PODCAST · society
Trivíaleikarnir
by Daníel Óli
Trivíaleikarnir færa pub quiz stemninguna beint heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Tvö tveggja manna lið etja kappi í léttri og skemmtilegri spurningakeppni þar sem spurningar um allt milli himins og jarðar dynja á keppendum. Hvort sem þú elskar pub quiz og spurningaspil eða veist varla hvað Gettu Betur er, að þá er eitthvað fyrir þig í Trivíaleikunum. Hlustaðu, hlæðu með okkur og lærðu eitthvað nýtt í leiðinni. Fáðu fleiri þætti í hverjum mánuði með áskrift á Patreon: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
Episodes
-
58. Halloween-leikarnir (þemaþáttur)
Fyrsti Halloween þátturinn í sögu Trivíaleikanna! Djöfullegur Daníel settist niður með liðunum tveimur og skaut hátt í 50 alblóðugum og hryllilegum hrekkjavökuspurningum á þau án afláts. Andsetinn Arnór og Jarðafarar-Jón mættu Myrkrahöfðingjanum Magnúsi og Martraðar-Marínu í stúdíói sem sett var...
-
57. Ég kom, ég sá, ég Kröddaði
Jæja sumarfríið er á enda og Trivíaleikarnir snúa aftur með hvelli! Við droppuðum líka 9 þáttum á Patreon í sumar - tékkaðu á því og þig mun aldrei skorta þátt. Að þessu sinni kíktu Kristján, Ingi, Öddi og Heiðdís María í stúdíóið í einn löðrandi sveittan þátt af smáþekkingu og fróðleik. Hvaða...
-
Refskák II (Patreon þáttur)
Já það er smá sumarfrí í gangi hjá okkur í Trivíaleikunum og því enginn þáttur í júlí - en það er aldrei sumarfrí á Patreon og því bjóðum við hlustendum í staðinn upp á einn af nýju Patreon þáttunum okkar til að prófa. Arnór Steinn, Heiðdís María, Ingi og Marín Eydal kíktu öll í stúdíóið til...
-
56. Suðumark - hlustist til enda*
Já það er komið að fimmtugasta og sjötta þátt Trivíaleikanna og aldrei verið mikilvægara að hlusta á allan þáttinn til enda en nú. Það sauð upp úr og ofan í stúdíóinu en að þessu sinni skellti Öddi sér í dómarasætið og Jón Hlífar, Daníel, Ingi og Heiðdís María öttu kappi. Hver er hinn gríski guð...
-
55. Stefán Gyrðir og Glæsibærinn
Já það er komið að fimmtugasta og fimmta þætti Trivíaleikanna - afsakið hve seint þessi þáttur kemur út, það hefur verið erfitt að ná tökum upp á síðkastið. Shoutout líka á nýja sponsorinn okkar Frisbígolfbúðinni - tékkið á þeim í Glæsibænum! Í þennan kyngimagnaða þátt mættu þau Arnór, Heiðdís,...
-
54. Magnus Carlsen lausnin
Fimmtugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna, í stúdíóið mættu Daníel Óli, Kristján, Ingi og splunkunýr keppandi úr fortíðinni, Bjarni Halldór sem keppti við Daníel, Arnór og Inga eitt sinn í Gettu Betur en Arnór Steinn skellti sér einmitt í dómarasætið að þessu sinni og því um sannkallaða...
-
53. Kröddi og cuckstólarnir
Já það er komið að 53. þætti Trivíaleikanna en að þessu sinni kíktu þeir Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Öddi í sjóðblautt stúdíó hlaðvarpsins. Hvaða tveimur löndum í Suður-Ameríku á Brasilía ekki landamæri að? Hvað hefur hver spilari mörg spil á hendi þegar spilaður er skítakall með hefðbundnum...
-
10P. Rottan í horninu (Patreon þáttur)
Vegna gríðarlegra anna spurningahöfundar að þá hefur þáttur mánaðarins tafist um nokkra daga - við vildum þó brúa aðeins bilið fyrir ykkur kæru hlustendur og leyfum ykkur því að heyra einn gamlan Patreon þátt frá því í haust í millitíðinni. Njótið vel kæru hlustendur og endilega kíkið á Patreon…
more -
52. 2000's-leikarnir (þemaþáttur)
Fimmtugasti og annar þáttur Trivíaleikanna og þið vitið hvað það þýðir, þemaþáttur! Að þessu sinni varð fyrsti áratugur 21. aldarinnar fyrir valinu eða 2000's þema. Tvö kunnugleg lið, Arnór Steinn og Marín Eydal kepptu við Jóni Hlífari og Kristjáni í svakalegum 2000's slag þar sem Britney Spears,...
