PODCAST · religion
Biblían á mannamáli - Hlaðvarp fyrir lífið
by Halldór Lár
Saga - Menning - Samhengi - Trú Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.
-
28
Dagur 25 - Það verður opnað
Þessi þáttur fjallar um áhrif upprisunnar á frumkirkjuna og hvers vegna boðskapurinn um upprisu ógnaði yfirvöldum Rómarveldis. Rætt er um að upprisan sé ekki aðeins loforð um líf eftir dauða heldur kraftur til að leiðrétta óréttlæti og umbreyta heiminum og sköpuninni. Þátturinn hvetur til að biðja, leita og knýja á - það verður opnað og innri maðurinn endurnýjast. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson www.halldorlar.is [email protected]
-
27
Dagur 24 - 120 manns og allt nýtt
Í þættinum finnum við Mola og hugleiðum orð Jesú um að hann ætli að búa okkur stað. Í ljósi orða hans, skoðum við sumar þeirra spurninga, sem mannkynið spyr sig að. Svo förum við í Postulasöguna: 120 mann saman komin í loftstofu; bæn og val nýs postula (Matthías) og biðin fram að hvítasunnu. Við köllum eftir andlegri vakningu kærleikans hér á landi. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson www.halldorlar.is [email protected]
-
26
Dagur 23 - Síðustu orð Jesú á jörð
Velkomin í Biblíuna á mannamáli, hlaðvarp fyrir lífið. Í þessum þætti ræðum við um síðustu orð Jesú á jörð og hvaða þýðingu þau höfðu fyrir lærisveinana. Kirkjan var með það eina verkefni að halda verki Krists áfram. Við skoðum aðeins hvernig heilagur andi verkar á meðal fólks og í hverju kraftur hans er fólginn. Taktu þátt í samtalinu um kærleika Guðs, kraft heilags anda og hvað þetta þýðir fyrir líf og trú í dag. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson www.halldorlar.is [email protected]
-
25
Dagur 22 - Jesúfólkið og heimsveldið
Velkomin í þáttinn okkar, Biblían á mannamáli. Molann finnum við í Sálmi 42. Síðan förum við yfir upphafi kirkjunnar eftir upprisu Jesú Krists, umhverfi Rómaveldisins, þrælakerfi og hvernig kristin bót og kærleikur breytti samfélaginu með umhyggju, lækningu og stuðningi við hina verst settu. www.halldorlar.is [email protected]
-
24
Dagur 21 - Myndir og líkingar andlegs lífs
Þessi þáttur skoðar andlega ferðalagið með myndlíkingu um bát sem traust á Guð: segl sem Orð Guðs og stýrið sem bæn. Svo skoðum við hátíðir og líkingar sem hægt er að tengja við páskahátíðina og það andlega líf sem Jesús býður okkur. Kristin trú er ekki tákn, ritúal og ytra kerfi, heldur djúpt andlegt samfélag við skapara himins og jarðar. Allt annað er aðeins vísbendingar um áfangastaðinn.
-
23
Dagur 20 - Guð starfar alltaf til góðs
Velkomin í þáttinn „Biblían á mannamáli“. Molinn í þessum þætti er úr Rómverjabréfinu, þar sem sagt er að Guð vinni allt til góðs, jafnvel í óvissu og þjáningu. Við skoðum tengslin milli páska gyðinga og kristinnar páskahátíðar: páskalambið í Gamla testamentinu og uppfylling þess í því sem Jesús Kristur gerði með krossdauða sínum og upprisu. Biblían talar til okkar í dæmisögum og líkingum, þar sem alltaf er að finna samsvörun milli þess náttúrulega og hins himneska. Þátturinn tengir saman sögulega framvindu og andlega merkingu, ræðir líf frumkirkjunnar eftir upprisuna og býður hlustendum von, óttaleysi og upplýsingar um hvernig biblíuleg túlkun leiðir til frelsis og nýs lífs.
-
22
Dagur 19 - Sjónarvottar, undur og von
Í þættinum ræðum við um fyrirgefninguna, í Molanum og skoðum dagana strax eftir upprisu Jesú Krists. Við förum yfir vitnisburði kvennanna við gröfina, ferðina til Emmaus, þegar Jesús birtist lærisveinum sínum og merkingu dýrðarlíkamans. Þátturinn tengir upprisu við von, kærleika og þörfina fyrir andlega vakningu í samtíma okkar.
-
21
Dagur 18 - Birkir Már og Halldór ræða merkingu upprisunnar
Í þessum þætti er rætt við Birki Má Kristinsson um upprisu Jesú Krists, og hvaða þýðingu hún hefur fyrir mannkynið. Hvað vakti fyrir Guði með dauða og upprisu Krists? Hvernig opinberast kærleikur Guðs í því sem gerðist um páskana? Hvaða áhrif hafa viðburðirnir á líf nútímamannsins og andlegt ferðalag fólks í dag. www.halldorlar.is [email protected]
-
20
Dagur 17 - Páskarnir ræddir við Birki Má
Birkir Már Kristinsson er með okkur til að fjalla um miðvikudag-föstudags í páskavikunni. Efnið er: konan og olían; síðasta kvöldmáltíðin; handtaka Jesú og krossfestingin. Dagarnir sýna kærleika Guðs, sem hefur lagt allt í sölurnar fyrir mannkynið. Þátturinn opinberar djúpa ást Guðs til mannkynsins og gefur skilning inn í andlegt ferðalag okkar allra.
