PODCAST · comedy
Á ég að hend'enni?
by Á ég að hend'enni?
Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman bækur sínar í orðsins fyllstu merkingu. Þær ætla að byrja á því að gera rassíu í bókaskápunum. Skilja sauði frá höfrum, finna gersemar og handsama lygaþvælu og rusl. Í hverjum þætti draga þær fram skruddur og meta hvort nauðsynlegt sé að eiga skræðuna áfram, hvort lærdómur hafi verið meðtekinn eða alls ekki. Fer hún í öndvegi, í Hirðinn, eða er öruggast að brenna hana á báli?Rannsóknarspurningin er: Eiga, eyða eða gefa?Því einhvers staðar þarf tiltektin að byrja!
-
72
Bless - Halló - Lokaþáttur 2025-2025
Send a textTímabær andlátsfrétt en afskaplega eldheitur útfararstjóri;)Á ég að hend´enni kveður því hér, í bili að minnsta kosti, því nú leita vinkonurnar á ný mið eftir ríflega 70 þætti sem allir eru aðgengilegir á öllum helstu streymisveitum. Í lokaþættinum réða þær til sín útfararstjóra enga aðra en manneskjuna sem þekkir og jarðar þær vitanlega best, æskuvinkonu beggja, Möggu Örnólfs sem er heimsfrægur Sykurmoli og handritshöfundur með meiru! Hlustendum og áskrifendum þökkum við innilega fyrir samferðina því án ykkar hefði þetta ekki verið hálft gaman en þetta er ekki BLESS heldur HALLÓ. Bestu kveðjur Dóra Wonder og Steinunn ÓlínaTakk fyrir samstarfið: Eldum Rétt, Mama Veitingahús, Icelandair, Íslandsbanki, O.Johnson & Kaaber, Hagkaup, og auðvitað fá líka þakkir allir vinir og vandamenn sem fylgdust misspenntir en styðjandi við uppátækið.Support the show
-
71
72. Braselíski frumskógurinn og íslenska lækningakonan Ravi
Send a textÁ veitingastaðnum Mama áttu þær Halldóra og Steinunn óvæntan fund við lækningakonuna Raví Jenný en hún er nýkomin til Íslands eftir 11 mánuða dvöl með Huin- Kuin þjóðflokknum.Raví segir okkur frá ferðum sínum, hvers hún leitaði og hvera hún var vísari. Kannski er lykillinn að okkar eigin plöntu og alþýðulækningamenningu fundin með hjalp þjóða sem enn hafa varðveitt lækningavisku þá sem hefur lifað með manninum frá örófi alda. langt áður en nokkrum datt í hug að eitthvað yrði til í framtíðinni sem héti spítali hvað þá heibrigðisfræði.Frábær gestur og fróður. Góða skemmtun!Takk fyrir samstarfið Eldum rétt og SjáðuSupport the show
-
70
71. Áramótaþáttur III. og síðasti hluti
Send a textÞessi III. hluti Áramótaþáttarins er rúsínan í pylsuendanum! Hér fer stuðið fram úr hófi og auðvitað fer nánast allt úr böndunum. Gleðilegt ár kæru hlustendur!Takk fyrir samstarfið Eldum rétt og SjáðuSupport the show
-
69
70. Áramótaþáttur II.hluti
Send a textÞessi II. hluti Áramótaþáttarins fer einnig fram á uppáhaldsstaðnum, Mama, í Bankastræti og þar taka þær Steinunn Og Halldóra á móti gestum við hringborð. Þar er sötrað heilagt Kakó og Kambucha og rýnt í himinhvolfin. Nú æsast leikar! Fegurðardrottningar, völvur, lögmenn, kærastar, söngkonur og atvinnu álfkonur mæta á svæðið!Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og SjáðuSupport the show
-
68
69. Það eru að koma áramót 25/26 - Spjallað við merkar konur I. hluti
Send a textÍ þessum þætti sitja vinkonurnar á sínum uppáhaldsstað, Mama, í Bankastræti og taka á móti gestum við hringborð. Þar er sötrað heilagt Kakó og Kambucha og rýnt í himinhvolfin. Í þessum fyrsta hluta eru gestir enginn annar en Nikkó, eða Nicolas Pétur Blin eiginmaður Halldóru sem er neyddur í stutt viðtal en svo kemur engin önnur en Esjudóttirin vitra, Linda Mjöll Stefánsdóttir, drottningin á Skrauthólum, sem nemur og les fjöllin og árnar, hafbrimið og hvísl vinda háloftanna og þær skrafa um landið okkar fagra, tungumálið, áramót, það að vera dreki og gæta þess hvert halinn mann slæst eð aí hvað eða hvern... Ingibjörg Magnadóttir myndlistarmaður og sprenglærður þerapisti sest við hringborðið og þá tekur sköpunarverkið sem þátturinn allur er bæði nýjar og spennandi vendingar. Við áramót er að mörgu að hyggja, hverju á að sleppa og hvað skal varðveitast áfram í huga og hjarta!Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu gleraugnaverslunSupport the show
-
67
67. Gleðilegur jólaþáttur 2025
Send a textÞað eru lúnar vinkonur sem fara yfir jólaundirbúninginn sem virðist vera lítill sem enginn en þó, Halldóra, keypti sófa og Steinunn Eldar rétt um jólin í fyrsta sinn!Annars er sagt frá tilurð skemmtilegasta skötuboðs aldarinnar sem fram fór á Þorláksmessu 2025. Geta líksnyrtar gefið ráð gegn ólykt, Steinunn hringir í besta útfararstjóra landsins og fær hjá honum góð ráð! Börnin, mennirnir og hvað vilja þeir eiginlega í jólagjöf!Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu GleraugnaverslunTil að gerast áskrifandi þarf að fara á tal.is/hendenniSupport the show
-
66
66. Virk-ilega farið yfir víðan völl
Send a textSteinunn vill gjarnan vinna við að ferðast um heiminn og stofna fyrirtæki sem hitir Tent-Living en Dóra segir þetta bara vera glorified tjaldútilegu. Varnarkerfi líkamans er til umræðu en er kerfi eins og hænsnanetTakk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu GleraugnaverslunFullan þátt má hlusta á hér: https://feeds.buzzsprout.com/2419952.rssSupport the show
-
65
65. Dauði hjartans viðtal við Jared Wholeheart
