Viltu finna milljón? podcast artwork

PODCAST · business

Viltu finna milljón?

Viltu finna milljón eru fjármála- og fræðsluþættir á Stöð 2. Þáttarstjórnendur eru Hrefna og Arnar Þór Ólafsson.

  1. 14

    7.Þáttur - Keppendur leysa frá skjóðunni (Höskuldarviðvörun)

    Kæru hlustendur! Þá er það lokaþátturinn og úrslitin eru ljós! Við tökum keppendur tali og förum yfir farinn veg. Við viljum nýta tækifærið og þakka kærlega fyrir áhorf og áheyrn þessa þáttaröðina. Þangað til næst!

  2. 13

    6.Þáttur - Bergur Ebbi ræðir peninga og framtíðina

    Þessi þáttur var aldrei að fara að verða neitt annað en stórkostlegur með Bergi Ebba í slagtogi! Bergur er mikill hugsuður og leggur fram áhugaverðar pælingar í þessum þætti um neyslu íslendinga, gervigreind og framtíð peninga eins og þeir leggja sig. Ekki voga ykkur að missa af þessum! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna Eignaumsjón

  3. 12

    5.Þáttur Gerður í Blush: "Aldrei ákveða fyrirfram að fólk sé ekki tilbúið að borga fyrir eitthvað!"

    Við fengum til okkar hana Gerði Huld í mjög svo innblástursríkt spjall um tekjur, rekstur og hugarfar. Hún hefur lifað tímana tvenna þegar að kemur að rekstri en hún stofnaði sitt aðeins 21 árs og hefur ekki litið um öxl síðan. Ef þú vilt fá vikuskammt af innblæstri á rúmum klukkutíma, þá er þetta þáttur fyrir þig! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna Eignaumsjón

  4. 11

    4. Þáttur - Fasteignamarkaður ásamt Páli Pálssyni og Björku Pálsdóttur

    Í þætti dagsins tökum við fyrir fasteigna- og lánamarkaðinn eins og hann leggur sig með tveimur sérfræðingum. Annar þeirra er hlustendum góðkunnur en Páll Pállson eigandi Pálsson fasteignasölu mætir til okkar annað árið í röð en ásamt honum fengum við til okkar hana Björk Pálsdóttur íbúðarlánaráðgjafa. Áhugavert spjall við fólk sem þekkir leikinn þegar að kemur að fasteignum!  Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna Eignaumsjón

  5. 10

    3.þáttur - Georg Lúðvíksson: "Fjármálahegðun og erfðir eru nátengd fyrirbæri"

    Við fengum til okkar einn helsta sérfræðing landsins í persónulegum fjármálum, hann Georg Lúðvíksson, en í lok síðasta árs kom út bókin Sálfræði peninganna í þýðingu hans og Kristrúnar Tinnu Gunnarsdóttur. Georg hefur komið víða við og stofnaði meðal annars Meniga, en er nú að hefja nýja og spennandi vegferð Spesía, sem kynnt verður til leiks á næstu misserum. Fróðlegur og upplýsandi þáttur að vanda þennan fimmtudaginn og að sjálfsögðu hvetjum við alla sem hafa áhuga á heilbrigðum peningavenjum að leggja við hlustir! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna Eignaumsjón

  6. 9

    2.Þáttur - Lína Birgitta ræðir kaupfíkn og rekstur

    Gestur okkar í dag er Lína Birgitta Sigurðardóttir sem stóð ung frami fyrir möguleikanum á að lýsa sig gjaldþrota. Hún glímdi við kaupfíkn frá ungum aldri, en hefur í dag tekist að byggja upp magnaðan feril sem áhrifavaldur, hlaðvarpari og frumkvöðull en í dag rekur hún fyrirtækið Define the line sem hefur náð talsverðri útbreiðslu og er á spennandi tímamótum. Lína er sönnun þess að þó að allt sé í rúst í fjármálunum þá er hægt að snúa því við! Skylduhlustun fyrir alla sem hafa áhuga á góðum árangurssögum! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna Eignaumsjón

  7. 8

    1.Þáttur - Nína Björg sálfræðingur: "Við viljum alltaf það sama og nágranninn"

    Þá hefjum við seríu 2 af Viltu finna milljón hlaðvarpinu! Í dag kom til okkar hún Nína Björg sem er menntaður sálfræðingur og hefur lagt sérstaka áherslu á þá sálfræðilegu þætti sem liggja á bakvið peninga. Áhugavert spjall, þar sem við förum um víðan völl á þessum stórmerkilega anga sálfræðarinnar! Einnig skyggnumst við á bakvið tjöldin við gerð þáttanna og gefum bestu ráðin eins og áður. Eitthvað fyrir alla í dag! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna MyIgloo