-
51. Formalínið hans Gísla Marteins
Já það er komið að nýjum þætti. Að þessu sinni skellti Arnór Steinn sér í dómarasætið og okkar eigin Ingi & Haraldur Örn tóku á móti glænýjum keppendum Þorra Líndal & Andreu í svakalegum þætti. Úr hvaða ávöxt eru sveskjur myndaðar? Hvaða knattspyrnulið hét upprunalega Newton Heath? Þetta og margt...
-
Jóladagatalið 2025 (tilkynning)
VIÐ ERUM AÐ GEFA ÚT JÓLADAGATAL Í ÁR! Dagatalið inniheldur sjö þætti af Trivíaleikunum sem byrja að droppa 1. desember nk. og svo droppar nýr þáttur áfram á 3-4 daga fresti alveg fram að Jólum þegar lengri úrslitaþáttur droppar á aðfangadagsmorgun! Um er að ræða fyrstu útsláttarkeppni í sögu...
-
50. Live á Arena (50th episode special)
Við fögnum 50 þáttum af Trivíaleikunum með fyrsta live þættinum okkar, sem tekinn var upp á Arena í Kópavogi þann 17. okt 2025 fyrir framan fullan sal. Við erum ennþá agndofa yfir móttökunum sem við fengum - takk allir sem mættu og allir sem hlusta og gera okkur kleift að halda þessari veislu...
-
49. Við rændum Pittinum
Já þið lásuð rétt kæru hlustendur, við fengum stórmeistarana Braga Þórðarson og Kristján Einar Kristjánsson úr Pitturinn Podcast til að kíkja við í stúdíóið með tilheyrandi gleðskap og formúlufróðleik. Kristján Einar og Kristján úr Trivíaleikunum mynduðu lið og Bragi ásamt okkar allra besta Inga...
-
Fimmtugasti þáttur live á Arena! (tilkynning)
Já þú last rétt við tökum upp 50. þátt Trivíaleikanna live á Arena í Kópavogi þann 17. október klukkan 20:00 ekki láta þig vanta á þennan stórviðburð!
-
48. Eitt þúsund ár af skírlífi
Já það er komið að fertugasta og áttunda þætti Trivíaleikanna. Í sjóðblautt stúdíóið mættu Arnór Steinn, Jón Hlífar, Kristján og Ingi. Hart var barist og mikið svitnað, ekki missa af þessari veislu! Hvort var það Benito Mussolini eða Voldemort sem sagði "Mikilleiki vekur öfund, öfund elur illsku,...
-
47. Blái mörðurinn
Fertugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni brá hópurinn sér í stúdíó Sánu að nýju og okkar allra besti Kristján settist í fyrsta sinn í spyrils- og dómarasætið. Tvö þungarvigtarlið tókust á í kjölfarið en Daníel og Ingi mættu Arnóri og Jóni í títanískum hamfaraslag vitsmuna og...
-
46. Kröddi og grunsamlega þunga skútan
Já það er komið að fertugasta og sjötta þætti Trivíaleikanna og að þessu sinni var þátturinn algjör negla. Marín Eydal og Daníel Óli mynduðu stórskemmtilegt teymi sem tókst á við hörkusterkt lið Ödda og Kristjáns á meðan að Arnór Steinn vermdi þáttastjórnendasætið. Júlí markar tímamót í sögu...
-
Fleiri þættir & ódýrari áskrift (tilkynning)
Já þú last rétt! Við erum að fjölga fjölda þátta af Trivíaleikunum sem við gefum út í hverjum mánuði og lækka áskriftargjaldið sömuleiðis, sturlað! Hlustaðu á kynninguna, skelltu þér á Patreon og vertu með okkur í veislunni!
-
6P. Nespresso Halli (Patreon þáttur)
Við vildum leyfa ykkur öllum að prófa að hlusta á einn af þeim fjölmörgu frábæru þáttum sem við erum að bjóða upp á inni á Patreon þessa dagana. Kíktu á Patreon vef okkar, komdu í áskrift og fáðu hátt í 20 þætti sem eru þar inni nú þegar! Heyrst hefur að áskriftargjaldið hafi lækkað á síðustu...