Send a textÍ þessum þætti fá Halldóra og Steinunn til sín enn að leiðbeinendum Halldóru, Jared Wholeheart, en hann er sprenglærður ráðgjafi og hefur átt litríkan starfsferil. Einnig ræða þær um andlega vakningu, dauða hugans og hjartans á þeirri leið. Hvað sambönd geta kennt okkur um okkur sjálf og um hið magnaða samspil hins kvenlega og karlmannlega í fari hvers og eins. Hvernig getum við lært að vinna með eigin orku og finna jafnvægi í því karlmannlega og kvenlega sem býr í öllum. Konur þurfa gjarnan að stíga inn í karlmannlega framkvæmdaorku en hjartað má ekki vanta. Og auðvitað verjum við tíma í að skýra nýjasta áhugamál Dóru eða light/dark feminine og light/dark masculine.Allan þáttinn fyrir þá sem kjósa að gerast áskrifendur má finna hér: https://tal.is/hendenniTakk fyrir samstarfið Eldum rétt og Sjáðu GleraugnaverslunSupport the show
-
64
64. Steinn um Stein frá Steini til Steins (Steinn Steinarr)
Send a textHalldóra hefur tekið upp huggulegan lífsstíl og fræðir Steinunni um þær raunir sem hún hefur komist í við að gera hýbíli sín að tímaritaverðu ljósmyndaefni. Magga Erla Húsahvíslari kemur til sögunnar en hún kemur og galdrar inn á heimilum með því að færa til húsgögn, færa til myndir og leikur sér og endurnýtir eigur fólks sem fyrir er á staðnum - Kona með auga eins og Steinunn segir. Fyrrilíf eru til umræðu enda varð Steinunn fyrir þeirri merkilegu reynslu að reyna það líkamlega að hafa verið skopparakringla í fyrra lífi. Draumar um nýjar útflutningsvörur eru reifaðir og svo sökkva þær stöllur sér ofan í nokkur ljóð Steins Steinarrs sem mörg eru svo óheyrilega skemmtileg.Support the show
-
63
63. Einsetukonur og tækifærissinnar
Send a textSteinunn ver sig fimlega þegar Halldóra reynir að fá hana til að axla ábyrgð á gengdarlausri leti sinni og vinnuframlagsleysi. Halldóra er langþreytt á gangi mála og reynir að ala vinkonu sína upp án árangurs. En Human Design þeirra vinkvennanna er undir og ýmislegt er gaman að skoða í kortum beggja enda eru þær báðar í því sem þær kalla ´transision´ án þess að þær skýri það nokkuð frekar. En stöllurnar eru að leita a vit nýrra ævintýra á sama tíma og móðurhlutverkið er að hristast af þeim. Þetta er umhleypingatími í lífi beggja og vaxtarkippirnir hríslast um stúdíóið.Takk Íslandsbanki, Eldum rétt og Sjáðu. Við kunnum að meta stuðninginn!Ást og friðurTil að gerast áskrifandi og sérlegur stðningsmaur hlaðvarpsins: tal.is/hendenniSupport the show
-
62
61. ,,Ég er eiginlega alveg orðlaus“ Ólafur Stefánsson eins og hann er bestur
Send a textSteinunn þekkir tvo íþróttamenn og annar er gestur þeirra Halldóru í þessum mjög þætti. Gesturinn er enginn meðalmaður, óvanalegur og einlægur, sá einstaki Óli Stef! Í fyrstu er gesturinn orðlaus, sem hann segir hollt.en þetta einlæga samtal fer um víðan völl enda þrír sveimhugar í leit að kjarna sem hvergi er að finna.Takk Íslandsbanki, Eldum rétt og Sjáðu. Við kunnum að meta stuðninginn!Ást og friðurSupport the show
-
61
60. Þetta er fyrsti verulega SEXÝ þátturinn!
Send a textÍ þessum þætti verður farið yfir óvenjulegt boðskort sem Halldóra hlaut á dögunum. Þar verður í boði að vera allsber en töluverður áhugi er að myndast hjá þeim stöllum um að ganga um naktar en sérstaklega ber á þessu hjá Halldóru. En hvað er nánd og hversu mikil nánd er Ok, of mikil o.s frv. Allt þetta of fleira á lendum þess erótíska verður rætt og krufið.Elsku áskrifendur, þessi fyrsti þáttur í læstri dagskrá er krassandi, allavega finnst okkur það enda báðar annálaðar teprur. Þau sem vilja gerast svo elskuleg að gerast áskrifendur færið ykkur hingað hlustið á þáttinn í heild sinni hér: https://tal.is/hendenni. Takk Íslandsbanki, Eldum rétt og Sjáðu. Við kunnum að meta stuðninginn!Support the show
-
60
59. Viðtal við algjöran Eðalmann - ADI ÆVINTÝRI
Send a textSumir þættir podcastsins eru teknir upp á matsölu-og samfélagsstaðnum Mama í Bakarabrekkunni. Þar er fallegt og ört stækkandi samfélag fólks sem kýs að leggja stund á andlega iðkun, borða heilnæma náttúrufæðu og drekka gullna túrmerik drykki og draga sér svo sem eins og eitt tarot spil. Einn höfuðpaurinn á Mama er Adi Ævintýri, andlegur kennari og leiðbeinandi. Hann leggur ástundun á Natha Yoga, hefur heillandi hugmyndir um lífið o tilveruna og er alveg ævintýralega opin, fróður og skemmtilegur gaur. Takk fyrir stuðninginn Íslandsbanki, Sjáðu Gleraugnaverslun og Eldum Réttvið kunnum að meta stuðninginnSupport the show
-
59
58. Hjónalíf, James Bond á Bora Bora – Halldóra ræðir við eiginmann sinn
Send a textSteinunn skrópaði í þennan þátt og því brá Halldóra á það ráð að taka viðtal við eiginmann sinn Nikkó en um engan er þeim Steinunni meira tíðrætt um. Hjónin stikla á hjónamálum, Nikkó segir sögur frá uppvaxtarsögur frá Marokkó, kostulegar sögur af skurðlækninum pabba hans og einhver óskiljanlegur galdur er í því að heyra hjón tala saman þó þau viti vel að það er verið að taka þau upp. Takk fyrir stuðninginn Íslandsbanki og Sjáðu Gleraugnaverslun• uppruni í Marokkó og sundruð minning• kerfi eins og skóli og heilbrigðisþjónusta sem flækjur• flutningar, tungumál og auðkenni sem áskoranir• ferðir og tákn, frá Galapagos til poppmenningar• líkamsþröskuldar og þjálfun sem mælanleg saga• netumræða, misskilningur og hægari skýringar• fjölskylda sem bæði skjól og stormur• smáar gjörðir sem byggja upp daglegt öryggiSupport the show
