PODCAST · comedy
Váfuglinn
by Váfuglinn
Váfuglinn flýgur hátt, sér langt og rífur málefni líðandi stundar á hol. Fortíð, nútíð og framtíð eru veiðilendur Váfuglsins og þær eru gjöfular. Komdu í ævintýraferð um íslenskan samtíma og ferðastu með um sögulegar slóðir. Síðan eru líka einhver jokes þarna.
Episodes
-
Brauð
Váfuglinn gerir úttekt á brauðmenningu Íslands og hyllir brauðryðjendur í bakarastéttinni. Gæddu þér á nýbakaðri slæsu af Váfugli strax í dag. Það er svo sannarlega eitthvað ofan á brauð.
-
Numetal
Váfuglinn rannsakar hið lítt viðurkennda sameiningarafl ólíkra unglingaheima 10. áratugarins, numetal. Með samtali yfir spilakassa og sígarettu, tókst að brúa bilið milli rokkara og rappara, goth-a og skoppara, í hinni óviðjananlegu numetal senu. En hver er staðan á numetal senunni í dag? Láttu...
-
Íslensk æði
Neyslubrjálæði Íslendinga finnur sér reglulega farveg í skrítnum æðum sem ganga yfir land og þjóð. Váfuglinn skoðar hér eftirminnileg æði í íslensku samfélagi í gegnum tíðina. Smelltu þér í fótanudd, stingdu upp í þig snuddu og komdu með Váfuglinum í ferðalag um undralönd íslenskra æða.
-
2020 Jólaspecial
Eins og hefðin býður þá er hátíðarstund í þessum jólaspecial Váfuglsins. Enn á ný renna jól í garð og Váfuglinn tekur stöðuna. Við veltum fyrir okkur jólahefðum - hvað þarf til að skapa þær og hvernig þær eru rofnar. Við veltum fyrir okkur hvernig jólahlutir vinna sér inn forskeytið "jóla-" og…
more -
Íslenskir draumórar
Í þessum þætti lítur Váfuglinn nánar á draumóra sem blundað hafa meðal íslensku þjóðarinnar, og birtingarmynd þeirra í íslenskri poppmenningu. Um hvað dreymir Ísland á daginn? Heimsfrægð? Sæti í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna? Geimverur á Snæfellsnesi? Líklega allt þetta og fleira. Fuglinn fær…
more -
Bílabingóið
Váfuglinn tekur í þetta sinn til skoðunar hina einu sönnu ást Íslendinga - bíla. Hrifning Íslendinga á bílum virðist hafa orðið strax við fyrstu kynni, jafnvel þó svo ekkert bensín hafi verið til á landinu til að keyra þá. Í þættinum lærum við um brautryðjendur á sviði ofsaaksturs eins og...
-
Íslenzk tízka
Að þessu sinni fjallar Váfuglinn um tískustraumana sem leikið hafa um Ísland undanfarna áratugi og hvernig þeir hafa mótað atferli okkar og stéttarvitund. Hvað er "peysa"? Hvernig vissi fólk hvað var nett fyrir tilkomu internetsins? Afhverju er svona algengt að prenta óskiljanlegar áletranir á...
-
Djammið vol.2
Váfuglinn lætur ekki sjúklegt ástand þjóðfélagsins stöðva sig og setur fram fallega hugvekju um skemmtanalíf Reykvíkinga í gegnum tíðina. Þátturinn er sjálfstætt framhald fyrri umföllunar Váfuglsins um "djammið" sem mæltist vel fyrir hjá hlustendum. Sæktu þér langþráðan djammskammt beint inn á...
-
Cinema Paradiso
Váfuglinn tekur út stöðu kvikmyndahúsa á Íslandi í þessum nýjasta þætti. Er bíó ennþá á dagskrá árið 2020? Þarf að endurhugsa það hvernig bíóupplifunin á að vera? Eru kvikmyndasýningar hin nýja ópera? Hér er menningarumfjöllun á hæsta plani með lazer show-i, 3D-gleraugum og orkudrykkjum fyrir…
more -
Sólarlönd
Á Spáni er gott að djamma og djúsa söng þjóðskáld okkar Íslendinga, sem nú er því miður látinn. Þannig kjarnaði hann stemminguna sem ríkti, og ríkir enn, í kringum sólarlandaferðir þjóðarinnar. Butterfly hnífar, zippo kveikjarar, ódýr raftæki, adihash peysur og tráma - flestir hafa krækt sér í...
-
Þorrablót
Að þessu sinni rýnir Váfuglinn í þjóðlegustu hátíð Íslendinga, Þorrann. Í þættinum veltum við fyrir okkur uppruna þorrablóta og hvað er rétt, satt og ekta í þessum umdeilda málaflokki sem skekur tilfinningar landsmanna á hverju ári. Við förum yfir kræsingarnar sem eru á borð bornar á þessum...