-
45. Lana Del Reykjavík
Fertugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Arnór Steinn, Ástrós Hind, Jón Hlífar og Kristján í gamla góða stúdíó 9A seint á þriðjudagskvöldi. Chi-húa-húa og Lanmótið Lana Del Reykjavík - ekki missa af þessari veislu. Nafn hvaða eftirréttar merkir á ítölsku „eldaður rjómi.”...
-
44. Íslensk skyrglíma
Fertugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Kristján og Hnikarr þeim Inga og Ödda í títanískum reginslag í gamla góða stúdíói 9A. Ekki missa af þessari skyrþöktu veislu! Hver var fyrsta skáldsagan sem var skrifuð í allri heild sinni á ritvél? Hvaða tæknirisi framleiddi fyrsta...
-
43. Imodium félagar
Fertugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu Kristján, Jón Hlífar, Ingi og Heiðdís María í upprunalega stúdíó hlaðvarpsins, hið yndislega Stúdíó 9A. Ekki missa af þessari Imodium veislu. Hvert er fjölmennasta landlukta land heims? Hvað gefur verðmætasta prikið í Míkadó mörg...
-
42. 80's-leikarnir (þemaþáttur)
Já þið lásuð rétt, það er loksins komið að þemaþætti! Að þessu sinni vorum við með kosningu á Instagram þar sem hlustendur sendu inn tillögur og níundi áratugurinn (80's) var valinn úr þeim uppástungum. Magnús Hrafn og Jón Hlífar tóku á móti Daníel Óla og Kristjáni í gamla góða stúdíó 9A en í...
-
Heima Quiz III (Patreon þáttur)
Já þið lásuð rétt - við ætlum að leyfa ykkur að prófa einn af Patreon þáttunum okkar frítt. Heima Quiz er í rauninni Pub Quiz sem þú getur spilað heima hjá þér eða hvar sem þú ert. Þú getur ýmist keppt á móti Inga og Kristjáni eða keppt við maka, vin, foreldra eða hvern sem er - þú ræður…
more -
41. Sumarbúðir í Jemen
Fertugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í þennan kyngimagnaða þátt mætti Haraldur Örn frá hlaðvarpi Fótbolti.net þar sem hann er með spurningakeppnisþáttinn "Fótbolta nördinn." Í liði með Haraldi var enginn annar en okkar allra besti Stefán Geir en á móti þeim tveimur keppti eitt...
-
40. Krókódílar, baunir og kokteilar
Fertugasti þáttur Trivíaleikanna en að þessu mættu Marín Eydal og Ingi þeim Kristjáni og Hnikarri sem létu vel um sig fara í Stúdíó Frystikistu. Hvert er enska og þekktara heiti eitursins Kristspálma? Hvaða íslendingur lék stórt hlutverk í lokaseríu sjónvarpsþáttanna um Dexter? Þetta og margt…
more -
Pub Quiz Trivíaleikanna (tilkynning)
Já þið lásuð rétt! Þann 05. desember 2024 klukkan 21:00 verða Trivíaleikarnir með Pub Quiz í Arena Kópavogi. Hlustaðu á kynninguna og ekki láta þig vanta á fimmtudaginn næsta!
-
39. Við rændum Villa Naglbít
Þrítugasti og níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni rændum við tónlistarmanninum og spurningaþáttagoðsögninni Vilhelm Antoni eða Villa Naglbít eins og hann er kallaður og buðum honum sæti í ísköldu stúdíó Sána. Auk hans mættu til leiks Trivíaleikakempurnar Arnór Steinn, Ingi og Kristján í...
-
38. Kanilhellar í Egyptalandi
Þrítugasti og áttundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mætti stórgott lið Jóns Hlífars og Kristjáns sterku liði Arnórs Steins og Inga í Stúdíó Sánu. Ekki missa af þessari rjúkandi heitu skemmtun af hlaðvarpsþætti, komdu þér fyrir, ýttu á play og njóttu vel. Hvaða land sem liggur ekki að sjó...
-
37. Ljúfmundur snýr aftur!
Þrítugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni hefur lukkudýr hlaðvarpsins snúið aftur í framhaldsþætti sem allir hafa beðið eftir! Marín Eydal og Arnór Steinn tókust á við sterkt lið Ástrósar Hindar og Kristjáns í gígantískum vitsmunaslag í hinu gamla og góða stúdíói 9A. Hvert er...
