Tveir á toppnum podcast artwork

PODCAST · tv

Tveir á toppnum

Blaðamennirnir Oddur Ævar og Tóti eru Tveir á toppnum og halda áfram að ræða kvikmyndir, sjónvarp og allt þar á milli í óbeinu framhaldi Bíóvarpsins sem dó með Fréttablaðinu.   „Tveir á toppnum er óvenju góð flétta [...] þar sem mannlegi þátturinn hefur ekki gleymst.“  - Morgunblaðið 1987 - [email protected]

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Jun 12, 2026 · Source feed

  1. 153

    #161 - House of the Dragon 3

    Útvarpsstjarnan Nanna Guðrún Sigurðardóttir á Rás 2 stígur niður á hlaðvarpsplanið og ræðir 3. vertíð House of the Dragon í Tveimur á toppnum, sjónvarps- og kvikmyndahlaðvarpi upplýsta og djúppælda fólksins!Einnig: Hayden Panettiere, Stallone á Menningarnótt og listi yfir þolgóðar hlaupamyndir fyrir þau sem nenna ekki að púlla Dustin Hoffman og hlaupa Reykjavíkurmaraþonið.

  2. 152

    #160 - Spider-Man: Brand New Day

    Áttfættu hlustendur! Velkomin að Marvel-troginu þar sem Spider-Man: Brand New Day er veislukosturinn að þessu sinni. Oddur sleikir út um á meðan Arnar Tómas talar enga tæpitungu þegar hann kennir honum borðsiði. Einnig: Tóti tengir ESB-tryllinginn við Invasion of the Body Snatchers.Sérstakur heiðurgestur: Stefán Atli Sigtryggsson, okkar Marvel-maður í Svíþjóð.

  3. 151

    #159 - Talking Bollocks!

    Hefðbundin dagskrá trufluð og þætti #159 er droppað á miðvikudegi svo Oddur geti kastað sér head first ofan í Marvel-trogið á fimmtudaginn. Stjórnlaust og tilgangslaust blaður Tveggja á toppnum þar sem verslunarmannahelgin, bláir gaskútar og alls konar annað er tæklað ásamt skúbbi vikunnar: HVAÐA ÞJÓÐÞEKTTA MENNINGARDROTTNING GEKK ÚT AF THE ODYSSEY Í HLÉI????

  4. 150

    #158 - The Odyssey

    Þátturinn sem er búinn að vera u.þ.b. 3200 ár á leiðinni er loksins í höfn! Christopher Nolan er tekinn á beinið og Ódysseifskviðu hans snúið á alla kanta í epískum panel með Illuga Jökulssyni, sem kannast eitthvað aðeins við frumtextann sem myndin byggir á, og Birgi Olgeirssyni, sem hefur aldrei verið jákvæðari en að þessu sinni.

  5. 149

    #157 - Frjáls tími og glápskýrslur

    Þátturinn um allt sem hefur ekki komist að í fjarveru Odds ásamt tveimur stórfréttum sem skekið hafa heimsbyggðina; andlát Sam Neill og íslenskt Love Island.

  6. 148

    #156 - Stallone 80 ára

    Sylvester Stallone, okkar eigin Sly, fagnar 80 ára afmæli í dag, 6. júlí, og ekki annað hægt en sýna honum þann sjálfsagða sóma að rjúfa hefðbundna dagskrá með sérstökum þætti.Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, rithöfundur og jafnaldri fyrstu Rocky-myndarinnar, stígur aftur í hringinn og fer með Tóta yfir langan, glæstan en þó brokkgengan feril rómuðustu hasarhetju síðustu áratuga í 130 mínútur sem gerir þáttinn að langlengsta  Tveir á toppnum þætti allra tíma.

  7. 147

    #155 - Citizen Vigilante

    Eldfimur þáttur þar sem Kristinn Theódórsson er kallaður til og fenginn til þess að ræða umtalað furðuverkið og svimandi lélega ruslið Citizen Vigilante jafn vítt og breitt og takmarkaður efniviðurinn leyfir.Myndin og áróðurinn sem hún rekur eru þess eðlis að umræðunum fylgja allar mögulegar og ómögulegar trigger warnings, til hægri og vinstri.

