PODCAST · sports
Tveggja Turna Tal
by Tveggja Turnatal
Turninn Jón Páll fær til sín hina ýmsu turna úr íslensku íþróttalífi.
Episodes
-
#65 Björn Daníel Sverrisson part II
Þáttur vikunnar er seinni hluti spjallsins við Björn Daníel Sverrisson. Björn Daníel er þjálfari, leikmaður, tónlistarmaður og lífskúnsner!
-
#64 Aron Baldvin Þórðarson
Aron Baldvin Þórðarson er aðstoðarþjálfari Sölva Geirs Ottesen hjá karlaliði Víkings í fótbolta. Aron Baldvin komst í fréttirnar í vikunni þegar Eyjamenn reyndu að fá drenginn til Eyja úr hamingjunni. Víkingar vildu ekki selja. Í þessum þætti kynnumst við Aroni og áttum okkur glögglega á því...
-
#63 Andri Freyr Hafsteinsson
Andri Freyr Hafsteinsson er bóndasonur úr Skagafirði sem fékk snemma dellu fyrir fótbolta og þjálfun. Ejub Purisevic fékk hann til Ólafsvíkur sem leikmann, en fljótlega beindist allur fókus Andra Freys að þjálfun. Í Eftir að Andri Freyr flutti í bæinn hélt hann áfram í læri hjá miklu fagfólki,...
-
#62 Björn Daníel Sverrisson
Fyrsti gestur annarar seríu er einn af bestu sonum Hafnfirðinga, Björn Daníel Sverrisson. Þessum jólaþætti er skipt í tvennt, svo mikið er efnið. Ljónin og gírafarnir í S-Afríku með Viking Stv, ávöxtun sektarsjóða, óvæntur áhrifavaldur í lífi Björns, Heimir og Eiður Smári, þjálfun og miklu meira…
more -
#14 Turnar Segja Sögur: Graeme Souness
Graeme Souness var leikmaður, þjálfari og sjónvarpsmaður og var sigursæll en einnig afar umdeildur. Saga Liverpool FC, söguleg endurkoma Glasgow Rangers, Rod Stewart að drekka bjór með Sigga Jóns í Reykjavík, borgarastyrjöld í Istanbul, sögur af ofbeldi og frændi George Weah koma við sögu í þætti...
-
#61 Milan Stefán Jankovic
Milan Stefán Jankovic er lifandi goðsögn í fótboltanum á Íslandi. Janko, líkt og hann er kallaður, kom til Íslands árið 1992 og hefur hann svo sannarlega skilað sýnu til fótboltasamfélagsins á Íslandi. Við fórum yfir ferilinn hans, bæði hérlendis og erlendis. Samstarfsaðilar okkar Turnanna eru...
-
#13 Turnar Segja Sögur: Svikarhrappar & sóun á hæfileikum
Andri Geir kom í heimsókn og við ræddum svikahrappa, drullusokka og leikmenn sem hefðu getað nýtt hæfileikana sína betur!
-
#12 Turnar Segja Sögur: Danmörk 1992
Evrópuævintýri Dana sumarið 1992 í Svíþjóð er merkileg saga. Krissi veit meira um knattspyrnusögu daga en Sacchi um 442 leikkerfið. Njótið vel!
-
#60 Dagbjartur Sigurbrandsson
Dagbjartur varð á dögunum Íslandsmeistari í golfi, eingöngu 22 ára gamall. Hann er þrátt fyrir ungan aldur útskrifaður úr háskóla í Bandaríkjunum og stefnir á að verða atvinnumaður í golfi á næstunni. Við fórum yfir hvernig þetta byrjaði, hvað er í gangi hjá honum og hvert hann er að fara!
-
#11 Turnar Segja Sögur: Risar vs Dvergar
Ómar Freyr Rafnsson, Bangsinn, kom í heimsókn til okkar og við skiptum í tvö lið. Risarvaxnir leikmenn gegn stórum egóum með færri sentimetra í vegabréfinu. Getur De La Pena dekkað Duncan Ferguson í föstum leikatriðum? Góða skemmtun!
