PODCAST · society
Víðsvegar
by RÚV Hlaðvörp
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
7
Flakkað um Hrísey
Í dag liggur leiðin út í Hrísey í Eyjafirði. Þangað fór þáttastjórnandi Víðsvegar mánudaginn 8. júní, flakkaði um og spjallaði við fólk á förnum vegi.Viðmælendur: Peter ferðamaður frá Hollandi, Björgvin L. Pálsson, Aron Trausti Sigurbjörnsson, Dröfn Teitsdóttir, Theódóra Kristjánsdóttir, Þórunn Björk Arnórsdóttir, Ásrún Ýr Gestsdóttir og Linda María Ásgeirsdóttir.Þetta var síðasti þáttur Víðsvegar, í bili. Þátturinn fer nú í sumarfrí en snýr aftur í september og þá byrjar flakk okkar aftur. Og ef þið eruð með ábendingar um skemmtilega viðmælendur, sögur eða staði má alltaf senda línu á netfang þáttarins, [email protected]ón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
6
Litið yfir farinn veg
Þessi þáttur er sá næstsíðasti áður en Víðsvegar fer í sumarfrí — og því ætlum við að líta yfir farinn veg og rifja upp brot úr viðtölum frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
5
Tvö verðlaunabú í Eyjafirði og framkvæmdastjóri á tímamótum
Í þetta skipti erum við komin í Eyjafjörð þar sem ætlunin er að forvitnast aðeins um landbúnað í firðinum. Við heimsækjum kúabúið á Espihóli og svínabúið á Sölvastöðum. Bæði þessi bú eru í Eyjafjarðarsveit en eiga það líka sameiginlegt að hafa nýlega fengið verðlaun frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. Nautgriparæktarverðlaun ársins fóru á Espihól og svínabúinu á Sölvastöðum var veitt Hvatningarverðlaun sambandsins. Einnig er rætt við framvkæmdastjóra Búnaðarsambands Eyjafjarðar sem stendur á tímamótum. Viðmælendur: Sigurgeir B. Hreinsson, Ástþór Örn Árnason, Svana Ósk Rúnarsdóttir og Ingvi Stefánsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
4
Flakkað um Ólafsfjörð
Í þessum þætti er haldið til Ólafsfjarðar - sem er annar tveggja þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Ætlunin er að flakka um bæinn og ramba á skemmtilegt og áhugavert fólk sem getur sagt okkur frá daglegu lífi á Ólafsfirði. Við kíkjum til dæmis í fjárhús, fáum að heyra af fjölgun barna í leikskólanum, forvitnumst um lífið í menntaskólanum, kíkjum í Pálshús - eitt elsta húsið í bænum, ræðum við harðduglegan verslunareiganda sem rekur verslun sem opin er allan sólarhringinn, forvitnumst um hvað er að gerast á hafnarsvæðinu og heyrum þar af nýrri samfélagsmiðstöð og listarými. Viðmælendur: Þröstur Ólafsson, Björk Óladóttir, Kristín Karlsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Þorsteinn Ásgeirsson, Alina Streza, Gauti Már Rúnarsson og Ida Semey.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
3
Menning og ferðaþjónusta á Akureyri
Í dag lítum við inn á opna vinnustofu sem var haldin á Akureyri í byrjun maí og bar titilinn „Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi“. Markmiðið með viðburðinum var að styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónstuaðila á svæðinu.Vinnustofan var á vegum Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, Félags íslenskra safna og safnafólks, Síldarminjasafnsins á Siglufirði og Samtaka ferðaþjónustunnar.Viðmælendur: Guðrún Dröfn Whitehead, Vera Vilhjálmsdóttir, Dagrún Ósk Jónsdóttir, Helga Nína Helgadóttir, Halldór Óli Kjartansson, Katrín Harðardóttir, Steinunn María Sveinsdóttir, Haraldur Þór Egilsson og Jóhannes Þór Skúlason.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
2
Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga
Þátturinn er að þessu sinni helgaður undirbúningi og framkvæmd sveitarstjórnarkosninga, en að því verkefni koma mörg hundruð manns.Spjallað verður við þrjá formenn kjörstjórna, á mismunandi tímapunktum í ferlinu. Þannig fáum við innsýn í verkefni kjörstjórna í ólíkum sveitarfélögum á mismunandi tímum við undirbúning kosninga. Við endum síðan þáttinn á skrifstofu landskjörstjórnar og forvitnumst um þeirra aðkomu að ferlinu.Viðmælendur: Sveinn Gestsson í Dalabyggð, Helga Eymundsdóttir á Akureyri, Sveinbjörn Eyjólfsson í Borgarbyggð og Skorradalshreppi, og Ástríður Jóhannesdóttir hjá landskjörstjórn.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
1
Fjöruferð og þörungarannsóknir
Í þættinum í dag förum við í fjöruferð og fáum að kynnast þörungarannsóknum við Ísland. Um miðjan apríl var haldið þörunganámskeið á vegum Hafrannsóknastofnunar. Námskeiðið var ætlað þeim sem starfa víða um land við vöktun eða rannsóknir á fjörum og grunnsævi. Við slógumst í för með þeim. Viðmælendur: Karl Gunnarsson, Svanhildur Egilsdóttir, Sindri Gíslason, Hólmfríður Jakobsdóttir, Viktor Árnason og Valtýr Sigurðason.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