-
58
57. Veitingahúsið Mensa og minningarnar
Send a textHvað gerist þegar kakóbolli kveikir á minningu og bók breytist í brú á milli heima? Við sitjum saman yfir Mensu, matreiðslu- og minningabók sem setur fjölskyldu, unglingsár og samfélagið okkar við saman borð þar sem rababarabaka, salöt og glæstar kökur voru meira en bara matur. Sögur sem eru bæði fyndnar og hjartnæmar: konan sem borgaði með fallegum steinum, draugurinn sem tók hljóðlátan morgungang, og búálfar sem fela lykla þar til þú biður kurteislega. Á leiðinni heiðrum við konur sem þora og gera, eins og Gunnhildi og Pat, og rifjum upp litla greifann og fleiri litrík andlit sem lifðu á Mensu.Takk fyrir stuðninginn Íslandsbanki og Sjáðu Gleraugnaverslunvið kunnum að meta stuðninginnSupport the show
-
57
56. Frá verkjum til visku – Viðtal við lækningakonu (Ana Bloom)
Send a textLjós kviknar á í öllum hornum hugans þegar Anna Bloom stígur inn og segir okkur frá ferli sem byrjar í líkamanum en endar í rýminu þar sem hugrekki, húmor og heilun mætast. Galdra og lækningakonan Ana Bloom hefur frá mörgu að segja og hagnýt galdaráð leynast í samtalinu sem má prófa strax—gulur pýramídi til að finna týndan hlut, grænn styrkur fyrir plöntuna sem á erfitt.Ana afhjúpar hvernig plöntulækningar geta verið helgir kennarar sem krefjast samhengi, aga og leiðsagnar, og hvernig húmor andans heldur okkur mjúkum þegar við horfum á óreiðuna og röðum til. Íslendingar óvenju margir hafa opið þriðja augað, þar sem næmni er rík en efasemdir landans eiga sér rót í menningu og sögu. Anna útskýrir orkusvið og hvernig agi, mörk og einlæg samskipti láta innsæið þjóna lífinu í stað þess að yfirtaka það. Takk fyrir stuðninginn Íslandsbanki og Sjáðu Gleraugnaverslunvið kunnum að meta stuðninginnSupport the show
-
56
55. Frá kvíða til sjálfsmildi: reynslusögur af sveppum, microdósing og Ayahuasca
Send a textBókahillan varð að hliði inn í hugrekkið. Við förum frá hæðni og hálfkæringi yfir í djúpar sögur af microdósum, sveppum og ayahuasca, þar sem kvíði ´ breytingaskeiðinu, svefnleysi og stjórnsemi víkja fyrir mildi, leikgleði og heiðarlegri skuggavinnu. Á leiðinni skoðum við hvernig Portugal nálgast afglæpavæðingu og hvers vegna skaðaminnkun, öryggi og umgjörð skipta öllu þegar fólk velur að ferðast inn á þessi ókunnu svæði.Við lýsum ferð þar sem rödd verður að söng, sjálfstraust styrkist og síðan opnast erfiðari lög—innri „arkitektúr“ sem hrynur og byggist upp, „gullbygging“ í hjarta sem tákn nýrra burðarása. Fjölskyldusaga um ósagða sorg fær nýtt rými og byrði er lögð niður af virðingu. Ayahuasca er upplifað sem líkamlegt flóð og sjónræn mósaík sem leiðir til óvæntrar miskunnar gagnvart sjálfum sér; smáatriði eins og „tann-sýn“ breytist í hagnýta umönnun. Dans verður að hreinsun, aðferð til að leysa hugsanabindingar og leið inn í eðlislægan léttleika. Eftirvinnan heldur svo áfram í EMDR þar sem varnir hafa linast og dýpri vinna verður möguleg.Við berum saman um sveppi og ayahuasca án áróðurs: ólíkar leiðir, sama markmið—að færa okkur nær okkur sjálfum. Fortíð, nútíð og framtíð renna saman í líkamanum þegar við mætum minningum án flótta. Ef þú ert forvitin(n) um microdósur, skaðaminnkun, örugga umgjörð og hvernig að tengjast líkamanum getur mýkt daglegt líf, þá er þetta rétti þátturinn. Gerðu þér greiða: hlustaðu, hugleiddu og deildu með vini sem gæti þurft mildi í dag. Gefðu okkur umsögn, gerstu áskrifandi og segðu okkur—hvaða skref kallar á þig núna?Takk fyrir stuðninginn Íslandsbanki og Sjáðu Gleraugnaverslunvið kunnum að meta stuðninginnSupport the show
-
55
54. Frá fordómum til fræðslu: Tóta töfrakona og kannabishjúkka
Send a textÞórunn Thors Jónsdóttir er gestur Halldóru og Steinunnar en hún hefur um árabil leiðbeint Íslendingum sem nota kannabis í lækningaskyni. Þú heyrir sögur sem kveikja von—frá sjúklingunum sem endurheimta svefn og matarlyst til kvenna sem finna loksins tök á endómetríósu og miklum tíðaverkjum. Við förum frá bókaskápnum og brandaranum yfir í djúpa, heiðarlega umræðu um lífsgæði, virðingu fyrir líkamanum og frelsi til að velja náttúrulegar leiðirb til lækninga. Við brjótum niður mýtur um kannabis og rýnum í endókannabínóíðakerfið—hvernig líkaminn bregst við virkum efnum, af hverju svörun er einstaklingsbundin og hvernig hægt er að samræma olíur og lyf án óþarfa áhættu. Við tölum opinskátt um RSO, CBD og THC.Takk fyrir stuðninginn Íslandsbanki og Sjáðu Gleraugnaverslunvið kunnum að meta stuðninginnSupport the show
-
54
53. Hinn fullkomni Gestur II ( Lífsskoðanir og gildi) Seinni hluti viðtals við Gest Pálmason
Send a textÍ kjarna mannlegrar tilveru er samband okkar við reglur, gildi og samfélagið grundvöllur alls. Þessi framhaldsþáttur með Gesti Pálmasyni kafar djúpt í þessar pælingar og kannar hvernig mótþrói gegn yfirvaldi getur verið hluti af erfðamengi okkar og uppeldi.Þátturinn skoðar líka ólíkar nálganir á markmiðasetningu og skipulag. Sumir einstaklingar setja sér aldrei markmið en ná samt árangri, meðan aðrir þrífast á skipulagi. Þessi fjölbreytileiki er einmitt styrkur í teymisvinnu, þar sem ólík gildakerfi og nálganir mynda sterka heild.Sérstaklega áhugaverð er umræðan um samband peninga, valds og hugmynda. Steinunn er með hugmynd. "Mér langar að búa til alveg nýtt hagkerfi fyrir heiminn, sem er hugmyndadrifið en ekki peningadrifið." Margir af ríkustu einstaklingum heims eru að skipta lífsgæðum sínum fyrir peninga og hugmyndir um framtíðarlífsgæði, en enda oft einangraðir í ótta.Takk fyrir stuðninginn Íslandsbanki og Sjáðu Gleraugnaverslunvið kunnum að meta stuðninginnSupport the show
