Episodes
-
#152 - Bjarni Ármannsson
Bjarni Ármanns er tölvunarfræðingur að mennt og starfar sem fjárfestir í dag. Hann rekur æskuárin á Akranesi en þrálát heilahimnubólga varð til þess að hann dró sig í hlé frá sjósókn, félagslífi og fótbolta en lærði í stað þess útsaum og las bókmenntir. Í örlagaríkri útskriftarferð nokkrum árum...
-
#151 - Baldvin Þór Magnússon, besti íþróttamaður sem Íslendingar vita ekki að þeir eiga
Baldvin Þór er Íslandsmethafi í 1.500m, mílu, 3.000m, 5.000m og 10km - með öðrum orðum: hann á Íslandsmetið í öllum þeim greinum sem hann reynir fyrir sér í, aðeins 23 ára gamall! Fáir hafa heyrt Baldvins getið en hann flutti ungur til Bretlands og þaðan yfir til Bandaríkjanna í háskólanám á...
-
#150 - Einar Sigurjónsson, þráhyggja fyrir þríþraut og leiðum til að bæta sig
Einar ,,Latsi'' Sigurjónsson er sjúkraþjálfari með þráhyggju fyrir þríþraut. Þó áhugi þinn á þríþraut og þolíþróttum nái ekki jafn langt og Einars þá talar hann hér um hluti sem varða heilsu allra og hvernig er hægt að bæta þá/nýta sér þá til að bæta sig: fitubrennsla, nýting kolvetna, zone 2...
-
#149 - Bubbi Morthens
Bubbi Morthens mætir sem opin bók og ræðir áföll í æsku, uppgjör við geranda sinn áður en hann myndi falla frá, steraneyslu eftir sextugt, hversu mikil neyslan og vanlíðanin var þegar hann sprakk út í vinsældum á Íslandi, að pumpa út hundruðum laga og leyfa ekki vinsældum að stjórna sér, hvernig...
-
#148 - Kristján Gíslason: Suður-Ameríka
Með hvatningarorðum föðurs síns heitins: "aldrei hætta að þora" hefur Kristján Gíslason ýtt sér út af beinu brautinni og ferðast um allan heim, einn síns liðs á mótorhjóli. Eftir mikla farsæld í viðskiptalífinu, vinnustundir myrkrana á milli, litla samveru með börnunum sínum og ofgnótt af...
-
#147 - Jón Gunnar Geirdal
JGG er atvinnuplöggari sem er sérlega fylginn sér. Hann hefur líklega séð og plöggað öllum bíómyndum og sjónvarpsseríum sem þú hefur heyrt af. Í þættinum ræðir hann forna tíma í útvarpi með menningarhetjum samfélagsins (Simmi, Jói, Auddi, Pétur), frasakonungs starfstitilinn og…
more -
#146 - Lárus Welding
Lárus Welding setti sér það markmið að gerast bankastjóri fyrir þrítugt eftir að hafa séð Bjarna Ármannsson gera slíkt hið sama 10 árum áður. "Það reyndust stór mistök," enda hvarflaði ekki að honum að í kjölfar 17 mánaða sem bankastjóri myndu fylgja 17 ár af málaferlum. Lárus segir á einlægan…
more -
#145 - Guðmundur Fertram, stofnandi Kerecis
Guðmundur Fertram bjó til 500.000kr. verðmæti úr þorskroði sem áður fyrr var hent eða brætt en nýtist nú til að bæta og bjarga mannslífum. Fyrir tíma Kerecis var efnafræðingurinn og rekstrarverkfræðingurinn forstjóri 250 manna fyrirtækis í Danmörku, aðeins 26 ára gamall, þegar dot-com bólan reið...
-
#144 - Rannveig Borg
Rannveig Borg starfar sem lögfræðingur hjá Adecco Group í Sviss, er tveggja bóka rithöfundur og meistaranemi í fíknifræði. Hún hefur starfað sem lögfræðingur í Frakklandi, Lúxemborg, Bretlandi, Íslandi og Sviss þar sem hún er núna búsett. Rannveig segir okkur frá náminu og námserfiðleikunum í...
-
#143 - Hjalti Karlsson
Hjalti Karlsson vissi ekkert hvert hann væri að fara með líf sitt þegar hann sótti um í Listaháskólanum til þess eins að fá höfnun frá honum. Þrátt fyrir brjálæðislega feimni náði lífið að leiða Hjalta til New York þar sem hann fékk inn í listaháskólann Parsons og þaðan í læri hjá Stefan...
