hrundið af stað umræðum um andlega heilsu mæðra og geðheilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum. En við byrjum á þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildaviðræðna við Evrópusambandið. Umræðan í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardaginn hefur að sumu leyti einkennst af ofgnótt á skoðunum en skorti á dýpri lýðræðislegri greiningu að dómi lektors við HÍ.

  23. 860
  24. 859

    Evrópusambandið og launþegar, farsóttasáttmáli sem steytt hefur á skeri.

    Hvaða áhrif kann aðild að Evrópusambandinu að hafa á íslenska launþega? Svarið við þeirri spurningu er kannski ekki einfalt. Nær öll löggjöf Evrópusambandsins um réttindi launþega hefur þegar verið tekin upp á Íslandi í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Hrafnhildur Kristinsdóttir lögfræðingur ræðir vinnurétt. Farsóttasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er nánast tilbúinn en fæst ekki samþykktur. Alma Möller, heilbrigðisráðherra, ræðir málið.

  25. 858

    Um stýrivaxtahækkun Seðlabankans

    Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í morgun hækkun stýrivaxta úr 7.75 prósentum í átta prósent. Það er ekki hægt að segja að þetta hafi komið á óvart, miðað við þróun verðbólgu og fleiri þátta, en engu að síður voru uppi ákveðnar væntingar um að vextirnir héldust óbreyttir. Verðbólgan er það sem talað er mest um í tilkynningu Peningastefnunefndar bankans í dag. Hún hefur verið yfir 5% það sem af er ári og mældist 5,3% í júlí. Samkvæmt nýbirtri spá bankans er talið að hún aukist enn frekar á næstu mánuðum en hjaðni tiltölulega hratt þegar kemur fram á næsta ár. Verðbólguvæntingar eru þó enn of háar, segir í tilkynningunni, og undirliggjandi verðbólga of mikil. Rætt er við Róbert Farestveit, aðalhagfræðing Alþýðusambands Íslands og Sigurð Hannesson, hagfræðing og framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins um ákvörðun bankans og rökstuðning hennar. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

  26. 857

    Milljarðauppbygging varnarinnviða á Íslandi og þúsundir stefna Facebook og Instagram.

    Tugir milljarða fara í uppbyggingu margskonarinnviða á Íslandi þessi misserin. Íslenskir ráðamenn og yfirhershöfðingi NATO segja mikilvægi Íslands aukast vegna stöðu heimsmála og fjárfestinga þörf. Við skoðum hvaða verkefni eru hafi eða að hefjast. Þúsundir mála hafa verið höfðuð í Bandaríkjunum á hendur Meta, móðurfyrirtæki Feisbúkk og Instagram vegna þess að börn og unglingar séu lokkuð að samfélagsmiðlum og þau gerð háð þeim þrátt fyrir að vitað sé að þeir geti valdið þeim skaða. Meta þvertekur fyrir að gróði sé settur ofar hagsmunum barna en í dag hófust réttarhöld í fyrir alríkisdómstól í Kaliforníu sem gæti breytt samfélagsmiðlum.

  27. 856

    Aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður og gróðureildar geisa í Evrópu

    Svo mjótt er á munum milli þeirra sem ætla að segja já og nei við því að Ísland hefji á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið að ekki er hægt að segja til um hvernig fer 29. ágúst . Í síðasta þjóðarpúlsi Gallups sagðist rétt rúmur helmingur, fimmtíu og eitt og hálft prósent, myndu segja já en fjörutíu og átta og hálf prósent nei. Þessi munur er ekki marktækur. Um sjö prósent sögðust ekki hafa gert upp hug sinn. En að hve miklu leyti fælu aðildarviðræður, ef til þeirra kæmi, í sér aðlögun að regluverki Evrópusambandsins og hver var reynslan þegar Ísland var í viðræðum eftir umsóknina 2009? Margrét Einarsdóttir prófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti segir að heilmikil aðlögun að regluverki ESB hafi falist í samningnum um evrópska efnahagssvæðið sem var gerður fyrir rúmum þrjátíu árum og aðild að Schengen-samstarfinu. Á sínum tíma þegar rætt var um aðild hafi verið samið um að ekki yrði ráðist í laga- eða stofnanabreytingar áður en aðild væri samþykkt og hún telur að sama yrði ef farið yrði í viðræður nú. Loftslagsbreytingar hafa orðið til þess að gróðureldar eru erfiðari viðureignar en nokkru sinni. Áhrif þeirra gætir líka víða.