-
53
52. Hinn fullkomni Gestur: Gildakerfin okkar (Gestur Pálmason)
Send a textÞegar þú skilur gildakerfi þín sérðu heiminn í allt öðru ljósi. Í þessum spennandi þætti förum við í djúpt ferðalag í gegnum þróun mannlegra gilda, allt frá grunnþörfum um að lifa af upp í heimsmiðaða hugsun.Hvað rekur þig áfram? Er það öryggið í að tilheyra hópi, löngunin til að hafa áhrif, reglur og skipulag, eða kannski draumurinn um betri heim? Með hjálp Gests Pálmasonar förum við í gegnum mismunandi gildakerfi sem hafa þróast í mannkynssögunni.Við ræðum hvernig þessi gildakerfi eru eins og mismunandi lituð gleraugu sem við notum til að horfa á heiminn. Þegar þú sérð sömu atburði í gegnum ólík gleraugu verður upplifunin gjörólík. Við köfum líka í hvernig innri raddir okkar - oft frá gildakerfum sem við höfum ýtt frá okkur - geta veitt okkur innsýn í faldar hliðar persónuleika okkar.Það sem gerir þessa umræðu sérstaklega áhugaverða er hvernig við tökumst á við niðurstöður úr persónulegu gildakerfaprófi sem sýnir ólíkar niðurstöður þátttakenda. Í gegnum þessar niðurstöður sjáum við hvernig sumir einstaklingar eru drifnir áfram af hugmyndum frekar en peningum, á meðan aðrir sjá reglur sem takmarkanir á frelsi en ekki nauðsynlegan ramma.Það er gaman að taka gildakerfapróf sjálf/ur og uppgötvaðu hvað drífur þig áfram. Þú gætir komist að því að þú ert allt öðruvísi en þú hélst! Gestur getur leitt þig áfram.Takk fyrir stuðninginn Íslandsbanki og Sjáðu Gleraugnaverslunvið kunnum að meta stuðninginnSupport the show
-
52
51. Leiðin heim er í gegnum eldinn, ekki framhjá honum (instagram viska)
Send a textLífið er ferðalag sem krefst þess að við horfumst í augu við allar hliðar okkar sjálfra - ekki bara þær fallegu. Í þessu samtali skoða Steinunn og Halldóra eðli sjálfsvinnu og BREAKING NEWS er að sjálfsþroski snýst ekki um að losna við erfiðu hlutina.Margir leita að "betri útgáfu" af sjálfum sér í gegnum andlegar æfingar, hugleiðslu eða jóga. En hvað ef sú leit er bara flótti? "Spiritual bypassing" hvað er það? Að vakna til vitundar um sjálfan sig er ekkert bara gott því oft fylgir því sorg að fatta hversu lengi við höfum verið fjarverandi frá okkur sjálfum. Þær Halldóra og Steinunn ræða hvernig sambönd okkar verða okkar bestu kennarar, því í samskiptum við aðra speglast allt sem við þurfum að vinna með í okkur sjálfum. Þegar við verðum reið eða særð, er það oft barnið innra með okkur sem er að bregðast við.Innra barnið er í aðal- og aukahlutverki í þessum þætti enda órjúfanlegur og fegursti þráður í sálu hverrar manneskju.Takk fyrir samstarfið Íslandsbanki og Sjáðu Gleraugnaverslun.Support the show
-
51
50. Að sitja með sjálfum sér og elska illmenni (Vigfús Bjarni í viðtali)
Send a textHvað gerist þegar við sleppum tökunum? Hér hefst ferðalag inn í kjarna mannlegrar reynslu þar sem við könnumst við mikilvægi æðruleysis í daglegum æfingum. Enginn verður óbarinn biskup svo þær Steinunn og Halldóra fá til sín Vigfús Bjarna Albertsson til spjalls og ráðagerða. Hann sleppur reyndar óbarinn enda ekki biskup heldur rithöfundur, prestur og sálgætir.Í þessu einlæga samtali við Vigfús skoða þær Steinunn og Halldóra hvernig þjáningin er óhjákvæmilegur hluti af lífinu og hvernig við getum lært að lifa með henni. Þau kannast öll þrjú við það hvernig gömul sár vakna og kalla fram viðbrögð sem við skiljum ekki alltaf en ástæða finnst þeim til að fjölyrða um sár sem græða sár en það heiti ber nýjasta bók Vigfúsar.Dalai Lama og orð hans um mikilvægi þess að æfa samúð gagnvart þeim sem við kunnum ekki að meta eru að auki rædd og sammála eru þau um að þar finnist raunverulegur vöxtur. Lærum að elska illmenni er kennsla dagsins.Takk fyrir samstarfið Íslandsbanki og Sjáðu GleraugnaverslunSupport the show
-
50
49. Móðurhlutverkið og kannabislækningar
Send a textMóðurástin! Þurfum við hana? Getum við lifað án hennar? Uppeldisfræðingarnir ...hm...Steinunn og Halldóra tala fjálglega um uppeldi en það er lán að þær skuli ekki hafa nokkurt átorítet í þeim efnum. Umræðan snýst svo dálítið mikið um heilsu kvenna enda hafa þær stölluð hótað að tóra lengur en gott þykir. Steinunn talar annars nánast í viðstöðulausum um ráðstefnu sem er væntanleg, þar sem sérfræðingar munu deila nýjustu rannsóknum á áhrifum kannabis á kvenlíkamann. Hvað ef lausnin við þínum verkjum leynist í náttúrunni sjálfri? Takk fyrir stuðninginn Íslandsbanki og Sjáðu Gleraugnaverslunvið kunnum að meta stuðninginnSupport the show
-
49
48. Skuggavinna og drullan í sálinni (Endurtekin bók Papalangi)