-
#10 Turnar segja sögur: Pizzagate
Sir Alex Ferguson og Arsène Wenger eru tveir goðsagnakenndir knattspyrnustjórar sem gerðu Manchester United og Arsenal að risum í ensku úrvalsdeildinni. Þeir börðust á banaspjótum í meira en áratug, skiptust á að vinna titla og kveiktu í áhorfendum með ógleymanlegum leikjum. En úr eldi hatursins...
-
#59 Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Guðrún Brá Björgvinsdóttir varð um helgina Íslandsmeistari í golfi í fjórða sinn þegar hún sigraði á frábæru móti á Keilisvelli í Hafnarfirði. Hún hefur verið atvinnumaður í golfi undanfarin ár, fór í gegnum háskólagolf í Bandaríkjunum og má segja að golfið hafi verið henni í blóð borið , hún…
more -
#9 Turnar segja sögur: Gullit & Rijkaard
Félagarnir Hermann Rijkaard og George Gullit fóru með skipi frá Surinam til Hollands árið 1957. Í septembermánuði fimm árum seinna áttu þessir félagar báðir eftir að eignast syni sem áttu eftir að breyta fótboltanum í Hollandi og víðar. Njótið vel!
-
#58 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Andrea Rán á nokkuð áhugaverðan knattspyrnuferil. Hún byrjaði að spila 15 ára í efstu deild á Íslandi og hefur spilað í Bandaríkjunum í tveimur efstu deildunum þar, í háskólaboltanum í Frakklandi og í Mexico! Í dag er hún akkeríð á miðju FH-inga sem tryggðu sér sæti í bikarúrslitum á dögunum. Við...
-
#8 Turnar segja sögur: El Fenomeno
Ronaldo Nasário var með ljótustu hágreiðslu knattspyrnusögunnar á HM 2002 í undanúrslitum gegn Tyrkjum og í úrslitum gegn Þjóðverjum. Afhverju skartaði hann þessari sjónmengun. Við fórum yfir sögu þessar hágreiðslu í þætti dagsins. Ronaldo - El Fenomeno
-
#57 Jónas Grani Garðarsson
Jónas Grani á ótrúlega áhugaverða sögu að baki! Hann er sá elsti til að þreyta frumraun sína í efstu deild og er líka sá elsti til að fá gullskóinn. Ferillinn hófst á Húsavík en við fórum líka yfir árin í Kaplakrika, hvernig var að vera þjálfaður af Ásgeiri El áður en við brugðum okkur til Katar,...
-
#6 Turnar Segja sögur: The Crazy Gang
Wimbledon FC á einhverja merkilegustu "öskubuskuævintýr" í sögu ensku fótboltans. Við fórum yfir sögu the Crazy Gang, þar sem eigandinn, þjálfararnir, leikmennirnir og meira að segja búningastjórinn voru allir kolruglaðir !
-
#7 Turnar segja sögur: Dómari, skipting!
Varamaður eða leikbreytir? Það er ekki öllum í lófa lagt að koma inn af bekknum og breyta gangi knattspyrnuleikja en það eru þó til mörg dæmi um slíkt. Við settumst niður og fórum yfir reglur knattspyrnusögunnar er varðar varamenn og fundum til sögur hérlendis og erlendis af mönnum sem skrifuðu...
-
#6 Turnar segja sögur: The Crazy Gang
Wimbledon FC á einhverja merkilegustu "öskubuskuævintýr" í sögu ensku fótboltans. Við fórum yfir sögu the Crazy Gang and af nægu að taka !
-
#5 Turnar segja sögur: Gullmörk, bikarævintýri og fallslagur í Noregi!