  28. 855

    Óhagstæður viðskiptajöfnuður, erfitt að bóka tíma hjá heilsugæslunni og gervigreindin bókar í ræktina

    Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánuði var óhagstæður um 441,9 milljarða króna sem er 63 milljörðum króna hagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr. Ævar Örn Jósepsson veltir því fyrir sér með Katrínu Ólafsdóttur, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík hvað það þýðir. Mörgum hefur reynst erfitt að bóka tíma hjá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu því fólki sem hringir er vísað á vefinn en þar segir að eigi að hringja. Í Ástralíu tók gervigreindaraðstoðarmaður sig til og kom sínum manni í alla eftirsóttustu tíma í ræktinni og henti öðrum út. . Þarna ákvað gervigreind að gera eitthvað sem enginn bað um, velti ekkert fyrir sér áhrifum á aðra og annað, hvort aðgerðirnar væru eðlilegar, réttmætar, löglegar – eða einu sinni í samræmi við verkefnið. Ingólfur Bjarni SIgfússon sagði frá.

  29. 854

    Verðbólgan og vinnumarkaðurinn, drónar og fjölþáttaógnir.

    Það er hvorki fyrsti kostur launþega né atvinnurekenda að segja upp samningum í september en launþegar geta ekki einir setið uppi með kostnað af verðbólgunni, segir ASÍ. SA telur aftur á móti að kaupmátturinn hafi skilað sér. Óljóst er hvort samningum verður sagt upp í haust. Drónar voru eitt sinn skemmtilegt leikfang en hugvitsamir hermenn breyttu þeim og nú eru drónar notaðir í stríði og hryðjuverkum - ekki síst fjölþáttaaðgerðum þar sem erfitt er að átta sig á hver er að verki. Drónaatvik hafa orðið á Íslandi en skipulag eftirlits og viðbragðs er ómarkvisst.

  30. 853

    Sólmyrkvinn

    Spegill miðvikudagsins 12. ágúst var helgaður almyrkva á sólu. Rætt var stuttlega við Runólf Þórhallsson sviðsstjóra Almannavarna hjá ríkislögreglustjóra um viðbúnað vegna sólmyrkvans og þess fjölda gesta og viðburða sem honum tengjast. Síðan var komið að myrkvanum sjálfum og rætt við Gunnlaug Björnsson stjarneðlisfræðing og prófessor við Háskóla Íslands, en hann fór fyrir hópi þeirra sem reiknuðu út nákvæmlega hvenær sólmyrkvinn yrði, hversu langur og hvar. Farið var yfir sögu sólmyrkvafræða, aðferðir við að reikna þá út og hvað það er sem vísindamenn eru helst að rannsaka í tengslum við viðburði sem þessa. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  31. 852

    Evrópusambandið og stjórnarskráin, varnir Færeyja og úlfur veldur usla á Jótlandi

    Ef innganga í Evrópusambandið yrði samþykkt verður að breyta ákvæðum i stjórnarskrá og leyfa framsal valds til þess; en það er flókið verkefni og alls ekki einhlítt hvernig að þvi yrði staðið segir Davíð Þór Björgvinsson lögfræðingur. Danir vilja auka viðveru hers í Færeyjum – áforma æfingar, eftirlitsflug orrustuþotna og heimsóknir herskipa. Heini í Skorini, dósent í alþjóðastjórnmálum við Fróðskaparsetur Føroya, segir að atburðir þessa árs, einkum á Grænlandi, hafi breytt þessari sýn Færeyinga á varnarmál. Úlfur hrellir íbúa á Suðvestur-Jótlandi, því hann hefur ítrekað birst í húsagörðum og við útiveitingahús.