0
Flakkað á milli þriggja almenningsbókasafna
Í þetta skipti verður þátturinn helgaður almenningsbókasöfnum. Við flökkum á milli þriggja sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - Mosfellsbæjar, Kópavogs og Hafnarfjarðar - og kynnumst bókasafninu á hverjum stað fyrir sig. Viðmælendur: Auður Halldórsdóttir og Eva Dögg Diego Þorkelsdóttir á Bókasafni Mosfellsbæjar, Lísa Zachrison Valdimarsdóttir og Eyrún Ósk Jónsdóttir á Bókasafni Kópavogs, og Sigrún Guðnadóttir og Hugrún Margrét Óladóttir á Bókasafni Hafnarfjarðar.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
-1
Áherslur eldri borgara fyrir kosningar
Í dag eru það málefni eldri borgara sem verða til umfjöllunar, nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Landssamband eldri borgara hefur tekið saman nokkrar áherslur og hvetur aðildarfélög sín til að bjóða framboðum á opna fundi. Í þættinum verður spjallað við formann landssambands eldri borgara og slegið á þráðinn til stjórnarmanna í þremur félögum eldri borgara víða um land. Viðmælendur: Björn Snæbjörnsson, Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, Magnús J. Magnússon og Ragnheiður Hjálmarsdóttir.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
-2
Hvernig blóð er unnið og sent um allt land
Í dag fræðumst við um hvernig blóð, sem safnað er af Blóðbankankanum, er unnið og svo flutt um allt land - en starfsemi Blóðbankans er mikilvægur hluti heilbrigðiskerfisins svo hægt sé að framkvæma margar algengar og lífsnauðsynlegar aðgerðir og læknismeðferðir. Viðmælendur:Hanna Vigdís Jóhannesdóttir og Stefán Rafn Stefánsson hjúkrunarfræðingar við Blóðbankann á Akureyri. Monica og Árni Jökull Gunnarsson blóðgjafar. Ína Björg Hjálmarsdóttir deildarstjóri Blóðbankans. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
-3
Þjóðminjasafnið: Starfsemin og áskoranir
Í þessum þætti verður farið í Þjóðminjasafn Íslands við Suðurgötu í Reykjavík, þar sem við ræðum við fjóra sérfræðinga safnsins, kynnumst starfseminni í gegnum þeirra verkefni og heyrum um helstu áskoranir sem fylgja varðveislu og miðlun á þjóðminjum landsins. Viðmælendur: Atli Freyr Kristófersson, Ágústa Kristófersdóttir, Helga Vollertsen og Karólína Stefánsdóttir.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
-4
Atvinnulífið á Grenivík
Í dag er ferðinni heitið til Grenivíkur - þéttbýliskjarnans í Grýtubakkahreppi við austanverðan Eyjafjörð - og þar ætlum við að kynnast atvinnulífinu. Viðmælendur:Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson, Ingvar Þór Ingvarsson, Hermann Gunnar Jónsson og Ingólfur Björnsson hjá smíða- og afþreyingarfyrirtækinu Fjallhamri.Erica Patricia Rivera og Karol Brynja í Jónsabúð. Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps og Fjóla Valborg Stefánsdóttir, forstöðumaður á hjúkrunarheimilinu Grenilundi. Sigurbjörn Þór Jakobsson, framkvæmdastjóri Pharmartica. Ægir Jóhannsson, vinnslustjóri, og Óðinn Valsson verk- og gæðastjóri hjá fiskvinnslu Gjögurs á Grenivík. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
-5
Byggðamál og byggðarannsóknir
Í þætti dagsins kynnum við okkur í byggðamál og byggðarannsóknir – málefni sem snýr að því hvernig fólk býr, vinnur og þróar samfélög sín á mismunandi svæðum. Það er einnig viðeigandi að í þessum þætti eru viðmælendur á þremur stöðum: Í Borgarnesi, Stokkhólmi og Skagafirði.Viðmælendur: Arnar Már Elíasson, Sigríður Elín Þórðardóttir, Vífill Karlsson og Sæunn Gísladóttir.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
-6
Tónlistarlífið í Austur-Húnavatnssýslu
Í þetta skiptið liggur leiðin í Austur-Húnavatnssýslu, svæði sem nú samanstendur af tveimur sveitarfélögum: Húnabyggð og Sveitarfélaginu Skagaströnd. Þar ætlum við að kynna okkur tónlistarlífið. Hvað einkennir það? Hvernig hefur það þróast á undanförnum árum? Hvernig er aðgengi að tónlistarmenntun?Viðmælendur: Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Eyþór Franzson Wechner.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
-7
Dalabyggð: Sjálfsmynd samfélags
Í þessum fyrsta þætti Víðsvegar er ferðinni heitið í Dalabyggð - þar sem við forvitnumst um hvað einkennir sjálfsmynd svæðisins sem og þá miklu ímyndarvinnu sem íbúar hafa verið í síðustu ár. Sú vinna byrjaði af krafti eftir að sveitarfélagið var tekið inn í byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir.Viðmælendur: Björn Bjarki Þorsteinsson, Linda Guðmundsdóttir, Bjarnheiður Jóhannsdóttir og Ingibjörg Þóranna Steinudóttir.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
HOSTED BY
RÚV Hlaðvörp
CATEGORIES
Loading similar podcasts...