PODCAST · leisure
Svörtu tungurnar
by Hljóðkirkjan
Spilahópurinn Svörtu tungurnar talar um spunaspil. Þátturinn er tekinn upp í hvert skipti áður en við setjumst við spil í Svörtuloftum.
-
138
#0115 Nútíminn og Núvitund
Þátturinn er í boði Malbygg Við erum komnir til baka úr sumarfríi! Eigum við að vera með samviskubit yfir að vilja frekar spila en að vera með fjölskyldum okkar? Er nútíminn verri en fortíðinn? hvað í andskotanum eru Vitkarnir (öll kyn leyfð) að spá með að draga World of warcraft og Star Wars uppá borð? Verður Dark Sun okkar dnd Opus? Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Bjarni, Hannes, Hlynur og Lúlli – Tónlist: Simulacrum – Flytjandi: Scorching Ray Taylor
-
137
#0114 Sumarspil eða gervigreind
Þátturinn er í boði Malbygg Hvað gera spunaspilarar á sumrin? Er sami fílingur að kíkja í grámygluna í Baroviu á sumrin og á veturnar? Getur gervigreindin bætt spunaspila upplifun eða auðveldlega drepið eitthvað í okkur sem við notum til að skapa sögur og spennu? Svörtu tungurnar fara yfir víðan völl í síðasta þætti fyrir sumarfrí! Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Hilmir, Tryggvi og Lúlli – Tónlist: Simulacrum – Flytjandi: Scorching Ray Taylor
-
136
#0113 - Einhleypa í Borgó
#0113 Þátturinn er í boði Malbygg. Hvernig er hið fullkomna DnD ævintýri fyrir byrjendur? Bjössi og Tryggvi hafa nokkra daga til að búa það til með dyggri aðstoð Svörtu tungnanna og prufa það svo á nokkrum byrjendum í starfsmannahópi Borgarleikhússins. Hvað gæti farið úrskeiðis? Mættir voru Tryggvi Hlynur Hannes Bjössi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
-
135
#0112 Tveir úr Tungunum: Töfraveröld ímyndunaraflsins
Þátturinn er í boði Malbygg Ókei ókei ókei. Eftir harðorð bréf og andstyggilegar athugasemdir höfum við ákveðið að breyta titli þessa innslags yfir í "Tveir úr Tungunum". Þar setjast tvær tungur niður og ræða málin í þaula, almennilegt nörda trúnó. Að þessu sinni eru það Snæbjörn og Hjörtur sem eru mættir. Til stendur að spila hið æsispennandi spunaspil Draw Steel frá MCDM Productions. Bibbi fer yfir helstu þætti spilsins og þeir pæla í hvernig gera megi langdregna bardaga skemmtilegri, sem er nauðsynlegt þegar þú ert með spilahóp fullan af snarofvirkum athyglissjúkum spunadrottningum með athyglisbrest. Þeir fara yfir óheft ímyndunarafl barnsheilans og hvað við gerum til að reyna að endurheimta þá tilfinningu. Hvenær hætti maður að vera heillaður yfir smáatriðum á einhverju korti? Hvers vegna flækjum við hlutina með sögufléttum og flókinni heimssköpun þegar hægt er að spinna hvað sem er á staðnum og það er alveg jafn gaman? Hvernig nær maður að plata sig í að halda að eitthvað sem gerist á spilakvöldi sé gríðarlega mikilvægt þegar allir vita að þetta er auðvitað alltsaman tilbúningur frá rótum? Og hvað er í þessu andskotans bréfi sem Bjössi lét okkur fá í spili um daginn? Megum við opna það? Eigum við að opna það? Eða mun það bara þýða að spilið er búið og allir verða sendir heim... Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Hjörtur og Snæbjörn – Tónlist: Flight – Flytjandi: Scorching Ray Taylor
-
134
#0111 Brú milli guðdómsins og veruleikans
Þátturinn er í boði Malbygg Athugið að þátturinn inniheldur spilliefni um kvikmyndina Project Hail Mary. Hvað er list? Er listamanneskjan bara tilgerðarlegur aumingji sem á að fá sér alvöru vinnu? Eða það bara enn ein afleiðing brothættrar karlmennsku að geta ekki bara notið listar og sköpunar án þess að þurfa að smætta það? Og hvað í andskotanum hefur þetta með spunaspil að gera? Snæbjörn kafar á dýpið í sínu andlega ferðalagi um sína eigin innri rödd og raddbeitingu í spunaspilum, Hannes bjargar móður sinni, Óli veltir upp áleitnum spurningum um skoplist og eftirhermur, og Hjörtur rýnir í kvikmyndina Project Hail Mary á sinn hárbeitta og nákvæma hátt. Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélagsmiðla okkar en þar detta inn allskonar tíðindi og skemmtilegheit: Insta: www.instagram.com/svortutungurnar Vefsíða: www.svortutungurnar.is/ – Mættir eru: Hannes, Hjörtur, Snæbjörn og Óli – Tónlist: Dimension Door – Flytjandi: Scorching Ray Taylor
-
133
#0110 Beggi Brugg
#0110 Þátturinn er í boði Malbygg. Í þættinum í kvöld fáum við Begga vin okkar í heimsókn. Við ræðum um heima og geima, gervigreindar dómstóll, óvenjugóðir galdrar og galdramunir ofl ofl. Hlustið og þér munið heyra! Mættir voru Lúlli Beggi Bjarni Hilmir Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
-
132
#0109 Fúría, framtíð vitkanna og Daði halldórsson
#0109 Þátturinn er í boði Malbygg. Í þessum þætti ræðum við leikarasögu lúlla, módelið sem wizards of the coast eru að fara bjóða uppá? Er þetta að fara verða live service tölvuleikur? Er ekki nóg að eiga bara bækurnar. Spjallið færist svo yfir í frænda Tryggva. Hlustið og þér munið heyra! Mættir voru Lúlli Hannes Tryggvi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...