  32. 851

    Hvert og hve margir verða á ferðinni á degi sólmyrkvans og flóttinn til Ceuta

    Miðvikudagurinn verður prófsteinninn á hvernig undirbúningur fyrir almyrkva á sólu hefur tekist til. Það var reynt að horfa til reynslu annarra af álíka viðburðum, segir Dagbjartur Brynjarsson sérfræðingur á sviði öryggismála hjá Ferðamálastofu en sólmyrkvinn er einstakur atburður og ekki raunhæft að miða innviðauppbyggingu við einn dag. Stóri óvissuþátturinn á þessum degi sé kannski hvernig landsmenn sjálfir hagi sínum ferðum. Var samsæri Bandaríkjanna og Ísraels ástæða þess að tugir þúsunda Marokkómanna flýðu skyndilega yfir landamærin yfir í spænsku byggðina í Ceuta fyrir nokkru? Eða var þetta pólitísk refskák stjórnvalda í Marokkó, ætluð til að refsa Spánverjum á einhvern hátt? Kenningarnar vantar ekki. Ingólfur Bjarni Sigfússon tók sér fyrir hendur að reyna skilja á milli sannleika og upplýsingaóreiðu.

  33. 850

    Sólmyrkvinn og veðrið

    Tugir þúsunda bíða spenntir eftir sjónarspilinu mikla, sólmyrkvanum, næstkomandi miðvikudag. Upplifunin mun óhjákvæmilega markast mjög af veðrinu, heiðskír himinn er óskastaðan en dumbungur öllu verri, að ekki sé minnst á svargráa og regnbólgna kólgubakka. En það er ekki bara veðrið sem hefur áhrif á upplifun fólks á almyrkvanum - hann hefur líka áhrif á veðrið. En hvernig? Spegillinn bar það undir Trausta Jónsson veðurfræðing. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

  34. 849

    Íslenskir bændur og ESB

    Íslenskur landbúnaður stendur á krossgötum, segir í skýrslu Bændasamtakanna um mögulega aðild að Evrópusambandinu. Bændur hafa boðað aukabúnaðarþing 14. ágúst og þar á að ræða og álykta um þessi mál. Í skýrslunni sem kynnt var í morgun er á um 130 síðum og í átta köflum farið yfir hvort í ESB-aðild fælist fyrst og fremst tæknileg breyting eða kerfisbreyting fyrir íslenskan landbúnað og sjónum beint að ákvörðunarvaldi, stuðningskerfi, markaðsvernd, heilbrigði búfjár og sérstökum framleiðsluskilyrðum. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Sigurbjörgu Ottesen, formann milliþinganefndar Bandastamtakanna, en nefndinni var falið að greina áhrif mögulegrar ESB-aðildar og aðildarviðræðna á íslenskan landbúnað. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

  35. 848

    Skyldur Íslands í loftslagsmálum

    Í ráðgefandi áliti Alþjóðadómstólsins í Haag á skyldum ríkja vegna loftslagsbreytinga frá því í fyrra kemur skýrt fram að þar sem loftslagsmál hafi áhrif á öllum sviðum mannlegrar tilveru, alstaðar í heiminum beri öllum heimsins ríkjum skylda til þess að vernda loftslagið af fremsta megni. Bjarni Már Magnússon, doktor í lögfræði og sérfræðingur í þjóðarétti, rýndi í álitið fyrir Loftslagsráð. Hann segir það hafa mikla þýðingu fyrir Ísland, íslenska löggjöf og samskipti Íslands við önnur ríki og alþjóðastofnanir. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

  36. 847

    Ábyrgð og skyldur ríkja í loftslagsmálum

    Ár er liðið frá því að Alþjóðadómstóllinn í Haag birti ráðgefandi álit á skyldum ríkja vegna loftslagsbreytinga. Eftir mikla gagnarýni og langan málflutning komst dómstóllinn að einróma niðurstöðu um að loftslagsmál hefðu áhrif á öllum sviðum mannlegrar tilveru, alstaðar í heiminum, og að öllum ríkjum bæri því skylda til þess að vernda loftslagið af fremsta megni. Bjarni Már Magnússon, doktor í lögfræði og sérfræðingur í þjóðarétti, rýndi í þetta mikla plagg fyrir loftslagsráð. Hann segir það umfangsmesta ráðgefandi álit í sögu dómstólsins, og marka tímamót í þróun þjóðaréttar á sviði loftslagsmála. Þá megi segja að það sé eins konar handbók fyrir fólk sem vill knýja yfirvöld í sínu landi til að gera betur í málaflokknum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  37. 846

    Minkasleppingar - dýravernd eða skemmdarverk?