-
19
Dagur 16 - Páskavikan; Jesús, musterið og fíkjutréð
Velkomin í Biblíuna á Mannamáli. Páskavikan í þessum þætti fjallar um mánudag og þriðjudag, samkvæmt Markúsi: fíkjutréð, sem engan ávöxt bar; Jesú, sem virðist svolítið pirraður í musterinu; og merkingu alls þessa í ljósi spádóma Gamla testamentisins. Við ræðum tengslin við Jeremía og aðra spámenn; dæmisöguna um víngarðinn og hvernig Markús sýnir okkur, að allt þetta táknar endalok hefðbundinna trúarforma og undirbúning fyrir nýtt tímabil í Guðs ríki.
-
18
Dagur 15 - Pálmasunnudagur
Velkomin í Biblíuna mannamáli, hlaðvarp fyrir lífið. Í páskavikunni ætlum við, í fjórum þáttum, að skoða atburðarásina í lífi Jesú þessa síðustu daga hans á jörð. Í þessum fyrsta þætti, á Pálmasunnudegi er það innreiðin inn í Jerúsalem. Við viljum skilja bakgrunninn; hvar var staðan í Jerúsalem; inn í hvaða umhverfi er Jesús að koma, osf. Það voru nefnilega tvær fylkingar að koma til borgarinnar þennan dag, tvær "skrúðgöngur" af algjörlega ólíkum uppruna.
-
17
Dagur 14 - Gömul sannindi í nýju ljósi
Velkomin í "Biblían á mannamáli". Í þessum fyrsta þætti af fjórum, í páska-þáttaröðinni, rifjum við upp hvernig og af hverju við lesum Biblíuna í ljósi Jesú Krists. Við skoðum stigvaxandi opinberun Guðs og hvernig Jesús er þar lykillinn að skilningi okkar á Orðinu. Þar með hefjum við ferðina inn í atburði páskanna. Hver veit nema eitthvað nýtt ljúkist upp fyrir okkur, eitthvað sem getur gjörbreytt sýn okkar á hlutina.
-
16
Dagur 13 - Sjálfsmynd okkar
Sæl verið þið og velkomin. Í þessum þætti byrjum við á molanum, þar sem skoðum hvernig Guð leiðir og tekur okkur inn í fjölskyldu sína — sjálfsmynd okkar byggist á náð hans, ekki eignum, framgangi, mistökum eða veikleikum. Síðan ræðum við markverða kennslu Jesú úr Markúsarguðspjalli, um unga manninn sem spyr hvað hana skorti til að öðlast eilíft líf. Jesús kallar hann til að losa sig undan fjötrum auðæfanna og þjóna aðeins Guði. Eru þá peningarnir illir? Við skoðum það.
-
15
Dagur 12 - Enn kemur Jesús á óvart
Molinn kemur úr Sálmi 91; hvernig við getum falið líf okkar í Guðs hendur, treyst á vernd hans og kærleika í ölduróti lífsins. Markús 9:30–37 fjallar um að Jesús boðaði dauða sinn og upprisu og kenndi lærisveinum sínum að sannur leiðtogi þjónar öðrum. Hann kenndi þjónandi forystu, langt á undan öllum. Hér heyrum við hann kenna um það hvernig Guðs ríki kemur á jörðu og að náið samfélag Guðs og manna sé þar lykilatriði.
-
14
Dagur 11 - Viðtal við Birki Má Kristinsson
Velkomin í hlaðvarpið okkar, Biblían á mannamáli, hlaðvarp fyrir lífið. - Þessum þætti má enginn missa af! Í þættinum er rætt við Birki Má Kristinsson, eiganda og framkvæmdastjóra Náttúruhlaupa. Birkir segir okkur frá lífi sínu og starfi fyrir Náttúruhlaup; hvernig útivist, hreyfing og tenging við náttúruna hafa styrkt bæði líkama og sál. Við ræðum líka persónulega trúarupplifun Birkis og andlegt ferðalag, í leit hans að djúpum tilgangi og raunveruleika.
-
13
Dagur 10 - Kraftaverk og sannar sögur
Velkomin í hlaðvarpið: Þátturinn fjallar um Veg Guðs á jörð; mikilvægi einlægrar bænar og hvernig trú skapar frið, gleði og miskunn. Persónulegar sögur og umræður um kraftaverk með brauðin sýna nákvæmni Guðs og að náð hans nær til alls mannkyns. Hvatning til að biðja frá hjartanu og lifa á vegi kærleikans.
-
12
Dagur 9 - Hvað merkir kraftaverk Jesú með brauðin?
