PODCAST · comedy
Truthbomber Podcastið
by Truthbomber
Bjartasta von Íslenskrar hlaðvarpsflóruHlustaðu eða hlustaðu ekki, þú munt iðrast hvors tveggja.
-
31
33. þáttur - Truthbomber gefst upp og gerir clipshow
Bomberinn snýr aftur eftir langa fjarvist og hyggst skrópa strax aftur, vel og lengi.Ferðalög, fréttamennska, Dave Navarro, misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja og hundasund koma við sögu. Við þökkum samfylgdina.Hlustendur og Benedikt Eggertsson viljum við fyrirfram biðja afsökunar.
-
30
32. þáttur - Bitur, súr og fullur af rjóma
Það er lafþunnt og ylvolgt hjá strákunum í þetta skiptið.Jón borðar sokk. Hildigunnur hellir upp á kaffi. Illugi spáir í klósettferðum.
-
29
31. þáttur - Birkir Fjalarball Z: Turbo Hrútalykt White Man Viðhorf Xtreme ásamt Birki Fjalari
Birkir Fjalar frá Reyðarfirði kíkir í hljóðverið.Japanskar teiknimyndir, pungþvottur, þungarokk, Austfirðir og margt annað ratar upp á borð.
-
28
30. þáttur - King of Kæfa fist tournament; Truthbomber Grand Prix
Truthbomber snýr til baka úr vetrardvala og óskar landsmönnum gleðilegra jóla. Reyndar eru jólin búin en það er annað mál. Góðkunningjar þáttarins takast á í stærsta ímyndaða viðburði ársins. Svo er líka rætt um jólahefðir og afmynduð kynfæri og eitthvað hverjum er ekki drull
-
27
29. þáttur - Stone Cold Kári Stefáns
Enn og aftur þrífur Truthbomber í háls sannleikans og þrumar honum í gegnum þrjú borð. Óréttlætið verður tekið föstum höndum og powerbombað fram úr hring hversdagsleikans ofan í hyldýpi loðnuveiða. Svo er líka talað um peninga og life hacks og eitthvað. Konur á breytingarskeiðinu viljum við fyrirfram biðja afsökunar.
-
26
28. þáttur - Töff stöff
Uppáhalds Bomberinn sinn er ylvolgur í sumarfríi. Að vísu eru öryrkjar auðvitað alltaf í sumarfríi svo kannski er ekkert nýtt uppi á teningnumMótorhjól, Danskir trúboðar, Joseph Kony og líknardráp eru meðal þess sem japlað er á.Lemmy Kilmister viljum við fyrirfram biðja afsökunar
-
25
27. þáttur - Freestylað á innsoginu
Núna er allt farið í skrúfuna hjá Bombernum. Jón gleymir að taka lyfin sín (eða hann tók þau, erfitt að segja). Illugi checkar út andlega. Stjána viljum við fyrirfram biðja afsökunar. Og hlustendur almennt bara
-
24
26. þáttur - Fifty shades of Grái fiðringurinn
Truthbomber taka rösklega af stað inn í sumarið en þurfa svo að setjast niður og teygja svo þeir rífi ekki kálfavöðva.Jaðaríþróttir, Metallica, karllægt óöryggi og free range krakkfíklar koma meðal annars við sögu.Opruh Winfrey viljum við fyrirfram biðja afsökunar.
-
23
25. þáttur - Ku Klux Kæfubrauð ásamt Jónasi Haux
Fastir liðir eins og venjulega þegar Jónas Haux heimsækir Truthbomber.Alkóhólismi, Leðurblökumaðurinn, kloflausir vinnugallar og Reykjadoom hátíðin koma meðal annars við sögu.Svarta manninn viljum við fyrirfram biðja afsökunar.
-
22
24. þáttur - Fast end Fjúríös 12: Ass Traffic
Stórkostleg endurkoma Truthbomber í einhvern kjallara í Kópavogi er heldur betur saga til næsta bæjar! Engir gestir og eitthvað vesen, bara same old same.Einelti, sexí bílamenning og mannát eru meðal annars til umræðu.Lalla Johns viljum við fyrirfram biðja afsökunar.
-
21
23. þáttur - Jón Alone 2: Lost in Bókasafn ásamt Ingibjörgu
Jón fær heimsókn frá góðvini þáttarins, Ingibjörgu, í ljósi þess að Illugi var veikur heima.Varúlfar, World of Warcraft, heimilisofbeldi og látin amma Jóns er meðal annars til umræðu.Illuga og fjölskyldu viljum við fyrirfram biðja afsökunar.