    Íslenskar löggæslustofnanir á láði og legi hafa haft í nógu að snúast síðustu sólarhringa vegna aðgerða sem tengjast umdeildu dýrahaldi og dýraveiðum. Hér er vísað til innbrots óþekktra aðila í síðasta minkabú landsins annars vegar, Dalsbú í Mosfellsdal, og aðgerðir félaga í Paul Watson-samtökunum gegn hvalveiðiskipum Hvals hf. hins vegar. Rétt er að undirstrika að ekki er vitað hver það eru sem brutust inn í minkabúið, en leiddar hafa verið að því líkur að þar sé fólk á ferð sem telur sig berjast fyrir velferð dýra. En hvort sem svo er eða ekki, þá er ljóst að íslensk dýra- og náttúruverndarsamtök eru ekki par sátt við aðfarirnar. Þannig hafa stjórnir Landverndar, Náttúruverndarsamtaka Íslands og Samtaka um dýravelferð á Íslandi allar séð ástæðu til að senda frá sér yfirlýsingar þar sem innbrotið í minkabúið er fordæmt, og það gerði stjórn Dýraverndarsambands Íslands líka. Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambandsins, segir aðfarir á borð við þessar ekki vera baráttumálum dýraverndarsinna til framdráttar, heldur þvert á móti. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason

  38. 845

    Baráttan um boltann - FIFA og EUFA takast á

    Þetta er Spegillinn. Umsjónarmaður er Ævar Örn Jósepsson. Öll aðildarsambönd Evrópska knattspyrnusambandsins ætla að sniðganga HM í fótbolta ef áform forseta sambandsins um að selja 20 prósenta hlut í mótinu ná fram að ganga. Þetta var samþykkt á neyðarfundi evrópska sambandsins í dag. Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir ónefndum heimildarmönnum að andrúmsloftið á fundinum hafi verið baneitrað, slík var reiði og andstaða fundarfólks við áform Giannis Infantino, forseta FIFA. En um hvað er barist? Alexander Kristjánsson ræðir það við Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafa og sparkspeking. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  39. 844

    Minkar á Íslandi - lausir og villtir

    Hundruðum og jafnvel þúsundum minka var sleppt úr búrum sínum á síðasta minkabúi landsins, Dalsbúi í Mosfellsdal, á miðvikudag og einhver hundruð hið minnsta sluppu út úr húsi. Svo virðist sem fæstir þeirra hafi komist út fyrir öryggisgirðingu sem umlykur búið, en fregnir hafa þó borist af dýrum utan hennar. Eldisminkar eru um margt frábrugðnir villtu minkunum, sem þó eru allir afkomendur fyrri eldisminka. En hver er munurinn og hvað þarf fólk að hafa í huga, gangi það fram á mink á kvöldrölti sínu? Spegillinn bar það undir Róbert Arnar Stefánsson, forstöðumann Náttúrustofu Vesturlands og sérfræðing í minkum, atferli þeirra og afkomu. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  40. 843

    Stéttarfélög og ESB

    Síðast þegar íslensk stjórnvöld sóttust eftir inngöngu í Evrópusambandið var drjúgur meirihluti innan Alþýðusambands Íslands hlynntur þeirri vegferð. Sú afstaða kom meðal annars fram í ræðum, ályktunum og samþykktum á þingum ASÍ, og það ítrekað. En hvernig er þetta í dag? Hólmfríður María Ragnhildardóttir kannar málið og ræðir við Finnbjörn Hermannsson, forseta ASÍ. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  41. 842