-
36. Hundrað ára mjálmsemd
Þrítugasti og sjötti þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni mættu Magnús Hrafn, Ástrós Hind, Ingi og Kristján til leiks í stúdíó Sána. Ekki missa af þessari veislu og hlustaðu á hundrað mismunandi leiðir til að mjálma vitlaust. Undir hvaða listamannsnafni er tónlistarmaðurinn Richard Starkey…
more -
35. Eldborg, ælubogar og gaddavír
Þrítugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna en Daníel er mættur aftur og tók á móti Stefáni Geir, Jóni Hlífari, Kristjáni og Inga í meðalheitu stúdíó Sána. Er ælubogi færeyskt orð yfir hringtorg eða regnboga? Hvaða land hefur flesta staði á heimsminjaskrá? Hvaða áfengi drykkur er notaður þegar…
more -
34. Fúeró Brúedós
Þrítugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna, Daníel er ennþá týndur en það er víst góð ástæða fyrir því samkvæmt spurningahöfundi þáttarins Arnóri Steini. Að þessu sinni mættu Marín Eydal, Ástrós Hind, Heiðdís María og Ingi í löðrandi heitt stúdíó undir súð í Grafarvoginum þar sem spænskunni var...
-
33. Ozempic ævintýri
Þrítugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni brá Arnór Steinn sér í dómarasætið þar sem Daníel er stunginn af út á land yfir sumarið. Kristján og Jón Hlífar tókust á við Inga og Heiðdísi Maríu í löðrandi sveittu stúdíói 33 þar sem engu var til sparað. Hvers konar matvæli er…
more -
32. 90's-leikarnir (þemaþáttur)
Þrítugasti og annar þáttur Trivíaleikanna en að þessu sinni er það þemaþáttur um tíunda áratuginn. Arnór Steinn og Daníel Rósinkrans fara um allar trissur tíunda áratugarins er þeir taka á móti Jóni Hlífari og Kristjáni í 90's slag sem lætur Jean-Claude van Damme líta út eins og nýfæddan kettling...
-
31. Tveir plús tveir fellar
Þrítugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í stúdíó 9A mættu að þessu sinni meistararnir Einar og Óli úr hlaðvarpinu vinsæla Tveir Fellar. Einar gekk til liðs við okkar allra besta Inga og Óli plús Kristján mynduðu saman ofurliðið "Króli." Í þessari viku opnuðum við einnig fyrir áskrift að...
-
Framtíð Trivíaleikanna (tilkynning)
Stærsta tilkynning í sögu Trivíaleikanna! Vertu með og komdu í áskrift: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
-
30. Smá vísindi fyrir börnin
Þrítugasti þáttur Trivíaleikanna! Í þennan stórmerkilega tímamóta þátt mættu þau Ástrós Hind, Magnús Hrafn, Ingi og Arnór Steinn í stúdíó 9A og létu til sín taka. Hver er fjölmennasta þjóðin sem hefur aldrei unnið til verðlauna á Ólympíuleikum? Hver er mest seldi PEZ karl allra tíma? Hvaða…
more -
29. Við rændum landsliðsmanni í handbolta
Tuttugasti og níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mætti atvinnu- og landsliðsmaðurinn í handbolta Donni Kristjáns ásamt góðvini sínum Tomma í stúdíó 9A. Á móti þeim tóku reynsluboltarnir Kristján og Ingi í hörkuslag þar sem reynt var á nýtt fyrirkomulag nokkurra spurningaliða. Hver er...
-
28. Rapphljómsveitin Genghis Khan
Tuttugasti og áttundi þáttur Trivíaleikanna. Til leiks mættu Jón Hlífar, Marín Eydal, Kristján og Ástrós Hind í stúdíó 9A. Hver var Borgarstjóri Reykjavíkur áður en að Jón Gnarr tók við embættinu árið 2010? Hvert er algengasta fyrsta eiginnafn kvenna á Íslandi sem hefst á bókstafnum „E”? Af hvers...
-
27. Jólaleikarnir (bónusþáttur)
Tuttugasti og sjöundi þáttur Trivíaleikanna og fyrsti bónusþáttur í sögu hlaðvarpsins! Í bónusþáttum leyfum við okkur að breyta út af venjulega formattinu og prófa nýja dagskrárliði, ný þemu og algjörlega ný formött. Að þessu sinni var Jólaþema tekið fyrir og mættu til leiks bræðurnir Valdi og...