Send a textAndans dýr Steinunnar, eða spirit animal, er ugla og hún holdgerðist sem ugla í samkvæmi nú fyrir stuttu og veit nú hvernig það er að vera fiðraður. Fróðlegt fyrir fuglaáhugamenn. Dóra er sem oft áður að velta fyrir sér the dark female sem hún reynir nú að styrkja í sér með því að vera meiri tík svona dags daglega. Það er líka töluvert talað um hvernig ljósið lýsir upp myrkrið og hvernig myrkrið er ótrúlegt afl í leikhúsvinnu. Skuggavinna sem er aðaláhugamál vinkvennanna er mikið rædd og Steinunn mælir með að gangast við drullunni sem byr innra með okkur. Halldóra segir að ef maður eigi aðgang að einhverju æðra þá sé auðveldara að ferðast um hina lágu tíðni. Ekkert býr til lægri tíðni en alkóhól en báðar valið að drekka ekki í lífinu þótt þær innbyrði nú ýmislegt sem sumum gæti þótt vafasamt. Hvað þarf að gera ef maður er stuck? Er óviðrið alltaf bara inni í okkur og er best að axla bara ábyrgð á eigin dyntum.Þökkum samstarfið: Íslandsbanki, Beautyklúbburinn, Sjáðu Gleraugnaverslun og Mama/White LotusSupport the show
-
48
47. Að koma út úr skápnum sem völva (Völva Suðurnesja)
Send a textÞað kemur á daginn að bæði Halldóra og Steinunn telja sig völvur svo það er um að gera að fara að panta hjá þeim tíma. Þær ræða hvernig sýnir og hlutir birtast þeim eins og þetta rugl sé einhver vitniburður um forspárgáfu þeirra. En til umhugsunar er bókin, Völva Suðurnesja um alvöru íslenska völvu sem sagði: Ég er að sjá“, þegar hún var lítil og fór sálförum. Steinunn fær afmælisgjöf og dregur spil fyrir Dóru. Báðar segja þær af brúðkaupum helgarinnar en Halldóra veislustýrði í einu slíku því hálfbróður hennar gekk að eiga fræga íslenska söngkonu.Support the show
-
47
46. Alversti eða besti þátturinn hingað til! (Konur og ástir, Nýja testamentið)
Send a textÞað kveður við nýjan tón í þessum þætti þar sem Halldóra gerist djörf hvað innslög og klippingar varðar. Hljóðið í þættinum reyndist ekki vera fullkomið og því þurfti að bútasauma þáttinn eins og handverkskonum einum er lagið. Útkoman – algjör nýlunda í hlaðvarpsþáttagerð á Íslandi ef ekki í heiminum! En tvær bækur koma við sögu þessu sinni, sem lesið er úr af handahófi verða því miður ekki til mikils innblástur en upp bætir að þær gera atlögu við ástarsöngva og ljóð sem þær reyndar syngja falskt og að því má hlægja sig máttlausan. Vesalings konurnar.Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Beautyklúbburinn, Sjáðu GlerauguSupport the show
-
46
45.Partý, partý, partý! Öll Heimsins partý!
Send a textHalldóra er skemmtanasjúk og kemur með partýbók og Steinunni langar strax á kjötkveðjuhátíðina í Ríó. Verður Freezing Man svar Íslands við Burning Man in the US of A!? Það er óviðeigandi hvað Halldóra talar mikið og oft um það að hún vilji vera allsber, hvað gengur konunni til? Báðar hafa þær verið Fjallkonur og þurfa að rifja upp þá óhæfu að Steinunn hafði verið fjallkona eftir mikið partýstand og stuttan svefn og að Halldóra er svo ólandsföðursleg að henni hefur aldrei dottið í hug að fara að sjá aðrar fjallkonur flytja þjóðhátíðarljóðið! Þátturinn tekur óvænta vendingu þegar Halldóra skellir inn innslagi sem hún tók á vettvangi.Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Beautyklúbburinn, Sjáðu GlerauguSupport the show
-
45
44. Breytum bulli í gull (Kría siglir um suðurhöf)
Send a textEf við byggjum í landi þar sem bara er hægt að týna ávexti sér til matar sem nota á samdægurs því annars myndi allt skemmast þá yrði okkur aldrei kalt en þannig er það í Frönsku -Pólónesíu þar sem Halldóra dvaldi ásamt fjölskyldu sinni. Sjöl eru mesta þarfaþing á ferðalögum en í þessum þætti má læra um notagildi sjala í tískuinnslagi frá Dóru. Ýmislegt er rætt um gleraugu í þessum þætti en þó ekki miðaldragleraugu sem kemur á óvart þar sem Halldóra og Steinunn sigla hraðbyri inn í blindu elliáranna. Bókin Kría siglir um suðurhöf er i miklu uppáhaldi hjá þeim stöllum og þær velta fyrir sér nábýli hjóna þegar ekkert er nema himinn og haf og bátur sem ber þig eitthvert að því er virðist út í buskann. Steinunn hefur áhuga á umbreytingunni, t.d að breyta því sem erfitt er í eitthvað gott. Að breyta bulli og rugli í gull! Kannski eru þær báðar að gerast alkemistar án þess að fatta það?Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, BeautyklúbburinnSupport the show
-
44
43. Þar sem háir hælar hálfan dalinn fylla (Leikrit eftir AI og Ljóð eftir RUMI)
Send a textTröllskessurnar Fossatussa og Fjallatussa létu AI skrifa fyrir sig leikrit og um það skal fátt sagt utan það að það er ansi lélegt en stóra spurning dagsins er: Ertu dropinn í hafinu eða hafið í dropanum? Er auðveldara að vera allt en að vera eitthvað afskaplega smátt? Töluverð hætta virðist vera á því að Steinunn sé að gerast súfisti því hún leggur nú stund á snúningsdans sem kemur jafnvægi á vagus taugina sem engin veit neitt um. Melónur koma við sögu en er hægt að senda persónuleikann sinn í frí? Kannski senda hann bara til útlanda svo sálin fái meira vægi því hún er heilanum vitrari og víðsýnni. Persónuleikinn þinn gæti viljað vera kokteilboðum en hvar vill sálin vera? Kannski bara með öðrum sálum?Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, BeautyklúbburinnSupport the show
-
43
42. Fjallatussur og hin guðdómlegi kvenleiki (Gullkorn úr íslenskum bókmenntum)