    Sprenging í net- og símaglæpum

    Óhætt er að segja að sannkölluð sprenging hafi orðið á sviði net- og símglæpa af öllu tagi, á allra síðustu árum. Skipulögð, fjölþjóðleg glæpasamtök hafa komið sér upp stærðarinnar úthringi- og tölvuverum, sem gera ekki annað en að reyna að svíkja fé af fólki alstaðar í heiminum allan daginn alla daga allan ársins hring með hinum fjölbreytilegustu aðferðum. Og sækist það giska vel. Raktar eru sláandi niðurstöður nýrrar skýrslu SÞ um umfang net- og símglæpa í Austur- og Suðaustur Asíu, Ástralíu og Nýja Sjálandi og rætt við Agnesi Ósk Marzellíusardóttur lögreglufulltrúa um stöðu mála hér á landi. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason

  42. 841
  43. 840

    Kjarnorkusamningar Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu

    Orkumálaráðherrar Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu skrifuðu í gærkvöld undir tvo samninga um kjarnorkumál, um samvinnu ríkjanna um nýtingu Sáda á kjarnorku til orkuframleiðslu og eftirliti með henni Samningurinn er til þrjátíu ára og er ætlað að uppfylla „orkuþörf“ olíuveldisins Sádi-Arabíu, samkvæmt tilkynningu bandaríska orkumálaráðherrans, Chris Wright, en í langtíma efnahagsáætlun Sáda er gert ráð fyrir töluverðri raforkuframleiðslu með kjarnorku svo þeir geti aukið olíuútflutning að sama skapi. Margir hafa orðið til að gagnrýna samninginn, og enn virðist ýmislegt á reiki um hvað í honum felst. Spegillinn fékk Guðmund Hálfdánarson prófessor emeritus til að reifa það helsta sem þó er vitað. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

  44. 839

    Sýrland í dag

    Nýjum forseta Sýrlands hefur tekist að ná og halda stjórn í landinu frá því að hann tók völdin í ársbyrjun 2025, eftir árangursríka sókn fjölda uppreisnarsveita undir hans forystu gegn stjórnarher Assads, þáverandi forseta. Hann hefur styrkt stöðu sína og tökin á valdatökunum síðan, frekar en hitt. En hvernig er lífið í Sýrlandi í dag? Spegillinn grennslaðist fyrir um það og rætt var við Magneu Marínósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

  45. 838

    Mannfall og mannekla í Úkraínustríðinu

    Fjórum árum og fimm mánuðum eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu hefur stríðið milli landanna breyst mikið. Drónar hafa að miklu leyti tekið við af hermönnum í fremstu víglínu, en það breytir því þó ekki að mannfall er enn mikið í báðum herjum. Þá hefur mannfall líka stóraukist í röðum almennra borgara, beggja vegna landamæranna. Ein afleiðing þessa er sú að æ erfiðara verður að manna herina og hermálayfirvöld í báðum ríkjum hafa í æ ríkari mæli gripið til æ óvandaðri meðala til að fylla skörð þeirra sem falla og særast. Þær aðferðir mæta æ meiri andstöðu - sérstaklega í Úkraínu. Ævar Örn fjallar um þetta og einnig heyrist í Karli Garðarssyni, fyrrverandi þingmanni, sem verið hefur í Úkraínu að undanförnu. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  46. 837

    Valdaskipti í Bretlandi

    Húsbóndaskipti urðu í bústað breska forsætisráðherrans að Downingstræti 10 í Lundúnum í dag, þegar Keir Starmer flutti þaðan og Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri í Manchester og nýkjörinn þingmaður Verkamannaflokksins flutti þar inn. Bretar eru á meðal okkar næstu nágranna og helstu bandalags- og viðskiptaríkja, og því ekki úr vegi að forvitnast aðeins um þessi valdaskipti, ef það er rétta orðið, og þá sem þar eiga í hlut. Hvað gerði Starmer og hvað gerir Burnham? Ævar Örn ræddi þetta við Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðing, sem þekkir vel til breskra stjórnmála. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