  8. 146

    #154 - Disclosure Day

    Undarlegur þáttur hlaðinn sláandi afhjúpunum þar sem hæst ber að Oddur er í gíslingu vondra hvalfangara og missir því af gesti þáttarins sem er af því kalíberi að hann þarfnast ekki kynningar. En við kynnum hann nú samt: Sjáðu-maðurinn sjálfur Ásgeir Kolbeins ræðir við Tóta um nýjustu Spielberg-myndina, Disclosure Day, og alls konar annað mismerkilegt en allt skemmtilegt.

  9. 145

    #153 - Obsession

    Öll og afar þeirra obsessa nú yfir Obsession. Maðurinn sem uppgötvaði Obsession á Íslandi, Arnar Tómas Valgeirsson, lætur sig því ekki vanta í þáttinn og þar sem hermt er að um sérstaka Gen Z-mynd sé að ræða voru sérstakir fulltrúar kynslóðarinnar, Ragga Björt Tótadóttir og Alda Örvarsdóttir, kallaðar til lóðbeint úr MH. 

  10. 144

    #152 - Backrooms

    Öll eru að tala um Backrooms þannig að Oddur og Tóti verða að gera það líka. Verst bara að þeir skilja ekki neitt.

  11. 143

    #151 - 2EXTRA - Euphoria 3

    Dóra Júlía er dregin inn í neyðarpodd, sérstakan aukaþátt, þann fyrsta í langan tíma, um Euphoria 3 í fjarveru Tóta. 

  12. 142

    #150 - The Mandalorian and Grogu

    Þegar ný Star Wars-mynd kemur í bíó dugir ekkert annað en að draga fram stóru geislabyssurnar og það er gert í þessum þætti sem fjallar bara um Stjörnustríð og ekkert nema Stjörnustríð með okkar helsta Star Wars-manni, sjálfum Geir Finssyni.

  13. 141

    #149 - The Boys vertíð 5 - Lokauppgjör

    Lokahnykkur The Boys er í brennidepli og maðurinn sem uppgötvaði þættina á Íslandi, sjálfur Arnar Tómas Valgeirsson, er ekki langt undan og kveður upp sinn endanlega dóm símleiðis.

  14. 140

    #148 - Daredevil: Born Again vertíð 2 - The Punisher: One Last Kill

    Arnar Tómas Valgeirsson kemur aftur eftir ársfjarveru en er enn með heitu take-in. Marvel trogið krufið í þaula.

  15. 139

    #147 - The Devil Wears Prada 2

    Hátískuþáttur með súperstjörnunni DJ Dóru Júlíu sem leiðir leppalúðana Odd og Tóta meðfram sýningarpöllunum inn í allan sannleikann um menningarfyrirbærið sem kennt er við Andskotann dressaðan upp í Prada.

  16. 138

    #146 - Apex og bestu myndir síðustu 25 ára

    Síðasti þáttur aprílmánaðar byrjar á spjalli við Björn Þór Vilhjálmsson, dósent í kvikmyndafræði við HÍ, um býsna áhugaverðan lista yfir 25 bestu kvikmyndir síðasta aldarfjórðungs. Apex hans Balta er síðan rædd út og suður en aðalega norður áður en hefðbundnu stöðutjékki er troðið sem rúsínu í þennan mánaðarenda.

  17. 137

    #145 - Invincible og The Drama

    Heilsufarsskoðun Tóta hjá hjartalækninum á sumardeginum fyrsta. Fjórða sería af The Invincible öll komin út, endurnýjun Law and Order og The Drama. Michael Jackson myndin sem er víst að falla í grýttan jarðveg meðal gagnrýnenda. Skoðanir Tóta á MJ koma ekki á óvart, eða hvað?

