#4 Magni Grenivík

EPISODE · Aug 27, 2019 · 29 MIN

#4 Magni Grenivík

from Taktíkin · host N4

Umfjöllunarefni þáttarinns að þessu sinni er meistaraflokkur Magna á Grenivík í knattspyrnu. Gísli Gunnar Oddgeirsson, Steini Þorra, Hjörtur Geir Heimisson, Arnar Geir Halldórsson, Pétur Heiðar Kristjánsson og Baldvin Ólafsson eru gestir Skúla Braga að þessu sinni. „Þetta er oft erfitt á köflum en þetta rekur mann áfram þessi knattspyrna. Þetta er ástríðan,“ sagði Gísli Gunnar Oddgeirsson meðal annars í þættinum sem er tileinkuður Magna frá Grenivík. „Það er nú eiginlega bara eitt sem að fer saman og það er Magni Grenivík og stemning. Það er í tísku hjá íþróttafélögum núna að gefa út ákveðin gildi sem að þau vinna eftir og ég held að kannski aðal gildið á Grenivík sé gleði. Það á alltaf að vera gaman að vera í Magna Grenivík,“ sagði Arnar Geir. „Þetta er byrjunarpunktur það er alveg klárt, á þessu leveli. Þessvegna er mjög mikilvægt að halda okkur uppi. Ef að það gerist ekki þá er það samt enginn heimsendir. Þá bara förum við upp aftur,“ sagði Pétur Heiðar Kristjánsson, einnig þekktur sem Peddi, meðal annars í þættinum. 

NOW PLAYING

#4 Magni Grenivík

0:00 29:53

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

URL copied to clipboard!