Send a textÞessi þáttur er tekin upp á uppáhalds hang-outi þeirra vinkvenna, andlega menningarheimilinu Mama í bakarabrekkunni. Nú er loks hægt að velta fyrir sér kvenleikanum þar sem þær eru báðar komnar fram yfir síðasta söludag og í Halldóru er að fæðast fjallatussa. Ljósu og dökku hliðar kvenleikans og karlmennskunnar eru krufnar til mergjar enda löngu komin tími til að í það mál allt fáist niðurstaða áður en Steinunn kyrkir sína ljósu karlmennskuhlið. En þetta er að öðrum þræði þáttur um það hvað maður er ímyndunarveikur um mikilvægi sitt í lífi annarra. Fyrir söngelska er þátturinn kannski ríkulegur því töluvert er sungið, rappað og skattað. Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, BeautyklúbburinnSupport the show
-
42
41. Þrettán vasaklúta þáttur (Bróðir minn Ljónshjarta e. Astrid Lindgren)
Send a textSteinunn fór í fyrra lífi i fyrralífslestur og reyndist hafa verið svört ambátt og breskur grasafræðingur seint á 18. öld. Halldóra reynist vera frambærileg á kínversku enda downloadar hún bara tungumálum í gegnum Akashic-skjölin og svo var hún náttúrlega Kínverji í fyrra lífi að sögn. Konur eru að taka yfir heilbrigðiskerfið enn og aftur enda eru það ætíð þær sem sjá um aðhlynningu þegar hana er hvergi að fá. Steinunn fullyrðir að konur séu orðnar uppgefnar á því að vera sjúkdómsgreindar eftir áföll í stað þess að fá bara tíma til að jafna sig, því mannsálin geti vitanlega læknað sig sjálf. Myndatökur sem ganga eins og smitsjúkdómur um netið eru fjölskyldumyndir á ströndum þar sem allir klæðast hvítu. Er HELLO tímaritið ábyrgðaraðili? Halldóra fær hreinlega andarteppu þegar hún skoðar húsa og hönnunarblöð sem er kannski eitthvað sem hlustendur kannast við?Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, Beautyklúbburinn, Sjáðu-GlerauguSupport the show
-
41
40. Nærföt útfararstjórans og The 4 fucks (Speki Konfúsíusar)
Send a textÞað kemur í ljós að Steinunn átti nærfataskúffu sem hæfði útfararstjóra en hefur nú, af því að hún las það einhverstaðar, kannski á Smartlandi, að það væri hollara að klæðast glaðari litum næst sér. Halldóra byrjaði hinsvegar að klæðast björtum litum í hruninu og dvaldi langdvölum með fjölskyldu sína í sundlaugum Reykjavíkur til að forðast skarkala heimsins. Ef þetta hljómar undarlega þá tekur Halldóra upp speki Konfúsíusar sem ekki skyldi rugla saman við Confused-ius átrúnaðargoð Steinunnar sem er útsaumaður spekingur sem hangir á veggteppi. En sára barnið innra með okkur er til umræðu og litlu munaði að Steinunn kyrkti eða drekkti sínu!Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, Beautyklúbburinn og Sjáðu GleraugunverslunSupport the show
-
40
39. Að selja sig eða selja sig ekki (Spámaðurinn Kahil Gibran)
Send a textAð vera þræll markaðarins en vilja það eiginlega ekki er efst baugi. Stöllurnar Steinunn og Halldóra viðurkenna á sig vandræðagang miðaldra kvenna sem reyna að fóta sig á samfélagsmiðlum í ýmsum tilgangi. Þær leggjast svo lágt að biðla til hlustenda að dreifa fagnaðarerindinu þ.e podcasti þeirra - ekki er öll vitleysan eins. Sálarferðalagið er áfram til umræðu enda eru allir í rusli eða þess hefur Dóra orðið áskynja allt um kring og styður vedíska stjörnuspekin það vitanlega og þá er ekki annað í stöðunni en að grípa í Spámanninn og fletta upp heilræðum til að feta sig eftir.Support the show
-
39
38. Er sálin á eilífðarferðalagi? (Feður og synir e. Ivan Sergeyevich Turgenev)
Send a textHalldóra er að spá í vaxtarferðalag sálarinnar og hvar hún sjálf er stödd í því ferðalagi. Steinunn heldur því fram að í verönd hverrar manneskju búi þrír þræðir innra barnið, innra foreldrið og svo hið innra fullorðna sjálf. Þær eru óvanalega djúpar og einlægar í þessum þætti. Já það má segja að þessi þáttur sé á dýpinu, andlega dýpinu. Það er búið að vara ykkur við...hlustið ef þið þorið að kafa, kafa niður á djúpsævið bláa. Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, Beautyklúbburinn, Sjáðu-GlerauguSupport the show
-
38
37. Stóru vinkonurnar eru bestu vinkonurnar! ( She is my sweetheart)
Send a textÞær Halldóra og Steinunn eiga báðar því láni að fagna að hafa átt fjölmargar sterkar og góðar fyrirmyndir í lífinu og hvað er betra en að eignast slíkar að vinkonum. Þórunn Elísabet Sveinsdóttir listakona með meiru en ein þeirra ofurkvenna sem hafa fylgt þeim stöllum stóran hluta ævinnar og til umfjöllunar í þessum þætti, er eins og Steinunn kallar það einhver fallegasta ástarjátning allra tíma en það er bókin, She is my sweetheart for 50 years ,en það er listaverka og ljósmyndabók sem eiginmaður Þórunnar, Tótu, á heiðurinn af. Ástin, lífið og vináttan, hvað viljum við meira?Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, Beautyklúbburinn, Sjáðu-GlerauguSupport the show
-
37
36. Það eru allir og amma þeirra að taka sveppi
Send a textÍ þessum þætti dregur aldeilis til tíðinda því Steinunn nuddar hendurnar og fæturnar á Halldóru þar til hún sofnar næstum. Þetta ku vera heimsviðburður. Ætla má að Steinunn hafi með ráðum boðið upp á nuddið svo hún sjálf gæti talað svo gott sem í viðstöðulausum. Halldóra fær ferðasögu af heilsudvöl í Portúgal þar sem Steinunn borðaði ofskynjunarsveppi og talaði við blóm, býflugur og runna og vill helst núna ekki við aðra tala. Halldóra er af ákefð að hugsa upp hvernig hún getur opnað leikskóla fyrir fullorðna vegna þess að það er það sem koma skal! Leika meira, vinna minna, elska meira, hata minna!Þökkum samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, Beauty klúbburinn, O.Johnson&Kaaber, Sjáðu-Gleraugnaverslun.Support the show