-
26. Þunglyndur á hnetubar í Vín
Tuttugasti og sjötti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu Marín Eydal og Arnór Steinn þeim Kristjáni og Hnikarri Bjarma í títanískum slag vitsmuna og kómedískrar fagurfræði. Hvaða tvö tónskáld sömdu The Sound of Music? Hvaða söngkona átti smellinn Milkshake sem kom út árið 2004? Sýklalyf…
more -
25. Heyrðu, ég er með ristil!
Tuttugasti og fimmti þáttur Trivíaleikanna. Við opnum þáttinn með glænýju og geggjuðu þemalagi en að þessu sinni mættu reynsluboltarnir Ingi og Kristján til leiks á móti Leifi úr 20. þætti og bróður hans Bjarka. Hvaða rómantíska gamanmynd átti upprunalega að heita 3000? Um hve margar gráður…
more -
24. Erótískt skeggnudd
Tuttugasti og fjórði þáttur Trivíaleikanna. Jón Hlífar og Marín Eydal tóku á móti Ástrós Hind og Kristjáni í rosalegum þætti af hlaðvarpinu skemmtilega. Hvaða hljómsveit ber skammstöfun sem stendur fyrir Bangtan Sonyeondan? Hver var fyrsta þjóðin til að senda kött út í geim? Hvers konar baunir…
more -
23. Líkamsverkfræðingur að mennt
Tuttugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna sem útvarpað var í beinni á Útvarp Mosfellsbæ sem partur af bæjarhátíðinni Í túninu heima. Arnór Steinn og Ástrós Hind tóku á móti Inga og Kristjáni í hörkuþætti þar sem snert var á einu og öðru úr heimabæ hlaðvarpsins. Hvert er lengsta fljót...
-
22. Tölvuleikarnir (þemaþáttur)
Tuttugasti og annar þáttur Trivíaleikanna sem og annar þemaþátturinn í sögu hlaðvarpsins. Að þessu sinni var þemað tölvuleikir sem þýðir að allar spurningar þáttarins snúast um tölvuleikjasenuna en í þáttinn mættu tveir fyrrum keppendur Arnór Steinn og Marín Eydal en einnig Óli Jóels og Daníel...
-
21. Flautarinn í Rotterdam
Tuttugasti og fyrsti þáttur Trivíaleikanna en í þessum þætti mættu gömlu reynsluboltarnir til leiks í stúdíó 9A þegar Jón Hlífar og Magnús Hrafn tókust á við Kristján og Inga í einhverjum rosalegasta þætti hlaðvarpsins hingað til. Frá hvaða landi kemur rétturinn Massaman Karrí upprunalega, í…
more -
20. Djúnessekva og aðrir söngvar
Tuttugusti þáttur Trivíaleikanna en í þennan tímamótaþátt mættu tveir nýjir keppendur til leiks Valdi og Leifur frá borðspilahlaðvarpinu Pant vera Blár! Kristján og Ástrós mættu til leiks á ný eftir svekkjandi endi á síðasti þætti og freista þess hér að sækja sigur í hinu goðsagnakennda stúdíó…
more -
19. Allt nema Ljúfmund
Nítjándi og einn allra besti þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni mættu tveir nýir keppendur til leiks, Marín Eydal frá Gametíví og Ástrós Hind frá hlaðvarpinu Listin og Lífið. Með Marínu í liði var okkar allra besti Arnór Steinn og með Ástrós í liði var okkar einnig allra besti Kristján. Er…
more -
18. Þyrlupallar og flotabryggjubrauð
Átjándi þáttur Trivíaleikanna og sá fyrsti á árinu 2023. Í þessum frábæra þætti mættu tvö lið til leiks í Mekka Trivíaleikanna í stúdíó 9a. Kristján og Hnikarr Bjarmi tókust á við Inga og Heiðdísi Maríu eða Heiðingja eins og liðið er orðið þekkt nú til dags. Í hvaða ríki Bandaríkjanna er að finna...
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Trivíaleikarnir færa pub quiz stemninguna beint heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Tvö tveggja manna lið etja kappi í léttri og skemmtilegri spurningakeppni þar sem spurningar um allt milli himins og jarðar dynja á keppendum. Hvort sem þú elskar pub quiz og spurningaspil eða veist varla hvað Gettu Betur er, að þá er eitthvað fyrir þig í Trivíaleikunum. Hlustaðu, hlæðu með okkur og lærðu eitthvað nýtt í leiðinni. Fáðu fleiri þætti í hverjum mánuði með áskrift á Patreon: https://www.patreon.com/trivialeikarnir
HOSTED BY
Daníel Óli
Loading similar podcasts...