-
Djamm í kvöld
Það er djamm. Váfuglinn flýgur á djammið í Reykjavík og tekur út stemminguna á skemmtanalífi Íslendinga fyrr og nú. Hvernig leið sveitamanninum Emil þegar hann kom fyrst inn á búlluna White Star á Laugarvegi árið 1920 eða eitthvað? Hvar er hægt að fá sér steik klukkan 01:00 á laugardagsnótt í...
-
Gott kaffi
Eftir langa og erfiða svipugöngu okkar, stjórnenda Váfuglsins (þið munið, gömlu vinir eyrna ykkar), kemur hér einn rjúkandi ný(lega) uppáheltur þáttur sem er alls ekki búinn að standa á hellunni og fá að sjóða aðeins. Þema þáttarins er, eins og má mögulega merkja af myndmáli þessa texta, kaffi....
-
Rækjusalat
Váfuglinn hefur sig til flugs að nýju, með nýtt season af fuglinum góða. Í þessum fyrsta þætti fær rækjusalat og mæjónes að sitja í framsætinu og stjórna okkur eins og leiðtogi sértrúarsafnaðar. Mæjónes hefur fylgt þjóðinni frá því löngu fyrir sjálfstæði - þaðan skreið það eins og löðrandi feitur...
-
Ár svínsins
Eftir að hafa legið í leyni og beðið nýs árs hefur Váfuglinn sig aftur á flug og er tilefnið koma árs svínsins. Bílaleigur, vídeóleigur og jafnvel kjólaleigur er allt mjög góður business en eins og kemur fram í exposé rannsóknardeildar þáttarins er þarna ákveðin hula sem hægt er að svipta....
-
2018 Jóla special
Það er hátíðarstund í þessum jólaspecial Váfuglsins. Jólin renna í garð á vel smurðum vagni sem enginn fær stoppað sama hversu mikið er reynt. Þessu fagna Váfuglsmenn enda lítið annað hægt að gera í stöðunni annað en að beygja sig niður og þrífa stígvél jóla-yfirboðaranna með tungunni og þakka…
more -
Grikkir & Gott
Váfuglinn vaknar upp úr allsherjarþynnku Hrekkjavökuhátíðarinnar og sendir frá sér spánnýjan og spúkí þátt. Arnaldur, Stefán og Lárus, nýr tæknimaður Váfuglsins, herja miskunnarlaust á samtímann eins og draugar fortíðar. Airwaves hátíðin er sett í samhengi við hreyfiorku sögunnar hvers tannhjól...
-
Leirmaður/Leikmaður feat. Emmsjé Gauti
Rapparinn og Siggi Hallinn, Emmsjé Gauti, mætti í heimsókn í Váfugls-stúdíóið til að tala um styttuna Leirfinn, einbýlishúsavegginn í Breiðholti og nasistahamborgara. Sömuleiðis er farið í saumana á því hvernig er best að heilsa óljósu fólki út á götu. Mögulega skemmtilegasti Váfugl ársins. Í...
-
Sítrónuuppgjörið
Váfuglinn snýr aftur úr lamandi sumarfríi. Arnaldur og Stefán hafa báðir ferðast út fyrir landsteinana og gera grein fyrir menningunni sem þeir fundu á ferðum sínum. Alþjóðlegur áhugi á veðurfyrirbrigðinu sem við köllum rigningu verður skoðaður sérstaklega og hvernig sá sami áhugi hefur frelsað...
-
Gott kakó
Váfugl dagsins er óhræddur við að taka á stóru málunum bæði heima fyrir og úti í hinum stóra heimi. Við kynnum okkur úrlausn erfiðra deilumála með aðstoð sýnishorna úr bíómyndum og förum svo rakleiðis í Kaupfélagið á Sauðárkróki. Um leið og vorið heldur loks innreið sína í Vaglaskóg fyrir norðan,...
-
Börnin í Blesugróf
Það vita margir að hið vanskapaða hross Sleipnir steig niður einum af ónáttúrulega mörgum hófum sínum austur á Ásbyrgi. Þar bjó hann til klettavegg sem fólk elskar að tjalda við hliðina á. Það sem færri vita er að annar hryllilegur angi neðan úr þessu "hrossi" kom niður í hjarta Reykjavíkur og...
-
Söngur mjaldranna
Nú er þessi dásamlegi tími ársins þegar við göngum öll í einfaldri röð að svignandi hlaðborði lýðræðisins eins og svangir gestir í fermingarveislu. Hvað er okkar rækjusalat? Hvert dýfum við lúkunum? Váfuglinn skoðar sviptingar í sveitarstjórnarmálum landsins. Við skoðum nokkrar (mis)neikvæðar...