Við Turnarnir bjóðum upp á pálínuboð í þætti dagsins. Fannar Freyr Guðmundsson, einn af bestu sonum Hafnarfjarðar, FH-ingur, Liverpoolmaður og þjálfarari Hrottanna á Litla Hrauni kom til okkar. Fáranleg saga af gullmarkinu, bikarævintýri á Íslandi og einkennileg fallbarátta í Noregi koma við…
more -
#2 Turnar segja sögur: Eric Cantona
Eric Cantona er einn af fyrstu erlendu leikmönnunum sem setti svip sinn á enska boltann. Hann ólst upp í helli, brenndi allar brýr að baki sér í Frakklandi en er einn af mikilvægustu leikmönnunum sem spilaði fyrir Sir Alex hjá Man Utd. Eric er raðsigurvegari, söngvari, leikari og alger…
more -
#4 Turnar segja sögur: Ísland & Júgóslavía
Á níunda áratug síðustu aldar voru erlendir leikmenn enn fáir í íslenskum fótbolta. Með átökunum á Balkanskaganum fylgdi þó mikil breyting, þegar fjölmargir leikmenn og þjálfarar frá fyrrum Júgóslavíu leituðu hingað og hófu að leggja sitt af mörkum. Þeir færðu með sér djúpa þekkingu, fagmennsku…
more -
#56 Ási Haraldz
Ásmundur Guðni Haraldsson er maður margra hatta. Hann er aðstoðarskólameistari í Brekkubæjarskóla á Akranesi, aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu og landsliðsþjálfari Reitaboltalandsliðsins. Við Ási settumst niður og spjölluðum um væntanlegt Evrópumót, hvers vegna honum finnst svo...
-
#3 Turnar segja sögur. Kamerún 1990
Grænu ljónin frá Kamerún breyttu knattspyrnuheiminum varanlega á HM á Ítalíu árið 1990. Roger Milla og félagar mættu, sáu og sigruðu en saga liðsins er um margt ótrúleg. Paul Biya, sem hefur verið við völd í Kamerún síðan 1982, fyrirskipaði að Roger Milla skyldi taka þátt í mótinu og þar með var...
-
#55 Úlfur Ágúst Björnsson
Úlfur Ágúst er einn af helstu sóknarmönnum FH auk þess að vera einn af fjölmörgum fyrirliðum Duke háskólans í norður Karólínu í Bandaríkjunum. Við ræddum saman um líf fótboltamannsins í Bandaríkjunum, möguleikann á að spila í MLS, Coach K og marg fleira. Eðaldrengur. Njótið vel! Þátturinn er í...
-
#54 Aron Ýmir Pétursson
Er þjálfun ofmetin? Er DNA-ið á skaganum betra en annarsstaðar? Hvernig nýta skagamenn allar þær lifandi goðsagnir sem alið hafa manninn í fótboltabæ Íslands og þótt víða væri leitað? Aron Ýmir er yfirþjálfari ÍA (La Masia) á Íslandi og við fórum yfir þetta allt og fleira til!
-
#1 Turnar segja sögur: Írland frá Jack Charlton til Heimis Hallgríms
Turnar segja sögur er nýr liður þar sem við Krissi setjumst niður og ræðum algjörlega tilgangslausar staðreyndir úr knattspyrnusögunni – sem eru samt óskiljanlega fastar í hausnum á okkur. Í þessum þætti förum við yfir sögu írska landsliðsins, allt frá tímum Jack Charlton til Heimis Hallgríms....
-
#53 Þorkell Máni Pétursson
Þorkell Máni hefur marga fjöruna sopið. Máni kom og við ræddum þjálfaraferilinn hans, stjórnarsetuna í KSI og það að vera fótboltapabbi. Mögulega ræddum við líka um Leeds og pappakassa! Samstarfsaðilar Turnanna eru: Lengjan Hafið Fiskverslun World Class Golfklúbburinn Keilir Budwar
-
#52 Birna Berg Haraldsdóttir
Birna Berg hefur marga fjöruna sopið á nokkuð löngum ferli sem knattspyrnukona og handboltakona! Hún lagði knattspyrnuskóna á hillina, tímabundið, þegar hún var 18 ára en þá komin með þrjú tímabil í meistaraflokki á ferilskrána eftir að hafa fengið nokkuð skýr skilaboð frá KSI um hún þyrfti að...
-
#51 Óskar Smári Haraldsson
Óskar Smári Haraldsson er bóndasonur úr Varmahlíð. Hann var tvisvar sinnum valinn í lið umferðarinnar í Lengjudeildinni fyrir rúmum áratug síðan og það var hápunktur ferilsins sem var sjálfmiðaður, að hans mati! Kristján Guðmundsson tók í burtur úr honum hrokann og kenndi honum auðmýkt,...
