Íþróttarabb HR // 10. þáttur: Ian Jeffreys

EPISODE · Mar 6, 2024 · 44 MIN

Íþróttarabb HR // 10. þáttur: Ian Jeffreys

from Íþróttarabb HR · host Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University

Ian Jeffreys er nýr prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Ian er þekktur á heimsvísu í sínu fagi en hann hefur hlotið viðurkenningar fyrir störf sín sem þjálfari, kennari og höfundur.Ian er fyrrum atvinnumaður í rúgbí og alþjóðlegur þjálfari en hann er meðal fremstu vísindamann á heimsvísu er kemur að  hraða og snerpu þjálfun í hópíþróttum en svokallað Gamespeed kerfi og RAMP upphitunarkerfi? sem hann hannaði hefur orðið til þess að auka gæði æfinga meðal íþróttafólks til muna.Ian er prófessor Emiritus í  styrk og þrekþjálfun? og hefur verið gesta prófesor við fjölda alþjóðlegra háskóla ásamt því að halda námskeið á vegum fyrirtækis síns All-Pro Performance. Árið 2021 hlaut hann viðurkenningu fyrir störf sín frá Strength and Conditioning Society. Jeffreys hefur skrifað og komið að útgáfu 11 bóka, yfir 25 bókakafla og yfir 90 ritrýndra greina á sínu fræðasviði.Jeffrey hefur verið meðlimur NSCA­­­ –Alþjóðleg samtök þjálfara í styrk- og þrek þjálfun síðan árið 1989 og sat í stjórn á árunum 2016 til 2019 auk þess að vera varaforseti samtakanna á árunum 2018-2019. Frá og með sumrinu 2024 verður hann forseti samtakana. Jeffrey er eftirsóttur gestur á ráðstefnum víða um heim og hefur haldið erindi og námskeið í yfir 20 löndum.Peter settist niður með Ian og ræddi við hann um starf hans sem fræðimaður og þjálfari.  UM ÍÞRÓTTAFRÆÐINám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.UM ÍÞRÓTTARABBIÐÍþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.UM HR HLAÐVARPIÐHR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). 

NOW PLAYING

Íþróttarabb HR // 10. þáttur: Ian Jeffreys

0:00 44:38

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Real Horoscopes Bravecasting Start your day with "Real Horoscopes", where we bring you a concise, uplifting forecast for your zodiac sign. This podcast is generated using AI. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. RAISING THE BAR MUSICHYPEBEAST The RAISING THE BAR Podcast is dedicated to providing a fresh and unconventional broadcast platform for the biggest names in music and entertainment.The interview insight provided by the staff of MUSICHYPEBEAST separates us from the pack. The passion of RAISING THE BAR podcast is fueled by Millennial Music culture. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. HR 2 - President Kenyatta of Kenya answers questions about and takes bold stand against homosexuality in interview with CNN's Christiane Amanpour American Family Association President Kenyatta of Kenya answers questions about and takes bold stand against homosexuality in interview with CNN's Christiane Amanpour Drosjemysteriet Stenersen Østlendingen Torsdag 13. juli 1972 fikk drosjeeier Gudmund Stenersen i Rendalen bestilling på en langtur til Vestlandet. Han la igjen en lapp hjemme til familien som fortalte at han skulle kjøre noen turister som hadde ødelagt bilen sin til Møre. Han kunne ventes tilbake lørdag eller søndag. Så forsvant han. Stenersen-saken har vært et av norgeshistoriens mest omtalte kriminalsaker. I løpet av de snart 50 åra som er gått har politiet brukt tusenvis av timer på ulike vitneobservasjoner, feilspor og teorier mens det har versert fantasifulle historier på hva som egentlig skjedde med drosjesjåføren Gudmund Stenersen. Nå mener sønnen til Gudmund, Sæmund Stenersen og tidligere journalist Øyvind Bæk å ha funnet svaret. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
URL copied to clipboard!