-
#142 - Sigurlína Ingvarsdóttir
"The woman responsible for the year's biggest video game" eru orðin sem Fortune nota til að lýsa Sigurlínu Ingvarsdóttur, framleiðanda í afþreyingarbransanum sem er stærri en tónlist og stærri en kvikmyndir: tölvuleikir. Sigurlína er áhugasöm um flesta hluti en vélaverkfræðingur að mennt. Hún…
more -
#141 - Fida Abu Libdeh
Fida flutti 16 ára gömul frá Palestínu til Íslands. Það var forgangsatriði fjölskyldunnar að þau myndu mennta sig en Fida komst stutt í námi eftir áratug af námsörðugleikum, þar til hún fékk greiningu á lesblindu. Þar eftir nældi hún sér í hverja gráðuna á fætur annarri og lauk námi í umhverfis…
more -
#140 - Snæbjörn Arngrímsson
Harry Potter hafði áhrif á heilu kynslóðirnar en ekki jafn mikil áhrif á neinn mann og Snæbjörn Arngrímsson. Snæbjörn var 25 ára, þriggja barna faðir og eigandi forlagsins Bjarts þegar endurskoðandinn hans hringdi og spurði hvort skynsamlegt væri að halda rekstrinum áfram með svona stóra...
-
#139 - Sigurjón Sighvatsson
Sigurjón var poppstjarna, athafnamaður og íbúðareigandi - á meðan hann var í menntaskóla. Hann lauk bókmenntafræði, lærði kvikmyndagerð í Bandaríkjunum og hóf þar ótrúlegan feril sem framleiðandi þegar hann hann hitti á gullæð við framleiðslu tónlistarmyndbanda með kúnna á borð við Michael…
more -
#138 - Jón Ásgeir
Jón Ásgeir seldi poppkorn og leigði út rugguhesta á unglingsaldri, labbaði svo út úr menntaskóla til að opna Bónus með pabba sínum og fór þaðan til Bretlands þar sem hann kom auga á og framkvæmdi þrjár stærstu og best heppnuðustu yfirtökur á smásölumarkaði þar í landi á síðari árum. Allt með…
more -
#137 - Ingvar Ómarsson
Ingvar Ómarsson tileinkar lífi sínu því að fara hraðar á hjóli. Það gengur þokkalega en Ingvar er 32x Íslandsmeistari í hjólreiðum og okkar eini atvinnumaður í sportinu. Við ræðum hvernig Novator gerði honum kleift að gerast atvinnumaður, óhefðbundið mataræði Ingvars og lífshættulegan árekstur…
more -
#136 - Steinunn Sigurðardóttir
Steinunn Sigurðardóttir er fremsti fatahönnuður landsins. Eftir útskrift frá Parsons í New York starfaði hún náið með Ralph Lauren og Calvin Klein. Steinunn fluttist heim og eignaðist fatlaðan dreng en lét það ekki stoppa sig frá því að lifa sínu lífi, var ráðin inn til Gucci og flaug til og frá...
-
#135 - Baltasar Kormákur
Baltasar Kormákur segir frá ótrúlegum tímum 18 ára gamall á búgarði í Arizona, hvernig hann tók skrefið úr leiklistinni yfir í leikstjórnina og hefur aldrei beðist afsökunar á því að ganga vel, að taka ekki fyrsta boðinu inn í Hollywood með tilheyrandi lífsstíl og neyslu, hvernig Mýrin varð...
-
#134 - Ólafur Stefánsson
Ólafur Stefánsson ræðir vegferðina að því hvernig hann varð besti handboltamaður heims eftir að hafa ekki verið valinn í landsliðsúrtak og komast ekki inn í læknisfræðinám. Eftir ferilinn fór Óli í 7 ára ferðalag, kynntist sjálfum sér, upplifði það sem hann hafði lesið um og er núna kominn aftur...
-
#133 Gísli og Erlingur - stofnendur Controlant
Starfsmönnum Controlant fjölgaði úr 50 í 350 og tekjurnar úr 400 milljónum í 8 milljararða á aðeins 2 árum. Controlant varð landsþekkt á örskömmum tíma þegar samstarf þess við Pfizer og vöktun bóluefna gegn Covid-19 var handsalað. Það er freistandi að kalla þetta 'overnight success' en ef horft…
more -
#132 - Mari Järsk
Mari er ultrahlaupari sem gerði bakgarðinn frægan þegar hún hljóp 288km fyrr í vor. Hér fer hún yfir uppeldisaðstæður í Eistlandi, fíkn foreldra sinna, lífið í sveitinni án uppeldis og menntunar, að vera tekin frá foreldrum, SOS barnaþorpin, flutninga sína til Íslands, uppgjör við æskuna, all-in...