-
#50 Jóhann Kristinn Gunnarsson
Jóhann Kristinn Gunnarsson er þjálfari Þór/KA í Bestu deild kvenna. Jói kom til mín á Ölhúsið í Hafnarfirði og við fórum yfir hvers vegna Húsvíkingar hafa búið til allt þetta magn af fótboltamönnum, landsliðið, UEFA-Pro þjálfaragráðuna, munin á að þjálfa stráka og stelpur…
more -
#49 Samantha Smith
Samantha Smith afrekaði það að vera valinn besti leikmaður Lengjudeildarinnar og vera valin í lið ársins í Bestu deildinni í fyrra, það er afrek! Samantha kom til mín á Ölhúsið í Hafnarfirði og við ræddum uppvaxtarárin, tímann í Texas, hvernig hún svo endaði á Reyðarfirði og í kjölfarið á...
-
#48 John Andrews
John Andrews gerði Víking að bikarmeisturum haustið 2023 er liðið lék í næst efstu deild á Íslandi. Það hefur ekki gerst áður og mun ólíklega gerast aftur. John er Íri, frá Cork, sem spilaði í Írlandi og Englandi áður en hann kom til Íslands til að spila með Aftureldingu. Hann hefur þjálfað...
-
#47 Guðbjörg Ýr Hilmarsdóttir
Guðjörg Ýr Hilmarsdóttir er stemmningskona úr Kópavogi. Hún er Dj á heimaleikjum Breiðabliks og er svo góð í starfi að re-mixin hennar eru spiluð í Þýsku Bundesligunni. Gugga skilaði nýlega upplifunarhandbók sem lokaverkefni í Háskólanum sem fjallar um hvernig hægt er að fjölga áhorfendum á...
-
#46 Adda Baldursdóttir
Ágerður Stefanía, eða Adda eins og hún er oft kölluð, er alinn upp í Breiðabliki en er í dag goðsögn í Stjörnunni og Val, þar sem hún raðaði inn Íslands- og bikarmeistaratitlum. Þegar leikferlinum lauk hélt hún strax áfram að móta sigurlið – nú í þjálfarateymi með Pétri Péturssyni. Í þessum þætti...
-
#45 Agla María Albertsdóttir
Velkomin í nýja seríu Tveggja Turna Tals – konur í íþróttaheiminum. Í þessari seríu ræðum við við konur sem hafa markað spor í íþróttalíf okkar allra – leikmenn, þjálfara og leiðtoga, innan sem utan vallar. Þátturinn er í boði Fiskverslunarinnar Hafsins, Golfklúbbsins Keilis, Lengjunnar og...
-
#44 Guðjón Örn Ingólfsson
Guðjón Örn Ingólfsson hefur á síðustu tíu árum verið fitness- og styrktarþjálfari hjá FH, Víkingi og nú KR. Hann hóf ferilinn hjá FH undir stjórn Heimis Guðjónssonar og vann þar einnig með Ólafi Helga Kristjánssyni. Arnar Gunnlaugsson fékk hann svo í Víking, þar sem hann varð Íslandsmeistari...
-
#43 Gunnar Jarl
Gestur vikunnar er Gunnar Jarl Jónsson – sannkallaður þúsundþjalasmiður! Gunnar spilaði í næstefstu deild en áttaði sig snemma á því að hann átti bjartari framtíð sem dómari. Þar hafði hann heldur betur rétt fyrir sér: hann var valinn dómari ársins sex sinnum á aðeins átta árum. En sagan endar…
more -
#42 Birgir Björn Magnússon
Birgir Björn Magnússon er íþróttastjóri Golfklúbbsins Keilis, afrekskylfingur og hagfræðingur. Við ræddum afreksgolf á Íslandi, í hverju ungir kylfingar eru góðir og hvar og hvenær kjaftshöggið kemur. Birgir Björn eyddi löngum tíma í Bandaríkjunum í Háskólagolfinu bæði sem leikmaður og. þjálfari....
-
#41 Danni&Joi Laxdal
Gestir vikunnar eru þeir bræður Danni og Jói Laxdal. Við fórum yfir tónlistasmekkinn þeirra, fótboltaferilinn, þjálfarana og leikinn í Kaplakrika 2014 ásamt ýmsu fleiru. Toppmenn!
-
#40 Atli Gudna
Atli Guðnason hóf meistaraflokksferil sinn með FH árið 2004 og varð sjöfaldur Íslandsmeistari og tvöfaldur bikarmeistari með liðinu. Hann er leikjahæsti leikmaður í sögu FH í efstu deild, með 285 leiki þar sem hann skoraði 68 mörk og gaf 84 stoðsendingar. Árið 2012 náði Atli þeim merka áfanga,...
