EPISODE · Aug 27, 2019 · 29 MIN
#2 Meistaraflokkur Þórs í Knattspyrnu
from Taktíkin · host N4
Umfjöllunarefni þáttarinns að þessu sinni er meistaraflokkur Þórs í knattspyrnu. Lárus Orri Sigurðsson, Sveinn Elías Jónsson, Ármann Pétur Ævarsson, Loftur Páll Eiríksson og Óskar Elías Zoega Óskarsson eru gestir Skúla Braga að þessu sinni. "Mín reynsla er sú að það sé best að henda mönnum út í mesta dýpið, og þá kemur í ljós hvort að menn kunna að synda eða ekki." sagði Sveinn Elías Jónsson fyrirliði karlaliðs Þórs á Akureyri. Ásamt honum var Lárus Orri Sigurðsson þjálfari liðsins mættur í settið til að ræða stöðuna á liðinu eftir fyrri hluta tímabilsins og markmiðunum sem eru framundan. „Seinni hlutinn verður erfiðari. Hann verður erfiðari útaf því að það virðast öll liðin, ekki bara í kringum okkur, heldur meira og minna öll liðin í deildinni vera að styrkja sig. Svo líka held ég að við höfum fengið að fljúga undir radarnum í upphafi móts, menn vanmátu okkur til að byrja með og það eru menn ekki að gera núna.“ Ármann Pétur Ævarsson er kominn með 300 leiki fyrir Þór á Akureyri og er ekkert á leiðinni að hætta. „Það er gaman að fá að upplifa svona fyrir sitt félag, sitt uppeldis félag og í raun og veru erum við svosem ennþá að telja. Ég er að halda áfram, ég er ekkert hættur.“ Mikil ferðalög eru raunveruleiki sem leikmenn á landsbyggðunum þurfa að sætta sig við. „Maður er náttúrlega búinn að vera í þessu síðan að maður var 6-7 ára að ferðast svona þannig að þetta er oðrið bara venjulegt fyrir manni. Maður er kannski ekkert að kippa sér upp við það að þurfa að fara í 5 tíma rútu.“ sagði Loftur Páll Eiríksson leikmaður Þórs Akureyri í knattspyrnu. „Það þéttir hópnum vel saman að keyra í leiki.“ bætti Óskar Elías Zoega Óskarsson við og bendir þar með á kostinn við öll þessi ferðalög. „Móralslega séð finnst mér landsbyggðaliðin miklu miklu skemmtilegri“ -Loftur Páll
NOW PLAYING
#2 Meistaraflokkur Þórs í Knattspyrnu
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.