-
36
35. Erum við stjörnuryk eða zombie-ar? Er hugsanlegt að sumir séu hvortveggja.
Send a textFyrst segir frá kuðungum sem Halldóra bar yfir hálfan hnöttinn. Fermingar ber á góma en hvorki Steinunn né Halldóra fermdust og þess vegna kannski er þetta podcast þeirra svona undarlegt. Er náttúrutrúin það merkilegasta sem við Íslendingar eigum í menningu okkar? Það finnst Steinunni. Halldóra segir frá óvanalegum uppeldisaðferðum þar sem hún hræddi börn sín til varkárni með tröllum. Zombi-ar koma mjög við sögu enda hefur Halldóra merkilega sögu af þeim að segja. Getur einhver vond orka tekið yfir líkama annarra? Er Sjálfskaðahegðun tegund af zombie-isma? Það versta sem getur gerst er að lenda á veltiskilti!!!Þökkum samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, Beauty klúbburinn, O.Johnson&Kaaber, Sjáðu-Gleraugnaverslun.Support the show
-
35
34. Hægra heilahvelið, Freud og ferðalagið. (Kuan Yin og Freud)
Send a textHalldóra dregur spil frá gyðju samkenndarinnar Kuan Yin og færir spilið Halldóru nýja sýn enda á hún að leita að auganu sem býr í hjartanu, hvernig sem hún fer nú að því. Hvað segja ferilskrár um manneskjur yfirleitt? Eru manneskjurnar oft og tíðum fangar fortíðarinnar því hver ertu ef þú sleppir tökum á sögunni þinnii? Freud ber á góma og salfræðingur sem Halldóra þekkir kemur í heimsókn með óbeinum hætti. Dálítið eru þær vinkonurnar ósammála um hvar sálin býr en um tilveru sálarinnar eru þær þó alveg sammála.Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, Beautyklúbburinn, Sjáðu-Gleraugnaverslun, O.Johnson&KaaberSupport the show
-
34
33. Má bjóða þér far? Til Helvítis? Í gegnum hreinsunareldinn? ( Guðdómlegi gleðileikurinn)
Send a textÍ fjarska heyrist mófuglasöngur enda er vorið á hátindi sínum. Heimsbókmenntirnar eru undir og ferðast þær Halldóra og Steinunn eftir leiðakerfi sjálfsvitundarinnar í gegnum sjálft helvíti og hreinsunareldinn í leitinni að paradís. Eru örvæntingarfyllstu augnablik í lífi okkar tækifæri í dulargervi? Hvernig komumst við úr limbói tvíhyggjunnar og aftur heim til hjartans? Halldóra átti uppbyggilegt samtal um dauðasyndirnar við gervigreindina og syndaskrá manneskjunnar er skoðuð gaumgæfilega.Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, Beautyklúbburinn, Sjáðu-Gleraugnaverslun, O.Johnson&KaaberSupport the show
-
33
32. Skjalasafn alheimsins - megum við fara þangað í beinni? (Akashic hugleiðsla)
Send a textÞessi þáttur er tekin upp í Skorradal í sumarbústað Halldóru þar sem Steinunn á griðastað og myndar samband við friðland og fiðraða. Halldóra umskapar sjálfa sig og breytist í transmiðil snemma þáttar og þá kemur við sögu hinn kvensjúki Pétur og reyndar ein vinnukona sem hann barnaði margoft í sveitinni. Napóleonsskjölin eða Akashic skjölin eru heimsótt og hauslaus geimvera vill hafa samband við Steinunni. Hvað þýðir það að ganga öfugan sólargang? Það vilja auðvitað allir vita en svörin fást náttúrlega aðeins með því að hlusta.Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, O.Johnson&Kaaber, og Sjáðu-GlerauguSupport the show
-
32
31.Á mörkum raunveruleikans (Macbeth)
Send a textHalldóra fékk eiginmann sinn til að nálgast Alheimsskjalasafnið eða Akashic skjölin í hugleiðslu og má segja að þau hafi bæði lent í töluverðum ógöngum því þegar þangað er komið er nauðsynlegt að stimpla sig út því annars er maður fastur milli tveggja heima. Steinunn segist svo jarðbundin að hún festist frekar í Napoleonsskjölunum eftir Arnald Indriðason. Fyrirvaralaust breytist Halldóra í söngvarann Jacques Brel og í kjölfar þess ræða þær stöllur handhafa sannleikans og það að lærðir benda á að oft rugli fólk skoðunum sínum saman við sannleikann, Það skyldi þó aldrei vera. Þær skella sér báðar í hlutverk hinnar metnaðargjörnu lafði Macbeth, nokkuð sem leikhúsunnendur ættu að láta fram hjá sér fara.Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki - Icelandair - Ó. Johnson & Kaaber - Sjáðu GleraugnaverslunSupport the show
-
31
30. Viljiði vita leyndarmál? (The Secret)
Send a textFyrir leyndarmálasækna er þessi þáttur kannski nákvæmlega það sem þið voruð að leita að. Reyndar eru töluverðar líkur á að þið munið eiga erfitt með að skilja hvað fer fram, en það er vegna þess að Steinunn er komin á það sem hún kallar Tea n' Biscuits aldurinn! Dóra gerir uppgötvun! og mun svara því í þættinum, hvaða peningarnir koma! En það er sumsé bókin THE SECRET...fornfrægðarskrudda sem átti að þjálfa með fólki aðdráttaraflið sem býr innra með okkur öllum. En það þarf ýmislegt til að læra að bjóða því góða heim, nokkuð sem þær báðar eru að stúdera af nokkrum krafti.Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki - Icelandair - Ó. Johnson & Kaaber - Sjáðu GleraugnaverslunSupport the show
-
30
29. Voru páska-endurnar í Biblíunni? (páskaþáttur)
Send a textÞað er ekki gott að segja hvað fer fram í þessum þætti. Sjálf Biblían er undir en Halldóra getur ekki fyrir sitt litla líf fundið það sem hún ætlaði að lesa í hinni Helgu Bók! Krossfestinguna ber á góma enda styttist mjög í píslargöngu alls mannkyns og allir örugglega fyrir löngu búnir að afflísa litlu krossana sína. Þær ráðast nú heldur betur á garðinn þar sem hann er lægstur þegar þær harðfullorðnar konurnar reyna að ,,döbba´´endur, undir lok þáttarins. Andvarpa munu allir að þætti loknum.Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki - Icelandair - Ó. Johnson & Kaaber - Sjáðu GleraugnaverslunSupport the show
-
29
28. Ferðaskrifstofan Gaman Gaman! ( Ennegram)