-
#39 Ásgeir Jónsson
Gestur vikunnar verður eftir nokkra daga varaformaður HSI. Ásgeir Jónsson er fyrrum formaður handknattleiksdeildar Gróttu/KR og FH, hvar hann vann frábært starf. Hann fékk ásamt góðum mönnum Alexander Petterson til Íslands seint á síðustu öld og ætlar að taka til hendinni hjá HSÍ. Við ræddum…
more -
#38 Ólafur Þ. Harðarson
Ólafur Þ. Harðarson er stjórnmálafræðingur og prófessor emiritus við Háskóla Íslands. Við Ólafur ræddum Donald Trump, Gobbels og Mussolini en ennþá meira um íþróttafólk sem tekið hefur sæti á Alþingi Íslendinga. Af nægu er að taka og Ólafur er hafsjór fróðleiks! Þátturinn er í boði Visitor...
-
#37 Hermann Hreiðarsson Part I
Gestur vikunnar er enginn annnar en Hermann Hreiðarsson. Hermann er eini Íslendingurinn sem hefur unnið FA cup bikarinn og hefur spilað 332 leiki í Premier League á 15 árum í ensku deildunum. Í þessum fyrri hluta þáttarins fórum við yfir árin í Eyjum og í ensku úrvalsdeildinni. Við ræddum Harry...
-
#36 Eiður Ben Eiríksson
Gestur vikunnar er Eiður Ben Eiríksson. Eiður er í þjálfarateymi Íslandsmeistara Breiðabliks og á nokkuð áhugaverðan feril að baki. Hann byrjaði mjög ungur að þjálfa og var orðinn þjálfari í efstu deild kvenna rétt rúmlega fermdur. Eiður hefur komið víða við og unnið með mörgu góðu fólki. Við...
-
#35 Guðjón Pétur Lýðsson
Guðjón Pétur Lýðsson er einhver mestu do-er sem fyrirfinnst á Íslandi. Hann er með öll járn heimsins i eldinum ásamt því að reka fjölskyldu og spila fótbolta. Guðjón Pétur hefur spilað með mörgum félögum á Íslandi, sumum oftar en tvisvar og hann nennir engu kjaftæði. Við fórum yfir víðan völl.…
more -
#34 Finnur Orri Margeirsson
Finnur Orri Margeirsson tilkynnti fyrir nokkrum dögum að hann hefði lagt skóna á hilluna þó svo að ég sé nokkuð viss um að hann vilji spila einn leik til! Finnur spilaði á Íslandi með Breiðablik, KR og FH, sem hann tvísamdi við. Hann átti líka gott tímabil með Lillestrom í Noregi. Við fórum yfir...
-
#33 Hreiðar Haralds
Næsti gestur er Hreiðar Haraldsson, íþróttasálfræðiráðgjafi. Hreiðar hjálpar íþróttamönnum og íþróttaliðum að styrkja andlega þáttinn til að bæta árangur með því að æfa og efla heilann, það merkilega líffæri. Við ræddum marga lykilþætti í íþróttum, meðal annars sjálfstraust, markmiðasetningu,...
-
#32 Ómar Ingi Guðmundsson
Ómar Ingi Guðmundsson er yfirmaður hæfileikamótunar KSI, þjálfari U-15 ára landsliðsins og aðstoðarþjálfari U-19 ára landsliðsins. Ómar Ingi þjálfaði yngri flokka HK ásamt því að vera yfirþjálfari félagsins í áratugi áður en hann óvænt tók við meistaraflokk karla hjá félaginu og setti stigamet…
more -
#31 Davíð Snorri Jónasson
Davíð Snorri Jónasson er alinn upp í Fellahverfinu í Breiðholti. Hann er kennararmenntaður og hefur starfað sem slíkur ásamt því að hafa náð frábærum árangri sem knattspyrnuþjálfari. Davíð Snorri er í dag aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla en hefur einnig þjálfað 21 árs landslið Íslands, yngri...
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Turninn Jón Páll fær til sín hina ýmsu turna úr íslensku íþróttalífi.
HOSTED BY
Tveggja Turnatal
CATEGORIES
Loading similar podcasts...