-
20
22. þáttur - Aðventubömmer ásamt Fannari rafvirkja
Liðsmenn Truthbomber leggja sig alla fram við að koma sér í jólagírinn, með mismiklum árangri.Misheppnuð framboð, pug hundar, UFC bardagamenn og Japanskir nördar á sýru koma allir við sögu, ásamt alls konar.Fannar rafvirki kíkir í heimsókn.
-
19
21. þáttur - Hámenning/Lágmenning ásamt Degi Atlasyni
Ekkert lát er á gestagangi í Casa de la Truthbomber en í þetta skiptið mætir trymbillinn og menningarfrömuðurinn Dagur Atlason í heimsókn.Jón segir sjúkrasögur. Dagur mætir undirbúinn. Illugi rífur nærbuxurnar sínar.Hlustið og njótið.
-
18
20. þáttur - Leyndardómar landsbyggðarinnar ásamt Stjána Gaddavír
Það er tekið djúpt í árina þetta skiptið, þar sem Truthbomber fá heimsókn frá Stjána Gaddavír og ræða svo mörg málefni að það er varla hægt að nefna þau öll. Landsbyggðin, heitur brauðréttur, sifjaspell og páfagaukar sem tala dönsku koma m.a. við sögu.Óla Máttlausa viljum við fyrirfram biðja afsökunar
-
17
19. þáttur - Heilsukvíði og Kafkaískt hygge
Truthbomber býður haustið velkomið og sötrar á lafþunnu tei raunveruleikans. Andleg veikindi, tölvuleikjagerð og endurkoma vandamálahornsins mjaka sér inn í þetta skiptið.Blint fólk viljum við fyrirfram biðja afsökunar [insert braille text]
-
16
18. þáttur - Hestasmygl, hlaupabóla og Hvíti riddarinn
Truthbomber snýr aftur úr sumarfríi með vasana fulla af ADHD og ekkert sérstakt þema eða umræðuefni.Sérstakir gestir mæta í hljóðver (og síma) til þess að ræða mikilvæg mál. Kengúrur viljum við sérstaklega biðja afsökunar fyrirfram.
-
15
17. þáttur - Lausaleiksbörn og trompetleikarinn Pétur
Truthbomber allra landsmanna hnusar af leyndardómum Íslensks samtímalífs. Hvað gerist bak við luktar dyr á Hverfisgötu? Af hverju borða Akureyringar bara rusl? Hlustið, lærið og njótið.Skítamóral viljum við fyrirfram biðja afsökunar (plís ekki lemja okkur)
-
14
16. þáttur - Barist um Bessastaði og helaumt grussy
Truthbomber menn taka handahlaup inn í sumarið með hyldjúpum umræðum um forsetakosningarnar, óeðlilegar kynvitundir og njósnaaðgerðir.Dýraríkið, Íslenska BDSM samfélagið og almenning viljum við fyrirfram biðja afsökunar.
-
13
15. þáttur - Truthbomber kúgar bussurnar
Í þessum þætti er metnaði og frumleika hent út um gluggann og þess í stað er ekkert nema klósetthúmor og ærumeiðingar. Svona er nú fyrir manni komið. Maður hefði kannski getað tekið meiraprófið eða æft körfubolta eða eitthvað, en nei. Bara kúkabrandarar og nöldur. Þetta er það sem kennarar landsins eru að reyna að koma í veg fyrir með því að kenna líkindareikning og Brennu-Njáls sögu. En nei, auðvitað þurfti maður að rebela og eyða svona 6 árum skólagöngunnar í að vera í fýlu og að teikna typpi á flest snertanleg yfirborð skólabygginganna. Þvílík tragedía.Dóra DNA viljum við fyrirfram biðja afsökunar.
-
12
14. þáttur - Ber er hver að baki nema sér Truthbomber eigi
Truthbomber allra landsmanna tekur vorinu fagnandi opnum örmum.Iðjuleysi, Færeyjar, sinnepsfíkn og gamlir menn á sýru koma öll við sögu.Gylfa Ægis viljum við fyrirfram biðja afsökunar.
-
11
13. þáttur - Truthbomber skyldi í upphafi skoða.
Truthbomber allra landsmanna skrópaði í janúar en skellir einum nettum á borðið til að forðast fleiri fjarvistaskráningar.Forsetaframboð, snjókarlar og Eurovision eru meðal þess sem borið er á borð í þetta skiptið.