  47. 836

    Fiskveiðistefna ESB - annar hluti

    Hvað felst í sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og er hægt að fá varanlegar undanþágur frá henni? Um þetta er tekist á í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB. Gunnar Þór Pétursson lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti segir engan vafa leika á því að mögulegt sé að semja um ýmsar undanþágur og sérlausnir, þótt það verði ekki endilega fyrirhafnarlaust. Fyrir slíku séu fjölmörg fordæmi. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Markús Hjaltason

  48. 835

    Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB

    Íslenskur sjávarútvegur, yfirráð Íslendinga yfir auðlindum hafsins í kringum Ísland og nýtingu þeirra - þetta er jafnan eitt mesta hitamálið þegar tekist er á um kosti og galla hugsanlegrar Evrópusambandsaðildar og jafnvel aðildarviðræðna. Áhrif inngöngu í ESB á þessu sviði eru sögð frá því að vera óveruleg allt upp í algjört afsal á stjórn og nýtingarrétti íslenskra fiskistofna til framkvæmdastjórnar ESB í Brussel - og allt þar á milli. En hver er sameiginleg stefna Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum? Spegillinn spurði Jóhann Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Hafrannsóknastofnunar að því. Hann tók þátt í að undirbúa sjávarútvegskaflann í aðildarumsókn Íslands á árunum 2009 til 2013, en þeim viðræðum var hætt áður en sá kafli var opnaður. Hlutverk Jóhanns var einkum að rýna í Evrópulöggjöfina og bera hana saman við þá íslensku. Hann þekkir því vel til sjávarútvegsstefnu ESB. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  49. 834

    Bílabólgan mikla - bílar stækka og stækka

    Bílar - ekki síst fólksbílar - hafa farið sístækkandi á alla kanta síðustu ár og áratugi, á sama tíma og bílunum fer fjölgandi - en meðalfjölskyldan minnkandi. Ný rannsókn á vegum regnhlífarsamtakanna Transport & Environment, sem beita sér fyrir umhverfis- og loftslagsvænni samgöngum, leiðir í ljós að frá aldamótum hafa fólksbílar - að meðaltali - lengst um 1,2 sentimetra á ári og hvorutveggja breikkað og hækkað um hálfan sentimetra á ári. Þetta þýðir að á fyrsta fjórðungi aldarinnar hafa þeir lengst um 30 sentimetra og hækkað og breikkað um 12 - 13 sentimetra - að meðaltali. Áhrif þessarar þróunar eru margvísleg og ekki endilega af hinu góða. Ævar Örn ræðir við Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  50. 833

    Stríð Bandaríkjanna og Írans II

    Það sem átti að verða stríð til að steypa klerkastjórninni í Íran hefur að talsverðu leyti þróast út í stríð um þá mikilvægu siglingaleið, Hormússund, sem bæði ríki vilja stjórna allri umferð um og jafnvel rukka fyrir - eða ekki. Annar ásteytingarsteinn, sem nauðsynlegt er að ryðja úr vegi ef nokkur von á að vera um eitthvað í líkingu við varanlegan frið, er árásarstríð Ísraela á Líbanon. Íranar líta á það sem hluta af því sama stríði sem þeir standa í gegn Bandaríkjunum - en Bandaríkjamenn eru á öðru máli. Mikilvægast er þó að semja um kjarnorkuáætlun Írana - og það vill til að til er ágætur samningur frá 2015 sem hægt er að miða við og vinna með - ef núverandi Bandaríkjaforseti fæst til að brjóta odd af oflæti sínu. Þetta segir Magnús Þorkell Bernharðsson prófessor í Miðausturlandafræðum við Williamsháskóla í Massachusetts, í seinni hluta viðtals Spegilsins við hann um stöðu og horfur í Íransstríðinu. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

HOSTED BY

RÚV

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Spegillinn have?

Spegillinn currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Spegillinn about?

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

How often does Spegillinn release new episodes?

Spegillinn has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Spegillinn?

You can listen to Spegillinn on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Spegillinn?

Spegillinn is created and hosted by RÚV.
URL copied to clipboard!