  18. 136

    #144 Malcolm & Melania í miðjunni

    Þreyttir, slæptir og tættir en óbugaðir barma Oddur og Tóti sér yfir ómannúðlegu glápálagi. Oddur finnur þó huggun í því að hann er að byrja aftur að éta vængi í sjónvarpi og hefur hrifist af Malcolm in the Middle: Life's Still Unfair. Tóti hins vegar deilir hlutskipti með Malcolm og hefur tekið út talsverða þjáningu til þess að efna loks loforið um Melaniu umfjöllun. 

  19. 135

    #143 - Project Hail Mary og sjónvarpsvorfenið

    We are so back! Ferðasaga Odds, ótrúlegar hrakfarir Tóta í gestagangi, Project Hail Mary, The Boys, Invincible, Daredevil: Born Again, Euphoria, Harry Hole og vorbylgjan ógurlega. 

  20. 134

    #142 - Óskarinn 2026

    Óskarinn gerður upp. Tóti er Nostradamus! Eða svona því sem næst. Hvenær kemur að Timothée Chalamet? Hvar var Sean Penn? Leonardo DiCaprio bölvunin. Manosphere, Spiderman trailer og að sjálfsögðu Law and Order. Og margt fleira.

  21. 133

    #141 - ESB dómsdagurinn, Rachel Weisz og Vladimir plús allt reglulega bullið

    Þáttur í flýtimeðferð þar sem Oddur er á leið í óbyggðaferð í vetrarfríinu.  Farið er ofan í skuggalega kvikmyndatengingu sem boðar ekkert gott fyrir ESB-þjóðaratkvæðaflippið. Rachel Weiz rokkar Netflix með Vladimir á meðan Jack Reacher púllar Arnold og slæst við hönnungargallaðan Transformer frekar en alvöru Predator. Að ógleymdri fullkomlega ómarktækri og ábyrgðarlausri Óskarsspá.-----Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af bifreiðaskoðun. Það eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum.

  22. 132

    #140 - Meint siðblinda Tyru Banks og mikilvægt stöðutékk

    Vistaskipti Tóta, myrk saga America's Next Top Model, ótrúlegar breytingar á Jim Carrey, síðvetrardepurð og fleira og fleira og fleira.-----Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

  23. 131

    #139 - A Knight of the Seven Kingdoms

    Industry, America's Next Top Model, fannfergið úti og svo alvöru nördayfirferð (á mínútu 25) yfir A Knight of the Seven Kingdoms með Stefáni Pettersson. Óvænt bestu þættir ársins?-----Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

  24. 130

    #138 - Heated Rivalry

    Dóra Júlía Agnarsdóttir fjölmiðlakona og plötusnúður mætir og greinir Heated Rivalry í þaula. Innskot frá gesti þáttarins. Að 25 mínútum liðnum kveður Dóra og tveir á toppnum fara yfir vettling dagsins. RIP Robert Duvall og fleira.-----Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

  25. 129

    #137 - Fallout 2

    Aðeins um Melaniu Trump heimildarmyndina. Hvað er verið að glápa á? Allar helstu kenningar upp úr vertíð 2 af Fallout. Stefán Pettersson er maðurinn sem allt  veit um Fallout. -----Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

  26. 128

    #136 - Óskarsverðlaunatilnefningar 2026 og Marty Supreme

    Hvernig fer Ísland-Danmörk? Tóti spáir í spilin, með sínum hætti. Sjónvarpsglápið, Bíóhöllin, Óskarinn og Marty Supreme. 

  27. 127

    #135 - 28 Years Later: The Bone Temple

    Uppvakningadramað 28 Years Later: The Bone Temple og í raun allur 28 bálkurinn eru krufin inn að beini og brotin til mergjar með mæðgunum Kareni Kjartansdóttur og Unu Kristjönu.Alveg hreint sprellfjörgur panell og þáttur með tæknilegum mistökum og grímulausum Duran Duran áróðri.

  28. 126

    #134 - Sjónvarpsárið er hafið og Sydney Sweeney fækkar fötum

    Fyrsti þátturinn gestalausir í háa herrans tíð. Förum yfir það helsta sem er á döfinni í sjónvarps-og bíóheimum. Golden Globe og svo kvikmyndin The Housemaid. Og miklu meira!