  8. 7

    7.þáttur - Spjall við keppendur og uppgjör (Höskuldarviðvörun)

    Þá er komið að lokaþættinum sem verður helgaður keppendum okkar. Því miður voru Kristjana og Daníel vant við látin en Jóhann & Askur og Ólafur & Guðrún mættu eldhress. Nú þegar keppni er lokið spyrjum við þau um reynslu þeirra úr þáttunum og lífið eftir keppnina. Takk kærlega fyrir áhorfið og hlustunina í þessari þáttaröð og við sjáumst í þeirri þriðju!  Umsókn fyrir næstu seríu fer fram hér: https://stod2.is/vfm - Þetta gæti breytt lífi ykkar! 

  9. 6

    6.þáttur - Halldór Kristinsson forstöðumaður hlutabréfa hjá Landsbréfum

    Við fengum til okkar hann Halldór Kristinsson sjóðsstjóra og forstöðumann hlutabréfa hjá Landsbréfum og fórum yfir víðan völl í fjárfestingum. 

  10. 5

    5.þáttur - Björn Berg: Forðastu að stofna framtíðarsjóð í nafni barnsins

    Það eru fáir eins fróðir um persónuleg fjármál og sjálfur Björn Berg sem mætti til okkar og úr varð tæpur klukkutími af umræðum um hin ýmsu málefni. Við ræddum allt frá framtíðarreikningum barna til lífeyrismála og því er þessi þáttur fyrir fólk á öllum aldri. Sannkölluð virðissprengja í þætti dagsins! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg  Pálsson fasteignasala  Hopp  

  11. 4

    4.þáttur - Katrín Björk: Eyddi aðeins 6.000 kr. í mat á viku og fólk varð brjálað

    Við fengum til okkar hana Katrínu Björk sem er minimalisti og sannkallaður sérsfræðingur þegar að kemur að matarinnkaupum. Hún heldur úti Youtube rás með 126.000 fylgjendum þar sem hún miðlar visku sinni í sparnaði en auk þess þá heldur hún úti "Meira með minna" á instagram og facebook. Við fórum yfir hvernig hægt er að besta matarinnkaup inn á heimilið, markmiðasetningu og margt fleira. Stórskemmtilegur þáttur og alveg hrikalega gagnlegur! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg  Pálsson fasteignasala  Hopp

  12. 3

    3.þáttur - Íris Líf: Þarf 200 milljónir til að öðlast fjárhagslegt frelsi

    Þessa vikuna fengum við til okkar hana Írisi Líf sem stefnir að því að verða fjárhagslega sjálfstæð fyrir þrítugt með FIRE aðferðafræðinni. Við spurðum hana spjörunum úr og úr varð magnað viðtal við unga konu á uppleið sem lætur fátt stoppa sig. Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg  Pálsson fasteignasala  Inkasso

  13. 2

    2.Þáttur - Páll Pálsson fasteignasali: "Þóknun fasteignasala er umsemjanleg"

    Við fengum til okkar Pál Pálsson fasteignasala og eiganda Pálsson fasteignasölu og fórum yfir góð og gagnleg ráð þegar kemur að kaupum og sölu á fasteignum. Stórskemmtilegt viðtal sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg  Pálsson fasteignasala  Inkasso  

  14. 1

    1.Þáttur - Ná Venný og Hörður að greiða upp einbýlishúsið á 6 árum?

    Í þessum fyrsta þætti af Viltu finna milljón hlaðvarpinu förum við yfir keppendur annarar seríu og skyggnumst bakvið tjöldin. Við fengum til okkar þau Venný og Hörð sem báru sigur úr bítum í fyrstu seríu þáttanna en þau eru á áhugaverðri vegferð og hafa ekkert gefið eftir síðan þau luku keppni. Eitthvað fyrir alla í þessum fyrsta þætti! Þátturinn er í boði: Aukakrónur  Bónus Aurbjörg  Pálsson fasteignasala  Inkasso

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Viltu finna milljón eru fjármála- og fræðsluþættir á Stöð 2. Þáttarstjórnendur eru Hrefna og Arnar Þór Ólafsson.

HOSTED BY

viltufinnamilljon

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Viltu finna milljón? have?

Viltu finna milljón? currently has 14 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Viltu finna milljón? about?

Viltu finna milljón eru fjármála- og fræðsluþættir á Stöð 2. Þáttarstjórnendur eru Hrefna og Arnar Þór Ólafsson.

How often does Viltu finna milljón? release new episodes?

Viltu finna milljón? has 14 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Viltu finna milljón??

You can listen to Viltu finna milljón? on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Viltu finna milljón??

Viltu finna milljón? is created and hosted by viltufinnamilljon.
URL copied to clipboard!