Í þættinum er fjallað um merkingu kraftaverksins, þegar Jesús mettar fyrst 5.000 og síðan 4.000 manns. Hann spurði lærisveinana spurninga, sem þeir svöruðu rétt en skildu þó ekki merkinguna á bak við kraftaverkið. Við ræðum táknræna merkingu talnanna: fimm, tveir og tólf. Hvaða leyndardómur býr þar að baki? Þátturinn tengir kraftaverkið við andlegt ferðalag og hvernig lifandi orð Guðs gefur andlegt líf, innri næringu og skilning.
-
11
Dagur 8 - Speki, undur og skrítnar spurningar
Við lesum úr Markúsarguðspjalli, köflum sex og átta. Markmiðið er að skoða vel tvö mjög álíka kraftaverk, þar sem Jesús mettaði fjölda fólks, með lítið milli handanna. Við ræðum mjög skrítnar spurningar Jesú og skilningsvana lærisveinana, sem svöruðu rétt en skildu samt ekki neitt. Þátturinn hjálpar okkur að leita innsæis og skilnings í daglegu lífi.
-
10
Dagur 7 - Lifandi Orð
Sæl veriði — í þessum þætti förum við áfram í fjórða kafla Markúsarguðspjalls (vers 21–34) og skoðum hvað Jesús kennir um ljós, mælikvarða, andlegan vöxt og það hvernig Guðs ríkið vex. Við ræðum um að fela ekki ljósið og skoðum dæmisöguna um mustarðskornið — hvernig orðið lifir, vex og ber ávöxt í hjörtum okkar.
-
9
Dagur 6 - Leyndardómur Guðs ríkis
Í þessum þætti er lesið og rætt um fjórða kafla Markúsarguðspjalls: dæmisagan um sáðmanninn og hvað hún kennir okkur í dag. Hugleiðingar um að vera skapaður í Guðs mynd, kærleikann sem kjarnann í trúnni og hvernig ytri og innri aðstæður geta hindrað innri vexti okkar og þroska. Við hvetjum til sjálfskoðunar og varðveislu jarðvegs hjartans. Í næsta þætti skoðum við hvernig Guðs ríki vex innan frá þegar tekið er á móti orðinu. www.halldorlar.is [email protected]
-
8
Dagur 5 - Nýtt vín og gamlir belgir: Breytingin sem brýtur upp formið
Velkomin í þáttinn okkar. Í þessum þætti skoðum við Markúsarguðspjall (kafla 2-3) og ræðum um það hvernig kristin trú er ferðalag uppgötvunar og innri umbreytinga, þar sem ímynd Guðs endurspeglast í Kristi. Við förum í frásöguna af nýju víni á gömlum belgjum; val á tólf postulum og hvað nýir hlutir geta kallað á innan kirkjunnar í dag.
-
7
Dagur 4 - Markús 1
Velkomin í þáttinn okkar. Molann er að finna í Sálmi 55:23, þar sem við erum hvött til að bera ekki áhyggjurnar á herðunum. Svo skoðum við upphaf Markúsarguðspjallsins: Jóhannes skírara, skírn Jesú og boðskapinn um Guðs ríki. Þátturinn fjallar um hvernig bæn, trú og viðhorf geta breytt lífi okkar. Fagnaðarerindið um Guðs ríki, sýnir hvernig Jesús gerir heilt og dregur fram nýja sýn á von og endurreisn.
-
6
Dagur 3 - Frá myrkri til vonar
Velkomin í hlaðvarpið þar sem við ræðum Biblíuna á mannamáli: um lífshringi, von og það hvernig Guð stendur við sín fyrirheit. Við förum hratt yfir Ísraelssöguna til forna; tilgang Guðs og fyrirætlun; komu Messíasar; fyrsta vísi að Guðsríki á jörðu og hina fullkomnu ímynd Guðs.
-
5
Dagur 2 - Eilíf fyrirætlun
Velkomin í hlaðvarpið "Biblían á Mannamáli. Í þessum þætti skoðum við heildarmynd Biblíunnar, eða tilganginn. Er Guð með áætlun og ef svo, hver er hún þá? Páll hvetur okkur til að staldra við og spyrja: "Hver er ég í raun?" Rætt er um Guðs eilífu fyrirætlun, sköpun mannsins í mynd Guðs og hvernig við höfum misst sjónar af því hver við erum. Kristur kemur og opinberar leyndardómana, færir nánd og endurbyggingu innra mannsins.
-
4
2026 Dagur 1 - Lagt af stað
Velkomin í fyrsta þáttinn af „Biblían á mannamáli“ með Halldóri Lár. Markmiðið þáttanna er skilningur á Biblíunni, frekar en hraði og yfirferð; að tengja söguþræði og samhengi til að öðlast innsæi og skilning. Þættirnir eru aðgengilegir á öllum helstu hlaðvarpsveitum og á www.halldorlar.is — Velkomin í spennandi ferðalag um lendur og leyndardóma Biblíunnar. www.halldorlar.is [email protected]
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Saga - Menning - Samhengi - Trú Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.
HOSTED BY
Halldór Lár
CATEGORIES
Loading similar podcasts...