  29. 125

    #133 - Stranger Things 5

    Stranger Things er nú á enda. Birgir Olgeirsson mætir og greinir nýjustu seríuna og hinar í þaula.

  30. 124

    #132 - Áramótaskaupið 2025 og árið gert upp

    Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Arnar Eggert Thoroddssen doktor í tónlistarfræðum og aðjúnkt í fjölmiðlafræði ræða Áramótaskaupið 2025 og gera upp árið 2025 í sjónvarps -og kvikmyndaheimum og líta til þess hvað er framundan 2026. 

  31. 123

    #131 - Jólaþátturinn 2025

    Tveir á toppnum hraðspóla í gegnum alls konar jólajóla í sínum þriðja Jólaþætti. Mæla með góðu og sígildu jólaglápi, rifja upp jólamyndir kvikmyndahúsanna 1985, fyrir 40 árum og bíta enn og aftur í gamla þrætueplið hvort Die Hard sé jólamynd eða ekki. Avatar-fyrirbærið er greint og hjónanna Rob og Michele Singer Reiner er minnst með hlýhug, þakklæti og sorg í hjarta. Sérstakur gestur er JólaSveinn Waage.

  32. 122

    #130 - Sprettkeppni Odds og Tóta 2025 ft. Bíóblaður

    Hafsteinn Sæmundsson hlaðvarpsstjórnandi og höfundur bíóspurningaspilsins Bíóblaðurs mætir og spyr Tvo á toppnum spjörunum úr. Fyrst aðeins um gláp núlíðandi stundar, að lokum um einu tvær myndir ársins sem Hafsteini fannst eitthvað varið í. Mynd tengist efni þáttar beint. -----Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

  33. 121

    #129 - Puff Daddy, Stranger Things og meira stöðutékk

    Bland í poka þáttur þar sem allskonar er rætt með Jónasi Má Torfasyni. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

  34. 120

    #128 - The Running Man

    Símon Birgisson og Valur Grettisson mæta og greina The Running Man í döðlur. Fyrst aðeins um gagnrýni og svo mikið um Stephen King. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

  35. 119

    #127 - Bannað að hlæja 2

    Auðunn Blöndal okkar allra mætir og fer yfir vertíð tvö af Bannað að hlæja. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum.

  36. 118

    #126 - Frankenstein

    Nýjasta afurð Guillermo Del Toro rædd í þaula. Fyrst aðeins yfir vettling dagsins. Sérstakur gestur: Stefán Atli Sigtryggsson kvikmyndagerðarmaður í Svíþjóð OG kvikmyndafræðingur. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum.

  37. 117

    #125 - House of Dynamite

    Alþjóðastjórnmálafræðingur mætir í hús til að ræða mynd Kathryn Bigelow á Netflix um eldflaugina yfirvofandi. Ræðum ýmislegt fleira: Nýjan rafmagnsbíl Tóta, hrekkjavökurifrildi, sjónvarpsgláp Tóta og margt, margt, margt fleira. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum.

  38. 116

    #124 - Hrekkjavaka 2025

    Hátíðaryfirferð yfir Halloween og fleiri hryllingsmyndir í tilefni af hrekkjavöku 2025. Aðeins um ónýtan bíl og vetrarfærð. Aníta Guðlaug Axelsdóttir specialisti í horror og Kjartan Rúnarsson bíófíkill mæta og kryfja málin. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósenta afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tveir á toppnum. 

  39. 115

    #123 - Gen V vertíð 2

    Kuldakast, Kvennaverkfall, Boots, Halloween og Gen V, vertíð 2. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf er að nefna Tvo á toppnum.

  40. 114

    #122 - Nágrannafælni og Smassmaskínan

    Sunnudagur til sælu. The Perfect Neighbour á Netflix, Smassmaskínan, Keira Knightley, Peacemaker, Task og miklu fleira. Engir spillar!  Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf er að nefna Tvo á toppnum.