-
Afmælis special - 1 ár af hamingju!
"Partýbúðin kynnir: Váfuglinn! Nú í beinni útsendingu frá Café Milanó, þar sem hjarta Skeifunnar slær! Mörg erfið mál bera á góma í þetta sinn - ársafmæli Váfuglsins, sveitastjórnakosningar (úff) og Skeifan sjálf. Gæðið ykkur á ylvolgum takes frá Arnaldi og Stefáni!
-
Karnival í mottumars
Váfuglinn í þetta sinn er helgaður vitundarvakningarátökum og fallegustu helgistund í lífi sérhvers manns, fermingunni. Við skoðum Mottumars og athugum hvort læknastéttin sé raunverulega eitthvað með puttana í þessu átaki. Við förum yfir þá dægradvöl sem stendur Íslendingum til boða nú þegar…
more -
Kópverskir draumar
Váfuglinn tekur flugið beint inn í Kópavog í þetta sinn þar sem við kynnum okkur framkvæmdagleðina sem virðist einkenna góða menn með reiðufé í íþróttatöskum. Kópavogurinn er fullur af eldhugum í allskyns rekstri en ekki síst er það blómstrandi hótelrekstur. Við kynnum okkur nýjasta glæsihótel...
-
Hvítur á leik
Sannkölluð Góu-gleði gerir nú vart við sig hjá Váfuglinum. Við ræðum mjög svo breytilegan opnunartíma Vínbúða eftir dögum og staðsetningu í bæjarlandinu. Við tökum hús á Skáksambandinu enda alltaf glatt á hjalla á þeim bænum. Rúnturinn endar svo með góðu pube í b0rgerinn við Hlemm þar sem við...
-
Tímamóta tal
Váfuglinn er að þessu sinni helgaður hátíðlegustu hátíð allra Íslendinga, Áramótum. Eftir að hafa afplánað nógu lengi í fjölskylduboði í einu af úthverfum borgarinnar er Váfuglinn loksins tilbúinn að keyra þetta djamm í gang. Með kampavín í annarri, viskí í hinni og óþægilega stóran áramótavindil…
more -
2017 Jóla special
Jólapeysur! Jólahlaðborð! Jólaskór! Jólin nálgast óðfluga! Stressið og vinur þess kvíðinn, hríslast um nú bein landsmanna. sem ráfa á milli verslana til að kaupa allt sem augun lenda á í meira en þrjár sekúndur. Allt er þetta í vanstilltri viðleitni til að finna hina einu sönnu gjöf til að færa...
-
Sjoppulegir togarar
Váfuglinn er sjanghæaður um borð í rússneskan togara eftir að hafa verið að rúnta niðri við höfnina í alla nótt. Hvar eru reiðhjólin og Lödurnar geymdar? Reiðhjólafarminum er landað í Árbænum þar sem menn kúka og sturta sig á sama tíma og skreppa í sjoppur - en Rækjusamlokan snýr einmitt aftur og...
-
Safe space fyrir Zúista
Váfuglinn kom saman í litla læsta herberginu sínu þar sem Váfuglsmenn geta tekið upp hugsanir sínar í friði frá gagnrýni og öðru áreiti. Í þetta sinn voru þær um hinn göfuga Facebookhóp "Strákahitting" sem breyttist mjög fljótlega í helsta vígi Hins-hægrisins á íslenska internetinu, trúarbrögð…
more -
2017 Kosninga special
Váfuglinn tætir í sig íslensk stjórnmál í aðdraganda komandi kosninga í þessum upplýsandi, gagnsæja kosninga special. Þetta eru hin einu sönnu samræðustjórnmál. Í þættinum verða allir flokkarnir skoðaðir, menn og málefni gerð upp - til þess að ÞÚ þurfir þess ekki. Afhverju myndast Sigmundur Davíð...
-
Líkamshryllingur og skyrglíma?
Váfuglinn kemur saman að nýju og vinnur úr uppsafnaðri heift með því að rífa í sig þá pólitísku spillingu sem gegnsýrir landið – eins og skyr. Ríkisstjórnin féll aðeins klukkustund eftir þær afhjúpanir sem þátturinn ber á borð. Við skoðum hópeflistilraunir ónefnds tískurisa og veltum fyrir okkur...
-
Migos og menning í Mathöllinni
Váfuglinn flaug í Höllina á tónleika með rappsveitinni Migos og tók út stemminguna. Hefðu þeir kannski heldur átt að spila í Mat(ar)höllinni á Hlemmi? Í ekkert-svo-fasta liðnum "Það er pube í b0rgerinn minn" var Mathöllin einmitt tekin fyrir miskunnar- og vægðarlaust. Váfuglinn rýndi líka í...
