PODCAST · business
Viðskiptapúlsinn
by ViðskiptaMogginn
Hlaðvarpsþáttur um viðskipti og efnahagsmál sem tekinn er upp á ritsjórn Morgunblaðsins.
Episodes
-
Viðskiptapúlsinn 77. þáttur
Í þætti dagsins er rætt um hvort að sérstök glös bæti upplifun af viskídrykkju. Þá er rætt um þróun og horfur á íbúðamarkaði, og verðhækkanir sem þar hafa verið. Einnig er komið inn á tæknifyrirtæki og hæstaréttardómarann Ruth Bader Ginsburg sem féll frá á dögunum.
-
Viðskiptapúlsinn 76. þáttur
Í þætti dagsins er rætt um mikið aukið peningamagn í umferð, fjallað er um fjarvinnu sem er komin til að vera og mikinn vöxt í óverðtryggðum lánum bankanna. Þá er fjallað um ferðaþjónustu á landsbyggðinni, og minnst á Softbank og hlutafjárútboð Icelandair.
-
Viðskiptapúlsinn 75. þáttur
Rætt var um skuldakreppu sem gæti verið í vændum, og ummæli Lee Buchheit þar um. Velt var vöngum yfir nýsköpunarumhverfinu hér á landi, og vinnumarkaðnum. Þá kom Pegasus og verkefni í kvikmyndaiðnaði sömuleiðis við sögu í þætti dagsins.
-
Viðskiptapúlsinn 74. þáttur
Í þætti dagsins er rætt um stöðu Icelandair og væntanlegt hlutafjárútboð félagsins. Þá er farið yfir efnahagsmálin eins og þau koma Bjarna Benediktssyni fjármála- og efnahagsráðherra fyrir sjónir í ítarlegu samtali ViðskiptaMoggans við hann, og rætt er um stöðuna í japönsku þjóð- og efnahagslífi...
-
Viðskiptapúlsinn, 73. þáttur
Útboð Icelandair, stýrivaxtaákvörðun, höfuðstöðvar Landsbankans, skráning Unity Software á markað í Bandaríkjunum. Allt á einum stað.
-
Viðskiptapúlsinn, 72. þáttur
Asos er með gríðarleg umsvif á Íslandi gegnun netverslun og Landsbankinn greiðir fúlgur fjár til Apple til þess að geta haldið úti Apple Pay. Icelandair vinnur að fjárhagslegri endurreisn en það mun taka langan tíma. Þetta og meira til í þætti dagsins.
-
Viðskiptapúlsinn, 71. þáttur
Netverslun hefur tekið kipp í kjölfar kórónuveirufaraldursins og allt ætlaði að ganga af göflunum í átökum RÚV og Samherja. Allt þetta og meira til í Viðskiptapúlsi dagsins.
-
Viðskiptapúlsinn, 70. þáttur
Rætt er um Tomma í Hamborgarabúllunni, blómasölu sem er upp á sitt allra besta, góða aðsókn í Minigarðinn og velgengni Icelandair Cargo í faraldrinum. Þá er tekin staðan á netverslun á Íslandi eftir samkomubann, og eitt og annað fleira.
-
Viðskiptapúlsinn, 69. þáttur
Í þætti dagsins er rætt um pítsumarkaðinn á Íslandi, en fimm milljónir pítsa seljast á höfuðborgarsvæðinu árlega. Þá föum við yfir stöðuna hjá flugfélaginu Atlanta, ásamt því sem Kostur.is og Íslandspóstur koma við sögu.
-
Viðskiptapúlsinn, 68. þáttur
Við ræðum nýjan heimsins stærsta loftkastala við Perluna, bílavarahlutafyrirtækið Netparta á Selfossi, sem er með umhverfismálin í öndvegi, gengismálin ásamt því sem pítsustaðurinn Spaðinn kemur við sögu. Þá segjum við frá Vök, baðstaðnum á Egilsstöðum, þar sem m.a. er hægt að fá sér te úr heitu...
-
Viðskiptapúlsinn, 67. þáttur.
Huawai segir mikil tækifæri fólgin í innleiðingu 5G-tækninnar á Íslandi, 40% vöxtur er í ferðavagnasölu hjá Víkurverki, Reðasafnið stendur vel og Kex er með pítsustað og heimavist í undirbúningi.
-
Viðskiptapúlsinn, 66. þáttur
Rio Tinto lýsir sig reiðubúið að auka framleiðslu að nýju í Straumsvík. 30 veitingastaðir hafa lokað í miðborginni í kjölfar kórónuveirufaraldursins og Halla Helgadóttir ræðir í ViðskiptaMogganum um tengsl hönnunar og viðskipta.
-
Viðskiptapúlsinn, 65. þáttur
Icelandair vill ekki þurfa að taka við 10 MAX vélum, PAR Capital Managment vill ekki fjárfesta í Icelandair Group og forstjóri Byko býst við erfiðum vetri. Allt að frétta í Viðskiptapúlsi dagsins.
-
Viðskiptapúlsinn, 64. þáttur
Margar fréttir fjalla um hvernig íslenskt hagkerfi kemur undan kórónuveirufaraldrinum. Spaðakóngurinn, Þórarinn Ævarsson, hefur efnt til verðstríðs á pizzamarkaði og veiðikortin seljast sem aldrei fyrr.
-
Viðskiptapúlsinn, 63. þáttur
Rætt við Eddu Hermannsdóttur um nýja bók hennar, Framkoma, sem hefur vakið verðskuldaða athygli að undanförnu.
-
Viðskiptapúlsinn, 62. þáttur
Rætt um stöðu Icelandair í deilum við Flugfreyjufélagið, tap Icelandair af flugrekstri á Grænhöfðaeyjum, viðtal við Árna Samúelsson bíókóng og margt, margt fleira.
-
Viðskiptapúlsinn, 61. þáttur
Icelandair stendur frammi fyrir stærri áskorunum en nokkru sinni fyrr og Samkeppniseftirlitið heldur áfram rannsókn á Brimi. Þetta og margt fleira í áhugaverðu spjalli dagsins.
-
Viðskiptapúlsinn, 60. þáttur
Rætt við Sigurð Má Jónsson, blaðamanna, höfund nýrrar bókar sem fjallar um atburðarásina að tjaldabaki þegar afnám hafta var undirbúið.
-
Viðskiptapúlsinn, 59. þáttur
Viðtal við Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, ferðamálaráðherra sem segir stór verkefni framundan við að fleyta íslensku atvinnulífi yfir erfiðasta hjallann.
-
Viðskiptapúlsinn, 58. þáttu
Rætt við dr. Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins og dr. Ragnar Árnason, prófessor emeritus, um stöðu hagkerfisins og nýjasta aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Hlaðvarpsþáttur um viðskipti og efnahagsmál sem tekinn er upp á ritsjórn Morgunblaðsins.
HOSTED BY
ViðskiptaMogginn
CATEGORIES
Loading similar podcasts...