-
10
12. þáttur - Ég sá mömmu kyssa Truthbomber
Árlegt jólaboð Truthbomber er ekki af verri endanum þetta áriðRiff Raff, Ikea geitin, hatursglæpir vegna rabarbara og kapítalismi koma meðal annars við sögu.Gleðileg jól til allra nema Amaury Guichon og Ísraelshers
-
9
11. þáttur - Truthbomber lítur um öxl
Truthbomber allra landsmanna fagnar 1. árs starfsafmæli sínu með líflegum umræðum um tímana tvenna.Nostalgían, innanhúsarkitektúr og umferðaröngþveiti ber meðal annars á góma til að lyfta greyið hlustendunum upp úr svartasta skammdeginu.Grindvíkinga viljum við fyrirfram biðja afsökunarwww.patreon.com/Truthbomber, þar sem ekkert af viti gerist
-
8
10. þáttur - Græddur er geymdur Truthbomber
Bomberinn hristir af sér haustlægðirnar og býr sig undir veturinn og fyllir búrskápinn af fjöri og fróðleik fyrir alla aldurshópa. Einræðisherrar, calzones og daglegt líf forfeðranna og yfirskegg koma m.a. við sögu. Örlyg viljum við fyrirfram biðja afsökunar
-
7
9. þáttur - Truthbomber eru frá Venus...
Konur allra landa sameinist og leggið á hlustir, þar sem Truthbomber kemur færandi hendi með þátt sérstaklega handa ykkur!Stjörnuspá, samskipti kynjanna og raðmorðingjar ásamt ýmsu er krufið til mergjar.Viljum biðja hjólreiðafólk og hljómsveitina Tool fyrirfram afsökunar.
-
6
8. þáttur - Brennt barn forðast Truthbomberinn
Nú þegar sumrinu er að ljúka og liðsmenn Truthbomber komnir með leið á lúsmýbitum og grilluðum pylsum, er kominn tími á nýjan, sneisafullan þátt!Guðni Th. í ruglinu, leiðinlegir Bretar, Stjörnustríð og margt fleira er tekið fyrir.
-
5
7. þáttur - Rautt spjald á Truthbomber
Slakaðu þér í sófann, opnaðu einn kaldan og gargaðu á sjónvarpið þitt í móðursýkiskasti á meðan einhverjir guttar leika sér með bolta. Í þetta sinn eru Truthbomber komnir í dauðafæri og þruma sannleiknum í netið.
-
4
6. þáttur - Hverjum þykir sinn Truthbomber fagur
Truthbomber allra landsmanna snýr aftur í tæka tíð fyrir sumarið.Úrillir pizzasendlar, erótísk glíma, kattaofnæmi og Bob Dylan ber meðal annars á góma Bombersins í drekkhlöðnum endurkomuþætti.
-
3
5. þáttur - Un voyage culturel avec Truthbomber
Menn eru menningarlegir í þetta skiptið. Varpaðu af þér flíspeysunni, smelltu á þig alpahúfu og sötraðu á lífinu, leiknum og listinni með Truthbomber. Viljum biðja Svíþjóð fyrirfram afsökunar.
-
2
4. þáttur - Einn Truthbomber með engu nema hráum
Þetta árið verða bollurnar fylltar með landsbyggðarstemningu, eitraðri karlmennsku og eldfjallaerótík. Þessu sporðrennir Truthbomber og skolar niður með Lewis Hamilton djús.
-
1
3. þáttur - Truthbomber til sjávar og sveita
Truthbomber byrjar ekki nýja árið í grunnu lauginni, heldur stingur sér á bólakaf m.a. í valdníðslu, samsæri, kynþáttafordóma og kulnun. Hér er hnífbeittur sannleikurinn mundaður eins og sverð í höndum fyllibyttu. Landsbyggðina viljum við fyrirfram biðja afsökunar.
-
0
2. þáttur; Aðventusprengja Truthbomber
Lítið pláss fyrir skammdegisþunglyndi þegar taka þarf á stóru málunum ef maður er kommúnisti eins og Brynjar Níelsson. Þriðja heimsstyrjöldin, World of Warcraft, meltingarkerfið, Súgandafjörður og öll landsbyggðin eru meðal þess sem er það krufið að atómin hringja í hjálparsíma bláa krossins. Skjalfest og sannreynd jólakjarnorkusprengja sem mun skilja eftir sig geislavirkt rykfall sem mun gera börn allra landsmanna kraftvangefin það sem eftir er.
-
-1
1. þáttur
Stóru málin tekin fyrir. Innri heimur stjórnmálamanna, ofbeldi meðal unga fólksins og fleira í þeim dúr.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Bjartasta von Íslenskrar hlaðvarpsflóruHlustaðu eða hlustaðu ekki, þú munt iðrast hvors tveggja.
HOSTED BY
Truthbomber
CATEGORIES
Loading similar podcasts...