EPISODE · Aug 27, 2019 · 28 MIN
#18 Björk Óðinsdóttir, Crossfit og Andri Snær Stefánsson leikmaður KA í handbolta
from Taktíkin · host N4
Björk Óðinsdóttir, Crossfitkeppandi og Andri Snær Stefánsson leikmaður KA í handbolta eru gestir Skúla Braga að þessu sinni í Taktíkinni „Ég myndi segja að þetta væri tvískipt íþrótt. Crossfit er æfingarform fyrir alla, líka fyrir ömmu mína. Þetta er í raun hugmynd af hreyfingu, hvernig hún er sett upp og þú ert alltaf í hóp. Ég get í raun æft með ömmu minni, því við getum verið að gera sömu æfingu nema ég geri hana erfiðari og hún meira á sínum hraða og síðan getur hún breytt aðeins æfingunum til að henta sér betur. Þetta er það sem er svo lokkandi og þessvegna er þetta orðið svona stórt. Það eru svo margir sem að geta farið í Crossfit. En svo er keppnisíþróttin Corssfit og hún er dálítið meira crazy,“ sagði Björk Óðinsdóttir keppandi í Crossfit og þjálfari. KA vann Akureyri um helgina 25-26 í Olís deildinni í leiknum um montréttinn í bænum. KA hefur því unnnið báðar rimmur þessara liða á tímabilinu sem hafa báðar verið rosalegar, troðfullar hallir og rífandi stemning. „Ég er orðin 32 ára en ég fékk gæsahúð strax í upphitun þegar að menn byrjuðu á trommunum að styðja sín lið. Það var þvílíkur kraftur báðu megin,“ sagði Andri Snær Stefánsson fyrirliði KA í handbolta eftir leik og bætti síðan við „svona vill maður hafa þetta. Þetta var ótrúlega gaman og ástæðan fyrir því að maður er í þessu, til þess að spila svona leiki.“
NOW PLAYING
#18 Björk Óðinsdóttir, Crossfit og Andri Snær Stefánsson leikmaður KA í handbolta
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.