-
#131 - Villi Vill
Óskabarn Napólí fer hér yfir stormasaman feril í stúdentapólitík og stjörnulögfræði: lögreglufylgd af fótboltaleik til að halda ræðu á Bessastöðum, ritgerðarmálið sem þurrkaði atvinnutækifærin út af borðinu og neyddu Villa til að flytja á Skagaströnd, Landsréttarmálið og stærsta málsflutningur...
-
#130 - Reynir Finndal Grétarsson
"Við eigum bara daginn í dag. Það er það eina sem við höfum og hann þarf bara að vera góður. Hver einasti dagur þarf að vera góður." Reynir seldi fyrirtæki og er í dag fjárfestir sem byggir hús, mokar skít og gróðursetur tré. Hann heldur fjarlægð frá peningum og fær aðra til að sjá um þá fyrir…
more -
#129 - Andri Þór Guðmundsson
"Eitt af mínum stærstu markmiðum var að öðlast innri ró. Þú lifir ekki lífinu fyrir aðra, þú lifir lífinu fyrir sjálfan þig. Ég átti pabba sem var alkóhólisti og það er ákveðið átak að brjótast út úr því og taka stjórn á lífinu. Þú þarft stundum að taka erfiðar ákvarðanir og erfiða slagi sem eru...
-
#128 - Gústi bakari
Ágúst Einþórsson setti á laggirnar Brauð & Co. árið 2016 og kröfur Íslendinga til súrdeigsbrauðs og kanilsnúða breyttust til frambúðar. Margt var í gangi bakvið tjöld vinsælasta bakarís landsins enda Gústi lunkinn í að lenda upp á kant við fólk að eigin sögn. Forsaga og eftirmálar bakarísins eru...
-
#127 Þórður Pálsson - Forstöðumaður fjárfestinga
"Covid niðursveiflan var miklu harðari en ég bjóst við og ég held að niðursveiflan núna sé miklu alvarlegri en nokkurn tímann Covid." Þórður Pálsson er forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og fyrrverandi yfirmaður greiningardeildar Kaupþings. Í þættinum er farið yfir breitt svið…
more -
#126 - Aníta Briem
Aníta var einungis 24 ára gömul þegar hún landaði aðalhlutverki í Hollywood stórmyndinni Journey to the Center of the Earth. Í dag er hún flutt heim og hefur aðra sýn á glansmynd Hollywood-framleiðslunnar. Aníta ræðir agann sem henni tókst að beina í átt leiklistarinnar til að láta drauma sína...
-
#125 - Erpur Eyvindarson
Þriggja tíma uppistand frá listamanninum Erpi Eyvindarsyni. Kennarasonurinn alinn upp á finnska mátann deilir skoðunum á Könum vs. Finnum, siðareglum mismunandi þjóða (djúpsteikt sushi, Víetnamskar stríðsgildrur og heiðnir siðir), upplestur úr Mein Kampf á afmælishátíð Laxenss (13 ára gamall)…
more -
#124 - Brynjar Karl
"You can't make a pig a race horse, but you can make a pretty fast pig" - Þetta hefur alltaf fests með mér, mér finnst svo gaman að þjálfa svín. Mér finnst svo gaman þegar svínin pakka veðhlaupahestunum saman. Brynjar Karl, stofnandi og eigandi Sideline Sports (hugbúnaður notaður af færustu...
-
#123 Sölvi Blöndal - forsprakki Quarashi og hagfræðingur ársins
"Ég hafði ekki áhuga á að vera í þessu lífi eina sekúndu í viðbót. Ég ætlaði aldrei að snerta kjuðana aftur og það var svo góð tilfinning. Það er besta tilfinning sem ég hef fengið að hætta í Quarashi." Sölvi Blöndal einsetti sér að verða besti trommari í heimi og nýstofnuð hljómsveit hans,...
-
#122 Rafn Franklín - ábyrgð á eigin heilsu
Rafn Franklín lifir á jaðri heilsueflingarinnar, prófar hluti á eigin skinni og safnar saman í góðan upplýsingabanka sem við flettum gegnum í þessu viðtali. Umhverfið stýrir lífsstíl okkar í vitlausa átt og það er krefjandi áskorun að vinna gegn því. Við tölum um ákvarðanir okkar og afleiðingar...