-
Útihátíð á sterum
Nú þegar 10. áratugurinn hefur verið vakinn til lífsins með tilheyrandi vandræðagangi og sveitaballarómantík reyna Arnaldur og Stefán að greina hvað fór úrskeiðis. Er áhrifavöldum um að kenna? Eða er áhrifafólk kannski bara leiksoppar í þessum ljóta leik? Váfuglinn miðar hátt og beinir sjóðandi...
-
Krónískir meistaraverkir
Eftir að hafa baðað sig í skólpi og dömubindum frá Degi borgarstjóra, gerir Váfuglinn upp nýafstaðna Young Thug tónleika, a.k.a. “Kronik Live ásamt fleirri”. Hugmyndafræðilegur ágreiningur skáta, femínista og annarra verður tæklaður auk þess sem við brókum rauðhærðan, bólugrafinn skátaforingja....
-
Byssubófar og bangerar feat. Arnar Freyr
Arnar Freyr Frostason úr rapptvíeykinu Úlfur Úlfur er gestur Váfuglsins í þetta sinn. Við ræddum við hann um Kaupfélag Skagfirðinga, froðudiskó og rappvídjó. Þá var einnig uppruni Priksins reyfaður lauslega.
-
Sumarsólstöður á Hverfisgötu feat. Auður Ástráðsdóttir
Solstice hátíðin er gerð upp þessa vikuna, tími til kominn. Auður Ástráðsdóttir kíkti í heimsókn (á eigið heimili) og ræddi meðal annars náttúruhippa að kúka í kross, Dag B að dúndra í sig rjóma í Hel og hryssingslegan sunnudag í Laugardalnum. Rækjusamlokan er á dagskránni og þar er nautið…
more -
Kristal Poppin' feat. Júlía Hermannsdóttir
Váfuglinn er ekki einn á ferð í þetta sinn - í hljóðverið mætti Júlía Hermannsdóttir og ræddi við okkur um kassettusölu sína í fangelsum landsins, mýtuna um krúttsenuna og hvernig algóriþmar hafa gert henni lífið leitt. Stefán reyndi að lesa Viðskiptablaðið með misjöfnum árangri. Pop a bottle!
-
Sumargrill og vídjóveisla hjá tannlækninum
Er eðlilegt að horfa á vídjó með tannlækninum sínum? Myndirðu borða gamla mæjónessamloku? Eftir nokkur skakkaföll, eins og springandi endajaxla og gjaldþrot ónefnds Váfugls eftir að hann reyndi að halda Shaggy tónleika í miðju góðæri, er hér kominn enn einn glóðvolgur og ilmandi Váfugl. Í…
more -
Grískt sumar á Skólavörðustíg
Gyros, Pizzur, Skólavörðustígur og NES Classic. Hvað eiga þessir hlutir sameiginlegt? Líklega fátt. Stefán ræðir um flóttamenn, ferðamál á Grikklandi og gyros. Staða pizzastaða á landinu er yfirfarin og Skólavörðustígurinn er krufinn til mergjar í nýjum föstum lið. Að lokum ræða Stefán og…
more -
Hjálmar, djús og geisladiskar
Váfuglinn hefur sig til flugs á ný eftir stutt hlé. Haukfrán augu Váfuglsins beinast að öryggis- og hlífðarbúnaði barna, hátæknivæddum ávaxtasafa og geisladiskum. Afhverju hatar fólk geisladiska? Getur fólk gerst áskrifendur að sjálfsvirðingu? Kynntur er til leiks nýr liður þar sem eldhús…
more -
2017 Páska special
Váfuglinn beinir sjónum sínum að páskahátíðinni í þetta sinn og kemst meðal annars að því að páskarnir eru ekki hátíð ljóss og friðar (það eru víst jólin) og að á meðan við liggjum í sykurvímu eftir ómannlegt súkkulaðiát þá á sér stað mikil eymd á öðrum stöðum í heiminum. Váfuglinn fer síðan á...
-
Váfuglinn hefur sig til flugs
Váfuglinn flýgur hátt, sér langt og rífur málefni líðandi stundar á hol. Síðan eru einhver jokes þarna.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Váfuglinn flýgur hátt, sér langt og rífur málefni líðandi stundar á hol. Fortíð, nútíð og framtíð eru veiðilendur Váfuglsins og þær eru gjöfular. Komdu í ævintýraferð um íslenskan samtíma og ferðastu með um sögulegar slóðir. Síðan eru líka einhver jokes þarna.
HOSTED BY
Váfuglinn
CATEGORIES
Loading similar podcasts...