  41. 113

    #121 - Monster: The Ed Gein Story

    Missterkar skoðanir á seríu sem hefur fengið misjafna dóma. Sérstakur gestur: Kristel Dögg Vilhjálmsdóttir. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf er að nefna Tvo á toppnum.

  42. 112

    #120 - Alien: Earth

    Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður og Stefán Pettersson einn mesti aðdáandi Alien mæta og kryfja Alien: Earth. 

  43. 111

    #119 - One Battle After Another

    Ekkert annað kemst að en að kryfja myndina sem allir eru að tala um. Tóta tekst að vísu að troða inn Law and Order tilvísun, en ekki hvað. Sérstakur gestur: Arnar Már Eyfells, framleiðandi hjá Ketchup Creative. 

  44. 110

    #118 - Stöðutékk

    Ómarkvisst stöðutékk, Slow Hourses, House of Guinness, Alien Earth, One Battle After Another, hvað er í vatninu hjá Leonardo DiCaprio, töfralæknir og norska konungsfjölskyldan, fótaaðgerð og ýmislegt fleira. 

  45. 109

    #117 - Eldarnir

    Ræðum allskonar, Charlie Sheen, The Girlfriend, Jimmy Kimmel. Eldarnir eftir Uglu Hauksdóttur svo í forgrunni. 

  46. 108

    #116 - Unknown Number: The High School Catfish

    Margrét Helga Erlingsdóttir fréttamaður mætir og greinir í þaula heimildarmyndina á Netflix sem allir eru að tala um. 

  47. 107

    #115 - The Thursday Murder Club

    Geitungaárás í miðri umferð, hvað er framundan á skjánum í september? Alien Earth, bjórtegundir, eldriborgara morðráðgáta í boði Netflix, RIFF og Kim Novak. Og fleira. 

  48. 106

    #114 - Caught Stealing

    Ófarir Sydney Sweeney, Biggest Loser og allskonar. Umræða um Caught Stealing frá Darren Aronofsky ÁN SPILLA.

  49. 105

    #113 - Weapons

    Mynd ársins? Myndin rædd í þaula, hugrakkur Oddur mætti í bíó. Sérstakur gestur: Arnar Már Eyfells framleiðandi hjá Ketchup Creative. Ræðum kvikmyndabransann og miklu fleira.

  50. 104

    #112 - 2EXTRA - Love Island UK sería 12

    Elísabet Inga Sigurðardóttir fréttakona mætir og kryfur til hlýtar einu rosalegustu bresku Love Island seríu seinni ára. Mætti síðast í þætti #36 þar sem hún krufði All Stars seríuna. Harmleikur Harrisons og Harry og MIKLU FLEIRA. 

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Blaðamennirnir Oddur Ævar og Tóti eru Tveir á toppnum og halda áfram að ræða kvikmyndir, sjónvarp og allt þar á milli í óbeinu framhaldi Bíóvarpsins sem dó með Fréttablaðinu.   „Tveir á toppnum er óvenju góð flétta [...] þar sem mannlegi þátturinn hefur ekki gleymst.“  - Morgunblaðið 1987 - [email protected].

HOSTED BY

Tveir á toppnum

Frequently Asked Questions

How many episodes does Tveir á toppnum have?

Tveir á toppnum currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Tveir á toppnum about?

Blaðamennirnir Oddur Ævar og Tóti eru Tveir á toppnum og halda áfram að ræða kvikmyndir, sjónvarp og allt þar á milli í óbeinu framhaldi Bíóvarpsins sem dó með Fréttablaðinu.   „Tveir á toppnum er óvenju góð flétta [...] þar sem mannlegi þátturinn hefur ekki gleymst.“  - Morgunblaðið 1987 -...

How often does Tveir á toppnum release new episodes?

Tveir á toppnum has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Tveir á toppnum?

You can listen to Tveir á toppnum on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Tveir á toppnum?

Tveir á toppnum is created and hosted by Tveir á toppnum.
URL copied to clipboard!