-
#121 - Gerður Arinbjarnardóttir
Gerður er eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, sem er bæði framúrskarandi fyrirtæki og skuldlaust. Hún er ekki hámenntuð í viðskiptum og markaðsfræði, raunar hefur hún hvorki lokið háskóla- né menntaskólagöngu, en hlaut nýverið titilinn Markaðsmanneskja ársins. Aðferðir Gerðar eru einfaldar…
more -
#120 - Björn Hlynur Haraldsson
"Ég mætti í viðtal og hraunaði yfir allt, nýútskrifaður pjakkur, sagði að allt væri ömurlegt og að fólk þyrfti að rífa sig í gang. Eldri stórleikarar sögðu við mig: Þú ert bara game over kallinn minn." Björn Hlynur hefur ekki farið framhjá þér síðustu misseri með stórleik í Verbúðinni, Ófærð,...
-
#119 Björn Hjálmarsson - sérfræðilæknir á BUGL
Björn Hjálmarsson, sérfræðilæknir á barna- og unglingageðdeild, ræðir um tengslakerfið sem öflugasta vopnið gegn hugrænum þjáningum, hvernig þessar þjáningar birtast okkur í samfélaginu, stirnunarkerfið, lítil hrædd börn í líkömum fullorðinna einstaklinga, sjúkdómsvæðing sorgarinnar og flóttann…
more -
#118 - Þorgrímur Þráins
Fáir sem ekki flokkast undir starfsstétt kennara hafa eytt jafn miklum tíma inni í skólastofum landsins og Þorgrímur Þráinsson. Eftir 13 ár af fyrirlestrum innan veggja skóla landsins deilir Þorgrímur fast mótuðum skoðunum sínum á hegðun samfélagsins gagnvart börnum, greiningu á vandamálinu sem...
-
#117 - Guðni Gunnarsson
"Hvað þekkir þú marga sem eru ekki fórnarlömb? Sem eru ekki að ásaka sig eða annan, ásaka ríkisstjórnina, sem eru ekki að réttlæta sína tilvist og afsaka sig? Af hverju? Því það er einhver ávinningur af því að vera fórnarlamb í eigin sögu. Þá geturu réttlætt vanmátt þinn og útskýrt af hverju þú...
-
#116 - Jóhannes Ásbjörnsson
Fjölmiðlastjarnan sem var hafnað af LHÍ, fór að vinna í banka, hélt vinnunni í hruninu en sagði sjálfur upp til að opna veitingastað. Jói Ásbjörns hefur komið við á nánast öllum hefðbundnari miðlum og slegið í gegn í þáttum eins og Mono, 70 mínútur, Idol og Wipeout - þrátt fyrir að fjölmiðlarnir...
-
#115 - Baldvin Z
Baldvin Z leikstýrði Óróa, Vonarstræti, Lof mér að falla og nú síðast sjónavarpsþáttunum Svörtu Sandar. Hann fór ungur fram úr sjálfum sér með hljómsveitinni sinni, Toy Machine, þar sem þeir voru á brún þess að meika það í Bandaríkjunum en klúðruðu málunum í örlaga ríkri ferð sem kenndi Baldvini...
-
#114 - Dagur B. Eggertsson
Mikið hefur gengið á í Reykjavíkurborg og hjá borgarstjóra hennar síðustu áratugi. Líklegast það súrealískasta kjör Jóns Gnarrs sem borgarstjóra en Dagur lýsir þeirri atburðarrás frá sínu sjónarhorni í þættinum ásamt því hvernig hann ákvað að hrista upp í sjálfum sér og aflæra pólitíska framkomu...
-
#113 - Alfreð Gíslason
Núverandi þjálfari Þýska landsliðsins og einn farsælasti handboltaþjálfari sem við Íslendingar eigum. Alfreð Gíslason hefur ekki ennþá komist að því af hverju hann er eins og hann er, áhugi er léleg lýsing á dellunum sem hann fær en metnaðurinn og vinnusemin í bland leiðir hann að ótrúlegum...
-
#112 Kristján I. Mikaelsson - Er verðbólgan að éta upp bestu ár lífs þíns?