Send a textFramtíðarplönin eru ljós, þær vinkonurnar Steinunn og Halldóra ætla að setja á fót leikjabúðir fyrir fullorðna og Dóra ætlar að sjá um excelskjölin og raða fólki á leigubíla. Steinunn hefur eftir ónefndum sérfræðingi að manneskjan hafi ekki bolmagn til að melta allar heimsins hörmungar, þegar við rétt náum utan um að hugsa um okkar nánustu aðstaðdendur. Halldóra kemur færandi hendi með afskaplega framandi hljóðfæri en ekki stoppar vankunnátta þær vinkonurnar. Þær leika á hristur sem þær hefðu kannski betur mátt sleppa.Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki - Icelandair - Ó. Johnson & Kaaber - Sjáðu GleraugnaverslunSupport the show
-
28
27. Þegar þú berð ljósið að myrkrinu verður myrkrið stórkostlega fallegt (Píkusögur)
Send a textGervigreindin veit allt um Halldóru og frægðarsól hennar og segir að hún hafi náttúrulegan en hráslagalegan kynþokka. AI harðneitar að gefa Steinunni ráðleggirngar um hvernig best væri að snúa sér ef hún vill sænga með Halldóru. Þær stöllur sökkva sér ofan í leiktexta úr verkinu Pikusögur og reyna fyrir sér í stunutúlkun með afdrifaríkum hlátursköstum því þroskinn er bara ekki meiri.Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki - Icelandair - Ó. Johnson & Kaaber - Sjáðu GleraugnaverslunSupport the show
-
27
26. Hversu oft í lífinu á maður að skipta um persónuleika? (Steina sofnar)
Send a textÁ þessi þáttur að taka breytingum og hætta að vera bókmenntaþáttur og verða þess í stað að henda fötum þáttur? Steinunn og Halldóra telja sig hafa ,,larpað“ allt lífið og myndu alla daga velja að ,,larpa“ umfram það að ,,lana“. Dóra segir frá því þegar hún kortlagði á annað hundruð einstaklinga sem hún tók í undarlega einstaklingsmeðferð. Kvíða ber á góma en hvað er til ráða þegar kvíðinn bankar upp á? Steinunn þarf nú ekki miklu að kvíða því hún sofnaði í miðjum þætti eða svo gott sem.Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki - Icelandair - Ó. Johnson & KaaberSupport the show
-
26
25. Lemdu á þér mjaðmirnar til að ná jarðsambandi (Jónas Hallgrímsson)
Send a textSteinunn er svo róleg í þessum þætti að halda mætti að hún eigi stutt eftir. Misgóðar ráðleggingar til stúlkna frá fyrri öldum koma fyrir þótt þær þættu nú ekki góðar tvíbökur í dag! Er gott að reyna að gleyma öllu því sem höfuðið spinnur upp og hugsa bara með hjartanu? Þegar Dóra fær áhuga á einhverju kviknar orka í líkamanum á henni, hvað meinar hún? Jónas Hallgrímsson svífur yfir vötnum. Halldóra setur fram kenningu: Kennarar velja sér að kenna það sem þeir voru verstir í og svo lemur hún sig í mjaðmirnar til að ná jarðtengingu. Hvernig er best að bregðast við ef einhver hverfur úr lífi manns eða bara missir áhuga á manni? Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki - Icelandair - Ó. Johnson & KaaberSupport the show
-
25
24. Kattaskítur og rándýr ilmvötn (Ilmurinn)
Send a textHalldóra hefur lagt í vana sinn að kaupa rándýr ilmvötn en nota þau síðan bara í einn dag á meðan Steinunn notaði sama ilmvatnið í þrjá áratugi en smyr sig nú eingöngu með ilmkjarnaolíum. Bókin Ilmurinn kemur við sögu, en á að hend'enni? Pablo, köttur á heimili Steinunnar skítur í blómapott og er hótað lífláti í miðjum þætti. Mun hann hálshogginn verða? Verður aftakan í beinni? Steinunn fullyrðir að við séum ekki að nýta skynfærin til hins ýtrasta? Gætum við lært að sjá með eyrunum? Hvernig plata má leigusala til að samþykkja hunda í leiguhúsnæði er kennt enda dettur fólki ýmislegt í hug til að ná vilja sínum fram.Support the show
-
24
23. Ástin er alheimsundrið mesta! (Jóhannes úr Kötlum)
Send a textÞetta er allra andlegasti þátturinn hingað til því smáskammtar á hugvíkkandi sveppum koma til tals og áhrif þeirra á þeytivindu hugans. Halldóra er gift vísindamanni og veit því allt um spegilfrumur sem eru alveg stórmerkilegur hluti af viðbragðskerfi okkar. Steinunn les ljóð Jóhannesar úr Kötlum og hann Jesús kemur við sögu enda erum við manneskjurnar eilíflega að fara í hans spor. Fæðast, þjást, deyja og upprísa! Steinunn segir frá ástarævintýri í lest enda eru lestarferðir rómantískar með afbrigðum. AI er skemmtilegt tól sem allir verða að kynna sér...Steinunn er greinilega komin í alvarlegt samband við gervigreindina eða eins og hún kallar það alheimsvitundina.Support the show
-
23
22. Þið munið öll! Þið munið öll! (Lokaæfing Svövu Jakobs)
Send a textFæddar 68´og 69' ólust þær vinkonurnar upp við kjarnorkuvána ógurlegu og núna ríflega 50 árum síðar eru kjarnorkustríðsógnanir að trenda aftur. Þá er bara eitt í stöðunni að skella sér niður í kjarnorkubyrgi Svövu Jakobsdóttur og leikrit hennar LOKAÆFINGU sem fjallar um íslensk hjón sem loka sig inni í einu slíku. Vill maður reyna að lifa af í slíku stríði eða deyja bara drottni sínum í blossanum eins og Halldóra málar það upp? Dálítið er talað um sjálfsfróun og kynheilsu kvenna, er kynorkan eftir allt heilunarorka? Steinunn er fullviss um að breytingaskeiðið er markaðssett sem helvíti á jörðu til að lama konur og til að selja þeim lyf í stað þess að breytingaskeiðið sé markaðssett sem nýtt upphaf, ný byrjun þar sem margar kvaðir eru að baki og kannski loks kominn langþráður tími til að hugsa betur um sjálfa sig.Support the show
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman bækur sínar í orðsins fyllstu merkingu. Þær ætla að byrja á því að gera rassíu í bókaskápunum. Skilja sauði frá höfrum, finna gersemar og handsama lygaþvælu og rusl. Í hverjum þætti draga þær fram skruddur og meta hvort nauðsynlegt sé að eiga skræðuna áfram, hvort lærdómur hafi verið meðtekinn eða alls ekki. Fer hún í öndvegi, í Hirðinn, eða er öruggast að brenna hana á báli?Rannsóknarspurningin er: Eiga, eyða eða gefa?Því einhvers staðar þarf tiltektin að byrja!
HOSTED BY
Á ég að hend'enni?
CATEGORIES
Loading similar podcasts...