Peningar, fasteignir, gull, Bitcoin og Charizard í glansi eru allt sjaldgæfir hlutir en það sjaldgæfasta, og verðmætasta, sem þú munt nokkurn tímann eiga er tíminn þinn. Er skynsamlegt að skipta tímanum þínum, sem þú munt aldrei eignast meira af, fyrir gjaldmiðil sem rýrnar í virði? Hvað ertu að...
-
#111 - Máni Pétursson
Harmageddonbróðirinn sem veður í allt og alla en er á sama tíma markþjálfi sem les sjálfshjálparbækur. Máni rekur sögu Harmageddon og vinskap sinn við Frosta sem hófst eftir neyslutímabil og meðferð um tvítugsaldurinn. Einn daginn, reykjandi kannabis, fattaði hann að það mun enginn banka upp á og...
-
#110 Kristján Gíslason - Ekki vera fullkomin, sleppið af ykkur beislinu
Með hvatningarorðum föðurs síns heitins: "aldrei hætta að þora" hefur Kristján Gíslason ýtt sér út af beinu brautinni og ferðast um allan heim, einn síns liðs á mótorhjóli. Eftir mikla farsæld í viðskiptalífinu, vinnustundir myrkranna á milli, litla samveru með börnunum sínum og ofgnótt af...
-
#109 Matthew Walker - Svefn í skammdeginu, orkudrykkir, koffínneysla og andleg heilsa
Dr. Matthew Walker er prófessor við Berkeley háskóla og sérfræðingur í svefni, sálfræði og taugalífeðlisfræði. Fókus þáttarins eru aðstæðurnar sem Íslendingar lifa við, áhrif þessara aðstæðna á svefninn okkar og hvað við getum gert til að jafna leikinn. Gefðu þér klukkutíma til að hlusta á…
more -
#108 Gunnar Karl - Vinna, tapa og endurheimta Michelin stjörnuna
Þrátt fyrir að hafa bæði opnað og nefnt B5 er Gunnar Karl líklega þekktastur sem eigandi Dill. Brösótt byrjun staðarins (þar sem eigendurnir lokuðu staðnum nokkur kvöldin og fóru sjálfir út að borða) benti ekki til að þetta yrði eini Michelin staður landsins í náinni framtíð. Gunnar hefur farið...
-
#107 Júlían J.K. - Hvernig skal styrkjast
Júlían er einn af þremur kraftlyftingamönnum sem hafa hlotið titilinn Íþróttamaður ársins og er þar með settur í flokk ásamt Skúla Óskarssyni og Jóni Páli Sigmarssyni. Hann á heimsmet í réttstöðulyftu, vegur 160 kíló og hefur tvöfaldað samanlagðan árangur sinn í kraftlyftingum á síðasta áratugi....
-
#106 Einar Vilhjálmsson - Efling hins megnuga sjálfs
Einar Vilhjálmsson er einn mesti íþróttamaður sem Íslendingar hafa átt. Hann var íþróttamaður ársins árið '83 '85 og '88 og árið 1985 var hann stigahæsti frjálsíþróttamaður heims þvert á allar frjálsíþróttagreinar. Keppnisferill Einars spannar um 220 mót í 22 löndum og hafnaði hann á…
more -
#105 - Hilmir Snær
Leikarinn sem er búsettur í 101 og elskar latte en vill helst verða bóndi. Hilmir Snær er einn af okkar ástsælustu og ræðir hér Fóstbræður og grínið, hestamennskuna, sjómennskuna, flogaveikina og að verða of meðvitaður um sjálfan sig á sviði.
-
#104 Arnar Gunnlaugs - Frá Akranesi í Meistaradeildina, gegnum góðæri og gjaldþrot og ástríðan fyrir þjálfun
Skagatvíburarnir Arnar og Bjarki héldust í hendur gegnum fyrri hluta ævinnar: Íslandsmeistarar í badmintoni, Íslandsmeistarar í fótbolta, yngri landsliðin, A landsliðið og atvinnumennskan. Þegar meiðsli enduðu ferilinn var Arnar kominn með nóg af fótbolta og hafði engan áhuga á þjálfun....
-
#103 Snorri Magnússon - Örvun hreyfiþroska barna
Það var rækilega skellt á andlitið á honum þegar Snorri Magnússon, sundkennari og þroskaþjálfi, hóf að kenna ungbarnasund hér á landi fyrir 30 árum. Hann ákvað því að kenna sínum eigin börnum en forvitnir foreldrar af fæðingadeildinni fengu að fljóta með. Í dag hefur Snorri kennt rúmlega 7.000...